Það sem hún minnist ekki einu orði á í þessu viðtali

Berglind Aðalsteindóttir hjartalæknir var fengin til að halda erindi um orsök skyndidauða ungmenna á nýliðnum Læknadögum 2023 í Hörpu.

Sem hjartalæknir útskýrir hún ýmsar ástæður fyrir því að ungt fólk geti dottið dautt niður við íþróttaiðkun, eins og til dæmis af völdum arfgengra sjúkdóma, og/eða undirliggjandi hjartasjúkdóma.

Það er athyglisvert að akkúrat þetta umfjöllunarefni, skyndidauði ungs íþróttafólks hafi verið aðal áhersluefni málþingsins.

En það er eitt sem ég sakna úr þessari frétt, þar er ekki einu orði minnst á hvort samasemmerki geti verið á milli "bólusetninga" íþróttamanna með þessum genabreytandi tilraunalyfjum, og óhugnanlegrar fjölgunar andláta þeirra undanfarin tvö ár.

Og líklega voru túrbó krabbameinin í kjölfar "bólusetninganna" ekki til umræðu þarna, né skyndidauðar allra þeirra sem flokkuðust ekki til íþróttamanna.

Hvað með mRNA tilraunalyfin sem sannanlega valda veikindum og dauða?

Skyndi­dauði er að sögn Berg­lind­ar ekki alltaf tengd­ur hjart­anu held­ur get­ur líka or­sak­ast af sjúk­dóm­um í öðrum líf­færa­kerf­um.

Hve al­geng­ur skyldi skyndi­dauði þá vera á heimsvísu?

„Rann­sókn­ir hafa sýnt fram á að ný­gengi hjá yngra fólki sé á bil­inu einn til tveir á ári á hverja 100.000 ein­stak­linga.

Það væri fróðlegt að vita hverjir gerðu þessar rannsóknir sem hún vísar í, en það vekur óneitanlega upp þá spurningu hjá manni hvað valdi því að hvorki hámenntaður ungur hjartalæknir (né hinir læknarnir á málþinginu) virðist tengja skyndidauða íþróttamanna mögulega við "bóluefnin".

Eða velti hún þessari spurningu upp í erindinu en sleppti að minnast á það í þessu viðtali?

Þetta sem hún segir er í hróplegu ósamræmi við raunveruleikann, og útskýrir ekki nema örfáar hugsanlegar orsakir hjartaáfalla og skyndidauða ungs íþróttafólks.

En í fullu samræmi við þöggunina undanfarin þrjú ár, þar sem aðeins ein umræða hefur verið leyfileg, um "gæði og öryggi" þessara tilraunaefna.

Þar fór Þórólfur Guðnason fyrrum sóttvarnalæknir einna fremstur í flokki, að ógleymdri Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Arftaki hans hún Guðrún Aspelund er ekkert skárri.

1.696% Increase in Sudden Death Among Athletes

The number of athletes who ‘died suddenly’ between January 2021 and April 2022 was 1.696% above the historical monthly norm between 1966 and 2004 — 42 per month compared to just 2.35 per month.

0121

Heimild

Umfjallanir utan úr heimi

Rauði þráðurinn í gegnum fréttaflutning um "heimsfaraldurinn" og "bólusetningum" á stærstum hluta mannkynsins er sá að lítið sem ekkert er fjallað um að:

Covid "bóluefnin" geta - og hafa valdið alvarlegum veikindum og dauða

Andlát eftir Covid sprauturnar

Young hearts part 30 er þrítugasta vídeóið í samnefndri seríu vídeóa um skyndileg andlát ungs fólks, allt niður í lítil börn síðan byrjað var sprauta heimsbyggðina með þessum tilraunalyfjum.

"Cause Unknown"

 Cause unknown

Mjög áhugaverð og vönduð bók sem byggð er á rekjanlegum gögnum hefur nýlega verið gefin út, "Cause Unknown": The Epidemic of Sudden Deaths in 2021 & 2022.

Hún er skrifuð af Edward Dowd og hefur fengið gríðarlega góða dóma, eins og sjá má á sölusíðunni.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Enn er verið að hvetja fólk yfir sextugu í þessar eitursprautur hér á landi. Ég setti inn fyrirspurn á Facebook færslu Heilsugæslunnar fyrir nokkrum dögum síðan, en hún hefur ekki séð ástæðu til þess að svara þessari sjálfsögðu spurningu.

Það mætti velta fyrir sér hvers vegna ekki.

0121b

Getum við treyst ríkisstjórn Íslands og heilbrigðiskerfinu sem enn hvetur fólk í þessar tilraunasprautur fyrir lífi okkar og heilsu, eða hefur það brugðist okkur?

Svari hver fyrir sig.

Uppfærsla 22. janúar

Ég var að fá ábendingu um að hjartalæknarnir Berglind Aðalsteinsdóttir, Davíð O. Arnar og Gunnar Þór Gunnarsson hafi nýlega fengið styrk frá Rannís upp á allt að 55 milljónir til næstu þriggja ára til að rannsaka ofvaxtarhjartavöðvakvilla, og verður hún unnin í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu.

Við vitum að Kári Stefánsson hefur lofað bóluefna"nammið" í hástert og viljað senda þá sem ekki vildu þiggja sprauturnar út í Grímsey.

Er það þá tóm tilviljun að "bóluefnin" hafi ekki verið rædd sem hugsanleg orsök skyndidauða ungmenna?

Hvað haldið þið?

 

 

 


mbl.is Eft­ir því tekið þegar íþrótta­fólk hníg­ur niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. janúar 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband