29.5.2024 | 11:33
Eins og köttur í kringum heitan graut.
Halla Tómasdóttir er vel gefin, vel menntuð og afskaplega mælsk kona, og er hún núna í annað skiptið að reyna að ná kjöri sem forseti Íslands.
Hún hefur verið spurð núna í aðdraganda forsetakosninganna um tengsl sín við WEF, en mér sýnist hún fara svolítið eins og köttur í kringum heitan graut varðandi þessa ókjörnu alþjóðastofnun, og er hún í starfi sínu að vinna að þessum skelfilegu heimsmarkmiðum SÞ eins og allir sem hafa tengsl við WEF eru að gera.
Og þar eru hvorki meira né minna en hún og tveir aðrir forsetaframbjóðendur sem mælast hnífjafnir í skoðanakönnunum núna, ekki undanskildir!
Hún sver af sér öll persónuleg tengsl við WEF, en þegar stuðningsaðilar fyrirtækisins sem hún stjórnar voru skoðaðir, þá kom ýmislegt fróðlegt í ljós.
Stuðningsaðilar (Supporters) B Team
Langflestir þeirra koma upp ef leitað er að tengingum þeirra við WEF og/eða SÞ/heimsmarkmiðin, og hér eru nokkrir:
Emmanuel Faber - WEF Agenda Contributor
Guilherme Leal - WEF Agenda Contributor
Ingka Group (IKEA)
- Ingka Group á vefsíðu WEForum.org
- Ingka Centres celebrates UN adoption of an International Day of Play
- Open letter to United nations delegates at COP27
- Laudes Foundation á vefsíðu WEForum.org
- United Nations jobs: Vacancies for Just Transition with Laudes Foundation in Amsterdam
- Unlocking capital into climate action
- Novonesis (dótturfyrirtæki Novozymes) á vefsíðu WEForum.org
- A first mover on the UN SDGs (Heimsmarkmið SÞ)
- Herferð fyrir WEF - The Fourth Industrial Revolution
- Richard Socher is named World Economic Forum Young Global Leader.
- United Nations Foundation Project 8
- Unilever á vefsíðu WEForum.org
- Unilever and the UN: an enduring partnership
- The Great Reset: Public Opinion, Populism, and the Pandemic
Það skal enginn segja mér að þetta séu bara eintómar tilviljanir.
Enn og aftur fara ekki saman hljóð og mynd hjá Höllu Tómasdóttur
Halla segir í þessu viðtali sem Frosti Logason á Brotkast.is tók við hana að hún sé ekki meðlimur í World Economic Forum (WEF), og ekki heldur B Team.
Hins vegar fann ég eftir langa leit skjal sem sýndi að Richard Branson stofnandi B Team (og margir fleiri) útskrifaðist sem Young Global Leader árið 1993, en búið var að fjarlægja þetta skjal af netinu.
Hún hefur kannski gleymt að nefna þetta ...
Það er áhugavert að horfa á þetta viðtal, henni finnst Klaus Schwab og nálgun hans á málefni sem rædd séu á Davos fundunum vera löngu orðin úrelt og ekki í takt við samfélagið eins og það er í dag, en gerir lítið úr "samsæriskenningunum" og talar um upplýsingaóreiðu.
Hún segir líka að ef verið væri að leggja á ráðin um heimsyfirráð, þá væri ekki verið að sjónvarpa allri ráðstefnunni í opinni dagskrá á heimsvísu ef að um leynilegt ráðabrugg væri að ræða.
Hvernig veit hún fyrir víst að allri dagskránni sé sjónvarpað?
Og hver hefur gefið Klaus Schwab og félögum hans leyfi til að ráðskast með örlög okkar hinna?
Viðtal hjá Frosta Logasyni á Brotkast.is
Hann bauð mér að koma í viðal til sín til að ræða WEF, WHO og heimsmarkmiðin, og áttum við þar langt og gott spjall.
En eins og gefur að skilja, þá er ekki hægt að ræða öll mál til hlítar í einum þætti, enda benti ég Frosta og áhorfendum á að lesa bloggin mín, og skrif allra annarra sem líka hafa tjáð sig um sömu mál.
Það er gríðarlega mikilvægt að fólk kynni sér vel og rækilega það sem á sér stað í heiminum í dag og hverjir standa á bak við það, enda ríkir ærandi þögn um þessi grafalvarlegu mál á öllum meginstraumsfjölmiðlunum, og meira segja á RÚV - sem segist vera okkar allra!
Þar spurði hann mig líka út í hvaða forsetaframbjóðendur ég vildi alls ekki að yrðu kjörnir, og hvern ég vildi sjá á Bessastöðum.
Þeir sem eru áskrifendur geta séð þáttinn í fullri lengd á Brotkast.is.
Ítarefni:
- Dr. Jacob Nordangård: UN, WEF and G20 form the Troika of Global Governance
- WEF Unveils Global Governance Consortium for Digital Currencies
- The not-so-friendly folks at the World Economic Forum
- WEF Orders Govts To Burn Millions of Bees To Usher In Global Famine
- Klaus Schwab wants to stop the retreat of globalisation and global governance with a new form of globalisation and global governance
- World Economic Forums Young Global Leaders Revealed
- Who Are the World Economic Forums Young Global Leaders? The Names May Surprise You.
- Viljum við fulltrúa WEF og Davos klíkunnar á Bessastaði? - Mikið af upplýsingum um Davos þarna!
- 15 mínútna borgir í Kanada - tilraun hafin á eyjaklasa og QR kóða og skílríkja krafist ef yfirgefa þarf eyjarnar!
- Árið 2014 spáði rannsóknarblaðamaður fyrir um það sem er að gerast í heiminum í dag!
- What is the REAL AGENDA behind the Sustainable Development Goals of the UN? With Rosa Koire
- Myrkraverk Sameinuðu þjóðanna Heimildarmynd um spillingu og glæpi í nafni mannúðar
Hver vill fá fulltrúa Klaus Schwab, sem búinn er að troða sínu fólki inn í ríkisstjórnir margra landa, sem forseta Íslands?
Ekki ég, og ég veit að það á við um marga aðra líka.
Athugasemdir
Ekki ég takk, ég ákvað það eftir að ég heyrði þátt með Arnari Þór Jónssyni á Útvarpi Sögu, að ef þessi maður færi í forsetaframboð þá myndi ég kjósa hann og þar hefur ekki orðið nein breyting á og á ég ekki von á neinni breytingu þar á...
Jóhann Elíasson, 29.5.2024 kl. 14:15
Sæll Jóhann,
Sama hér, eftir því sem ég hef hlustað meira á hann, því meira hef ég sannfærst um að hann sé rétti maðurinn á Bessastaði.
Ég get ekki hugsað til þess að neinn af þessum WEF liðum nái kjöri!
Kristín Inga Þormar, 29.5.2024 kl. 14:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.