Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2021

Þetta eru sögurnar sem verða líka að fá að heyrast.

Nú þegar fyrsta "örvunin" er byrjuð hjá þeim teljast núna víst bara "grunnbólusettir" er kannski orðið of seint að reyna að upplýsa fólk um hugsanlegar afleiðingar af því að fá þessum efnum sprautað í líkama sína.

En ég rakst á vandaða síðu sem fjallar um það sem nánast er bannað er að fjalla um alls staðar í heiminum, en það eru aukaverkanir og andlát eftir þessi bóluefni.

Öllum er hollt að kynna sér efnið á þessari síðu, en þar má finna myndir, vídeó og hlaðvörp.

Þau segja:

Ekki meiri þöggun!

Við erum ört stækkandi hópur sem höfum orðið fyrir margvíslegum áhrifum vegna bóluefnanna. Við erum EKKI á móti bólusetningum, og við erum EKKI samsæriskenningasmiðir.

Sannleikurinn er, að öll fórnarlömbin sem kynnt eru á þessari síðu létu bólusetja sig í þeirri trú að þau væru að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn veirunni.

Við erum hins vegar hlynnt upplýstu vali, hlynnt samþykki, hlynnt vísindum og eindregið á móti þvingunum.

Við viljum líka setja spurningar við röksemdafærslurnar og stefnuna á bak við hina óhóflegu ritskoðun á ÖLLUM staðreyndum og sönnum fréttum um neikvæðar hliðar bóluefnanna, sérstaklega meðal meginstraumsfjölmiðla og samfélagsmiðla. Við viljum líka fá áheyrn!

Nokkur fórnarlömb

1611d

1611e

Þarna er líka saga frá Íslandi

Þyri Kap Árnadóttir – AstraZeneca 26th March 2021

Died 27th March 2021 Aged 74 Years Old

1611gÞyri died of a Heart attack the day after her Pfizer Vaccination.

The day after her vaccination Þyri developed bone pain, loss of appetite, and chills, she rapidly declined and was admitted to hospital under a cardiologist. She had a heart attack and they tried resuscitation for two hours.

Þyri was a well-respected teacher in Iceland.

Eins og sjá má er einhver ruglingur hérna með bóluefnin, en það er aukaatriði, bólusetning varð henni að aldurtila.

Og við munum öll eftir viðtalinu sem ekklinum tókst að fá hjá RÚV eftir mikla eftirgangsmuni.

Tveir í viðbót, annar lést nýlega eftir þriðju sprautuna

1611f

 

Allar þessar sorglegu frásagnir má finna hér.

Af innlendum vettvangi:

Kæru foreldrar, hugsið ykkur vel um áður en þið leyfið 5-12 ára börnunum ykkur að vera sprautuð, eins og verið er að kynda undir núna.

 


Eru óbólusettir þungur baggi á kerfinu? Skoðum aðeins málið.

Áróðurinn gegn þeim sem hafa engan áhuga á því að vera tilraunadýr fyrir lyfjarisana er að ná nýjum hæðum þessa dagana, nú síðast með fordæmalausum leiðara Sigmundar Ernis Rúnarssonar í Fréttablaðinu um helgina.

Aðrir hafa gengið í sama kór og heimta núna aðskilnað ósprautaðra frá hinum "sem gerðu allt rétt og hlýddu".

Íþyngjandi fyrir heilbrigðiskerfið, segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir

1511f"Hún segir að óbólusettir séu þungur baggi á heilbrigðiskerfinu.  Um 10% landsmanna eru óbólusett, en um helmingur covid-innlagna  á sjúkrahús er vegna þeirra sem ekki hafa bólusett sig."

"Við myndum mjög gjarnan vilja ræða við þennan hóp til að útskýra fyrir honum forsendur, þannig að menn taki nú upplýsta ákvörðun um það að fara í bólusetninguna". (Áherslubreytingin er mín)

Ok, það eru 25 á sjúkrahúsi og 4 á gjörgæslu, er þetta allur þungi bagginn? Fer heilbrigðiskerfi 370.000 manna samfélags á hliðina út af þessu? Er vandinn þá ekki frekar skapaður innanhúss?

Skoðum nýjustu tölurnar yfir aukaverkanir sem birtar voru í dag

Þær eru komnar upp í hvorki fleiri né færri en 5.539, og það sem meira er 3 tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir bættust við um helgina!

"Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum."

Sem þýðir hvað? Þrjár manneskjur til viðbótar hafa um helgina fengið svo alvarlegar aukaverkanir, að þær hafa þurft að leita á náðir heilbrigðiskerfisins! Og nota bene, þetta er allt fólk sem að líkindum er búið að fá "grunnbólusetninguna", og jafnvel "örvunina".

Þetta er ekki óbólusetta fólkið! Alls hefur verið tilkynnt um 231 alvarlega aukaverkun, þar af 32 andlát og 199 aðrar alvarlegar, síðar "bólusetningarnar" hófust.

Hefur þetta blessaða fólk ekki líka verið "þungur baggi á heilbrigðiskerfinu", fyrir utan hina 5.308 sem fengu ekki "eins alvarlegar" aukaverkanir, en þurftu þó að leita læknisaðstoðar?

1511c

Flokkun tilkynninga um grun um aukaverkun eftir líffærakerfi

1511g

Flokkun tilkynninga um grun um aukaverkun eftir MedDRA kjörheitum

1511e

Hafa allar þessar skelfilegu afleiðingar eftir sprauturnar ekki verið þungur baggi á heilbrigðiskerfinu?

Vitiði kæra fólk, það er bara komið nóg af lygum, hálfsögum, og þöggun varðandi þennan "heimsfaraldur", sem 98-99% fólks lifir veikindi af. Ef það væri einhver hræðilegur drápsfaraldur í gangi, þá væri fólk ekkert að rífast um það, því það færi ekki framhjá neinum.

Og við myndum öll þekkja fólk, jafnvel heilu fjölskyldurnar sem hefðu dáið úr pestinni, en sannleikurinn er sá að flestir þeirra sem dóu víst "úr pestinni" voru aldrað fólk með undirliggjandi sjúkdóma.

Ég benti Sigmundi Erni á að það væri akkúrat fólk eins og hann sem héldi samfélögunum í herkví, ekki þeir ósprautuðu.

Sem betur fer er okkur að fjölga sem erum löngu búin að sjá í gegnum hvað er raunverulega í gangi, og erum að verða miklu háværari í umræðunni.

En núna þegar krafan um að útskúfa okkur frá samfélaginu er að verða háværari hér á landi eins og verið er að gera í mörgum löndum, þá segi ég hingað og ekki lengra.

Bólusetta fólkið á ekki að varpa sökinni á misheppnuðu "bóluefni" yfir á óbólusetta! Ef það er að veikjast í hrönnum núna, þá er það þessum genabreytandi tilraunalyfjum að kenna, ekki okkur.

Hér eru flottar greinar á Fréttin.is, önnur um þessa nasísku aðskilnaðarstefnu sem er í uppsiglingu og hin um prófessor í veirufræðum sem segir mótefni horfin hjá bólusettum eftir fjóra og hálfan mánuð.

Uppfærsla: Austurrísk lógík

1511i

 


Við erum öll í þessu saman – eða hvað?

Ung vinkona mín sem heitir Tara Sverrisdóttir er með Facebook síðuna TArt, þar sem hún birtir stundum snilldar skopmyndir sem hún hefur teiknað af líðandi stund.

Hæfileikana á hún ekki langt að sækja, en hún er dóttir Helgu Birgisdóttur listakonu með meiru, sem heldur úti síðunum Smiler.is og Gegga.is, þar sem hún sýnir verk sín.

Ég var búin að fá leyfi hjá Töru að birta myndirnar í bloggfærslu, þegar sá færslu á Facebook vegg hennar í gær um geðheilbrigðismál, sem snart mig mikið. Þessi mál eru henni mjög hugleikin, en lítið er fjallað um þau í fjölmiðlunum.

Við fáum lítið annað að heyra en smittölur gærdagsins, hversu margir liggi á sjúkrahúsum, og nú síðast hvatningu til að fara í "örvunarsprautuna". Gaf hún mér góðfúslegt leyfi til að birta færsluna sína hér.

Myndirnar set ég fyrir neðan færsluna.

Við erum öll í þessu saman - eða hvað?

Nú þegar covid bylgja númer við vitum ekki hvað gengur yfir er fjöldi fólks að kljást við kvíða, þunglyndi og leiða. Fólk er hrætt við mismunandi hliðar faraldursins – sumir við veiruna sjálfa og aðrir við breytingar sem hafa orðið í samfélaginu. Það er nokkuð ljóst að geðheilbrigðismál hafa mætt miklum afgangi í þessum faraldri.
 
Um daginn var t.a.m heilli geðdeild lokað vegna covid smita þar. Aldrei kom þó fram hvort smitin væru alvarleg eða einkennalaus. Enda virðist það mæta afgangi í æsifréttamennsku fjölmiðla. Aldrei var fjallað um hvaða alvarlegar afleiðingar sú lokun gæti haft í för með sér. Hvað er annars eitt mannslíf til eða frá þar?
 
Slagorðin "Við erum öll í þessu saman" og ítarlegar sóttvarnarleiðbeiningar hafa dunið á þjóðinni bæði í ræðu og riti í að verða 2 ár. Óttafréttirnir verða sífellt ágengari þar sem áherslan eykst á sundrung hópa og paranoiu við næsta mann. Ertu bólusett/ur eða ekki?! Það þykir orðið samfélagslega viðurkennt að vera sýklahræddur og helst æpa það yfir næsta mann ef hann er það ekki.
 
Sýndu samfélagslega ábyrgð og vertu hræddur! Það skal enginn voga sér að benda á þá skaðsemi sem sóttvarnaraðgerðir gætu valdið - þá má viðkomandi eiga von á útskúfun eða dónaskap í einhverri mynd. Ég tek það fram að sjálf skil ég hvernig er að vera þjökuð af kvíða og ótta við sýkla, sem þótti á þeim tíma óeðlilegur og ekki samfélagslega viðurkenndur vandi 😉
 
Frægustu tilraunir sálfræðinnar geta varpað ljósi á hegðun fólks á þessum sögulegu tímum og sem útskrifuð með gráðu í sálfræði er þetta mér hugleikið efni.
 
Nú loga miðlar þar sem forsvarsmenn fyrirtækja, ritstjórar eða pólitíkusar dreifa út villandi upplýsingum, finna blóraböggla og lýsa yfir stuðningi um aðskilnaðarstefnu milli hinna bólusettu og óbólusettu.
 
Hvar eru fræðingarnir sem myndu skoða þessa einkennilegu hegðun í ljósi sögunnar og frægra sálfræðitilrauna líkt og Milgram (hlýðni við yfirvöld), Stanford (hlutverkaskipan) og Asch experiment (félagslegur þrýstingur). Eða þykir kannski ekki ástæða til þar sem þetta er hið nýja “norm” sem maðurinn hefur verið aðlagaður hægt og rólega að í 2 ár?
 
Þykir engum fræðingi ástæða til að stöðva slíkar rangfærslur og ofstækisyfirlýsingar hjá valdamiklum mönnum opinberlega? Er ekki betra að gera það strax heldur en hugsa ef skaðinn er skeður "ég hefði nú kannski átt að segja eitthvað"…
 
Það er dapurlegt að sjá hve lítil áhersla hefur verið hjá geðheilbrigðiskerfinu að stíga fram opinberlega og tala um afleiðingarnar á andlega heilsu þjóðarinnar. Barna- og unglingageðdeild og Píeta samtökin hafa þó vakið athygli á aukinni eftirspurn þjónustu sinnar.
 
Ég rakst á tilkynningu frá geðheilbrigðisþjónustu sem ítrekaði fyrir skjólstæðingum sínum að gæta sóttvarna og fara í bólusetningu – ekki var minnst orði á ráð við bættri geðheilsu eða lýðheilsu. Sem er jú ein grunnundirstaða góðs ónæmiskerfis í baráttu við veiru. Eru þetta orðnar áherslur geðheilbrigðiskerfisins?
 
Ég á erfitt með að trúa því að starfsfólks geðheilbrigðiskerfis sitji bara heima hjá sér og fylgist spennt með nýjustu smittölum og bólusetningaskömmtum. Þeir hljóta að velta fyrir sér hve alvarleg staðan er orðin? En kannski er viðkvæmt að rugga bátnum í umræðunni og enn aðrir kannski sammála því að veiran sé aðeins okkar helsta ógn. Hver sem ástæðan er fyrir lítilli umræðu þá er hún engu að síður mjög mikilvæg okkur öllum, það hljóta flestir að vera sammála um það.
 
Undanfarin ár hefur orðin gríðarleg aukning fólks á örorku vegna andlegrar heilsu, hvernig mun þróunin verða með þessu áframhaldi? Hversu mörg börn t.d munu þróa með sér áráttu- og þráhyggjusýki varðandi sýkla? Hvaða áhrif hefur sundrungin sem fjölmiðlar reyna að skapa með tölum sínum um bólusetningaástand einstaklinga?
 
Hvaða afleiðingar hefur stöðug grímunotkun á þroska ungbarna? Hvernig áhrif hafa stöðugar sóttvarnaraðgerðir á félagslegan þroska unglinga? Hvernig sálræn áhrif hefur atvinnuleysi og peningaskortur á heilu fjölskyldunnar? Hvaða áhrif hefur það á þjóðina að vera haldið í stöðugri óvissu og frelsisskerðingum undir þeim formerkjum að verið sé að bjarga öllum mannslífum? Hversu mikið munu biðlistar aukast í geðheilbrigðisþjónustu með alvarlegum afleiðingum og tilheyrandi kostnaði?
 
Eitt slagorðið í faraldrinum hefur verið "að vernda viðkvæma hópa" þessum viðkvæmu hópum hefur fjölgað síðustu 2 ár – og það er mikilvægt að hver og einn einasti fái sína umræðu.
 
Við erum jú öll í þessu saman, er það ekki?
 
Höfundur er með BA gráðu í sálfræði
 

Myndirnar hennar, smellið á þær til að stækka þær

Þessi mynd er af jólatónleikum Kórólfs, og athugasemdir tónleikagesta þarna undir eru alveg stórkostlegar!

1111m

 

Þessi skjólstæðingur er búinn að vera í þrem meðferðum við sýklafóbíu, og þá væntanlega kvíða líka. Sáli fær nett áfall þegar hann uppgötvar að skjólstæðingurinn sé líklega óbólusettur.

1111l

 

Nú er hætt að bjóða upp á sálfræðimeðferðir við heilsukvíða, því hann er orðnn samfélagslega viðurkenndur.

Tara

 

Lesið þennan pistil, og svo aftur, því hann kemur gríðarlega vel inn á núverandi - og framtíðarvanda sem aldrei er talað um.

Og við megum ekki vera svo hrædd við að deyja, að við leyfum okkur ekki að lifa eðlilegu lífi. Það er því miður búið að prógrammera okkur til að lifa í svo stöðugri hræðslu við veiru sem 98-99% fólks lifir veikindi af, að fólk hleypur af fúsum og frjálsum vilja í hverja sprautuna á fætur annarri, því okkur er alltaf sagt að "lækningin" sé rétt hinum megin við hornið, að við séum alveeeeg að ná þessu.

Svo kemur kallið í fjórðu sprautuna, sanniði til.

 


Er þetta það sem koma skal líka hér á landi? Sjáið hvað er að gerast í Ástralíu!

Ég var að lesa áhugaverða grein sem birtist á Fréttin.is í gær, meðal annars um útgöngubann sem stendur til að setja á ósprautaða í Austurríki.

"Lyfjaframleiðendur og lobbýistar þeirra reyna nú eftir fremsta megni að klína sökinni á herfilega misheppnuðum bóluefnum á þann minnihluta sem vill ekki sprauturnar. Bóluefnin sem áttu að leiða til hjarðónæmis koma hvorki í veg fyrir smit né veikindi og hafa auk þess leitt til fjölda spítalainnlagna.  Nýlega hafa 16 sænskir læknar krafist þess að bólusetning með Pfizer verði stöðvuð á meðan verið er að skoða nánar meint rannsóknarsvik hjá PfizerBioNTech eftir uppljóstrun fyrrverandi starfsmanns fyrirtækisins."

Sigmundur Ernir Rúnarsson birti fordæmalausan leiðara í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann sakar þá sem hafa ekki látið blekkjast af bóluefnaáróðrinum um að halda kerfinu í herkví.

Hann ætti frekar að beina reiði sinni gegn framleiðendum þessara tilraunaefna sem lofað var að myndu ná niðri "faraldrinum", en hafa ekki gert það, heldur skilið eftir sig slóð alvarlegra veikinda og dauða.

Það er búinn að vera linnulaus skimunarfaraldur undanfarið með þessum gölluðu PCR prófum, sem að sjálfsögðu leiðir til þess að mörg fölsk "jákvæð smit" finnast.

Það er verið að blekkja veiruhrædda fólkið í þriðju sprautuna, svo mun að öllum líkindum spretta upp eitthvað "nýtt og ennþá hættulegra" afbrigði á næsta ári sem geri þá fjórðu "nauðsynlega", og svo koll af kolli. Þetta er orðið óttalega fyrirsjáanlegt.

Skoðum hvað er að gerast á sama tíma annars staðar í heiminum

Ástralía hefur alltaf verið vestrænt land, og þótt góður staður til að búa á, þar til nú síðustu misserin, þar sem verið er að innleiða alræðisstjórn. Það sem er að gerast þar er líka að gerast í öðrum löndum, eins og hjá nágrönnum þeirra í Nýja Sjálandi, Kanada, Ísrael og löndum í Evrópu.

Tilburðir í þessa átt eru einnig byrjaðir hér á landi, þar sem tví-eða þrísprautaðir eru farnir að heimta að þeir ósprautuðu verði útskúfaðir frá samfélaginu. Og við munum nú þegar Kári vildi senda þá alla út í Grímsey.

Ástralía

Háttsettur ástralskur læknir leggur til að þeim sem vilja ekki sprauturnar, verði neitað um heilbrigðisþjónustu verði þeir veikir vegna veirunnar.

“Patients continue to suffer some pain or disability for a longer period of time, and they’re often patients who’ve been double vaccinated, they’re elderly, and they’ve done everything right, but their knee replacement is being delayed and the public hospital waiting lists are growing,” he said.

Forsætisráðherrann Daniel Andrews sagði þann 22. október að íbúar Viktoríufylkis verði útilokaðir frá efnahagslegri og félagslegri þátttöku langt inn í árið 2022, og að tvísprautaðir íbúar gætu átt það á hættu að sæta útgöngubanni ef þeir þiggi ekki "örvunar"sprauturnar þegar þær bjóðast.

Eftir það muni þeir teljast óbólusettir.

"In a presentation, Andrews explained that there will be no freedoms for the “unvaccinated” in 2022 – and by unvaccinated, he also means people who stop at one or two jabs."

Sami maður vill setja þau lög á Ástrali, að hægt sé að sekta þá, og/eða loka þá inni í fangelsi í tvö ár fyrir að brjóta sóttvarnarreglur.

"These two bills, which are currently under deliberation in Parliament, will grant Andrews’ government the authority to impose $90,000 fines on individuals who “intentionally and recklessly” violate public health orders, and $455,000 for businesses. Additionally, law enforcement will be given the authority to imprison Australians who fail to comply with public health orders for up to two years."

Hér er önnur frétt um sama mál.

"The legislation allows Andrews to declare a pandemic even if there is not one. He only has to think there could be one. This antipodean combination of commissar and gauleiter is taking complete personal control of the state and its people. He can close down parts of the state or the whole state and prevent people from entering or leaving in whole or part. He can extend closures without limit."

Og hér segir frá því að íbúar Queensland hafi fengið svo margar sektir fyrir að að brjóta þessi lög að þeim sé hótað því að bankareikningar þeirra verði lokaðir, heimilin gerð upptæk, og ökuskírteini afturkölluð.

Skyldubólusetning

Í Perth í Ástralíu á að setja á skyldubólusetningu á meirihluta vinnuafls síns, sem mun ná til yfir milljón manns.

“Employers will be required to keep a record of the evidence, and authorized officers will run spot checks to ensure compliance is occurring,” McGowan said. 

“If relevant, employers that have unvaccinated staff working after the deadline run the risk of being fined up to $100,000.” 

McGowan added that employees themselves also risk as much as a $20,000 fine for failing to provide proof of vaccination."

Einangrunarbúðir

Ástralía er að byggja einangrunarbúðir fyrir "áframhaldandi aðgerðir", og til að hýsa þá sem "hafa ekki haft aðgang að bólusetningum".

1411k

Áströlsk hryllingssaga.

Í Ástralíu hefur borgarafrelsi verið útrýmt. Forsætisráðherra Viktoríufylkis í Ástralíu, Daniel Andrews, hefur endurvakið Þriðja ríkið með kínverskum áhrifum.

Ástralir mótmæla

Stöðvið læknisfræðilega aðskilnaðarstefnu sögðu þeir á fjölmennum mótmælum nýlega, og fóru fram á afsögn Daniel Andrews.

Mörg önnur mótmæli hafa farið fram í landinu undanfarið.

Alþjóðlegt neyðarkall

Þann 4. desember næstkomandi biðja Ástralir heimsbyggðina að styðja sig í þessum kröfum:

These are some of the rights that have been stolen or attacked:

  • the right to have a political party;
  • the right to peacefully protest;
  • the right to work without being subject to coercion;
  • the right to operate a business;
  • the right to make personal medical choices;
  • the right to medical privacy;
  • the right for all persons, irrespective of their health or vaccination status, to be considered equal;
  • the right to freely express political dissent;
  • the right to assemble;
  • the right to socialise.

Hér á landi

Á sama tíma hlaupa Íslendingar í skimanir eins og enginn sé morgundagurinn, og sætta sig við að frelsið til að lifa eins og eðlilegar manneskjur, og anda að sér ómenguðu súrefni sé tekið af þeim trekk í trekk.

Það stendur ekkert til að hætta að sprauta fólk með þessu glundri, enda búið að skuldbinda þjóðina til að kaupa að minnsta kosti 1.4 milljónir skammta.

Nú á að fara að hjóla í 5-12 ára börn, og svo allt niður í 6 mánaða börn.

Heldur fólk virkilega enn að þetta sem er að eiga sér stað í heiminum í dag snúist um einhverja veiru?

 

 

 


Nei Sigmundur, það er akkúrat fólk eins og þú sem heldur okkur í herkví!

Ég held ég hafi sjaldan lesið jafn rakalausan þvætting og Sigmundur Ernir Rúnarsson lætur frá sér í Fréttablaðinu í dag.

Hann er greinilega kominn með "grunnbólusetningu", og kannski fyrsta "örvunar"skotið (af mörgum?), og ennþá skíthræddur, aumingja maðurinn. Vonandi á hann góðan lager af munnbleyjum og spritti.

Líklega eru um þrjátíu þúsund fullorðnir Íslendingar enn þá óbólusettir, af ástæðum sem rekja má til menningarmunar, trúarskoðana, kvíða, frelsisþrár, hugsjóna, svo og forherðingar, ofstækis og þvermóðsku, fyrir nú utan almennt barlómskrækuvæl.

Nei Sigmundur, líklega eru þessir þrjátíu þúsund fullorðnu Íslendingar bara betur lesnir en þú. Og hvað er barlómskrækuvæl?

Núna þegar heimsfaraldur kórónuveiruplágunnar hefur þjakað samfélagið um bráðum tveggja ára skeið, alla innviði þess, atvinnulíf, menningu, félagslíf, samkomuhald, svo og lýðheilsu aldraðra og ungmenna í skólum landsins, er eðlilegt að velta fyrir sér rétti óbólusettra í samfélaginu til að haga sér eins og þeim sýnist.

Bíddu, ertu að kenna okkur um að bóluefnin hafi ekki virkað nógu vel til að kveða pestina niður? Ertu ekki að beina pirringnum að röngum aðilum?

Og meginspurningin er þessi; er fullt frelsi óbólusettra verjanlegt á tímum alls konar takmarkana á háttum þeirra sem hafa valið að láta bólusetja sig af fúsum og frjálsum vilja og hafa einsett sér að fara að tilmælum sóttvarnaryfirvalda?

Undir hvaða þúfu ert þú búinn að hírast í tæp tvö ár núna, ertu ekki fjölmiðlamaður? Hvers vegna kynnirðu þér ekki allar hliðar þessa "faraldurs"?

Víða í löndunum í kringum okkur liggur svarið við þessari spurningu fyrir. Og það er bæði einart og afdráttarlaust. Nei. Hreint og klárt nei.

Skoðum okkur um.Í Singapúr ganga yfirvöld einna lengst, en þar mæta óbólusettir afgangi í heilbrigðisþjónustu og rætt af alvöru um að þeir fái ekki inngöngu á spítala á meðan að spítalarnir í landinu glíma við álagið af völdum farsóttarinnar.

Er þér full alvara með þessu? Hefurðu kannað hversu margir þjást af aukaverkunum eftir þessi tilraunalyf, gæti ekki verið að akkúrat það fólk sé að valda álaginu?

Rökin eru þessi: Um 95 prósent þeirra sem liggja inni á sjúkrahúsum landsins, þjakaðir af einkennum kórónuveirunnar eru óbólusettir. Þeir eru klafi á kerfinu. Þeir halda því í herkví.

1311b

Þú lýsir hér með harmrænum hætti hvernig 95% inniliggjandi sjúklinga þjakaðra af einkennum veirunnar séu óbólusettir, og klafi á kerfinu. Þú hefur greinilega ekki haft fyrir því að afla þér upplýsinga áður en þú skrifaðir þessa dómadags þvælu. Að jafnaði eru fleiri sprautaðir en ósprautaðir inniliggjandi á hverjum tíma hér á landi!

Þú hefur líklega ekki hugmynd um að þú ert tilraunarotta fyrir lyfjarisana með því að láta sprauta þig með einhverju glundri sem er enn á tilraunastigi.

Þykir þér virkilega eðlilegt að skipta fólki upp í tvo misréttháa hópa eftir því hvort það hafi látið narra sig í þessar sprautur eða ekki?

Þú ert samnefnari fólksins sem viðheldur þessu ástandi, og haldið okkur í herkví, með því að kynna ykkur ekki hvað raunverulega er í gangi í heiminum í dag, heldur trúið gagnrýnislaust öllu sem Þórólfur og Kári segja.

Að bera svona á borð fyrir lesendur þessa blaðs er bara óboðlegt!

 


Þá er komið að því, nú vill hann sprauta 5-11 ára börn!

1211mAlveg er það kostulegt að "faraldurinn" sé farinn gjörsamlega úr böndunum hjá þjóð sem er um 90% bólusett - með efnum sem áttu að vernda hana gegn honum. Hvað klikkaði eiginlega?

Heilbrigðisráðherra fékk birta grein í Morgunblaðinu þann 9. nóvember síðastliðinn þar sem hún talar um "mikilvægi bólusetninga", og að þær hafi skilað miklum árangri hér á landi.

Rökin sem hún færir fyrir því hver þessi mikli árangur sé, er ný samantekt sóttvarnalæknis, nema hvað!

Svo vísar hún í "góðan árangur" með örvunarbólusetningum í Ísrael, sem er eitt bólusettasta land í heimi, en gleymir að geta þess að þær sprautur virtust ekki gera meira gagn en það, að stefnt er á fjórðu sprautuna þar!

Og já já, auðvitað hvetur hún svo alla til að skella sér í enn eina sprautuna, og verða 160.000 manns boðuð fyrir áramót.

Samtökin Frelsi og ábyrgð birtu í morgun opið bréf til Svandísar, þar sem hún er spurð mikilvægra spurninga, og krafin rökstuddra svara. Það verður fróðlegt að fylgjast með hvort, og þá hverju hún svari.

Embættislaus frekur karl gefur skipanir

„Það kom út vísindagrein í New England Journal of Medicine í dag eða í gær sem að lýsir því að bólusetning barna frá 5-12 ára sé hættulítil og hafi mikil áhrif. Þannig að nú þurfum við bara að gefa í hvað bólusetningu snertir. Bólusetja börnin.

Bólusetja aukaskammt í alla fullorðna. Við þurfum að herða takmarkanir á landamærum eða að minnsta kosti sjá til þess að það sé ekki stöðugt streymi á veirunni inn í landið.“ (Áherslubreytingin er mín)

Ég veit ekki til þess að þessi maður sé kjörinn til neinna opinberra embætta hér á landi, og vil benda fólki á að kynna sér hvaða hagsmuna hann og hans fyrirtæki hefur að gæta. Hagnaður fyrirtækis hans tífaldaðist í fyrra samanborið við árið 2019. Follow the money segir einhvers staðar.

Herða herða, sprauta sprauta er mantran þessa dagana hjá þríeykinu, Svandísi og Kára, og nú vill hann (Kári) ólmur komast í börnin.

0% skráð dauðsföll úr pestinni í Bandaríkjunum hjá 5-11 ára börnum

Þetta er nú öll áhættan hjá þeim!

1211o

Heimild

Áróðurinn beinist beint að börnunum núna

Hræðsluáróðurinn í næstum tvö ár núna hefur verið alveg skefjalaus, með þeim "góða árangri", að stærstur hluti 18 ára og eldri eru þegar komnir með "grunnbólusetningu" eins og það heitir víst núna, en núna hefur hann náð lægstu mögulegu lægðum með áróðri fyrir barnabólusetningum.

Og það meira að segja í barnaefni!

1211p

Og hér er andstyggilegt vídeó frá Pfizer sjálfum sem er beint að börnum, og segir þau verða súperhetjur með súperkrafta eftir glundrið.

Ánægjulegt er þó að sjá hvað miklu fleiri hafa tjáð vanþóknun sína á þessu en velþóknun.

Uppljóstrari segir frá

Það er til nóg af sönnunargögnum um það að FDA og CDC viti það nú þegar að Pfizer sprauturnar muni skaða mörg börn á aldrinum 5-11 ára.

Skammtarnir séu ekki eins sterkir og þau eldri fá, en einu innihaldsefni var breytt fyrir þennan aldurshóp, en það er til að "koma á stöðugleika hjá börnum sem fá hjartaáföll"!

Blóðtappar og hjartasjúkdómar eru þegar þekktar aukaverkanir hjá börnum eftir þessar sprautur, sérstaklega drengjum. 15 ára drengur fékk hjartaáfall í miðjum fótboltaleik og dó nokkrum dögum eftir Pfizer sprautuna, þessi 13 ára varð blindur 10 dögum síðar, og 12 ára stúlka berst núna fyrir lífi sínu vegna segamyndunar í kransæðum.

Þetta eru því miður aðeins örfáar sögur af allt of mörgum. Fyrir utan allt unga íþróttafólkið sem dettur niður dautt eins og flugur þessi misserin.

Og ekki nóg með ofangreinda breytingu á bóluefninu fyrir börn, þá er samþykkti FDA í júní síðastliðinn blóðþynnandi lyf fyrir börn, nokkrum mánuðum áður en leyfi var gefið fyrir því að sprauta börn í þessum aldurshópi. Tilviljun?

Samkrull milli FDA og Pfizer -> Spilling

The FDA is an absolute joke

The following list outlines which FDA vaccine advisory committee board members are compromised and how:

  • Acting Chair Arnold S. Monto was a paid consultant at Pfizer as recently as 2018.
  • Steve Pergam received the Pfizer “vaccine” and was featured getting and promoting it by the Fred Hutchinson Cancer Research Center in Seattle.
  • Committee member Archana Chatterjee worked on a research project involving vaccines for infants that took place from 2018-2020 and was sponsored by Pfizer.
  • Myron Levine has mentored numerous U.S. post-doctoral fellows, and one of his proteges is Raphael Simon, Pfizer’s senior director of vaccine research and development.
  • James Hildreth, a temporary voting member, made a financial interest disclosure stating that he accepted $1.5 million while serving as president at Meharry Medical College, which administers Pfizer’s covid injections.
  • Geeta K. Swamy chairs the “Independent Data Monitoring Committee for the Pfizer Group B Streptococcus Vaccine Program,” which is sponsored by Pfizer. Swamy was also listed by Duke University as “a co-investigator for the Pfizer COVID-19 vaccine trial.”
  • Gregg Sylvester used to work as vice president at Pfizer Vaccines where he launched numerous vaccines for the company, including one for children.

Ekki hleypa þessu fólki í börnin ykkar!

Ef einhver heldur að lyfjarisar eins og Pfizer beri hag fólks og heilsu sér fyrir brjósti, þá er það misskilningur. Þessi fyrirtæki svífast einskis, eins og sjá má til dæmis í bóluefnasamningnum sem skrifaður var undir fyrir Íslands hönd.

Og ef einhver heldur að fólkið sem ég taldi upp hér að ofan beri hag okkar og heilsu sér fyrir brjósti, þá er það líka misskilningur.

Skýrasta staðfestingin á því er 5.526 aukaverkanir, þar af 32 andlát og 196 lífsógnandi eru þaggaðar niður eins og hægt er, og aldrei talað um þær. Bara sprauta sprauta sprauta.

Vilja einhverjir að þetta geti hugsanlega komið fyrir börnin sín? Svari hver fyrir sig.

0309f

 


Ungt hraust íþróttafólk er að veikjast eða deyja um allan heim eftir sprauturnar!

Ég ætla ekki að skrifa langan texta hér, heldur leyfa nokkrum sem horfðu á þessi videó og skrifuðu athugasemdir undir að hafa orðið, og eins og sjá má er mörgum þeirra eðlilega mikið niðri fyrir.

Vídeó 1

1111e"And that utter BASTARD Boris Shipman Johnson wants to inject the children next!! All these psychopaths in government are nothing more than cold blooded killers that have declared war on their citizens!!

Do NOT let them RAPE your child with their deathly needles!! There is no need to inject the kids for a virus that would never affect them and with a concoction that will render their immune systems useless for the rest of their lives,which wont be long if ass holes like murderer Boris Shipman gets its evil way!" Smelltu hér til að horfa á vídeóið

Vídeó 2

1111f

"All those stupid parents who are thinking of allowing their kids to be jabbed need to see this and other videos like this. The kids who might think of going against their parents wishes and give into peer pressure, need to see this.

If only someone could break into the airways and put this on the news, every news channel and by pass the fake shite they put out. Maybe, just maybe it might save some lives." Smelltu hér til að horfa á vídeóið

Vídeó 3

1111g

"Things are actually much worse than this. The vaccine scam runs very deep, but of course it is worth MANY billions to the drug companies so everything possible is done to brainwash the masses (and the medical profession) into thinking that vaccines are a good thing.

Someone once said, "Tell a lie once and it remains a lie, tell a lie a hundred times and it becomes a truth!" Smelltu hér til að horfa á vídeóið

Vídeó 4

1111h

"I believe you have the right to freedom, including when you harm yourself. Not when you have been subject to propaganda 24/7 and have not the faintest idea what is in that shot but the pharmaceutical corporations do.

NOT when you have the likes of that weasel Fauci up there on stage with your president assuring the Not A Vaccine is safe. Don't know if you noticed but the majority in the video were just kids. What would they know?" Smelltu hér til að horfa á vídeóið

Nokkrar greinar og vídeó um ungt íþróttafólk sem er að veikjast og/eða deyja eftir sprauturnar

Þetta er því miður bara brot af því efni sem hægt er að finna á netinu um skyndidauða ungs fólks, hjartavöðvabólgur og gollurshússbólgur í kjölfarið.

Nema að sjálfsögðu hér á Íslandi, fjölmiðlarnir þegja í kór.

Dauðsföll eftir bóluefni í USA, sjáið árið 2021!

1111i

Trúið þið ennþá Ragnheiði og Þórólfi?

„Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við." (Þórólfur)

„Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (Yfirhjúkkan í Vaxhöllinni)

Hér á Íslandi

Þetta er tekið af blogginu mínu frá í gær:

Blogg frá Þórólfi 9. nóvember

"Rannsóknir erlendis frá benda til að örvunarskammtur veiti um 90% vörn gegn smiti og alvarlegum veikindum umfram skammt nr. tvö og þannig eru sterkar vísbendingar um að hjarðónæmi muni nást með útbreiddri örvunarbólusetningu.

Reynslan mun hins vegar skera úr um hver raunverulegur árangur verður eða hvort fleiri örvunarskammta þurfi að gefa á næstu mánuðum eða árum. Alvarlegar aukaverkanir eftir örvunarskammtinn eru afar fátíðar og síst algengari en eftir skammt nr. tvö." (Áherslubreytingin er mín)

Hér vonar hann að fólk "sjái ljósið og mæti"!

"Greint hef­ur verið frá því að Þórólf­ur telji þriðja skammt­inn af bólu­efni mögu­lega vera leiðina út úr far­aldr­in­um. Vísaði hann þá meðal ann­ars til rann­sókna frá Ísra­el sem benda til þess að þriðja spraut­an sé 90% virk­ari en önn­ur til að koma í veg fyr­ir smit." (Áherslubreytingin er mín)

Góður! Veit hann ekki að Ísraelar eru farnir að undirbúa fjórðu sprautuna?

Er hægt að treysta sóttvarnalækninum?

Þarna vísar hann í einhverjar ótilgreindar rannsóknir, og er ekkert frekar en fyrri daginn beðinn um að sýna fram á nein gögn máli sínu til stuðnings.

Miðað við 31. ágúst síðastliðinn, þá var búið að tilkynna um 33 aukaverkanir hjá 12-17 ára börnum eftir sprauturnar, og hér er sagt að sex þeirra séu alvarlegar.

Að venju er sagt að ekki sé vitað hvort orsakasamhengi sé á milli bólusetningar og tilkynnts atviks.

Og svo á að sprauta 5-11 ára börn líka með þessum efnum!

Hér segir í grein á Mbl að niðurstaða sérfræðinganefndar Lyfjastofnunar Evrópu sé að hjartabólga sé afar sjaldgæf aukaverkun eftir sprauturnar!

Svo ég svari spurningunni sjálf, þá tel ég að það blasi við að hann hefur brugðist þjóðinni á marga vegu. Þrátt fyrir að búið sé að tilkynna um 5.526 aukaverkanir, þar af 32 andlát 196 aðrar lífsógnandi, þá nefnir hann þær aldrei einu orði.

Allir eiga bara að "sjá ljósið", og láta sprauta sig.

Uppfærsla, ný frétt: 148 lagst á spítala vegna lífshættulegra eða alvarlegra veikinda eftir bólusetningu.


Hvers vegna er Þórólfur ALDREI spurður út í aukaverkanirnar?

0603aÞað er með ólíkindum hann sé í hverju viðtalinu á fætur öðru þar sem hann talar um áhyggjur sínar af fjölgun smita.

Hvers vegna er hann aldrei spurður hvernig standi á því að það sé svona mikil útbreiðsla smita hjá einni mest sprautuðu þjóð í heimi?

Eða hvað margir af þessum "nýgreindu" séu raunverulega veikir.

Eða hvers vegna allar þessar aðgerðir hans hingað til hafi mistekist svona herfilega?

Enn eitt metið var víst slegið í gær þegar 178 manns "greindust", Fleiri sýnatökur -> fleiri "jákvæðar niðurstöður".

Táningsdrengur sem ég þekki var svo óheppinn á sunnudaginn að vera kallaður í sýnatöku, og fékk "jákvæða" niðurstöðu. Hann húkir núna fullfrískur heima í viku einangrun með fullfrískri móður sinni.

En að aukaverkununum...

Hvers vegna hefur hann ekki líka áhyggjur af þessum þegar tilkynntu 5.521 aukaverkunum, þar af 196 lífsógnandi og 32 andlátum? Og það sem verra er, hvers vegna í ósköpunum hefur ekki einn einasti fjölmiðill tekið hann á teppið og krafist svara?

Fjöldi þeirra er alveg skelfilegur, og það er alveg á hreinu að ekki næstum allar þeirra eru tilkynntar, ég veit um marga sem vilja ekki standa í einhverju "veseni", og aðra sem tengja þær ekki við sprauturnar, eða vita ekki að þeir geti tilkynnt um þær.

Og gleymum ekki að landlæknir sat á yfir 2.000 aukaverkunum í einhverja mánuði!

Uppfærsla, nýtt blogg frá Þórólfi 9. nóvember!

"Rannsóknir erlendis frá benda til að örvunarskammtur veiti um 90% vörn gegn smiti og alvarlegum veikindum umfram skammt nr. tvö og þannig eru sterkar vísbendingar um að hjarðónæmi muni nást með útbreiddri örvunarbólusetningu.

Reynslan mun hins vegar skera úr um hver raunverulegur árangur verður eða hvort fleiri örvunarskammta þurfi að gefa á næstu mánuðum eða árum. Alvarlegar aukaverkanir eftir örvunarskammtinn eru afar fátíðar og síst algengari en eftir skammt nr. tvö." (Áherslubreytingin er mín)

Sjáiði lygarnar í honum?

Leikur að orðum

Hann hefur þurft að viðurkenna að virkni bóluefnanna hafi ekki verið jafn góð og hann hafði vonað (eiginlega lofaði okkur!), svo nú er málflutningurinn á þá leið að þau séu vörn gegn alvarlegum veikindum.

En er það rétt hjá honum, og hvers vegna eru svona margir með fulla bólusetningu (sem heitir víst grunnbólusetning núna!) veikir og jafnvel í öndunarvél á spítala, er þetta þessi góði árangur sem hann hefur marg talað um?

Tölurnar sýna annað

"100% innlagna á gjörgæslu eru fullbólusettir einstaklingar segir belgískur læknir í sjónvarpsviðtali á ATV (sjá viðtal neðar.)

Fullbólusettir í Belgíu eru núna 74%, skv. Our World in Data. Þessi frétt frá Belgíu er ekki einsdæmi, þetta er að gerast víðast. Hér er viðtal við framkvæmdastjóra lækninga hjá stóru sjúkrahúsi í Ísrael, þar sem fram kemur að 95% alvarlega veikra Cl9 sjúklinga sem lagðir eru þar inn séu fullbólusettir". Öll fréttin.

Og nú liggja 15 á spítala, 2/3 bólusettir og þrír á gjörgæslu í öndunarvél. Meðalaldur þeirra sem liggja inni er 59 ár. Öll fréttin.

Nú hótar hann því að það styttist í að reglur verði hertar!

Sjáið ljósið gott fólk og komið í meiri sprautur, segir hann

Hér vonar hann að fólk "sjái ljósið og mæti"!

"Greint hef­ur verið frá því að Þórólf­ur telji þriðja skammt­inn af bólu­efni mögu­lega vera leiðina út úr far­aldr­in­um. Vísaði hann þá meðal ann­ars til rann­sókna frá Ísra­el sem benda til þess að þriðja spraut­an sé 90% virk­ari en önn­ur til að koma í veg fyr­ir smit." (Áherslubreytingin er mín)

Góður! Veit hann ekki að Ísraelar eru farnir að undirbúa fjórðu sprautuna?

1011bStærsti brandarinn er að nú er byrjað að kenna þeim sem hafa engan áhuga á að láta sprauta þessum genabreytandi tilraunaefnum í sig um að þau virki ekki!

Sorrí, ég verð bara að segja það eina ferðina enn: Hvað ætlar fólk að láta blekkja sig lengi, eru Íslendingar bara sofandi sauðir?

Fengið að láni frá Facebook, það er verið að blekkja fólk í fleiri sprautur!

1011f

 

Í þessum "faraldri" hafa hann og fleiri vísvitandi farið með ósannindi

„Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við." (Þórólfur)

„Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (Yfirhjúkkan í Vaxhöllinni)

 Þetta eru þau tvö sem mér eru minnisstæðust.


Fleiri sýnatökur þýða fleiri "jákvæð" smit!

Í framhaldi af blogginu mínu um daginn um skimunarfaraldurinn sem stendur yfir núna, langaði mig að fjalla aðeins um PCR prófin sem notuð eru.

Ég byrjaði á því að leita í smiðju læknis, sem hefur frá því þessi "heimsfaraldur" skall á, verið óþreytandi við að sýna fram á allar blekkingarnar sem okkur eru færðar, og ég held að flest, ef ekki allt sem hann hefur sagt hafi komið fram.

Hann kallar sig gamla manninn í stólnum, og hjá honum kom ég ekki að tómum kofanum. Þann 7. mars birti hann vídeó sem hann kallaði sláandi fréttir varðandi þessi próf.

Þar vísar hann á síðu gov.uk sem innihélt málsgreinina hér fyrir neðan. Ég prófaði að fara inn á þessa síðu, og það kom mér ekkert á óvart að búið væri að fjarlægja kaflann sem innihélt hana.

En hafi hann sagt að þessi málsgrein hafi verið á síðunni, þá er það satt. Svo einfalt er það nú.

"... fragments of inactive virus can be persistently detected by PCR in respiratory samples following infection – long after a person has completed their isolation period and is no longer infectious."

Semsagt, PCR prófið finnur brot af óvirkum veirum sem verða eftir í líkamanum þegar sjúklingur er ekki lengur smitandi.

Þetta staðfesti Fauskurinn sjálfur (Fauci), kannski óvart, en það má sjá í vídeóinu hér fyrir neðan.

"… if you get a cycle threshold of 35 or more, that the chances of it being replication competent are minuscule.

… you almost never can culture virus of a 37 threshold cycle … even 36 you gotta say, you know, it’s dead nucleotides, period."

Kary Mullis

Kary Mullis, sem fann upp PR prófin lést því miður rétt fyrir faraldurinn. Í þessum stutta bút útskýrir hann að þetta séu ekki greiningartól, en ef þú notir þau vel, getirðu fundið næstum hvað sem er í hverjum sem er.

40 snúningar á Íslandi!

Þann 24. febrúar síðastliðinn sendi ég tvær fyrirspurnir til Landlæknisembættisins, og sú síðari var um PCR prófin.

Þann 1. mars fékk ég þetta svar:

PCR prófin

 

Svo því sé haldið til haga, þá veit ég ekki hvort snúningafjöldanum hafi verið breytt síðan ég fékk þetta svar, en hef reyndar enga trú á að viðmiðið hafi verið lækkað.

Erlendir dómstólar hafa dæmt þau óhæf, eins og þið getið lesið um hér, þar sem líka er fjallað um mútumál og fleira vegna þeirra.

WHO viðurkenndi þann 14. desember 2020 að þessi próf gætu gefið falskar jákvæðar niðurstöður ef of margir snúningar væru notaðir, samt var viðmiðið ekki lækkað einhverra hluta vegna, sjá hér og hér, og frá og með 31. desember 2021 verður notkun þeirra hætt í Bandaríkjunum.

Á Íslandi

Nú er búinn að standa yfir skimunarfaraldur hér á landi um skeið, og þúsundir hafa flykkst í þessar sýnatökur, og hvað þýðir það? Jú, fleiri "SMIT"!

Og nú eru þau orðin svo "mörg", að allir verða að drífa sig í "örvunar"sprauturnar, annars sé voðinn vís hjá einni mest sprautuðu þjóð í heimi!

Og landinn trúir þessu eins og nýju neti (eina ferðina enn!), og "fullbólusettir", úbbs "grunnbólusettir" heitir það víst núna, eru farnir að hlaupa í líklega fyrsta bústið af mörgum.

Svo krafðist landsfrægur svöngvari þess um daginn að óbólusettir yrðu teknir úr umferð, því þeir séu sennilega að setja samfélagið á hliðina, að hans sögn. Þetta er alveg ótrúlegt viðtal við hann.

"Við eigum að sýna vottorð hvert sem við komum. Vera með kóða í símanum og sýna fram á bólusetningu."

Það er alveg kostulegt að reyna að koma sökinni yfir á þá ósprautuðu, frekar en "bóluefnin", sem eru greinilega ekki að virka eins og lofað var.

Hvað verður það næst hjá honum, mun hann heimta að við setjum á okkur sólaráburð svo hann brenni ekki?

Gamli maðurinn í stólnum

Mig langar að vitna aftur í gamla lækninn í stólnum, ætla þó að breyta þið vitið hvaða orði, í "pestina", annars fengi ég líklega ekki að pósta þessu á Facebook vegna ritskoðunar þar á bæ.

Þetta er úr vídeói sem hann gerði 23. janúar í ár, en á fullt erindi núna bráðum ári síðar, enda er blekkingarleikurinn enn í fullum gangi. Horfið endilega á það!

"The pointless lockdowns, the stupid social distancing rules, the absurd and very dangerous insistence on mask wearing and the immensely dangerous experimental vaccination programme are all being driven by the testing programme.

As the number of tests being done increases so the number of people who appear to have "pestina" also increases.

But many of the individuals who are said to have "pestina" do not have it. They are what is known as `false positives’."

Þetta hefur aldrei snúist um vírus, heldur til að ná stjórn á mannkyninu!

Með fullri vitund og vilja stjórnvalda, eins og sjá má í grein heilbrigðisráðherra í Mogganum í dag þar sem hún hvetur alla í sprauturnar.

Hún virðist "gleyma" að minnast á þessar 5.518 tilkynntu afleiðingar vegna þeirra, þar af 195 lífsógnandi og 32 andlát.

Smá gestaþraut í lokin: Hver græðir á öllum sýnatökunum hér á landi, og tífaldaði hagnað fyrirtækis síns í fyrra?

3010m


Er nýja bylgjan faraldur þeirra "fullbólusettu", sem kallast núna "grunnbólusettir"?

Í þessu stutta breska vídeói er farið yfir opinber gögn yfir fjölda smitaðra í Bretlandi, og ég er sjálf búin að hala niður þeim gögnum sem vitnað er í, og get staðfest að þau eru rétt.

Þarna kemur fram svart á hvítu að smit hafa verið staðfest í miklu hærra hlutfalli hjá þeim bólusettu en óbólusettu í aldurshópnum 30 ára og eldri.

0711e

Hvers vegna greindust svona mörg smit hér á landi í sumar eftir þessar massa "bólusetningar"?

Setur fólk engin spurningarmerki við það?

Sjálfstæðisflokkurinn lofaði að öllum takmörkunum yrði aflétt þegar stærstur hluti þjóðarinnar hefði fengi fyrri skammt bóluefnis (man reyndar ekki alveg hvenær þeir komu með þetta loforð).

Unga fólkinu var sagt að með öllum þessum "bólusetningum" yrði hægt að halda upp á verslunarmannahelgina, en svo kom skellurinn.

Það var víst einhver smitbylgja í uppsiglingu, og hætt var við flestar, ef ekki allar hátíðir.

Alveg eins og í fyrra þegar helstu hátíðir þar sem fólk kemur saman og gleðst, voru blásnar af. 

Eins og stefnir í núna fyrir jólin.

Umræðan

Umræðan um allt varðandi þennan faraldur hefur verið einstaklega einsleit og villandi, og sjaldnast neinum hleypt að borðinu nema þeim sem mæra þessi tilraunaefni. Eini fjölmiðillinn sem hefur gert það er Útvarp Saga (sem er án ríkisstyrkja) sem á heiður skilinn fyrir það.

Það er aldrei talað um hinar hliðarnar og aukaverkanirnar sem eru núna komnar upp í 5.516, þar af 195 lífsógnandi, og 32 andlát, og aldrei eru landlæknir og sóttvarnalæknir krafin svara vegna þeirra. Allt er þaggað niður eins og hægt er.

Það vill svo skemmtilega til að félagar mínir, þeir Jóhannes Leifsson og Helgi Örn Viggósson eru byrjaðir með podcast, og voru akkúrat að birta nýjan þátt þar sem þeir tala meðal annars um efni þessa bloggs.

Frelsi og Ábyrgð, 2. þáttur: Leikhús fáranleikans

"Þær lokanir sem eru nú að skella á voru algjörlega fyrirsjánlegar. Í þessum 2. þætti fara þáttastjórnendur, Jóhannes og Helgi yfir hins ýmsu mál sem tengjast komandi lokunum og nýjustu upplýsingar um hvað koma skal.

Farið er yfir sóttvarnarreglugerðina og ýmsar þverstæður dregnar fram. Eins og að 2000 manna fjöldatakmörkun var sett á strætó, skipulagðir viðburður utanhúss eftir klukkan 1 bannaðir (sama hversu margir kæmu), bann við dansi án grímu og margt í þessum stíl.

Ljóst er af lestri reglugerðarinnar að það stefnir í aðra jólakúlu í ár. Farið er yfir nýjar rannsóknir (m.a. frá CDC) sem sýnir að þrefalt meiri líkur eru á að einkennalausir bólusettir smiti en óbólusettir. Mismunun óbólusettra stenst því enga skoðin.

Núverandi smitbylgja er einkum smitbylgja þeirra bólusettu. Eins er sýnt hvernig nýleg yfirlýsing sóttvarnarlæknis um inflúensu og RS-vírus stenst ekki skoðun. Eins er farið yfir nýlega grein um að spítalar í Bandaríkjunum væru að yfirfyllast af mjög veiku fólki, sem væri ekki með covid.

Framundan gætu verið hættulegri tímar með stökkbreyttri veiru, og vaxandi ADE áhrifum. Hætt er við að bólusetning með bóluefni sem þróað var við vírusafbrigði sem var til í fyrra hafi lítið að segja nema hitt þó kannski heldur. Þetta og margt annað er komið inn á í spjallinu."

Helgi og Jóhannes eru báðir afskaplega fróðir um báðar - eða allar hliðar faraldursins, og Helgi hefur birt marga frábæra og rökstudda pistla á Facebook vegg sínum.

Þetta eru menn sem vert er að hlusta á.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband