Jæja, eru óbólusettir "verksmiðjur fyrir ný afbrigði"? Semsagt, á nú að þvinga þá sem afneita "bólusetningunum" í þær??

Það hefur ekki farið framhjá þeim sem hafa engan áhuga á því að láta sprauta þessum eiturefnum í sig sem eru þegar búin að stórskaða og drepa fólk um allan heim og hér á landi líka, að verið er að útmála þá sem hættulega þeim bólusettu, sem ættu nú þegar að vera komnir með vörn.

Var það ekki annars tilgangurinn með þessum sprautum?

"Óbólu­sett­ir gera meira en að stefna eig­in heilsu í hættu; þeir stefna einnig heilsu annarra í hættu ef þeir smit­ast af kór­ónu­veirunni, að sögn sér­fræðinga í smit­sjúk­dóm­um. Ástæðan er sú að eina leiðin fyr­ir kór­ónu­veiruna til þess að stökk­breyt­ast er sú að finna sér hýsil, sem lík­leg­ast er að sé óbólu­sett­ur ein­stak­ling­ur. 

„Óbólu­sett­ir ein­stak­ling­ar eru mögu­leg­ar verk­smiðjur fyr­ir ný af­brigði. Því fleiri sem óbólu­sett­ir eru, því fleiri mögu­leika hef­ur veir­an á að fjölga sér,“ seg­ir William Schaffner, banda­rísk­ur pró­fess­or í smit­sjúk­dóm­um, í sam­tali við CNN.

„Þegar veir­an fjölg­ar sér stökk­breyt­ist hún og gæti skapað nýtt af­brigði veirunn­ar sem er mun skaðlegra en fyrri af­brigði.“

Viðbót: Ég var að fá staðfestingu á því sem ég í raunar vissi, hann væri alls ekki óháður sérfræðingur. Það vill svo til að þessi "sérfræðingur" tók þátt í æfingunni Event201, sem fyrir einhverja furðulega "tilviljun" var haldin haustið 2019, rétt áður en þessi "heimsfaraldur" skall á.

"The Johns Hopkins Center for Health Security in partnership with the World Economic Forum and the Bill and Melinda Gates Foundation hosted Event 201, a high-level pandemic exercise on October 18, 2019, in New York, NY. The exercise illustrated areas where public/private partnerships will be necessary during the response to a severe pandemic in order to diminish large-scale economic and societal consequences."

Í guðanna bænum ekki taka því sem þessi maður segir sem einhverjum heilögum sannleika gott fólk, það er tími kominn til að fólk fari að átta sig á að það er eitthvað allt annað og verra í gangi en einhver veira sem "nauðsynlegt er" að bólusetja heimsbyggðina gegn.

Hver var heimsfaraldurinn hér á landi?

Dóu hundruðir eða þúsundir manna hér á landi, allt niður í kornabörn úr þessari veiru? Höfum við séð fólk detta niður dautt á götuhornum? Höfum við heyrt sírenuvæl allan sólarhringinn?

Svarið er nei, og þið vitið það vel. Svo hvers vegna voru og eru allir svona hræddir? Vegna okkur var SAGT, á stöðugum hræðslufundum sem ég kalla þá núna, að við ættum að vera skíthrædd!

Staðreyndin er bara sú að þeir sem dóu "úr veirunni" í fyrra voru langflestir háaldraðir og með undirliggjandi sjúkdóma. Ekki ein einasta ung manneskja eða barn dó, og lífslíkur þeirra sem veikjast eru 99,97%. Er þetta allur heimsfaraldurinn?

Vissuð þið þetta?

Vissuð þið að þann 19. mars 2020 var Covid-19 skilgreint sem flensa í Bretlandi, en ekki hættulegur smitsjúkdómur?

Samt er farsinn þar í landi búinn að vera yfirgengilegur, með endalausum útgöngubönnum, grímuskyldu, og núna þessum svokölluðu "bólusetningum."

Vissuð þið að hundruðir þúsunda mótmæltu þessum skelfilegu aðgerðum í London nýlega, en ekki var birt orð um það í íslenskum fjölmiðlum, en afsögn breska heilbrigðisráðherrans þótti fréttnæm?

Vissuð þið að í Bretlandi voru andlátin í fyrra hreint ekkert fleiri en í meðalári?

Vissuð þið að Bretar og Skotar gera ráð fyrir svo mörgum umfram andlátum næstu árin, að þeir vilja leigja auka líkgeymslur?

Hvað er framundan?

Lítill fugl hefur hvíslað því að mér að til standi að lauma í gegn lögum um SKYLDUBÓLUSETNINGU hér á landi á næstu dögum.

Mikið vona ég að fuglinn litli hafi ekki rétt fyrir sér, en mikið svakalega er búið að ljúga mikið að okkur hér á landi, og þau ykkar sem hafa lesið bloggin mín undanfarið eruð búin að fá það staðfest.

Hvað getur maður sagt núna? Guð blessi Ísland, eins og Geir Haarde forðum?

 

 


mbl.is Óbólusettir „verksmiðjur fyrir ný afbrigði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Jónsson

Prófið að lesa greinina hjá CNN og skipta út orðinu "óbólusettur" fyrir "gyðingur".

Inn í hvaða tíma erum við eiginlega að sigla?.... aftur.

Þröstur Jónsson, 3.7.2021 kl. 23:40

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Guð blessi Ísland og Guð forði okkur frá þessu siðblinda fólki sem vill koma þessu eytraða sulli í líkama sérhvers einstaklings sem byggir jörðina, nema auðvitað þá sem að sessu samsæri standa.

Tómas Ibsen Halldórsson, 3.7.2021 kl. 23:54

3 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Þröstur, já þú segir nokkuð! Við vitum að sagan er því miður að endurtaka sig núna, en á miklu stærri og skelfilegri skala.

Fólk á eftir að vakna upp við vondan draum þegar það gerir sér grein fyrir því hvað raunverulega er í gangi.

Var frelsinu ekki svipt af fólki á þessum tíma "Für Ihre Sicherheit"?

Og hvað er að gerast í heiminum í dag?

Kristín Inga Þormar, 4.7.2021 kl. 00:04

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas, já ég held að við verðum að biðja allar góðar vættir að bjarga því sem hægt er að bjarga, nú þegar búið er að dæla þessu eitri í megnið af þjóðinni, og stórum hluta annarra þjóða líka.

Við sem munum aldrei nokkurn tímann leyfa af fúsum og frjálsum vilja að neinum þessara efna sé sprautað í okkur eigum öll ættingja og vini sem hafa kallað okkur samsæriskenningarsmiði og eitthvað þaðan af verra.

Þetta fólk er líklega allt fullbólusett í dag.

En hvers vegna stöndum við í þessari baráttu, höfum við ekkert betra við tímann að gera?

Með hverjum deginum sem líður er að sannast betur og betur að þessar "samsæriskenningar" okkar eru bara napur sannleikur!

Kristín Inga Þormar, 4.7.2021 kl. 00:16

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Las á mbl að 10% þeirra sem tilkynna alvarlegar aukaverkanir eftir sprautu, deyi drottni sínum. Í lok fréttarinnar er auðvitað tekið fram að engin orsakatengsl séu milli bólusetningarinnar og dauðsfallanna.
Einmitt.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.7.2021 kl. 00:24

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jón, já þetta er ár hinna mörgu tilviljana eins og ég hef bloggað um áður.

Það er aldrei neitt sem "bendir til" tengsla á milli eiturgjafanna og andláta, ekki einu sinni þegar ungt og hraust fólk dettur dautt niður í kjölfar þeirra.

Ég er búin að sjá ótal umfjallanir um þetta í erlendum miðlum, en þetta þykir víst ekki fréttnæmt hér á landi, við fáum bara fréttir um að svo og svo margir hafi greinst með eitthvað "afbrigði" af veirunni og séu þess vegna í sóttkví/einangrun.

Ég hef skriflega staðfestingu frá Landlæknisembættinu að við keyrum þessi fölsku PCR upp í 40 snúninga, sem jafnvel glæpahundurinn Dr. Fauci er búinn að viðurkenna að gefi falskar jákvæðar niðurstöður.

Hér á landi er allt þaggað niður eins og hægt er, og ég er búin að heyra persónulega um mörg skyndileg andlát hér á landi sem flestir aðstandendur tengja ekki við sprauturnar, enda er þorri þjóðarinnar skíthræddur við þessa flensu vegna þess að því er sagt að vera það.

Ef einhver hefur lesið nýjustu bloggin mín, þá má sjá þar að ég er búin að hrekja lygarnar í sumu af þessu "góða fólki" sem endalaust dásamar þessi eiturefni.

Það er bara tími til kominn að Íslendingar geri sér grein fyrir því að þeir eru ekkert annað en tilraunarottur fyrir lyfjafyrirtæki sem hafa þurft að greiða milljarða dollara í sektir fyrir falskar upplýsingar um lyf, og mútugreiðslur til lækna og stofnana.

Enda eru þetta lyfjatilraunir sem standa yfir til ársins 2023. Er fólki gerð grein fyrir þessu áður en sprautunni er þrykkt í handlegi þess?

Hvað stendur eiginlega í þessum bóluefnasamningi sem við eigum ekki að fá að sjá?

Og hverjir græða fjárhagslega á því að "bólusetja" alla hér á landi?

Þetta eru spurningar sem við eigum að spyrja og heimta að fá svör við!

Kristín Inga Þormar, 4.7.2021 kl. 01:01

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Getum við ekki hrætt þau með því að draumur þeirra um alsælu sjálfselskunnar sé á enda.Það tekur ekki mjög langan tima að dreyfa upplýsingum og safna liði um allan heim,þótt takmörk séu á hverjir trúa.(hef reynt það,held mig ekki komna með rugluna).. Takk Kristín og allir fyrir að fylgjast með og upplýsa okkur,sýna greinilega sannanirnar sem ekki er hægt að véfengja. 

Helga Kristjánsdóttir, 4.7.2021 kl. 01:44

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Helga, ég er búin í marga mánuði að reyna að fræða fólk á Facebook vegg mínum, og svo byrjaði ég að blogga hér í maí þegar sú ágæta síða sendi mig í 7 daga fangelsi fyrir að pósta mynd af opinberum gögnum um skaðræði þessara eiturefna.

Ég er búin að fá skammir fyrir að vera að dreifa "falsfréttum" um skaðsemi þessara svokölluðu bóluefna, undantekningarlaust frá fullbólusettu fólki sem ég held að innst inni sjái eftir því að hafa látið glepjast af bólustningaráróðrinum.

En þegar ég spurt viðkomandi hvort það sé raunin, þá hef ég aldrei fengið svör.

Þessi svarleysi eru ákveðin svör eins og þau koma mér fyrir sjónir, eruð þið ekki öll sammála þvÍ?

Kristín Inga Þormar, 4.7.2021 kl. 02:10

9 Smámynd: Theódór Norðkvist

Tek undir með Helgu, þakka þér fyrir að standa vaktina. Ég er á því að við eigum að umgangast þessa(r) veiru(r) af varúð, spritta hendur og halda fjarlægð, en hef verið að fyllast efasemdum um þessi bóluefni sem virðast vera verri en sjúkdómurinn sem þau eiga að verja fólk fyrir.

Það tekur áraraðir af tilraunum og undirbúningsvinnu að þróa bóluefni. Hvað tók það langan tíma að koma með bóluefnin gegn Covid-19, einhverja sex mánuði? Hver er ástæðan?

Venjulega eru gerðar tilraunir á dýrum til að prófa bóluefni. Það var gert í litlum sem engum mæli fyrir C19 bóluefnin, samkvæmt því sem ég hef lesið. Þess vegna komu þau svo snemma á markaðinn. Við erum tilraunadýrin.

Pfizer og Moderna nota mRNA tæknina svokölluðu, mRNA = messenger RNA. Gaddaprótíninu er sprautað í fólk, sama prótíni og veiran notar til að ráðast inn í frumur líkamans. Nú er sagt að það fari út í blóðið og valdi skaða sjálft, því ónæmiskerfi líkamans lítur á það sem aðskotadýr, ekki satt?

Theódór Norðkvist, 4.7.2021 kl. 14:37

10 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Theódór, og þakka þér fyrir.

Þessi svokölluðu bóluefni eru ekki bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til, og þau eru löngu farin að valda ómældum skaða hér á landi eins og annars staðar.

Það er löngu orðið ljóst að þessi bólusetningarherferð snýst ekkert um að vernda mannkynið gegn einhverri veiru, enda eru lífslíkurnar 99,97% ef maður veikist.

Spritt gerir ekkert gagn gegn veirum, og það eina sem það gerir er að eyða bakteríuflórunni sem er okkur nauðsynleg, fyrir utan það að það fer inn í líkamann á okkur sem er ekki hollt.

Ég á stóran hóp vina og kunningja sem ég hitti vikulega og við höfum aldrei sprittað okkur, notað grímur né forðast nálægð hvert við annað. Ekkert okkar hefur enn smitast af þessari veiru.

Þessar sóttvarnarreglur voru settar á til að halda fólki í stanslausum ótta og búa það undir "einu leiðina" út úr þessum "faraldri".

Sjáðu hvert við erum komin núna, það er búið að fullbólusetja stóra hluta margra þjóða, og fólk er að skaðast og deyja í milljónavís núna, en áfram skal haldið með sprauturnar, og búið að gefa til kynna að líklega verði "nauðsynlegt" að bólusetja fólk á nokkurra mánaða fresti gegn "nýjum og hættulegum" afbrigðum.

Veirulaus veröld verður aldrei til, það er bara staðreynd.

Kristín Inga Þormar, 4.7.2021 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband