Írland er farið í hundana, það er orðið að algjöru lögregluríki!

Það er okkur öllum nauðsynlegt að hlusta á fleiri hliðar þessa meinta heimsfaraldurs en okkur eru sýndar í meginstraumsfjölmiðlunum, og þeim íslensku líka, því miður.

Hinn breski Hugo er alltaf með puttann á púlsinum og hér tekur hann fyrir Írland sem er enn í "lockdown".

Pöbbar eru ekki opnir nema fyrir fólk sem nýtur veiganna útivið, og það stefnir í að það verði bannað fljótlega út af þessu svakalega Delta afbrigði.

Nú eru lögreglumenn búnir að fá leyfi til að krefjast lykilorða fólks inn í gemsana þeirra og/eða tölvurnar. Þeir sem dirfist að neita séu að fremja glæpi sem þeir gætu fengið allt að fimm ára fangelsisvist fyrir, og sekt upp á allt að 30.000 evrur.

Þetta er það sem gerist ef fólk endalaust hlýðir þessum fasísku lögum og reglugerðum sem endalaust er verið að setja á, yfirvöld halda bara áfram að taka meira og meira frelsi af okkur.

Það er gott að lesa líka hvað venjulegir borgarar hafa um málin að segja, og hér eru nokkrar athugasemdir undir vídeóinu.

"if people have not figured out what days we live in, they are willfully ignorant."

"I had so many arguments early in 2020, saying that this was how a totalitarian state is formed. I was laughed at. They aren't laughing now."

"When there are excessive fines and imprisonment for a petty crime like that there is something radically wrong."

"I got stopped today in town. By a clipboard person asking me questions about the rona and how lockdown affected me. I said one : which coronavirus are we taking about. SARS MERS the flu influenza the common cold? And two lockdown didn’t affect me because while everyone was watching BBC I was watching what the world economic forums great reset agenda agenda 21 agenda 2030 is playing out. She walked way with a funny look on her face. Lol"

"People who are infected don’t even know they have it. Those that do have it have a cough and a cold for a few days. It really is madness now"

"Ireland has fallen, it’s gone."
 
Hér á Íslandi
 
Flestir virðast dýrka þríeykið okkar sem hefur víst leitt okkur svo svakalega vel í gegnum "faraldurinn", og trúa og treysta öllu sem þau segja að ógleymdum Kára að sjálfsögðu.
 
Nú koma Ragnheiður yfirhjúkka og Jón Magnús unglæknir sterklega inn í dæmið sem sérlegir varðhundar bóluefnanna sem eru sannanlega að stórskaða og drepa fólk um allan heim, rétt eins og hér á landi.
 
Ég er búin að fjalla um þetta fólk hér, og hér, og öll tilkynnt andlát og aukaverkanir í nokkrum Evrópulöndum hér.
 
Hvað ætli sé næst á dagskrá? Að banna óbólusettum einstaklingum að ferðast?
 
Sjáum bara til, en ef flugmenn eru að detta niður dauðir eftir sprauturnar, og lítið sem ekkert er fjallað um það í þessum svokölluðu meginstraumsfjölmiðum, þá er tilhugsunin um ferðalög lítið aðlaðandi þessa dagana hvort eð er.
 
Nú er loksins búið að létta á aðgerðunum hér á landi, svo nú er bara að sjá hvort að upp komi einhver svakaleg ný "hópsmit" kortér í verslunarmannahelgi svo það verði "nauðsynlegt" að skella öllu í lás aftur.
 
Þessi fölsku PCR próf hafa verið notuð til að réttlæta allar þessar skelfilegu aðgerðir í heiminum í vel á annað ár núna.
 
Er fólk í alvöru ekki enn farið að setja nein spurningarmerki við atburðina síðasta árið, og hvort það hafi nokkurn tímann verið tilefni til allra þessara aðgerða sem eru búnar að svipta okkur sjálfsögðu frelsi og mannréttindum?
 
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband