Bloggfærslur mánaðarins, september 2021

Breskir læknar fá greitt GBP 22,58 fyrir hvert barn sem þau sprauta með þessum "bóluefnum"! Hvað með íslenska lækna, fá þeir líka greitt?

Skjal frá breska heilbrigðisráðuneytinu sýnir að læknar fá aukagreiðslur fyrir að sprauta börn með þessum svokölluðu bóluefnum.

rsz_0509e

Þetta fáið þið staðfest hér.

Google reynir að fela það

Konungur ritskoðunarinnar vill ekki að þú vitir þetta svo hann bætti litlu "No" þarna aftan við.

0509f

Sökum mikils þrýstings þar í landi er búið að fresta bólusetningum á heilbrigðum 12-15 ára börnum, meðal annars vegna hættu á hjartavöðvabólgu hjá þeim í framtíðinni.

Hins vegar á að bjóða börnum með undirliggjandi sjúkdóma í sprauturnar, og leyfa á að börn 16 ára og eldri verði sprautuð án samþykkis forsjáraðila!

"People aged 16 or over are entitled to consent to their own treatment. This can only be overruled in exceptional circumstances.

Like adults, young people (aged 16 or 17) are presumed to have sufficient capacity to decide on their own medical treatment, unless there's significant evidence to suggest otherwise.

Children under the age of 16 can consent to their own treatment if they're believed to have enough intelligence, competence and understanding to fully appreciate what's involved in their treatment. This is known as being Gillick competent."

Sjá hér.

Læknar hafa fengið greitt fyrir að "bólusetja" skjólstæðinga sína

Eins og þið sjáið á efstu myndinni þá hafa þeir fengið GBP 12,58 fyrir hvern skammt gefinn fullorðnum einstaklingum, svo til að hvetja þá að sprauta börnin líka þá fá þeir aukalega GBP 10 núna.

Með þessum tilraunaefnum sem þegar eru búin að valda að minnsta kosti 1.600 andlátum og 1.1 milljón aukaverkunum þar í landi!

Sjáið eitthvað af þessum hroðalegu aukaverkunum hér.

Hefur íslenskt heilbrigðisstarfsfólk líka fengið greitt fyrir hverja sprautu?

Þetta er gríðarlega mikilvæg spurning sem við öll eigum heimtingu á að fá svar við! Séu læknar og hjúkrunarfræðingar að fá greitt í öðrum löndum, því ekki hér líka?

Hvað fær Ragnheiði yfirsprautu og Þórólf til að ljúga þessu?:

"Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við."

Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við."

Eitt er algjörlega á tæru, það er búið að ljúga að þjóðinni í vel á annað ár núna að það sé einhver hættulegur faraldur í gangi. Þetta hefur verið gert af spilltu embættisfólki (og Kára), með dyggilegri aðstoð fjölmiðla, með RÚV (okkar allra) fremst í fararbroddi.

Og hvers vegna megum við ekki fá að sjá bóluefnasamningana?

Þjóðin er enn svo hrædd að hún þorir enn ekki að taka niður þessar bölvuðu súrefnisheftandi og bakteríublautu grímur! Það er átakanlegt að horfa upp á þetta þótt búið sé að afnema grímuskyldu í mörgum búðum.

20. apríl a

Ég ætla að endurtaka það sem ég sagði hér um þessar tilraunabólusetningar:

"Það er búið að fremja gróft brot á Alþingislögum um Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði sbr. 44/2004, einnig gróft brot á alþjóðlega Helsinki læknasáttmálanum og á Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem og Nuremberg kóðanum!"

og

"FARIÐ AÐ SPYRJA SPURNINGA OG HEIMTA SVÖR, SÉRSTAKLEGA ÞIÐ SEM HAFIÐ ORÐIÐ FYRIR SKAÐA VEGNA ÞESSARA SVOKÖLLUÐU BÓLUEFNA, OG AÐSTANDANDENDUR ÞEIRRA SEM HAFA LÁTIST STRAX EÐA FLJÓTLEGA EFTIR SPRAUTURNAR.

EKKI SÆTTA YKKUR VIÐ SVÖRIN AÐ ÞAÐ SÉ EKKERT SEM BENDI TIL SAMASEMMERKIS ÞARNA Á MILLI, ÞVÍ ÞAÐ ER ÞAÐ SVO SANNARLEGA."

Hér getið þið séð nokkrar erlendar síður með upplýsingum um raunverulegt fólk sem hefur skaðast eða látist eftir sprauturnar:

Tilkynntar aukaverkanir í USA og UK

Fórnarlömb sem vilja láta í sér heyra

Myndir héðan og þaðan úr heiminum

Kæru Íslendingar, farið að gera ykkar eigin rannsóknir á óháðum og óritskoðuðum leitarvélum og fréttamiðlum, og þá munuð þið komast að raun um að nánast ekkert sem ykkur hefur verið sagt um þennan meinta faraldur heldur vatni!

 

 


Já er það, eru "gömlu" bóluefnin ekki að virka eins vel og þið lofuðuð þjóðinni?

Sturlunin heldur áfram og nú virðist eiga að gera þjóðina áskrifendur að "bóluefnum" gegn "þeim afbrigðum sem mest eru í gangi hverju sinni".

Í guðanna bænum, haldið áfram að vera hrædd!

"Í grein­inni kem­ur einnig fram að kór­ónu­veir­an umbreyti sér með tíðum stökk­breyt­ing­um með þeim af­leiðing­um að ný af­brigði henn­ar, eins og Delta, fara af stað en nú hafa fjög­ur af­brigði henn­ar verið skil­greind sem hættu­leg og fjög­ur önn­ur sem viðsjár­verð." (Áherslubreytingin er mín.)

0409

Viðtal við hann á Bylgjunni 1. desember 2020:

"Varðandi niðurstöður sem eru komnar bendir allt til þess að bóluefni við Covid-19 séu örugg og mjög virk ,“ sagði Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítala og prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, í Bítið á Bylgjunni. 

Hann benti á að mun alvarlegra væri að fá COVID með aukaverkunum þess en að láta bólusetja sig. Það hvíli samfélagsleg ábyrgð á fólki að láta bólusetja sig til að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins." (Áherslubreytingin er mín.)

Sjáiði heilaþvottinn þarna, ég gerði hann einmitt að umtalsefni í bloggi um daginn.

Kann þessi maður ekki að skammast sín? Hann, ásamt öðrum er búinn að blekkja stærstan hluta þjóðarinnar í þessar sprautur sem eru búnar að valda að minnsta kosti 31 andláti ásamt því að valda aukaverkunum hjá hjá þúsundum manna og kvenna, og allt niður í 12 ára stúlkur!

0309

Doktor Dauði

0409aBjörn Rúnar Lúðvíksson var lærissveinn Anthony Fauci sem hefur verið sóttvarnarlæknir Bandaríkjanna í áratugi, og kallaður Doktor Dauði af mörgum samlöndum sínum.

Áhugasamir geta rakið upptalninguna á myndinni á netinu, og miklu meira til.

Í frétt á DV.is þann 1. mars s.l. segir:

"Anthony Fauci, einn helsti smitsjúkdómasérfræðingur Bandaríkjanna og ráðgjafi Joe Biden, forseta, varðandi heimsfaraldur kórónuveirunnar, hvatti í gær landa sína til að láta bólusetja sig með einhverju af þeim þremur „mjög áhrifaríku“ bóluefnum sem nú eru í boði og til að fresta því ekki til að fá frekar eitthvað annað bóluefni."

Hefur einhverjum dottið til hugar að skoða tengsl hans við Wuhan, og lyfjarisana? Haldið þið að það séu einhverjar tilviljanir að hann vilji sprauta hvert mannsbarn núna?

Okkar sóttvarnarlæknir

0409b

Þetta sagði Þórólfur meðal annars í viðtali við Mannlif.is þann 14. apríl 2020:

"Hann sagði viðamiklar rannsóknir þurfa til að ganga úr skugga um þessi atriði þegar nýtt bóluefni er prófað. Það sama á við um lyf við sjúkdómnum sjálfum. Hann sagði að vænlegast væri að gefa einum hóp lyfið og öðrum ekki og gera samanburð til að sjá virknina.

„Það þarf almennilegar rannsóknir,“ sagði Þórólfur. Hann bætti við að hann telji að nú séu læknar víða um heim að gera tilraunir með lyfjagjöf en án rannsókna sé erfitt að sjá hvort lyfin virki í raun og veru."

Hvað segirðu núna Þórólfur, tryggðirðu það að bóluefnin yllu ekki skaða á fólki áður en þú settir bólusetningarhátíðina á?

Hvað er það sem rekur þig og ykkur sem þessu stjórna, til að valda stórkostlegum skaða á ykkar eigin þjóð?

Kannski þetta?

rsz_0603


mbl.is Ný bóluefni við afbrigðum Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að minnsta kosti 12.249 bandarísk börn á aldrinum 12-17 ára hafa fengið aukaverkanir eftir sprauturnar!

Ég hef stundum sagt að eini raunverulegi faraldurinn sem sé í gangi sé manngerður, og það eru þessar svokölluðu bólusetningar og afleiðingar þeirra.

rsz_0309f

Það var því viðbúið að tölur færu að birtast um afleiðingar þeirra á ungmenni eftir að byrjað var að sprauta þennan aldursflokk. Og athugið, svo á að fara enn neðar í aldur og sprauta allt niður í ungabörn!

Þessi svokölluðu bóluefni eru að örkumla og/eða drepa áður fullkomlega heilbrigð bandarísk ungmenni í stórum stíl núna.

Hér sjáið þið tilkynningar til VAERS um aukaverkanir og dauðsföll á 12-17 ára börnum frá því bólusetningar á þessum aldursflokki byrjuðu.

rsz_0309g

Og hér sjáið þið samtölur yfir þennan aldurshóp yfir 5 ára tímabil frá 1. janúar 2016 - 30. nóvember 2020 vegna bólusetninga með öðrum bóluefnum en Covid bóluefnunum.

rsz_0309h

Sjá alla fréttina hér

Öll dauðsföll vegna bólusetninga sem hafa verið tilkynnt til VAERS frá 1990-2021!

1207a

Þurfum við eitthvað að ræða þetta frekar? Skaðsemi þessara efna getur verið alveg skelfileg, og valdið óafturkræfum skaða, ef ekki hreinlega dauða!

Ætli fórnarlömbin sem enn lifa og aðstandendur þeirra sem létust væru sammála Þórólfi og Ragnheiði? Og hvernig ætli þeim líði núna vitandi að þau létu sprauta börnin sín með einhverjum tilraunaefnum?

Þórólfur og Ragnheiður

Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Það er því miður búið að sprauta stóran hóp barna á þessum aldri hér á landi, og tilkynnt hefur verið um hjartavöðvabólgu í þessum aldursflokki, og ungar stúlkur allt niður í 12-15 eru komnar í hóp ca 2.100 kvenna á Facebook sem allar hafa fengið aukaverkanir í móðurlífið.

Kæru landar, með vel skipulögðum óttaáróðri er búið að halda ykkur í stöðugum ótta við einhverja veiru, og þið hafið verið blekkt til að taka þátt í lyfjatilraun sem stendur yfir til ársins 2023, svo þið eruð tilraunadýrin!

Hvað býr að baki þessum aðgerðum síðastliðið rúmlega eitt og hálft ár? Farið að spyrja spurninga og leita svara!

Þegar rökfræðin bregst.....

rsz_0309c

 

 

 


Þarf ég að bólusetja mig til að vernda þig?

Ég var inni á einhverjum spjallþræði á Facebook fyrr í sumar þar sem verið var að ræða þessar bólusetningar, og þar voru fjörugar umræður eins og gefur að skilja.

Þar benti ein fullbólusett kona mér á að það væri "samfélagsleg skylda" mín að láta sprauta mig líka, til að vernda hana og aðra.

rsz_0603aÞetta eru kannski ekkert skrítin viðbrögð hjá henni, því hún er búin að sitja undir linnulausum hræðsluáróðri í fjölmiðlum þar sem hún er stöðugt minnt á "ógnina".

Smit, smit, smit, svona mörg "smit" greindust í gær, svona margir eru í sóttkví og svona margir í einangrun.

Stöðugur hræðsluáróður á hverjum einasta degi í fjölmiðlunum!

"Við stöndum öll í þessu saman, við erum öll ábyrg" voru stundum lokaorð Víðis á hræðslufundunum eins og ég kalla þá. Og auðvitað trúði fólk og treysti þessu indæla þríeyki sem fékk orður fyrir "vel unnin störf" í fyrra.

Við höfum lagt allt okkar traust á þetta fólk sem hefur gengið svo fullkomlega upp að stærstur hluti þjóðarinnar er núna fullbólusettur, og byrjað að sprauta börnin líka.

Þessi "góðu og öruggu" bóluefni þeirra eru samt ekki betri en það að þúsundir hafa tilkynnt um aukaverkanir vegna þeirra, en samt skal áfram haldið og nú gefa fólki "örvunar"sprautur sem eru búnar að valda lömun hjá að minnsta kosti þrem konum.

0209d

 

Að halda þessum svokölluðu bólusetningum áfram er ekkert annað en glæpsamlegt, að minnsta kosti 31 ein manneskja er látin og 165 hafa fengið aukaverkanir sem gerir þá jafnvel að öryrkjum fyrir lífstíð. Fyrir utan allar hinar aukaverkanirnar líka!

Hvernig gera á heilbrigða manneskju veika

rsz_1908g

Skoðið myndina hérna fyrir ofan. Ef þið hugsið c.a. eitt og hálft ár aftur í tímann, þá sjáið þið nákvæmlega hvað búið er að gera okkur, og nákvæmlega sömu aðferðum er beitt í öðrum löndum.

"Divide their communities through polarization"

Polarization þýðir "division into two sharply contrasting groups or sets of opinions or beliefs." Ég held ég þurfi ekkert að þýða þetta.

Það er verið að skipta þjóðinni upp í tvær andstæðar fylkingar, bólusettum á móti óbólusettum.

Bólusettir fá afslátt af veigum á veitingastað niðri í bæ.

Vinkonu minni var boðið í fermingarveislu, en hún þarf að skila vottorði um smitleysi til að fá að koma.

Maður auglýsti á Facebook eftir einhverjum til að aðstoða sig, en viðkomandi verður að vera bólusettur og geta sannað það. Engar undantekningar segir hann.

Fólki er hótað uppsögn úr starfi ef það fer ekki í sprauturnar.

Nú erum við sem höfum ekki nokkurn einasta áhuga á að vera tilraunarottur fyrir lyfjarisana allt í einu orðnir hættulegir óvinir hinna sprautuðu, sem eru samt að veikjast og jafnvel deyja.

Veistu, ég ætla ekkert að bólusetja mig til að "vernda" þig eða aðra, ég vil sjálf fá að bera ábyrgð á eigin heilsu. Minn líkami, mitt val!

rsz_1104a

 

 

 


Þrjátíu og eitt tilkynnt andlát eftir bólusetningarnar, þar af fjögur í ágúst! Nú þarf að fara að stöðva þetta!

rsz_0104áÉg verð að viðurkenna að mér hefur ofboðið mismunurinn á fréttaflutningi á hvort einhver hafi látist eftir Covid, eða eftir sprauturnar.

Ég fann þessa mynd hér til vinstri á erlendri síðu, sem sýnir að fréttaflutningurinn er ekki bara skakkur hér á landi.

Frétt í gær

Ég rakst á þessa frétt í gær: Hafa fengið hátt í 70 til­kynningar um blóð­tappa eða hjarta­vanda­mál í Fréttablaðinu í gær, og þar sá ég að sagt var að 31 andlát hafi verið tilkynnt í kjölfar bólusetningar.

Áður var "aðeins" búið að tilkynna um 30 andlát svo ég sendi fyrirspurn til Lyfjastofnunar um þetta í morgun. Hún hefur enn ekki svarað mér, en stuttu síðar sá ég þessa frétt hérna á mbl.is.

Hér staðfestir Lyfjastofnun 31 andlát

"Alls hef­ur 31 til­kynn­ing um and­lát í kjöl­far bólu­setn­ing­ar gegn Covid-19 borist Lyfja­stofn­un. All­ar til­kynn­ing­arn­ar varða fólk sem hef­ur náð 60 ára aldri og voru flestir þeirra sem létust með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma og/eða aldraðir. Að svo komnu bend­ir ekk­ert til or­saka­sam­heng­is milli til­kynntra and­láta og bólu­setn­inga gegn Covid-19." (Áherslubreytingin er mín)

Fjórir létust í ágúst eftir sprauturnar!

Hvert einasta andlát vegna Covid fær sérstaka tilkynningu í fjölmiðlunum, hvar eru tilkynningarnar vegna þeirra sem létust eftir sprauturnar?

Var þessi aðili með undirliggjandi sjúkdóma?

"Sjúk­ling­ur á sex­tugs­aldri lést á Land­spít­al­an­um í gær vegna Covid-19.Þetta kem­ur fram á vef Land­spít­al­ans.Þetta er annað and­látið hér­lend­is á skömm­um tíma vegna sjúk­dóms­ins."

Fréttin sjálf

En þessi? Hann fékk kerti og samúðarkveðjur frá Landspítalanum

 0109d

Einn sjúklingur lést af völdum Covid-19 á gjörgæsludeild Landspítala í dag. Greint er frá þessu á vef Landspítalans.

„Einn sjúklingur lést á Landspítala 25. ágúst 2021 vegna COVID-19. Aðstandendum er vottuð samúð,“ segir þar. Vísir segir að um sé að ræða karlmann á sjötugsaldri sem hafði dvalið í einhvern tíma á deildinni. Þetta er fyrsta andlátið af völdum kórónuveirunnar hér á landi frá því í maí, alls hafa nú 31 látist af völdum Covid á Íslandi.

Fréttin sjálf

En þessi?

"Einn lést á Landspítalanum vegna COVID-19 sýkingar laugardaginn 22. maí. Frá þessu er greint á vef spítalans og aðstandendum vottuð samúð. Samkvæmt heimildum fréttastofu bjó hinn látni á Íslandi og var á sextugsaldri. Hann lá í lengri tíma á sjúkrahúsi með COVID-19."

Fréttin sjálf

Í sömu frétt segir:

"Samkvæmt upplýsingum á vefnum COVID.is hafa flestir sem látist hafa af völdum kórónuveirunnar verið á níræðisaldri eða 14 alls. Sex hafa verið eldri en 90 ára, fimm á áttræðisaldri, þrír á sjötugsaldri og einn á sextugsaldri. Sá yngsti sem látist hefur af völdum COVID-19 á Íslandi var á fertugsaldri." (Áherslubreytingin er mín)

Ég ætla að biðja ykkur að lesa þetta nokkrum sinnum og melta það sem ég feitletraði.

Skiljiði þetta? Meðalaldur þeirra látnu var örugglega um eða yfir 80 ár! Ég tek Ástralann sem lést fyrst ekki með, enda var hann dauðvona fyrir.

Það skal enginn segja mér að aldrað fólk sé ekki flest með einhverja aldurstengda undirliggjandi sjúkdóma, og með fyllstu virðingu fyrir fólki á ní- og tíræðisaldri, þá er það búið að ná meðalaldri og vel það.

Og nú er FULLBÓLUSETT fólk að veikjast og deyja, hvað er eiginlega í þessum sprautum?

Ég sagði þetta í bloggi fyrr í vikunni:

"Hættið að trúa því að allt sé betra en að fá veiruna, því það er algjör blekking. Öndunarfærapestir koma á hverju ári, því miður deyja einhverjir, og aðrir eiga í langvinnum eftirköstum eftir þær.

Hlutfall látinna úr sjúkdómum í öndunarfærum eru á hverju einasta ári milli 7 og 8%, og eru þeir fjórða algengasta dánarorsökin!"

Glæpsamlegur óttaáróður

Það er búið að halda fólki í heljargreipum óttans við veirupest sem fáa leggur að velli aðra en gamalt fólk og/eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma!

Það var aldrei réttlætanlegt að setja þessa sprautuherferð í gang, sem búin er sannanlega að skaða og drepa fólk, og meira að segja stúlkur allt niður í 12-15 ára eru komnar með aukaverkanir í móðurlífinu út af þeim.

3108d

Tilkynntum aukaverkunum fjölgar dag frá degi, líka þeim alvarlegu, sem eru nú orðnar 196.

"Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum."

Tilkynntar aukaverkanir í dag

0109b

Þessi læknir hér segir ykkur á nokkrum mínútum að þetta sé heimsfaraldur hræðslu sem var af ásettu ráði settur af stað.

Fréttaflutningur bæði hér á landi og úti í heimi er gjörsamlega óboðlegur, skakkur, og hreinlega hættulegur eins og berlega hefur komið í ljós í þessum meinta drápsfaraldri.

Hver er tilgangurinn með því að birta "smit"tölur á hverjum einasta degi, nema til þess að minna okkur stöðugt á "ógnina" og halda okkur hræddum?

Farið að átta ykkur á því kæra fólk áður en þið farið í einhverjar "örvunar"sprautur, því þær verða ekki bara ein, heldur ný og ný gegn "nýjum afbrigðum".

33 tilkynntar aukaverkanir hjá börnum!

Og í guðanna bænum hleypið þessu fólki alls ekki með nálarnar í börnin ykkar, það er þegar búið að tilkynna um 33 aukaverkanir, þar af 4 alvarlegar!

"Lyfjastofnun hefur borist 33 tilkynningar um grun um aukaverkanir eftir bólusetningu við covid-19 hjá 12 til 17 ára börnum. Fjórar þeirra teljast alvarlegar, að því er fram kemur í skriflegu svari Lyfjastofnunar við fyrirspurn fréttastofu."

Það er þó smá ljós í myrkrinu, Krónan reið á vaðið í gær með að gera grímunotkun valkvæða, vonandi eru þau þó hætt að styðja UNESCO að safna peningum fyrir bólusetningum á fátækum börnum úti í heimi!

 

 

 

 


mbl.is Ein tilkynning um andlát bætist við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband