Tilkynningum um aukaverkanir eftir bólusetningarnar fjölgaði um 162 frá 14 - 21 maí!

2305Hvað vitum við um þessi tilraunaefni/líftæknilyf sem liggur svo á að sprauta okkur með?

Nánast ekki neitt, (þó vitum við þetta um Moderna) samt fer fólk í tugþúsundavís í Höllina og lætur sprauta þeim í sig! Jóhannes Þór Skúlason missti af Eurovision partýi í gærkvöldi því hann var á Landspítalanum vegna aukaverkana eftir AstraZeneka sprautu. Vonandi nær hann fljótt heilsu aftur.

Það er búið að hamra á því í heilt ár núna að ekkert geti leitt okkur út úr þessum faraldri nema einhverjar bólusetningar, sem þegar hafa átt þátt í andlátum a.m.k. 20 manns, og valdið öðrum 60 alvarlegum skaða hér á landi.

Eric Clapton lét glepjast af stanslausum áróðri um að láta sprauta sig, og varð mjög veikur eftir AstraZeneka sprauturnar og dauðsér eftir að hafa látið blekkjast.

Enginn veit fyrir víst hvaða áhrif þessi efni geta haft á fólk í framtíðinni, enda hefur svona tegund af lyfjum aldrei verið notuð áður á lifandi manneskjur.

Öll fyrirfram loforð um virkni og öryggi lyfja sem eru í tilraunafasa til ársins 2023 eru bara orðin tóm eða hreinlega lygar.

Gleymum aldrei svínaflensubóluefnunum sem Þórólfur og Haraldur Briem hvöttu alla til að láta sprauta í sig árið 2009.

Hundruðir ungmenna sködduðust fyrir lífstíð vegna þeirra, bæði hér á landi og á hinum Norðurlöndunum.

Það má líka spyrja sig hverjir hafa mestu hagsmunina af því að bólusetja nánast allt mannkynið núna vegna veiru sem 99,7% fólks lifir veikindi af?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Lýta stjórnvöld ekki svo á að þessi atvik séu "ÓTENGD" bólusetningunum?????? Eða segja það í það minnsta.....

Jóhann Elíasson, 23.5.2021 kl. 15:34

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Jú blessaður vertu, þetta er sagt út um allan heim, líka þegar kornungt og heilbrigt fólk dettur niður steindautt eftir sprauturnar, allt tómar tilviljanir bara!

Hér á landi er lögð rík áhersla á að þau sem eru þegar látin hafi verið öldruð og/eða með alls konar undirliggjandi sjúkdóma.

Einhverra hluta vegna var aldrei á það minnst þegar gamla fólkið dó "úr Covid" í fyrra!

Kristín Inga Þormar, 23.5.2021 kl. 16:09

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Frábærlega orðað hjá þér.... cool wink laughing

Jóhann Elíasson, 23.5.2021 kl. 16:18

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

 Kærar þakkir Jóhann! laughing

Kristín Inga Þormar, 23.5.2021 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband