Frú Ingileif ætlar að fræða okkur um "þýðingu bólusetninga á tímum heimsfaraldurs", og uppljóstrari sem varpar sprengju um "bóluefnin"!

Það verður fróðlegt að vita hvað Ingileif Jónsdóttir ætlar að segja í kvöld, á viðburðinum Vísindavaka Rannís - Bólusetningar, hvaða máli skipta þær?

Hún starfar hjá Íslenskri erfðagreiningu, og hefur verið mjög dugleg að lofa þessi svokölluðu "bóluefni", eins og til dæmis í þessu viðtali, þar sem hún segir að við þurfum fleiri sprautur til að verjast nýjum afbrigðum.

Viðburðurinn

"Sjaldan eða aldrei hefur verið rætt jafnmikið um bólusetningar og nú. Ingileif fjallar um þýðingu bólusetninga á tímum heimsfaraldurs, þróun bóluefna og vernd gegn COVID-19 sjúkdómi og smiti, hjarðónæmi, bólusetningu viðkvæmra hópa og bóluefni gegn nýjum afbrigðum veirunnar.

Ingileif Jónsdóttir, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu.
 
Kaffistjóri er Sævar Helgi Bragason
 
 
Hinn napri raunveruleiki
 
Í dag, þriðjudaginn 21. september er búið að tilkynna um 3.210 aukaverkanir, þar af 205 alvarlegar. Í gær voru þær 3.195 og 201 alvarleg, svo tilkynningum hefur fjölgað um 15 frá í gær, og þar af 4 alvarlegum!
 
 
2109
 
 
Hér má sjá viku gamla sundurliðun á tilkynntum alvarlegum aukaverkunum, ég mun uppfæra þetta þegar nýjustu tölur koma.
 
Edit: Hér eru nýjustu tölurnar. Og eins og venjulega: "Að svo komnu er ekkert bendir til orsakasamhengis milli tilkynntra andláta og bólusetninga gegn COVID-19."
 
Mér krossbrá þegar ég sá þessa sundurliðun, því þar var búið að bæta við nýjum lið, fóstursköðum. Fyrir viku síðan var búið að tilkynna um 8 fósturskaða! Hvað segja starfandi ljósmæður um þetta?
 
Þetta er manneskjan sem ætlar líklega að fræða hlustendur sína um "gæði og virkni" bóluefna, en hún hlýtur að tala gegn betri vitund, það getur bara ekki annað verið. Þarna liggja einhverjar aðrar hvatir að baki.
 
 
2109a
 
Hún starfar m.a. hjá Kára í Íslenskri erfðagreiningu, sem er ekki beint hlutlaus í þessum "heimsfaraldri", enda jókst hagnaður fyrirtækisins tífalt í fyrra miðað við 2019.
 
Áhugasamir ættu að geta dundað sér við að finna hverjir hagsmunir hans eru, og á hverju hann er að græða þessa dagana!
 
Eitthvað segir mér þessi "fræðsla" hennar í kvöld sé einungis til að peppa upp umræðuna um þessi svokölluðu "bóluefni", þetta er ekki manneskja sem ber líf og heilsu þjóðarinnar sér fyrir brjósti, það ætti öllu þenkjandi fólki að vera ljóst!
 
Uppljóstrari varpar sprengju, "Vaccine is Full of Shit" segir læknir

 

Hugrakkur bandarískur hjúkrunarfræðingur er búinn að fá nóg, og tók leynilega upp samtöl við lækna og kollega.

Það er (að sjálfsögðu) búið að eyða þessu vídeói út af Instagram og Facebook, svo það hverfur örugglega fljótlega líka út af YouTube, en þetta er skylduáhorf!

Skaðsemi þessara efna er óðum að koma betur og betur í ljós, og vonandi fer fólk sem orðið hefur fyrir skaða, og/eða misst ástvin eftir sprauturnar að stíga fram og krefjast svara, og skaðabóta.
 
Hvers vegna er þessi gríðarlega pressa á fólk hér á landi að fara í sprauturnar?
 
0603Fólk hlýtur að fara að fatta að Ragnheiður yfirhjúkka sem segir að öll bóluefni séu góð, og það sé hættulegra að fara út í búð en að láta sprauta sig, og Þórólfur sem mælir heilshugar með því að fólk láti sprauta börn sín eru hreinlega að ljúga, og búin að gera það lengi.
 
Og ekki bara þau, heldur Ingileif, Rúna, Kári, Svandís og margir fleiri. Allt þetta fólk er búið að fá sent ótal tölvupósta og bréf um skaðsemi þessara efna, en viðbrögðin eru nánast engin.
 
Sama á við um alla fjölmiðlana sem eru á ríkisspenanum, þeir hafa engu sinnt af því sem þeir hafa fengið sent.
 
Að minnsta kosti er löngu orðið ljóst að vísindi eru oft föl fyrir peninga. Svo hvað liggur að baki því að búið er að blekkja stærstan hluta þjóðarinnar og stóran hluta barna á aldrinum 12-15 ára í sprauturnar, þrátt fyrir að skaðsemi þessara efna er búin að vera augljós mánuðum saman?
 
Eru það peningar, eða eitthvað allt annað og stærra? Fólk ætti kannski að fara að skoða hvað er að gerast í heiminum í dag í öðrum miðlum en þessum meginstraumsfjölmiðlum, þar sem allt er ritskoðað í drasl.
 
Enda eru þeir margir fjármagnaðir af Bill Gates og öðrum auðmönnum sem stjórna áróðursfréttaflutningnum að miklu leyti.
 
Þeir sem vilja, ættu endilega að skella sér í Perluna í kvöld og spyrja Ingileifu "óþægilegra" spurninga og heimta svör við þeim!
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Magnað viðtal í myndbandinu. Takk fyrir að miðla því með okkur.

Tómas Ibsen Halldórsson, 21.9.2021 kl. 22:37

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas,

Mín er ánægjan, ég mun aldrei þreytast á því að reyna að vekja fólk til raunveruleikans, þótt baráttan virðist eiginlega töpuð þar sem stærstur hluti þjóðarinnar hefur þvi miður fallið fyrir fagurgagalnum um að sprauturnar séu eina leiðin út úr þessum svokallaða "heimsfaraldri".

14 ára íslenskur drengur fékk marga blóðtappa í lungun nýlega fljótlega eftir fyrstu sprautu af þessum svokölluðu "góðu bóluefnum". Er það bara enn ein tilviljunin?

Nú er víst búið að þróa eitthvað svakalega "gott" bóluefni fyrir ung börn að sögn framleiðenda þeirra.

Mig bara hryllir við tilhugsuninni um að foreldrar ungra barna muni leyfa að þessum skelfilegu eiturefnum verði mögulega sprautað í litlu börnin þeirra.

Kristín Inga Þormar, 21.9.2021 kl. 23:09

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég tek undir með þér Kristín, það er hreint út skelfilegt að börn skuli "bólusett" og svo nú að fara enn neðar í aldri, hryllingur.

Það að heilbrigðis yfirvöld skuli loka augunum fyrir þeim mikla skaða sem þessi efni valda segir manni það að eitthvað annað, stærra og verra liggur þarna að baki. Það getur ekki annað verið. Ég bara trúi því ekki að þetta fólk sé svo staurblint að það sjái ekki það sem er að gerast fyrir augum þeirra.

Hvað stjórnmálayfirvöld varðar þá eru hagsmunir fólksins í landinu ekki efst á lista á þeim bæ, þeirra hagsmunir koma fyrst og síðan hugsanlega landsmenn.

Tómas Ibsen Halldórsson, 22.9.2021 kl. 11:32

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Tómas,

Það bara blasir við að eitthvað stærra og verra liggur að baki þessu, öllu þessu fólki er fullkunnugt um hvað þessi efni eru hroðalega hættuleg!

Og sjáðu kosningabaráttuna núna, sömu fögru loforðin hjá öllum þessum flokkum, en engir tala um afleiðingarnar af þessum fáránlegu sóttvarnaraðgerðum eða skaðann sem fólk hefur orðið fyrir eftir eiturgjafirnar.

Fólk ætti að hugsa um það áður en það fer inn í kjörklefann!

Kristín Inga Þormar, 22.9.2021 kl. 12:10

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Það tók mig ekki langan tíma að tala barnsmóður mina af öllum pælingum um sprautur í okkar krakka. Hún kom af fjöllum með allt sem ég sagði, vissi varla að nokkur væri að fá aukaverkanir. Í það heila kannski 10-15 mín vinna að byggja um næg rök til að halda sprautunni í burtu. Gallinn er að flestir hætta að hlusta eftir 1 mín.

Geir Ágústsson, 22.9.2021 kl. 17:20

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Gott að þú gast bjargað börnunum ykkar frá eiturbrasinu, það eru örugglega mjög margir sem hafa ekki hugmynd um allar þessar aukaverkanir og andlát sem hafa átt sér stað undanfarna mánuði.

Enda birtist varla stafkrókur um það í meginstraumsfjölmiðlunum, en óteljandi frásagnir á óritskoðuðum miðlum, og þá meina ég virkilega óteljandi. Ég er búin að sjá þúsundir frásagna héðan og þaðan úr heiminum.

Nánast það eina sem birtist í fjölmiðlunum er endalaus hræðsluáróður og dýrðarsöngur um eitrið, og fólk er orðið svo heilaþvegið að það er ekki móttækilegt fyrir neinum aðvörunum.

Kristín Inga Þormar, 22.9.2021 kl. 17:45

7 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Má ég minna á "Lög um refsingar fyrir hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði." þ.e. Lög nr. 144 18. desember 2018.

(https://www.althingi.is/altext/stjt/2018.144.html)

Auk þess er hægt að draga þetta "fólk" fyrir dóm nú þegar, fyrir sum hegningarlagabrot. Það hljóta fleiri en ég að vera orðnir fjúkandi reiðir, hvort sem þeir trúa á Lygarapláguna og Genasprauturnar eða ekki.

Guðjón E. Hreinberg, 22.9.2021 kl. 18:02

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Hárrétt hjá þér, það er búið að brjóta svívirðilega mörg lög gegn okkur núna, og vonandi mun allt þetta fólk fá viðeigandi refsingar, þegar þessir glæpir komast upp á yfirborðið.

En fyrst verður fólk að gera sér grein fyrir hvað búið er að gera þjóðinni núna!

Kristín Inga Þormar, 22.9.2021 kl. 18:47

9 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er tæpast hægt að hugsa sér siðlausari einstakling en þessa Ingileif. Hún hefur hamast fyrir bólusetningu barna, vitandi af skaðanum sem þau verða fyrir. Hún mætti á fund Velferðarnefndar Alþingis og staðhæfði að rannsóknir sýndu nauðsyn bólusetningar barna vegna þess hversu delta afbrigði veirunnar væri þeim hættulegt. Þegar hún var innt eftir rannsóknunum kom á daginn að þær voru auðvitað ekki til.

Ingileif laug í þeim eina tilgangi að valda börnum skaða. Ingileif er siðlaus glæpamaður.

Þorsteinn Siglaugsson, 23.9.2021 kl. 19:35

10 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Þorsteinn,

Ég kallaði hana Ingileifu Fauci-Gates á Facebook veggnum mínum um daginn, enda er hún einmitt ekkert annað en siðlaus glæpamaður, eins og þeir félagar.

Kristín Inga Þormar, 23.9.2021 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband