Færsluflokkur: Bloggar
3.5.2022 | 22:49
Fljótum við sofandi að feigðarósi?
Á meðan þjóðin rífst um Íslandsbankasöluna og önnur mál, eru aðrir og miklu skelfilegri atburðir í vændum, sem flestir fjölmiðlar steinþegja yfir.
Bill Gates hefur tilkynnt um stofnun heimsfaraldursteymis sem mun fylgjast með fullvalda ríkjum og ákveða hvenær þau þurfa að stöðva borgaraleg réttindi fólks, komi upp nýr heimsfaraldur.
Hann segir meðal annars:
Við þurfum samtök sérfræðinga sem eru að fullu fjármögnuð og reiðubúin að koma á samræmdum viðbrögðum við hættulegum faraldri hvenær sem er.
Í bók minni legg ég til að við köllum þennan hóp GERM - Global Epidemic Response and Mobilization - teymið.
Sjúkdómseftirlitssérfræðingar samtakanna myndu leita að hugsanlega hættulegum faröldrum.
Þegar þeir hafa fundið einn slíkan, ætti GERM að hafa getu til að lýsa yfir faraldri og vinna með innlendum stjórnvöldum og Alþjóðabankanum að því að safna fjármagni til að bregðast við honum mjög fljótt.
Sérfræðingar í vöruþróun myndu ráðleggja stjórnvöldum og fyrirtækjum um forgangslyf og bóluefni.
Ennfremur segir hann að teymið myndi með ýmsum löndum samræma ákvarðanatöku um hvernig og hvenær eigi að innleiða lokun landamæra og mæla með grímunotkun.
Samkvæmt honum mun alþjóðlegt teymið samanstanda af 3.000 sjúkdómssérfræðingum sem heyra undir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) og mun fá um 1 milljarð dollara á ári í fjárframlög.
Sjá meira hér.
Við munum fá annan faraldur segir hann
Well have another pandemic. It will be a different pathogen next time, Gates said.
Saga "mannvinarins" Bill Gates er kolsvört, eins og ég fór aðeins yfir hér í fyrrahaust.
Hans fjárhagslegu tengingar eru víða, hann veitir gríðarlegum fjármunum til fjölmiðla, háskóla, lyfjafyrirtækja, sjúkrahúsa, vísindamanna, og WHO, svo fátt eitt sé nefnt, og hver og einn getur getið sér til um ástæðurnar að baki þessarar "gjafmildi" hans.
Á sama tíma - er tímasetningin tilviljun?
Það fer ekki mikið fyrir því í fréttunum að stefnt er að afnámi þjóðlegs fullveldis í heilbrigðismálum á komandi þingi WHO 22. - 28. maí næstkomandi!
Þó hefur Gústaf Skúlason gert þessu frábær skil á Útvarpi Sögu, og þetta er skyldulesning!
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mun á komandi Alþjóðaheilbrigðisþingi í lok maí gera tilraun til valdatöku yfir þjóðum heims með tilllögu um ein miðstýrð alþjóðaviðbrögð við komandi heimsfaröldrum í framtíðinni. Verði tillagan samþykkt og henni framfylgt, þá munu þjóðir heims ekki lengur hafa sjálfsforræði yfir eigin viðbrögðum við sjúkdómum sem skilgreinast sem heimsfaraldur.
Hvað mun þetta þýða?
Þetta mun meðal annars þýða að þessir vitfirrtu glæpamenn muni hafa fullt leyfi til að svipta okkur frelsinu aftur, loka okkur inni, skella öllu í lás, neyða okkur til að láta sprauta í okkur einhverjum "bóluefnum", og neyða okkur til að nota grímur, nánast þegar þeim dettur í hug.
Þetta mun líka þýða að þeim leyfist að setja hömlur á okkur undir hvaða yfirskini sem þeim dettur í hug, í nafni "alþjóðaheilbrigðis", til dæmis setja á okkur "loftslags" lokanir!
Ætla íslensk stjórnvöld að skrifa undir þennan sáttmála "fyrir hönd" þjóðar sinnar?
Ef þau gera það, í hverra þágu eru þau að starfa? Ekki þjóðarinnar sem kaus þau til starfa fyrir okkar hönd, svo mikið er víst!
Já, við fljótum svo sannarlega að feigðarósi núna
Þegar mannleg samfélög tapa frelsi sínu, þá er það venjulega ekki vegna þess að harðstjórar hafi tekið það af þeim, heldur vegna þess að fólk lætur það af hendi af fúsum og frjálsum vilja til að fá vernd gegn einhverri utanaðkomandi ógn sem því er sagt að steðji að.
Covid "heimsfaraldurinn" var bara byrjunin og eftirleikurinn ætlar að verða glóbalistunum auðveldur, nú þegar heimsbyggðin er búin að sýna þeim fram á að hversu auðvelt er að fá fólk til að trúa hverju sem er, og hlýða öllu því sem því er sagt að gera.
Kannski verður okkur bara slétt sama ef framtíðaráætlanir þessa "herramanns" fá að rætast.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
25.4.2022 | 22:12
Nú virðast spár margra því miður vera að rætast.
Sláandi frétt birtist í fjölmiðlunum í dag um að óvenjumikið hafi verið um andlát fyrstu þrjá mánuði ársins, eða 50 á mánuði umfram það sem "eðlilegt" er, og að ekki hafi jafn margir látist á einum ársfjórðungi frá því Hagstofan byrjaði að birta tölur um andlát árið 2010.
Þórólfur
Embættið fylgist vel með dánartölum. Við samanburð á tölum frá árinu 2012 til 2019 annars vegar og hinsvegar við tölur árin 2020 til 2022 hafi komið í ljós að andlátum fjölgaði í marsmánuði í ár meðal fólks hjá einstaklingum 70 ára og eldri en ekki í febrúar.
Í þessari ómíkron bylgju sem við höfum séð núna á þessu ári og sérstaklega í febrúar og mars. Þá eins og við höfum áður verið að benda á virðist covid hafa verið meðvirkandi þáttur í andláti hjá mjög mörgum eldri borgurum og fólki sem er með undirliggjandi sjúkdóma, segir Þórólfur.
Þessi útskýring hans að faraldurinn gæti haft áhrif á fjölda andláta heldur ekki vatni. Hvar er verndin í öllum sprautunum sem hann og fleiri blekktu stærstan hluta þjóðarinnar í, og suma jafnvel þrisvar eða fjórum sinnum?
Gleymum aldrei orðum hans sjálfs
Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu, bætir hann við."
Því miður er það að rætast sem margir óttuðust að myndi gerast. Sumt fólk sem hefur fengið þessar sprautur er ekki aðeins að deyja, heldur er líka mikill fjöldi fólks sem þjáist illa af aukaverkunum, sem sumar eru óafturkræfar.
Ég búin að heyra og sjá frásagnir fjölda Íslendinga - allt niður í börn sem eru sködduð, fyrir utan allt fólkið sem hefur orðið bráðkvatt, eða komið með sjúkdóma eða krabbamein sem hafa blossað upp (aftur).
Ég veit líka um fjöldann allan af fólki sem hefur veikst af "drápsveirunni ógurlegu", þrátt fyrir allar sprauturnar, og sumir illa.
Ég veit líka um fólk sem hefur ekki veikst, þrátt fyrir að hafa ekki látið sprauta sig og aldrei notað grímur.
Upptaka með forstjóra AstraZeneca frá desember 2020 sem lak út
Hér má meðal annars heyra hann segja að ekki megi bólusetja milljónir manns sem hafa ónæmissjúkdóma eins og rauða úlfa, MS eða aðra ónæmissjúkdóma, fólk verði að fá vernd annars staðar frá, eins og með "monoclonal antibody treatment", sem ég kann ekki að útskýra nánar.
Samt voru þessar meðferðir sem höfðu fengið viðurkenningu og samþykki hjá hinu bandaríska FDA bannaðar, í þágu nýju "bóluefnanna".
Rétt eins og Nóbelsverðlaunalyfið Ivermectin sem búið er að gefa í milljarðaskömmtum í áratugi.
Það var víst ekki nógu vel rannsakað....
Gleymum heldur aldrei orðum Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur
Öll bóluefnin eru góð, segir Ragnheiður. Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð, bætir hún við.
Ég er ekki viss um að þessir 6.160 einstaklingar séu sammála henni.
Fólk sem er örugglega ekki heldur sammála Þórólfi og Ragnheiði
- Ítarlegur listi yfir fólk sem lést eftir sprauturnar
- Tví/þrísprautaðir eru núna 81% þeirra sem látast úr Covid á Nýja Sjálandi
- Covid "bóluefnin" valda 16.633% fleiri fósturlátum en flensubóluefni
- Yfir 50.000 Bandaríkjamenn yfir 65 ára aldri létust innan tveggja vikna eftir sprauturnar
- Lygar Anthony Fauci um virkni og öryggi "bóluefnanna"
- 1.000 Covid sögur
- Frásagnir fórnarlamba "bóluefnanna"
Fólk ársins 2021
Þau voru kosin fólk ársins 2021, fólkið sem hefur verið andlit bólusetningarherferðarinnar útávið. Þau hafa aldrei talað um aukaverkanirnar né þá sem létust strax í kjölfar sprautanna, en þeir eru vel á fjórða tug núna skv. síðustu tölum.
Þau, Kári og fleiri hafa aldrei gert annað en að dásama þessi "bóluefni", sem eru ekki bóluefni eins og við höfum þekkt hingað til, og hafa valdið skelfilegum skaða og dauðsföllum hér á landi og á heimsvísu.
Það er löngu kominn tími til að þjóðin fari að horfast í augu við það hún hefur verið stórkostlega blekkt í yfir tvö ár núna.
Stóra spurningin er hins vegar hvort það sé ekki orðið of seint - fyrir marga?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
23.2.2022 | 21:25
Hérna sé ég stórt hættumerki!
Að minnsta kosti þrjár fréttir hafa verið birtar á Mbl.is í dag um afléttingar á takmörkunum, þrungnar af áhyggjum af heilbrigðiskerfinu.
En af öðru hef ég miklu meiri áhyggjur
Tvær þessara frétta segja:
Þá segir Katrín ekki útilokað að aðgerðir verði teknar upp aftur mjög hratt ef ástæða þykir, til að mynda vegna tilkomu nýrra afbrigða.
og
Yfirvöld þurfa áfram að vera tilbúin að grípa til opinberra sóttvarnaráðstafana með litlum fyrirvara ef hingað berast ný afbrigði kórónuveirunnar sem valda alvarlegum sjúkdómi og ónæmi af fyrri sýkingum eða bólusetningum vernda illa gegn.
Þau ætla sér þá semsagt að beita enn og aftur sömu aðgerðunum sem hafa ekkert virkað hingað til þegar ný "afbrigði" spretta upp, þrátt fyrir bólusetningar, sóttkvíar, einangranir, spritt og grímur.
Þau vilja geta skellt öllu í lás, skella á grímuskyldu og hvetja fólk í "örvunar"sprautur, enda nóg eftir af "bóluefninu".
En við erum orðin svo hlýðin og meðfærileg eftir tveggja ára stanslausan hræðsluáróður og heilaþvott, að það verður örugglega lítið mál.
En þá er stóra spurningin, hversu oft og hversu lengi eigum við að sætta okkur við að vera svipt sjálfsögðum mannréttindum og frelsi í nafni einhvers "öryggis"?
Fyrst var það gert undir því yfirskini að vernda gamla fólkið, fólk með undirliggjandi sjúkdóma, og heilbrigðiskerfið.
Nú er gamla fólkið og það viðkvæma flest löngu orðið þrísprautað og raunar lunginn af þjóðinni líka, og byrjað er á fjórðu sprautunni einhvers staðar - á viðkvæmu hópunum.
Dettur engum í hug að efast um að aðgerðir undanfarinna tveggja ára hafi með eitthvað allt annað að gera en einhverja veiru?
Hvernig getur þetta staðist?
Það hafa vissulega margir verið lasnir undanfarið, en einhverra hluta vegna hefur gamla góða flensan lítið eða ekkert greinst í tvö ár núna, bara Covid!
Á vef landlæknis segir (síðast uppfært 09.12.2021!):
Á vetri hverjum gengur inflúensan yfir norðurhvel jarðar á tímabilinu október til mars og er hún 23 mánuði að ganga yfir. Sambærilegur faraldur gengur síðan yfir á suðurhveli jarðar á tímabilinu júní til október. Í þungum faraldri eykst álag á heilbrigðiskerfið og í samfélaginu verður áberandi aukning á fjarvistum vegna veikinda, frá vinnu og skóla.
Árleg inflúensa kemur verst niður á eldri kynslóðinni og einstaklingum með undirliggjandi sjúkdóma með auknum fjölda dauðsfalla í kjölfar inflúensunnar vegna alvarlegra fylgikvilla hennar. Fyrir flesta er inflúensan hins vegar óþægileg veikindi sem ganga yfir á nokkrum dögum án alvarlegra afleiðinga.
Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega með háum hita, skjálfta, höfuðverk, beinverkjum, þurrhósta og hálssærindum.
Hvernig getur flensa gengið yfir norðurhvel jarðar á tímabilinu október til mars, en samt nánast hvergi greinst, bara Covid?
Hér er fín grein um hvers vegna flensan "hvarf".
However, deaths in 2020 for influenza were recorded at just 394 and pneumonia at 13,619.
So what happened to the other 20+ thousand UK flu deaths? Simple, they were called Covid deaths, to instil fear in the population.
The fraudulent distortion if these numbers have been replicated across all nations especially those that are controlled by governments of a certain political leaning for political fearmongering to support their political objectives.
Lesið síðustu málsgreinina hér fyrir ofan, sama handritið hefur líka verið notað af íslenskum stjórnvöldum!
Hræðsluáróðurinn
Um daginn var það gert að frétt að sonur Katrínar hafi verið greindur með veiruna, svo Katrín, svo Bjarni Ben., svo Sigurður Ingi, og kannski fleiri.
En það er ekki annað að sjá en að þetta fólk sé bara við bestu heilsu í dag.
Svo er það núna gert að forsíðufréttum að fólk, jafnvel á ní- og tíræðisaldri deyi með veiru í sér, ekki vegna hennar. Þessi andlát voru kannski ekkert aldurstengd....
Og endalausar daglegar tölur um smit sem greind eru með þessum fölsku PCR prófum sem nú á að leggja af að mestu, og notast við einhver hraðgreiningarpróf.
Slík próf hafa gefið "jákvæðar" niðurstöður þótt engin sýni hafi verið tekin úr fólki, eða sýni tekin úr ávöxtum, kóki, rauðvíni, geitum og fleiru.
Sjáum til hvort ný "afbrigði" skjóti upp kollinum fyrir páskana. Hún er óttalega hrekkjótt þetta kvikindi og líkar best að láta á sér kræla rétt fyrir jól, páska og verslunarmannahelgar.
Sjáum til hvort eina leiðin (eina ferðina enn) út úr "heimsfaraldrinum" verði ekki að skella öllu í lás aftur og sprauta ykkur meira.
Frelsið virðist ekki skipta fólk neinu máli í dag, vegna sjúklegrar hræðslu sem búið er að innprenta í fólk við einhverja veiru, og það narrað í þessar sprautur sem stjórnvöld og þríeykið vita fullkomlega hversu skaðlegar þær geta verið og hafa valdið mörgum varanlegum örkumlum og andlátum hér á landi.
Allt er þaggað niður hér á landi, rétt eins og annars staðar.
En það er skelfilegt að upplifa hversu auðvelt er að ná stjórn á okkur í nafni einhvers "öryggis".
Skemmtilegar "auglýsingar frá lyfjarisunum"
"Auglýsing" frá Schizer | Because We Care (About Our Profits)
"Auglýsing" frá Murderna - Innovative Malpractice
![]() |
Öllum takmörkunum aflétt á föstudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Nú eru síðustu forvöð að skila inn umsögnum um þetta frumvarp, og það er ánægjulegt að sjá hvað margir eru þegar búnir að skila góðum umsögnum inn.
Mér datt í hug að taka annan vinkil á þetta, en það varðar fréttaflutninginn í þessum "heimsfaraldri" öllum, því ég tel nauðsynlegt að vekja athygli á þeirri hlið mála líka.
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
Skógarhlíð 6
105 Reykjavík
Reykjavík 15. febrúar 2022
Efni: Umsögn um frumvarp heilbrigðisráðherra til sóttvarnalaga - mál nr. 26/2022.
Fréttaflutningur í heimsfaraldri
Þótt það komi ekki beint þessari umsögn um sóttvarnalög við, þá tel ég nauðsynlegt að vekja athygli á fréttaflutningnum í þessum Covid-19 faraldri, og hvernig upplýsingagjöf til þjóðarinnar hefur verið háttað.
Það er mat mitt að hann hafi verið ámælisverður, ákaflega einhliða, og einkennst af hræðsluáróðri með aðaláherslu á að fá fólk til að bólusetja sig með tilraunalyfjum sem lítil reynsla var komin af.
Daglega eru birtar nýjustu smittölurnar, og birtar sérstakar fréttatilkynningar um að einhver hafi látist úr veirunni, og nú síðast ef einhver hefur látist með hana í sér.
Aldrei eru birtar sérstakar fréttatilkynningar um þá sem létust í kjölfar bólusetninganna, sem eru 36 til og með janúar 2022.
Sjaldan eða aldrei hefur verið fjallað í fréttum um þá sem hafa fengið aukaverkanir eftir bóluefnin, sem samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Lyfjastofnun eru 6.110, þar af 246 alvarlegar og lífsógnandi, og 36 andlát.
Þarna virðist upplýsingum sem sannanlega varða almannaheill hafa verið kerfisbundið haldið frá almenningi.
Mega völd á fárra höndum stjórna því hvað telst fréttnæmt og hvað ekki þegar þjóðin glímir við heimsfaraldur?
Þessi gríðarlegi fjöldi aukaverkana og andláta í kjölfar bólusetninganna vekur líka upp þær áleitnu spurningar hvers vegna þær voru ekki stöðvaðar strax og tilkynningar fóru að berast í janúar 2021 þegar 6 aldraðir einstaklingar höfðu látist í kjölfarið.
Hvar liggur sú ábyrgð?
Kristín Þormar
Gjaldkeri í stjórn Mannréttindasamtakanna MÍN LEIÐ MITT VAL
Jafnframt vísa ég í umsögn Guðrúnar Bergmann sem færð var inn í þessa samráðsgátt fyrr í dag.
Sjáið allar umsagnirnar hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.2.2022 | 14:54
Að deyja með veiru eða vegna hennar.
Það hlýtur að vera munur þarna á, að vera með einhverja veiru í sér á dánarstund, en deyja af öðrum orsökum ætti ekki að vera sérstakt fréttaefni.
Fólk á öllum aldri deyr af ótal orsökum og með alls konar veirur í sér án þess að það birtist í fréttunum, nema helst ef það deyi af völdum hræðilegra slysa.
Þá er fréttaflutningur réttlætanlegur.
En ekki til þess eins að halda uppi þessum skipulögða hræðsluáróðri með tilheyrandi heilaþvotti sem hefur dunið á okkur í tvö ár núna.
Stjórnvöld og sóttvarnalæknir hafa markvisst haldið þjóðinni í hlekkjum í nafni einhverra sóttvarna, sem hafa valdið ómælanlegum skaða í samfélaginu, sem verður aldrei bættur.
Margfalt meiri skaða en einhver veira.
Svona fréttaflutningur er óboðlegur en skilaboðin eru skýr, haldið áfram að vera hrædd!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
11.2.2022 | 21:40
Þau ætla að ríghalda í grímuskylduna eins lengi og þau geta.
Einhverjar tilslakanir voru gerðar á sóttvörnum í dag, en eins og búast mátti við þá var grímuskyldan ekki afnumin.
Það er með ólíkindum að fólk skuli ennþá eftir allan þennan tíma trúa að þessar grímur geri nokkuð skapað gagn gegn örsmáum veirum.
Þær virðast vekja einhverja öryggiskennd hjá fólki, enda er búið að trylla sumt fólk svo úr hræðslu að það þolir ekki lengur að sjá grímulaus "nakin" andlit.
Að horfa á fólk úti að ganga, úti að vinna, og jafnvel aleitt í bílnum með þetta fyrir öndunarfærunum er bara sorglegt.
Grímur veita falskt öryggi og gera heilbrigðu fólki ekkert gagn
Horfið á þetta á YouTube og lesið svo athugasemdirnar undir.
Meira að segja sagði Dr. Fauci það áður en "vísindin" breyttust, nú telur hann að það verði "nauðsynlegt" að nota grímur um ófyrirsjáanlega framtíð.
"Blessaðar" grímurnar
Þær virka jafn vel og þorskanet sem maður reynir að veiða hornsíli í. Gúgglið bara mismuninn á stærð vírusa og möskva grímna.
Prófið líka að standa úti í frosti með grímu og athugið hvert fráblásturinn ykkar fer. Út með öllum hliðum og beint í gegn.
Kynnið ykkur líka heilsuspillandi "partýið" sem myndast í grímunum ykkar eftir tiltölulega stutta notkun.
Veiruhrædda fólkið
Bloggar | Breytt 5.1.2023 kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.2.2022 | 11:02
Hafði hár lífaldur ekkert með andlátið að gera?
Með fyllstu virðingu fyrir blessaðri konunni sem lést á tíræðisaldri, gætu hár aldur hennar og mögulega aldurstengdir undirliggjandi sjúkdómar ekki hafa átt neinn þátt í andláti hennar?
Nógu mikið er hamrað á undirliggjandi sjúkdómum fólks sem lést í kjölfar "bólusetninganna".
Það er ekki einu sinni sagt að hún hafi látist úr Covid, heldur bara að hún hafi verið með það, svo hvers vegna er þetta gert að frétt?
Að gera andlát fólks á ní- og tíræðisaldri að sífelldu fréttaefni er gjörsamlega út í hött, hver maður hlýtur að sjá það!
Ég vil samt trúa því að fólk sé aðeins farið að sjá í gegnum þennan ömurlega og sífellda hræðsluáróður.
![]() |
Kona á tíræðisaldri með Covid-19 lést |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
9.2.2022 | 22:51
Á hvaða tímapunkti er eðlilegt að staldra aðeins við?
Það er fróðlegt að skoða ýmis fyrri ummæli sóttvarnalæknis okkar um bóluefni, svona áður en "vísindin" breyttust.
Hann birti grein í Læknablaðinu árið 2018 með yfirskriftinni "Árangur og mikilvægi bólusetninga - og sögulegt samhengi".
Þetta er löng grein þar sem hann fer yfir sögu bólusetninga og ágæti þeirra.
Lesið þessa málsgrein tvisvar
Fá lyf undirgangast eins viðamiklar og strangar rannsóknir hvað öryggi og árangur varðar og bóluefni áður en þau eru tekin í almenna notkun. Áður en bóluefni eru sett á markað eru þau rannsökuð hjá mörg þúsund einstaklingum til að kanna árangur þeirra og öryggi. Þessar rannsóknir geta hins vegar misst af mjög sjaldgæfum aukaverkunum og því er einnig fylgst náið með hugsanlegum aukaverkunum bóluefna eftir að þau hafa verið tekin í almenna notkun. Með þessu móti er hægt að finna mjög sjaldæfar aukaverkanir og endurmeta notkun bóluefnanna.
Þetta á við um þekkt bóluefni sem hafa gengist undir margra ára rannsóknir og prófanir áður en þau fengu grænt ljós til almennrar notkunar.
En ekki Covid "bóluefnin" sem þróuð voru á mettíma og byrjað var að sprauta fólk með innan við einu ári frá því að "heimsfaraldurinn" braust út.
"Vísindin og nýjustu rannsóknirnar" sem hann vitnar gjarnan í en er aldrei beðinn um að sýna hafa séð til þess.
Þetta sagði hann meðal annars í viðtali 9. september 2020
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að Íslendingar eins og aðrir verði að vera vissir um að bóluefni séu virk og örugg og rannsóknir eigi að tryggja það eins og hægt er. Bóluefni AstraZeneca er eitt þeirra bóluefna sem Ísland fær gegn kórónuveirunni.
Og
... og eins og við höfum talað um áður að þá þurfum við bara eins og allir aðrir að vera viss um að bóluefnið sé virkt og sé öruggt og til þess eru þessar rannsóknir á þúsundum og tugum þúsunda manna til að tryggja það eins og hægt er að það séu ekki einhverjar alvarlegar aukaverkanir sem fylgja bólusetningunni.
Rúmu ári seinna og eftir mörg þúsund tilkynningar um aukaverkanir
Hvenær?
Á hvaða tímapunkti teljast alvarlegar aukaverkanir mjög sjaldgæfar? Ef ekki þegar þær eru orðnar 282, hvenær þá?
Og á hvaða tímapunkti er eðlilegt að staldra við og jafnvel "endurmeta notkun bóluefnanna", svo notuð séu hans eigin orð?
Eftir 1 andlát í kjölfar sprautanna, eða kannski 2? Hvað með 34 árið 2021 og 2 á þessu ári?
Eða yfir 6.100 tilkynningar, þar af 246 sem hafa jafnvel valdið fólki varanlegum örkumlum, fyrir utan öll andlátin?
Hvert er viðmiðið hjá honum og landlækni?
Að sjálfsögðu hefði átt að stöðva þessar "bólusetningar" strax og fólk fór að deyja eftir þær!
Erum við þá ekki löngu búin að ná hjarðónæminu?
Þessi málsgrein er líka úr Læknablaðinu.
Bólusetningar verja ekki einungis þá sem eru bólusettir heldur einnig þá sem eru óbólusettir (hjarðónæmi), að því gefnu að almenn þátttaka í samfélaginu sé 80-95%. Því er mikilvægt að halda uppi góðri þátttöku í bólusetningum svo koma megi í veg fyrir faraldra hættulegra smitsjúkdóma.
Það vekur furðu hvers vegna svo margir eru að greinast með smit þessa dagana, þrátt fyrir búið sé að "bólusetja" stærstan hluta þjóðarinnar, og nú allt niður í 5 ára börn. Hvað varð um hjarðónæmið?
Við þekkjum söguna um Thalidomide
Barnshafandi konur fengu lyfið gegn ógleði og svefnvandamálum á meðgöngu, en það tók 5 ár að fá úr því skorið að þúsundir barna hefðu fæðst með vanskapaða útlimi eða aðra fæðingargalla af völdum lyfsins.
Rannsóknir leiddu í ljós að prófunum á þeim hefði verið áfátt, engir lyfleysuhópar notaðir, né þau prófuð á dýrum sem gengu með afkvæmi.
Þessi harmleikur varð til þess í Bretlandi að stofnuð var nefnd um öryggi lyfja og lyfjalaga árið 1968.
Það er spurning hvort þessi stofnun sé enn starfandi....
Sannleikurinn sem þjóðin vill ekki sjá
Nú er búið segja okkur í á annað ár núna að Covid bóluefnin sé örugg og áhrifarík, og Þórólfur hefur meira að segja sjálfur sagt að það séu bara tveir kostir í stöðunni, annað hvort að láta bólusetja sig eða fá Covid.
Þá beinu tilvitnun í hann má finna í eldri bloggum mínum.
Sannleikurinn um allt annað blasir við þeim sem vilja sjá það. Þessi svokölluðu "bóluefni" eru búin að stórskaða og/eða drepa milljónir manna, kvenna og barna um allan heim.
Ættu ríkisstjórn Íslands, Lyfjastofnun, Þórólfur sóttvarnalæknir og Alma landlæknir ekki að vera löngu búin að stöðva þessar "bólusetningar" miðað við staðreyndirnar sem blasa við?
Svo mætti líka spyrja þau hvers vegna gengið var til samninga við lyfjafyrirtækið Pfizer sem hefur þurft að greiða hæstu sektir samtímans fyrir markaðssvik, vörusvik og mútur.
Ítarefni:
- Nú þarf fólk að fara að vakna fyrir alvöru
- Svínaflensan 2009, og "heimsfaraldurinn" sem er byggður á tómum lygum
- Allt er gert til að breiða yfir sannleikann
- Enn meiri talnafalsanir Lyfjastofnunar
- Ungt hraust íþróttafólk er að veikjast eða deyja um allan heim eftir sprauturnar
- Hvers vegna er Þórólfur ALDREI spurður út í aukaverkanirnar?
- Sannleikurinn um þennan meinta "heimsfaraldur" á 40 mínútum
- Getur maður verið veikur án þess að finna fyrir einkennum?
- Nú verðið þið hinir sofandi Íslendingar að vakna, annars munuð þið leyfa það að við verðum svipt öllu!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.2.2022 | 23:51
Þetta fyrirtæki hefur þurft að greiða stærstu sekt sögunnar í Bandaríkjunum fyrir markaðssvik, vörusvik og mútur.
Ég er ekki viss um að margir hafi skoðað svarta sögu þessa lyfjafyrirtækis sem þykist vera að bjarga okkur út úr einhverjum "heimsfaraldri" og hefur þurft að greiða stærstu sekt sögunnar fyrir markaðssvik, eða 2.3 milljarða dollara.
Glæpalyfjafyrirtækið Pfizer
Federal prosecutors hit Pfizer Inc. with a record-breaking $2.3 billion in fines Wednesday and called the worlds largest drug maker a repeating corporate cheat for illegal drug promotions that plied doctors with free golf, massages, and resort junkets.
Sjá meira hér.
Pfizer subsidiary Pharmacia & Upjohn pleaded guilty to a felony violation for promoting off-label uses of Bextra, such as for pain relief after knee replacement surgery. At the FDA's request, Pfizer pulled Bextra off the market in April 2005 because its risks, including a rare, sometimes fatal, skin reaction, outweighed its benefits. It had been approved only for treating rheumatoid arthritis, osteoarthritis and menstrual pain.
Sjá meira hér.
Pharmaceutical giant Pfizer has paid more than $ 4.7 billion in fines over the past 20 years for 80 different crimes and violations, including off-label or unapproved promotion of medical products, foreign corrupt practices, bribery, government-contracting-related offenses and drug or medical equipment safety violations.
Smellið á hlekkinn hér fyrir ofan til að sjá yfir 40 sektir sem þetta fyrirtæki hefur þurft að greiða fyrir glæpi sína.
Hvernig lyfjafyrirtækin hafa áhrif á niðurstöður lyfjaprófana
It can cost billions to develop a new drug, and drug manufacturers want a return on their investment. For example, studies indicated that cost estimates of bringing a new drug to the market can start at approximately $160 million and end up as high as $2 billion.
Sjá meira hér.
Gæti valdið reiði: 9 stærstu sektir lyfjafyrirtækjanna, fyrst skrifað 2012
Think pharmaceutical companies have your best interest at heart? Then why have they been repeatedly fined billions of dollars for fraud?
Any television commercial or ad that suggests you ask your physician if the nondescript product alluded to is "right for you" is suspect to begin with. It's perhaps no surprise, then, that pharmaceutical companies are repeatedly the biggest fraud offenders in our country. (Take five, Wall Street.)
Sjá meira hér.
Haldið þið ennþá að þessu fyrirtæki sé svo annt um ykkur að það hafi þróað eitthvað bóluefni á mettíma til að koma ykkur út úr þessum "heimsfaraldri"?
Það eru rökstuddar líkur fyrir því að þetta fyrirtæki hafi sett hagnaðarvon sína ofar því að bjarga lífum við þróun á bóluefni sínu eins og sjá má hér.
Bara hér á landi er búið að tilkynna um 6.100 aukaverkanir vegna þessara "bóluefna", þar af 2.706 vegna Pfizer.
Ég fylgist með miðlum og leitarvélum sem eru ekki ritskoðuð eins og Facebook og Google og er búin að sjá þúsundir frásagna fólks sem er varanlega skaðað eftir þessi "bóluefni" frá Pfizer og hinum lyfjarisunum, og frásagnir syrgjandi ástvina þeirra sem létust í kjölfar sprautanna.
Og nú er ég farin að sjá frásagnir um börn sem veiktust illa eða jafnvel létust eftir þessar sprautur.
Ef einhver vill meiri upplýsingar um þetta, þá skal ég fúslega veita þær. Það er hægt að senda mér skilaboð í gegnum Facebook síðu mína sem birt er á þessu bloggi.
Ég er búin að fjalla um talnafalsanir Lyfjastofnunar um tilkynntar aukaverkanir nokkrum sinnum, sem eru gjörsamlega óboðlegar af opinberri stofnun.
Þetta er allt gert með vitund og vilja ríkisstjórnar okkar, þau geta ekki verið það einföld að kynna sér ekki hvaða fyrirtæki þau eiga viðskipti við.
Fræðið ykkur endilega um hvað þessi svokölluðu "bóluefni" eru búin að valda miklum skaða og/eða andlátum í heiminum í dag, bara ekki nota Google.
Prófið leitarvélina Yandex.com til að fá upplýsingar sem búið er að ritskoða út úr Google.
Svo er ég líka búin að skrifa hátt í 300 blogg síðan í fyrravor sem þið getið fundið um þennan ægilega "drápsfaraldur" sem er aðallega til í nösunum á sóttvarnalækni okkar - í boði íslenskra stjórnvalda.
Gamalt og/eða veikt fólk deyr, jafnvel úr flensu, það er bara lífsins gangur, en aldrei hefur heiminum verið skellt í lás eins og núna og daglega birtar fréttir um greind "smit" með PCR prófum sem hugsandi fólki ætti núna að vera vel ljóst að voru aldrei hönnuð til að greina hvort fólk væri veikt eða ekki.
Og aldrei fyrr hafa verið birtar kertum skreyttar fréttatilkynningar um að gamalmenni deyi.
Líkurnar á því að lifa af veikindi vegna þessarar veiru eru 99% plús fyrir heilbrigt fólk, og það er bara staðreynd, ekkert ungt fólk eða börn hafa dáið vegna hennar.
Hjarðhegðun Íslendinga og einfeldni verður verðugt umfjöllunarefni fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar, sem og hversu auðvelt er að heilaþvo fólk og fá það til að trúa á og dýrka einhverja örfáa einstaklinga og ríkisstjórn sína.
En hvað þurfa margir, jafnvel margsprautað fólk á besta aldri að deyja skyndilega til þess að fólk vakni?
![]() |
Hagnaður Pfizer tvöfaldaðist í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 9.2.2022 kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.2.2022 | 20:46
Enn meiri talnafalsanir Lyfjastofnunar.
Lyfjastofnun var að enda við að gefa út samantekt yfir tilkynntar aukaverkanir vegna þessara "bóluefna" árið 2021, og það verður að segjast eins og er að þetta er alveg kostuleg lesning.
Framan af ári voru tilkynningar rúmlega 200 að meðaltali á mánuði, fjölgaði síðan til muna eftir að bólusetningarátak hófst fyrir alvöru á vordögum, en fór fækkandi með haustinu. Að meðaltali bárust 335 tilkynningar á mánuði árið 2021.
Miðað við þetta þá ættu tilkynntar aukaverkanir að vera ca. 4.020, en samkvæmt síðustu tilkynningu ársins 2021 þann 30. desember voru þær 5.917.
Þarna munar 1.897 tilkynningum, eða tæplega þeim fjölda sem landlæknir geymdi í skúffunni hjá sér í einhverja mánuði.
Tilkynningar í desember - sundurliðun eftir bóluefnum
Í desember bárust 210 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun. Af þeim tengdust 187 bóluefnum gegn COVID-19;
117 vegna Comirnaty frá BioNTech/Pfizer, 47 vegna Spikevax frá Moderna, 12 vegna bóluefnis Janssen, og 11 vegna Vaxzevria frá AstraZeneca. Tuttugu og þrjár tilkynninganna tengdust öðrum lyfjum.
Eins og þið sjáið hér fyrir neðan, þá er ekkert að marka þessar tölur þótt síðasta dag ársins vanti þar inn í.
Það má líka telja undarlegt að aukaverkunum geti "fækkað" um heilar 25 hjá Janssen, meira að segja þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið um 12 aukaverkanir vegna þess.
Fjöldi tilkynninga í desember eftir alvarleika
Tilkynningar vegna gruns um alvarlega aukaverkun voru 27. Fimmtán þeirra tengdust bóluefnum gegn Covid-19; 10 vegna Comirnaty frá BioNTech/Pfizer, 3 vegna Vaxzevria frá AstraZeneca, 2 vegna Spikevax frá Moderna, 0 vegna bóluefnis Janssen. Tólf tengdust öðrum lyfjum.
Þarna vantar 3 tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir miðað við það sem sjá má á myndinni fyrir ofan, fyrir utan að niðurbrot þeirra niður á efnin stemma ekki nema hjá Moderna eins og sjá má af rauðu tölunum.
Samkvæmt þessu súluriti var tilkynnt um samtals 3.689 aukaverkanir vegna bóluefna árið 2021 sem ekki teljast alvarlegar, plús 327 alvarlegar.
Miðað við tölurnar 30. desember virðist líklega þarna vanta á að minnsta kosti á þriðja þúsund aukaverkanir eftir Covid bóluefnin, því hafa ber í huga að inni í þessu súluriti eru líka tilkynningar vegna annarra bóluefna.
Það gerir þessar tölur bara ennþá ótrúverðugri.
Það vakti athygli mína að ekki er minnst einu orði á að manneskjur létust í kjölfar þessara "bólusetninga", heldur er það falið inni í tölunum um alvarlegar aukaverkanir.
Þrefalt fleiri dóu eftir sprauturnar en "úr" Covid 2021!
Í síðustu viku fjallaði ég um misræmi hjá Lyfjastofnun í uppgefnum fjölda andláta eftir þessar sprautur.
Hér er óhugnanleg staðreynd sem lesa má út úr opinberum gögnum:
- Árið 2021 létust 11 "úr" Covid.
- Árið 2021 létust 34 í kjölfar sprautanna.
Þar lýsti ég áliti mínu á þessari stofnun, sem kennir sig við "gæði, traust og þjónustu" eins og sjá má á heimasíðunni, og það álit mitt hefur styrkst núna til muna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)