Sannleikurinn um þennan meinta "heimsfaraldur" á 40 mínútum!

Þetta vídeó vekur mér svo sannarlega von í brjósti um að loksins verði hægt að stöðva þessa hroðalegu glæpi sem verið er að fremja gagnvart mannkyninu núna, einhverju sem flestir hafa enga hugmynd um að séu að eiga sér stað.

Að minnsta kosti ekki hér á landi, þótt þjóðirnar í kringum okkur séu löngu vaknaðar og farnar að berjast gegn þessum glæpum.

Dr. Reiner Fuellmich hefur ásamt fjölda óháðra og heiðarlegra lögfræðinga, vísindamanna, blaðamanna og fleiri aðilum um allan heim, flett ofan af þeim sem eru ábyrgir, með óhrekjanlegum sönnunargögnum.

Þessi svokallaði "heimsfaraldur" var lengi í undirbúningi, og lokamarkmiðið er að fækka mannkyninu, og svipta þá sem eftir lifa öllu.

Þetta hljómar alveg galið, ég veit það, en þetta er samt því miður nöpur staðreynd.

Horfið á þetta vídeó til enda, og svo aftur!

Hvert einasta orð sem hann segir í þessu vídeó er því miður heilagur sannleikur!

 

Covid-19 scandal never been a health issue

"The hearings of, among others, hundreds of scientists, doctors, economists and lawyers of international repute conducted since October 7, 2020 by the Berlin Commission of Inquiry into the Covid-19 affair have now demonstrated with a probability approaching 100% certainty that the Covid-19 scandal was never a health issue – Dr. Fuëlmich on February 15, 2020"

“Rather, it was a matter of strengthening power, illegally obtained by criminal methods of the corrupt ‘Davos clique’, by transferring the wealth of the people to the members of Davos on the backs of small, and especially medium-sized businesses, among others.”

The committee’s conclusion is that Covid-19 is being used as a diversionary tactic by business and political “elites” with the goal of shifting market shares and wealth from small and medium-sized businesses to global platforms such as Amazon, Google, Uber, and other big tech and multinational corporations.

Sjá meira hér.

Glæpirnir hér á landi

Hann kemur meðal annars inn á PCR prófin (sem hann Kári okkar er búinn að moka inn peningum á!) sem að minnsta kosti voru lengi notuð á 40 snúningum hér á landi, það fékk ég staðfest frá Lyfjastofnun fyrr á árinu.

Eins og þau eru notuð hér á landi, þá er vísvitandi verið að viðhalda fölskum faraldri, munum hvað Þórólfur hefur sagt, að maður geti verið veikur án þess að vita það!

Á grunni þeirra er búið að loka þúsundir fullfrísks fólk inni í sóttkvíum og einangrunum, loka fyrirtækjum til lengri eða skemmri tíma, og fresta lífsnauðsynlegum læknisaðgerðum hjá fjölda fólks.

Og hérna er bara fátt eitt upptalið, skaðinn verður aldrei bættur hjá mörgum.

Og það er vísvitandi búið að þvinga okkur til að nota súrefnisheftandi tuskur fyrir vitunum, þótt allir ættu að sjá núna að eru einungis tákn um hlýðni, og halda okkur í ótta við einhvern ósýnilegan óvin.

Örsmáir möskvar þeirra halda fáum ef nokkrum veirum frá því að komast ofan í öndunarfærin.

Og það er vísvitandi og með gríðarlegum áróðri búið að telja þjóðinni trú um að ekkert geti komið henni út úr "heimsfaraldrinum" nema einhverjar "bólusetningar".

Þeim hefur verið haldið áfram þrátt fyrir þann skelfilega skaða sem þær hafa valdið á þúsundum manna hér hér á landi, allt niður í börnin sem byrjað er að sprauta!

Það er af einbeittum brotavilja búið að banna notkun áratuga gamals lyfs sem hefur sannanlega virkað ákaflega vel gegn þessum veikindum, en þess í stað notað lyf sem sannanlega hefur flýtt fyrir dauða sjúklinga!

Það er kjördagur á morgun, ætlið þið að kjósa einhvern þessara sitjandi flokka sem hafa hunsað ótal bréf, símhringingar, tölvupósta og jafnvel ábyrgðarbréf með sönnunum sem hefðu átt að stöðva þessa aðför að okkur strax?

Haldið þið að þetta fólk sé að hugsa um eitthvað annað en eigin rass? Með þessari hunsun sinni frá okkur, þjóðinni sem þau eiga að vera að vinna fyrir, hlýtur svarið bara að vera stórt NEI!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Eftir því sem mér skilst, hefur enginn aðili í kosníngabaráttunni síðustu sex vikurnar (fjölmiðlaspyrlar né frambjóðendur) hreyft við neinum umræðum um Covid aðgerðir sitjandi stjórnar og alþingis, og enginn rætt um hvað muni taka við í þeim ramma. Eins og enginn hafi verið viðstaddur síðustu 19 mánuði.

Er þetta rétt skilið hjá mér, er alls engin umræða um stærsta viðburð í sögu mannkynsins svo langt sem sagnfræðin man? Hvort heldur sem menn trúa á Farsóttina eða Lygarapláguna?

Guðjón E. Hreinberg, 24.9.2021 kl. 21:06

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Þetta er einmitt málið, það mætti halda að allt þetta fólk hafi verið fjarverandi allan þennan tíma!

Fjölmiðlarnir eru jafn ónýtir nú í þessari kosningabaráttu eins og þeir hafa verið í "heimsfaraldrinum", og það er þeim hreint til skammar að koma ekki núna með krefjandi spurningar.

Þeir hafa allir fengið sömu upplýsingarnar sendar og þetta ráðafólk allt, en aldrei nein viðbrögð hjá þeim, enda flestir á ríkisspenanum.

Eina framboðið sem ætlar taka á Covid málunum er nýja framboðið Ábyrg framtíð sem býður fram í Reykjavík norður.

Kristín Inga Þormar, 24.9.2021 kl. 22:39

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Sagan um gömlu hræddu konuna undir lokin dregur saman allan hans boðskap á 20 sek.

Geir Ágústsson, 25.9.2021 kl. 10:21

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Já þar er ég þér hjartanlega sammála, hún sýnir svo vel hvað búið er að gera fólki núna, sérstaklega því sem hefur öllu trúað sem því hefur verið sagt um "drápspestina" miklu.

Kristín Inga Þormar, 25.9.2021 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband