Færsluflokkur: Bloggar
Þegar mannleg samfélög tapa frelsi sínu, þá er það venjulega ekki vegna þess að harðstjórar hafi tekið það af þeim, heldur vegna þess að fólk lætur það af hendi af fúsum og frjálsum vilja til að fá vernd gegn utanaðkomandi ógn.
Þetta eru sagt í þessu vídeói sem hefur verið bannað alls staðar á ritskoðuðu miðlunum, en er frábær yfirferð yfir feril "mannvinarins mikla".
Og því miður er mikil sannleikur fólginn í þessum orðum.
"Einn virtasti veirufræðingur heimsins"
Enn er til fólk sem dáist að honum fyrir gjafmildi sína til alls konar góðgerðarmála, og þótt hann hafi enga menntun í læknis- eða veirufræðum er hann álitinn sérfræðingur af mörgum.
En ferill hans er viðbjóðslegur eins og kemur fram þarna. Hann gaf þúsundum indverskra stúlkna (af gæsku sinni!) bóluefni sem ollu alvarlegum veikindum og örkumlum hjá mörgum, og einhverjar létust.
Þetta var að sjálfsögðu ekkert annað en tilraun, á lítt menntuðu og fátæku fólki sem trúði því að þessi lyf kæmi í veg fyrir, og/eða læknaði krabbamein. Þessar stúlkur fengu engar skaðabætur á eftir, og hann harðneitaði að um tilraunir hefði verið að ræða.
Skýrsla sem birt var 2018 leiddi í ljós að yfir 490.000 börn lömuðust á Indlandi eftir að hafa fengið bóluefni gegn lömunarveiki frá honum.
Svipaðar sögur má segja frá Afríku, þar sem hann notaði fátæk börn í tilraunaskyni.
Fyrirætlanir þessa manns eru sturlaðar, og eru partur af því sem er að gerast í heiminum í dag, þótt fæstir Íslendingar myndu trúa því, enda er aldrei fjallað um þetta í innlendum fjölmiðlum.
Við þurfum bara að fara að horfast í augu við það að þessu svokölluðu "bóluefni" eru hreint engin bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til.
Þarna segir læknir að aldrei hafi tekist að búa til bóluefni gegn kóróna veirum, og venjulegur þróunartími bóluefna sé 7-20 ár.
Hin skaðlega galdralausn
Hann og Fauci vinur hans lofuðu heiminum galdralausn gegn "faraldrinum" á einu og hálfu ári, og skipulagður og linnulaus óttaáróður mánuðum saman fékk fólk til að þiggja sprauturnar, því þá myndi lífið komast aftur í samt lag.
En staðreyndin er allt önnur, hér á landi eru þessi efni búin að valda aukaverkunum hjá þúsundum manns, þar af 207 alvarlegum og/eða dauða.
Og nákvæmlega sömu sögu má segja um löndin í kringum okkur.
Margir halda því fram að "heimsfaraldurinn" hafi verið uppkokkaður til þess að taka frelsi og mannréttindi smátt og smátt af fólki, og til réttlæta bólusetningu með þessum efnum á (helst) öllu mannkyninu.
Það er verið að reyna að fækka mannkyninu með þessum efnum gott fólk, bæði með því að gelda það og/eða drepa, og það er bara skelfilegur sannleikur.
Horfið á hverja einustu mínútu af þessu rúmlega 20 mínútna vídeói!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2021 | 21:07
Skammist ykkar, stöðvið þetta bólusetningarbrjálæði!
Hér er frábær ádrepa á forsætisráðherra Bretlands sem nýlega þvaðraði í ræðustól um hversu vel þessi "bóluefni" hafi reynst.
Við höfum orðið vitni af stórkostlegri fækkun veikinda og andláta segir hann, og nú ætlum við að byggja upp enn meira ónæmi með þriðja skammtinum.
Svo að sjálfsögðu leggur hann áherslu á að það þurfi að ná til þeirra sem er eru ósprautaðir, og hvetja þá til að koma því það verði svo gott fyrir þá!
Og að með haustinu eigi að byrja að sprauta 12-15 ára líka.
Dr. Sucharit Bhakdi
Þessi maður er örverufræðingur til áratuga sem hættur er störfum, svo hann þarf ekki að óttast atvinnumissi þótt hann segi sannleikann, og hefur hann birst í mörgum viðtölum um "heimsfaraldurinn" og þessi stórhættulegu "bóluefni".
"Dr. Bhakdi has published over three hundred articles in the fields of immunology, bacteriology, virology, and parasitology, for which he has received numerous awards and the Order of Merit of Rhineland-Palatinate."
Hér tætir hann þennan lygavaðal forsætisráðherrans niður í öreindir og endar á því að segja:
Þú veist að þetta er glæpsamlegt, og við Breta segir hann, þið eruð núna að upplifa stærstu glæpi sem framdir hafa verið gagnvart bresku þjóðinni.
Hér má finna meira efni um þennan frábæra, heiðarlega og óspillta vísindamann.
Bráðum 7 barna faðirinn sem vill fækka mannkyninu
Að sjálfsögu veit forsætisráðherra að hann er að ljúga að þjóð sinni, enda er hann fullur þátttakandi í "The New World Order" og "Build Back Better" áformunum um framtíð mannkynsins, meðal annars um að fækka því hressilega.
Ég fann í fyrra stuttan bút sem tekinn var af honum í ræðustóli á þingi Sameinuðu þjóðanna minnir mig, þar sem hann lýsir af ástríðu hvernig mannkynið muni verða þegar búið verið að setja nýstárlegar öreindir í það, sem muni synda um eins og Star Wars karlar um líkamann og hlýða utanaðkomandi skipunum.
Að sjálfsögðu er búið að fjarlægja þetta af vefnum.
Þessi fínu og öruggu bóluefni
Það er búið að tilkynna um tæplega 1.2 milljónir aukaverkana um þau í Bretlandi, en eins og víðar, þá er líklega ekki nema örlítill hluti þeirra tilkynntur.
Það er bara eitt stórt leikrit í gangi í heiminum í dag
Þetta er bara eitt örlítið dæmi þess, á opinberum myndum er elítan með grímur og með fjarlægð á milli sín, þar fyrir utan hegðar hún sér eins og enginn drápsfaraldur sé í gangi.
Og þetta er bara eitt dæmi af ótalmörgum. "One rule for thee and one for me".
Eða hvaða dagur vikunnar sem er.....
Hættum bara að horfa og hlusta á þennan hroðalega einhliða og falska fréttaflutning.
Ef það væri raunverulegur heimsfaraldur í gangi, þá þyrftum við ekki fá stöðugar staðfestingar um það, því það færi bara hreint ekkert fram hjá okkur!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einhverra hluta vegna rifjaðist upp fyrir mér frétt á RÚV frá 19. apríl sem bar yfirskriftina "Það er mikil hræðsla og fólk er bara í áfalli".
Efni fréttarinnar var um hópsýkingar sem tengdust sóttkvíarbrotum. Ungur drengur á leikskólanum Jörfa greindist "smitaður", væntanlega með 40 snúninga PCR prófinu (sem löngu er búið að dæma ómarktækt í siðuðum löndum).
Á þessum tíma var hann sem betur fer einkennalítill, en fjölskyldan ákvað að skipta sér upp þarna, drengurinn og móðir hans dvöldu í sóttkvíargúlaginu við Þórunnartún, en faðirinn og lítil systir heima.
Aðspurður sagði litli drengurinn að það væri vegna þess að hann gæti smitað foreldra sína og systur.
Blessað barnið, hugsið ykkur ábyrgðina sem lögð er á hann þarna, eins og tugmilljónir annarra barna um heim allan.
Hvernig ætli honum hefði liðið ef fjölskyldan hefði líka "greinst"?
Ætli fólk geri sér einhverja grein fyrir því hversu skaðlegar allar þessar fáránlegu og tilefnislausu sóttvarnaraðgerðir eru börnunum? Og hvað þá þessar viðurstyggilegu "bólusetningar" sem þegar eru búnar að valda alvarlegum skaða hjá að minnsta kosti 6 börnum hér á landi?
Og sjáið skilaboðin frá Víði þennan dag á hræðslufundinum:
"Skilaboð dagsins til almennings voru skýr: Farið í sýnatöku ef minnstu einkenna verður vart.
Ef þú ert með beinverki farðu í sýnatöku, ef lyktar og bragðskyn breytist farðu í sýnatöku, ef þú ert með niðurgang farðu í sýnatöku ef þú ert með óvenjulega þreytu farðu í sýnatöku, sagði Víðir Reynisson á upplýsingafundinum og hélt áfram upptalningunni, nefndi hósta, hálssærindi, hálsþurrk, hita og höfuðverk.
Svo virðist sem fólk hafi tekið Víði á orðinu því langar raðir mynduðust í skimun við Suðurlandsbraut í Reykjavík. 2800 létu reka pinna upp í nefið á sér - Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að sjaldan hafi fleiri mætt í skimun."
Hvað varð um heilbrigða skynsemi fólks og rökhugsun?
Einhverra hluta vegna hef ég aldrei gleymt þessari gölnu upptalningu hans, og hvað þá viðbrögðunum við henni!
Hvað ætli margir þessara 2.800 hafi "greinst með smit" og þurft að fara í einangrun?
Ég sá skjáskot um daginn af Facebook þræði þar sem íslensk móðir var að spyrja ráða.
Ungt barn hennar var með smá hor, og hún vissi ekki hvort hún ætti að þora að fara með það í leikskólann!
Æ æ hugsaði ég með mér, svona hefur hræðsluáróðurinn svínvirkað! Það hefur aldrei þótt neitt sérstakt hingað til að leikskólabörn fái hor og smá kvef, þau eru jú ennþá að byggja upp ónæmiskerfin sín.
Að halda þeim heima við, leyfa þeim ekki að hitta aðra krakka eða afa og ömmu, og spritta allt í drasl gerir ekkert nema gera þau viðkvæmari gagnvart öllum veirum og bakteríum sem eru allt í kringum okkur!
Þetta getið þið þakkað þríeykinu, Svandísi og co fyrir:
Hvar er þríeykið sem "er búið að leiða okkur svo farsællega í gegnum þennan hræðilega drápsfaraldur"?
Landlæknir okkar og Víðir virðast horfin af yfirborði jarðar, það er helst að sóttvarnarlæknir okkar tjái sig í fjölmiðlum, og nú um daginn að maður geti hafa smitast af veirunni án þess að veikjast og jafnvel ekki vita af því!
Glæpirnir í boði íslenskra stjórnvalda
Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að aðgerðirnar í heiminum síðastliðna 19 mánuði eru furðulega mikið samræmdar, allt niður í frasana hans Víðis um að við séum öll í þessu saman og við berum öll ábyrgð.
Eða þá jóla- og páskakúlurnar sem við áttum öll skríða inn í, nákvæmlega þessir frasar voru notaðir í löndunum í kringum okkur. Er það bara tilviljun?
Svarið er eitt stórt NEI, og því fyrr sem þjóðin gerir sér grein fyrir því að verið sé að fremja stærstu glæpi sem framdir hafa verið gagnvart mannkyninu núna, því fyrr fer fólk að rísa upp og mótmæla.
Þjóðirnar í kringum okkur eru löngu risnar upp og flykkjast hundruðum þúsundum saman í mótmælagöngur gegn alræðinu og fasismanum sem verið er að innleiða í heiminum í dag.
En að sjálfsögðu þykir það ekki fréttaefni í innlendum fjölmiðlum! Ef þið eruð ekki enn búin að því, horfið þá núna á vídeóið sem sannar hvað raunverulega er í gangi í dag.
Kusuð þið í dag flokkana sem leyfðu þessu að gerast, og hafa að ég held lítið sem ekkert talað um þetta stærsta mál samtímans í kosningabaráttu sinni?
Það kemur í ljós á morgun þegar endanlegar niðurstöður liggja fyrir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.9.2021 | 18:10
Sannleikurinn um þennan meinta "heimsfaraldur" á 40 mínútum!
Þetta vídeó vekur mér svo sannarlega von í brjósti um að loksins verði hægt að stöðva þessa hroðalegu glæpi sem verið er að fremja gagnvart mannkyninu núna, einhverju sem flestir hafa enga hugmynd um að séu að eiga sér stað.
Að minnsta kosti ekki hér á landi, þótt þjóðirnar í kringum okkur séu löngu vaknaðar og farnar að berjast gegn þessum glæpum.
Dr. Reiner Fuellmich hefur ásamt fjölda óháðra og heiðarlegra lögfræðinga, vísindamanna, blaðamanna og fleiri aðilum um allan heim, flett ofan af þeim sem eru ábyrgir, með óhrekjanlegum sönnunargögnum.
Þessi svokallaði "heimsfaraldur" var lengi í undirbúningi, og lokamarkmiðið er að fækka mannkyninu, og svipta þá sem eftir lifa öllu.
Þetta hljómar alveg galið, ég veit það, en þetta er samt því miður nöpur staðreynd.
Horfið á þetta vídeó til enda, og svo aftur!
Hvert einasta orð sem hann segir í þessu vídeó er því miður heilagur sannleikur!
Covid-19 scandal never been a health issue
"The hearings of, among others, hundreds of scientists, doctors, economists and lawyers of international repute conducted since October 7, 2020 by the Berlin Commission of Inquiry into the Covid-19 affair have now demonstrated with a probability approaching 100% certainty that the Covid-19 scandal was never a health issue Dr. Fuëlmich on February 15, 2020"
Rather, it was a matter of strengthening power, illegally obtained by criminal methods of the corrupt Davos clique, by transferring the wealth of the people to the members of Davos on the backs of small, and especially medium-sized businesses, among others.
The committees conclusion is that Covid-19 is being used as a diversionary tactic by business and political elites with the goal of shifting market shares and wealth from small and medium-sized businesses to global platforms such as Amazon, Google, Uber, and other big tech and multinational corporations.
Sjá meira hér.
Glæpirnir hér á landi
Hann kemur meðal annars inn á PCR prófin (sem hann Kári okkar er búinn að moka inn peningum á!) sem að minnsta kosti voru lengi notuð á 40 snúningum hér á landi, það fékk ég staðfest frá Lyfjastofnun fyrr á árinu.
Eins og þau eru notuð hér á landi, þá er vísvitandi verið að viðhalda fölskum faraldri, munum hvað Þórólfur hefur sagt, að maður geti verið veikur án þess að vita það!
Á grunni þeirra er búið að loka þúsundir fullfrísks fólk inni í sóttkvíum og einangrunum, loka fyrirtækjum til lengri eða skemmri tíma, og fresta lífsnauðsynlegum læknisaðgerðum hjá fjölda fólks.
Og hérna er bara fátt eitt upptalið, skaðinn verður aldrei bættur hjá mörgum.
Og það er vísvitandi búið að þvinga okkur til að nota súrefnisheftandi tuskur fyrir vitunum, þótt allir ættu að sjá núna að eru einungis tákn um hlýðni, og halda okkur í ótta við einhvern ósýnilegan óvin.
Örsmáir möskvar þeirra halda fáum ef nokkrum veirum frá því að komast ofan í öndunarfærin.
Og það er vísvitandi og með gríðarlegum áróðri búið að telja þjóðinni trú um að ekkert geti komið henni út úr "heimsfaraldrinum" nema einhverjar "bólusetningar".
Þeim hefur verið haldið áfram þrátt fyrir þann skelfilega skaða sem þær hafa valdið á þúsundum manna hér hér á landi, allt niður í börnin sem byrjað er að sprauta!
Það er af einbeittum brotavilja búið að banna notkun áratuga gamals lyfs sem hefur sannanlega virkað ákaflega vel gegn þessum veikindum, en þess í stað notað lyf sem sannanlega hefur flýtt fyrir dauða sjúklinga!
Það er kjördagur á morgun, ætlið þið að kjósa einhvern þessara sitjandi flokka sem hafa hunsað ótal bréf, símhringingar, tölvupósta og jafnvel ábyrgðarbréf með sönnunum sem hefðu átt að stöðva þessa aðför að okkur strax?
Haldið þið að þetta fólk sé að hugsa um eitthvað annað en eigin rass? Með þessari hunsun sinni frá okkur, þjóðinni sem þau eiga að vera að vinna fyrir, hlýtur svarið bara að vera stórt NEI!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.9.2021 | 15:01
Þórólfur og "vísindin", þið getið hafa fengið pestina án þess að veikjast, og jafnvel vitið ekki af því!
Þórólfur er endalaust að toppa sjálfan sig í "vísindunum" sínum. Hann sagði okkur í fyrra að grímur gerðu ekkert gagn, en svo stuttu síðar vísaði hann í einhverjar "nýjar rannsóknir" sem áttu að sýna fram á hið gagnstæða.
Svo hefur hann farið frá því að mæla ekki með bólusetningum á börnum yfir í að mæla heilshugar með þeim.
Svo sagði hann í viðtali í fyrra að tryggja þyrfti að bóluefni gegn Covid væru góð og örugg áður en farið væri að sprauta fólk með þeim.
Ragnar Reykás á sterum bara!
Þetta virðist hans túlkun á góðum og öruggum bóluefnum
Hér brillerar hann alveg!
"Við vitum hinsvegar að það eru fleiri sem hafa fengið COVID án þess að veikjast og jafnvel vita ekki af því. Við vitum hinsvegar ekki hvað sá hópur er stór. Auðvitað getur það komið flatt uppp á fólk en ég vil hvetja fólk til þess að vera ekkert endilega að fara í mótefnamælingu, segir hann." (Áherslubreytingin er mín.)
Fréttin er hér.
Það er eitthvað þarna sem ég skil ekki alveg frekar en félagarnir á myndinni hér fyrir neðan, er eitt af einkennum veikindanna að hafa engin einkenni?
Stökkbreyttu afbrigðin
Svo eru það öll blessuðu stökkbreyttu afbrigðin sem eru víst ennþá meira smitandi en forverar þeirrar.
Með massa bólusetningum erum við alltaf alveg að ná hjarðónæminu langþráða, en svo kemur skellurinn, æ æ, þau eru ekki að virka alveg eins vel og lofað var, svo upp með grímurnar einu sinni enn, og fáum okkur "örvunar"búst.
Og bönnum Ragga rakara að vinna grímulaus í pestarbælinu á stofunni hans, en veiran veit að hún má ekki smita þegar hann fer grímulaus á pöbbinn eftir vinnu og fer í sleik við sæta dömu þar.
Áminning frá sóttvarnarlækni
Í sömu frétt segir hann að smitþreytan sé skiljanleg en vírusinn sé enn vandamál.
Ég held að það sé nokkuð ljóst að það eru allir orðnir nokkuð leiðir á þessum tölum, segir sóttvarnalæknir.
En það þýðir líklega ekki að ræða það, segir Þórólfur og minnir á að veiran fer ekki neitt þó hún sé rædd minna. (Áherslubreytingin er mín)
Búúúú, haldið áfram að vera hrædd krakkar mínir, þótt þið hafið verið einkennalaus og ekkert veik, þá eru miklar líkur á að þið hafið verið veik! Þvílíkur brandari!
En svona just in case, passið ykkur rosalega vel, og kaupið birgðir af skyndiprófum í Bónus, drápsveiran eða stökkbreyttir afkomendur hennar eru úti um allt!
Áminning TIL sóttvarnarlæknis
Veistu Þórólfur, ég er orðin miklu leiðari á þér sem ert með minnisblöðum þínum búinn að halda þjóðinni í fjötrum í á annað ár núna út af pest sem drepur álíka marga og flensan á hverju ári.
Og ég er búin að fá nóg af bóluefnaáróðrinum sem búinn er að skaða þúsundir manna og drepa að allra minnsta kosti 31.
Og hvert fór flensan eiginlega, hvers vegna hefur hún ekki greinst síðan í mars í fyrra, akkúrat þegar drápsveiran mikla "greindist" hér fyrst?
Þetta "leikrit" fer að verða búið, tjöldin eru að falla - með brauki og bramli!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.9.2021 | 20:02
Hvort er þetta ormalyf fyrir hesta, eða lyf sem hefur fengið Nóbelsverðlaun? Svarið er, hvort tveggja!
Ég var að horfa á eitt besta vídeó sem ég hef séð hingað til um lyfið sem má ekki nefna á nafn á Facebook án þess að síðan smelli einhverri aðvörun undir.
"Theres a huge and largely manufactured campaign of disinformation about Ivermectin in the news. This video asks and answers the question; "Is ivermectin a horse-dewormer or a Nobel prize winning medicine?""
Rúna Hauksdóttir forstjóri Lyfjastofnunar leggur áherslu á að þetta sé sníkjudýralyf, sem stofnunin geti ekki mælt með gegn pestinni ógurlegu, og orðið sníkjudýralyf vekur vissulega upp hroll hjá manni, og kallar fram "rétt" hughrif hjá fólki.
Þessi sama manneskja er margbúin að segja ósatt um aukaverkanir eftir "bóluefnin", og stofnunin sem hún stjórnar er æði spör á upplýsingar sem við eigum svo sannarlega rétt á að fá.
Það eru víst engar sannanir fyrir því að áratuga gamalt lyf sem milljarðar manna hafa fengið án mikilla aukaverkana, og hefur fengið Nóbelsverðlaun einhverra hluta vegna, gagnist gegn pestinni segir hún.
Við eigum bara að láta sprauta okkur með lyfjaglundri sem er enn á tilraunastigi þar til árið 2023.
Einhverjum eiturefnum sem þegar eru búin að valda dauða hjá að allra minnsta kosti 31 manns, valdið lífsógnandi aukaverkunum hjá 175, og öðrum aukaverkunum hjá öðrum 3.010.
Og nota bene, þetta eru einungis þær aukaverkanir sem búið er að tilkynna um!
Sjaldnast bendi nokkuð til tenginga milli sprautanna og aukaverkana og/eða dauða, vill hún meina.
Einmitt! Er fólk virkilega enn að trúa þessu þótt sannleikurinn bókstaflega öskri á mann?
Lyfið Remdesivir sem fjallað er um í vídeóinu
Þetta er eina lyfið sem hefur fengið markaðsleyfi á Íslandi gegn COVID-19, eftir því sem ég best veit, en ég veit þó ekki hvort það sé enn notað í þessum tilgangi hér.
Í rúmlega ársgamalli frétt er sagt að Lyfjastofnun Evrópu mæli með þessu lyfi gegn veikindum.
"Í yfirlýsingu sem stofnunin sendi frá sér í dag segir að Remdesivir sé fyrsta lyfið gegn COVID-19 sem hægt sé að mæla með í ríkjum Evrópusambandsins. Að minnsta kosti tvær bandarískar rannsóknir hafi leitt í ljós að lyfið flýti fyrir bata og stytti þar með dvöl sjúklinga á sjúkrahúsi úr fimmtán dögum í ellefu."
Svo er önnur nýrri frétt, þar sem segir: "Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur mælt gegn notkun lyfsins remdesivir í meðferð Covid-19-sjúklinga. Lyfið hefur töluvert verið notað hér á landi." (Áherslubreytingin er mín.)
Sérhagsmunir lyfjaframleiðenda
Anna Tara Andrésdóttir skrifaði frábæra grein sem birtist á Vísi þann 22. febrúar síðastliðinn, þar sem hún veltir upp þeirri spurningu hvort sérhagsmunir lyfjaframleiðenda standi í vegi fyrir lýðheilsu landsmanna.
Lesið hana endilega, og ekki síður athugasemdina frá Guðmundi Karli Snæbjörnssyni (Kalla Snæ) undir fréttinni. Eins og margir vita, þá hefur hann verið ötull í baráttunni fyrir því að fá þetta lyf leyft hér á landi.
Hvers vegna má að minnsta kosti ekki bjóða fólki upp á að fá þetta lyf ef það vill? Er svarið kannski það að engan gróða sé upp úr því að hafa?
Bloggar | Breytt 6.12.2021 kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2021 | 16:16
Frú Ingileif ætlar að fræða okkur um "þýðingu bólusetninga á tímum heimsfaraldurs", og uppljóstrari sem varpar sprengju um "bóluefnin"!
Það verður fróðlegt að vita hvað Ingileif Jónsdóttir ætlar að segja í kvöld, á viðburðinum Vísindavaka Rannís - Bólusetningar, hvaða máli skipta þær?
Hún starfar hjá Íslenskri erfðagreiningu, og hefur verið mjög dugleg að lofa þessi svokölluðu "bóluefni", eins og til dæmis í þessu viðtali, þar sem hún segir að við þurfum fleiri sprautur til að verjast nýjum afbrigðum.
Viðburðurinn
"Sjaldan eða aldrei hefur verið rætt jafnmikið um bólusetningar og nú. Ingileif fjallar um þýðingu bólusetninga á tímum heimsfaraldurs, þróun bóluefna og vernd gegn COVID-19 sjúkdómi og smiti, hjarðónæmi, bólusetningu viðkvæmra hópa og bóluefni gegn nýjum afbrigðum veirunnar.
Hugrakkur bandarískur hjúkrunarfræðingur er búinn að fá nóg, og tók leynilega upp samtöl við lækna og kollega.
Það er (að sjálfsögðu) búið að eyða þessu vídeói út af Instagram og Facebook, svo það hverfur örugglega fljótlega líka út af YouTube, en þetta er skylduáhorf!

Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
20.9.2021 | 17:43
Já er það, er glundrið jafn "öruggt" og fyrir fullorðna? Er einhver virkilega að trúa þessu?
Álíka "fréttir" og þessi eru búnar að dynja á okkur síðan þessi svokallaði "heimsfaraldur" byrjaði.
"Pfizer og BioNTech gáfu í dag út að niðurstöður rannsókna þeirra sýna að bóluefni gegn Covid-19 sé öruggt og framkalli öfluga ónæmisvörn hjá börnum á aldrinum fimm til ellefu ára. Þá gáfu þau einnig út að þau munu leita samþykkis eftirlitsaðila fljótlega og sögðu að bóluefnið yrði gefið í vægari skammti fyrir börn yngri en 12 ára."
Hjá þátttakendum á aldrinum fimm til ellefu ára var bóluefnið öruggt, þoldist vel og sýndi öfluga mótefnasvörun, sagði bandaríski lyfjarisinn Pfizer og BioNTech í sameiginlegri yfirlýsingu.
Ég bíð bara spennt eftir því að Þórólfur & co verði tekin í viðtöl svo þau geti tekið undir þetta!
Vekur þetta ekki alveg gríðarlega von í brjósti ykkar? Nú fer loksins að verða hægt að sprauta börn yngri en 12 ára!
Rannsóknir ÞEIRRA sýna frábærar niðurstöður, og auðvitað trúum við framleiðendunum sjálfum þegar þeir mæra ágæti eigin framleiðslu, nema hvað!
Þessi bóluefni þeirra hafa virkað svo ljómandi vel að búið er að tilkynna um 1.416 aukaverkanir vegna þeirra hér á landi, þar af 56 alvarlegar og 23 andlát.
Tölur dagsins, heildarfjöldi kominn upp í 3.195!
Comirnaty (BioNTech/Pfizer):
88 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
- 23 þeirra varða andlát. 18 andlát vörðuðu aldraða** einstaklinga, 15 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Fjögur andlát vörðuðu eldri*** einstaklinga, þrír þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling á aldursbilinu 60-64 ára með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
- 45 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af níu lífshættulegt ástand).
- 15 tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar****.
- Tvær tilkynningar teljast alvarlegar, þar sem beðið er eftir viðbótarupplýsingum.
- Þrjár tilkynningar varða fósturmiska.
Þetta er tekið af vef Lyfjastofnunar, var uppfært síðast 14. september, og síðan þá hefur ein ný bæst við.
Sjáið þið þetta með fósturmiskana, þetta er nýtt, og það er samtals búið að tilkynna um 8 fósturmiska vegna þessara efna!
Fréttirnar
"Frétta"flutningurinn hér á landi er með ólíkindum slakur, bara óboðlegur eins og ég minntist á í bloggi mínu í gær, og það á við alla miðlana sem eru á ríkisspenanum.
Eins og þessi frétt, hér virðist fréttatilkynning frá framleiðandanum vera þýdd yfir á íslensku og skellt á netið í formi "fréttar".
Athugasemdalaust, gagnrýnislaust og án nokkurra tilvitnana í heimildir eða sannanir fyrir þessum fullyrðingum.
Sérstaklega í ljósi þess að það ætti ekki að hafa farið framhjá neinum (alvöru) blaðamanni að þessi svokölluðu "bóluefni" eru þegar búin að valda hræðilegum skaða og andlátum út um allan heim!
Börnin
Þann 8. september var búið að tilkynna um alvarlegar aukaverkanir hjá 6 börnum hér á landi, og 14 ára drengur fékk blóðtappa í lungun eftir fyrri bólusetningu, sem er vel þekkt aukaverkun.
Hvað ætla íslenskir foreldrar að gera þegar þessi "öruggu og öflugu bóluefni" koma til landsins? Æða í Laugarvaxhöllina með þau þegar kallið kemur?
Það kæmi mér hreint ekkert á óvart, því miður.
![]() |
Pfizer segir bóluefnið öruggt fyrir ung börn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.9.2021 | 17:24
Þegar "fréttir" eru bara copy-paste úr erlendum miðlum!
Mikið er gott að geta alltaf treyst á að hamfara"fréttamaðurinn" góði, Kristján Kristjánsson, færi manni nýjustu "fréttirnar" af yfirstandandi og "væntanlegum" afbrigðum og faröldrum og hvað er í vændum í pestamálum.
Hann klikkar aldrei!
"Bresk stjórnvöld hafa sett á laggirnar nýja stofnun, The Pandemic Institute, sem á að aðstoða heimsbyggðina við að koma í veg fyrir heimsfaraldra, undirbúa viðbrögð við þeim og bregðast við þeim. Stofnunin á einnig að vinna að því að hraða þróun bóluefna við faröldrum framtíðarinnar og stytta þróunartíma þeirra um þrjá til sex mánuði."
The Pandemic Institute
Mér datt í hug að skoða þessa stofnun, og eftir stutta rannsókn sá ég að hún er upphaflega fjármögnuð með rausnarlegu framlagi af Innova Medical Group, sem var stofnað í upphafi "heimsfaraldursins".
Það vill svo skemmtilega til að það er búið að moka inn peningum á mótefnavakaprófum, mótefnaprófum, og ekki síst "NHS Test and Trace" búnaði, sem breska ríkisstjórnin hefur fjárfest 3.2 milljarða punda í!
En ekki virðast allir hafa jafn mikla "trú" á þessu fyrirtæki og breska ríkisstjórnin.
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna segir:
Stop Using Innova Medical Group SARS-CoV-2 Antigen Rapid Qualitative Test:FDA Safety Communication
"The U.S. Food and Drug Administration (FDA) is warning the public to stop using the Innova Medical Group SARS-CoV-2 Antigen Rapid Qualitative Test for diagnostic use. The FDA has significant concerns that the performance of the test has not been adequately established, presenting a risk to health.
In addition, labeling distributed with certain configurations of the test includes performance claims that did not accurately reflect the performance estimates observed during the clinical studies of the tests. Finally, the test has not been authorized, cleared, or approved by the FDA for commercial distribution or use in the United States, as required by law."
Sjá fréttina hér.
The Innova Scandal - Questions the government has ignored
"THE owner of Innova Medical Group, suppliers of the flawed lateral flow test (LFT) on which the British taxpayer has spent billions of pounds but which has been declared unsafe and only fit for the bin in America, is Chinese-born American businessman Dr Charles Huang (PhD in marketing from Strathclyde University).
He has been associated with scandal in the past. As the financial director of a Chinese automotive manufacturer, Brilliance Group, he played a key role in the strategic alliance between Chinas Brilliance Group and MG Rover Group in the UK in 2002. This is what his biography page on Pasaca Capital, the company that wholly owns Innova Medical Group (IMG), at the heart of my investigation, proudly tells us.
In fact it is nothing to boast about. It was an ill-fated joint venture which was embroiled in scandal."
Og meira:
"How did Innova Medical Group come to get these lucrative UK government contracts in the first place? Who made the introduction? How was this one company chosen? Why was Innova given such preferential treatment by the joint PHE and Oxford University evaluation programme run by the DHSC, chaired by Matt Hancock and overseen by Sir John Bell of Oxford University?"
Sjá gríðarlega yfirgripsmikla umfjöllun um þetta mál hér.
A Pasadena startup got billions selling COVID tests. Then came questions
"In the last year, executives at a Pasadena startup began flying from Burbank to destinations around the world on a pair of newly registered Gulfstream jets, one a G650 decked out in white plush seats, burnished interiors and other luxury finishes."
Öll greinin er hér.
Skítalykt og spilling!
Ok, þessi stofnun er sett á laggirnar með 10 milljóna punda "gjöf" sem er tæplega 1.8 milljarðar íslenskra króna, frá Innova Medical Group sem var stofnað af Kínverja með vafasaman bakgrunn í upphafi "heimsfaraldursins".
Finna fleiri skítalykt af þessu en ég?
Kristján Kristjánsson "fréttamaður"
Gat maðurinn ekki aulast til þess að kanna aðeins bakgrunn The Pandemic Institute og hverjir fjármagna þessa stofnun, áður en hann birti þessa "frétt"?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.9.2021 | 19:11
Er algengt eða eðlilegt að 14 ára börn fái blóðtappa í lungun?
Geta sprauturnar valdið blóðtöppum í börnum? Svarið er því miður já.
Frétt á RÚV 16. september síðastliðinn:
"Unglingsdrengurinn sem liggur á Barnaspítalanum var að ljúka einangrun þegar hann var lagður inn í gær. Líðan hans er stöðug og ekki er búist við að hann þurfi að liggja inni í marga daga. Hann veiktist nokkrum dögum eftir fyrsta skammt af bóluefni." (Áherslubreytingin er mín.)
Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við foreldra drengsins:
"Daníel Indriðason, 14 ára, var greindur með kvíðakast á heilsugæslunni á mánudag og var honum sagt að fara heim að hvíla sig. Foreldrar hans, Indriði Björnsson og Rikke Pedersen, fóru með hann á Barnaspítalann á þriðjudagsmorgni þar sem blóðtappar í báðum lungum drengsins komu í ljós." (Áherslubreytingin er mín.)
Er þetta tóm tilviljun eins og allt annað í þessum "heimsfaraldri", aldrei neitt sem bendir til tenginga milli sprautanna og aukaverkana?
Ragnar Reykás
Trúverðugleiki sóttvarnarlæknis okkar er löngu fokinn út í buskann. Í viðtali 14. apríl 2020 sagði hann:
"Það þarf að tryggja að nýtt bóluefni valdi ekki skaða".
Og hver er staðan núna? 3.188 tilkynningar um aukaverkanir hafa borist, þar af 170 lífshættulegar, og 31 andlát. Hvað ætli falli undir skaða í hans orðabók?
Viðtal við hann 14. júlí síðastliðinn:
"Sóttvarnalæknir ætlar ekki að mæla með almennum bólusetningum hraustra barna að svo stöddu. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur skorið úr um að aukin tíðni gollurshússbólgu (e. pericardititis) og hjartavöðvabólgu (e. myocarditis) sé eftir bólusetningu með mRNA bóluefnunum Comirnaty (Pfizer/BioNTech) og Spikevax (Moderna). Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni sem birt er á vef Landlæknis."
Viðtal við hann 23. ágúst síðastliðinn:
"Sóttvarnayfirvöld hér á landi mæla heilshugar með því að foreldrar þiggi boð um að bólusetja börn sín. Skipulögð bólusetning barna á aldrinum 12-15 ára hófst í Laugardalshöll í dag.
Þórólfur segir markmið sóttvarnayfirvalda með bólusetningu barna vera að verja þau gegn alvarlegum áhrifum veirunnar, sem nú séu enn skæðari með tilkomu Delta-afbrigðisins.
Hann segir að markmið með bólusetningu barna sé líka að reyna að minnka útbreiðslu smita í samfélaginu, þótt það sé ekki síður mikilvægt markmið nú þegar ljóst er að virkni bóluefna til þess sé minni en vonast var til."
Hvers vegna urðu þessi sinnaskipti hjá honum?
Komu einhver ný "VÍSINDI" fram á þessum rúma mánuði? Hann er búinn að vera margsaga í þessum "heimsfaraldri" eins og hinn bandaríski kollegi hans.
Það er löngu búið að sýna fram á að börn eru í nánast engri hættu á að deyja vegna veikinda vegna þessarar veiru, og nú eru þau að vekjast EFTIR þessar sprautur, og jafnvel lífshættulega!
Bóluefnin eru að drepa og örkumla metfjölda ungmenna - ung börn eru næst!
Þetta segir í nýlega birtri grein. Verða þetta líka örlög einhverra þeirra barna sem þegar er búið að sprauta með þessum tilraunaefnum hér á landi?
Þórólfur og öll þau sem nörruðu fyrst meiri hluta fullorðins fólks í þessar sprautur, og núna líka börnin, eru sek um að brjóta öll lög og allar siðareglur sem hægt er að brjóta gagnvart þjóð sinni.
Búið er að safna saman mörgum sönnunargögnum um það sem verða birt áður en langt um líður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)