Færeyska leiðin

Allir hljóta að vera farnir að sjá spillinguna í stjórnsýslunni og samfélaginu hér á landi, og núna vilja margir þessa ríkisstjórn í burt.

Gott og vel, vonandi er hún á síðustu metrum samstarfs síns, en hvað tæki við ef boðað væri til nýrra kosninga? Sömu spilltu flokkarnir byðu sig fram, VG myndi vonandi þurrkast út, en að öðru leyti myndi ekkert breytast, sagan sýnir og sannar það.

Væri færeyska leiðin ekki eina leiðin til þess að moka út þessu spillta landráðaliði sem er á fullu að koma okkur undir stjórn djöflanna sem eru vel á veg með að koma á alheimsstjórn?

WEF Kata gerði okkur mikinn greiða með að láta gera þessa skýrslu um "velsældarhagkerfið" á Íslandi, þar sýndi hún svart á hvítu hvaða herrum hún og þau þjóna!

Og nú er einn alversti harðstjóri í heiminum í dag á leið til landsins í hennar boði ...

Þetta gerðu Færeyingar!

Færeyska leiðin

Sigurlaug Ragnarsdóttir segir:

Ég hef persónulega barist fyrir færeysku leiðinni allt síðan árið 2008 en sú byltingakennda leið er að mínu mati eina leiðin til að uppræta þá umfangsmiklu og rótgrónu spillingu sem viðgengst í íslensku stjórnkerfi, þar sem hagsmunatengsl, pólitísk tengsl og fjölskyldutengsl munu ávallt standa í vegi fyrir þeim draumi íslendinga að fá njóta heiðarlegs uppgjörs á öllum þeim forkastanlegu spillingarmálum sem hafa litað daglegt líf þjóðarinnar síðastliðinn áratug og meir.

Færeyingar reyndust okkur vinir í raun í síðasta hruni, og voru fyrstir til að bjóða okkur Íslendingum lán í október 2008, við megum aldrei gleyma því.

Hvernig gátu svona fáir menn gert svona mikið gegn eigin landi?

Þessa spurði Høgni Hoydal formaður færeyska Þjóðveldisflokksins, og var hann þar að vísa í samskonar kreppu sem þjóðin lenti í árið 1992.

Nákvæmlega þessarar sömu spurningar verðum við Íslendingar líka að spyrja. En erum við of hrædd að láta í okkur heyra, hrædd við álit annarra, vinnuveitendur, ættingja og vini - þótt við vitum innst inni hvað sé í gangi, eða kjósum við bara að "sjá ekki neitt"?

Er fólk ekki enn farið að átta sig á hvaða blekkingum við vorum beitt í "heimsfaraldrinum"? Jú innst inni held ég að margir séu það, en þora kannski ekki að tjá sig um það af ótta við álit annarra, en dagar "samsæriskenninganna" eru liðnir, þær hafa flestar, ef ekki allar ræst.

Høgni Hoydal árið 2009:

Høgni er þó þeirrar skoðunar að Færeyingar beri sína ábyrgð á bankahruninu. Allar götur síðan hefur flokkur hans unnið að því að reisa veggi milli atvinnulífs og stjórnmálamanna, sem voru þunnir fyrir. Einnig að því að auka eftirlit með ráðherrum, en kjördæmapotarar björguðu gjarnan fyrirtækjum
í heimabyggð sinni um lán gegn ótryggum veðum. Komu jafnvel að rekstri sömu fyrirtækja líka.

Offjárfesting, sérstaklega í sjávarútvegi, var því mikil, allt rekið á
fjármagni að utan.

Á Íslandi

Við erum búin að horfa upp á milljarða eftir milljarða af okkar skattpeningum hverfa úr landi, í þessi svokölluðu "bóluefni", loftslagshysteríuna sem er enn ein peningaþvottavélin, og í stríðsrekstur í öðru landi.

Og svo núna í gegndarlausa móttöku fólks sem sækir um hæli hér, á meðan innviðirnir eru löngu sprungnir. Fer ekki milljarður á mánuði í þann málaflokk?

Fyrir utan allar tilskipanirnar að utan sem verið er að koma á yfir okkur, og eru svo sannarlega ekki þjóðinni í hag!

Tökum þessa litlu frændþjóð okkur til fyrirmyndar, fyrst hún gat mokað út spillingunni hjá sér, þá getum við það líka, en þá verðum við að VILJA gera byltingarkenndar breytingar á samfélaginu okkar.

En mun einhvern tímann nást samstaða um það? Það er stóra spurningin.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Bergmann

Færeyska leiðin er snilld og það myndi breyta öllu hér í landi að fara hana...

Guðrún Bergmann, 24.6.2023 kl. 11:49

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Ég er algjörlega sammála þér Guðrún mín, og þetta er sú leið sem við verðum að fara ef við viljum byggja upp samfélag sem þjónar okkur öllum, ekki bara sumum, og hvað þá þessum djöflum sem eru á góðri leið með að koma á þessari hryllilegu alheimsstjórn sinni.

Það er löngu kominn tími til að fólk taki hausinn upp úr sandinum og kynni sér þetta, enda eru þeir ekkert að leyna áformum sínum.

Ef við sem þjóð segjum öll NEI, þá getum við bjargað þjóðinni okkar, annars ekki, þetta er í rauninni ekkert flóknara en það.

Kristín Inga Þormar, 24.6.2023 kl. 12:39

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það er engin snilld í þessu, bara antivisminn að smala aftur inn í girðinguna.

Guðjón E. Hreinberg, 24.6.2023 kl. 14:16

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Hefurðu einhverja betri lausn? Þú ert alltaf að segja fólki að flýja, en hvert? Er ekki miklu betra að taka til heima fyrir í okkar eigin landi?

Kristín Inga Þormar, 24.6.2023 kl. 17:53

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ef við tökum ekki til í okkar eigin landi mun enginn gera það fyrir okkur. Kata WEF hefur ekki sýnt neina tilburði til þess eða ríkisstjórnin í heild sinni, nema kannski Jón Gunnarsson, og því er þörf á að fá fólk sem kann, vill og getur tekið til í stjórnkerfinu. Þá væri gott að vita hverjir væru best til þess fallnir og velja slíkt fólk á þing, sem vonandi verður bráðlega.

Tómas Ibsen Halldórsson, 24.6.2023 kl. 22:20

6 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Hef útskýrt allt mjög nákvæmlega, og unnið með þetta í meir en áratug. Antivistar eru svo uppteknir af Sannleika 1.0 að þeir láta sífellt grípa sig í bælinu, og hingað til hafa öll mistök þeirra verið séð fyrirfram og þeim lýst.

Þið sjáið þetta þegar þið komið til Sannleika 6.7.

Guðjón E. Hreinberg, 25.6.2023 kl. 00:08

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Biðin frá 2008 er hjá mér orðin of löng,samt ennþá bjartsýn þegar svo margir sjá núna að við erum á bjargbrúninni. -             

Helga Kristjánsdóttir, 25.6.2023 kl. 00:59

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas,

Það væri fróðlegt að vita hvað varð til þess að Færeyingar sameinuðust um að gera þessar byltingarkenndu breytingar hjá sér, og þörfin fyrir þær verður að koma frá okkur sjálfum, þjóðinni, og leiðsögnin frá Færeyingum.

Fyrsta skrefið verður að vera það að moka allri gjörspilltu stjórnsýslunni í burtu áður en hún fremur fleiri landráð.

Kristín Inga Þormar, 25.6.2023 kl. 09:14

9 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Guðjón,

Þú talar gjarnan í gátum, og þótt þú hafir útskýrt og unnið með eitthvað í meira en áratug er ég engu nær um hvað það er, frekar en flestir aðrir reikna ég með.

Þú segir fólki alltaf að flýja, er það niðurstaðan úr þessari vinnu þinni, og hvers vegna gerirðu það þá ekki sjálfur?

Færeyska leiðin hugnast mér betur en flótti.

Kristín Inga Þormar, 25.6.2023 kl. 09:16

10 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Helga,

Þjóðinni ætti að vera orðið löngu ljóst að ekkert breyttist eftir hrunið, og sömu spilltu flokkarnir eru enn á þingi, enda kosnir af þjóðinni aftur og aftur.

Við erum svo sannarlega komin á bjargbrúnina núna og á góðri leið í krumlurnar á WEF, SÞ, WHO og öllum þeim sem eru um það bil að koma á alheimsstjórn núna með tilheyrandi hryllingi fyrir mannkynið, og það er að gerast í samstarfi við íslensk stjórnvöld eins og komið er fram.

Reyndar er aldrei fjallað um það á RÚV eða hinum spilltu ruslmiðlunum.

Það er löngu orðið tímabært að þjóðin fari að rísa upp og segja hingað og ekki lengra!

Kristín Inga Þormar, 25.6.2023 kl. 09:20

11 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ég er löngu flúinn.

Guðjón E. Hreinberg, 25.6.2023 kl. 17:29

12 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Jæja ...

Kristín Inga Þormar, 25.6.2023 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband