Sífellt fleiri aukaverkanir eru tilkynntar um heim allan - fólk er að skaðast og deyja í þúsundvís!

1705cRúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar er ekki skemmt yfir að verið sé að dreifa "falsfréttum" um bólusetningarnar, og flökkusögum um fólk sem á að hafa fengið alvarlegar aukaverkanir eftir þær.

Annað hvort er þessi manneskja ekki starfi sínu vaxin, eða hún hreinlega segir ósatt, þegar hún þrætir fyrir aukaverkanir, þrátt fyrir að nú sé þegar búið að tilkynna um 89 alvarlegar hér á landi, fyrir utan allar hinar sem teljast ekki alvarlegar!

Þögn stofnunarinnar varðandi í hverju aukaverkanir felast er hreinlega æpandi. Jú við erum búin að fá að heyra um að einhverjir hafi fengið blóðtappa eftir bólusetningarnar, þó með þeim fyrirvara að lítið bendi til tengingar þarna á milli.

Nákvæmlega það sama er sagt um þessa (a.m.k.) 20 sem eru látnir!

Upplýsingarnar sem við eigum rétt á að fá, eru í skötulíki hér á landi, sjá hér.

Það er verið að sprauta sömu efnunum í fólk um heim allan, svo við skulum gera ráð fyrir að samskonar aukaverkanir geti komið fram hjá fólki hér á landi.

Hvað vitum við um innihald þessara efna sem verið er að sprauta í okkur? Ákaflega lítið, en hér skrifaði ég um eitt stórhættulegt efni í Moderna.

Guðrún Bergmann hefur ötullega tjáð sig um þessar bólusetningarnar og aukaverkanir, og hefur lagt gríðarlega vinnu í upplýsingaöflun og þýðingar á erlendum greinum, svo ég ætla að leyfa mér að fá efni úr nokkrum þeirra að láni, og ég hvet ykkur að lesa hverja einu og einustu þeirra.

Í grein sem hún birti 18. mars s.l. birti hún þessa töflu:

(Smellið á myndirnar til að sjá þær betur!)

2905

 

Í annarri grein sem hún birti 14. maí s.l. má sjá eftirfarandi lista, sem er þó ekki tæmandi:

2905a

Í grein sem hún birti 6. maí s.l. fjallar hún um tæplega 20.000 aukaverkanir tengdar sjón og augun:

2905b

Svo vil ég endilega benda fólki á að lesa þessa mögnuðu grein sem hún þýddi eftir ísraelskan rabbína, með yfirskriftinni "31 ástæða fyrir því að ég læt ekki sprauta mig".

Staðreyndin er bara sú, að það er logið að okkur alla daga hér á landi, það á að sprauta þessum efnum í okkur hverju sem tautar og raular. Er ekki einhver hellingur af efnum á leiðinni til landsins í næstu viku?

Margir eru búin að fá mörg boð (skipanir) um að mæta í Höllina, þrátt fyrir að vera búnir að láta taka sig af bólusetningarlistanum. Er það löglegt?

Bólusetningar eiga víst að vera frjálsar hér á landi, samt hefur fólk neyðst til að láta sprauta sig til að halda störfum sínum, og ég skrifaði nýlega grein á Facebook síðu minni upp úr hljóðviðtali sem vinkona mín tók við konu eina.

Sú lá fárveik inni á geðdeild Landspítalans, og þrátt fyrir að neita mörgum sinnum um að láta sprauta sig, lét hún að lokum undan, eitthvað sem hún sér mikið eftir í dag og er eðlilega brjáluð yfir.

Þetta bólusetningaræði í heiminum á eftir að enda með ósköpum, ég ætla enda þetta með viðtali við Professor Sucharit Bhakdi, M.D. sem útskýrir hér hættuna á blóðtöppum og segamyndun í heilaæðum eftir að efnin eru komin inn í líkama fólks.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband