WHO hefur áform um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma næstu 10 ár!

Stærsta lygi heimssögunnar er þessi svokallaði Covid "heimsfaraldur", það var í raun aldrei neinn alvöru heimsfaraldur í gangi.

Gögn hafa verið fölsuð í stórum stíl og hömlurnar sem voru settar á mannkynið áttu aldrei neinn rétt á sér, voru í raun gjörsamlega tilhæfulausar, rétt eins og þessi svokölluðu "bóluefni" sem búið er að sprauta í stóran hluta mannkyns.

Að rústa 190 fullvalda ríkjum félagslega, pólitískt og efnahagslega getur ekki verið "lausn" á baráttu gegn vírusnum. En það var hin þvingaða "lausn" sem var innleidd í nokkrum áföngum alveg frá upphafi "heimsfaraldursins" í janúar 2020. Þetta var eyðilegging á lífum fólks og borgaralegum samfélögum.

Fölsuð vísindi voru notuð til að styðja við þessa skelfilegu áætlun, og lygunum var haldið uppi með gríðarlegum einhliða áróðursherferðum í fjölmiðlum um heim allan.

Hræðsluáróðurinn var linnulaus nánast allan sólarhringinn og fólk stöðugt minnt á "ógnina" í fjölmiðlunum.

Söguleg lokun (lockdown) þann 11. mars 2020 olli skelfilegum efnahagslegum og félagslegum glundroða um heim allan. Þetta var í raun efnahagslegt stríð, stríð gegn mannkyninu.

Þessi djöfullega áætlun hefur grafið undan fullveldi þjóðríkja, stuðlað að öldu gjaldþrota og gert fólk fátækt um heim allan og leitt til vaxandi skuldasöfnunar.

Sterkir innviðir alþjóðlegs kapítalisma, auðmagn, ásamt njósna- og herbúnaði eru drifkrafturinn.

Með því að nota háþróaða stafræna tækni og fjarskiptatækni, eru lokanirnar og skemmdarverkin á heimshagkerfinu fordæmalaus í heimssögunni.

Ítarleg heimild og meira efni

Blekkingarnar

Fólk hefur verið sent í þessi PCR próf í milljarðavís, þrátt fyrir að vitað sé að þau voru aldrei hönnuð til að greina hvort einhver sé veikur eða ekki.

"Vísindin" hafa breyst nánast dag frá degi, og undir því yfirskyni hafa verið réttlættar meiri hömlur á okkur.

Nærtækt dæmi er þegar sóttvarnalæknir okkar vísar í einhver "ný vísindi" eða "nýjar rannsóknir" án þess að sýna fram á nokkur gögn, og segist gjarnan vera að fylgja tilmælum WHO, sem vill svo til að er að sækjast eftir því að ná fullkomnum yfirráðum yfir heilbrigðismálum heimsins núna síðar í maí!

Sjá umfjöllun mína um það hér í færslunni Fljótum við sofandi að feigðarósi?

Heiðarlegir vísindamenn og læknar hafa verið smánaðir, bannaðir og útskúfaðir fyrir að "dirfast" að tala á móti þessari einu leyfðu umræðu um "bóluefnin" og "faraldurinn", á meðan menn eins og Dr. Fauci fá að eiga senuna alveg skuldlaust, rétt eins og Bill Gates sem er ekki læknir né hvað þá sérfræðingur í heimsfaröldrum.

Hér er eitt dæmi um Dr. Fauci og hér er annað.

Faraldurinn er notaður til að koma á alræði í heiminum!

0507

Í þessu einstaka 30 mínútna vídeói er dreginn fram hluti af atburðarrásinni mánuðina og árin fyrir "heimsfaraldurinn", þar á meðal klippur með sláandi ummælum ýmissa aðila. Horfið á það allt til enda.

Nokkrir punktar úr vídeóinu:

  • Árið 2017 fullyrti Fauci að upp kæmi óvæntur faraldur á næstu árum, og ekki bara hann, heldur líka hjónin Bill og Melinda Gates, forstjóri WHO, og fleiri.
  • Karl Bretaprins sem er virkur þátttakandi í áætlunum The World Economic Forum hótar fleiri faröldrum og hörmungum nema heimsbyggðin gangist undir endurræsinguna miklu, eða The Great Reset.
  • Hollenskur veirufræðingur hjá WHO segir þar vera 10 ára áætlun um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma.
  • Árið 2010 gaf Rockefeller stofnunin út "Scenarios for the future", eða einhvers konar atburðarás fyrir framtíðina, þar sem fjallað var um faraldur kórónuveiru, sem endaði með alheimseinræði, Operation Lock Step, "A world of tighter top-down government control and more authoritarian leadership, with limited innovation and growing citizen pushback".
  • Á árunum 2017 - 2018 var hundruðum milljóna Covid prófa dreift um allan heim - löngu fyrir "heimsfaraldurinn".
  • Mánuðum áður en "heimsfaraldurinn" skall á, var Fauci þegar tilbúinn með "bóluefni".
  • Mánuðum fyrir Covid ræddi pallborð nauðsyn alþjóðlegs truflandi atburðar til að gera heiminn reiðubúinn að samþykkja tilraunabóluefni.
  • Árið 2017 gaf John Hopkins háskólinn út framúrstefnulega framtíðarsýn um faraldur kórónuveiru.
  • Fjórum mánuðum fyrir Covid stóð Bill Gates fyrir Event 201, sem var æfing í viðbrögðum við kórónuveirufaraldri.
  • Fjórum mánuðum fyrir Covid ræddu Fauci og starfsmenn HHS um nauðsyn alheimsatburðar til að sprengja "kerfið" upp til þess að gera almenning viljugan til að þiggja mRNA tilraunabóluefni.
  • Fimm mánuðum fyrir Covid var gefin út handbók í Ástralíu um kórónuveirufaraldur.
  • Fimm mánuðum fyrir Covid fyrirskipaði WHO öllum ríkisstjórnum að undirbúa yfirvofandi heimsfaraldur kórónuveiru.
  • Sex mánuðum fyrir Covid kallaði The Global Vaccination Summit eftir öflugum eftirlitskerfum til að tryggja áframhaldandi bólusetningar á öllu mannkyninu.
  • Einu ári fyrir Covid þjálfaði evrópskur veirusérfræðingur alþjóðlega leiðtoga í því hvernig ætti að undirbúa almenning fyrir heimsfaraldur, þar sem hann kenndi þeim m.a. hvernig ætti að skapa ótta með fölsuðum dánartölum til að fá fólk til að bólusetja sig.
  • Hvernig fólk er búið undir framtíðar atburði í gegnum afþreyingarefni til að fá það til að meðtaka það sem sé um það bil að gerast. Má þar nefna sjónvarpsþætti og bíómyndir sem lýsa nákvæmlega því sem er að gerast í dag.
  • Þúsundir lækna og vísindamanna um allan heim segja að þessi faraldur hafi verið planaður í þeim tilgangi að ná valdi yfir heiminum og fækka mannkyninu.

Það er ekki lengur hægt að kalla allt þetta samsæriskenningar, sannanirnar blasa við þeim sem nenna að leita sér upplýsinga og staðreynda - hjá öllum öðrum en þeim sem hafa viðhaft og stutt þennan skelfilega hræðslu- og bólusetningaráróður í rúm tvö ár núna.

Hér á landi mætti nefna þríeykið með Þórólf fremstan í fararbroddi, Kára Stefánsson, Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, og fleiri, með dyggum stuðningi flestra fjölmiðla. Þetta fólk eru beinir þátttakendur í þessari samræmdu alþjóðlegu aðför gegn þjóð sinni, og í raun heimsbyggðinni allri.

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Hér er ekki um samsæriskenningar að ræða heldur upplýsingar um samsæri sem beint er gegn mannkyninu af þeim sem vilja stjórna heimsbyggðinni og fækka fólki á jörðinni.

Þetta eru ekki samsæriskenningar heldur það sem þetta fólk hefur talað og ritað um og hægt er að sjá á miðlum sem ekki hafa látið múta sér, en ekki hefur verið birt á svokölluðum meginstraums fjölmiðlum.

RÚV, Stöð2, Bylgjan, Fréttablaðið og Morgunblaðið, svo eitthvað sé nefnt, fjalla ekki um þessar staðreyndir þannig að það fólk sem styðst eingöngu við að fá upplýsingar frá þessum miðlum fá ekki annað en það sem þeim er gert að birta og það trúir því sem að þeim er rétt án þess að hika.

Tómas Ibsen Halldórsson, 8.5.2022 kl. 19:52

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas,

Alveg hárrétt hjá þér, ég tek undir allt sem þú segir. Fjölmiðlar bæði hér á landi og um heim allan eiga stóra sök á því hvernig búið er að fela upplýsingar fyrir almenningi, og dreifa lygum og fölskum fréttum um allt varðandi "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin".

Og nú með þöggun um þennan skelfilega sáttmála við WHO!

Kristín Inga Þormar, 8.5.2022 kl. 21:36

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sael Kristín og gód samantekt hjá thér ad venju.

Nú fjolgar andlátum sem aldrei fyrr og ollu kennt

um nema sprautunum. Flest fólk sem fékk flensu hér ádur fyrr og komst

eins og venjulega léttilega frá thví verdur núna fárveikt fái thad snert

af flensu eda kvefi og liggur í rúmi. Thetta á vid fólk 

sem er tví og thrí sprautad. Tilviljun..??

Hraeddur um ad margir sem fengu sprautur og eru ad vakna úr mókinu/lyginni

lídi ekki vel med thetta eitur í sér. Búid ad eydileggja náttúrulegt

ónaemiskerfi med einhverju sulli vegna gedveikra manna.

Hvenaer skyldu their verda dregnir til ábyrgdar..??

Ansi margir hér á landi á theim sakamanna bekk.

Sigurður Kristján Hjaltested, 9.5.2022 kl. 08:48

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Sigurður og þakka þér kærlega fyrir.

Já ég veit um marga tví- og þrísprautaða sem eru orðnir heilsulausir eftir eitursprauturnar og alltaf veikir, og sá í gær ummæli frá harmi lostinni íslenskri manneskju sem er búin að missa sex vini og ættingja undanfarna mánuði!

Vonandi mun sá dagur rísa að allt þetta fólk sem er ábyrgt fyrir þessum "hryðjuverkum" gagnvart þjóð sinni verði dregið til ábyrgðar.

Kristín Inga Þormar, 9.5.2022 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband