Grímur í máli og myndum

Mér sýnist þessi maður vera hárrétt búinn með andlitið kyrfilega varið, og svo gengur greinilega einhver slanga útúr græjunni að aftan sem væntanlega sér til þess að maðurinn andi bara að sér veirufríu súrefni.

Þessi maður veit greinilega alveg hvernig á að forðast það að anda að sér þessari "drápsveiru" sem yfir 99% fólks lifir af þótt það veikist af henni!

1203j

 

Heilaþvotturinn

Það er svo merkilegt, að það er nóg að fólk sé með einhverja tusku fyrir vitunum á sér þegar það sækir sér þjónustu í þeim fasísku fyrirtækjum sem fylgja tilmælum sóttvarnarlæknis í hvívetna.

Enginn spyr hvort tuskan sé ný og ónotuð, eða hvort hún komi af bílspeglinum eða rassvasanum, eða hvort búið sé að nota hana margoft.

Fólk virðist ekki gera sér grein fyrir því að þessar bláu grímur eru ekki margnota, ef það dregur hana niður fyrir höku eða skeggið sem getur geymt alls konar eitthvað ef það er ekki vel þrifið, og dregur hana svo upp fyrir nefið þegar það fer inn í búðina, þá er það að anda að sér öllu því sem hefur sest á andlitið á því í millitíðinni.

Jafnvel þessari hræðilegu "drápsveiru"!

Fasískir öryggisverðir margra verslana öskra á fólk sem er fullkomlega heilbrigt og vill bara fá að anda að sér súrefni, en ekki úrganginum sem lungum þurfa að losa sig við.

0509x

Hefur engum dottið í hug að pæla í hvaðan þessar grímur koma, við hvaða aðstæður þær hafa verið búnar til, eða hvort kannski séu einhver efni í þeim sem geti verið skaðleg ef maður andar þeim að sér? Fyrir utan alla plastmengunina af þeim?

Örugglega fáum, enda verðum við öll að hlýða Viði og Þórólfi.

Fáir fylgja leiðbeiningunum um hvernig á að nota þær "rétt", eða velta fyrir sér hvort þær geri yfirhöfuð eitthvað gagn!

0509z

Muniði eftir nýlegu bloggi mínu um Dr. Fausk um að hann hafi sagt hlæjandi fyrir rúmum tveim árum að grímur gerðu ekkert gagn?

Nú er víst best að vera með nokkrar finnst honum, enda segja "vísindin" það.

Sálfræðin á bak við grímurnar

Þetta er hin raunverulega sálfræði á bak við að skylda okkur að nota þessar munnbleyjur, þetta hefur nákvæmlega ekkert að gera með sóttvarnir, enda eru veirur nógu smáar til að smjúga í gegnum "risastóra" möskva þeirra.

Hættið að hlýða þessum fáránlegu reglum!

1209k

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

http://www.eviloverlord.com/lists/overlord.html

"1: My Legions of Terror will have helmets with clear plexiglass visors, not face-concealing ones."

Bara að segja...

Ásgrímur Hartmannsson, 4.12.2021 kl. 20:52

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Ásgrímur,

Ég held að þetta sé ein ljótasta vefsíða sem ég hef séð, en nr. 1. er vissulega áhugaverður punktur, ég á svo eftir að renna yfir hina 99. tongue-out

Kristín Inga Þormar, 4.12.2021 kl. 21:23

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ljótar vefsíður eru yfirleitt frjálsar vefsíður sem Net-marxistar hafa ekki yfirtekið ennþá. Maður afritar þær með wget og indexar.

Guðjón E. Hreinberg, 5.12.2021 kl. 03:17

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Þótt ég kunni nú ýmislegt, þá hef ég aldrei heyrt um wget, kannski að ég gúgglí það við tækifæri.smile

Kristín Inga Þormar, 5.12.2021 kl. 10:52

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það hefur verið vitað mál frá upphafi veirufaraldursins að þessar GRÍMUR eru með ÖLLU GAGNSLAUSAR.  Þórólfur sagði þetta í upphafi en seinna "snérist honum hugur í þeim málum" sem engin skýring hefur fengist á og gott ef nokkur hefur leitað eftir skýringu.  Meðvirknin í þessu  COVID dæmi er alveg með ólíkindum og ekki er ólíklegt að þessi "meðvirkni" verði efni í einhverjar doktorsritgerðir, þegar hægist um....

Jóhann Elíasson, 5.12.2021 kl. 13:50

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jóhann,

Hann vísaði í einhver ný "vísindi" eins og hann gerir alltaf þegar hann kemur með einhverjar nýjar "upplýsingar", og er að sjálfsögðu aldrei spurður einnar einustu gagnrýnu spurningar af þessum handónýtu blaðamönnum.

Og já, meðvirknin er alveg svakaleg og er oft lýst sem Stockholm syndrome, eða Cognitive dissonance, en það er ótrúlegt að eftir nánast tvö ár af sama óttaáróðrinum að fólk skuli ekki aðeins vera farið að kveikja á perunni.

Því miður er það akkúrat hrædda fólkið sem leyfir þessu ástandi að viðgangast, ekki við ósprautaða fólkið!

Kristín Inga Þormar, 5.12.2021 kl. 16:16

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Myndefnið við þessa færslu er algjör snilld og segir alla söguna. Ég vinn með rökhugsandi greindum einstaklingum sem segja mér að grímurnar minnki smitlíkur um 50%. Jæja þá, er þá faraldurinn ekki búinn þar sem fólk er 99% að fylgja grímuskyldum? Döh, nei. 

Þessari veiru er drulluandskotanssama um okkar fjarlægðatakmarkanir, fyrirtækjalokanir, grímunotkun og sprautustöðu. Hún leitar að þeim sem hafa veikt ónæmiskerfi, hvort sem það er af náttúrunnar hendi eða mannanna hendi, og hlær þegar hún kemst að því að búið er að banna fyrirbyggjandi meðferðir og snemmmeðferðir með ódýrum og aðgengilegum lyfjum, og að auki ekki búið að styrkja heilbrigðiskerfið.

https://twitter.com/ianmSC/status/1467575415711485958

Geir Ágústsson, 5.12.2021 kl. 20:34

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Já það má segja heila sögu með einni mynd, og ég er búin að finna fleiri frábærar í safninu mínu núna sem verða kannski bara efni í annað grímublogg! cool

Tístið er flott, það sýnir einmitt að veiruskömminni er slétt sama um grímur og sóttvarnaraðgerðir.

Og hún hlær sig örugglega máttlausa yfir því hvað fólk verður móðgað fyrir hönd Þórólfs og Kára þegar reynt er að benda á þessar snemmmeðferðir, eða að ekki sé allt sem sýnist í þessum svokallaða "heimsfaraldri".

Kristín Inga Þormar, 5.12.2021 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband