Ha, er ekki löngu búið að veita okkar viðkvæmustu hópum vernd?

Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ininni (WHO) er stjórnað að manni sem hefur enga læknisfræðimenntun og situr undir ákærum um þjóðarmorð í eigin landi. Hún er að stórum hluta fjármögnuð af Bill Gates sem hefur heldur enga læknisfræðimenntun, en er álitinn einn fremsti sérfræðingur heimsins í farsóttum og bóluefnum.

Þessi sami maður hefur sagt opinberlega að sínar bestu fjárfestingar séu í bóluefnum, og að þau séu frábær leið til að stýra mannfjöldanum í heiminum.

Hann er líka búinn að boða fleiri og banvænni heimsfaraldra í náinni framtíð (á hann kristalskúlu?), en hefur ásamt WHO og fleirum lausnir á reiðum höndum gegn "núverandi" og komandi faröldrum. Og þær eru....

BÓLUSETNINGAR!

Michael Ryan aðstoðarframkvæmdastjóri WHO segir hér:

„Smit­in munu aukast þegar að við aflétt­um tak­mörk­un­um ein­fald­lega vegna þess að við erum ekki búin að bólu­setja alla. Auk þess vit­um við ekki enn með fullri vissu hve vel bólu­efn­in verja okk­ur gegn því að smit­ast, eða bera með okk­ur veiruna og dreifa henni áfram. Með auk­inni dreif­ingu smita, setj­um við okk­ar viðkvæm­ustu hópa á slæm­an stað á ný.

Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­in ít­rekaði fyr­ir þjóðum heims­ins sem stefna að því að aflétta sótt­varn­ar- og sam­komutak­mörk­un­um að gæta fyllstu varúðar við aflétt­ingu. Þá varaði stofn­un­in við því að þrátt fyr­ir að stór hluti fólks sé bólu­sett­ur þá stöðvi það ekki dreif­ingu veirunn­ar. Þetta kom fram í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni í dag“. (Áherslubreytingin er mín.)

Setj­um okk­ar viðkvæm­ustu hópa í hættu

Er ekki löngu búið að veita gamla fólkinu og okkar viðkvæmustu hópunum "vernd" með þessum tilraunabólusetningum?

"Áður­nefnd­ur Ryan seg­ir einnig um málið: „Að halda því fram að dreif­ing veirunn­ar muni ekki aukast við al­gjör­ar aflétt­ing­ar, vegna bólu­setn­inga, er rangt“.

Enn frem­ur seg­ir hann: „Smit­in munu aukast þegar að við aflétt­um tak­mörk­un­um ein­fald­lega vegna þess að við erum ekki búin að bólu­setja alla. Auk þess vit­um við ekki enn með fullri vissu hve vel bólu­efn­in verja okk­ur gegn því að smit­ast, eða bera með okk­ur veiruna og dreifa henni áfram. Með auk­inni dreif­ingu smita, setj­um við okk­ar viðkvæm­ustu hópa á slæm­an stað á ný“.

Gleymska?

Gleymdi maðurinn nokkuð að nefna þær þúsundir manna sem eru þegar látnir eftir inngjafir á þessum efnum sem eru í tilraunafasa til 2023, eða þær milljónir sem hafa skaðast vegna þeirra, sumir varanlega?

Ef við lítum okkur nær hér á landi, hvað þekkið þið marga sem hafa smitast af eða dáið úr brasilísku, bresku, suður afrísku, eða einhverju þeirra tví- eða þríklofnu afbrigða sem eru endalaust að skjóta upp kollinum, hvert öðru hættulegra að sögn?

Þjóðin fór á hliðina í fyrra þegar háaldrað fólk og/eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma dó "úr veirunni" í fyrra. Einn er víst látinn í ár, og fékk sá/sú viðeigandi pláss í fjölmiðlunum. Samtals 30 andlát.

Nú eru tilkynntar aukaverkanir hér á landi komnar upp í sláandi tölu, eða 2.073, þar af eru alvarlegar aukaverkanir 127, og þar af 26 tilkynnt andlát.

Staðreyndin er bara sú að það er endalaust verið að ljúga að okkur hér á landi. Þórólfur segir að ungar konur þurfi ekkert að óttast, Ragnheiður yfirhjúkka segir að öll bóluefni séu góð og það sé hættulegra að fara í búðina en að láta sprauta sig.

Jón Magnús unglæknir kannast ekkert við aukaverkanir og þráir ekkert heitara en að "bólusetja" börnin okkar fyrir haustið!

Er þetta fólk á einhverjum prósentum fyrir hvern bólusettan?

Myndirnar hér fyrir neðan eru teknar af vef Lyfjastofnunar, en þetta eru upplýsingar um tilkynntar innlendar aukaverkanir sem eru sendar til evrópska Vigilance gagnagrunnsins. Þetta er að sjálfsögðu aldrei birt í fjölmiðlum, bara á síðunni þeirra. Smellið á myndina til að stækka hana.

 

0707c

Spyrjið ykkur svo sjálf hvort þið getið enn trúað því að öll bóluefni séu góð og áhættunnar virði að láta sprauta einhverjum þessara efna í ykkur, sem eru sannanlega búin að valda ómældum skaða og andlátum.

Þekkið þið einhverja bólusetta sem hafa látist skyndidauða öllum að óvörum, eða þjást af aukaverkunum eftir sprauturnar, en tengja kannski nýtilkomin veikindi ekki við þær? Ef svo er, þá megið þið gjarnan senda mér einkaskilaboð á Facebook síðunni minni ef þið viljið tjá ykkur um þær.

Og það eru til ótal sannanir sem eru unnar upp úr opinberum gögnum fyrir því að þessi tilraunaefni eru að stórskaða og drepa fólk.

Og hverjir græða mest á þessum linnulausa bólusetningaráróðri? Hafið þið kynnt ykkur kolsvarta sögu lyfjafyrirtækjanna sem hafa þurft að greiða marga milljarða í skaðabætur eftir lögsóknir?

Hafið þið kynnt ykkur æfinguna í heimsfaraldri sem var haldin af WHO, UN, WEF, Bill Gates og fleirum rétt kortéri í þennan "heimsfaraldur"?

Eða endurræsinguna miklu sem komin er í gang þar sem búið er að ákveða framtíð mannkynsins að okkur forspurðum?

Kannski er orðið allt of seint að tjá sig um þetta núna þegar stærsti hluti íslensku þjóðarinnar er búinn að láta sprauta einhverjum efnum í sig sem það hefur ekki hugmynd um hvað innihalda.

En í guðanna bænum elsku Íslendingar farið að afla ykkur upplýsinga um það sem er í gangi í heiminum núna, en þó ekki í íslenskum fjölmiðlum, BBC eða öllum þessum svokölluðu meginstraumsfjölmiðlum.

 

 


mbl.is Ítreka mikilvægi þess að fara varlega í afléttingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband