Færsluflokkur: Bloggar

Ruglið heldur áfram á Akureyri, 4 börn þurfa aftur í 7 daga sóttkví eftir einn dag í skólanum!

Veiruskrattinn heldur áfram að hrella Akureyringa, því í gær kom í ljós að starfsmaður Brekkuskóla er SMIIIITAÐUR! Hann var í smitgát og einkennalaus, en smitið kom fram í seinna hraðprófi.

Hann hafði farið reglulega í hraðpróf á síðustu vikum, sem reyndust alltaf neikvæð þangað til í gær.

"Alls eru 127 í einangrun á Norðurlandi eystra og 1.269 í sóttkví, flestir á Akureyri í tengslum við hópsmit sem komið hefur upp í bænum. Flestir þeirra sem eru í einangrun eru krakkar á grunnskólaaldri."

Fréttin er hér.

Verið áfram hrædd, ekki gleyma því að við erum í miðjum heimsfaraldri!

0710f

 

Ljóta dellan, eru Akureyringar svona sturlaðir af hræðslu?

"Mörg hundruð manns hafa mætt í sýnatöku vegna Covid-19 á Akureyri í morgun. Heilbrigðisstofnun Norðurlands sér um sýnatökuna á starfsstöð við Strandgötu og þar hefur verið löng röð síðan laust fyrir klukkan níu. Allan þann tíma hafa 250 til 300 manns beðið í röð hverju sinni og ekkert lát er á fólki á staðinn."

Fréttin er hér.

Hvað ætli margir séu á sjúkrahúsi á Akureyri núna, fárveikir úr pestinni? Hefur það einhvers staðar komið fram? Það eina sem maður sér í fréttunum er fjöldi þessara "smita", hvað svo sem það nú þýðir.

Er þjóðin endanlega búin að tapa glórunni?

0509h

 

 

 


Ekkert neyðarástand í gangi, bara sýndarmennska og þráhyggja!

„Ekkert neyðar­á­stand í gangi sem rétt­lætir nú­verandi reglu­gerð“ segir Sigríður Á. Andersen fráfarandi þingmaður, og engar lagalegar eða læknisfræðilegar ástæður renna stoðum undir núverandi sóttvarnarráðstafanir.

En Þórólfur og Svandís þráast við

.... og hún samþykkti tillögu hans um að framlengja gildandi sótt­varna­ráð­stafanir vegna far­aldurs!! co­vid-19 til 20. októ­ber.

Hvar í ósköpunum er þessi faraldur? Ég er hjartanlega sammála Sigríði um að þessar aðgerðir séu ekkert annað en sýndarmennska! Og þá er það spurningin um hvað liggi þarna að baki.

Það eina sem mér dettur í hug er að verið sé að viðhalda þessum tilgangslausa og óþarfa ótta fólks svo hægt sé að narra það í sprauturnar - og svo "örvunar"sprauturnar. Það er jú búin að skuldbinda þjóðina til að kaupa að minnsta kosti 1.4 milljónir skammta!

Eins og við vitum, þá er Þórólfur enn að hvetja fólk til þess að láta "bólusetja" sig, þótt hann viti ofurvel hvaða skaða þau geta, og sannanlega hafa valdið.

Heilbrigðisstarfsfólk er eitthvað tregt að fá sér viðbótarskammtinn (fyrsta af mörgum?), og hann skilur ekkert í áhugaleysi þess! Hann er bara svo "heppinn" að fá aldrei gagnrýnar spurningar frá þessum svokölluðu fréttamönnum sem eru margir hverjir búnir að fá ótal upplýsingar sendar um "hina hliðina" á þessum meinta faraldri.

 

0410a

 

Svo sendu þrír starfsmenn Lyfjastofnunar fordæmalausa grein í Morgunblaðið í vikunni, sem gekk gjörsamlega fram af mér og fleirum!

"Verða að láta af þessari þráhyggju"

„Það nýjasta er að fara senda þúsundir barna í ein­hver hrað­próf og skimanir til að fá að komast á skóla­böll. Menn bara verða að fara komast út úr þessu. Þeir verða að láta af þessari þrá­hyggju. Þetta er bara þrá­hyggja,“ segir Sig­ríður og bætir við að sótt­kví og skimun séu í­þyngjandi læknis­fræði­leg inn­grip.

Stutt skilgreining Merriam-Webster á faraldri (epidemic):

"an outbreak of disease that spreads quickly and affects many individuals at the same time : an outbreak of epidemic disease"

Er þetta eitthvað sem þið hafið upplifað síðan í ársbyrjun í fyrra? Ég sjálf kannast ekkert við þetta í minni fjölskyldu og vinahópi!

Casedemic

Staðreyndin er bara sú að þessum meinta faraldri hefur verið haldið uppi með sýnatökum á fullfrísku fólki með þessum PCR pinnum sem búið er að dæma óhæfa til að greina veikindi í einhverjum löndum.

Á grunni niðurstaðna úr þessum prófum sem eru í langflestum tilfellum falskar, hafa tugþúsundir manns verið skikkaðir í sóttkvíar og einangranir.

Allt of margir eru enn skíthræddir við hversu margir "greindust" deginum áður, enda birtast fréttir um það daglega í fjölmiðlunum.

Þetta hefur verið kallað Casedemic, eða faraldur "greindra (falskra) smita", sem hefur verið notaður til að réttlæta þessar fáránlegu sóttvarnarreglur og sviptingu fólks á mannréttindum sínum.

Og hvað gerir Kári við sýnin úr öllum pinnunum? Hann er búinn að tífalda hagnað Íslenskrar erfðagreiningar eins og kom fram í Viðskiptablaðinu um daginn, ætli hann sé að selja lífsýnin sem fólk er búið að gefa honum í stríðum straumum núna?

Hárrétt hjá Sigríði!

„Það er bara ekki hægt að senda 1500 manns í sótt­kví því það fundust sex börn smituð á Akur­eyri sem eru ekki einu sinni veik.“

Segir Sigríður í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Frábær útvarpsþáttur á Útvarpi Sögu í dag!

Stöllur mínar, þær Sigurlaug Ragnarsdóttir og Guðrún Bergmann voru gestir í síðdegisþætti Hauks Haukssonar í dag.

"Það vantar mjög mikið upp á að fólk sé upplýst um að það sé að taka þátt í lyfjatilraun þegar það lætur bólusetja sig og við leggjum mikla áherslu á að fólk verði upplýst um það.

Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðrúnar Bergmann rithöfundar og heilsufrömuðar og Sigurlaugar Ragnarsdóttur listfræðings og menningarmiðlara sem standa að samtökunum Mín leið, mitt val en þær voru gestir Hauks Haukssonar í síðdegisútvarpinu í dag."

Þær hafa lagt á sig óhemju mikla rannsóknarvinnu um allt sem varðar faraldurinn og bóluefnin, það fer svo sannarlega ekkert framhjá manni þegar maður hlustar á þáttinn, sem þið finnið hér. Látið hann ekki fram hjá ykkur fara!


Vissuð þið að veiran getur sótt í sig veðrið í vetur? Þórólfur hefur miklar áhyggjur af kæruleysi landsmanna!

Haldið bara áfram að vera skíthrædd krakkar mínir, og ef þið eruð ekki þegar búin að því, drífið ykkur sem fyrst í "örvunar"sprautu númer eitt, og svo tvö, þrjú, og fjögur.

Nú hefur gamla góða flensan ákveðið að koma tilbaka eftir langþráð frí, svo ekki klikka á að fara í flensusprautuna nálapúðarnir ykkar!

Úr viðtali við Þórólf:

pincushion-2202284_640„Að­spurður um það hvort að mikil­vægara sé nú, vegna Co­vid, að fólk fari í flensu­sprautu segir hann það hugsan­legt og hvetur alla sem það geta að fara í bólu­setningu við in­flúensu.

Við hvetjum alla til að fara í bólu­setningu. Við höfum verið með á­kveðnar á­bendingar fyrir inflúensu­bólu­setningu og sér­stak­lega verið að leggja á­herslu á bólu­setningu eldri ein­stak­linga 60 ára og eldri og ein­stak­linga með undir­liggjandi sjúk­dóma.

Það verður meira fram­boð á bólu­efni núna en verið hefur áður. Ég hvet alla til að fara í bólu­setningu sem hafa á því tök. Það er ein af þeim leiðum sem við höfum til að minnka út­breiðsluna og koma í veg fyrir al­var­lega veikindi.“

Já svona eins og með "bóluefnið" gegn drápsveirunni?

Ég skal segja ykkur svarið við því!

"Álag á heilsu­gæslu­stöðvum borg­ar­inn­ar hef­ur auk­ist til muna að sögn Óskars Reyk­dals­son­ar, for­stjóra Heilsu­gæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins. „Það er óvenju­lega mikið að gera á vökt­um miðað við árs­tíma en það er erfitt að segja hvað veld­ur því,“ seg­ir Óskar."

Viðtal við Óskar um að tími haustpesta sé runninn upp.

Það er vegna þess að þið eruð búin að trylla fólk úr hræðslu í vel á annað ár núna, og hafið passað upp á viðhalda henni dyggilega.

0510a

Ég veit um fólk sem fékk smá kverkaskít og þorði ekki öðru en að fara í sýnatöku, og fólk sem þorði ekki öðru en að láta reka pinna nánast upp í heilann á börnunum sínum ef þau fengu hor í nös.

Er nema von að mikið sé að gera?

"Ef þú ert með beinverki farðu í sýnatöku, ef lyktar og bragðskyn breytist farðu í sýnatöku, ef þú ert með niðurgang farðu í sýnatöku ef þú ert með óvenjulega þreytu farðu í sýnatöku,“ sagði Víðir Reynisson á upplýsingafundinum og hélt áfram upptalningunni, nefndi hósta, hálssærindi, hálsþurrk, hita og höfuðverk."

"Dag­legt líf fær­ist í eðli­legt horf

Bresk­ir miðlar hafa fjallað um svo­kallað of­urkvef (e. supercold) sem hef­ur gert vart við sig þar í landi. Seg­ir í grein Tel­egraph að eft­ir átján mánaða tíma­bil tak­mark­ana hafi lands­menn ekki kom­ist í tæri við sama magn sýkla og vant er, sem valdi því að kvefpest­ir leggj­ast harðar á ónæmis­kerfið.

Sig­ríður seg­ist ekki kann­ast við að of­urkvefpest­ir gangi manna á milli hér á landi, hins veg­ar sé lík­legra að menn smit­ist af pest­um nú þegar dag­legt líf er að fær­ast í eðli­legt horf eft­ir far­ald­ur­inn og létt er á sam­komutak­mörk­un­um."

Viðtalið er hér.

Kemur það fólki eitthvað á óvart að ónæmiskerfi fólks hrynji eftir allar þessar takmarkanir, og svo ekki sé minnst á bölvaða grímunotkunina?

Margir heiðarlegir læknar og vísindamenn hafa varað við þessu, en er samstundis refsað fyrir það eins og allt fólk sem fylgist með raunveruleikanum veit.

Og Þórólfur hefur áhyggjur - eina ferðina enn

"Í samtali við RUV fyrr í dag sagðist Þórólfur hafa áhyggjur af þróuninni og vændi landa sína um að taka faraldrinum af aukinni léttúð undanfarið. „Mér sýnist það bara almennt séð að fólk sé farið að taka flest af því sem er verið að gera minna alvarlega."

Viðtalið, og frábært innslag um mann sem er kominn með upp í kok af þessu bulli.

Er sannleikurinn ekki bara sá að fólk er orðið dauðþreytt á þessari leiksýningu, enda enginn að drepast úr drápsveirunni?

Mér finnst ég vera að upplifa Groundhog Day alla daga, eins og í myndinni forðum. "A jaded Pittsburgh weatherman finds himself inexplicably trapped in a small town as he lives the same day over and over again."

Og þessu mun ekkert linna fyrr en fólk fer að rísa upp og mótmæla, eins og gert er í löndunum í kringum okkur, því allar þessar aðgerðir hafa aldrei snúist um að vernda líf og heilsu.

Eruð þið virkilega ekki enn farin að fatta það?

 

 


Nei nú er mér gjörsamlega ofboðið, hvílíkur hvítþvottur!

Í Morgunblaðinu í dag birtist ótrúleg grein eftir þrjár konur sem eru starfsmenn Lyfjastofnunar, þar sem þær gera lítið úr tilkynningum aukaverkana eftir þessar svokölluðu "bólusetningar"!

0410

Þær segja meðal annars: "Stakar aukaverkanatilkynningar segja lítið um möguleg orsakatengsl við tiltekið lyf".

OK, hvað þýðir stök aukaverkanatilkynning um möguleg orsakatengsl við tiltekið lyf?

Myndu til dæmis 1.042 tilkynningar um truflanir í taugakerfi teljast stök tilkynning?

Eða 891 tilkynning um aukaverkanir í æxlunarfærum og brjóstum kvenna teljast stök?

Eða 152 tilkynningar um blindu eða aðrar aukaverkanir í augum?

Að bera þessar lygar og froðu á borð fyrir okkur er gjörsamlega óboðlegt, og sýnir bara kristaltært blekkingarnar um þessi genabreytandi líftæknilyf, sem sannanlega eru að stórskaða og/eða drepa fólk í milljónavís um allan heim.

Ísraelar segja "It is a disaster, an international disaster. We are lab rats. That is the truth."

Smellið á myndina til að sjá hana í upprunalegri stærð.

 

0410d

Mér finnst þetta blaður í þessum konum sýna fullkomið virðingarleysi gagnvart þeim þúsundum hér á landi sem hafa tilkynnt um aukaverkanir, sem sumar eru óafturkræfar!

"Flestir hafa fundið fyrir einhverjum einkennum eftir bólusetningu gegn Covid-19, yfirleitt vægum sem ganga til baka á 1-2 dögum. Geri hins vegar óvænt vanlíðan vart við sig að lokinni bólusetningu, er skiljanlegt að fólk tengi þetta tvennt saman.

Varasamt getur þó verið að hrapa að ályktunum. Skýringar á líkamlegum kvillum geta verið ótalmargar og vart á færi annarra en heilbrigðisstarfsfólks að meta orsök.

Hugsanlega gætu slík einkenni tengst heilsubresti sem þarfnast nánari rannsókna og er án tengsla við bóluefnið. Lyfjastofnun vill engu að síður leggja áherslu á að allir tilkynni grun um nýja eða alvarlega aukaverkun eftir notkun lyfs eða bóluefnis".

Já er það, eins og hjá þessum rúmlega 2.000 konum sem hafa fengið fossandi blæðingar, jafnvel í tugi daga, og meira að segja konur sem eru löngu búnar á breytingarskeiðinu.

Aðrar hafa ekki fengið blæðingar mánuðum saman eftir þær, og einhverjar engin egglos!

Eru þetta bara tómar tilviljanir, eins og konurnar þrjár sem lömuðust nýlega í kjölfar sprautanna, ekkert bendir víst til tenginga þarna á milli frekar en venjulega!

Hvað gengur þessum konum eiginlega til?

Þarna skrifar yfirlæknir sem sór eiðinn "Fyrst, ekki skaða" þegar hún útskrifaðist sem læknir, en þar sem þær eru allar starfsmenn Lyfjastofnunar, sem hefur ítrekað beitt þöggun og falið upplýsingar þegar leitað er eftir þeim, þá ætti þetta ekki að koma á óvart.

Það skal enginn segja mér að þær, sem starfa hjá stofnuninni sem tekur á móti öllum tilkynningunum um aukaverkanir viti ekki upp á hár hversu stórhættuleg þessi efni eru!

Viljiði fá sannanir fyrir skaðsemi þessara svokölluðu "bóluefna"?

Hér eru örfá dæmi:

VAERS Covid Vax Records

We want to be heard

1000 Covid Stories

Covid shots are killing teens

Ég er búin að sjá þúsundir frásagna fólks undanfarna mánuði sem hafa skaðast eftir sprauturnar, og ótal tilkynningar um skyndileg andlát fólks, allt niður í ungabörn.

Hvað finnst ykkur, hafið þið á tilfinningunni að þessar konur séu að segja satt?

 

 

 

 

 

 

 

 


Heilbrigðisstarfsfólk lítið spennt fyrir þriðja skammti, og Þórólfur skilur ekkert í því!

Þórólfur skilur ekkert í áhugaleysi heilbrigðisstarfsfólks hér á landi á því að fá sér þriðja skammtinn af "bóluefninu"!

Ætli hann hafi ekkert frétt af því að á fjórða þúsund manns hafi tilkynnt um aukaverkanir eftir sprauturnar? Heilbrigðisstarfsfólki hlýtur að vera vel kunnugt um þær því það hefur þurft að sinna skaðaða fólkinu eftir þær. Það útskýrir kannski tregðuna.

0110

"„Nei, það hefur ekki verið mikill áhugi á því, án þess að ég viti almennilega af hverju. En það er óþarfi að bólusetja of mikið, bæði fyrir einstaklingana sjálfa og svo er líka gott að geta dreift bóluefninu víðar þangað sem fáir hafa verið bólusettir. (Áherslubreytingin er mín.)

Við höfum alltaf lagt á það áherslu að fullbólusetja innan skynsamlegra marka okkar samfélag. Og ég held að við séum að ná því. Það er ágæt þátttaka líka hjá unglingum, þannig að ég held að við eigum að sjá hverju það skilar okkur,“ segir Þórólfur."

Fréttin sjálf.

Sjáiði þetta, "Nei, það hefur ekki verið mikill áhugi á því, án þess að ég viti almennilega af hverju".

Hvernig í ósköpunum er hægt að ljúga svona upp í opið geðið á þjóðinni án þess að depla auga?

Hann kemst upp með það því hann fær aldrei gagnrýnar spurningar, og hann veit að stór hluti þjóðarinnar trúir honum og treystir ennþá, því miður.

"Faraldurinn" ekki genginn niður

Í annarri frétt í dag segir hann að sýna þurfi varkárni og hópsýking á Norðurlandi sé áminning um að "faraldurinn" sé ekki genginn niður.

Og ekki hvarflar að fréttakonunni að spyrja hvernig geti staðið á því miðað hvað hvað búið er að sprauta marga, heldur spyr hún hann svona óttalegra máttlausra spurninga:

"Sérðu fyrir þér rými til þess að aflétta frekar aðgerðum núna?

„Það verður að koma í ljós en ég hef alltaf sagt að við verðum að fara mjög varlega í þetta og sennilega þurfum við að hafa einhverjar takmarkanir um sinn,“ segir Þórólfur.

Þannig að það er afskaplega ólíklegt að öllu verði aflétt þá?

„Já, frá mínum bæjardyrum er það frekar ólíklegt já. Ég held að við eigum að fara okkur aðeins hægt áfram,“ segir Þórólfur."

Hann er að vinna að nýju minnisblaði og gefur þarna til kynna að ekki megi búast við neinum tilslökunum.

EINA FERÐINA ENN!

Hann mun þurfa að svara til saka ásamt mörgum öðrum, en fyrst verður þjóðin að fara að hrista af sér slenið, rísa upp og mótmæla. Annars mun þetta ekkert hætta, og hann mun alltaf finna ástæður til þess að halda þessum "heimsfaraldurs" lygum áfram.

Danmörk og Noregur eru búin að létta hömlunum hjá sér því fólk lét ekki bjóða sér þetta lengur!

Og lífið hefur gengið meira og minna sinn vanagang í Svíþjóð allan tímann, og litlar eða engar lokanir, boð eða bönn.

Hvers vegna í ósköpunum eru Íslendingar alltaf svona hlýðnir?

0509c

 


Hvaða rugl er þetta, er gamla fólkið ekki löngu komið með vernd?

... og starfsfólkið líka, flestir eða allir tví- eða þrísprautaðir?

Þetta segir í nýrri frétt á RÚV:

"Íbúar á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri eru komnir ýmist í sóttkví eða smitgát, vegna starfsmanns á heimilinu sem greindist smitaður af COVID-19 í gær. Að auki þurfa nokkrir starfsmenn að fara í sóttkví vegna smitsins. Um er að ræða heimilin Víði- og Furuhlíð. Lokað verður fyrir allar heimsóknir á þau heimili til og með 4. október, en þá er gert ráð fyrir niðurstöðum úr sýnatökum þeirra sem urðu útsettir fyrir smiti.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef hjúkrunarheimilisins. Viðbragðsáætlun var virkjuð í gærkvöld og segja stjórnendur að fyrirmælum rakningarteymis sé fylgt í hvívetna."

Og meira að segja búið að virkja viðbragðsáætlun! Sóttkví, smitgát, smitrakning, og heimsóknir bannaðar. Varúð það er mikil hætta á ferðum, pestin lævísa laumaði sér inn á elliheimili fyrir norðan hjá líklega mest sprautaða fólkinu á landinu, blessuðu gamla fólkinu.

Þetta er nákvæmlega eins frétt og maður sá í fjölmiðlunum fyrir ári síðan, áður en "bólusetningarhátíðin" byrjaði!

Hver var eiginlega tilgangurinn með þessari stærstu lyfjatilraun sem gerð hefur verið hér á landi og í heiminum öllum?

Það er löngu komið í ljós í Ísrael að þessi tilraun mistókst herfilega, og hér má sjá vitnisburði tuga skaðaðra Ísraela eftir sprauturnar.

‘It’s a disaster, an international disaster. We’re lab rats. That’s the truth.’

0209

Nú er nóg komið!

0110fEr ekki bara komið nóg af þessari veiruhræðslu, eða eigum við að þurfa að þola þetta út í það óendanlega? Einhver "greinist jákvæður" með fölsku 40 snúninga prófi og öllu er skellt í lás.

Ég og margir aðrir erum löngu komin með upp í kok af þessu öllu. Og eyðilögð yfir skaðanum sem milljónir manns, allt niður í kornabörn og ófædd börn hafa orðið fyrir um allan heim út af þessu eitursulli.

Maður er enn að sjá fólk með grímur og jafnvel hanska í búðum, fylgist það ekkert með því sem er að gerast í heiminum í kringum okkur?

Hvað haldiði, ætli Svandís sem skrifaði undir þessa leynilegu bóluefnasamninga haldi stólnum sínum?

Svo legg ég til að Þórólfur fari að láta sig hverfa, hann er búinn að valda nógu miklum skaða hérna!

 


Það mætti halda að það væri ekki búið að bólusetja einn einasta kjaft hér á landi!

Blessaður orðuhafinn hann Þórólfur hefur alltaf áhyggjur af framgangi "heimsfaraldursins". En hvað í ósköpunum er málið, er ekki búið að sprauta lungann af þjóðinni, ætti faraldurinn ekki að vera yfirstaðinn?

Hann bara getur ekki látið af þessum tilefnislausa hræðsluáróðri sínum! Eða má hann það kannski ekki?

Æi þú og þínar sóttvarnir!

"Þór­ólfur Guðna­son sótt­var­læknir telur lík­legt að smitum fjölgi eftir helgina þar sem að margir hafi ekki verið með hugann við sótt­varnarnir. Þá vísar hann í bæði kosninga­vökur Stjórn­mála­flokkana víða um landið og skemmtana­hald tengdum fót­bolta.

„Mér sýndist í sjón­varpinu að fólk hafi verið með hugann við annað en sótt­varnir um helgina,“ segir Þór­ólfur viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun."

Margir ekki með hugann við sóttvarnir um helgina

Já, var þetta lið ekki meira og minna grímulaust þarna, skelfingar kæruleysi er þetta í fólki, heldur það bara að það megi fara að hitta annað fólk og gleðjast með því?

Hvers vegna gátu þau ekki bara haft stuðið á Zoom, það eru sko alvöru sóttvarnir!

Píratar

"Tveir er sóttu kosn­inga­vöku Pírata sem hald­in var í Brugg­hús­inu að Ægis­garði á laug­ar­dag hafa greinst smitaðir af kór­ónu­veirunni. Þá hef­ur smitrakn­ing­ar­t­eymi haft sam­band við alla þá er þurfa að fara í sótt­kví sök­um þessa."

Smit rakið til tveggja á kosningavöku Pírata

Framsóknarflokkurinn

"Gestur á kosningavöku Framsóknarflokksins um helgina hefur greinst með Covid-19 og hafa allir sem voru útsettir fyrir smiti verið settir í sóttkví."

Smit á kosningavöku Framsóknarflokksins

Sóttkvíar

Nú er búið að setja fullt af frísku fólki sem kennir sér einskis meins í sóttkvíar út af þessum "smitum".

0509

Gera má ráð fyrir að flest af þessu fólki sé tvísprautað, og sumt þrísprautað, til að "örva" ónæmiskerfin þeirra.

Svo hvað er þá málið? Nú eiga allir að vera á tánum og fara í tafarlaust í sýnatöku ef þeir finni fyrir einkennum!

Og svona til upprifjunar fyrir þá sem muna ekki hver einkennin eru:

2409c"Ef þú ert með beinverki farðu í sýnatöku, ef lyktar og bragðskyn breytist farðu í sýnatöku, ef þú ert með niðurgang farðu í sýnatöku ef þú ert með óvenjulega þreytu farðu í sýnatöku,“ sagði Víðir Reynisson á upplýsingafundinum og hélt áfram upptalningunni, nefndi hósta, hálssærindi, hálsþurrk, hita og höfuðverk."

Þótt þú sért með ör í gegnum hausinn á þér, farðu í sýnatöku, ef þú færð smá hor, farðu í sýnatöku, ef þú hnerrar, farðu í sýnatöku, ef þér er illt í litlu tánni, farðu í sýnatöku......

Umfram allt, ekki hætta að vera hrædd/ur við þessa drápsveiru, ef þú ferð ekki varlega getur faraldurinn blossað upp aftur.

Og þá verður það örugglega þessum óbólusettu að kenna!

Í alvöru, er fólk ekkert farið að sjá í gegnum þennan blekkingarleik? Hvað þýða þessi "smit" sem birtast alla daga í fjölmiðlunum?

Sýni tekin með PCR pinnum sem eru keyrð á 40 snúningum, þannig að þau geta fundið hvað sem er í hverjum sem er, eins og sjálfur hönnuður prófanna sagði?

Og er þetta fólk sem greinist "jákvætt" allt veikt, eða bara með "jákvætt" próf? Það fylgir sjaldnast eða aldrei sögunni.

Hvernig væri að fólk prófaði í nokkra daga að hætta að fylgjast með fjölmiðlunum, láta sem enginn "heimsfaraldur" sé í gangi, og hætti að spritta sig og vera með grímur. Það svínvirkar!

Hafi einhver "faraldur" verið í gangi, þá er hann löngu yfirstaðinn. En hvert fór flensan eiginlega?

 

0209e


Lygin um "bóluefnin", elítan, og skyggnst á bakvið tjöldin.

Ég hnaut um spurningu og svar við henni á netinu í gær, og gat ekki stillt mig um að taka skjámynd af þessu.

Fyrir það fyrsta, þá eru þetta ekki bóluefni, og í öðru lagi er svarið argasta blekking og lygi.

Svo er vísað á heimasíðu WHO sem er sjálfseignarstofnun að stórum hluta til fjármögnuð af Bill nokkrum Gates, sem vill fækka mannkyninu og segir  bólusetningar vera ljómandi leið til þess. Þið getið lesið meira um hann hér.

Sóttvarnarlæknir okkar vísar gjarnan í það að hann sé að fylgja tilmælum þessarar (glæpa)stofnunar, eins og þegar hann sagði fyrst í fyrra að grímur gerðu lítið gagn, en svo bárust honum einhver ný "vísindi" þaðan sem "sannaði" að þær gerðu mikið gagn, og hann skellti á okkur grímuskyldu, og svo aftur.

Spurningin og svarið við henni:

2909k

 

Valda COVID-19 bóluefnin einhverjum aukaverkunum?

Eins og öll önnur bóluefni, geta COVID-19 bóluefnin valdið mildum aukaverkunum sem standa stutt yfir, eins og hitavellu eða verk eða roða á stungustað. Flest viðbrögð við bóluefnum eru mild og hverfa að sjálfu sér innan fárra daga. Alvarlegri eða langvarandi aukaverkanir eru mögulegar, en eru ákaflega sjaldgæfar.

Ef maður hefur ekki búið undir þúfu í vel á annað ár núna, þá veit maður að þetta er glæpsamleg haugalygi!

Biden Bandaríkjaforseti

Hér sjáum við furðufyrirbærið Biden sem á víst að vera forseti Bandaríkjanna, sem ætlar núna að neyða fyrirtæki sem hafa fleiri en 100 starfsmenn til að láta bólusetja þá.

Hér gengur hann fram með góðu fordæmi í örvunarsprautuna sína úr Hvíta húsinu eins og sjá má.

En bíddu, er þetta tekið í stúdíói og hann sprautaður með gervisprautu, getur það verið?

3009h

Ójá, og það er hægt að finna ótal myndir á netinu af fína fólkinu og elítunni að "þiggja bólusetninguna sína." Ég sá til dæmis fyrir nokkru síðan einhvern erlendan stjórnmálamann þykjast fá sér sprautu, gleiðbrosandi framan í myndavélarnar en hjúkrunarfræðingurinn lét innihaldið gusast út í loftið fyrir aftan hann.

Þau feiluðu á því, að einhver stóð á hæðinni fyrir ofan og tók vídeó af þessum gjörningi.

Elítan og fína fólkið

Hér sjáið þið sama fólkið og fór í gervisprauturnar skella á sig grímunni fyrir myndatökurnar, en semur svo við veiruna að gefa sér pásu svo það geti kjaftað saman á eftir.

3009i

Þarna má sjá fólk sem segir okkur að það sé hræðilegur heimsfaraldur í gangi sem við verðum öll að láta sprauta okkur gegn, og nota grímur.

Og já, það er líka hægt að finna ótal myndir af fyrirfólki sem "gleymir" sjálft að nota grímur, bæði hér á landi og úti í heimi. Við munum nú öll eftir forsætisráðherranum okkar sem fór grímulaus á fótboltaleik, og dómsmálaráðherranum grímulausum á hárgreiðslustofunni!

Ekki trúa öllu sem þú sérð í meginstraumsfjölmiðlunum eða á Google

Eitt af fyrstu bloggunum sem ég skrifaði bar fyrirsögnina Áróður, falsfréttir og krísuleikarar.

3009j

Þar sagði ég meðal annars:

Var þetta sviðsettur atburður?

Vinsæll bloggari sem heldur úti síðunni hugotalks.com gerir þetta að umtalsefni sínu í gær og velti upp spurningunni hvort þetta hafi verið sviðsettur atburður.

Hann bendir á að til séu fyrirtæki sem bjóða upp á úrval leikara (crisis actors/krísuleikara) til leigu ef það það þarf að sviðsetja atburði í fjölmiðlum, eins og t.d. fyrirtækið crisiscast.com sem vinnur m.a. með bresku ríkisstjórninni og lögreglunni!

Það er hreint sláandi að sjá hvers konar þjónustu þetta fyrirtæki býður upp á, og með tæknibrellum sínum getur það sviðsett nánast hvað sem er!

Án þess að Hugo sé að fullyrða nokkuð um að þetta hafi verið sviðsettur atburður, þá biður hann fólk að vera sérstaklega vel á varðbergi þessa dagana og skoða allar fréttir með mjög krítískum augum, því blekkingarnar séu alls staðar.

Þessi bloggfærsla sem ég skrifaði 17. maí síðastliðinn er enn í fullu gildi, því falsfréttunum um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" fer svo sannarlega ekki fækkandi!

Umræðan sem aldrei er tekin á Íslandi

Við fáum aldrei að heyra af öllu fólkinu sem er skaddað eftir þessar sprautur, nánast bara lofgjörð um þessi genabreytandi líftæknilyf, og hversu mörg "smit" (með fölsku PCR prófunum) greindust deginum áður.

Ef ykkur langar að skyggnast bak við tjöldin og fræðast um bóluefnasamningana leynilegu, aukaverkanir og feril faraldursins frá upphafi, þá mæli ég með að þið hlustið á frábært viðtal á Útvarpi Sögu við Sigurlaugu Ragnarsdóttur og Guðrúnu Bergmann. Þær eru í stjórn mannréttindasamtaka sem heitir Mín leið - Mitt val, þar sem ég er gjaldkeri, svo því sé haldið til haga.

Þær tvær eru hvað fróðastar hér á landi um ofantalin málefni og báðar hafsjór af fróðleik um allt sem við eigum ekkert að fá að vita. Viðtalið má finna hér, og skylduhlustun fyrir þá sem enn trúa að það sé einhver heimsfaraldur í gangi sem ekkert virki gegn nema einhverjar sprautur!

 


Upp komast svik um síðir, og nú eru til beinharðar sannanir um þau!

Fyrir tilstilli hugrakks uppljóstrara í Bandaríkjunum, er búið að opinbera í fyrsta skipti frumgögn um raunverulegan fjölda andláta í kjölfar sprautanna, og sannanir fyrir því að Remdesivir er stórhættulegt lyf sem veldur nýrnabilun og oft dauða í kjölfarið.

"Attorney Thomas Renz Releases Stunning Data from Never Before Seen Vaccine Injury/Death Tracking System"

Lögmaðurinn Thomas Renz hefur verið ötull í baráttunni fyrir því að fletta ofan af svikunum í kringum þennan "heimsfaraldur".

Hann kom fram á ReAwaken America Tour í Michigan á dögunum og fór meðal annars yfir hvernig tölur um aukaverkanir og andlát eftir sprauturnar eru vandlega faldar og skipulega logið um þær. Hér má sjá línurit frá VAERS sem sýnir fjölda andláta þar í landi eftir sprauturnar.

2909i

 

Ekki nóg með það, hann hann sýnir okkur líka gögn um að 25,9% sjúklinga sem fengu Remdesivir létust, og athugið, þetta lyf fékk á sínum tíma skilyrt leyfi frá Lyfjastofnun Íslands!

Hvort það er enn notað hér á landi veit ég ekki, hins vegar vill stofnunin ekki leyfa Ivermectin sem löngu er búið að sanna gildi sitt.

Látnir innan 14 daga frá "bólusetningunum"

"That data from the Medicare Tracking System reveals that 19,400 people less than 80 years old have died within 14 days of receiving the COVID-19 Vaccine.

In addition, 28,065 people have died that are over the age of 80 within 14 days of receiving the Covid-19 vaccine.

The Total number of American Citizens that died within 14 days of receiving the COVID-19 vaccine is 48,465 according to hard data revealed in the Medicare Tracking System."

Hann biðlar til samlanda sinna að dreifa þessum upplýsingum út um allt. Við erum búin að ná þeim segir hann, allt sem við höfum í höndunum er hægt að sannreyna.

Hér á Íslandi

2909jVið skulum gera okkur grein fyrir því að það sem hann fjallar um hér má heimfæra upp á Ísland, sömu lygarnar, sama þöggunin, sömu spilltu stjórnvöldin.

Ég var að renna í gegnum vefsíðu Lyfjastofnunar áðan og þegar neðst á síðuna var komið, blasti þetta við mér, Gæði - Traust - Þjónusta.

Þvílík öfugmæli hef ég aldrei séð áður held ég! Þessi stofnun neitar læknum um að ávísa lyfi sem ótal rannsóknir sýna að hafa gefið mjög góða raun í veikindum fólks, og ber við litlum rannsóknum á því.

Þessi stofnun hefur líka ítrekað logið til um fjölda aukaverkana og hvers eðlis þær eru, og segir nánast alltaf að ekkert bendi til tenginga milli sprautanna og aukaverkananna.

Hvað ætli margir Covid sjúklingar hér á landi hafi verið settir í öndunarvélar og fengið Remdesivir, og hvað ætli margir hafi ekki lifað það af?

Þetta er ein af ótal mörgum spurningum sem er ósvarað hér á landi. Það er tími til kominn að fara stoppa þetta heimsfaraldurs blæti hans Þórólfs, það er enginn heimsfaraldur í gangi, og var aldrei, en var réttlættur með fölsku jákvæðu PCR prófunum.

Dánartölur hafa verið stórkostlega falsaðar (líka hér á landi?) um heim allan, enda fá læknar og sjúkrahús ríkulega greitt fyrir það, allt til að hræða mannkynið til að láta sprauta sig með genabreytandi líftæknilyfjum.

Þetta er heimsfaraldur óttaáróðurs og lygafrétta í öllum meginstraumsfjölmiðlunum, líka þeim íslensku sem hafa aldrei fært okkur sannar fréttir um hvað raunverulega er í gangi í heiminum í dag.

Það er bara staðreynd, og því miður hafa Íslendingar upp til hópa ekki hugmynd um hvað er gerast, því það birtist aldrei á RÚV. Enda fjölmenntu þeir í Laugarvaxhöllina þegar boðunin kom, og sumir eru þegar orðnir þrísprautaðir.

Ætli þeir hafi hugmynd um að þeir séu að taka þátt í stærstu lyfjatilraun sem gerð hefur verið í heiminum? Ég stórefa það.

 

 


Bíddu nú, er flensan ekki hætt að herja á okkur?

rsz_1904Gamla góða flensan ákvað kurteislega að draga sig í hlé í mars í fyrra og leyfa nýju drápsveirunni að njóta sín, og hefur held ég ekki eitt tilfelli greinst af henni síðan þá hér á landi.

Því þarf þá að bólusetja núna gegn henni?

"Bólu­setn­ing vegna ár­legr­ar in­flú­ensu hefst nú eft­ir miðjan októ­ber. Bólu­setn­ing­in mun  fara fram á öll­um heilsu­gæslu­stöðvum höfuðborg­ar­svæðis­ins. Þetta kem­ur fram á heimasíðu Heilsu­gæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins.

Fyrstu tvær vik­urn­ar verður bólu­sett for­gangs­hópa og í nóv­em­ber verður svo opnað fyr­ir al­menn­ar bólu­setn­ing­ar."

Hvernig getur hún verið árleg þegar hún greindist bara alls ekkert eftir mars í fyrra? Engin flensa, bara COOOOOVID, sem kyrfilega er búið að kenna okkur að vera dauðhrædd við!

Og ósköp er ég orðin þreytt á þessu tali um forgangshópa, er þetta fólk ekki orðið nógu mikið sprautað, jafnvel þrisvar með einhverjum efnum sem það hefur ekki hugmynd um hvað innihalda?

2809c

Ég fæ mér aldrei flensusprautur, og vitiði, ég fæ aldrei flensur! Ég hef eitthvað sem heitir meðfætt ónæmiskerfi, sem hefur varið mig afskaplega vel hingað til gegn öllum pestum.

Enda hef ég haldið því vel við og látið það hafa nóg að gera til að efla sig í gegnum tíðina, og það hefur bara svínvirkað! Og grímulaus og ósprittuð í þessum "heimsfaraldri"!

Til ykkar sem létuð sprauta ykkur gegn drápsveirunni miklu:

Augljóslega get ég ekki talað til allra þeirra sem þegar eru látnir eftir þær, en nokkur þúsund ykkar hafa orðið fyrir aukaverkunum vegna þeirra, jafnvel lífsógnandi.

Eins og til dæmis þessum:

2709a

Eða þessum:

2709b

Ætlið þið virkilega að halda áfram að vera nálapúðar fyrir lyfjarisana, haldið þið virkilega þeir beri einhverja umhyggju fyrir ykkur?

Sektir sem þeir hafa þurft að greiða fyrir markaðssvik og lyfjasvik

2005a

Hvað ætli þessi glæpafyrirtæki græði núna á lyfjum sem fólk þarf að taka núna vegna aukaverkana af akkúrat þessum svokölluðu "bóluefnum" þeirra sem þegar eru búin að skaða og/eða drepa milljónir manns á heimsvísu?

Íslendingar eru upp til hópa óttalegar hópsálir, og kunna ekki við að vera "öðruvísi" en aðrir, og margir hafa látið "bólusetja" sig svo þeir falli í hópinn, og því miður eru líka mörg dæmi um það að fólk hefur verið þvingað í sprauturnar á vinnustað sínum til að halda vinnu.

Á mannamótum talar fólk um hvaða "bóluefni" það fékk og segir bara Gvuuuuð með hneykslunartóni þegar maður segist enn vera ósprautaður og ætli bara að vera þannig áfram.

Íslendingar hafa upp til hópa heldur ekki hugmynd um hvað er að gerast í t.d. Ástralíu og Nýja Sjálandi núna, sem eru að verða að fullbornum lögreglu- og fasistaríkjum, þar sem búið er að svipta fólkið nánast öllum mannréttindum og frelsi.

Ég ætla ekkert að finna sannanir fyrir því fyrir ykkur, þið getið bara sjálf leitað að þeim.

En þið kusuð líklega yfir okkur sömu ríkisstjórnina og samþykkti bóluefnasamningana sem okkur kemur víst ekkert við, og megum ekki sjá vegna einhverra "viðskiptahagsmuna", sem er ekkert annað en glæpsamlegt í ljósi þess hversu skaðleg þessi svokölluðu "bóluefni" sannanlega eru.

Eru Íslendingar bara að verða heimskari og heimskari eins og Kári segir, sem er búinn að tífalda hagnað fyrirtækis síns í "heimsfaraldrinum"?

 

 

 

 


mbl.is Bólusetning vegna inflúensu hefst í október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband