Færsluflokkur: Bloggar
17.9.2021 | 21:09
Fauskurinn, grímurnar og vísindin.
Það er með ólíkindum hvað "vísindin" hafa tekið mörg flikk flakk heljarstökk síðastliðna eina og hálfa árið eða svo.
Mér er svo meinilla við þennan glæpamann að ég kalla hann Fausk, finnst það enda hæfa honum betur.
Það er hin besta skemmtun að horfa á þetta stutta vídeó sem er klippur úr mörgum viðtölum við hann, og það væri fróðlegt að sjá samskonar samantekt um allar hinar lygarnar hjá honum.
Grímur gera ekkert gagn, grímur gera rosa mikið gagn, þú þarft ekki að nota grímu ef þú ert bólusett/ur, vertu með tvær grímur inni hjá þér þótt þú sért bólusett/ur.....
Það mætti halda að sóttvarnarlæknir okkar hafi farið á námskeið hjá honum í bull- og lygatækni, sá er heldur betur líka búinn að fara í mörg heljarstökk með sín "vísindi" í þessum "heimsfaraldri"!
Svona eru "vísindin" þessa dagana
Heiðarlegir vísindamenn eru hæddir, rægðir, ritskoðaðir og útskúfaðir, en þeir sem hægt er að kaupa, galdra fram fyrirfram ákveðnar niðurstöður, fyrir réttar upphæðir.
Dr. Fauskur og ferill hans í 40 ár
Það er búið að standa hann að þvílíkum lygum og þvættingi í gegnum þennan "heimsfaraldur" að það hálfa væri miklu meira en nóg. En ferill hans er miklu lengri en það.
Það er ekkert mál fyrir áhugasama að finna allt um það á netinu.
Og loksins fann ég grímu sem ég fíla í botn!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fréttastöð í Detroit í Bandaríkjunum bað hlustendur á Facebook síðu sinni nýlega að deila með sér sögum af ástvinum sem hefðu neitað að láta bólusetja sig, og látist (þess vegna) úr Covid-19.
En það snérist heldur betur í höndunum á þeim, og í stað þess að fá slíkar sögur hefur hún þegar þetta er ritað, fengið 205.000 athugasemdir og 186.000 deilingar.
Og þessar athugasemdir eru svo sannarlega ekki um það sem beðið var um, heldur hryllingssögur um afdrif fólks eftir þessar svokölluðu "bólusetningar".
En það dásamlega er, að margar fréttaveitur líklega flestar "under the radar" hafa fjallað um þennan þráð.
Hér er þessi Facebook þráður, og þar má sjá margar hræðilegar frásagnir.
Þetta eru EKKI sögur sem maður sér í meginstraumsfjölmiðlunum, við fáum bara að heyra hversu þessi efni séu góð og örugg og séu eina leiðin út úr þessum svakalega "heimsfaraldri". Og að aldrei sé neitt sem bendi til tenginga á milli aukaverkana og sprautanna.
Er fólk virkilega ennþá að TRÚA þessu???
Ég er bara gapandi hissa yfir því hvað margir eru enn að verja þessi tilraunaefni í athugasemdum, og enn að verja allt þetta afnám á persónufrelsi okkar vegna pestar sem löngu er búið að koma í ljós að hún er hreint enginn drápsfaraldur!
Staðreyndin er að milli 7 og 8% andláta á Íslandi á hverju ári eru vegna sjúkdóma í öndunarfærum (sem Covid-19 er víst), sem er u.þ.b. 165 andlát á ársgrundvelli.
Voru þau sem létust víst vegna veirunnar í fyrra, flest fólk á áttræðis- og níræðis aldri krufin til að sannreyna dánarorsök?
Vitiði, ég ætla mér að leyfa mér að efast um það, ég er löngu hætt að trúa öllu þessu fólki sem hefur narrað stærstan hluta þjóðarinnar, og 12-15 ára börn núna í sprautur með þessum tilraunaefnum.
Því það er búið að standa það að stórkostlegum lygum undanfarið eitt og hálft ár, sem bæði ég og aðrir erum margoft búin að sýna fram á.
Ritskoðunin í heiminum er skelfileg í dag, eins og ég fjallaði um í nýlegri færslu. Hefur þú, lesandi góður einhvern tímann séð svona myndir og frásagnir eins og ég birti hér fyrir neðan?
Ég sjálf er búin að sjá þúsundir frásagna fórnarlamba og/eða aðstandenda þeirra, og hver sem nennir að hafa fyrir því, getur fundið þær líka.
ÖRFÁ skjáskot sem ég hef tekið hér og þar á óritskoðuðum miðlum
Nokkrar síður sem fjalla um afleiðingar þessara svokölluðu "bólusetninga":
https://www.c19vaxreactions.com/real-video-stories.html
https://www.vaxlonghaulers.com/
Ég gæti sýnt ykkur margar fleiri vefsíður um fórnarlömb tilraunabóluefnanna, en þetta er ágætt í bili.
Hafið bara í huga að lyfjafyrirtækin sem eru búin að framleiða þessi tilraunaefni treysta eigin afurð ekki betur en svo að þau eru búin að baktryggja sig gegn skaðabótakröfum vegna þeirra!
Myndu t.d. bíla- og flugvélaframleiðendur komast upp með það líka?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.9.2021 | 22:49
Svona er ritskoðunin á Facebook í dag!
Ég ákvað að taka smá rúnt um fréttaveituna mína á Facebook áðan, og sá færslu sem FB vinur póstaði, og mikil ósköp "sjálfstæðu staðreyndafasistarnir" voru ekki lengi að smella inn viðvörun sem meðal annars sagði að Covid-19 bóluefnin væru ekki tilraunalyf!
Maður verður að hafa verið grafinn undir þúfu í eitt og hálft ár, eða vera enn fastur í hræðsluheilaþvottinum til að vita ekki að þetta eru tilraunabóluefni í tilraunafasa til 2023!
Svo er hér annað dæmi um ritskoðunina
Siðprúðu og keyptu staðreyndafasistarnir á Facebook vara fólk við ef það vill fá inngöngu í þessa grúppu sem samanstendur af fólki sem er að berjast gegn því sem raunverulega er í gangi í heiminum í dag.
Núna eru 7.100 manns í þessari grúppu, og henni verður pottþétt eytt út allra næstu daga, eins og þeim hundruðum öðrum sem hafa fjallað um fólk sem hefur skaðast af þessum "góðu" bóluefnum.
Ég sjálf bjó til 2 albúm á Facebook þar sem ég safnaði saman sönnunum um skaðræði þessara efna, og mörgum hroðalegum myndum af sköðuðu fólki.
En viti menn, einn daginn voru þau bæði horfin, alveg þegjandi og hljóðalaust og án nokkurra viðvarana um að ég hefði brotið einhverjar "siðferðisreglur" síðunnar.
Hver einasta færsla sem minnist á (hugsanlega) skaðsemi þessara tilraunaefna, eða fjallar um lyf sem hefur fengið Nóbelsverðlaun, og hefur sýnt sig í ótal rannsóknum að hafa virkað mjög vel í snemmeðferðum, fær á sig athugasemd um að öll tilraunalyfin séu mjög vel prófuð og örugg.
Og alveg grínlaust, fólk hefur verið sett í bönn alveg vinstri hægri á Facebook fyrir jafnvel saklausar myndir af sólarlagi sem það birti ári fyrr!
Þetta er ekki bara á Facebook!
YouTube, Twitter, Google og fleiri samfélagsmiðlar og leitarvélar eru þessi misserin að ritskoða og henda út allri umræðu sem samræmist ekki einu leyfðu umræðunni um "gagnsemi" þessara genabreytandi tilraunalyfja sem eru sannanlega búin að valda dauða þúsunda og skaða enn fleiri fyrir lífstíð.
Ritskoðunin grasserar líka hér á landi, og allir miðlar nema Útvarp Saga birta endalausar hræðslufréttir um "nýjustu smitin", hversu margir hafi látist úr pestinni, og hversu "nýjasta afbrigðið" sé hættulegt.
OG FÓLK TRÚIR ENN ÖLLU ÞVÍ SEM ÞAÐ SÉR, HLUSTAR Á OG LES Í ÞESSUM RÍKISSTYRKTU MIÐLUM!
Er búið að heilaþvo heilbrigða skynsemi og rökhugsun úr meginþorra Íslendinga?
Stutta svarið er því miður já.
Og ef eitthvað toppar þetta rugl, þá er það þetta:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.9.2021 | 21:55
Úff, nú eru flest börn á aldrinum 12-15 ára að verða orðin fullbólusett!
"Mæting í seinni bólusetningu barna á aldrinum 12 til 15 ára í dag var fín og gekk bólusetningin vel að sögn Dagnýjar Hængsdóttur, verkefnastjóra bólusetninga hjá heilsugæslunni. Þessi hópur fær bólusetningu með bóluefni Pfizer."
Blessaðir foreldrarnir hafa ekki hugmynd um hvað þeir eru hugsanlega búnir að gera börnunum sínum!
"Hafið þið fundið fyrir því að færri börn mæti í bólusetningu eftir að borið hefur á gagnrýnisröddum gegn bólusetningum þeirra?"
Nei, við áttum von á að þau myndu öll aftur mæta og það gerðu þau.
Ef fólk hefur hingað til ekki nennt að kynna sér hvað efnin sem það er búið að láta sprauta í sig innihalda, og hvað þá börnin sín núna, þá sýnir það sig hversu vel óttaáróðurinn og heilaþvotturinn hefur gengið upp!
Það eru því miður líkur á því að einhver börn muni finna fyrir aukaverkunum fljótlega eftir seinni sprautuna, og enginn veit ennþá hverjar langtímaafleiðingarnar kunna að verða.
Ég fór inn á OpenVaers gagnagrunninn sem heldur utanum tilkynntar aukaverkanir eftir bólusetningar, afmarkaði mig niður á börn og tók nokkur skjáskot af aukaverkunum eftir seinni sprautuna.
Það sem gerist í útlöndum, gerist á nákvæmlega sama hátt hér á landi!
Af nógu var að taka þarna, en hér eru örfá dæmi. Smellið á myndirnar til að stækka þær.
Ætlar fólk ekkert að fara að vakna?
Þrátt fyrir að þegar sé búið að tilkynna um hjartatengd vandamál hjá nokkrum börnum eftir fyrri sprautuna, þá er þessum "bólusetningum" haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist, og svo er ríkur vilji fyrir því að sprauta allt niður í 6 mánaða börn!
Andlát í Bandaríkjunum eftir bólusetningar
Á þessari mynd má sjá tilkynnt andlát eftir bólusetningar í Bandaríkjunum frá 1990, til júlí 2021, hversu margar og miklar sannanir þarf fólk að fá um það hversu hættuleg þessi hraðsoðnu genabreytandi tilraunaefni eru?
Og er það ekkert áhyggjuefni að búið sé að tilkynna um 3.154 aukaverkanir hér á landi, þar af 169 alvarlega og 31 andlát?
Viljið þið frekar trúa áfram lygunum í Ragnheiði yfir$prautu, og öllum hinum sem eru búin að narra nánast alla þjóðina í þessar sprautur?
Öll bóluefnin eru góð, segir Ragnheiður. Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð, bætir hún við.
![]() |
Mörg börn létu sjá sig í bólusetningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.9.2021 | 14:43
Verða skyldubólusetningar settar á EFTIR kosningar?
Ég er farin að hallast að því að það sé aðeins einn heiðarlegur og ALVÖRU LÆKNIR starfandi hér á þessu landi, en það er hann Guðmundur Karl Snæbjörnsson, oftast kallaður Kalli Snæ.
Hann hefur vakið aðdáun og virðingu margra með málflutningi sínum og baráttu fyrir að leyfa lyf við snemmmeðferðir sjúkdómsins, meðal annars með áratuga gömlu lyfi sem hefur hlotið Nóbelsverðlaun, væntanlega vegna þess að það virkar vel og hefur litlar aukaverkanir.
Eitthvað allt annað en þessi svokölluðu bóluefni.
Þetta lyf hefur verið gefið milljörðum manns með góðum árangri í gegnum árin, en telst víst ekki nógu vel rannsakað, það má bara gefa fólki bóluefni sem eru í tilraunafasa til ársins 2023!
Ég hef heyrt um íslenska lækna sem eru mótfallnir þessum massa bólusetningum, en þora ekki að rísa upp gegn yfirboðurum sínum! Þið læknar, hvað varð um læknaeiðinn ykkar: Fyrst, ekki skaða!?
Ég ætla ekkert að fara að rekja baráttu hans við Lyfjastofnun, þessar upplýsingar ættu allir að geta fundið á netinu. Hann var í frábæru viðtali í gær á Útvarpi Sögu, einu stöðinni sem hefur gagnrýnt bólusetningarnar, enda er hún óháð með öllu og án ríkisstyrkja.
Biden Bandaríkjaforseti
"Það kemur ekki á óvart að Biden forseti Bandaríkjanna hafi í ræðu í gær kynnt til sögunnar skyldubólusetningar gegn Covid. Þessi sama tilhneiging sé einnig víða í Evrópu og hér á landi er ákveðnum þvingunum beitt í þeim tilgangi að fólk láti bólusetja sig, jafnvel þó það sé þvert á vilja þess.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðmundar Karls Snæbjörnssonar sérfræðings í heimilislækningum í þættinum Fréttir vikunnar í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar."
Hér á landi
Ef fólk er ekki enn búið að átta sig á því, þá hefur nánast sömu aðgerðum og aðferðum verið beitt gegn okkur og öðrum þjóðum í þessum "heimsfaraldri", sem sumir kalla "scamdemic" eða "plandemic".
Faraldurinn hefur verið keyrður áfram á linnulausum hræðsluáróðri, lokunum, grímuskyldu, fölskum PCR prófum, ritskoðun, og glæpsamlegum lygum um að einhver hraðsoðin genabreytandi tilraunalyf séu eina lausnin út úr honum.
Ef einhver heldur að íslensk stjórnvöld, sem hafa meðal annarra narrað fólk í sprauturnar beri hag þjóðarinnar sér fyrir brjósti, þá er það mikill misskilningur.
Allt þetta fólk, hver einasti þingmaður er búið að fá ótal tölvupósta, Facebook skilaboð, bréf, og jafnvel ábyrgðarbréf þar sem þau eru krafin svara um þessar sóttvarnaraðgerðir, en engu er svarað!
Þvinganir í bólusetningar hér á landi er staðreynd
Hann segir meðal annars þetta í viðtalinu:
"Guðmundur segir að þetta sé til dæmis gert í opinbera geiranum, þar sé starfsmönnum hreinlega stillt upp við vegg af yfirmönnum og sagt hreinlega berum orðum við þá sem ekki vilja bólusetningu hvort þeir vilji vera ábyrgir fyrir því að bera inn smit inn í viðkomandi stofnun og valda jafnvel dauða einstaklinga.
Hann segir að þetta geti vart talist annað en þvingun þó hún sé ekki lögboðin, það sé þó ákvæði í sóttvarnalögum sem heimili yfirvöldum að þvinga fólk með því að taka það með valdi og bólusetja það.
Guðmundur bendir á að þróunin sé í þá átt að smám saman sé aukið við þvinganir sem þessar og hún eigi sér ekki stað aðeins innan opinbera geirans
ég hef séð bréf frá Félagi atvinnurekenda þar sem ýjað er að því að atvinnurekendur eigi að beita þessari sömu aðferð segir Guðmundur Karl."
Börnin okkar
"Hann segist hafa ákveðnar áhyggjur af því að sóttvarnalæknir hafi kastað ábyrgðinni varðandi bólusetningar yfir á skólana
með innköllun fyrir börnin og kannski hægt að segja að þar gæti orðið innræting gagnvart því að komast að foreldrunum í gegnum börnin segir Guðmundur."
Sóttvarnarlögin
Hvernig skiljið þið þessar greinar í núverandi sóttvarnarlögum? Hvað þýðir "Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi"?
Fáið þið ekki líka hroll við að lesa þetta?
"Sóttvarnarlög: orðskýringar
6. Inngrip: Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi. Með inngripi er ekki átt við læknisrannsókn á eyra, nefi og munni, hitamælingu með eyrna-, munn- eða hörundshitamæli, eða hitamyndatöku, heilbrigðisskoðun, hlustun, ytri þreifingu, sjónuspeglun, töku þvag-, saur- eða munnvatnssýnis utan frá, mælingu blóðþrýstings utan frá eða hjartalínurit.
7. Ónæmisaðgerð: Skipulögð aðgerð sem örvar ónæmiskerfið til að halda smitsjúkdómi í skefjum í samfélaginu, svo sem með bólusetningu eða gjöf mótefna.
Úr 14 gr.
Sóttvarnalæknir getur leitað aðstoðar lögreglu við að framfylgja ákvörðunum sem teknar eru samkvæmt þessari lagagrein, eftir atvikum með líkamlegri valdbeitingu beri nauðsyn til."
Geðslegt, ekki satt?
Nú eru að koma kosningar
.... með hefðbundna kosningavaðlinum um bjarta framtíð með blóm í haga ef þú kýst þennan eða hinn flokkinn.
Hvernig væri að spyrja frambjóðendur um þeirra viðhorf gagnvart skyldubólusetningum, og ef þeir stefni á að keyra þær í gegn, nái þeir kjöri?
Spyrjið þá líka, sérstaklega Svandísi heilbrigðisráðherra hvers vegna ekki er löngu búið að stöðva þessar sprautur sem að minnsta kosti 31 manneskja hefur látist í kjölfarið af, og 199 manneskjur, þar af 6 börn hafa hlotið skaða af, jafnvel fyrir lífstíð, fyrir utan alla hina sem líka hafa tilkynnt um aukaverkanir.
Spyrjið þá líka hvers vegna þeir séu að brjóta alþjóðalög um lyfjatilraunir á fólki, sem voru samin af gefnu tilefni!
Heimtið svör áður en þið farið í kjörklefann, ef þið kjósið sama fólkið yfir okkur aftur, þá mun fólkið sem samþykkti bóluefnasamningana setja skyldubólusetningu á okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.9.2021 | 10:51
"Heimsfaraldurinn" skoðaður frá oggulítið kaldhæðnum sjónarhóli.
Ég er búin að hafa gríðarlega miklar áhyggjur í meira en ár út af endalausu áhyggjunum sem hann Þórólfur okkar, og hann Víðir sem við hlýðum öll, hafa af þróun þessa hræðilega heimsfaraldurs.
Hvaða máli skiptir þótt sprautur númer eitt og tvö hafi ekki virkað nógu vel, auðvitað förum í "örvunar"sprautur þrjú, fjögur, fimm etc., til að berjast gegn þessum Delta, Lambda og Mu afbrigðum, og öllum þessum hræðilegu afbrigðum sem eru að eiga eftir að spretta upp á næstunni.
Svo segir að minnsta kosti Kristján Kristjánsson á DV sem er alveg með eindæmum duglegur að segja okkur af öllum þessum skelfilegu afbrigðum og pestum sem við eigum í vændum.
Svo munu þeir sem þáðu Pfizer guðsgjöfina auðvitað taka því til viðbótar 2 pillur á dag þegar þær koma á markaðinn, vonandi ekki seinna en um áramótin.
Hin lyfjafyrirtækin hljóta líka að leggja dag við nótt núna á rannsóknarstofunum sínum!
Og hvaða máli skiptir að landlæknir okkar hún Alma hafi forðað tengdamömmu sinni frá sprautunni meðan allir hinir á hjúkrunarheimilinu fengu sinn skammt?
Aðalmálið var að lekinn um það var að sjálfsögðu glæpsamlegur og krafðist þriðju gráðu yfirheyrslu yfir starfsmönnunum til að finna uppljóstrarann. Vonandi fannst þessi hræðilega manneskja sem lak þessu, og vonandi var hún rekin með skömm.
Og auðvitað látum við sprauta börnin okkar gegn þessari skelfilegu drápsveiru!
En voðalega heyrist eitthvað lítið í heiðursorðuhöfunum okkar þessa dagana, og hvar eru hræðslufundirnir góðu sem sögðu okkur réttilega að við yrðum að vera endalaust hrædd við Grýlu gömlu sem nú heitir Covid.
Ég virkilega sakna þess að þau skuli ekki lengur minna mig daglega eða vikulega á að það sé HEIMSFARALDUR í gangi sem fáum eiri!
En sem betur fer höfum við RÚV og alla hina góðu fjölmiðlana okkar sem passa upp á að segja okkur á hverjum einasta degi hversu mörg SMIT greindust í gær.
Einhverjir spilltir dómstólar úti í heimi hafa úrskurðað að PCR prófin séu óhæf til að greina hvort maður sé veikur eða ekki, sérstaklega ef þau eru keyrð á 40 snúningum eins og hér á landi.
En auðvitað treystum við öllum sérfræðingunum okkar sem hafa leitt okkur svo vel í gegn um þennan hræðilega drápsfaraldur!
Thalidomide
Auðvitað eru öll lyf og bóluefni góð, við vitum að Thalidomide lyfið sem þúsundir kvenna fengu fyrir rúmlega hálfri öld síðan gegn ógleði á meðgöngu virkuðu svakalega vel, skítt með þótt verulegur slatti barna hafi fæðst með afskræmda útlimi.
Ef fullt af konum hættu að gubba á meðgöngunni, eins leiðigjarnt og ógeðslegt það er að æla út í eitt, þá sannar það að þessi fínu lyf hjálpuðu þessum konum að losna við gubberíið.
Útvarp Saga
Ég botna ekkert í þessum miðli, Útvarpi Sögu sem er endalaust að birta fréttir um að ekki sé allt sem sýnist í þessum hræðilega drápsfaraldri. Lesa þau aldrei faraldursfréttirnar á RÚV, hvurslags fréttaveita er þetta eiginlega?
Þau eru endalaust að taka viðtöl við einhverja samsæringakenningasmiði sem halda því fram að ekki sé allt sem sýnist í þessum skelfilega drápsfaraldri!
Jesús minn, svakalega er allt þetta fólk illa að sér, veit það ekki að við erum að glíma við heimsfaraldur heimsku og ótta núna?
Veit þetta fólk ekki að það er lífsnauðsynlegt að nota grímur og einangra okkur vinstri hægri í sóttkvíum þegar einhver hefur "greinst smitaður" af þessari skelfilegu drápsveiru?
Ég er alveg á innsoginu af hneykslun núna, mikið er ég fegin að útvarpsgjaldið mitt rennur til RÚV, en ekki þeirra!
Ónæmiskerfið okkar
Og svo er sumt fólk eitthvað að þvaðra um meðfætt ónæmiskerfi fólks sem á víst, ef vel er viðhaldið með heilbrigðum lífstíl, réttum vítamínum og bætiefnum að verja það gegn öllum umgangspestum.
Veit það ekki að einhverjar SPRAUTUR og PILLUR sem okkur er sagt að fá okkur séu svarið við öllu? Voðalega er fólk eitthvað fávíst og illa lesið. Veit það ekki að lyfjarisarnir framleiða þetta af tómri umhyggju fyrir okkur?
Fear of Germs
Ég ætla enda þetta með teiknimyndaútfærslu af gömlu vídeói með George Carlin:
"George Carlin (May 12, 1937 June 22, 2008) was an American stand-up comedian, actor, philosopher, author, and social critic. He was known for his black comedy and reflections on politics, the English language, psychology, religion, and various taboo subjects. Widely regarded as one of the most important and influential American stand-up comics of all time. This audio clip comes from his George Carlin's audiobook, "Napalm & Sillyputty", which was published in 2002. "
Ég er kannski ekki alveg sammála honum með persónuleg þrif, en allt annað sem hann segir er bara heilbrigð skynsemi, með slatta af húmor.
Það er búið að innprenta í okkur að veirur og bakteríur séu stórhættulegar, og hvað þá mannleg nánd, eða að anda að sér fersku súrefni.
Við eigum bara að vera áfram hrædd við Grýlu gömlu og gerast áskrifendur að "örvunar"sprautum lyfjarisanna sem tryggðu sig kyrfilega gegn skaðabótakröfum vegna þessara tilraunalyfja þeirra, sem þegar eru búin að drepa að minnsta kosti tugþúsundir og skaða enn fleiri fyrir lífstíð.
Fannst ykkur ekki hressandi að horfa á þetta?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.9.2021 | 16:32
Nei nei, auðvitað benda 3.120 tilkynningar um aukaverkanir eftir sprauturnar ekkert til þess að tengingar séu þarna á milli!
Það er svolítið merkilegt, að það virðast sjaldnast vera tengingar á milli bólusetninganna og aukaverkana að mati Lyfjastofnunar.
Allt tómar tilviljanir bara!
Spurt og svarað á vefsíðu Lyfjastofnunar:
Hvað er alvarleg aukaverkun? (199 tilkynningar, þar af 31 andlát!)
Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum.
Eru þessar þegar tilkynntu 3.120 aukaverkanir sem innihalda andlát, lamanir, andlitslamanir, blindu, hjartavöðvabólgur, gollurhússbólgur, heilaþoku, blöðrur á eggjastokka, blóðtappa eða raskanir á tíðahring svo eitthvað sé nefnt, bara tilviljanir ótengdar sprautunum?
Trúir Lyfjastofnun þessu sjálf?:
"Eins og sakir standa bendir ekkert til þess að beint orsakasamhengi sé á milli bólusetningar og þessara tilkynntu atvika."
600 konur hafa núna tilkynnt um aukaverkanir, og Lyfjastofnun veit um stóru Facebook grúppuna sem yfir 2.100 konur eru í, allt niður í 12-15 ára stúlkur!
Halló Lyfjastofnun, ætlar þú að segja öllum þessum konum þegar kvensjúkdómalæknar í samráði við þig og landlækni (örugglega svakalega óháðir!), að þetta sé einhver ímyndun í þeim?
Ég veit um marga sem sjá ekki eftir neinu í lífinu eins mikið og að hafa látið blekkjast í þessar sprautur, og hafa engan áhuga á því að þiggja "örvunar"sprauturnar eða næstu sprautur þar á eftir gegn "nýjum" afbrigðum.
Eru þessar aukaverkanir líka tómar ímyndanir í fólki eða bara tilviljanir?
Endalausar lygar!
Látum hvorki forstjóra Lyfjastofnunar né nokkurn annan telja okkur trú um að þessi tilraunaefni séu örugg og veiti vernd gegn einhverri veiru, þegar staðreyndir um allt annað blasa við.
Hættum að trúa þessum endalausu fréttum um einhver ný og "hættulegri" afbrigði.
Trúum ekki Ragnheiði yfirsprautu þegar hún lýgur því að það sé hættulegra að fara í búðina en Vaxhöllina.
Það mætti halda að hún fái eitthvað greitt fyrir að segja þetta, alveg eins og Bretarnir!
Eru virkilega ekki enn farnar að renna tvær ef ekki fleiri grímur á fólk núna út af þessu leikriti?
Sem betur fer eru fleiri farnir að koma til, en það er sorglegt að sjá 95-98% fólks ennþá með bundið fyrir öndunarfærin í búðunum sem eru búnar afnema grímuskyldu. Og í labbitúrum, og þeysandi á rafskútunum í rigningunni með blautar tuskur á andlitinu.
Þetta er mjög hugsanlega fullbólusett fólk sem er ennþá skíthrætt, vegna þess að óttanum er haldið stanslaust að því í fjölmiðlunum með fréttum af nýjum "smitum".
Þú átt bara að vera hrædd/ur þangað til búið verður að "bólusetja" nánast hvert mannsbarn hérna.
Hvað stendur eiginlega í þessum leynilegu bóluefnasamningum sem við megum ekki sjá?
![]() |
Hefur móttekið 600 tilkynningar um grun um aukaverkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
5.9.2021 | 16:36
Breskir læknar fá greitt GBP 22,58 fyrir hvert barn sem þau sprauta með þessum "bóluefnum"! Hvað með íslenska lækna, fá þeir líka greitt?
Skjal frá breska heilbrigðisráðuneytinu sýnir að læknar fá aukagreiðslur fyrir að sprauta börn með þessum svokölluðu bóluefnum.
Þetta fáið þið staðfest hér.
Google reynir að fela það
Konungur ritskoðunarinnar vill ekki að þú vitir þetta svo hann bætti litlu "No" þarna aftan við.
Sökum mikils þrýstings þar í landi er búið að fresta bólusetningum á heilbrigðum 12-15 ára börnum, meðal annars vegna hættu á hjartavöðvabólgu hjá þeim í framtíðinni.
Hins vegar á að bjóða börnum með undirliggjandi sjúkdóma í sprauturnar, og leyfa á að börn 16 ára og eldri verði sprautuð án samþykkis forsjáraðila!
"People aged 16 or over are entitled to consent to their own treatment. This can only be overruled in exceptional circumstances.
Like adults, young people (aged 16 or 17) are presumed to have sufficient capacity to decide on their own medical treatment, unless there's significant evidence to suggest otherwise.
Children under the age of 16 can consent to their own treatment if they're believed to have enough intelligence, competence and understanding to fully appreciate what's involved in their treatment. This is known as being Gillick competent."
Sjá hér.
Læknar hafa fengið greitt fyrir að "bólusetja" skjólstæðinga sína
Eins og þið sjáið á efstu myndinni þá hafa þeir fengið GBP 12,58 fyrir hvern skammt gefinn fullorðnum einstaklingum, svo til að hvetja þá að sprauta börnin líka þá fá þeir aukalega GBP 10 núna.
Með þessum tilraunaefnum sem þegar eru búin að valda að minnsta kosti 1.600 andlátum og 1.1 milljón aukaverkunum þar í landi!
Sjáið eitthvað af þessum hroðalegu aukaverkunum hér.
Hefur íslenskt heilbrigðisstarfsfólk líka fengið greitt fyrir hverja sprautu?
Þetta er gríðarlega mikilvæg spurning sem við öll eigum heimtingu á að fá svar við! Séu læknar og hjúkrunarfræðingar að fá greitt í öðrum löndum, því ekki hér líka?
Hvað fær Ragnheiði yfirsprautu og Þórólf til að ljúga þessu?:
"Öll bóluefnin eru góð, segir Ragnheiður. Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð, bætir hún við."
Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu, bætir hann við."
Eitt er algjörlega á tæru, það er búið að ljúga að þjóðinni í vel á annað ár núna að það sé einhver hættulegur faraldur í gangi. Þetta hefur verið gert af spilltu embættisfólki (og Kára), með dyggilegri aðstoð fjölmiðla, með RÚV (okkar allra) fremst í fararbroddi.
Og hvers vegna megum við ekki fá að sjá bóluefnasamningana?
Þjóðin er enn svo hrædd að hún þorir enn ekki að taka niður þessar bölvuðu súrefnisheftandi og bakteríublautu grímur! Það er átakanlegt að horfa upp á þetta þótt búið sé að afnema grímuskyldu í mörgum búðum.
Ég ætla að endurtaka það sem ég sagði hér um þessar tilraunabólusetningar:
"Það er búið að fremja gróft brot á Alþingislögum um Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði sbr. 44/2004, einnig gróft brot á alþjóðlega Helsinki læknasáttmálanum og á Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem og Nuremberg kóðanum!"
og
"FARIÐ AÐ SPYRJA SPURNINGA OG HEIMTA SVÖR, SÉRSTAKLEGA ÞIÐ SEM HAFIÐ ORÐIÐ FYRIR SKAÐA VEGNA ÞESSARA SVOKÖLLUÐU BÓLUEFNA, OG AÐSTANDANDENDUR ÞEIRRA SEM HAFA LÁTIST STRAX EÐA FLJÓTLEGA EFTIR SPRAUTURNAR.
EKKI SÆTTA YKKUR VIÐ SVÖRIN AÐ ÞAÐ SÉ EKKERT SEM BENDI TIL SAMASEMMERKIS ÞARNA Á MILLI, ÞVÍ ÞAÐ ER ÞAÐ SVO SANNARLEGA."
Hér getið þið séð nokkrar erlendar síður með upplýsingum um raunverulegt fólk sem hefur skaðast eða látist eftir sprauturnar:
Tilkynntar aukaverkanir í USA og UK
Fórnarlömb sem vilja láta í sér heyra
Myndir héðan og þaðan úr heiminum
Kæru Íslendingar, farið að gera ykkar eigin rannsóknir á óháðum og óritskoðuðum leitarvélum og fréttamiðlum, og þá munuð þið komast að raun um að nánast ekkert sem ykkur hefur verið sagt um þennan meinta faraldur heldur vatni!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Sturlunin heldur áfram og nú virðist eiga að gera þjóðina áskrifendur að "bóluefnum" gegn "þeim afbrigðum sem mest eru í gangi hverju sinni".
Í guðanna bænum, haldið áfram að vera hrædd!
"Í greininni kemur einnig fram að kórónuveiran umbreyti sér með tíðum stökkbreytingum með þeim afleiðingum að ný afbrigði hennar, eins og Delta, fara af stað en nú hafa fjögur afbrigði hennar verið skilgreind sem hættuleg og fjögur önnur sem viðsjárverð." (Áherslubreytingin er mín.)
Viðtal við hann á Bylgjunni 1. desember 2020:
"Varðandi niðurstöður sem eru komnar bendir allt til þess að bóluefni við Covid-19 séu örugg og mjög virk , sagði Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítala og prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, í Bítið á Bylgjunni.
Hann benti á að mun alvarlegra væri að fá COVID með aukaverkunum þess en að láta bólusetja sig. Það hvíli samfélagsleg ábyrgð á fólki að láta bólusetja sig til að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins." (Áherslubreytingin er mín.)
Sjáiði heilaþvottinn þarna, ég gerði hann einmitt að umtalsefni í bloggi um daginn.
Kann þessi maður ekki að skammast sín? Hann, ásamt öðrum er búinn að blekkja stærstan hluta þjóðarinnar í þessar sprautur sem eru búnar að valda að minnsta kosti 31 andláti ásamt því að valda aukaverkunum hjá hjá þúsundum manna og kvenna, og allt niður í 12 ára stúlkur!
Doktor Dauði
Björn Rúnar Lúðvíksson var lærissveinn Anthony Fauci sem hefur verið sóttvarnarlæknir Bandaríkjanna í áratugi, og kallaður Doktor Dauði af mörgum samlöndum sínum.
Áhugasamir geta rakið upptalninguna á myndinni á netinu, og miklu meira til.
Í frétt á DV.is þann 1. mars s.l. segir:
"Anthony Fauci, einn helsti smitsjúkdómasérfræðingur Bandaríkjanna og ráðgjafi Joe Biden, forseta, varðandi heimsfaraldur kórónuveirunnar, hvatti í gær landa sína til að láta bólusetja sig með einhverju af þeim þremur mjög áhrifaríku bóluefnum sem nú eru í boði og til að fresta því ekki til að fá frekar eitthvað annað bóluefni."
Hefur einhverjum dottið til hugar að skoða tengsl hans við Wuhan, og lyfjarisana? Haldið þið að það séu einhverjar tilviljanir að hann vilji sprauta hvert mannsbarn núna?
Okkar sóttvarnarlæknir
Þetta sagði Þórólfur meðal annars í viðtali við Mannlif.is þann 14. apríl 2020:
"Hann sagði viðamiklar rannsóknir þurfa til að ganga úr skugga um þessi atriði þegar nýtt bóluefni er prófað. Það sama á við um lyf við sjúkdómnum sjálfum. Hann sagði að vænlegast væri að gefa einum hóp lyfið og öðrum ekki og gera samanburð til að sjá virknina.
Það þarf almennilegar rannsóknir, sagði Þórólfur. Hann bætti við að hann telji að nú séu læknar víða um heim að gera tilraunir með lyfjagjöf en án rannsókna sé erfitt að sjá hvort lyfin virki í raun og veru."
Hvað segirðu núna Þórólfur, tryggðirðu það að bóluefnin yllu ekki skaða á fólki áður en þú settir bólusetningarhátíðina á?
Hvað er það sem rekur þig og ykkur sem þessu stjórna, til að valda stórkostlegum skaða á ykkar eigin þjóð?
Kannski þetta?
![]() |
Ný bóluefni við afbrigðum Covid-19 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.9.2021 | 20:09
Að minnsta kosti 12.249 bandarísk börn á aldrinum 12-17 ára hafa fengið aukaverkanir eftir sprauturnar!
Ég hef stundum sagt að eini raunverulegi faraldurinn sem sé í gangi sé manngerður, og það eru þessar svokölluðu bólusetningar og afleiðingar þeirra.
Það var því viðbúið að tölur færu að birtast um afleiðingar þeirra á ungmenni eftir að byrjað var að sprauta þennan aldursflokk. Og athugið, svo á að fara enn neðar í aldur og sprauta allt niður í ungabörn!
Þessi svokölluðu bóluefni eru að örkumla og/eða drepa áður fullkomlega heilbrigð bandarísk ungmenni í stórum stíl núna.
Hér sjáið þið tilkynningar til VAERS um aukaverkanir og dauðsföll á 12-17 ára börnum frá því bólusetningar á þessum aldursflokki byrjuðu.
Og hér sjáið þið samtölur yfir þennan aldurshóp yfir 5 ára tímabil frá 1. janúar 2016 - 30. nóvember 2020 vegna bólusetninga með öðrum bóluefnum en Covid bóluefnunum.
Sjá alla fréttina hér.
Öll dauðsföll vegna bólusetninga sem hafa verið tilkynnt til VAERS frá 1990-2021!
Þurfum við eitthvað að ræða þetta frekar? Skaðsemi þessara efna getur verið alveg skelfileg, og valdið óafturkræfum skaða, ef ekki hreinlega dauða!
Ætli fórnarlömbin sem enn lifa og aðstandendur þeirra sem létust væru sammála Þórólfi og Ragnheiði? Og hvernig ætli þeim líði núna vitandi að þau létu sprauta börnin sín með einhverjum tilraunaefnum?
Þórólfur og Ragnheiður
Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu, bætir hann við.
Öll bóluefnin eru góð, segir Ragnheiður. Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð, bætir hún við.
Það er því miður búið að sprauta stóran hóp barna á þessum aldri hér á landi, og tilkynnt hefur verið um hjartavöðvabólgu í þessum aldursflokki, og ungar stúlkur allt niður í 12-15 eru komnar í hóp ca 2.100 kvenna á Facebook sem allar hafa fengið aukaverkanir í móðurlífið.
Kæru landar, með vel skipulögðum óttaáróðri er búið að halda ykkur í stöðugum ótta við einhverja veiru, og þið hafið verið blekkt til að taka þátt í lyfjatilraun sem stendur yfir til ársins 2023, svo þið eruð tilraunadýrin!
Hvað býr að baki þessum aðgerðum síðastliðið rúmlega eitt og hálft ár? Farið að spyrja spurninga og leita svara!
Þegar rökfræðin bregst.....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)