Bloggfærslur mánaðarins, desember 2021

Þau vilja sprauta börnin í skólunum!

Samkvæmt þessari frétt í RÚV er undirbúningi á "bólusetningum" barna að ljúka, og hugmyndir eru um að byrja upp úr áramótunum.

Hvar yrðu börnin þá bólusett? „Sú hugmynd sem við erum að vinna með núna væri sú að leita samstarfs við skólana og vinna náið með þeim, hverjum og einum skóla, þannig að hver og ein heilsugæsla myndi hafa samráð við sína skóla.“

Áætlað er að sprauta þau með því efni sem hefur valdið mestum skaða og flestum andlátum hér á landi, eða Pfizer, sem hefur fengið 2.462 tilkynningar um aukaverkanir, þar af 24 andlát og 92 aðrar alvarlegar.

Dauðsföll 10-14 ára barna síðan "bólusetningarnar" hófust í Bretlandi

Dauðsföll meðal barna eru 44% fleiri en 5 ára meðaltalið síðan byrjað var að bjóða upp á þessar sprautur, eins og sjá má á þessari mynd.

1203g

Hér má sjá umfjöllun um þetta sem byggð er á opinberum gögnum.

Heilbrigðisöryggisstofnun Bretlands

Nú er búið að viðurkenna þar í landi að hátt hlutfall barna sem liggja á spítölum séu þar vegna hjartabólgna eftir sprauturnar.

1203i

Það er gríðarlega mikið efni á þessari síðu sem þið finnið hérna, og horfið á vídeóið um börnin sem er þar, en það má líka finna það hér.

FDA

Opinber skýrsla frá bandaríska Matvæla- og lyfjaeftirlitinu sýnir fram á að dánartíðni af öllum orsökum er hærri meðal bólusettra og viðurkennir að ung fórnarlömb með hjartabólgu hafi þurft að fara á gjörgæsludeildir.

1203h

Þar segir einnig að í kjölfar veitingar neyðarleyfis í desember 2020 hafi verið tilkynnt um fjölda tilfella sjaldgæfra hjartasjúkdóma, þar á meðal hjartavöðvabólgu og gollurshússbólgu í kjölfar bólusetningar, sem leiddi til þess að FDA og CDC greindu alvarlega áhættu á hjartavöðvabólgu og gollurshússbólgu í kjölfar lyfjagjafar með Pfizer bóluefninu.

Áhættuþátturinn virðist vera hærri hjá körlum undir 40 ára, segir líka í skýrslunni, þar sem drengir á aldrinum 12 til 17 eru sérstaklega í hættu.

Hvað gengur þessu fólki til?

90% landsmanna 12 ára og eldri "fullbólusettir" og tæplega 114.000 eru búnir að fara í bústið, og tilkynningum um alvarlegar aukaverkanir fjölgar með hverjum deginum.

Og nú er komið að 5-11 ára börnum sem eru varla í nokkurri einustu hættu af því að veikjast eða deyja.

Nú ættu allir Íslendingar að spyrja sjálfa sig hvers vegna Þórólfur Guðnason, Kári Stefánsson og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir vilja fara að sprauta 5-11 ára börn núna, og gleymum því ekki að Kári segir það drullusokkshátt að láta ekki sprauta sig!

Eru foreldrar barna á þessum aldri tilbúnir að spila rússneska rúllettu með líf og heilsu þeirra?

 

 

 


Jæja, nú er nýja afbrigðið líka komið til Íslands!

Við skulum bara vera alveg róleg, það er ekkert víst að nýjasta afbrigðið sé svo slæmt, að mati þeirra lækna sem fyrst uppgötvuðu það.

Samt, og alveg eins og búast mátti við, nýta mörg lönd sér það til að magna upp óttann til að fá fólk í fleiri sprautur.

Í þessu stutta vídeói er vel farið yfir hysteríuna sem kynt er undir í hvert skipti sem nýtt afbrigði skýtur upp kollinum.

Það verður þó að viðurkennast að ekki er mikið búið að magna upp hræðsluáróðurinn hér á landi hvað sem síðar verður, en sagt að einhverjar vísbendingar séu um að þetta afbrigði sé meira smitandi en fyrri. Við fáum svo auðvitað uppfærðar fréttir mörgum sinnum á dag um hversu mörg smit sé búið að greina.

Það er þó spurning hvort þrísprautaðir séu eitthvað viðkvæmari fyrir smiti af því en öðrum, því af fjórum þrísprautuðum sem liggja núna á spítala, er einn með þetta afbrigði.

Sigríður Jóhanna Sigurðardóttir verkefnastjóri bólusetninga hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir það óskandi að fleiri myndu þiggja grunnbólusetningu. Nei takk, sama og þegið!

Bretar settu sig strax í gírinn og boða fullt af sprautum á næstunni, því þær eru víst lausnin á öllu.

Utan úr heimi

Ég rekst oft á góða texta á samfélagsmiðlunum sem segja svo margt í fáum orðum.

Eins og þennan:

  • Omicron variant hysteria will be used to reset everyone’s vaccine passports to zero.
  • Omicron hysteria will be exploited to justify aggressive vaccine mandates.
    The lying corporate media will blame its origins on the unvaccinated.
  • The omicron variant will be used as a cover story by the corporate media to try to explain away all the Antibody Dependent Enhancement (ADE) deaths caused by covid vaccines.
  • Omicron hysteria will be used to attempt to criminalize dissent against vaccines.
  • Mass hysteria pushed by the journo-terrorist media will justify governors ordering more lockdowns.
  • Cancel the 2022 mid-term elections or demand universal mail-in voting.
  • Every economic failure caused by the incompetent, criminal Biden regime will be blamed on omicron.
  • At some point, either the omicron variant or the next one that’s unleashed will be used to justify door-to-door mandatory vaccines in America.
  • Omicron won’t be the last variant that’s used to evoke hysteria.

Og þennan líka:

Reminder: If you’re still unvaccinated, you’ve survived the greatest psyop in human history.

  • They’ve been plotting this evil plan for decades.
  • Do you realize how much time, resources and effort they have put into this?
  • They have studied every possible way to enslave your free will and get you vaccinated.
  • They have tried to demoralize you by corrupting society from every possible angle.
  • They have tried to screw up your thoughts and make your mind insensitive and indifferent.
  • They have tried to lure you with money, gifts and rewards.
  • They have tried to confuse you into making you doubt your own reality and identity.
  • They have tried to make you step on your own standards, values and ethics.
  • They have even tried to turn your neighbors against you.

Almost everyone fell for it. But not you. Realize how much bullshit you’ve gone through and overcome. You have never bowed to it or denied your principles to it. You are still unvaccinated and your blood is still pure.

Their backstabbing didn’t work on you. So to all you unvaccinated I say cheers decent people.

Myndin hér fyrir neðan

Þetta er einmitt verðug spurning, ef ósprautaðir mega hvorki ferðast til eða frá Ástralíu, hvernig komst Omricon afbrigðið inn í landið?

Enn og aftur, við verðum að fara að rísa upp og stoppa þetta, annars munum við vera áfram í þessari hringrás með nýjum "afbrigðum", þar sem fleiri og fleiri mannréttindi verða smátt og smátt tekin af okkur.

Hvað ætli ný ríkisstjórn sé að plotta núna, setja skyldubólusetningu á okkur? Það kæmi mér bara ekkert á óvart!

1130

 


Sagan endalausa - þetta stoppar ekkert fyrr en við segjum hingað og ekki lengra!

Bretar eru núna brjálaðir út í heilbrigðisráðherra sinn sem er á leiðinni í enn eina sprautuherferðina.

Það er komið enn eitt "afbrigði", svo nú á eina ferðina enn að taka sama hringinn sem hefur þó mislukkast í hvert einasta sinn hingað til.

Lausnin felst víst alltaf í sprautunum....

Sajid Javid

1201ó

Bretar voru búnir að plana 6 milljón búst á næstu vikum, en nú er víst komið bakslag út af þessu nýja afbrigði, svo þeir ætla að ganga enn lengra í þetta skipti, og hraðar.

Sajid Javid ætlar að fylgja eftirfarandi ráðleggingum "sérfræðinga" sem hann hefur fengið:

  1. Að stytta bilið milli sprautu númer tvö og bústsins úr sex mánuðum í þrjá.
  2. Til viðbótar á að útvíkka búst prógrammið núna að ná til allra fullorðinna sem eftir eru, frá 18 ára aldri.
  3. Bjóða á upp á skotin í aldursröð, frá þeim elstu og þeim yfir 16 ára sem eru viðkvæmastir og útsettastir fyrir veirunni, til hinna yngstu.
  4. 16 ára og eldra og alvarlega ónæmisbældu fólki sem þegar er búið að fá þrjár sprautur skal nú boðið upp á extra búst.
  5. Og að lokum, 12-15 ára börn eiga að fá sprautu númer tvö, tólf vikum frá þeirri fyrstu.

Hvað gerist þegar næsta "afbrigði" kemur fram? Slá í klárinn og sprauta meira?

1201gEn ég er ekki viss um að Bretar láti lengur gabbast, enda hundskömmuðu þeir forsætisráðherra sinn á dögunum (áður en nýja afbrigðið sem kallast Moronic, nei afsakið, Omricon kom fram), og einn sagði:

"Why did perfectly fit Healthy people queue up to find out if they were ill with the world’s most deadly virus? They fell for this hoax left right and centre, and played right into the hands of our corrupt government with a PM who wouldn’t know TRUTH if he fell over it."

Þetta er bara mjög góð spurning, og hvernig í ósköpunum stendur á því að fólk láti endalaust blekkja sig svona, og hleypur í nýjar sprautur þegar þeim er sagt að fara, og láti líka sprauta börnin sín?

En Bretar eru ljósárum á undan sofandi Íslendingum, og sjá í gegnum plottið.

1201p

Hér má sjá hinn breska Hugo sem hefur glöggt auga og góða yfirsýn yfir heimsmálin fara yfir viðbrögð lesenda Daily Mail við þessum nýjustu plönum breska heilbrigðisráðherrans.

Hann byrjar með flottum formála, og allt sem hann segir þar er bara sannleikur og heilbrigð skynsemi. Allir ættu að horfa á þetta vídeó, sem líka má finna hér.

Hér á Íslandi

Síðan "örvunar"bólusetningarnar byrjuðu þann 15. nóvember síðastliðinn, hafa samkvæmt fréttum tæplega 140.000 þegið boðið, ótrúlegt en satt.

Tilkynntum aukaverkunum fjölgaði um rétt tæplega 200 á þessum tveim vikum, og það sem verra er 10 sem flokkast sem alvarlegar.

Á sama tíma segir freki kallinn:

„Mér finnst persónulega eins og það sé drullusokksháttur að láta ekki bólusetja sig. Ekki vegna hagsmuna okkar sem einstaklinga heldur vegna hagsmuna samfélagsins,“ segir Kári Stefánsson.

Og önnur tilvitnun í hann:

„Það kom út vísindagrein í New England Journal of Medicine í dag eða í gær sem að lýsir því að bólusetning barna frá 5-12 ára sé hættulítil og hafi mikil áhrif. Þannig að nú þurfum við bara að gefa í hvað bólusetningu snertir. Bólusetja börnin.

Bólusetja aukaskammt í alla fullorðna. Við þurfum að herða takmarkanir á landamærum eða að minnsta kosti sjá til þess að það sé ekki stöðugt streymi á veirunni inn í landið.“ (Áherslubreytingin er mín)

Eins og þið sjáið á myndinni neðst, þá heldur hann (og Þórólfur) þjóðinni í greipum óttans, með dyggri aðstoð fólks eins og þessa hér.

Og það stendur ekkert til að enda þetta, það munu endalaust koma fram einhver ný og ný "afbrigði" sem munu "réttlæta" sífellt meiri og verri hömlur á okkur. Sjáið til dæmis hvað er búið að gerast í Austurríki!

Sannið til, það sem er að gerast þar og í fleiri löndum kemur líka hingað, það er spilað eftir sama handritinu hér og annars staðar, með mismunandi blæbrigðum þó.

Við verðum sem þjóð að stoppa þessa aðför að lífi okkar og frelsi!

Þið verðið að fara að gera ykkur grein fyrir því að þetta hefur aldrei nokkur tímann snúist um að vernda líf (og gamla fólkið), eða baráttu við einhvern "heimsfaraldur".

Hættið að fara í þessar sprautur áður en skaðinn verður miklu meiri en orðinn er og hættið að vera með þessar súrefnisheftandi tuskur fyrir vitunum.

Hættið að skrifa nöfnin ykkar á blöð á viðburðum, hættið að leyfa löggunni að njósna um ykkur, neitið að taka þessi fölsku PCR próf, hættið að taka einhver tilgangslaus próf til að komast í jarðarfarir og leikhús, og ekki hleypa þessu liði með sprauturnar í börnin!

Hættið að hlýða þessum fáránlegu reglum! Ef við munum missa allt sem verið er að svipta okkur núna, þá verður sökin öll ykkar sem leyfa því að gerast.

VAKNIÐ áður en það verður orðið of seint!

2209j

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband