3.6.2023 | 12:49
Hvers vegna er heimselítan svona upptekin af "transhumanisma"?
Nýbúið er að frumsýna heimildarmyndina "Final Days", sem afhjúpar áætlunina um að spilla genamengi mannsins og búa til "erfðafræðilegar viðurstyggðir".
Fyrsta skrefið í að þvinga gervi nanótækni - sjá líka hér upp á okkur mannkynið var útbreiðsla þess sem dulbúið var sem bóluefni, en er í rauninni lífefnavopn.
Þetta sannar líftæknifræðingurinn Karen Kingston með gögnum um miðbik myndarinnar.
Hún segir líka að fólk verði að skilja að vegna þess að við höfum aldrei vitað af þessari illsku, þá sé núna verið að telja okkur trú um að hún sé góð fyrir okkur.
Þetta er samkvæmt plani sem löngu var ákveðið, og hrint í framkvæmd í þessum svokallaða "heimsfaraldri" í ársbyrjun 2020 þar sem magnaður var upp sturlaður ótti mannkynsins gagnvart einhverri veiru.
Okkur var sagt að eina lausnin út úr honum væri glænýtt bóluefni sem verið væri að þróa á mettíma, og þannig tókst að blekkja (og í mörgum tilfellum neyða) stærstan hluta mannkynsins í þessar sprautur, og marga jafnvel í fjórar eða jafnvel fleiri.
Við erum gagnslaus að þeirra mati
Einn hugmyndasmiðanna, Yuval Noah Harari sem er hátt settur í The World Economic Forum (WEF), segir að þessi tækni muni framleiða gagnslausan hóp fólks (þetta má sjá hann segja í myndinni) - semsagt gagnslausan elítunni.
Þessi illu plön heimselítunnar ganga líka út á það að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda", eins og ég hef fjallað um og fært sannanir fyrir í mörgum bloggum undanfarin tvö ár.
Hún er svo hrædd við dauðann - enda margir meðlimir hennar gamlir menn eins og Klaus Schwab, George Soros, Anthony Fauci, Henry Kissinger, Ted Turner og fleiri, og vilja að öllum líkindum að þessi nýja tækni geri þá ódauðlega.
En hvað er "transhumanismi"?
Sú trú eða kenning að mannkynið geti þróast út fyrir núverandi líkamlegar og andlegar takmarkanir, sérstaklega með vísindum og tækni.
Lausleg þýðing:
Heimspekileg og vísindaleg hreyfing sem hvetur til notkunar núverandi og nýrrar tækni - eins og erfðatækni, að frysta látna einstaklinga þar til lækning finnst við banameini þeirra (cryonics), gervigreind (AI) og nanótækni - til að auka getu og bæta ástand mannsins (áherslan er mín).
Transhumanistar sjá fyrir sér framtíð þar sem ábyrg beiting slíkrar tækni (áherslan er mín) geri mönnum kleift að hægja á, snúa við eða útrýma öldrunarferlinu, til að ná samsvarandi aukningu á lífslengd mannsins og efla vitsmunalega og skynræna getu mannsins. Hreyfingin leggur til að menn með aukna getu muni þróast yfir í endurbætta tegund (áherslan er mín) sem fer yfir mannkynið - "endurbættar manneskjur".
Sjá Britannica.com
Nú endurtek ég það sem Karen Kingston segir, að fólk verði að skilja að vegna þess að við höfum aldrei vitað af þessari illsku, þá sé núna verið að telja okkur trú um að hún sé góð fyrir okkur.
Horfið fyrst á viðtal sem tekið var við einn framleiðanda heimildarmyndarinnar "Final Days". Þetta eru trúaðir menn og þeir vitna meðal annars í sköpun Guðs sem þessir menn séu að eyðileggja núna!
Þetta eru þeir sömu og gerðu heimildarmyndina "Died Suddenly" sem fjallar um það sem mætti kalla faraldur skyndilegra dauðsfalla í heiminum eftir sprautuherferðir Covid "bóluefnanna".
Þess má geta að við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af fjölgun dauðsfalla hér á landi, og reyndar höfum við stundum slegið þar met árin 2022 og 2023, enda vel "bólusett" þjóð.
Karen Kingston
Karen Kingston er læknaráðgjafi og líftæknifræðingur með 25 ára reynslu. Hún er alþjóðlega viðurkennd sem sérfræðingur í skaðlegum líffræðilegum áhrifum af völdum mRNA genabreytingartækninnar.
Vefsíður hennar:
Yuval Noah Harari, meðlimur WEF og einn æðsti ráðgjafi Klaus Schwab
Þessi maður er tákn illskunnar og þykir honum ekkert eðlilegra en að tjá sig um álit sitt á þeim sem ekki tilheyra heimselítunni, ekki frekar en "mannvinurinn" Bill Gates sem hefur rætt við heimsleiðtoga um að það sé tími kominn til að byrja að tala um "dauðanefndir" (<== Hér má sjá meira efni um Harari), sem dæmi venjulegt löghlýðið fólk til dauða fyrir það eitt að vera einskis nýtt elítunni.
Hér má sjá Harari og Klaus Schwab meðal annars útskýra "transhumaninsma", og Endurræsinguna miklu - The Great Reset.
Spennandi framtíð fyrir okkur - eða einhver framtíð sem manneskjur?
Sjáið til, ýmsar alþjóðlegar stofnanir eins og WHO, SÞ og WEF sem við höldum að vinni fyrir okkur mannkynið, eru að gera akkúrat hið gagnstæða - og alltaf undir því fagra yfirskini að verið sé að bjarga okkur, frá smitsjúkdómum, hungri, "loftslagsvánni" og Guð má vita hverju öðru.
Þetta má allt finna ef fólk nennir að leita sér upplýsinga.
Eins og fram kemur í myndinni, þá unnu þjóðir heims saman í "heimsfaraldrinum" og sprautuhernaðinum, þar með talið Ísland.
Nú er WHO að reyna valdatöku á heilbrigðismálum heimsins, sem þýðir að stofnunin geti hvenær sem henni dettur í hug lýst yfir einhverri vá sem þurfi að "vernda okkur gegn", og hafi þar með vald til að skella heiminum í lás og jafnvel neyða okkur með lögregluvaldi í einhverjar sprautur, segi hún að upp sé kominn nýr smitfaraldur.
Því miður gera allt of fáir sér grein fyrir því skaðræði sem íslensk stjórnvöld munu leiða yfir þjóðina ef þau skrifa undir þennan samning.
Til að sjá umfjöllun um þennan samning á mannamáli er gott að horfa á Meet Your New World Government: The World Health Organization Pandemic Treaty
Djöfulleg illska gegn mannkyninu
Ef heimildamyndin "Final Days" sannar ekki fyrir ykkur illan ásetning viti firrtrar elítu sem vill okkur allt illt og stefnir að alheimsstjórn, þá skuluð þið ekki bregðast hissa við þegar búið verður að svipta ykkur öllu, enda er planið að við munum "ekkert eiga og vera hamingjusöm" árið 2030.
Ykkar er valið.
Þið gætuð til dæmis spurt heiðursorðuhafann Þórólf hvers vegna hann sagði að það væru bara tveir kosti í boði, að láta "bólusetja" sig eða fá Covid, og hvers vegna hann var yfirleitt að fylgja tilmælum WHO.
Eða Ölmu landlækni - líka heiðursorðuhafa hvernig það geti staðist að öll umframdauðsföllin á síðasta ári mætti skrifa á Covid, þegar stærstur hluti þjóðarinnar á að vera kominn með "vörn" gegn þessari "ægilegu drápspest".
Eða Guðrúnu Aspelund arftaka Þórólfs sem jarmar sömu möntru um "heimsfaraldurinn" og er enn að hvetja fólk í þessar bannsettu eitursprautur.
Það er löngu orðið augljóst að íslenskur almenningur bregst ekki við ranglæti fyrr en það er orðið allt of seint fyrir flesta, við þurfum ekki að leita lengra en til síðasta hruns til að sjá það.
Nú eru verðbólga og vextir í hæstu hæðum, haldið þið að það sé eitthvað náttúrulögmál, en ekki mannanna verk?
Skiljið þið ekki að það eru þeir ríku og ofurríku sem græða á því? Enda er það planið!
Hvað er það í þjóðarsál Íslendinga sem gerir hana svona hlýðna gagnvart yfirvaldinu? Er það vegna þess að hún horfir bara á RÚV, sem fjallar ALDREI um þessi mál?
Erum við núna að upplifa síðustu daga (Final Days) okkar sem manneskjur, er núna búið að breyta genamengi mannkynsins til frambúðar með þessum lífefnavopnum - til að "endurbæta" okkur að þeirra skapi?
Það er engin leið að segja til um það á þessari stundu, en skaðinn er þó þegar skeður fyrir skelfilegan fjölda fólks sem lést - og fólk er enn að látast í kjölfar eitursprautanna, sumt úr hraðvaxandi krabbameinum sem óhugnanleg aukning hefur orðið á undanfarin tvö ár.
Illskan er svo sannarlega raunveruleg, en henni er pakkað inn í svo fallegar og aðlaðandi umbúðir að við föttum það ekki, enda er okkur ekki ætlað að gera það.
Athugasemdir
Það sem þessir apar virðast eki átta sig á, er að til þess að nútíma tæknisamfélag standi undir sér þarf allt þetta fólk.
Og því mun fækka, það er óhjákvæmilegt, fólksfjölgun núina stendur ekki undir sér. Sumstaðar hefur verið búið að því í meira en 40 ár. Það hefur ekkert með NWO eða WHO eða WEF að gera.
Menn hafa svona 20-50 ár enn til þess að fantasera eitthvað um transhumanisma, eftir það verður allt á niðurleið. Það verða önnur forgangsatriði.
Ásgrímur Hartmannsson, 3.6.2023 kl. 22:20
Sæll Ásgrímur,
Þetta eru allt sturlaðir einstaklingar með mikilmennskubrjálæði og ótæmandi trú á eigin yfirburði yfir okkur hinum.
Þessi veröld sem þeir eru að reyna að hanna núna er bara galin og getur að sjálfsögðu aldrei gengið upp.
Maður bara bíður þess að þeirra eigin hroki verði þeim að falli, en skaðinn sem þeir vildu valda með eitursprautunum er skeður og enginn veit hvernig þeim mun farnast í framtíðinni sem fengu eiturbrasið sjálft í æð,
tíminn verður að leiða það í ljós.
En Guð hjálpi okkur ef WHO fær stjórn yfir heilbrigðismálum heimsins!
Kristín Inga Þormar, 3.6.2023 kl. 23:10
Sæl Kristín og þakka þér enn og aftur fyrir þínar frábæru greinar sem eru ætlaðar til að opna augu fólks fyrir því sem er í raun og veru að gerast beint fyrir framan okkur, en því miður svo margir sem sjá ekki þrátt fyrir opin augu.
Þetta elítu fólk sem telur sjálft sig ódauðlegt gerir ekki ráð fyrir hinu augljósa, en það er að það gerir ekki ráð fyrir skapara okkar, Guði allsherjar. Það er Hann sem lifir og Hann mun á einhverjum tímapunkti grípa inní og eyða hinu illa og þá er ég ekki bara að tala um heimselítuna.
En þrengingarnar sem við munum ganga í gegnum ættu að vera til þess að við snúum okkur til Hans, áköllum Hann og tilbiðjum.
Elítan á eftir að reka sig illilega á geri það fólk ekki iðrun og snúi sér frá sinni illu breytni. Í Davíðssálmum er talað um þá sem leggja gildrur fyrir aðra að það sjálft muni falla í þær gildrur, eða það illa sem þú ætlar öðrum mun koma yfir sjálfan þig.
Enn fremur stendur í Biblíunni að óttalegt er að falla í hendur lifanda Guðs því hann er dómari allra manna, Hann dæmir ekki að hætti manna heldur eru dómar Hans réttlátir.
Biblían kennir okkur einnig að Jesús Kristur kom til að frelsa synduga menn, og að allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð, það á við um mig og allt annað fólk. En þeim sem taka við Honum (Jesú) gefur Hann rétt til að kallast Guðs börn.
Jesús talar um að þeir sem ekki komast inn í ríki Hans muni vera varpað út og þar muni vera grátur og gnístran tanna, það er hræðilegur staður til að vera á því hann tekur engan enda. Ég óska engum að lenda þar ekki einu sinni heims elítunni. En hið gagnstæða er ríki Guðs þar sem er eilíf sæla, það ætti að vera keppi kefli allra að stefna þangað og það gerist eingöngu í samfélagið við Drottinn Guð fyrir trú á Jesú Krist.
Tómas Ibsen Halldórsson, 4.6.2023 kl. 00:31
Sæll Tómas og þakka þér kærlega fyrir,
Hvað ætli valdi því að fólk sjái ekki allan þennan hrylling sem er að eiga sér stað í heiminum í dag? Er það vegna þess að aldrei er fjallað um það í þessum aumu fjölmiðlum okkar sem flytja flestir bara skelfilega einhliða fréttir?
Það gæti hugsanlega verið skýring, eða að margir eru kannski hræddir við að setja sig upp á móti þessari "einu leyfðu" umræðu og þar með á móti hjörðinni og yfirvaldinu. Við sem leyfðum okkur það í "heimsfaraldrinum" og sprautuherferðinni fengum svo sannarlega að finna fyrir því og vorum mörg hver úthrópuð sem álhattar og samsæriskenningasmiðir.
Þetta er eitthvað sem skipulega var innprentað hjá fólki, við áttum bara að treysta vísindunum og sérfræðingunum eins og Þórólfi, Ölmu og Kára, og ég man ekki eftir því að Kári hafi fengið mikla gagnrýni fyrir að segja að senda ætti okkur þessi ósprautuðu (óhreinu) út í Grímsey, fólki virtist bara þykja það gott á okkur!
Er það nokkuð tilviljun að búið er að taka kristnifræði út úr kennslu hér á landi og líklega víðar? Nei, það má ekki lengur kenna börnunum Guðs orð, en eins og þú segir, þá mun hann á einhverjum tímapunkti grípa inní. Vonandi fyrr en síðar.
Kristín Inga Þormar, 4.6.2023 kl. 09:34
Erfðabreytingar eru ekkert nýtt á jörðinni. Fallnir englar voru ríkjandi á jörðinni skömmu fyrir nóaflóðið (sem var gert til að losna við þá)
Og voru þeir víst nokkuð duglegir í genabreytingum.
Fallnir englar eru líklega verur sem ferðast um í diskum ýmiskonar, hér og þar um jörðina.
Ekki er ólíklegt að geimverur (fallen angels) hafi krassað diskum hjá amerikönum, sem hafa svo lært af þeim tæknina til að erfðabreyta ?
Hmm, enoksbók hvað.
Loncexter, 4.6.2023 kl. 13:07
Sæll Loncexter,
Hvort þeir hafi lært erfðabreytingatækni af geimverum eða föllnum englum hef ég enga hugmynd um, en þessi tækni, eins og líklega flest önnur getur orðið skelfilega hættuleg í höndum þeirra sem nota hana í illum tilgangi.
Kristín Inga Þormar, 4.6.2023 kl. 19:16
Þetta er gæsahúðarvekjandi pistill.
Það er hægt að gera sitt besta til að þurfa engin lyf. Ég sé ekki að það sé vandamál upp að ákveðnum aldri.
Það er hægt að forðast skuldir svo þessar tilfæringar með peningamagn og vexti hafi sem minnst áhrif, en valkosturinn er þá fyrir marga að leigja, og ekki minnkar það áhrifin sem hægt er að hafa á fólk.
Það þurfa allir orku og mat og þar er gott tangarhald á fólki.
Öll þessi þjónusta ríkisins, sem fæst gegn því að afhenta stóran hluta tekna sinna, er hverful. Og reyndar margra einkafyrirtækja líka - aðgangshindranir að stofnun banka og tryggingafélaga eru slíkar að í raun er búið að búa til skjaldborg utan um þau fyrirtæki sem nú þegar eru á þeim mörkuðum.
Það er kannski bara best að undirbúa Færeyinga til að taka á móti flóttamönnum frá hinum Norðurlöndunum. Ég treysti engum yfirvöldum í heimi betur til að standa á sínu.
Geir Ágústsson, 11.6.2023 kl. 20:57
Sæll Geir,
Já þetta er svo sannarlega gæsahúðarvekjandi og mætti líklega flokka sem samsæriskenningu ef sönnunargögnin sýndu ekki fram á akkúrat hið gagnstæða, enda eru flestar "samsæriskenningarnar" að reynast allt annað en það þessi misserin.
Þetta sem þú segir er alveg hárrétt! Og við erum skattpínd út í það óendanlega, en höfum ekkert um það að segja hvernig skattpeningunum okkar er varið.
Fáum við til dæmis staðreyndar upplýsingar um í hvað þessir milljarðar fara sem greiddir eru til Úkraínu, eða loftslagshítina? Nei, það kemur okkur víst ekkert við.
Það fer að verða meira og meira heillandi tilhugsun að flytja til Færeyja, þessi örþjóð virðist búa yfir meiri heilbrigðri skynsemi en allar aðrar þjóðir til samans, að þeirri íslensku meðtalinni.
Kristín Inga Þormar, 11.6.2023 kl. 22:22
Sammála með Færeyjar.
Snilldarfólk þar á ferð.
Loncexter, 12.6.2023 kl. 11:47
Sæll Loncexter,
Já Færeyingar eru frábært fólk!
Kristín Inga Þormar, 12.6.2023 kl. 13:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.