Hvað alvöru læknir er búinn að sjá í störfum sínum, bóluefnasamningarnir, og sitthvað um lygarnar hér á landi!

2308dNorður írskur læknir segir hér frá skelfilegri aukningu blóðtappa hjá bólusettu fólki sem hún er búin að hitta í starfi sínu, og hún segist ekki lengur geta sofið á næturnar eftir að hafa séð afleiðingar sprautanna á fólk sem hafi fengið þær.

Þau sem skoði raunverulegar tölur og gögn, en ekki tölvumódelin sem eru gerð og kostuð af milljónerum og hagsmunaaðilum sjái, að þetta snúist alls ekki um heilsu heldur eitthvað allt annað.

Sprauturnar eru að valda sannanlegum skaða á lífum og heilsu fólks og séu ekki veita fólki sagða vörn, séu í tilraunafasa til ársins 2023 og hafi neyðarleyfi byggð á þeim lygum að engar aðrar meðferðir séu til.

Allt sem hún sé búin að vara við í meira en heilt ár núna hafi því miður ræst, og hún grátbiður fólk að hleypa þessum illu öflum EKKI í unga fólkið.

Þetta bloggaði ég um þann 22. júní s.l.:

"Þórólfur og Ragnheiður ljúga blákalt!

Í dag stendur til að bólusetja 10.000 manns með Janssen. Í þessari frétt segir meðal annars:

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Þannig að ungar konur ættu ekki að hræðast bólusetningu með Janssen?

„Nei, nei,“ segir Þórólfur.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, tekur í sama streng og Þórólfur. „Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (áherslubreyting mín).

Sjáiði hvað Þórólfur og Ragnheiður eru að segja þarna? Getið þið treyst og trúað orði af því sem þetta fólk segir lengur?"

Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Einmitt, hvernig myndi þessi maður sem búinn er að ljúga þessum efnum inn í líkama stærsta hluta fullorðinna útskýra það í dag að bólusettir séu nú að smitast og veikjast? Gæti verið að ónæmiskerfi þeirra séu löskuð eftir þessi efni?

Þetta segir líka í fréttinni: "Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir samfélagslegt ónæmi vera að myndast hér á landi í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19."

Enn ein lygin sem hann er staðinn að um fyrirfram virkni og öryggi!

Gríðarleg fjölgun aukaverkana vegna þessara "góðu og öruggu" efna

22. júní voru tilkynntar aukaverkanir 1.740, en eru núna tveim mánuðum seinna komnar upp í 2.965, sem er fjölgun upp á 1.225!

2308

 

2308fÖll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Já er það Ragnheiður yfirhjúkka sem nú ert byrjuð að sprauta börnin okkar?

Hverjar af þessum aukaverkunum sem við sjáum á myndinni hér fyrir neðan eru svo ómerkilegar að búðarferð sé hættulegri en að fá einhverja af þeim?

Og hvernig myndirðu útskýra það að þrjár konur með enga mænuáverka urðu lamaðar í kjölfar "örvunarsprautanna" og að kona er komin með andlitslömun og þekkir hvorki mann sinn né barn í kjölfarið?

Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Tilkynningar sendar í EudraVigilance alla mánudaga

2308e

Hvað er í þessum bóluefnasamningum sem við megum ekki sjá?

Þarna staðfesta höfundar samningsins að þróun öruggs og virks bóluefnis sé mjög flókin og hætta á mistökum sé mjög mikil. Allar þær þjóðir sem skrifuðu undir þessa samninga samþykktu það með undirritun sinni.

Áhugasamir geta halað niður leynilega EU bóluefnasamningnum frá 4. júní 2020 hér, og Comirnaty Epar Risk Management Plan hér, og ég skora á alla að kynna sér þessi gögn rækilega!

2308g

2308h

Sóttvarnarlæknirinn Þórólfur Guðnason

Hann mælir heilshugar með bólusetningum barna í mbl í dag.

„Já, já við ger­um það,“ seg­ir Þórólf­ur spurður að því hvort hann mæli heils­hug­ar með bólu­setn­ingu barna. 

„Fólk auðvitað ákveður sjálft hvort það mæti en við mæl­um með bólu­setn­ing­unni á þess­um aldri.“

"Hætta á auka­verk­un­um hjá börn­um ekki tal­in meiri eða öðru­vísi

2308iSpurður að því hvort auka­verk­an­ir af völd­um bólu­setn­inga hjá börn­um á aldr­in­um 12-15 ára sé meiri eða á ein­hvern hátt öðru­vísi en hjá full­orðnum seg­ir Þórólf­ur að svo sé ekki. Hann bend­ir á að eng­ar al­var­leg­ar auka­verk­an­ir hafi komið fram í rann­sókn­um sem lágu til grund­vall­ar markaðsleyf­is fyr­ir bólu­efni Pfizer í þess­um ald­urs­hópi."

Hér lýgur maðurinn blygðunarlaust, eina ferðina enn!

"Of the 1,127 children who received a first dose of the jab a shocking 86% experienced an adverse reaction. Of the 1,097 children who received a second dose of the jab a shocking 78.9% experienced an adverse reaction."

"Therefore due to the fact the Covid-19 vaccines do not prevent infection or transmission, 1 in every 9 children suffered a serious adverse reaction leaving them unable to perform daily activities during the clinical trial, and just 1 in every 1.7 million children having allegedly died with Covid-19 in 18 months, how on earth can the MHRA and JCVI justify giving the Covid-19 vaccine to children and claim that their decision is based on the potential benefits outweighing any risks?"

Sjá færsluna með tilvísun í opinber gögn hér.

Ég kallaði allt þetta fólk glæpahyski í nýlegu bloggi, en það er búið að ljúga að þjóðinni í meira en heilt ár núna og tæla stærstan hluta hennar í þessar sprautur og er nú byrjað að sprauta börnin, og ég stend við það.

Skyldu þau hafa fjárhagslegan ávinning af því að sprauta alla íslensku þjóðina, allt niður í börn, skítt með hvað margir látist eða skaðist, jafnvel fyrir lífstíð eins og dæmin sanna?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Maður örvæntir annars vegar yfir sturlun elítunnar og hins vegar yfir að því er virðist valkvæðri blindu almennings. Fyrir aðeins tveim árum hefði sturlun af þessu tagi verið óhugsandi í vestrænni menningu.

Guðlaun.

Guðjón E. Hreinberg, 23.8.2021 kl. 17:41

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Já nákvæmlega, þetta sýnir bara hversu auðvelt er að ná stjórn á fólki með skipulögðum og markvissum hræðsluáróðri, því miður.

Kristín Inga Þormar, 23.8.2021 kl. 18:35

3 Smámynd: Tryggvi Helgason

Maður einn í Bandaríkjunum var seint á ferð í bíl sínum.

Hann sofnaði við stýrið, ók á brúarstólpa og lést.

Læknir skráði dauðdagann vera covid19. Læknar munu fá 2000 dollara fyrir hvert tilfelli sem þeir skrá vegna covid19.

Það virðist allt gert til þess að ljúga að fólki.

Hvenær rísa Íslendingar upp, og afneita þessari ósanninda þvælu, reka burtu fals-læknana og leyfa fólki að nota lyfin "Ivermectin" og "Hydroxychloroquine", ... ég bara spyr.?

Tryggvi Helgason, 24.8.2021 kl. 16:37

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tryggvi,

Það er löngu búið að koma upp um allar blekkingarnar í þessum meinta faraldri, og fólk ætti að geta fundið upplýsingar um það annars staðar en í þessum meginstraumsfjölmiðlum, Facebook, Twitter, YouTube og fleiri miðlum, þar sem allt er ritskoðað.

Ég bloggaði fyrr í sumar t.d. um breskan útfararstjóra sem kom fram undir nafni og sagði að fjöldi útfara hefði verið svipaður árið 2020 og fyrri ár, en hann sæi mikla aukningu eftir að þessar svokölluðu "bólusetningar" hófust.

Mér sýnist langt í að Íslendingar fari að rísa upp, miðað við að fólk er að flykkjast í Vaxhöllina með börnin í þúsundatali þessa dagana, og annað eins á landsbyggðinni.

Heilaþvotturinn hjá þessu glæpahyski gekk fullkomlega upp, því miður.

Kristín Inga Þormar, 24.8.2021 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband