Fullbólusettir Ástralir munu héðan í frá teljast óbólusettir nema þeir þiggi allar framtíðar "örvunar"sprautur

Daniel Andrews, sem er forsætisráðherra Viktoríu fylkis í Ástralíu setti fram þessa sturluðu yfirlýsingu á dögunum.

Hann sagði líka að ósprautaðir munu verða heftir frelsi á næsta ári, og það muni líka eiga við þá sem hafi "aðeins" fengið eina eða tvær sprautur.

Hann lýsti því yfir að óbólusettir Viktoríubúar yrðu áfram útilokaðir frá efnahagslegri og félagslegri þátttöku langt fram á 2022. Forsætisráðherrann varaði einnig tvísprautaða Viktoríubúa við að þeir gætu verið lokaðir inni ef þeir fái sér ekki "örvunar"skot ef þess verður krafist.

2310f

Ástralir reisa einangrunarbúðir vegna "áframhaldandi aðgerða"

Sagt er að verið sé að reisa þessar búðir fyrir þá sem hafi ekki haft aðgengi að "bólusetningunum".

Samkvæmt frétt í ABC Australia, þá er gert ráð fyrir að einar slíkar með 1.000 rúmum verði tilbúnar í lok mars 2022.

Á þessu stigi verði húsakynnin notuð fyrir innfædda sem séu að ferðast af Covid "áhættusvæðum".

Þeim verður skipt niður á mismunandi svæði, og munu geta hýst einstaklinga, pör og fjölskyldur, og muni verða undir eftirliti lögreglu og öryggisvarða 24 tíma á sólarhring.

Svo er talað um að áætlað sé að það verði áframhaldandi þörf fyrir einangrunarbúðir vegna nýrra "afbrigða" og fólks sem hafi ekki haft aðgengi að "bólusetningum". (Lesist: Fólki sem hefur engan áhuga á fá þessum genabreytandi líftæknilyfjum sprautað í sig).

Greinin fjallar líka um að sömu aðgerðir séu í gangi í Bandaríkjunum, Kanada, Nýja Sjálandi og Þýskalandi.

Ástralir vilja ekki láta bjóða sér þetta lengur!

2310gHugrakkur ástralskur lögreglumaður hefur tekið afstöðu gegn harðstjórn og lygum stjórnvalda og fjölmiðla um Covid-19 sem hefur leitt landið niður í einræðisbrjálæði, álíka og myndi gera leiðtoga kínverska kommúnistaflokksins, Xi Jinping, stoltan - og allt í nafni "heilsu".

Í færslu sem hann birti á Facebook vegg sínum segir hann meðal annars:

Þessari spurningu sé enn ósvarað, - Hvers vegna eru leiðtogar Ástralíu og stjórnvalda annarra þjóða að ljúga að borgurum sínum um Covid-19 og nota það til að reyna að beita forræðishyggju?

2310hÞessir Ástralir flykktust út á göturnar fyrr í mánuðinum þegar stjórnvöld í Viktoríu boðuðu skyldubólusetningu fyrir alla "authorised workers".

Fólkið sem telst til þessa hóps yrði að fá fyrstu sprautuna fyrir 15. október og þá síðari fyrir 26. nóvember, annars ættu þeir á hættu að vera reknir.

Krafan spannaði margar starfsgreinar, sem 1 - 1,25 milljónir manna í starfa í. Lokafrestur þessi væri aðskilinn frá öðrum fresti sem var settur á þá sem starfa við öldrunarþjónustu, heilsugæslu, byggingarstarfsemi, menntun og vöruflutninga.

Ég hef áður fjallað um það sem er að gerast í heiminum í dag, svona til upprifjunar:

Sannleikurinn er, hvort sem fólki líkar betur eða verr, það var aldrei neinn alvöru "heimsfaraldur" í gangi.

Nánast allt sem okkur hefur verið sagt í fjölmiðlunum og af völdum sérfræðingum eru hræðsluáróður, og lygar.

Fréttirnar sem okkur eru ekki sagðar í meginstraumsfjölmiðlunum eru skrifaðar af þúsundum manns um heim allan sem vilja koma sannleikanum um það sem raunverulega er í gangi, upp á yfirborðið.

Þar á meðal eru heimsfrægir, óháðir og virtir vísindamenn, læknar og lögfræðingar sem eru útskúfaðir frá miðlum eins og YouTube, Facebook og Google.

Þessu fólki eigum við að treysta, ekki glæpamönnum eins og Dr. Fauci, eða Bill Gates sem er búinn að fremja hroðalega glæpi í nafni "mannúðar", en hefur margoft sagt að það þurfi að fækka mannkyninu, og að bóluefni séu frábær leið til þess.

Við erum hreint ekkert undanskilin hvítþvotti og "hálfsögðum" fréttum hér á landi, nýjasta dæmið um það eru þessar ríflega 2.000 aukaverkanir bólusettra einstaklinga sem hafa greinst með smit sem verið er bæta inn í grunn Lyfjastofnunar þessa dagana.

2310 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvar er RÖDD STRJÓRNAR-ANDSTÖÐU-FLOKKANA? 

Jón Þórhallsson, 23.10.2021 kl. 16:29

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jón,

Já það er góð spurning, það hefur heyrst ákaflega lítið frá öllu þessu fólki þótt það hafi allt fengið ótal bréf, og jafnvel ábyrgðarbréf með upplýsingum og jafnvel spurningum.

Hvort raddir þessa fólks séu þaggaðar niður eða ekki, þá er það alveg skýrt í mínum huga að það er að bregðast þjóðinni.

Kristín Inga Þormar, 23.10.2021 kl. 21:02

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Það er ákaflegalega mikilvægt að reyna útskýra eftirfarandi fyrir fólki:

Sprauturnar stöðva ekki smit (sumir segja meira að segja að sprautaðir smiti meira en aðrir) og koma ekki í veg fyrir sýkingu. Þau draga mögulega úr alvarlegum veikindum (fyrir þá sem sleppa við að verða hreinlega veikir af sprautunum). 

En það gerir líka hraust ónæmiskerfi almennt. Hvernig menn styrkja það á að vera einstaklingsbundið val: Fá sprautu, taka lýsi og steinefni, hreyfa sig, sofa vel, hvaðeina.

Sprauturnar virka því ekki eins og bóluefni (gegn t.d. bólusótt) þar sem einstaklingur verður ónæmur. Þau virka miklu frekar eins og fæðubótarefni. Að rúlla úr sprautum er því ígildi þess að rúlla út lýsisskeiðum: Sumir kúgast, sumir eru með ofnæmi (jafnvel lífshættulegt), flestir þola samt lýsisskeiðina en margir hefðu frekar viljað önnur úrræði til að verja sig gegn alvarlegum veikindum (ath. ekki því að smitast eða smita aðra).

Ég er viss um að Lýsi hf. yrði alsælt að ríkisvaldið opnaði lýsisstöðvar í hverju plássi og rækju stanslausan áróður fyrir varningi fyrirtækisins, en það væri bara fáránlegt, ekki satt?

Geir Ágústsson, 24.10.2021 kl. 11:59

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Það er skelfilegt hvað þau sem vilja sprauta okkur öll hafa þagað yfir og falið aukaverkanir vegna þeirra. Nýjasta dæmið eru þessar ríflegu 2.000 aukaverkanir bólusettra sem samt "smituðust", sem landlæknir lúrði lengi á.

Og það er merkilegt hvað lítið (ekkert??) hefur verið gert til að leiðbeina fólki um hvernig það geti sem best eflt ónæmiskerfið sitt með vítamínum, steinefnum og heilbrigðum lífstíl.

Í staðinn hefur fullfrískt fólk þurft að sitja í einangrun og sóttkvíum í lengri eða skemmri tíma, og öllum skipað að nota súrefnisheftandi munnbleyjur sem vitað er að gera ekkert gagn gegn örsmáum veirum.

Fólki hefur verið kennt að vera skíthrætt, og svo er óttanum viðhaldið með endalausum fréttum um "smittölur" gærdagsins.

Og sagt að fullbólusettir verði að fá fyrstu "örvunar"sprautuna af líklega mörgum, miðað við hvað búið er að panta mikið magn af þessu eiturglundri.

Hátt í 60.000 manns hefur þegar látið glepjast af þessum hræðsluáróðri Þórólfs og fengið sér "örvun".

Trú og traust þjóðarinnar á þessum manni er því miður ennþá allt of mikið.

Kristín Inga Þormar, 24.10.2021 kl. 12:57

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Og allt alþingi "KÓAR MEÐ" eiturbrasinu

eða hvað?

Jón Þórhallsson, 24.10.2021 kl. 15:57

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jón,

Já það virðist vera, það lætur að minnsta kosti ekkert hafa eftir sér opinberlega.

Kristín Inga Þormar, 24.10.2021 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband