13.12.2021 | 18:53
13 ástæður fyrir því að hugsa ykkur vel um áður en þið látið bólusetja 5-11 ára börnin ykkar.
Nú er komið að því sem margir hafa óttast, að ungum börnum "verði boðin" bólusetning eftir áramótin.
Þórólfur segir:
Faraldurinn valdi mikilli röskun á lífi barna
Upplýsingar liggja nú fyrir um að börn séu að leggjast alvarlega veik inn á spítala vegna veirunnar í bæði Bandaríkjunum sem og öðrum Evrópulöndum og því er fyllsta ástæða til að bjóða ofangreindum aldurshópi bólusetningu gegn veirunni, að sögn Þórólfs.
Hann segir yfirstandandi bylgju faraldursins drifna áfram af börnum og að bólusetningar þeirra muni ekki einungis hjálpa við að kveða smitin niður heldur einnig að draga úr neikvæðum áhrifum veirunnar á daglegt líf barna.
Veiran getur valdið mikilli röskun á daglegu lífi þessara barna. Menn hafa haft miklar áhyggjur af því að það geti líka haft varanleg og slæm áhrif á börnin svo það er fyllsta ástæða til þess að reyna koma í veg fyrir það. Fyrst og fremst erum við bara að hugsa um hag barnanna sjálfra.
Hvaðan koma þessar upplýsingar Þórólfur?
Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna maðurinn sé aldrei krafinn gagna sem sanni það sem hann er að segja í fjölmiðlunum.
Hann kemst upp með því að vísa alltaf í einhverjar nýjar rannsóknir og upplýsingar þegar hann þarf að koma einhverjum málstað á framfæri.
Skýrt dæmi um það er þegar hann sagði í fyrrasumar að grímur gerðu ekkert gagn, en nokkrum vikum síðar tók hann algjöra U-beygju og sagði að einhverjar nýjar rannsóknir bentu til akkúrat hins gagnstæða.
13 ástæður fyrir því að láta ekki sprauta börnin ykkar með Pfizer bóluefninu
- 86% barna hlaut aukaverkanir vegna Pfizer í klínískri rannsókn.
- 1 af 9 börnum hlaut alvarlegar aukaverkanir sem gerði þau ófær um að sinna daglegum athöfnum.
- Aðeins er hægt að tengja 9 andlát barna við veiruna frá því í mars 2020.
- Hættan á alvarlegum veikindum hjá börnum er ákaflega lítil.
- Bóluefnið er tilraunaverkefni og enn í klínískum rannsóknum.
- 3 vísindarannsóknir sem voru framkvæmdar af bresku ríkisstjórninni, Oxford háskóla og CDC og birtar í ágúst sýna fram á að þessi bóluefni virka ekki.
- Gögn frá Public Health England sýna að meirihluti dauðsfalla er meðal bólusettra og benda til þess að bóluefnin geti gert sjúkdóminn verri.
- Tilkynnt hefur verið um 1.8 milljón aukaverkanir, og það aðeins í Bretlandi.
- Það hafa orðið fleiri andlát á 8 mánuðum vegna Covid bóluefnanna en vegna allra annarra bóluefna samanlagt síðan árið 2001.
- Það er hætta á hjartabólgum í börnum vegna Pfizer bóluefnisins.
- Börn hafa dáið, og eru að deyja vegna Covid bóluefnanna.
- Hver hagnast á því að þú látir sprauta barnið þitt?
- The Joint Committee on Vaccination & Immunisation hefur neitað að mæla með því að börnum verði boðið Pfizer bóluefnið.
Mjög ítarleg heimild hér, sem ég hvet alla til að skoða vel og vandlega.
Þessu til viðbótar má velta því fyrir sér hvers vegna ungir íþróttamenn, sem eðli málsins samkvæmt eru í góðri líkamlegri þjálfun séu að detta niður og jafnvel deyja í miðjum leikjum.
Hér segir að 71 íþróttamaður hafi á þessu ári fengið hjartaáfall og 26 þeirra látist eftir bólusetningarnar.
Hér er listi yfir helstu tilvik sem tilkynnt hefur verið um. Flest þeirra voru hjartastopp.
- Hjartastopp
- Blóðtappar eða segamyndun
- Heilablóðföll
- Óreglulegulegur hjartsláttur
- Hjartsláttartruflanir
- Taugakvillar
- Andlát
Ung fórnarlömb bóluefnanna, og viðtöl við foreldra
Sjá má þessar sláandi upplýsingar í þessu vídeói. Og athugið, þetta er aldurshópurinn sem þegar er búið að sprauta.
Getum við ekki öll verið sammála um að þetta sé ekki eðlilegt?
Foreldrum ber skylda til að gæta hagsmuna barna sinna og gera það langflestir auðvitað með miklum sóma.
En væru þeir tilbúnir að senda þau eitthvert með nýrri tegund flugvélar sem væri enn á tilraunastigi, þótt nokkrar fullar af farþegum hefðu þegar hrapað, og þótt flugvélaframleiðandinn segðu að þrátt fyrir það væru alveg öruggar?
Ég held ekki. Er ekki betra að leyfa börnunum að njóta vafans?
Börnum á aldrinum 5-11 ára boðin bólusetning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.