Bloggfærslur mánaðarins, desember 2021

13 ástæður fyrir því að hugsa ykkur vel um áður en þið látið bólusetja 5-11 ára börnin ykkar.

Nú er komið að því sem margir hafa óttast, að ungum börnum "verði boðin" bólusetning eftir áramótin.

Þórólfur segir:

Far­ald­ur­inn valdi mik­illi rösk­un á lífi barna

Upp­lýs­ing­ar liggja nú fyr­ir um að börn séu að leggj­ast al­var­lega veik inn á spít­ala vegna veirunn­ar í bæði Banda­ríkj­un­um sem og öðrum Evr­ópu­lönd­um og því er fyllsta ástæða til að bjóða of­an­greind­um ald­urs­hópi bólu­setn­ingu gegn veirunni, að sögn Þórólfs.

Hann seg­ir yf­ir­stand­andi bylgju far­ald­urs­ins drifna áfram af börn­um og að bólu­setn­ing­ar þeirra muni ekki ein­ung­is hjálpa við að kveða smit­in niður held­ur einnig að draga úr nei­kvæðum áhrif­um veirunn­ar á dag­legt líf barna.

„Veir­an get­ur valdið mik­illi rösk­un á dag­legu lífi þess­ara barna. Menn hafa haft mikl­ar áhyggj­ur af því að það geti líka haft var­an­leg og slæm áhrif á börn­in svo það er fyllsta ástæða til þess að reyna koma í veg fyr­ir það. Fyrst og fremst erum við bara að hugsa um hag barn­anna sjálfra.“

Hvaðan koma þessar upplýsingar Þórólfur?

Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna maðurinn sé aldrei krafinn gagna sem sanni það sem hann er að segja í fjölmiðlunum.

Hann kemst upp með því að vísa alltaf í einhverjar nýjar rannsóknir og upplýsingar þegar hann þarf að koma einhverjum málstað á framfæri.

Skýrt dæmi um það er þegar hann sagði í fyrrasumar að grímur gerðu ekkert gagn, en nokkrum vikum síðar tók hann algjöra U-beygju og sagði að einhverjar nýjar rannsóknir bentu til akkúrat hins gagnstæða.

13 ástæður fyrir því að láta ekki sprauta börnin ykkar með Pfizer bóluefninu

  1. 86% barna hlaut aukaverkanir vegna Pfizer í klínískri rannsókn.
  2. 1 af 9 börnum hlaut alvarlegar aukaverkanir sem gerði þau ófær um að sinna daglegum athöfnum.
  3. Aðeins er hægt að tengja 9 andlát barna við veiruna frá því í mars 2020.
  4. Hættan á alvarlegum veikindum hjá börnum er ákaflega lítil.
  5. Bóluefnið er tilraunaverkefni og enn í klínískum rannsóknum.
  6. 3 vísindarannsóknir sem voru framkvæmdar af bresku ríkisstjórninni, Oxford háskóla og CDC og birtar í ágúst sýna fram á að þessi bóluefni virka ekki.
  7. Gögn frá Public Health England sýna að meirihluti dauðsfalla er meðal bólusettra og benda til þess að bóluefnin geti gert sjúkdóminn verri.
  8. Tilkynnt hefur verið um 1.8 milljón aukaverkanir, og það aðeins í Bretlandi.
  9. Það hafa orðið fleiri andlát á 8 mánuðum vegna Covid bóluefnanna en vegna allra annarra bóluefna samanlagt síðan árið 2001.
  10. Það er hætta á hjartabólgum í börnum vegna Pfizer bóluefnisins.
  11. Börn hafa dáið, og eru að deyja vegna Covid bóluefnanna.
  12. Hver hagnast á því að þú látir sprauta barnið þitt?
  13. The Joint Committee on Vaccination & Immunisation hefur neitað að mæla með því að börnum verði boðið Pfizer bóluefnið.

Mjög ítarleg heimild hér, sem ég hvet alla til að skoða vel og vandlega.

Þessu til viðbótar má velta því fyrir sér hvers vegna ungir íþróttamenn, sem eðli málsins samkvæmt eru í góðri líkamlegri þjálfun séu að detta niður og jafnvel deyja í miðjum leikjum.

Hér segir að 71 íþróttamaður hafi á þessu ári fengið hjartaáfall og 26 þeirra látist eftir bólusetningarnar.

Hér er listi yfir helstu tilvik sem tilkynnt hefur verið um. Flest þeirra voru hjartastopp.

  • Hjartastopp
  • Blóðtappar eða segamyndun
  • Heilablóðföll
  • Óreglulegulegur hjartsláttur
  • Hjartsláttartruflanir
  • Taugakvillar
  • Andlát  

Ung fórnarlömb bóluefnanna, og viðtöl við foreldra

1213s

Sjá má þessar sláandi upplýsingar í þessu vídeói. Og athugið, þetta er aldurshópurinn sem þegar er búið að sprauta.

Getum við ekki öll verið sammála um að þetta sé ekki eðlilegt?

1130j

Foreldrum ber skylda til að gæta hagsmuna barna sinna og gera það langflestir auðvitað með miklum sóma.

En væru þeir tilbúnir að senda þau eitthvert með nýrri tegund flugvélar sem væri enn á tilraunastigi, þótt nokkrar fullar af farþegum hefðu þegar hrapað, og þótt flugvélaframleiðandinn segðu að þrátt fyrir það væru alveg öruggar?

Ég held ekki. Er ekki betra að leyfa börnunum að njóta vafans?

 


mbl.is Börnum á aldrinum 5-11 ára boðin bólusetning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var logið um raunverulega orsök andláts þessa manns?

Í gær skrifaði ég blogg við frétt um 36. andlátið af völdum þessa sjúkdóms, sem fór eitthvað illa í mann sem las það, og fann því allt til foráttu.

Ég svaraði honum í löngu máli, meðal annars þessu:

Vissirðu að þessi maður sem sagður er hafa núna látist úr Covid varð fárveikur eftir fyrstu tvær sprauturnar, og fór í örvunarsprautu viku áður en hann lést? Ónæmiskerfið hans hrundi, hann fékk blóðtappa í lungu og fót, 40 stiga hita og 3 tegundir sýkinga, líffærin fóru á endanum að gefa sig hvert af öðru svo hann lést.

En hann dó víst úr Covid, blessaður þrísprautaður maðurinn.

Dóttir mannsins, sem heitir Margrét Ósk Guðbergsdóttir er búin að stíga fram og segja málið frá sínu sjónarhorni, og er hún sjálf sködduð eftir eina sprautu, og lýsti í viðtali í sumar að sér liði eins og hún væri orðin níræð eftir hana.

Ég vona innilega að hún og fjölskylda hennar fari lengra með málið!

Sem betur fer hikar fólk ekki við að tjá sig á samfélagsmiðlunum ef því ofbýður fréttaflutningurinn, eins og sjá má hér fyrir neðan.

1212é

Hverju öðru hefur verið logið að okkur?

Til dæmis því að þessi svokölluðu "bóluefni" séu mjög örugg og með mikla virkni, og ég hef t.d. margoft haft eftir það sem Ragnheiður Erlendsdóttir hjúkrunarfræðingur og Þórólfur hafa logið að okkur. 

Hann að það sé bara tvennt í stöðunni, annað hvort að láta sprauta sig eða fá Covid, og hún að öll bóluefnin séu jafn góð og - við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Þetta eru tilkynntar aukaverkanir með eins mánaðar millibili

1212f

Á þessum slétta mánuði hefur tilkynntum aukaverkunum fjölgað um 305, eða um það bil 10 á dag að meðaltali, og fjölgun alvarlegra aukaverkana er sláandi, eða 23 á aðeins þessum eina mánuði!

Ég varpaði fram spurningu í bloggi þann 10. nóvember um hvers vegna sóttvarnalæknir væri aldrei spurður út í aukaverkanirnar, og þar vitnaði ég meðal annars í nýja bloggfærslu frá honum:

"Rannsóknir erlendis frá benda til að örvunarskammtur veiti um 90% vörn gegn smiti og alvarlegum veikindum umfram skammt nr. tvö og þannig eru sterkar vísbendingar um að hjarðónæmi muni nást með útbreiddri örvunarbólusetningu.

Reynslan mun hins vegar skera úr um hver raunverulegur árangur verður eða hvort fleiri örvunarskammta þurfi að gefa á næstu mánuðum eða árum. Alvarlegar aukaverkanir eftir örvunarskammtinn eru afar fátíðar og síst algengari en eftir skammt nr. tvö." (Áherslubreytingin er mín)

Sjáiði lygarnar í honum?

Viku síðar bloggaði ég um furðu mína á því að mest bólusettu þjóðirnar væru með flestu smitin núna, meira að segja ein 100% sprautuð.

Sannleikurinn er bara sá að allt er gert til að breiða yfir sannleikann um þennan svokallaða "heimsfaraldur".

Fíllinn í stofunni - ef bóluefnin virkuðu, þá þyrfti enginn að fara í búst!

1203é

 

 


Í dag greindist 99,973% þjóðarinnar EKKI með veiruna!

Með fyllstu virðingu fyrir þessari manneskju sem lést víst vegna veirunnar í gær, þá þykir mér það stærri frétt að 99,973% þjóðarinnar sé EKKI greind með hana í dag.

Samt er þjóðinni haldið í hlekkjum, svipt frelsi og sjálfsögðum mannréttindum, neydd til að fara í hraðpróf til að geta farið í jarðarfarir eða leikhús, og neydd til að hefta súrefnisflæðið með grímum sem gera ekkert gagn!

1211b1

Ég fann í hendingskasti nokkrar nýlegar fréttir sem lýsa sturluninni sem er í gangi í heiminum í dag.

Konu neitað um heilbrigðisþjónustu

Rakel Þorleifsdóttir frá Akureyri lenti um síðustu helgi í því óhappi að brjóta illa á sér fingurinn þegar hún var að festa lok á pott sem var utandyra. Hún festi fingurinn í pottlokinu og í þann mund kemur vindhviða sem leiddi til þess að fingurinn á Rakel brotnaði illa.

Rakel leitaði beint á bráðamóttöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri en þegar hún segir frá því að hún sé í sóttkví er henni sagt að koma sér heim, ekki sé hægt að gera að sárum hennar.

Millilending í Osló breyttist í martröð fyrir jólin

Það sem henni blöskri mest sé ósveigjanleikinn sem hún upplifi sem gróft brot á sínum mannréttindum. „Hver mistökin á fætur öðrum, ósveigjanleiki sem meira að segja birtist í neitun á að koma til mín eigin farangri. Reglurnar eru flóknar, ruglingslegar, síbreytilegar og mótsagnarkenndar. Og framkvæmdin er köld og ómanneskjuleg,“ skrifar Auður á Facebook en færslu hennar er hægt að lesa hér að neðan.

Konu sem legið hefur á spítalanum síðan á fimmtudag sagt að koma sér heim því hún neitar PCR prófi

Ung kona sem er mikið veik og hefur legið á Landspítalanum síðan á fimmtudag hefur mætt dónaskap frá starfsfólki þar sem hún er ekki bólusett. Það uppgötvaðist í dag að hún væri ekki bólusett og var henni þá gert að fara í tvö hraðpróf sem reyndust neikvæð. Nú er konunni hins vegar gert að fara einnig í PCR próf en hún neitar því enda er ekki óalgengt  að fólk skaðist við að fá pinna upp í  nefkok og ofan í munnkok. Spítalinn hefur ekki boðið henni að taka munnstroku eða blóðprufu í staðinn.

Ungt par sem á von á barni flokkast sem óbólusett á Landspítalanum því þau hafna örvunarskammti

Ungt par sem er statt núna á fæðingadeild Landspítalans hefur sætt mikilli óvild og hótunum þar sem parið hefur hafnað örvunarskammti af Covid bóluefni.

Málsatvik eru þau að konan fór í 16 vikna sónar og mældist fóstrið þá alheilbrigt. Hún fór svo svo stuttu síðar í bólusetningu samkvæmt ráðleggingu læknis og ljósmóður. Í 20 vikna sónar greindist barnið aftur á móti með hjartagalla. Konan fór síðan aftur í sónar gengin sex mánuði á leið og greindist barnið þá vaxtarskert. Sökum þessa treysti parið sér ekki í örvunarskammtinn.

Parið mætti síðan á fæðingadeildina í gær en þar sem þau höfnuðu örvunarskammtinum var þeim tjáð að maðurinn gæti ekki verið viðstaddur fæðingu barnsins þar sem þau teljist óbólusett því sex mánuðir eru liðnir frá síðasta skammti. Parið var mjög ósátt við þetta og mótmælti en mættu þá dónaskap og hótunum frá starfsfólki spítalans.

Í dag greindust 99,973% þjóðarinnar EKKI með veiruna!

Haldiði virkilega ennþá að þetta snúist um baráttu gegn einhverri veiru?

1111p


mbl.is Andlát vegna veirunnar í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórða valdið - fjölmiðlarnir.

Ég var að renna yfir netmiðlana í gær og smellti fyrir rælni á frétt, sem reyndist nú frekar vera hálfgerð "ekkifrétt".

Það sem hins vegar vakti athygli mína þarna er eftirfarandi:

Á þessum síðustu og verstu tímum er blaðamannsstarfið orðið hálfgert kyrrsetustarf. Flestar nauðsynlegar upplýsingar eru aðgengilegar á internetinu og síðan hjálpar yfirleitt símtækið til þess að ná viðbrögðum eða viðtölum við einstaklinga. Á fjölmiðlum dagsins í dag eru það helst ljósmyndararnir sem eru á ferð og flugi um alla borg en blaðamennirnir matreiða svo fréttirnar fyrir framan tölvuskjá. Það er því frekar ólíklegt að rekast á blaðamann á vappi á vinnutíma.

Vissulega koma af og til upp mál þar sem nauðsynlegt er að mæta á staðinn en þó geta liðið heilu vikurnar án þess að blaðamenn fari út úr húsi í fréttaleit. Helst er farið út undir bert loft til að kaupa sér eitthvað í svanginn.

Hvers vegna vakti þessi textabútur athygli mína?

Þið megið geta þrisvar!

Þótt DV teljist kannski ekki til vönduðustu miðla, þá á hann það sammerkt með nánast öllum, jafnvel þeim sem segja sig vera frjálsa, óhrædda og óháða fréttamiðla, að hafa brugðist stórkostlega í fréttaflutningi sínum um þennan faraldur.

Þessi frétt virðist skrifuð í frekar léttum dúr, en staðfestir í rauninni að rannsóknarblaðamennska er dautt fyrirbæri, ekki bara hér á landi, heldur um heim allan.

Fjórða valdið

Fjórða valdið er hugtak sem vísar til fjölmiðla (á eftir löggjafarvaldi, dómsvaldi og framkvæmdavaldi). Hugtakið vísar til þess að fjölmiðlar geta oft, beint eða óbeint, stýrt atburðarás ákveðinna mála, með umfjöllun sinni. (Áherslan er mín)

Þarna mætti kannski bæta við aftast: Eða með því að sleppa eða smætta umfjöllun um atburðarásina.

Mér hefur verið þessi skilgreining ansi hugleikin í þessum faraldri, því umfjöllunin hefur verið alveg skelfilega einhliða og byggð að stórum hluta til á hræðsluáróðri.

Ég veit til þess að flestir, ef ekki allir þeirra hafa fengið sent mikið magn upplýsinga frá "hinni hliðinni" og þeir beðnir að skoða málin.

Viðbrögðin hafa verið í skötulíki og sárasjaldan sér maður nokkuð annað en "smittölur" gærdagsins, fréttir af nýjustu "afbrigðunum" og þess háttar.

Regluleg viðtöl við sóttvarnalækni eru birt þar sem hann segir eitthvað og vísar í einhverjar nýjar rannsóknir, en hann virðist aldrei vera beðinn um að sýna þær máli sínu til staðfestingar. Hann fær bara að tala algjörlega gagnrýnislaust.

Kári Stefánsson sem hefur aldrei verið kosinn til neinna embætta og er eins langt frá því að vera hlutlaus aðili og mögulegt er (follow the money!), fær reglulega sín drottningarviðtöl þar sem hann fær frjálslega að tjá sig.

Hann hefur meðal annars viðrað þá skoðun sína að senda eigi alla sem vilja ekki láta sprauta sig út í Grímsey, og að það sé drullusokksháttur gagnvart landi og þjóð að láta ekki sprauta sig.

Þetta sama á við um fleiri "sérfræðinga" sem reglulega fá sitt pláss í fjölmiðlunum, boðskapurinn er yfirleitt sá að sprauturnar bjargi öllu.

Helgi Sig

Hann á heiður skilinn fyrir margar af sínum stórkostlegu teikningum sem birtast reglulega í Mbl. Hann er bersýnilega ekki ritskoðaður út af borðinu þar á bæ!

1210f

Það sem var ekki í fréttum í dag (fengið af láni á Facebook)

368.691 manns, eða 99,973% landsmanna, greindust ekki með kórónuveiruna í gær 9. desember.
 
99,628% landsmanna eru ekki í einangrun.
 
Aðeins 0,006% Íslendinga eru á spítala með veiruna. Aðeins 1,7% þeirra sem eru í einangrun eru á spítala. Hin 98,3 prósentin eru með engin, væg eða flensulík einkenni.

 

Þetta er rétta fréttin!

Ef við fengjum svona fréttir á hverjum degi, þá myndum við sjá að þessi faraldur er byggður á stórkostlegum blekkingum, og keyrður upp af fjölmiðlum og samfélagsmiðlum!

Hér er ágætis upprifjun síðan í sumar, og hafið þið áður verið búin að hlusta á þennan frábæra og óspillta lækni, þá legg ég til að þið gerið það aftur, hvert orð sem hann segir er satt.

Og eina ferðina enn, í guðanna bænum farið að vakna kæru Íslendingar áður en það verður orðið allt of seint!


Sveltistefna innleidd í Kanada fyrir þá sem eru ekki með bóluefnapassa.

1208jÍ New Brunswick sem er hérað austarlega í Kanada er hljóðlega verið að innleiða nýjar sóttvarnarreglur.

Frá og með sunnudeginum 4. desember er íbúunum skylt að sýna fram á sönnun fyrir fullri bólusetningu til þess að fá að fara inn í matvörubúðir, og að fyrirtæki megi neita fólki um þjónustu geti það ekki sýnt fram á slíkt.

Þetta nýja ákvæði hefur vakið upp spurningar frá heilbrigðissérfræðingum um nauðsyn þess að setja slíka áætlun í gang þar sem daglegur smitfjöldi í héraðinu sé lágur, en þann 7. desember var tilkynnt um 69 ný smit í héraði þar sem tæplega 800.000 manns búa.

Ástæðurnar sem voru gefnar fyrir þessum reglum eru áhyggjur heilbrigðisyfirvalda vegna "fjölgunar smita" tvær vikurnar á undan, og sérstaklega meðal þeirra ósprautuðu. (Já er það ekki?)

Þessar nýju reglur eru fyrsta stigið í þriggja stiga stigvaxandi viðvörunarkerfi, og ekkert voðalega íþyngjandi að sögn heilbrigðisráðherrans.

Fyrsta stigið er svona:

Passa verður upp á 2ja metra fjarlægð milli manna, eða krefjast sönnunar fyrir fullri bólusetningu 12 ára og eldri.

Annað stigið:

Hægt að hafa opið með fjöldatakmörkunum, til viðbótar við kröfur fyrsta stigs.

Þriðja stigið:

Aðeins nauðsynleg smásala leyfð. Ónauðsynleg smásala skal eingöngu vera snertilaus afhending eða eingöngu afhending. Öll fyrirtæki sem teljast ekki "nauðsynleg" verða neydd til að loka.

Hugo Talks

1209e1

Hinn breski Hugo fer vel yfir þetta í þessu stutta vídeói. Það er heillaráð að svelta fólk í þágu heilsu þess, er það ekki?

Alles für Ihre Sicherheit!

1208r

Bóluefnapassarnir

Maður þarf að hafa verið undir einhverri þúfu síðastliðin tvö ár til að sjá ekki að verið er að svipta mannkynið öllu, eða hafa verið "gaslýstur" af yfirvöldum, eins og búið er að gera um allan heim.

Þetta hefur verið keyrt gengdarlaust áfram af spilltum fjölmiðlum og samfélagsmiðlum, augljóslega samkvæmt fyrirfram ákveðnu plani.

Sér fólk ekkert athugavert við að þurfa að sýna einhverja bóluefnapassa til þess að geta sótt sér nauðsynlega þjónustu, ferðast, eða bara fá að lifa sem frjáls manneskja?

Þessir bóluefnapassar hafa nákvæmlega ekkert með lýðheilsu að gera, heldur til að þvinga fólk til að láta sprauta sig.

Þegar allir verða sprautaðir og komnir með passann, þá verða þeir að láta sprauta sig á nokkurra mánaða fresti, annars fellur passinn úr gildi, og þeir teljast aftur ósprautaðir.

Með þessu er verið að koma á "social credit system" að fyrirmynd Kínverja, og það er örugglega hægt að finna nóg efni á netinu um hvernig það virkar, og nú er verið að nota íbúa New Brunswick til að prufukeyra þetta kerfi.

Það má lesa meira um þetta og sambærilegar aðgerðir í Austurríki og Þýskalandi í þessari grein hér.

Eins og þið sjáið, þá er ég með nokkrar myndir/tilvitnanir í nasismann sem kominn er í gang af fullum krafti, svona rétt til að minna ykkur á söguna sem aldrei átti að fá að endurtaka sig.

1209xx

Vissuð þið þetta:

The EU Digital COVID Certificate serves as proof of vaccination, testing and recovery, which can be used across EU Member States, and the EEA countries Iceland, Norway, Liechtenstein, as well as Switzerland. When travelling, every EU Digital COVID Certificate holder will have the same rights as citizens of the visited Member State who were vaccinated, tested or recovered from COVID-19.

1209f

Hélduð þið virkilega að það sem er að eiga sér stað í heiminum myndi ekki líka eiga sér stað hér á landi?

Enn og aftur, í guðanna bænum farið að vakna kæra fólk!

 

 


Nú verðið þið hinir sofandi Íslendingar að vakna, annars munuð þið leyfa það að við verðum svipt öllu!

Hafið þið ekkert fylgst með því sem er að eiga sér stað í nágrannalöndum okkar sem og löndum eins og Nýja Sjálandi og Ástralíu?

Gamli nasisminn og fasisminn sem aldrei áttu að fá að endurtaka sig, hafa hafið innreið sína að fullu í þessum löndum!

Ef þið neitið að vakna til raunveruleikans, þá er hvorki ykkur né okkur sem þjóð viðbjargandi, og það mun algjörlega skrifast á ykkur að þjóðinni verði fækkað með eitursprautum sem voru akkúrat hannaðar til þess - að skaða og drepa fólk, meira að segja börn í móðurkviði!

Hvers vegna haldið þið að ég og aðrir séum að verja okkar prívat tíma til að afla upplýsinga til að færa ykkur sannanir fyrir því að þessi svokölluðu "bóluefni" séu efnavopn sem voru hönnuð til að drepa okkur og fækka mannkyninu? Haldið þið að við höfum ekkert betra við tíma okkar að gera?

Staðreyndin er bara sú að við sem erum löngu vöknuð, erum mörg hver búin að skrifa um þennan hrylling, færa fjölmiðlum, skólastjórnendum, öllum alþingismönnum og öllum þeim sem stjórna umræðunni um þennan meinta "heimsfaraldur", ótal sannanir fyrir blekkingunum sem í gangi eru.

En viðbrögðin eru yfirleitt alltaf á sama vegu, þau eru lítil sem engin.

Ég fékk nýlega athugasemd við bloggfærslu frá vel menntuðum eldri herramanni sem er virkur hér á Moggablogginu, sem fann málflutningi mínum allt til foráttu og skrifaði sjálfur sérstaka bloggfærslu um það mér til minnkunar sem mér var bent á.

Ég hef aldrei fylgst með bloggum þessa manns, en sá að sólarhring eftir bloggfærslu hans hafði hann hvorki fengið læk né undirtektir við málflutning sinn.

Gera má líklega ráð fyrir því að hann, þrátt fyrir sína menntun og lífsreynslu hafi samt sem áður fallið fyrir lygunum og óttaáróðrinum, enda sýnist mér hann hafa skrifað neikvæðan póst um mig og mína gagnrýni á Kára Stefánsson sem hann hefur greinilega í guðatölu.

Breskur útfararstjóri sem tjáir sig aftur

1208o

Hér er breski útfararstjórinn John O’Looney sem gerðist uppljóstrari eftir það sem hann upplifði í sínu starfi, aftur að vekja athygli á gríðarlegri aukningu í dauðsföllum í Bretlandi sem felur meðal annars í sér blóðtappa, heilablóðföll, hjartaáföll og heilablæðingar. (Hefur einhver fylgst með öllum fótboltaköppunum sem eru að detta núna niður í leik og jafnvel deyja?)

Ef einhver ætti að vera með puttann á púlsinum, þá er það manneskja sem vinnur við að taka á móti látnu fólki og búa það til útfarar.

Hann segir líka eitthvað sem kemur ekkert á óvart, að útfararstjórum hafi verið mútað og verið þrýst á að fela raunverulegar ástæður andláta.

Hann segist hafa séð núna fleiri andlát vegna blóðtappa á þessu ári en á öllum sínum 14 ára ferli samanlagt.

Horfið á þetta: UK funeral director sends chilling message about sharp rise in Covid-19 vaccine deaths.

Ég skrifaði um þennan sama mann 12. júlí síðastliðinn, þar sem hann sagði að það hafi ekki verið nein fjölgun útfara í Bretlandi fyrir en þessar tilraunabólusetningar hófust.

Í sama bloggi skrifaði ég líka um fjölda tilkynntra aukaverkana hér á landi, og þann dag voru þær 2.123, þar af 107 alvarlegar og 26 andlát.

Landlæknir okkar lúrði í einhverja mánuði á nokkur þúsund tilkynntum aukaverkunum sem var smátt og smátt bætt inn. Hvers vegna gerði Alma það?

Nú eru þær komnar upp í 5.808, þar af 251 alvarleg, og þeim fjölgar með hverjum deginum síðan bústin sem á annað hundrað þúsund Íslendinga hafa hlaupið í.

Óóó, það er komið upp enn eitt "afbrigðið", Þórólfur hefur voðalega miklar áhyggjur og lofar að bústið sé svarið.

Fullbólusett íslensk stúlka greindist með nýja "afbrigðið" um daginn eftir að hafa "greinst og veikst" af fyrra afbrigði aðeins mánuði áður.

Það fylgir ekki sögunni hvort hún hafi verið búin að fara í bústið áður, en ég gat ekki á mér setið og póstaði þessari frétt á FB vegg mínum og hvatti alla ósprautaða (í smá gríni) til að drífa sig í sprauturnar svo aumingja stelpan þyrfti ekki að veikjast einu sinni enn.

En þetta er víst allt okkur þeim ósprautuðu að kenna....

Þið meðvirku og heilaþvegnu Íslendingar

Viðhorf ykkar meðvirkra Íslendinga verður væntanlega til þess að ósprautuð 12 ára dótturdóttir mín mun ekki komast á fótboltamót í útlöndum á næsta ári, því krafist er að allar stelpurnar hafi verið sprautaðar með þessum genabreytandi tilraunalyfjum sem eru hreint engin bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til.

Svo, bara skammist ykkar þið heilaþvegnu Íslendingar sem hafið leyft að súrefnishamlandi grímum sé troðið upp á andlit barnanna okkar og leyft að þau séu sprautuð með efnum sem sannanlega drepa þau eins og okkur fullorðna fólkið líka.

Ég nenni ekki neinni meðvirkni lengur. Hingað til hef ég kurteislega reynt að benda ykkur á að ekki sé allt sem sýnist í þessum meinta "heimsfaraldri", og alltaf með gögnum máli mínu til staðfestingar.

Ég hef verið svo lánssöm að skrif mín hafa náð til margra, svo vonandi hef ég og þau hin öll sem eru líka að reyna að vekja fólk náð að vekja fleira fólk, en það virðist samt ekki vera nóg til að hrista upp í fólki og fá það til að gera sínar eigin rannsóknir.

Svo ég segi bara aftur, það verðið þið hinir sofandi Íslendingar sem munu leyfa því að við verðum svipt öllu!

Hefur eitthvert ykkar sögu að segja?

Það sem sárvantar hér á landi er að fólk þori að stíga fram og segja frá aukaverkunum eftir sprauturnar, eða skyndileg andlát ástvina sinna, jafnvel ungs og heilbrigðs fólks sem varð bráðkvatt stuttu eftir sprauturnar.

Ég kallaði eftir frásögnum í sumar og skrifaði meðal annars sorglega sögu aldraðra foreldra manns sem voru þvinguð í sprauturnar.

Ef einhver vill stíga fram, jafnvel nafnlaust, þá vildi ég gjarnan fá að skrifa ykkar sögu í fullri samvinnu við ykkur.

Þið getið sent mér skilaboð á Facebook veggnum mínum sem er á mínu nafni.

Ég sjálf er komin vel yfir miðjan aldur og hef gert nánast allt sem mig hefur langað til í þessu lífi, en ég mun aldrei hætta að berjast fyrir því að mín börn og barnabörn - eða allra ykkar hinna, fái að lifa án allra þessara skelfilegu áætlana sem búið er að ákveða fyrir hönd okkar allra, að okkur forspurðum.

1208h

Ítarefni:

 

 

 


Þetta er fjölmiðla- og samfélagsmiðladrifinn "heimsfaraldur".

Ef við hefðum ekki aðgengi að internetinu, fjölmiðlum og samfélagsmiðlum, þá myndum við ekki vera endalaust skelfingu lostin yfir einhverri veiru sem "stökkbreytist" í hvert sinn sem ná þarf til nýs hóps í sprauturnar.

Og nú er komið að litlu krökkunum sem eru ekki í nokkurri einustu áhættu, ég endurtek, ekki í nokkurri einustu áhættu, en bölvaðar sprauturnar geta skaðað þau fyrir lífstíð og/eða hreinlega drepið þau!

2308kMesta hættan er þau verði varanlega sködduð af þessum tæplega tveggja ára löngu aðgerðum sem hafa kennt þeim að vera hrædd hvert við annað, hrædd við annað fólk, og þjökuð af samviskubiti yfir því að hafa hugsanlega smitað ömmu gömlu og afa.

Og hafandi þurft að dúsa jafnvel margoft heima út af einhverjum "smitum" í skólunum, eða ef einhver í fjölskyldunni fær "jákvæða" greiningu úr sýnatöku.

Einnig eldri börnin sem hafa þurft að nota þessar bölvuðu grímur sem allir ættu að vita að gera ekki nokkurt gagn, þær eru bara tákn um hlýðni og til að minna fólk sýnilega á að það sé einhver skelfileg "ógn" allt í kringum okkur.

Áhrif óttaáróðursins og heilaþvottarins

Fólk er enn sjúklega hrætt við einhverja veiru því Þórólfur og Kári segja því að vera það, og athugið, þetta er líklega fólkið sem búið er að hlaupa í allar sprauturnar (plús flensusprautur?) og setur samviskusamlega einhverjar tuskur fyrir vitin á sér, afskaplega hlýðið fólk.

Hvað ætli sé langt í næstu sprautu?

Mjög áhugavert vídeó: MASS PSYCHOSIS - How an Entire Population Becomes MENTALLY ILL

0804f

Í Zimbabwe nota aðeins 8,7% íbúa samfélagsmiðla, en í Bandaríkjunum er hlutfallið 74%. Í fyrrnefnda landinu er "bólusetningar"hlutfallið 19%, en líklega um 58% í því síðarnefnda.

Hvað skyldi hlutfall þeirra sem nota samfélagsmiðla vera hátt hér á landi?

2209b

Hér er áhugaverð grein um sprautuáróðurinn í kjölfar nýjasta "afbrigðisins", og umfjöllun um Bill nokkurn Gates, sem er að vara þjóðir við því að búa sig undir nýja faraldra á næstunni, þar með talinni bólusótt sem opinberlega hefur verið útrýmt.

Þessi maður hlýtur að eiga öfluga kristalskúlu, því hann hefur verið ansi sannspár um faraldra hingað til!

Kannski er það þess vegna sem hann og fleiri héldu æfingu í viðbrögðum við heimsfaraldri í október 2019, rétt áður en yfirstandandi "heimsfaraldur" skall á heimsbyggðina.

Og eins og við vitum, þá mun ekkert koma okkur út úr honum nema sprauturnar "góðu", og því fleiri sprautur, því betra.

Getum við treyst því sem okkur er sagt, jafnvel af okkar eigin sóttvarnalækni?

Því er fljótsvarað, NEI, hann er búinn að margljúga að okkur í tæplega tvö ár núna. Ekki heldur Kára sem er langt því frá að vera hlutlaus aðili, og hefur allt of mikil völd í þjóðfélaginu án þess að hafa verið kjörinn til þess.

Ekki heldur Ingileifu Jónsdóttur starfsmanni Íslenskrar erfðagreiningar sem hefur verið kröftug í sprautuáróðrinum. Það vill svo til að hún er líka á ráðgjafalaunum hjá Global Vaccine and Immunization Research Forum.

Og ekki frekar en öllum hinum sem dásama þessar sprautur og vilja koma nál í hvern einasta handlegg hér á landi.

Frábær pistill!

Auður Ingvarsdóttir birti pistil í Morgunblaðinu þann 6. desember.

Þar segir meðal annars:

Það dynja á okk­ur þessa daga og und­an­farna 20 mánuði til­mæli um að „ótt­ast“. Við eig­um að ótt­ast neyðarástand, sótt, dauða, smit, ein­angr­un og ekki síst annað fólk. Hér ætla ég að ræða aðeins hlut sér­fræðimenntaðra í að viðhalda og spana upp skelf­ingu og dóms­dags­stemn­ingu.

All­nokk­ur hluti þjóðar­inn­ar virðist lamaður af hræðslu við ósýni­leg­an óvin, veiru sem veld­ur önd­un­ar­færa­sýk­ingu. Kór­ónu­veir­an er enda iðulega út­máluð sem stór­hættu­leg drápsveira sem þó er veru­lega of­mælt. Það hef­ur margoft komið fram að veir­an er nán­ast aðeins skæð eldra fólki og þeim sem eru með slæma und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Dauðsföll meðal þessa hóps eru þó mun færri en pre­dikað var í upp­hafi. Í lang­flest­um til­vik­um lif­ir jafn­vel hrumasta fólk þessa veiru­sýk­ingu af.

0910

Pressunni mútað af Bill Gates

Hér er fjallað um að helstu fjölmiðlar heims hafa þegið himinháa "styrki" af mannvininum mikla Bill Gates, sem vill svo til að er einn stærsti styrktaraðili WHO (sem Þórólfur fylgir), og er einn helsti fjármögunaraðili þessara svokölluðu "bóluefna".

Engir hagsmunaárekstrar þarna á ferð, er það nokkuð?

2409a

Er fjölmiðlum líka mútað hér á landi?

Satt best að segja hef ég ekki hugmynd um það, hins vegar eru allir fjölmiðlar nema Útvarp Saga á ríkisstyrkjum, enda er hún eini fjölmiðillinn sem hefur fjallað um hinar hliðar "heimsfaraldursins".

Flestir eða allir birta nánast aðeins endalausan hræðsluáróður og nýjustu "smittölurnar", en sjaldan eða aldrei nokkuð um aukaverkanirnar eftir sprauturnar sem fjölgar dag frá degi. Nýjustu tölur eru 5.796, þar af 32 andlát og 217 lífsógnandi. Því miður fjölgar tilkynningum um alvarlegar aukaverkanir dag frá degi núna.

Þetta er sannleikurinn!

Bóluefnin voru ekki búin til til að bjarga heimsbyggðinni út úr einhverjum heimsfaraldri, heldur var "heimsfaraldurinn" búinn til svo hægt væri að réttlæta að hún yrði sprautuð - til að fækka mannkyninu.

Þeir sem ekki munu deyja eftir sprauturnar, munu verða fyrir varanlegum breytingum á líkömum sínum og persónuleikum, enda á að gera alla "transhuman".

Og árið 2030 munum við ekkert eiga, og vera hamingjusöm.

Það plan er búið að vera til í langan tíma, og lítið mál er að finna sannanir um það á netinu ef maður nennir að leita.

Til dæmis má kafa ansi langt niður í planið á þessari síðu hjá World Economic Forum, þar sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra okkar er heiðursfélagi!

Þetta er ekki hræðsluáróður eða samsæriskenning, heldur bláköld staðreynd. Nasisminn er vaknaður til lífsins í mörgum löndum nálægt okkur þar sem ósprautaðir eru aðskildir frá þeim sprautuðu, settir í einangrunarbúðir og þurfa jafnvel að greiða háar fjárhæðir í sektir fyrir að brjóta einhverjar skáldaðar sóttvarnarreglur.

Lögregla og herlið fer milli verslana og veitingastaða til að heimta að fá að sjá bólusetningarpassa fólks (hljómar kunnuglega, er það ekki?), og fólk er barið fyrir að neita að bera grímur.

Og ástandið á bara eftir að versna, og sannið til, það sem er að gerast annars staðar kemur hingað líka, því unnið er eftir sama handritinu í öllum þessum löndum.

0709a

Á meðan risastór mótmæli eru í þessum löndum, sofa heilaþvegnir Íslendingar værum svefni.

Kári hefur sagt að Íslendingar séu alltaf að verða heimskari og heimskari, enda er hann búinn að kortleggja genamengi þjóðarinnar.

Skyldi hann hafa rétt fyrir sér?


Í tilefni þess að nú á að fara að sprauta litlu krakkana...

Borið hefur á skyndilegum andlátum barna undir 12 ára aldri í Bandaríkjunum, eftir að "bólusetningar" voru samþykktar fyrir þennan aldurshóp.

Hin 11 ára Juliana Rechten dó skyndilega á þakkargjörðardaginn 25. nóvember síðastliðinn. Sagt er að hún hafi látist í svefni.

Hin 9 ára Destiny Gibson dó líka sama dag, eftir alvarlegt astmakast.

1206

Þótt ekki sé hægt að fullyrða að þær hafi verið sprautaðar, þá eru skyndileg andlát svona ungra barna afar sjaldgæf. En þróunin er því miður í þá átt að ungt fólk, sérstaklega íþróttafólk deyi skyndilega.

Yfirleitt vegna hjartavandamála eins og hjartavöðvabólgu og gollurshússbólgu, sem eru þekktar aukaverkanir af þessum svokölluðu "bóluefnum".

Hin 7 ára Harper var flutt á gjörgæslu nýlega vegna heilablóðfalls og blæðingar í heila, 7 dögum eftir Pfizer sprautu.

1206

Eftir meðferð á spítala virtist hún ná bata og var farin að geta gengið aftur, en svo hrakaði henni aftur og gat hvorki borðað, drukkið, setið uppi eða gengið. Ekki fylgir sögunni hvernig henni reiddi af eða hvort hún sé á lífi.

Það er farið að normalísera hjartaáföll meðal barna!

1211p

 

Pfizer lofar krökkunum ofurkröftum með sprautunni

0411s

Forsetafrú Bandaríkjanna, Superman og Wonderwoman hafa sameinað krafta sína í átakinu um að sannfæra 5-12 ára börn um að þessar "bólusetningar" séu góðar fyrir þau, og að þau muni fá verðlaun þegar búið er að stinga nál í handlegginn á þeim.

Eru engin takmörk fyrir lágkúrunni?

8 ára dótturdóttir mín var að horfa á eitthvað í símanum sínum í sumar, og verið var spila gamalkunnugt lag sem upprunalega hét "This girl is on fire", en í nýrri útgáfu var það "This girl is on Pfizer". Blessunarlega fattaði barnið ekki neitt.

Af vefnum

Ég er búin að taka hundruðir skjámynda héðan og þaðan á vefnum og af vettvöngum þar sem engin ritskoðun viðgengst, og tók saman í snarhasti nokkrar sem tengjast þessum "bólusetningum" á börnum.

Smellið á myndirnar til að stækka þær.

1206d

1206e

1206é

1206f

1206g

1206h

Ennþá yngri börnin

Það kæmi mér hreint ekkert á óvart að allt í einu eftir áramótin komi upp eitthvað nýtt "afbrigði" sem leggist víst sérstaklega illa á smábörn, og að það muni valda sóttvarnalækni miklum áhyggjum.

Þá verður farið að tala mjúklega um að nauðsynlegt sé að sprauta þau líka, eins og þau séu ekki nógu sprautuð fyrir!

Og Kári mun garga sem fyrr að það verði nú að gefa í og sprauta þau líka, og líklega mun hann vitna í einhverjar "vísindagreinar" sem segi að bólusetning barna sé hættulítil og hafi mikil áhrif. Alveg eins og hann sagði um 5-12 ára börnin.

Ef þú ert foreldri barns á þessum aldri, HUGSAÐU RÖKRÉTT!

1206i

Íslensk ungmenni hafa líka fengið alvarlegar aukaverkanir!

Þann 1. september síðastliðinn var búið að tilkynna um 33 aukaverkanir hjá 12-17 ára börnum eftir sprauturnar, þar af 4 alvarlegar. Ég er því miður ekki með nýrri tölur handbærar.

Í guðanna bænum gerið ykkar eigin rannsóknir á þessum svokölluðu "bóluefnum", áður en þið hleypið þessu fólki í börnin ykkar!

Friðarganga til verndar börnum

Að lokum vil ég hvetja alla sem geta, að taka þátt í friðargöngu sem haldin verður á morgun 7. desember.

 

1206í


Allt er gert til að breiða yfir sannleikann.

Tveir breskir læknar hafa varað við því að allt að 300.000 Bretar geti búist við að fá hjartatengda sjúkdóma vegna "streituröskunar eftir heimsfaraldurinn".

Sálfræðingur segir að allt að þrjár milljónir Breta þjáist nú þegar af þessari röskun vegna streitu og kvíða vegna "heimsfaraldursins", og óttast að þetta gæti leitt til stórfelldrar aukningar á líkamlegum heilsufarsvandamálum eins og kransæðabilunar, ef tilfellin greinist ekki eða séu meðhöndluð nógu snemma.

Æðaskurðlæknir segir að hann hafi séð mikla fjölgun tilfella þar sem hann starfar. Ég hef séð mikla aukningu á segamyndunartengdum æðasjúkdómum á stofunni minni. Mun yngri sjúklingar eru lagðir inn og þurfa skurðaðgerðir og læknisaðgerðir en fyrir heimsfaraldurinn".

Ég trúi því að mörg þessara tilfella séu beinar afleiðingar streituröskunar eftir heimsfaraldurinn, segir hann.

Við höfum líka vísbendingar um að sumir sjúklingar hafi látist heima af völdum sjúkdóma eins og lungnasegareks og hjartadreps. Ég tel að þetta tengist því að margir einangra sjálfa heima frá umheiminum og deyi án þess að fá þá hjálp sem þeir þurftu.

Restina af þessari kostulegu frétt má lesa hérna.

Kuldi er víst líka stórhættulegur!

1205iSvo eru aðrir "sérfræðingar" sem vara við því núna að kalt veður geti valdið blóðtöppum og hjartaáföllum.

Þetta uppgötvaðist bara nýlega.

Það er ljómandi gott að fá að vita þetta núna, en ég man ekki eftir að hafa lesið það áður að kuldi út af fyrir sig geti verið talinn sérlega hættulegur heilsu manna.

En alltaf er maður að læra eitthvað nýtt, og það er magnað hvað "vísindunum" hefur fleygt mikið fram síðastliðin tvö ár eða svo.

Eins og til dæmis með blessaðar grímurnar, "vísindamenn" uppgötvuðu það nánast á einni nóttu að þær gerðu ægilega mikið gagn gegn veiruskömminni.

Nú, eða hvað það tókst að þróa ný bóluefni á undraskömmum tíma. Lyfjarisarnir hljóta að búa yfir tækni sem við hin höfum bara séð í sjónvarpinu, eins og tímavélum.

Svona er reynt að breiða yfir skaðann af þessum tilraunaefnum

Streituröskun eftir heimsfaraldurinn, nýtt "afbrigði", og jafnvel kuldi eru sögð útskýra faraldur hjartatengdra veikinda og jafnvel andláta núna.

Aldrei "bóluefnin", enda vitum við að það eru tómar tilviljanir ef fólk hrekkur upp af, missir sjón eða heyrn, eða lamast eftir sprauturnar.

 

1129o

Sprauturnar eru ekki að bjarga lífum

1205j

Bresk gögn sýna að sprautað fólk sé að deyja í meira mæli en ósprautað fólk, sem er þvert á hvað allir "Þórólfar og Kárar" heimsins segja.


Grímur í máli og myndum

Mér sýnist þessi maður vera hárrétt búinn með andlitið kyrfilega varið, og svo gengur greinilega einhver slanga útúr græjunni að aftan sem væntanlega sér til þess að maðurinn andi bara að sér veirufríu súrefni.

Þessi maður veit greinilega alveg hvernig á að forðast það að anda að sér þessari "drápsveiru" sem yfir 99% fólks lifir af þótt það veikist af henni!

1203j

 

Heilaþvotturinn

Það er svo merkilegt, að það er nóg að fólk sé með einhverja tusku fyrir vitunum á sér þegar það sækir sér þjónustu í þeim fasísku fyrirtækjum sem fylgja tilmælum sóttvarnarlæknis í hvívetna.

Enginn spyr hvort tuskan sé ný og ónotuð, eða hvort hún komi af bílspeglinum eða rassvasanum, eða hvort búið sé að nota hana margoft.

Fólk virðist ekki gera sér grein fyrir því að þessar bláu grímur eru ekki margnota, ef það dregur hana niður fyrir höku eða skeggið sem getur geymt alls konar eitthvað ef það er ekki vel þrifið, og dregur hana svo upp fyrir nefið þegar það fer inn í búðina, þá er það að anda að sér öllu því sem hefur sest á andlitið á því í millitíðinni.

Jafnvel þessari hræðilegu "drápsveiru"!

Fasískir öryggisverðir margra verslana öskra á fólk sem er fullkomlega heilbrigt og vill bara fá að anda að sér súrefni, en ekki úrganginum sem lungum þurfa að losa sig við.

0509x

Hefur engum dottið í hug að pæla í hvaðan þessar grímur koma, við hvaða aðstæður þær hafa verið búnar til, eða hvort kannski séu einhver efni í þeim sem geti verið skaðleg ef maður andar þeim að sér? Fyrir utan alla plastmengunina af þeim?

Örugglega fáum, enda verðum við öll að hlýða Viði og Þórólfi.

Fáir fylgja leiðbeiningunum um hvernig á að nota þær "rétt", eða velta fyrir sér hvort þær geri yfirhöfuð eitthvað gagn!

0509z

Muniði eftir nýlegu bloggi mínu um Dr. Fausk um að hann hafi sagt hlæjandi fyrir rúmum tveim árum að grímur gerðu ekkert gagn?

Nú er víst best að vera með nokkrar finnst honum, enda segja "vísindin" það.

Sálfræðin á bak við grímurnar

Þetta er hin raunverulega sálfræði á bak við að skylda okkur að nota þessar munnbleyjur, þetta hefur nákvæmlega ekkert að gera með sóttvarnir, enda eru veirur nógu smáar til að smjúga í gegnum "risastóra" möskva þeirra.

Hættið að hlýða þessum fáránlegu reglum!

1209k

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband