Ég vil alls ekki láta "bólusetja" mig vegna þess að....

.... fyrir það fyrsta, þá hef ég mjög gott ónæmiskerfi sem hefur varið mig gegn öllum utanaðkomandi óværum í áratugi, og ég hef aldrei fengið mér flensusprautu.

.... í íslenskum lögum stendur: "Virða skal rétt sjúklings til að ákveða sjálfur hvort hann þiggur meðferð". Þetta hlýtur þá líka að ná yfir þá sem eru ekki sjúklingar, og þurfa þar af leiðandi ekki á neinum meðferðum að halda.

.... ég varði löngum tíma í að kynna mér hvers eðlis þessi svokölluðu "bóluefni" væru löngu áður en byrjað var að sprauta þeim í fólk, og horfði á ótal viðtöl við óháða og heiðarlega vísindamenn og sérfræðinga sem vöruðu við hugsanlegum afleiðingum þeirra á líf og heilsu fólks.

.... þetta eru ekki bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til. Flest sem þetta ágæta fólk varaði við, virðist því miður hafa raungerst. Þessi mRna skot eru "genameðferð" markaðssett sem "bóluefni" til að fá traust almennings á þeim, segja lyfjarisarnir sjálfir.

.... bönnuð er notkun á góðum og vel reyndum lyfjum, þar af einu sem fékk Nóbelsverðlaun á sínum tíma. Það er látið líta út sem þetta sé bara hrossalyf, en þeirri staðreynd að það er líka til fyrir mannfólk haldið eftir. Þannig var hægt með sviksamlegum hætti að gefa þessum "bóluefnum" tímabundið neyðarleyfi!

.... búið er að tilkynna hér á landi um 5.556 aukaverkanir, þar af 32 andlát og 199 lífsógnandi.

Sannleikurinn um skaðsemi þessara svokölluðu "bóluefna"

Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) gaf út drög um hugsanlegar aukaverkanir þessara líftæknilyfja í október 2020, áður en "bólusetningarnar" hófust á heimsvísu.

Þetta er á blaðsíðu 17:

1811b

En þetta stöðvaði ekki veitingu "neyðarleyfis" á notkun þeirra.

Pfizer, opinber gögn frá Bretlandi. 104 blaðsíðna pdf skjal

Aukaverkanirnar eru meðal annars: Heilablóðföll, hjartaáföll, fósturlát, Bell's Palsy, blóðsýking, lömun, geðsjúkdómar, blinda, heyrnarleysi, ristill, hárlos, og Covid-19.

AstraZeneka, opinber gögn frá Bretlandi. 128 blaðsíðna pdf skjal

Aukaverkanirnar eru meðal annars: Blinda, heilablóðföll, hjartaáföll, fósturlát, blóðsýking, lömun, Bell's Palsy, heyrnarleysi, ristill, hárlos, og Covid-19.

Hér eru enn fleiri sannanir fyrir um skaðsemina, teknar saman af lækni sem hefur haft rétt fyrir sér í öllu varðandi "faraldurinn" hingað til.

Opinberar tölur úr VAERS grunninum um aukaverkanir og andlát miðað við 5. nóvember.

1811c

Efra línuritið er yfir andlát eftir bólusetningar allt frá árinu 1990. Eins og sjá má er línan tiltölulega flöt þangað til hún tekur heljarstökk uppávið árið 2021.

Neðra línuritið sýnir hvað margir dagar liðu eftir sprauturnar, þangað til fólkið lést.

1811d

Fróðleikur

Hér eru nokkrar mjög góðar og vel rökstuddar greinar eftir Guðrúnu Bergmann, sem allir ættu að lesa. Þær varpa ljósi á hvað búið er að ákveða fyrir hönd mannkynsins - að því forspurðu:

Hvað mun gerast hér á Íslandi?

Það sem er að gerast í löndum sem við gjarnan berum okkur saman við, er skelfilegt. Þar er verið að svipta fólk mannréttindum og persónufrelsi undir stjórn harðstjóra.

Nýjasta dæmið um það er í Austurríki, þar sem þeir sem hafa engan áhuga á að láta sprauta neinum þessara efna í líkama sína, sæta núna útgöngubönnum.

Ég var að heyra að til standi að nauðungarsprauta það fólk fyrir jól, það kemur í ljós á næstu dögum hvort það sé rétt.

Uppfærsla: Það er búið að staðfesta skyldubólusetningu í Austurríki, annað hvort er það sprauta eða peningasektir / fangelsi!

Flest sem gerist í öðrum löndum kemur líka hingað á endanum, það vita þeir sem hafa fylgst með þróuninni og "fréttaflutningnum" í þessum "heimsfaraldri", sem er mjög einhliða, og meira og minna byggður á blekkingum - til þess að hræða helst alla í sprauturnar.

Nú er líka byrjað hér á landi að mynda gjá milli sprautaðra og ósprautaðra, eins og sjá má í, ég verð bara að segja heimskulegum og stórhættulegum leiðara síðustu helgi. Sem betur fer hefur hann fengið harða gagnrýni á ýmsum vettvöngum.

Og eins og hendi væri veifað, þá birtust þessar fréttir í vikunni:

Það vill svo til að þær þjóðir (að Íslandi meðtöldu) sem hafa núna mestan fjölda greindra "jákvæðra smita" eru þær sem hafa hæstu hlutföll bólusettra.

Nú er reynt að kenna ósprautuðum um að þessu "bóluefni" séu ekki að virka eins og lofað var, og meira að segja á núna að fara að senda "bólusetningarstrætó", því "öllum ráðum skuli beitt til að veita fólki tækifæri til að komast í bólusetningu og að ná til óbólusettra."

Það er kostulegt að tala um tækifæri til að komast í bólusetningu, eins og það sé eitthvað spennandi og eftirsóknarvert!

Og nú vill frekur embættislaus karl bólusetja aukaskammt í alla fullorðna og það sem verra er, fara að sprauta 5-12 ára börn!

1811e

Eru Íslendingar tilbúnir að láta loka inni okkur sem viljum alls ekki vera tilraunadýr fyrir lyfjarisana, og banna okkur að taka þátt í samfélaginu?

Og yrðu þeir samþykkir því að við yrðum tekin með valdi og sprautuð, eins og hefur verið gert í öðrum löndum?

Hefðu þeir sem eru þegar búnir að fara jafnvel í þrjár sprautur núna gert það ef þeir hefðu vitað sannleikann um þessi svokölluðu "bóluefni"?

Nei, eða já?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband