10.9.2021 | 10:51
"Heimsfaraldurinn" skoðaður frá oggulítið kaldhæðnum sjónarhóli.
Ég er búin að hafa gríðarlega miklar áhyggjur í meira en ár út af endalausu áhyggjunum sem hann Þórólfur okkar, og hann Víðir sem við hlýðum öll, hafa af þróun þessa hræðilega heimsfaraldurs.
Hvaða máli skiptir þótt sprautur númer eitt og tvö hafi ekki virkað nógu vel, auðvitað förum í "örvunar"sprautur þrjú, fjögur, fimm etc., til að berjast gegn þessum Delta, Lambda og Mu afbrigðum, og öllum þessum hræðilegu afbrigðum sem eru að eiga eftir að spretta upp á næstunni.
Svo segir að minnsta kosti Kristján Kristjánsson á DV sem er alveg með eindæmum duglegur að segja okkur af öllum þessum skelfilegu afbrigðum og pestum sem við eigum í vændum.
Svo munu þeir sem þáðu Pfizer guðsgjöfina auðvitað taka því til viðbótar 2 pillur á dag þegar þær koma á markaðinn, vonandi ekki seinna en um áramótin.
Hin lyfjafyrirtækin hljóta líka að leggja dag við nótt núna á rannsóknarstofunum sínum!
Og hvaða máli skiptir að landlæknir okkar hún Alma hafi forðað tengdamömmu sinni frá sprautunni meðan allir hinir á hjúkrunarheimilinu fengu sinn skammt?
Aðalmálið var að lekinn um það var að sjálfsögðu glæpsamlegur og krafðist þriðju gráðu yfirheyrslu yfir starfsmönnunum til að finna uppljóstrarann. Vonandi fannst þessi hræðilega manneskja sem lak þessu, og vonandi var hún rekin með skömm.
Og auðvitað látum við sprauta börnin okkar gegn þessari skelfilegu drápsveiru!
En voðalega heyrist eitthvað lítið í heiðursorðuhöfunum okkar þessa dagana, og hvar eru hræðslufundirnir góðu sem sögðu okkur réttilega að við yrðum að vera endalaust hrædd við Grýlu gömlu sem nú heitir Covid.
Ég virkilega sakna þess að þau skuli ekki lengur minna mig daglega eða vikulega á að það sé HEIMSFARALDUR í gangi sem fáum eiri!
En sem betur fer höfum við RÚV og alla hina góðu fjölmiðlana okkar sem passa upp á að segja okkur á hverjum einasta degi hversu mörg SMIT greindust í gær.
Einhverjir spilltir dómstólar úti í heimi hafa úrskurðað að PCR prófin séu óhæf til að greina hvort maður sé veikur eða ekki, sérstaklega ef þau eru keyrð á 40 snúningum eins og hér á landi.
En auðvitað treystum við öllum sérfræðingunum okkar sem hafa leitt okkur svo vel í gegn um þennan hræðilega drápsfaraldur!
Thalidomide
Auðvitað eru öll lyf og bóluefni góð, við vitum að Thalidomide lyfið sem þúsundir kvenna fengu fyrir rúmlega hálfri öld síðan gegn ógleði á meðgöngu virkuðu svakalega vel, skítt með þótt verulegur slatti barna hafi fæðst með afskræmda útlimi.
Ef fullt af konum hættu að gubba á meðgöngunni, eins leiðigjarnt og ógeðslegt það er að æla út í eitt, þá sannar það að þessi fínu lyf hjálpuðu þessum konum að losna við gubberíið.
Útvarp Saga
Ég botna ekkert í þessum miðli, Útvarpi Sögu sem er endalaust að birta fréttir um að ekki sé allt sem sýnist í þessum hræðilega drápsfaraldri. Lesa þau aldrei faraldursfréttirnar á RÚV, hvurslags fréttaveita er þetta eiginlega?
Þau eru endalaust að taka viðtöl við einhverja samsæringakenningasmiði sem halda því fram að ekki sé allt sem sýnist í þessum skelfilega drápsfaraldri!
Jesús minn, svakalega er allt þetta fólk illa að sér, veit það ekki að við erum að glíma við heimsfaraldur heimsku og ótta núna?
Veit þetta fólk ekki að það er lífsnauðsynlegt að nota grímur og einangra okkur vinstri hægri í sóttkvíum þegar einhver hefur "greinst smitaður" af þessari skelfilegu drápsveiru?
Ég er alveg á innsoginu af hneykslun núna, mikið er ég fegin að útvarpsgjaldið mitt rennur til RÚV, en ekki þeirra!
Ónæmiskerfið okkar
Og svo er sumt fólk eitthvað að þvaðra um meðfætt ónæmiskerfi fólks sem á víst, ef vel er viðhaldið með heilbrigðum lífstíl, réttum vítamínum og bætiefnum að verja það gegn öllum umgangspestum.
Veit það ekki að einhverjar SPRAUTUR og PILLUR sem okkur er sagt að fá okkur séu svarið við öllu? Voðalega er fólk eitthvað fávíst og illa lesið. Veit það ekki að lyfjarisarnir framleiða þetta af tómri umhyggju fyrir okkur?
Fear of Germs
Ég ætla enda þetta með teiknimyndaútfærslu af gömlu vídeói með George Carlin:
"George Carlin (May 12, 1937 June 22, 2008) was an American stand-up comedian, actor, philosopher, author, and social critic. He was known for his black comedy and reflections on politics, the English language, psychology, religion, and various taboo subjects. Widely regarded as one of the most important and influential American stand-up comics of all time. This audio clip comes from his George Carlin's audiobook, "Napalm & Sillyputty", which was published in 2002. "
Ég er kannski ekki alveg sammála honum með persónuleg þrif, en allt annað sem hann segir er bara heilbrigð skynsemi, með slatta af húmor.
Það er búið að innprenta í okkur að veirur og bakteríur séu stórhættulegar, og hvað þá mannleg nánd, eða að anda að sér fersku súrefni.
Við eigum bara að vera áfram hrædd við Grýlu gömlu og gerast áskrifendur að "örvunar"sprautum lyfjarisanna sem tryggðu sig kyrfilega gegn skaðabótakröfum vegna þessara tilraunalyfja þeirra, sem þegar eru búin að drepa að minnsta kosti tugþúsundir og skaða enn fleiri fyrir lífstíð.
Fannst ykkur ekki hressandi að horfa á þetta?
Athugasemdir
Var að enda við að býsnast yfir myndefni Rúv í kvldfréttatímum lesandi fréttir af Covid.Alltaf borandi í nef ehv.tvisvar stundum 3svar meðan maður borðar .Sem betur fer opna eg ekki oft.-- -- Og ekki batna eftirköst eftir sprautur í mínum aldraða hópi,einn af körlunum neitaði og slapp við spítalavist.
Helga Kristjánsdóttir, 11.9.2021 kl. 00:31
Sæl Helga,
Ég er löngu hætt að horfa og hlusta á fréttir, gerði það þegar mér var farið að ofbjóða hræðsluáróðurinn í hverjum einasta fréttatíma.
Gott að þessi maður stóð með sjálfum sér og neitaði eitursprautunni!
Kristín Inga Þormar, 11.9.2021 kl. 10:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.