Árið 2014 spáði rannsóknarblaðamaður fyrir um það sem er að gerast í heiminum í dag!

Heimsbyggðinni hefur verið haldið í greipum óttans nú í á annað ár vegna heimsfaraldurs.

Okkur var sagt að milljónir manns myndu deyja, og gripið var til harkalegra aðgerða um heim allan, sem settu heilu þjóðirnar á hliðina eins og allir vita.

Það rifjaðist upp fyrir mér vídeó sem ég sá fyrir einhverjum mánuðum, og það var tekið upp árið 2014. Þar talaði rannsóknarblaðamaðurinn Harry Vox um skýrslu sem Rockefeller Foundation gaf út árið 2010, undir heitinu Operation Lock Step.

Gekk hún út á viðbrögð við hættulegum faraldri sem hægt væri að nota sem tæki til að ná yfirráðum yfir mannkyninu. 

0606b

Á myndinni hér fyrir ofan má sjá punkta úr skýrslunni borna saman við yfirstandandi faraldur, og það verður að segjast eins og er, samanburðurinn er vægast sagt sláandi, það getur ekki verið tilviljun að atburðarrásin núna sé svona furðulega lík skýrslunni.

Það eina sem ekki er fjallað um, eru bólusetningar, sem okkur hefur verið talin trú um að sé eina leiðin til að sigrast á þessum faraldri.

Og það er ennþá meira sláandi að hlusta á það sem hann les upp úr þessari skýrslu. Horfið endilega á þetta fróðlega vídeó!

Svo er ekki úr vegi að nefna Event 201, sem var æfing í viðbrögðum við heimsfaraldri, en hún var haldin haustið 2019,  rétt áður en núverandi heimsfaraldur skall á.

Þátttakendur voru meðal annars The World Economic Forum sem er löngu búið að skipuleggja endurræsingu á heiminum (The Great Reset), og svo að sjálfsögðu The Bill & Melinda Gates Foundation, sem er einn stærsti fjámögnunaraðili WHO, og einn stærsti fjárfestir á heimsvísu í bóluefnum.

Veit fólk almennt að WHO er sjálfseignarstofnun, sem er núna stýrt af manni sem er ekki læknismenntaður, og situr undir ákærum um þjóðarmorð í eigin landi?

Eða að nú er verið að fletta ofan af hinum bandaríska Dr. Fauci eftir að gríðarlegur fjöldi tölvupósta hans lak út, hefur það birst í fréttunum hérna?

Sannleikurinn um það sem raunverulega er í gangi í heiminum í dag er loksins að komast upp á yfirborðið.

Þýsk/bandarískur lögmaður að nafni Reiner Füllmich er ásamt þúsundum annarra lögmanna og sérfræðinga á næstu vikum að fara af stað með málaferli vegna stærstu glæpa sem framdir hafa verið gagnvart mannkyninu.

Lesið meira um það hér, og horfið á áhugavert viðtal við hann líka.

Það er löngu kominn tími til að fólk geri sér grein fyrir að þetta hefur aldrei snúist um baráttu gegn einhverri veiru, heldur eitthvað allt annað og miklu skelfilegra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Takk fyrir áhugavert blogg.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 6.6.2021 kl. 23:18

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Ingibjörg, takk fyrir að lesa bloggið mitt. smile

Kristín Inga Þormar, 6.6.2021 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband