Er þetta það sem koma skal líka hér á landi? Sjáið hvað er að gerast í Ástralíu!

Ég var að lesa áhugaverða grein sem birtist á Fréttin.is í gær, meðal annars um útgöngubann sem stendur til að setja á ósprautaða í Austurríki.

"Lyfjaframleiðendur og lobbýistar þeirra reyna nú eftir fremsta megni að klína sökinni á herfilega misheppnuðum bóluefnum á þann minnihluta sem vill ekki sprauturnar. Bóluefnin sem áttu að leiða til hjarðónæmis koma hvorki í veg fyrir smit né veikindi og hafa auk þess leitt til fjölda spítalainnlagna.  Nýlega hafa 16 sænskir læknar krafist þess að bólusetning með Pfizer verði stöðvuð á meðan verið er að skoða nánar meint rannsóknarsvik hjá PfizerBioNTech eftir uppljóstrun fyrrverandi starfsmanns fyrirtækisins."

Sigmundur Ernir Rúnarsson birti fordæmalausan leiðara í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann sakar þá sem hafa ekki látið blekkjast af bóluefnaáróðrinum um að halda kerfinu í herkví.

Hann ætti frekar að beina reiði sinni gegn framleiðendum þessara tilraunaefna sem lofað var að myndu ná niðri "faraldrinum", en hafa ekki gert það, heldur skilið eftir sig slóð alvarlegra veikinda og dauða.

Það er búinn að vera linnulaus skimunarfaraldur undanfarið með þessum gölluðu PCR prófum, sem að sjálfsögðu leiðir til þess að mörg fölsk "jákvæð smit" finnast.

Það er verið að blekkja veiruhrædda fólkið í þriðju sprautuna, svo mun að öllum líkindum spretta upp eitthvað "nýtt og ennþá hættulegra" afbrigði á næsta ári sem geri þá fjórðu "nauðsynlega", og svo koll af kolli. Þetta er orðið óttalega fyrirsjáanlegt.

Skoðum hvað er að gerast á sama tíma annars staðar í heiminum

Ástralía hefur alltaf verið vestrænt land, og þótt góður staður til að búa á, þar til nú síðustu misserin, þar sem verið er að innleiða alræðisstjórn. Það sem er að gerast þar er líka að gerast í öðrum löndum, eins og hjá nágrönnum þeirra í Nýja Sjálandi, Kanada, Ísrael og löndum í Evrópu.

Tilburðir í þessa átt eru einnig byrjaðir hér á landi, þar sem tví-eða þrísprautaðir eru farnir að heimta að þeir ósprautuðu verði útskúfaðir frá samfélaginu. Og við munum nú þegar Kári vildi senda þá alla út í Grímsey.

Ástralía

Háttsettur ástralskur læknir leggur til að þeim sem vilja ekki sprauturnar, verði neitað um heilbrigðisþjónustu verði þeir veikir vegna veirunnar.

“Patients continue to suffer some pain or disability for a longer period of time, and they’re often patients who’ve been double vaccinated, they’re elderly, and they’ve done everything right, but their knee replacement is being delayed and the public hospital waiting lists are growing,” he said.

Forsætisráðherrann Daniel Andrews sagði þann 22. október að íbúar Viktoríufylkis verði útilokaðir frá efnahagslegri og félagslegri þátttöku langt inn í árið 2022, og að tvísprautaðir íbúar gætu átt það á hættu að sæta útgöngubanni ef þeir þiggi ekki "örvunar"sprauturnar þegar þær bjóðast.

Eftir það muni þeir teljast óbólusettir.

"In a presentation, Andrews explained that there will be no freedoms for the “unvaccinated” in 2022 – and by unvaccinated, he also means people who stop at one or two jabs."

Sami maður vill setja þau lög á Ástrali, að hægt sé að sekta þá, og/eða loka þá inni í fangelsi í tvö ár fyrir að brjóta sóttvarnarreglur.

"These two bills, which are currently under deliberation in Parliament, will grant Andrews’ government the authority to impose $90,000 fines on individuals who “intentionally and recklessly” violate public health orders, and $455,000 for businesses. Additionally, law enforcement will be given the authority to imprison Australians who fail to comply with public health orders for up to two years."

Hér er önnur frétt um sama mál.

"The legislation allows Andrews to declare a pandemic even if there is not one. He only has to think there could be one. This antipodean combination of commissar and gauleiter is taking complete personal control of the state and its people. He can close down parts of the state or the whole state and prevent people from entering or leaving in whole or part. He can extend closures without limit."

Og hér segir frá því að íbúar Queensland hafi fengið svo margar sektir fyrir að að brjóta þessi lög að þeim sé hótað því að bankareikningar þeirra verði lokaðir, heimilin gerð upptæk, og ökuskírteini afturkölluð.

Skyldubólusetning

Í Perth í Ástralíu á að setja á skyldubólusetningu á meirihluta vinnuafls síns, sem mun ná til yfir milljón manns.

“Employers will be required to keep a record of the evidence, and authorized officers will run spot checks to ensure compliance is occurring,” McGowan said. 

“If relevant, employers that have unvaccinated staff working after the deadline run the risk of being fined up to $100,000.” 

McGowan added that employees themselves also risk as much as a $20,000 fine for failing to provide proof of vaccination."

Einangrunarbúðir

Ástralía er að byggja einangrunarbúðir fyrir "áframhaldandi aðgerðir", og til að hýsa þá sem "hafa ekki haft aðgang að bólusetningum".

1411k

Áströlsk hryllingssaga.

Í Ástralíu hefur borgarafrelsi verið útrýmt. Forsætisráðherra Viktoríufylkis í Ástralíu, Daniel Andrews, hefur endurvakið Þriðja ríkið með kínverskum áhrifum.

Ástralir mótmæla

Stöðvið læknisfræðilega aðskilnaðarstefnu sögðu þeir á fjölmennum mótmælum nýlega, og fóru fram á afsögn Daniel Andrews.

Mörg önnur mótmæli hafa farið fram í landinu undanfarið.

Alþjóðlegt neyðarkall

Þann 4. desember næstkomandi biðja Ástralir heimsbyggðina að styðja sig í þessum kröfum:

These are some of the rights that have been stolen or attacked:

  • the right to have a political party;
  • the right to peacefully protest;
  • the right to work without being subject to coercion;
  • the right to operate a business;
  • the right to make personal medical choices;
  • the right to medical privacy;
  • the right for all persons, irrespective of their health or vaccination status, to be considered equal;
  • the right to freely express political dissent;
  • the right to assemble;
  • the right to socialise.

Hér á landi

Á sama tíma hlaupa Íslendingar í skimanir eins og enginn sé morgundagurinn, og sætta sig við að frelsið til að lifa eins og eðlilegar manneskjur, og anda að sér ómenguðu súrefni sé tekið af þeim trekk í trekk.

Það stendur ekkert til að hætta að sprauta fólk með þessu glundri, enda búið að skuldbinda þjóðina til að kaupa að minnsta kosti 1.4 milljónir skammta.

Nú á að fara að hjóla í 5-12 ára börn, og svo allt niður í 6 mánaða börn.

Heldur fólk virkilega enn að þetta sem er að eiga sér stað í heiminum í dag snúist um einhverja veiru?

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þessi farsótt snýst ekki um veiru, þetta er farsótt óttastjórnunar og yfirgangs elítunnar í SÞ, WHO, WEF o.fl.

Það er svo merkilegt að um 560árum fyrir Krist skrifaði Esekíel um það sem við erum að horfa uppá.

Í Esekíel 7.kafla versi 10 og 11 segir:

10 Sjá, þarna er dagurinn, sjá, hann kemur. Kórónan sprettur fram, sprotinn blómgast, drambsemin þróast.

11 Ofbeldið rís upp sem vöndur á ranglætið. Ekkert verður eftir af þeim, ekkert af skrauti þeirra og ekkert af auðæfum þeirra, dýrð þeirra er öll úti.

Tíunda versið fjallar um kórónuna, sprotann sem blómgast og drambsemina. En ellefta versið vekur sérstaka athygli mína þar sem segir: "Ofbeldið rís upp sem vöndur á ranglætið". Við horfum uppá ranglætið sem beint er gegn fólki almennt, hér á landi og í öllum löndum. Við sjáum hvað er að gerast í Ástralíu, frelsi fólks afnumið, réttur fólks til að ráða sínu eigin lífi, atvinnuhorfur, efnahagur heimilanna o.s.fr. Ástralir eru beittir ranglæti að eigin "yfirvöldum" sem eru ekkert annað en strengjabrúður heimselítunnar.

Ástralir eru búnir að fá nóg af ranglætinu, spurningin er hversu langt yfirvöld munu ganga áður en ofbeldi almennings brýst út gegn ranglætinu. Ég er ekki að hvetja til þess en þetta er það sem ég sé fyrir mér að muni gerast, ekki bara í Ástralíu heldur um heim allan.

Heilög ritning hefur lag á að undirbúa okkur undir það sem er í vændum. Við sjáum þetta í Guðspjöllunum í orðum Jesú er Hann segir okkur hvað verða mun á hinum síðustu dögum og Páll postuli talar einnig um það og Jóhannes í Opinberunarbókinni.

Siðblindir ofbeldismenn eru að taka sér stjórn yfir heimsbyggðinni, svokallaðir "ráðamenn" (ráðherrar, þingmenn, embættismenn o.s.fr.) eru strengjabrúður þessara siðblindinga.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.11.2021 kl. 21:31

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas,

Já við vitum allt um það, og að þessi "heimsfaraldur" hefur verið lengi í undirbúningi, það er ekkert erfitt að finna sannarninar fyrir því ef maður nennir að leita þeirra.

Já þetta er merkilegt sem Esekíel skrifaði fyrir svona löngu síðan, og stendur í heilagri ritningu og guðspjöllunum, takk fyrir að benda á þetta!

Við erum í nánast ósýnilegri styrjöld núna um yfirráð yfir heiminum, áður voru byssur og sprengjur notaðar, nú eru það þessi svokölluðu "bóluefni", sem eru allt annað en það. Og fáir fatta, enda hefur sálfræðihernaðurinn og óttastjórnunin gengið nánast fullkomlega upp, allt samkvæmt plani.

Kristín Inga Þormar, 14.11.2021 kl. 21:52

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Á Íslandi var stólað á hundseðlið og þrælsóttann

og það klikkaði ekki.

Þetta snýst ekkert lengur um sóttvarnir.

Það geta allir séð sem vilja sjá. 

En, þá er treyst á það, að hjarðhegðunin felist

í því að sjá ekki, heyra ekki og tala ekki.

Sigurður Kristján Hjaltested, 15.11.2021 kl. 12:20

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Sigurður,

Þetta er algjör snilld, og segir allt sem segja þarf!

Kristín Inga Þormar, 15.11.2021 kl. 12:34

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Sótti núna sæll og glaður,
segir sprauta þrjú mun virka.
Og þegar stenst ei þetta þvaður,
þá er sagt, "tjah svona cirka"

Jæja, þetta var ljótt kvæði en mátti reyna.

Geir Ágústsson, 15.11.2021 kl. 16:27

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Annar snillingur stiginn fram, þetta er alveg ægilega fínn leirburður hjá þér! laughing

Kristín Inga Þormar, 15.11.2021 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband