Verða skyldubólusetningar settar á EFTIR kosningar?

Ég er farin að hallast að því að það sé aðeins einn heiðarlegur og ALVÖRU  LÆKNIR starfandi hér á þessu landi, en það er hann Guðmundur Karl Snæbjörnsson, oftast kallaður Kalli Snæ.

Hann hefur vakið aðdáun og virðingu margra með málflutningi sínum og baráttu fyrir að leyfa lyf við snemmmeðferðir sjúkdómsins, meðal annars með áratuga gömlu lyfi sem hefur hlotið Nóbelsverðlaun, væntanlega vegna þess að það virkar vel og hefur litlar aukaverkanir.

Eitthvað allt annað en þessi svokölluðu bóluefni.

Þetta lyf hefur verið gefið milljörðum manns með góðum árangri í gegnum árin, en telst víst ekki nógu vel rannsakað, það má bara gefa fólki bóluefni sem eru í tilraunafasa til ársins 2023!

Ég hef heyrt um íslenska lækna sem eru mótfallnir þessum massa bólusetningum, en þora ekki að rísa upp gegn yfirboðurum sínum! Þið læknar, hvað varð um læknaeiðinn ykkar: Fyrst, ekki skaða!?

1109

Ég ætla ekkert að fara að rekja baráttu hans við Lyfjastofnun, þessar upplýsingar ættu allir að geta fundið á netinu. Hann var í frábæru viðtali í gær á Útvarpi Sögu, einu stöðinni sem hefur gagnrýnt bólusetningarnar, enda er hún óháð með öllu og án ríkisstyrkja.

Biden Bandaríkjaforseti

"Það kemur ekki á óvart að Biden forseti Bandaríkjanna hafi í ræðu í gær kynnt til sögunnar skyldubólusetningar gegn Covid. Þessi sama tilhneiging sé einnig víða í Evrópu og hér á landi er ákveðnum þvingunum beitt í þeim tilgangi að fólk láti bólusetja sig, jafnvel þó það sé þvert á vilja þess.

Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðmundar Karls Snæbjörnssonar sérfræðings í heimilislækningum í þættinum Fréttir vikunnar í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar."

Hér á landi

rsz_2208bEf fólk er ekki enn búið að átta sig á því, þá hefur nánast sömu aðgerðum og aðferðum verið beitt gegn okkur og öðrum þjóðum í þessum "heimsfaraldri", sem sumir kalla "scamdemic" eða "plandemic".

Faraldurinn hefur verið keyrður áfram á linnulausum hræðsluáróðri, lokunum, grímuskyldu, fölskum PCR prófum, ritskoðun, og glæpsamlegum lygum um að einhver hraðsoðin genabreytandi tilraunalyf séu eina lausnin út úr honum.

Ef einhver heldur að íslensk stjórnvöld, sem hafa meðal annarra narrað fólk í sprauturnar beri hag þjóðarinnar sér fyrir brjósti, þá er það mikill misskilningur.

Allt þetta fólk, hver einasti þingmaður er búið að fá ótal tölvupósta, Facebook skilaboð, bréf, og jafnvel ábyrgðarbréf þar sem þau eru krafin svara um þessar sóttvarnaraðgerðir, en engu er svarað!

Þvinganir í bólusetningar hér á landi er staðreynd

Hann segir meðal annars þetta í viðtalinu:

"Guðmundur segir að þetta sé til dæmis gert í opinbera geiranum, þar sé starfsmönnum hreinlega stillt upp við vegg af yfirmönnum og sagt hreinlega berum orðum við þá sem ekki vilja bólusetningu hvort þeir vilji vera ábyrgir fyrir því að bera inn smit inn í viðkomandi stofnun og valda jafnvel dauða einstaklinga.

Hann segir að þetta geti vart talist annað en þvingun þó hún sé ekki lögboðin, það sé þó ákvæði í sóttvarnalögum sem heimili yfirvöldum að þvinga fólk með því að taka það með valdi og bólusetja það.

Guðmundur bendir á að þróunin sé í þá átt að smám saman sé aukið við þvinganir sem þessar og hún eigi sér ekki stað aðeins innan opinbera geirans

ég hef séð bréf frá Félagi atvinnurekenda þar sem ýjað er að því að atvinnurekendur eigi að beita þessari sömu aðferð” segir Guðmundur Karl."

1109

Börnin okkar

"Hann segist hafa ákveðnar áhyggjur af því að sóttvarnalæknir hafi kastað ábyrgðinni varðandi bólusetningar yfir á skólana

með innköllun fyrir börnin og kannski hægt að segja að þar gæti orðið innræting gagnvart því að komast að foreldrunum í gegnum börnin” segir Guðmundur."

Sóttvarnarlögin

Hvernig skiljið þið þessar greinar í núverandi sóttvarnarlögum? Hvað þýðir "Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi"?

Fáið þið ekki líka hroll við að lesa þetta?

"Sóttvarnarlög: orðskýringar

6. Inngrip: Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi. Með inngripi er ekki átt við læknisrannsókn á eyra, nefi og munni, hitamælingu með eyrna-, munn- eða hörundshitamæli, eða hitamyndatöku, heilbrigðisskoðun, hlustun, ytri þreifingu, sjónuspeglun, töku þvag-, saur- eða munnvatnssýnis utan frá, mælingu blóðþrýstings utan frá eða hjartalínurit.

7. Ónæmisaðgerð: Skipulögð aðgerð sem örvar ónæmiskerfið til að halda smitsjúkdómi í skefjum í samfélaginu, svo sem með bólusetningu eða gjöf mótefna.

Úr 14 gr.

Sóttvarnalæknir getur leitað aðstoðar lögreglu við að framfylgja ákvörðunum sem teknar eru samkvæmt þessari lagagrein, eftir atvikum með líkamlegri valdbeitingu beri nauðsyn til."

Geðslegt, ekki satt?

1109a

Nú eru að koma kosningar

.... með hefðbundna kosningavaðlinum um bjarta framtíð með blóm í haga ef þú kýst þennan eða hinn flokkinn.

Hvernig væri að spyrja frambjóðendur um þeirra viðhorf gagnvart skyldubólusetningum, og ef þeir stefni á að keyra þær í gegn, nái þeir kjöri?

Spyrjið þá líka, sérstaklega Svandísi heilbrigðisráðherra hvers vegna ekki er löngu búið að stöðva þessar sprautur sem að minnsta kosti 31 manneskja hefur látist í kjölfarið af, og 199 manneskjur, þar af 6 börn hafa hlotið skaða af, jafnvel fyrir lífstíð, fyrir utan alla hina sem líka hafa tilkynnt um aukaverkanir.

Spyrjið þá líka hvers vegna þeir séu að brjóta alþjóðalög um lyfjatilraunir á fólki, sem voru samin af gefnu tilefni!

rsz_1009

Heimtið svör áður en þið farið í kjörklefann, ef þið kjósið sama fólkið yfir okkur aftur, þá mun fólkið sem samþykkti bóluefnasamningana setja skyldubólusetningu á okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Nú er búið að staðfesta lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavík norður. Við höfum því skýran og augljósan valkost sem erum svo heppin að búa þar.

Þorsteinn Siglaugsson, 11.9.2021 kl. 17:47

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Þorsteinn,

Já ég var að heyra það áðan, og það eru svo sannarlega góðar fréttir! Þau hafa þá rödd sem nauðsynlega þarf að fá að heyrast áður en fólk gengur að kjörborðinu.

Kristín Inga Þormar, 11.9.2021 kl. 19:26

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Sumir hafa velt því fyrir sér hvers vegna ýmis svæði Afríku virðast hafa "sloppið" við COVID-19. Léleg gögn og lítið prófað kannski, en víða hefur ivermectin verið gefið til mikils fjölda fólks til að berjast gegn ormasýkingum og kannski það hafi leitt til meiri viðspyrnu gegn COVID-19. Frá heimasíðu samtaka Bill Gates:

"One high-opportunity target is onchocerciasis (river blindness), which is caused by a parasitic worm transmitted to humans by black fly bites. About 37 million people are infected, primarily in Africa, but mass distribution of the donated drug ivermectin has helped eliminate the disease in many parts of Africa and South America."
https://www.gatesfoundation.org/our-work/programs/global-health/neglected-tropical-diseases

Í Bretlandi hafa yfirvöld sagt að þau vilji hafa meðferðir tilbúnar í haust og er meðal annars verið að leita að COVID-19 sjúklingum til að prófa ýmsar MEÐFERÐIR. Ætli lyfjarisarnir séu ekki meðvitaðir um þetta?

https://www.principletrial.org

Geir Ágústsson, 13.9.2021 kl. 11:00

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Það virðist einmitt í mörgum löndum þar sem fólk er löngu hætt að trúa og treysta stjórnvöldum sínum að þær þjóðir hafi sloppið vel út úr þessum "heimsfaraldri".

Gott ef Bretar eru farnir að ranka við sér, en þá má spyrja hvers vegna ekki var byrjað á því strax, heldur bara talað um að þessi svokölluðu bóluefni væru eina lausnin?

Og það er spurning hvort þeir séu ekki með þessu að brjóta gegn einhverjum ákvæðum þessara leynilegu bóluefnasamninga?

Kristín Inga Þormar, 13.9.2021 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband