Bloggfærslur mánaðarins, júní 2021

33 ára bandarískur flugmaður er óvinnufær eftir bólusetninguna, og 4 breskir flugmenn látnir!

Svona lýsir 33 ára bandarískur flugmaður aukaverkunum sem hann fékk eftir bólusetningu 1. febrúar s.l.:

"I noticed a headache in the very top of my head within an hour of getting the vaccine. I thought it was normal because everyone I know said they got a headache from it.

Over the next few hours, the pain moved down the back of my neck and became a burning sensation at the bottom of my skull. The pain was not excruciating but was constant. I thought it would eventually go away. I am a pilot and fly for a living.

Two days after receiving the vaccine I flew my plane and immediately noticed something was wrong with me. I was having a very hard time focusing. Approximately 2 hours into my flying I felt sudden and extreme pressure in my head and nearly blacked out.

I immediately landed and stopped flying. Two days later I tried flying again and the exact same thing happened again after 20 minutes. The burning in my neck intensified and was now accompanied by dizziness, nausea, disorientation, confusion, uncontrollable shaking, and tinkling in my toes and fingers.

I immediately went to my hometown doctor and he diagnosed me with vertigo. He prescribed me meclizine on Friday 02/05/2021. I took the medicine as prescribed all weekend with no relief. Monday 02/08/2021 I made an appointment for that Wednesday at the Institute."

Restina getið þið lesið hér, en þetta er það sem hann tilkynnti til VAERS eftir bólusetningu með Pfizer.

Það þarf varla að taka það fram að hann getur ekki lengur starfað sem flugmaður.

Fjórir breskir flugmenn látnir með nokkurra daga millibili!

Fjórir breskir flugmenn hjá British Airways, allir á besta aldri létust nýlega með nokkurra daga millibili. Þar sem flugmenn þurfa eðli málsins samkvæmt að vera heilbrigðir, þá fara þeir á hverju ári í strangar rannsóknir til að ganga úr skugga um að þeir séu færir um að stjórna flugvélum.

Eðlilega spretta upp sögusagnir um að þessi sorglegu andlát séu tengd bólusetningunum, en að sjálfsögðu er allt gert til að kveða þær í kútinn.

Allir hljóta þó að sjá að það er ekkert eðlilegt við það að fjórir menn á fimmtugs- og sextugsaldri sem vinna hjá sama fyrirtækinu detti allt í einu niður dauðir!

Allir vita um hættuna á blóðtöppum í flugferðum, og allir ættu núna að vita af þeir eru þekkt aukaverkun eftir þessi svokölluðu "bóluefni".

Eins gaman og það er að ferðast um heiminn, þá er það ekki spennandi tilhugsun lengur.

Að þurfa að láta reka þennan PCR pinna sem var aldrei gerður til að greina veikindi, nánast upp í heilann á sér, þurfa jafnvel að bíða í einhverja daga í sóttvarnarfangelsi í einhverju landi, og hvað þá að þurfa að sýna fram á einhvern "grænan passa" til sönnunar um að maður hafi verið bólusettur, er nóg til að kveða niður alla ferðalöngun hjá mörgum.

Máltækið "Oft er betur heima setið en af stað farið" hefur líklega aldrei átt betur við en núna.

 

 


Eru Bretar og Skotar að búa sig undir aukinn fjölda andláta næstu árin? Hvers vegna?

Þeir eru að minnsta kosti búnir að senda frá sér útboðslýsingu fyrir þjónustu/fyrirtæki sem getur tekið að sér bráðabirgðavörslu mannslíka, og þarf samningurinn að gilda að minnsta kosti til 2025, nánast alveg jafn lengi og World Bank býst við að Covid "verkefnið" standi!

Temporary Body Storage Service

"II.1.4) Short description

The Authority seeks to procure a framework agreement for temporary body storage in the event of an excess deaths situation for the 32 London boroughs and the City of London, led by Westminster City Council. The framework agreement will appoint a single provider and will be for a period of 4 years. This will be a contingency contract, only called upon in the event that an excess deaths situation arises in the future and existing local body storage capacity needs to be augmented.

The over-arching aim of this tender is to provide a single framework supplier that will be able to provide temporary body storage facilities to house deceased in the event of an excess deaths situation. The deceased will be stored with dignity and respect, at locations to be determined based on local London needs at the time and will require some design elements to accommodate local site conditions and constraints, while being capable of rapid deployment, construction and commissioning to an agreed standard. This framework will be procured by the Authority as the pan-London lead, but all London local authorities may call-off against the framework.

This will be a contingency cover framework and as such there is no minimum guarantee of any level of spend or call-off under the framework agreement.

two.1.5) Estimated total valueII.1.5) Estimated total value

Value excluding VAT: £6,000,000"

Hér er útboðslýsingin, og líka hér.

Í þessu vídeói segir hinn breski Hugo það íhugunarvert að þau hafi ríkisstjórn sem þrýsti fast á alla þjóðina að láta sprauta sig, og sé á sama tíma að búa sig sig undir aukinn fjölda andláta!

Lesið þrumuræðuna frá finnska þingmanninum á dögunum, og þar fáið þið svarið á því hvers vegna Bretar og Skotar eru að gera þetta núna.

Viðbót:

Áður í nóvember 2020, höfðu Bretar auglýst eftir hugbúnaði:
 
 Description of the procurement:
The MHRA urgently seeks an Artificial Intelligence (AI) software tool to process the expected high volume of Covid-19 vaccine Adverse Drug Reaction (ADRs) and ensure that no details from the ADRs’ reaction text are missed.”
 

Allt kapp lagt á að sprauta íslensku þjóðina núna, og finnskur þingmaður sem heldur þrumuræðu yfir þinginu um það sem verið sé að gera finnsku þjóðinni!

Muniði eftir að hafa heyrt sírenuvæl allan sólarhringinn undanfarið ár, og vitiði um fjölskyldur þar sem einhverjir, allt niður í kornabörn dóu úr bráðsmitandi drápspest?

Nei? Ekki ég heldur.

Ef það væri raunverulegur drápsfaraldur í gangi núna, þá þyrfti ekki að minna okkur stöðugt á það í fréttunum alla daga, því það gæti ekki farið fram hjá okkur!

Ef það væri raunverulegur drápsfaraldur í gangi, þá myndu stjórnvöld (og fjóreykið) ekki hræða okkur daglega á fundum og í fjölmiðlum með fjölda "nýrra smita" deginum áður, eða einhverjum nýjum XYZ afbrigðum sem væru sífellt að skjóta upp kollinum.

Þau myndu sýna í verki að þeim væri annt um þjóð sína, og myndu leita leiða til að finna lyf sem löngu hefur verið sannað að virki vel á þá sem eru veikir.

Og þau myndu hvetja okkur til að efla ónæmiskerfin með réttum bætiefnum, og hreyfingu, ekki loka okkur inni og láta okkur bera bakteríublautar grímur sem veita ekki nokkra vörn gegn örsmáum veirum.

Þau myndu ekki banna lyf eins og til dæmis Ivermectin sem er áratugagamalt, veldur litlum sem engum aukaverkunum, og er skítbillegt.

Þau myndu ekki ráðast gegn íslenskum lækni, Guðmundi Karli Snæbjörnssyni (Kalla Snæ), sem hefur ötullega barist fyrir því að fá þetta lyf leyft hér á landi.

Þau myndu ekki heldur skrifa undir leynilega bóluefnasamninga sem enginn á að fá að sjá, upp á stjarnfræðilegar upphæðir.

Þau myndu ekki heldur þrýsta á alla að láta sprauta sig með einhverjum lítt prófuðum mRNA "bóluefnum", og þau myndu heldur ekki lofa fyrirfram öryggi þeirra og virkni, því þau vissu að það væri helber lygi.

Þau myndu ekki láta fólk halda að það að láta sprauta sig sé skylda, og þau myndu ekki reyna að láta fólk fá sektarkennd yfir því að vilja ekki láta sprauta neinu þessara efna í líkama sína.

Þessar sprautur eru tilræði við fólkið í landinu!

Og nú á að bólusetja BÖRNIN okkar, sem eru ekki neinni einustu hættu af því að veikjast! Og hvað þá börn í áhættuhópum? Hafa yfirvöld ekkert kynnt sér öll tilfellin í öðrum löndum þar sem börn og ungt fólk hefur fengið hjartavöðvabólgur eða hreinlega dáið?

"Mik­ill meiri­hluti þeirra sem á að bólu­setja gegn Covid-19 hér á landi hafa fengið fyrsta skammt af bólu­efni eða 238.814 ein­stak­ling­ar. Í öll­um ald­urs­hóp­um þeirra sem á að bólu­setja, fyr­ir utan yngsta ald­urs­hóp­inn, 12-15 ára, er hlut­fall þeirra sem hafa lokið eða hafið bólu­setn­ingu komið vel yfir 60%. 

Sem stend­ur hef­ur ein­ung­is verið tek­in ákvörðun um að bólu­setja börn á aldr­in­um 12-15 ára ef þau eru í áhættu­hóp­um."

Hvernig stendur á því að ekki er búið að stöðva þessar tilrauna"bólusetningar" fyrir lifandis löngu síðan? Eru 1.707 tilkynntar aukaverkanir, þar af 23 andlát og 94 lífsógnandi aukaverkanir ekki nóg?

Eruði búin að lesa ákallið til alþingismanna og ríkisstjórnar Íslands frá 17. júní?

Íslenskir alþingismenn hafa hingað til hunsað flest öll erindi sem þeim hafa verið send varðandi skaðsemi þessara bóluefna, og hversu mörg lög sé verið að brjóta gagnvart þeirra eigin þjóð.

Þetta fólk er ekki að vinna fyrir okkur, eitthvað annað en þessi hugrakki finnski alþingismaður að nafni Ano Turtiainen, sem hélt þrumuræðu í þinginu á dögunum.

Því miður er búið að taka niður vídeóið sem ég ætlaði að setja hér inn, en svona er ræðan hans, þýdd yfir á ensku.

"Covid vaccination, parliamentarians to be charged with genocide

A Finnish MP has warned his parliamentary colleagues of the risk they run from the moment they are warned that they will no longer be able to argue the well-known “we didn’t know” defence.

It is a way of saying “Goodbye, good luck”.

On June 9, Ano Turtiainen, member of the Finnish Parliament, warned of a possible genocide caused by the COVID vaccine in Finland.

Here is the translation of his speech in his country’s parliament:

***

“Honorable Speaker, the committee’s report mentions a wide range of real challenges to Finland’s security.

However, the report omits a very serious challenge to the security of Finland and Finns… I am referring to those so-called COVID vaccines that have also divided our population into the awake and the lost.

You will never again be able to plead ignorance of the risk to which Finnish citizens are exposed.

Finland is currently injecting its citizens with toxic substances disguised as COVID vaccines.

Listen carefully: None of these injected poisons disguised as COVID vaccines have a marketing authorization in Finland, but only a conditional marketing authorization from the European Medicines Agency (EMA). The terms of a conditional license state that the authorization is conditional: “The available information must demonstrate that the benefits of the medical product outweigh its risks.”

Secondly, dear colleagues, despite the media discourse, we have so far officially no deaths from COVID in Finland. According to THL (equivalent to CDC – Centers for Disease Control and Prevention), the official causes of death from the year 2020 will not be published until 2022. However, according to Fimea (equivalent to VAERS – The Vaccine Adverse Event Reporting System is a US vaccine safety program), 78 people have died from COVID vaccines in Finland and there are 1,306 reports of serious adverse events. And 3,630 untreated reports. It is estimated that about 57% of the processed reports have serious adverse events. The source is Fimea (www.fimea.fi).

Third, the conditional marketing authorization for these toxicants…also says, “The applicant must be able to provide complete long-term clinical information.” …

In violation of the Nuremberg Code, the Finns were not informed that this was human experimentation.

Now, after this speech, I have made all of you and the media aware that this is an experiment on human beings and that the results are terrible. In comparison, the Pandemrix vaccine experiment, which had previously failed, was stopped with 32 times fewer side effects than what we have now.

So now I ask you all: how many more people will have to die or become seriously ill before we stop this slaughter?

Colleagues, you are now aware of this extremely serious security threat facing our nation and that the downsides of injections outweigh the benefits. You no longer have a reason not to act to save our nation.

Finally, if you continue to deceive our citizens with fairy tales that vaccines are safe and have a license to market, you are intentionally involved in several crimes, the most serious of which is genocide. Again, I remind all of you here: a crime becomes intentional when it is committed knowingly.

Now, you are all aware of this. Thank you.”
Finnish MP, Ano Turtiainen"

Ég sé ekki fyrir mér að nokkur einasti íslenski þingmaður myndi þora að standa uppi í pontu og segja sannleikann eins og þessi maður!

Samt vita þau nákvæmlega hvað er í gangi. En æi já, eru ekki kosningar í haust?


mbl.is Bólusetning að hafast en 828.822 skammtar eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.707, þar af 23 andlát og 94 aðrar alvarlegar, og mikil fjölgun fósturláta í Bretlandi!

Í dag, föstudaginn 18. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.707, voru 1.680 í fyrradag, svo þetta er fjölgun um 27.

Pfizer var með 638 tilkynningar, þar af 20 andlát og 34 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 650. Fjölgun um 12.

Moderna var með 300, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 305. Fjölgun um 5.

AstraZeneka var með 610, þar af 3 andlát og 44 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 613. Fjölgun um 3.

Janssen var með 132, þar af 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 139. Fjölgun um 7.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 117, fjölgun um 2 síðan í fyrradag, þar af 23 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 76 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 887 á aðeins þessum rúma eina og hálfa mánuði.

Mikil fjölgun fósturmissa og aukaverkana hjá verðandi mæðrum í Bretlandi.

Það eru slóðir inn á aukaverkanir vegna þessara helstu tilraunaefna hér neðar, og þegar skoðaðar eru aukaverkanir tengdar meðgöngu, þá teljast hjá Pfizer aðeins 2 af 110 fyrirvaralaus fósturlát vera banvæn, og 1 af 86 hjá AstraZeneka!

Hér segir meðal annars hvað bresk yfirvöld sögðu þegar neyðarleyfin voru samþykkt:

"This was the Governments own advice upon emergency approval of the Pfizer / BioNTech vaccine –

"Pregnancy"

There are no or limited amount of data from the use of COVID-19 mRNA Vaccine BNT162b2.

Animal reproductive toxicity studies have not been completed. COVID-19 mRNA Vaccine BNT162b2 is not recommended during pregnancy.
For women of childbearing age, pregnancy should be excluded before vaccination. In addition, women of childbearing age should be advised to avoid pregnancy for at least 2 months after their second dose.
"

Samt voru breskar ófrískar konur bólusettar!

Nú hefur breska ríkisstjórnin uppfært þetta:

"4.6 Fertility, pregnancy and lactation

Pregnancy

There is limited experience with use of the COVID-19 mRNA Vaccine BNT162b2 in pregnant women.

Animal studies do not indicate direct or indirect harmful effects with respect to pregnancy, embryo/foetal development, parturition or post-natal development. Administration of the COVID-19 mRNA Vaccine BNT162b2 in pregnancy should only be considered when the potential benefits outweigh any potential risks for the mother and foetus."

Skyldi enn verið að bólusetja ófrískar breskar konur eins og okkar íslensku?

Í vikulegri samantekt á síðu gov.uk yfir aukaverkanir segir m.a. þetta:

"For a medicine or vaccine to be considered safe, the expected benefits will be greater than the risk of having harmful reactions. It is important to note that most people take medicines and vaccines without having any serious side effects."

Vaccine Analysis Print - Pfizer/BioNTech

Vaccine Analysis Print - Oxford University/AstraZeneca

Vaccine Analysis Print - Moderna

Vaccine Analysis Print - brand unspecified

Þegar maður skoðar aukaverkanirnar vegna þessara efna (Pfizer er 81 blaðsíða og AstraZeneka er 114), þá hljómar "the expected benefits will be greater than the risk of having harmful reactions" frekar mjóróma og fölsk, en er bara í takti við það sem alltaf er haldið fram, að þessi efni séu svakalega vel prófuð og örugg.

Hvers vegna hafa yfirvöld ekkert hvatt okkur til að efla ónæmiskerfin okkar, heldur bara haldið uppi stöðugum óttaáróðri og látið eins og þessi "bóluefni" séu eina leiðin út úr þessum faraldri?

Og hvers vegna er stefnt að því að bólusetja börnin okkar sem eru ekki í neinni hættu á að deyja úr veikindum að pestinni? Það eru miklu meiri líkur á að þau deyi úr öðrum sjúkdómum eða slysum eins og dæmin sanna, ekkert barn hefur látist hér á landi "úr" Covid.

Fyrir einhverja veiru sem 99.7% fólks lifir veikindi af, þá er sorglegt að sjá hvað fólk er tilbúið að taka áhættu með líf sitt og líkama með því að láta sprauta tilraunaefnum í sig sem það hefur enga hugmynd um hvað innihalda.

Miðað við aukaverkanirnar og andlátin sem búið er að tilkynna um á heimsvísu, þá ætti svona rússnesk rúlletta aldrei að vera áhætta þess virði að taka.

 


Holskefla andláta eftir tilraunabólusetningarnar í Bandaríkjunum!

Skýrslur byggðar á gögnum frá CDC um andlát tengd bólusetningum og varanlega fötlun eftir þær sýna skelfilegar staðreyndir.

Á árunum 2016-2020 voru tilkynnt andlát eftir bólusetningar 124, en á þessu ári fram að 11. júní var búið að tilkynna 4.163 andlát, og fyrir sama tímabil voru tilkynnt 489 tilfelli um varanlega fötlun, og á þessu tæpa ári núna eru þau orðin 4.167.

Þessi gögn eru unnin upp úr VAERS grunninum, sem nú liggur undir rökstuddum grun um að vera að falsa tölur og eyða út gögnum.

Ef skoðaðar eru tölur um bóluefnaskaða hjá fólki undir fertugu fyrir sama tímabil, þá voru 4 andlát árin 2016-2020, en 132 á þessum 6 mánuðum, og varanleg fötlun hjá 57, á móti 678 núna.

Hugsum þetta aðeins, þessi svokölluðu bóluefni virðast vera að drepa og örkumla stóran hóp fólks í blóma lífsins, fólk sem ákaflega litlar líkur eru á að deyi "úr" Covid!

Á mínútu 2:07 í þessu stutta vídeói sem sýnir hvernig hægt er að ná í upplýsingar úr VAERS, má sjá stóra aukningu andláta fólks sama dag sem sprautað var, eða 2.600%!

Eru þetta bara tómar tilviljanir, eins og "óháðir" sérfræðingar um heim allan komast yfirleitt að þegar þeir eru að rannsaka þessi andlát?

Örugglega, alveg eins og hjá 19 ára bandarísku stúlkunni og þessari 18 ára ítölsku stúlku sem dó eftir eina sprautu af AstraZeneka.

Í kjölfarið hefur ítalska ríkisstjórnin bannað að sprauta því í fólk undir sextugt.

"The government of Italy has suspended AstraZeneca/Oxford University’s experimental AZD1222 COVID-19 vaccine for people under 60 years of age in that country.

The decision, announced on June 11, 2021, follows the recent death of 18-year-old Camilla Canepa, who died of a cerebral  due to a blood clot 16 days after receiving the first dose of the experimental vaccine on May 25."

Norðmenn eru alfarið hættir að nota það vegna hættu á blóðtöppum, en við, víkingarnir upp á Íslandi kipptum okkur ekkert upp við svoleiðis smámuni, og fengum a.m.k. 16.000 skammta að láni þaðan.

Fyrir þá sem ekki þegar vita það, þá eru þessi lyf í tilraunafasa til 2023, svo þeir sem láta sprauta sig eru því tilraunadýrin, svo öll fyrirfram loforð um öryggi og virkni eru ekkert annað en lygi.

Lyfjarisarnir fengu "neyðarleyfi" til að framleiða þau og selja vegna þess að það væri engin lækning til við Covid, en sannleikurinn er sá að til eru hræódýr lyf eins og Ivermectin og Hydroxychloroquin sem hafa reynst mjög vel fyrir Covid sjúklinga.

Þessum lyfjum og öðrum var læknum skyndilega bannað að ávísa í fyrra, og öll umfjöllun um þau á YouTube og samfélagsmiðlum miskunnarlaust eytt út, þið getið séð nokkur dæmi um það hér.

Er fólk ekki enn farið að fatta að útgöngubönnin, rústun efnahags landa, bönn við að hitta ástvini og annað fólk, grímuskyldan, þessar bólusetningar á nánast öllu mannkyninu, og svo bóluefnapassarnir núna hafa bara EKKERT með heilsu okkar að gera eða bjarga lífum?

Fyrir áhugasama er hér mjög fræðandi og gott viðtal Dr. Reiner Füellmich  við Dr. Roger Hodgkinson.


Ákall til Alþingismanna og Ríkisstjórnar Íslands þann 17. júní árið 2021!

Til alþingismanna og ríkisstjórnar Íslands

Þið hafið samkvæmt samningi ykkar við Evrópusambandið um bóluefnakaup,
sem lekið hefur verið á Netið, (sjá viðhengi) samþykkt leynilega
bóluefnatilraun á íslensku þjóðinni, án hennar vitundar. Í samningnum
stendur skýrt og greinilega:

„The risk of failure is very high in this experimental trial“ eða
„Áhættan á mistökum er mjög mikil í þessari tilraun.“

Með því að samþykkja leynilega bóluefnatilraun á íslensku þjóðinni án
hennar vitundar hafið þið brotið flestar greinar Laga um
vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, Nuremberg siðareglurnar sem og
Mannréttindasáttmála Evrópusambandsins.

RANNSÓKNIR SÝNA SKAÐSEMI GADDAPRÓTEINSINS

Ótal læknar hafa varað við bóluefnunum, meðal annars hinn bandaríski Dr.
Peter McCullough, en hann segir að yfirleitt skrái yfirvöld ekki nema
1-10% af aukaverkunum bóluefnanna og því sé tala
látinna af völdum þeirra mun hærri en gefin er upp hvar í  heiminum sem
er. Nýjustu rannsóknir japanskra vísindamanna, sem gerðar voru fyrir
lyfjarisann Pfizer sýna að gaddapróteinið úr bóluefnum Pfizer/BioNTech
veldur skaða á öllum líffærum líkamans ef viðkomandi smitast af Covid
eða ónæmiskerfið fær aðra ertingu. Það veldur því ofurmögnun ónæmissvars
(Antibody Dependent Enhancement) og leiðir fólk til dauða frekar en bata, samkvæmt niðurstöðum úr fyrstu krufningunni eftir bólusetningu.

Þið RÁÐAMENN GÓÐIR BERIÐ ALLA ÁBYRGÐ Á ÞESSU BÓLUSETNINGARFERLI ÖLLU SAMAN!

Í ljósi nýjustu upplýsinga um skaðsemi bóluefnisins og svik og pretti
varðandi upplýsingar um uppruna veirunnar og skaðsemi hennar, teljum við
að þið séuð með tilræði gagnvart íslensku þjóðinni ef þið haldið áfram bólusetningaráætluninni samkvæmt samningnum við Evrópusambandið. Áætlanir sóttvarnalæknis með samþykki ykkar, hvort sem er þegjandi eða ekki, um að bólusetja alla þjóðina, geta valdið ómældum fjölda andláta hjá stórum hluta
þjóðarinnar og skaðað börn framtíðarinnar.

Krafa okkar er því að þið STÖÐVIÐ NÚ ÞEGAR allar bólusetningar í landinu
– til að sleppa við stórfelldar ákærur um þjóðarmorð, um kærur um
alvarlegar og varanlegar aukaverkanir hjá fjölda manns eftir bólusetningar, um ófrjósemi kvenna og karla, um stórfelldan skaða á börnum og um föðurlandssvik fyrir framsal fullveldisréttar Íslands til Evrópusambandsins.

Þið hafið því val um að hafa á samviskunni þjóðarmorð eða takast á við
það sem fylgir samningsrofi við Evrópusambandið um bóluefnasamningana.

VELJIÐ AÐ BJARGA ÞJÓÐ OKKAR!

EKKI NÝTA 17. JÚNÍ TIL SJÓNARSPILS

Við gerum okkur grein fyrir að þið kunnið að hafa áætlun um að setja á
svið „leikrit“ með nýju afbrigði af smiti á 17. júní, þegar fólk safnast
saman til hátíðarhalda í Reykjavík, líkt og „leikritið“ sem sett var upp á Capitol Hill í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári með innrás í þinghúsið!

Tilgangur slíks „leikrits“ væri væntanlega að koma á
skyldubólusetningu eða útgöngubanni, samanber viðtal við Ólaf Þór
Gunnarsson  þingmann VG á Vísi 26. janúar s.l., en hans
er einnig getið sem sérstaks tengiliðs í bóluefnasamningnum á bls 44,
undir liðnum II.21.1.

Væri slíkt „leikrit“ sett upp, eru að okkar mati líkur á að það sé gert
til að beita þvingunum við að koma bóluefnunum út fyrir 4. júlí. Við
höfum því sent út viðvaranir á samfélagsmiðlunum um að slíkt geti gerst.

ENDURHEIMTUM FULLVELDISRÉTTINN

Í dag, þann 17. júní árið 2021, er hins vegar fínn dagur til að
endurheimta fullveldisréttinn og verja land og þjóð og yfirlýsa að hætt
sé við frekari bólusetningar. Við bíðum spennt eftir því að heyra þá
yfirlýsingu.

Með þjóðhátíðar kveðjum

f.h. Mannréttindasamtakanna MÍN LEIÐ MITT VAL
www.mittval.is

Sigurlaug Þuríður Ragnarsdóttir formaður
Kristín Þormar gjaldkeri
Guðrún Bergmann ritari
Ragnar Unnarsson varaformaður
Leifur Árnason varamaður
Birgir Björgvinsson varamaður


https://thelibertyloft.com/more-and-more-doctors-warning-against-covid-shots
https://www.cell.com/cell/pdf/S0092-8674(21)00662-0.pdf
https://gudrunbergmann.is/tifandi-timasprengja

https://www.visir.is/g/20212065663d/vilja-bida-med-utgongubann-og-skyldubolusetningu?
https://www.rai.it/dl/doc/2021/04/17/1618676600910_APA%20BioNTech%20Pfizer__.pdf

https://gudrunbergmann.is/gengid-a-mannrettindin
https://vimeo.com/122625151
https://www.althingi.is/lagas/nuna/2014044.html
https://www.althingi.is/altext/stjt/2018.144.html
https://gudrunbergmann.is/athugasemdir-vid-ny-sottvarnalog
https://gudrunbergmann.is/aukaverkanir-boluefnanna
https://gudrunbergmann.is/bref-til-velferdarnefndar-althingis
https://gudrunbergmann.is/tifandi-timasprengja
https://gudrunbergmann.is/fordist-covid-19-boluefnin
https://gudrunbergmann.is/athugasemdir-vid-boluefnid-fra-pfizer
https://gudrunbergmann.is/covid-spurningar-an-svara
https://gudrunbergmann.is/thvingunum
https://gudrunbergmann.is/aukning-aukaverkana-i-bretlandi
https://gudrunbergmann.is/naestum-20-000-aukaverkanir-tengdar-augum
https://gudrunbergmann.is/pcr-prof-lokanir-og-mutumal-vegna-covid-19
https://gudrunbergmann.is/31-astaeda-fyrir-thvi-ad-eg-laet-ekki-sprauta-mig


Tilkynntum aukaverkunum fjölgaði um 151 á einni viku, þar af 13 alvarlegum, og fleiri eru látnir í USA eftir bólusetningar undanfarna 5 mánuði en allan síðasta áratug!

Uppfært 17. júní, Lyfjastofnun leiðrétti tölurnar einhvern tímann eftir að ég birti þetta, og tilkynningunum fjölgaði um 7, svo ég ætla að leiðrétta  tölurnar hér fyrir neðan.

Í dag, miðvikudaginn 16. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.680, voru 1.649 í gær, svo þetta er fjölgun um 31.

Pfizer var með 624 tilkynningar, þar af 20 andlát og 33 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 638. Fjölgun um 14.

Moderna var með 296, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 300. Fjölgun um 4.

AstraZeneka var með 604, þar af 3 andlát og 43 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 610. Fjölgun um 6.

Janssen var með 125, þar af 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 132. Fjölgun um 7.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 115, fjölgun um 3 síðan í gær, þar af 23 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 74 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 860 á aðeins þessum eina og hálfa mánuði.

Mér datt í hug að bera saman tölur dagsins við tölurnar 9. júní, og aukningin er sláandi, heildarfjölgun 144, þar af 13 alvarlegum!

Skelfileg fjölgun andláta og aukaverkana í Bandaríkjunum

Svínaflensubólusetningum var hætt í Bandaríkjunum árið 1976 eftir að 40 milljónir höfðu verið bólusettar og 25 andlát og yfir 500 tilfelli af "Guillain-Barre" sem voru mögulega tengd þeim.

Þessi grein var birt 12. júní s.l., og þá hafði andlátum þar í landi fjölgað um 700 frá vikunni áður!

"VAERS COVID Vaccine Data (Vaccine Adverse Events Reporting System, USA)

329,021 Reports Through June 4, 2021
DEATHS 5,888
HOSPITALIZATIONS 19,597
Urgent Care 43,891
OFFICE VISITS 58,800

ANAPHYLAXIS 1,459
BELL’S PALSY 1,737
Life Threatening 5,885
Heart Attacks 2,190
Myocarditis/Pericarditis 1,087
Thrombocytopenia/Low Platelet 1,564
Miscarriages 652
Severe Allergic Reaction 15,052
Disabled 4,583"

Og hér segir:

"Vaccinated People are Dying of Covid at Over 5x the Rate of the Unvaccinated in UK

www.gov.uk/government/publications/investigation-of-novel-sars-cov-2-variant-variant-of-concern-20201201

Unvaccinated: 23 / 19,573 = 0.0011750881316099
Fully vaccinated: 12 / 1,785 = 0.0067226890756303
Difference: 0.0067226890756303 / 0.0011750881316099 = 5.721x

The fully vaccinated crowds is about 5.721 times as likely to die, according to this data.

Anybody have any idea what is happening?"

Uppi eru grunsemdir um að VAERS sé núna að falsa dánartölur, sem kemur hreint ekkert á óvart.

Nú á loksins, eða er búið að reka Dr. Fauci fyrir embættisglöp og glæpi gagnvart þjóð sinni, eftir að mörg þúsund tölvupóstar hans voru birtir, en hefur það birst ennþá í innlendum fjölmiðlum?

Ónei, ekkert frekar en allar fréttirnar um þessar hörmulegu afleiðingar af þessum svokölluðu bólusetningum.

Ég bloggaði í gær um 19 ára stúlku sem dó skelfilegum dauðdaga eftir Moderna sprauturnar, og þetta er því miður bara ein saga af þúsundum.

Hér á landi á hvergi að slá af í þessum eiturgjöfum sem ég vil kalla þær, því bóluefni er rangnefni á þessum efnum, því þetta eru ekki bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til.

"Nurnberg réttarhöldin verða álitin barnaleikur hjá því sem kemur í kjölfarið á þessum glæpaverkum."

Þetta er athugasemd sem Þorsteinn Siglaugsson setti undir bloggið mitt um 19 ára stúlkuna, og þetta eru svo sannarlega orð að sönnu.

 


19 ára stúlka var spennt að fá seinni bólusetninguna, nú er móðir hennar að undirbúa jarðarför hennar.

Simone Scott var lífsglöð, heilbrigð og vinsæl 19 ára stúlka á sínu fyrsta ári í háskóla.

Þegar opnað var fyrir bólusetningar, ákvað hún sjálf að láta bólusetja sig, og var það með Moderna. Fékk hún fyrri skammtinn 3. apríl, og allan mánuðinn þjáðist hún af þreytu og var með sífelldan hósta.

Móðir hennar bað hana að fara til læknis, en hvorug þeirra setti veikindin í samband við sprautuna, svo fékk hún seinni skammtinn 1. maí, en virtist ekki hafa fengið miklar aukaverkanir eftir hana.

Hún skrapp í óvænta heimsókn heim til sín nokkrum dögum síðar og móðir hennar tók eftir því að hún væri þreytuleg, og aðspurð sagðist hún sífellt vera að fá blóðnasir.

Nokkrum dögum síðar átti hún sýndarfund með lækni, en hún gleymdi að segja honum að hún hefði tekið eftir bólgnum eitlum daginn áður. Læknirinn sagði að hún væri líklega með ofnæmi.

Daginn eftir leið henni ekki vel og fór á heilsugæslu háskólans, greindist neikvæð í öllum prófum, nema læknirinn tók eftir óreglulegum hjartslætti og sagði henni að fara á neyðarmóttökuna ef henni versnaði.

Daginn eftir var hún komin með hálsbólgu og heilsufar hennar versnaði með hverjum deginum. Foreldrar hennar voru eðlilega orðnir áhyggjufullir, móðir hennar lagði af stað til hennar í skólanum, og faðir hennar bað staðarlögregluna að athuga með hana. Þeir fundu hana mjög veika og hringdu eftir sjúkrabíl.

Þegar móðirin kom á sjúkrahúsið var henni sagt að dóttir hennar væri með hjartabilun og þyrfti strax að komast í aðgerð.

Hún var greind með hjartavöðvabólgu (myocarditis) sem læknar töldu vera veirusýkingu sem hefði ráðist á hjartað.

Til að segja langa sögu stutta, þá báru allar tilraunir til að laga hjartað ekki árangur og heilsa hennar fór dagversnandi, þar til foreldrunum var sagt að hún þyrfti að fá nýtt hjarta.

Hún komst í aðgerð, en lungun hennar voru orðin of illa farin til að þola ónæmisbælandi lyfin sem hún þurfti að fá í kjölfarið, og hélt heilsu hennar áfram að hraka.

Um morguninn 11. júní var foreldrunum sagt að baráttan væri töpuð og að þau ættu að koma til að kveðja hana, og var hún úrskurðuð látin fyrir hádegið.

Þau margbáðu um að þetta yrði tilkynnt til VAERS gagnagrunnsins, en læknarnir voru frekar áhugalitlir um það, loksins ákvað einhver starfsmaður að gera það, daginn áður en hún lést.

"Doctors appear to have repeatedly missed signals as Simone’s condition worsened in the two weeks following her second shot – before she abruptly crashed.

In mid-May, Israel was reporting high rates of cases of mRNA vaccine-related myocarditis in young people.
 
But in the United States, vaccinations had just been opened for 12-15 year-olds - and @CDCgov played down the myocarditis risk in young people.

In a statement May 17, the day after Simone died, the CDC reported that it had found “relatively few reports of myocarditis to date...”
 
Simone’s physicians still have not confirmed that her vaccine caused her heart failure."

Nú vilja foreldrarnir segja sögu hennar til að vekja athygli á hættunni á hjartavöðvabólgum í kjölfar Covid bólusetninga.

Þau er núna búin að missa eina barnið sitt.

12. maí, fjórum dögum áður en hún veiktist, þá setti skólinn hennar fram þá kröfu að allir nemendur, með örfáum undantekningum yrðu að vera bólusettir fyrir haustönnina.
 
Þessa átakanlegu frásögn má lesa í heild sinni hér.

 


Tilkynntum aukaverkunum fjölgaði um 28 frá í gær og eru nú 1.649, og bóluefnin eru tifandi tímasprengja um allan heim!

Í dag, þriðjudaginn 15. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.649, voru 1.621 í gær, svo þetta er fjölgun um 28.

Pfizer var með 611 tilkynningar, þar af 20 andlát og 31 önnur alvarleg.
Nú eru þær orðnar 624. Fjölgun um 13.

Moderna var með 293, þar af 12 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 296. Fjölgun um 3.

AstraZeneka var með 603, þar af 3 andlát og 43 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 604. Fjölgun um 1.

Janssen var með 114, þar af 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 125. Fjölgun um 11.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 112, fjölgun um 3 síðan í gær, þar af 23 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 71 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 836 á aðeins þessum tæplega eina og hálfa mánuði.

Ég get ekki hlaðið inn myndum lengur, er víst búin með leyfilegt gagnamagn hérna, og það breyttist ekkert þótt ég færi inn í eldri færslur og eyddi út myndum, en súluritið má sjá hér.

Janssen virðist heldur betur vera að sækja í sig veðrið, aukaverkunum fjölgaði um 11 frá í gær, og þegar er búið að tilkynna um 3 alvarlegar.

Líklega eru allar þessar aukaverkanir og andlát bara tómar tilviljanir og ekkert tengdar sprautunum, eins og innlendir sem erlendir sérfræðingar halda fram!

Tifandi tímasprengja!

Guðrún Bergmann er búin að skrifa grein um krufningu á fyrsta einstaklingnum sem vitað er að hafði verið bólusettur. Hann hafði fengið neikvæða svörun úr PCR prófi 18 dögum eftir bólusetningu, en var látinn 28 dögum eftir hana.

Niðurstöðurnar voru skelfilegar, og í krufningunni kom í ljós að hann var með RNA veirur í nánast öllum líffærum líkamans! Talið er að hann hafi smitast af veirunni af öðrum sjúklingi eftir að hann var lagður veikur inn á sjúkrahús.

Lesið endilega þessa grein, ykkur mun bregða í brún!

 


Lygarnar í BBC munu valda dauða barna, segir læknir sem hingað til hefur haft rétt fyrir sér um allt varðandi þennan faraldur!

Þessi læknir kallar sjálfan sig gamla manninn í stólnum, og hann hefur verið einn allra öflugasti talsmaðurinn í heiminum gegn þessum skaðræðis aðgerðum undanfarið ár í nafni einhverra sóttvarna og baráttu gegn veirunni umtöluðu.

Þetta er hann Dr. Vernon Coleman, sem hætti fyrir löngu að starfa sem læknir, því honum ofbauð spillingin og starfshættirnir í breska heilbrigðiskerfinu.

Hann er búinn að leggja þrotlausa vinnu í uppljóstranir á hvað er á bak við þennan faraldur, og getur leyft sér það því hann er algjörlega óháður og fær ekki krónu greidda fyrir alla sína vinnu. Og hingað til hefur hann haft rétt fyrir sér, og allt sem hann spáði fyrir um hvað myndi gerast hefur raungerst.

Í þessu vídeói fjallar hann um hvernig BBC sé núna að ljúga að börnum, sem nú þegar eru skelfingu lostin eftir heilt ár af hræðsluáróðri, með því að segja að þessi bóluefni séu 100% örugg.

BBC hefur fengið til liðs við sig konu að nafni Devi Sridhar sem er ekki einu sinni læknismenntuð, og framleiddi þátt með yfirskriftinni "Pfizer vaccine for 12-15 year olds: Your Questions answered".

Þar segir þessi kona meðal annars:

"The benefit of getting the vaccine is that you don’t need to worry about covid-19. It means you’re likely to not infect your parents, the people you live with and your teachers."

"Some children experience similar side effects to adults – these include fatigue, having a headache, feeling generally unwell, but these cleared within a day or two. And it seems a small price to pay for actually being protected from the real disease."

Þetta eru að sjálfsögðu helberar lygar, og hann hrekur þær með staðreyndum:

"The truth is that in America, the data up to the 28th May 2021 for 12 to 17-year-olds shows that there have been 4,740 total adverse events including 117 rated as serious and four reported deaths. Two 15-year-olds died and a 16-year-old and a 17-year-old. Those are the confirmed deaths. There are others not yet confirmed."

Þeir sem hafa horft á vídeóin hans undanfarið ár vita að hann er mjög orðheppinn og bregður oft fyrir sig hinni alkunnu bresku kaldhæðni, en í þessu vídeói fer ekki framhjá neinum að hann er máttlaus af reiði yfir þessum áróðri sem beint er gegn börnunum.

Og hugsið ykkur, hér á landi er líka búið að gera vídeó um "gagnsemi bólusetninga", sem var, eða átti að vera sýnt í grunnskólum landsins!

Hér segir að Moderna sækist eftir markaðsleyfi fyrir unglinga, og hér segir Þórólfur sóttvarnarlæknir:

"Börn­um á aldr­in­um 12-16 ára með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma verður boðin bólu­setn­ing við kór­ónu­veirunni hér á landi, fyrst um sinn aðeins með bólu­efni Pfizer, enda er það eina fá­an­lega bólu­efnið með markaðsleyfi fyr­ir þann ald­urs­hóp."

Meira að segja Helga sem er skopmyndateiknari Morgunblaðsins er nóg boðið, og í blaðinu í dag er birt mynd eftir hann þar sem segir: "Jæja, þá er komið að börnunum".

Þið sem öllu ráðið hér, látið börnin í friði!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband