Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2021

Hann sagði hlæjandi fyrir rúmum tveim árum síðan að grímur gerðu ekkert gagn!

Nú er eina ferðina enn búið að setja á grímuskyldu á eina mest "bólusettu" þjóð í heiminum, þrátt fyrir að marg sannað sé að þær geri lítið eða ekkert gagn gegn örsmáum veirum sem smjúga auðveldlega í gegn um hlutfallslega risastóra möskva grímanna.

Það er svolítið merkilegt að sóttvarnalæknir Bandaríkjanna sagði það sjálfur í viðtali á Bloomberg í maí 2019.

0711Þáttastjórnandinn spurði hann hver væri besta leiðin til að verjast smitsjúkdómum, og hvort hann ætti að nota grímu.

Þá greip Dr. Fauci hlæjandi fram í og sagði, nei nei nei, þú átt að forðast allar öfgar (avoid all the paranoid aspects) og gera eitthvað jákvætt eins og að reykja ekki eða drekka, fá nægan svefn, hreyfa þig og borða hollan mat.

1706aBingó! Man einhver eftir því að hann, Þórólfur eða Alma hafi komið með svipuð ráð til þjóða sinna í þessum "heimsfaraldri"? Ónei, þau hafa ekkert gert nema kynda undir hræðslu fólks og viðhalda henni!

Hvers vegna verið er að birta daglegar tölur um nýjustu "smitin", er bara til að gefa fólki aldrei frí frá óttanum.

Meira að segja sagði Alma á einum hræðslufundinum í fyrra þegar hún var spurð að því hvort fólk ætti að taka D vítamín, að það væri ekkert sem benti til þess að það hefði nokkuð að segja.

Ég fann fyrir tilviljun í fyrra grein í Læknablaðinu um starfssystur Ölmu, Sif Hansdóttur lungna- og gjörgæslulækni sem hafði lokið doktorsritgerð undir heitinu D-vítamín er vörn gegn veirum.

Þar kemur meðal annars fram að skortur á D-vítamíni tengist aukinni tíðni sýkinga í öndunarvegi og bólgusjúkdóma í lungum, til dæmis astma.

Hefði þríeykið ekki átt að leita ráða hjá henni?

Fauskurinn og "vísindin"

2110bÍ tölvupósti frá febrúar 2020 sagði hann, grímur eru í raun fyrir smitað fólk til að koma í veg fyrir að það dreifi smiti til fólks sem er ekki smitað frekar en að vernda ósmitað fólk gegn smiti.

Í viðtali hjá 60 Minutes í maí 2020 sagði hann nákvæmlega það sama og í tölvupóstinum, og að á þessari stundu eigi fólk ekki að nota grímur, það sé engin ástæða til þess.

Í miðjum faraldri láti það fólki kannski finnast það öruggara, og það gæti komið í veg fyrir dropasmit, en veiti fólki ekki þá fullkomnu vörn sem það haldi.

Og hér sagði hann í febrúar 2020 að fólk ætti frekar að hafa áhyggjur af flensunni, og að grímur veiti enga vörn gegn veirum, þar sem þær komist auðveldlega í gegnum þær.

Svo tóku "vísindin" hans 180 gráðu viðsnúning, allt í einu urðu grímur "nauðsynlegar", svo jafnvel tvær eða þrjár, og nú boðar hann að fólk verði jafnvel að nota þær árið 2022 svo hægt verði loksins að snúa tilbaka til eðlilegs lífs.

Hér segir: Það er einföld staðreynd að Dr. Fauci laug um grímur og hann laug um hjarðónæmi. Þessi fjölmiðlastjarna faraldursins er ekkert annað en lygari og pólitískt sinnaður embættismaður. Hann lætur eins og hann sé að reyna að bjarga Ameríku, en það eina sem hann geri sé að fylgja pólitískum vindum hvers tíma.

Merkilegt hvað þetta er allt svipað og við heyrum frá þríeykinu og þeim öllum sem ætla koma nálum í hvern handlegg hér á landi!

Lygarnar um grímurnar

Þessi hér segir, vaknið gott fólk, þessar grímur eru mjög skaðlegar heilsu ykkar, og sýnir það með mælitæki, og hér sýnir húsamálari það líka svart á hvítu. Og hér er enn eitt um þessa sóttvarnageðveiki.

Og flestir hafa séð myndir af elítunni sem segir okkur að nota grímur en gerir það ekki sjálft nema fyrir myndavélina.

Íslendingar eru ótrúlega trúgjarnir og hlýðnir upp til hópa

Það hvarflar ekki að þeim að staldra við og hugsa hvort allt sé með felldu, og hvernig það geti staðist að eftir allar sprauturnar séum við í enn einni bylgjunni!

0711a

Ef eitthvað er sagt gert til að vernda fólk og passa upp á öryggi þess, þá er tilgangurinn akkúrat þveröfugur. Við erum því miður búin að gleyma sögunni, sem átti aldrei að fá að endurtaka sig!

Farið að kynna ykkur það sem er að gerast í löndunum eins og til dæmis Kanada, Írlandi, Nýja Sjálandi, Ástralíu, þar sem verið er að svipta fólk öllum mannréttindum og frelsi með fasískum hætti, allt í nafni öryggis!

0910i

 


 


Hefur sóttvarnalæknir ekki frétt af 28.103 andlátum og 2.637.525 aukaverkunum eftir sprauturnar í Evrópu?

2904bNú er búið að senda þúsundir hressra Íslendinga í sýnatökur með prófum sem gefa allt að því 97% falskar jákvæðar niðurstöður, og úr því varð til ný "bylgja", sem hefur enn og aftur leitt til samkomutakmarkana og grímuskyldu.

Sjáiði ekki hversu auðvelt er að gera þetta? Daglegar "fréttir" og hræðsluáróður í fjölmiðlunum um "smittölur" gærdagsins og fólk hvatt til að fara í sýnatökur.

Og veiruhræddur landinn, jafnvel "fullbólusettur" (sem þýðir víst "grunnbólusettur" núna) hleypur til og hlýðir (Víði), og veltir ekkert fyrir sér hvers vegna endalaust eru að koma upp "bylgjur" hjá einni mest sprautuðu þjóð í heimi!

Snýst þetta um að koma út þessum 1.4 milljónum skammta af Pfizer sem búið er að skuldbinda okkur til að kaupa og nota?

Ef þessir 160.000 sem boðaðir verða í "örvunar"sprautur á næstunni þiggja þær, þá verða eftir 1.24 milljónir skammta, og athugið, það á að sprauta þessum efnum í fólk allt fram á árið 2023!

Það er greinilega skelfilega auðvelt að skella í nýjar "bylgjur" til að koma út fleiri skömmtum. Ætlar fólk virkilega endalaust að trúa þessu og láta sprauta sig á hálfs árs fresti með einhverjum efnum sem það hefur ekki hugmynd um hvað innihalda?

Glórulaus ósannindi hjá heiðursorðuhafanum, allt til að fá fólk í sprauturnar!

„Það er ekki nokk­ur spurn­ing að fólk á að þiggja bólu­setn­ingu. Við sjá­um að bólu­setn­ing er svona 50% virk við að koma í veg fyr­ir smit og við náum ekki hjarðónæmi með henni. Engu að síður er hún áhrifa­rík við að hindra smit og sér­stak­lega að koma í veg fyr­ir al­var­leg veik­indi. Þetta sýna töl­ur er­lend­is frá sem passa við okk­ar töl­ur sem sýna þetta mjög glöggt,“ seg­ir Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir við Morg­un­blaðið.

Mér þætti fróðlegt að sjá hvaðan þessar tölur erlendis frá sem sóttvarnalæknir vísar í, í þessu viðtali.

Á myndinni hér fyrir neðan sjáið þið tilkynntar aukaverkanir og andlát í þeim 27 Evrópulöndum sem eru í Evrópusambandinu, og senda þær til EudraVigilance.

Fjöldi landa sem tilheyra Evrópu er um það bil 50, svo það gefur augaleið að aukaverkanir og andlát í álfunni eru miklu fleiri.

Hér getið þið séð sundurliðaðar aukaverkanir eftir hvert "bóluefni", miðað við 19. október 2021, og þær er hroðalegar.

Þessi svokölluðu "bóluefni" skaða fólk og/eða drepa

0611c

 

Sóttvarnalæknir segir alla eiga að þiggja bólusetningu

Það blasir við öllum sem sjá vilja að hann er ekki að vinna fyrir þjóðina, og hann er ekki að virða læknaeiðinn sinn, svo hvaðan fær hann fyrirskipanir?

Hvaða heiðvirður læknir hvetur fólk til að láta sprauta sig með efnum sem valda svona gríðarlega miklum skaða?

 

0611d

Prófið að gúggla "died suddenly" (án gæsalappa) og smella á news/fréttir. Þá munuð þið sjá ótal fréttir um fólk, allt niður í unglinga sem varð bráðkvatt.

Þótt auðvitað sé ekkert hægt að fullyrða um að dánarorsakirnar hafi verið út af sprautunum, þá eru þessar fréttir átakanlega margar, og sérstaklega þær af ungu fólki.

Hér eru nokkur dæmi sem komu upp í minni leit, þið getið fengið aðrar leitarniðurstöður.

Umhugsunarefni:

Ég fékk þetta að láni frá Facebook færslu:

  • "89% landsmanna fullbólusett
  • Eða 283.301 einstaklingar
  • 12 ára og eldri....
  • 12.000 börn hafa verið bólusett með tilraunalyfi...
  • Það hafa bara 5 dáið á þessu ári 2021 útaf Covid-19
  • 29 Íslendingar dóu í fyrra
  • Árið 2005 dóu 29 Íslendingar úr flensu
  • 14 af 29 voru yfir áttrætt
  • 6 af 29 voru yfir nírætt
  • Samtals 21 einstaklingar sem voru 80+ í aldri
  • Lífslíkur karlmanna á Íslandi er 81 ár
  • Fyrir konur eru það 83 ár
  • 32 Íslendingar dáið útaf bólusetningu
  • Lyfjastofnun hefur borist 5.508 tilkynningar um meintar aukaverkanir í kjölfar COVID-19 bólusetningar. Þar af 226 alvarleg.
  • Um 1900 Íslendingar deyja árlega
  • Það er talað um fjórðu sprautuna í Ísrael
  • Það er talað um þriðju sprautuna á Íslandi
  • Bóluefnið er ekki að virka!
  • Það hefur aldrei áður þurft að sprauta fólk aftur og aftur með bóluefni...
  • Er almenningur í svona mikilli afneitun!?
  • Landlæknir hélt aftur upplýsingum um 2000 aukaverkanir!"

Já, almenningur er í gríðarlegri afneitun, eða hreinlega heilaþveginn af þessum linnulausa hræðsluáróðri.

Ég kæri mig ekki lengur um að vera svipt sjálfsögðu persónufrelsi og vera skikkuð til að anda aftur að mér úrganginum sem lungun mín eru að losa sig við með þessum bölvuðu grímum.

Þetta mun aldrei enda nema fólk fari að rakna úr doðanum og segja NEI, HINGAÐ OG EKKI LENGRA!

Annars munum við fá yfir okkur "nýjar bylgjur", og þá helst fyrir jól, páska og verslunarmannahelgarnar, þegar fólk kemur saman og nýtur samvista hvert við annað. Haldiði að þetta séu einhverjar tilviljanir?

 

0611e

Í boði íslenskra stjórnvalda eruð þið þátttakendur í lyfjatilraun lyfjafyrirtækja sem hafa þurft að greiða milljarða dala í sektir fyrir mútur, vörusvik og annan óþverra!

0611g

Enginn myndi láta sprauta sig ef Þórólfur téði sig jafn mikið um skaðræði þessara genabreytandi tilraunaefna, og þessar endalausu "áhyggjur" sínar af "faraldrinum"!

Það eru hlýðnu, sofandi sauðirnir sem viðhalda þessu ástandi og aftra því að ég og allir þeir sem eru búnir að sjá í gegnum leikritið fyrir lifandis löngu, fáum óhrædd að lifa okkar eðlilegu lífum.

 

 


Nú eru víst áður "fullbólusettir" bara með "grunnbólusetningu", og það er skimunarfaraldur í gangi!

Ég verð að viðurkenna að ég er alveg búin að fá upp í kok núna þótt ég sé hreint ekkert hissa á nýjustu fréttunum. Það er búið að setja hömlur, og gagnslausa grímuskyldu á okkur eina ferðina enn, og grímurnar gera ekkert nema gera framleiðendurna ríkari, og skapa meiri mengun í lífríkinu!

2808

Það er búinn að vera gríðarlegur skimunarfaraldur undanfarið, og notuð til þess þessi fölsku PCR próf sem gefa allt að 97% falskar jákvæðar niðurstöður.

Auðvitað finnast fleiri "smit" með þessu, það gefur alveg augaleið! Og ekki er hægt að treysta þessum hraðprófum meira en svo að kuldi geti framkallað falskar jákvæðar niðurstöður!

Það hafa sko alveg áður komið erfiðir faraldrar hérna án þess að allt sé sett á hliðina trekk í trekk og fólk skikkað til að nota þessar súrefnisheftandi munnbleyjur.

Er þetta virkilega staðan hjá einna mest "bólusettu" þjóð í heimi?

"Fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis að hann telji hertar takmarkanir innanlands nauðsynlegar til að forða því að neyðarástand skapist í heilbrigðiskerfinu með ófyrirséðum aðgerðum. Ná þurfi daglegum fjölda smita niður í 40 til 50 og viðhalda þeirri stöðu með takmörkunum þar til betra ónæmi næst í samfélaginu með örvunarbólusetningum og náttúrulegri sýkingu." (Áherslubreytingin er mín)

Hefði ekki verið nær að verja öllum þessum milljörðum sem hafa farið í þessi "bóluefni" og atvinnuleysisbætur í að byggja frekar upp heilbrigðiskerfið?

0511jNú er verið að magna upp hræðsluna hjá þeim sem áttu víst að vera fullbólusettir, þannig að þeir fari í "örvunar"sprautu (fyrstu af mörgum?).

Og takið eftir hvernig umræðunni er lævíslega breytt.

Í stað þess að segja fólki hreinskilnislega að ein sprauta af Janssen og tvær af hinum hafi ekki virkað eins og lofað var, þá var mildilega gefið í skyn að það þyrfti að örva ónæmiskerfin aðeins betur með þeirri þriðju (eða annarri hjá þeim sem fengu Janssen).

Og nú heitir það sem áður kallaðist full bólusetning, grunnbólusetning!

Sem þýðir hvað? Eitthvað hlýtur að þurfa að byggja ofan á grunninn ekki satt?

Grunaði ekki Gvend!

Í nýrri frétt á Mbl segir: 160.000 verða boðuð í örvunarbólusetningu fyrir áramót, og allir sem geta hvattir til að mæta.

"Bólu­setn­ing­ar við COVID-19 hafa skilað mikl­um ár­angri hér á landi. Fram­kvæmd bólu­setn­inga gekk hratt og vel og al­menn þátt­taka var með því mesta sem þekk­ist meðal þjóða. Í nýrri sam­an­tekt embætt­is sótt­varna­lækn­is er fjallað um ávinn­ing bólu­setn­ing­ar."

Árangri í hverju? 5.512 óþörfum og tilefnislausum aukaverkunum hjá áður heilbrigðu fólki?

0511e

0511k

 

Hérna sjáið þið arfleifð Þórólfs, Svandísar, Ölmu, Víðis, Kára og co, óafturkræfan skaða hjá jafnvel þúsundum manns, og að allra minnsta kosti 32 líf.

En einhvern veginn verður að koma út þessum 1,4 milljónum skammta af Pfizer sem við erum búin að skuldbinda okkur til að kaupa og nota!

Ballið er byrjað aftur með reglulegum hræðslufundum þríeykisins, þar sem þau munu gera allt til að magna upp veiruhræðsluna hjá þeim tví- og þrísprautuðu, sem taka undir allt sem þau segja.

Gleymum jólunum, og látum okkur ekki dreyma um að mega að bjóða stórfjölskyldunni og ömmu og afa í heimsókn um jólin - frekar enn í fyrra.

Ég segi bara aftur: Hvað ætlar fólk að láta blekkja sig lengi, eru Íslendingar bara sofandi sauðir? 

P.s.

Lesið þetta frábæra opna bréf til heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknis!

"Nú hefur íslenska þjóðin búið við gríðarlegar samkomutakmarkanir og á tíðum þurft að sæta frelsisskerðingum og óþarfa inngripum af hálfu ríkisvaldssins í vel á annað ár. Ástæðan er öllum kunn - það mun vera kórónuveiran. Í upphafi átti þetta ástand að vara stutt og stefnt var að því að „fletja út kúrvuna”. Annað hefur komið á daginn og 18 mánuðum síðar eru hér enn höft og inngrip orðin hluti af daglegu lífi einkennalausra og ósmitaðra. "

 

 


Enginn myndi láta bólusetja sig eða sína ef....

0311j

.... fjölmiðlarnir fjölluðu jafn mikið um skaða og andlát vegna þessara svokölluðu "bólusetninga" sem reynt er að fela, og þeir fjalla um smittölur gærdagsins.

Og þetta er bara því miður staðreynd, og við hér á Íslandi erum hreint ekkert undanskilin í þessum efnum.

Við höfum öll séð kertum skreyttu fréttatilkynningarnar í fjölmiðlunum þegar einhverjir hafa víst dáið "vegna vírussins", jafnvel gamalmenni sem voru hvort eð er á grafarbakkanum með marga undirliggjandi sjúkdóma.

Harmakveinið og samúðarkveðjurnar í athugasemdakerfunum voru eiginlega pínlegar. Hér einu sinni hefði bara verið sagt, hann Jón eða hún Gunna lifðu góðu lífi og voru svo lánssöm að ná svona háum aldri.

Ég hef hins vegar aldrei séð samsvarandi tilkynningar vegna þeirra sem dóu eftir þessar sprautur, jafnvel fólk á besta aldri. Er það tilviljun eða ásetningur?

En veiruhræddur almenningur tók - og tekur enn athugasemdalaust undir allan einhliða fréttaflutninginn af þessari ægilegu "drápsveiru".

Góð spurning, hvað varð um alvöru fréttamennsku?

0311iÞað má alveg setja stóra spurningu við fréttaflutning þessi misserin, og hverra hagsmuna þeir sem þær flytja, þjóna.

Ég trúi ekki lengur neinu af því sem ég sé um þennan heimsfaraldursáróður í fjölmiðlunum í dag, og hef oft furðað mig á hvers vegna Þórólfur, Kári, og öll þau sem vilja sprauta okkur öll með einhverjum tilraunabóluefnum fá endalaust drottingarviðtöl í fjölmiðlunum án nokkurra gagnrýninna spurninga.

Ekkert þeirra er spurt út í þessar fimm þúsund og eitthvað aukaverkanir eftir sprauturnar, eða andlátin í kjölfar þeirra.

Hvers vegna er þetta fólk aldrei krafið raunverulegra svara?

Eru fjölmiðlar, jafnvel RÚV sem segist vera okkar allra keyptir til þess að birta okkur ákaflega einhliða umfjöllun um þennan meinta "heimsfaraldur"?

Miðað við sannanirnar um skaðsemi þessara svokölluðu "bóluefna", sem auðvelt er að finna utan þessara ritskoðuðu fjölmiðla, samfélagsmiðla og leitarvéla, þá getur varla annað verið.

Facebook "stendur sig vel" í ritskoðuninni og bætir athugasemdum neðan við færslur sem fjalla um pestina, en það sem fæstir vita er það þessi "staðreyndavöktun" er kostuð af hagsmunaaðilum bóluefna.

Þessi mynd er tekin á mótmælum nýlega þar sem lögfræðingur fjallar um að andvana fæðingum hafi fjölgað úr 5-6 á ári í 86 á einungis 5 mánuðum síðan byrjað var að sprauta verðandi mæður.

Ákaflega ósmekkleg athugasemd um gæði og virkni þessara efna var sett undir, eins og vanalega.

0211c

Örfáar frásagnir sem birtast EKKI í fjölmiðlunum

Ég veit ekki hvað ég er búin að sjá margar þúsundir svona átakanlegra frásagna á óritskoðuðum miðlum, um allt niður í lítil börn.

Ég er sannfærð um að engir foreldrar myndu láta "bólusetja" börnin sín með þessum efnum ef þau sæju svona frásagnir, né myndi fólk láta narra sig í "örvunar"sprauturnar.

En þetta virðist allt með ráðum gert, einhvern veginn virðist eiga að koma út þessum 1,4 milljónum skömmtum af bóluefni sem við höfum skuldbundið okkur til að kaupa!

Smellið á myndirnar til að stækka þær.

0411e

  0411f

0411g

0411h

 0411n


Minnisblað til sóttvarnalæknis

Þórólfur, hvernig væri að þeir sem enn eru lífhræddir út af "drápsveirunni", haldi bara áfram að....

  • Spritta sig
  • Nota grímur og hanska
  • Stunda félagsforðun
  • Vernda ömmu gömlu með því að heimsækja hana ekki
  • Fara í allar framtíðar "örvunar"sprautur

.... og leyfa okkur hinum óhræddu bara að lifa okkar eðlilegu lífum?

Ég tek fulla ábyrgð á mínu lífi og heilsu, og kæri mig ekki um láta sprauta mig, heilbrigða manneskju með einhverju tilraunalyfjasulli, og hvað þá núna þegar allar spár um skaðsemi þeirra eru að koma fram.

Og ég kæri mig ekki um frekari skerðingar á frelsi mínu til lífs og starfa!

0311a

Nú ætlar þú að fara að bjóða fólki sem taldi sig vera fullbólusett, upp á smá búst, með eiturbrasinu sem búið er að tilkynna um 2.244 aukaverkanir vegna, þar af 24 andlát.

"Líklegt er að fljótlega verði hafist handa hér á landi við að bjóða öllum örvunarbólusetningu með bóluefni Pfizer segir sóttvarnalæknir í pistli sem hann birti á covid.is. Örvunarskammturinn verði veittur að minnsta kosti fimm til sex mánuðum eftir aðra bólusetningu."

Stefnirðu að því að halda okkur í höftum þangað til búið verður að sprauta okkur með þessum 1,4 milljón skömmtum af Pfizer sem búið er að skuldbinda okkur til að kaupa?

Þú sem sóttvarnalæknir veist að sjálfsögðu allt um þessar þúsundir aukaverkana eftir sprauturnar, hvers vegna ertu ekki löngu búinn að stöðva þær?

Hefurðu enga siðferðis- eða sómakennd, og hvað varð um læknaeiðinn þinn, "Fyrst, ekki skaða"?

Störfum þínum "í þágu þjóðarinnar" er hér með lokið.

Minnisblað endar.

Takmarkanir nauðsynlegar næstu mánuði eða ár

"Sóttvarnalæknir telur að samkomutakmarkanir þurfi að vera við lýði næstu mánuði eða ár. Hann vill hæfilegan milliveg til lengri tíma í stað þess að vera sífellt að herða og slaka á klónni."

Og svo segir hann langt vera í náttúrlegt hjarðónæmi! Og hvers vegna er WHO alltaf að breyta skilgreiningunni á því?

"Þar sem engin merki eru að sögn Þórólfs um að Covid sé á förum, er tillaga hans að feta milliveg í takmörkunum; ekki of mikið en ekki of lítið heldur, svo að bylgja geti tekið sig upp og yfirkeyrt sjúkrahúsin."

Er þetta allur heimsfaraldurinn?

0311d

Hugsið ykkur, í þessum ægilega "drápsfaraldri" hafa ekki nema 13.739 "greinst með smit", og það með þessum fölsku PCR prófum, svo þetta er allur faraldurinn!

Og hvað ætli mörg af þessum "smitum" hafi verið einkennalaus? Einkennaleysi er víst eitt af einkennunum!

  • Vissuð þið að árið 1976 var bólusetningum hætt í USA eftir að 3 eldri borgarar létust? Nú eru þúsundir látnir þar og enn fleiri skaðaðir.
  • Vissuð þið að þann 19. mars 2020 var Covid-19 skilgreint sem flensa í Bretlandi, en ekki hættulegur smitsjúkdómur?
  • Eða að bresk heilbrigðisyfirvöld breyttu skilgreiningunni á hvað teljast Covid tilfelli í sumar?
  • Eða hverjir fjármagna breska lyfjaeftirlitið að stóru leyti?

Góðu fréttirnar

Sem betur fer er maður farinn að sjá vaxandi óþol í samfélaginu gegn þessum endalausu aðgerðum, og eru þónokkrir þegar farnir að tjá sig um það opinberlega.

En hvað getum við gert til að stöðva þetta? Svarið er mjög einfalt, þegar við öll segjum NEI, hingað, og ekki lengra!

0110f

 

 

 


Gerið eins og ég segi, ekki eins og ég geri!

Hér er fantagott vídeó með Neil Oliver þar sem hann fer yfir hræsnina og tvískinnunginn í heiminum í dag.

Ríkisbubbar fljúga í einkaþotum á loftslagsráðstefnu í Glasgow með tilheyrandi útblæstri og mengun, og munu væntanlega meðal annars ræða um útrýma prumpandi beljum, yfir nautasteikinni sinni.

Fleiri sammála honum en ég!

"We are in a real sorry state of affairs when our own government are not defending the rights of its people. Sadly I believe things will get worse with more controls in place but I like you will not comply. Keep your great words of wisdom coming. You have had to sacrifice so much to do these broadcasts so thank you."

"Bill Gate talked about how everyone need to make sacrifices for climate change, but he refuse to stop flying around on his private jet, saying it would make no difference."

"Neil, you give me hope. I hope people are listening and opening their eyes to the reality in front of us. It’s one big theatre production."

"Well said Neil,speaking out what the rest of us feel............I sometimes feel like we have ended up in an episode of The Twilight Zone where only i can see something is seriously wrong and nobody else see's it and they all think I'M crazy."

Grímuleikhús glóbalistanna

0211gHér segir: "Það má með sönnu segja að Covid-19 faraldurinn sé farinn að snúast upp í eitt stórt grímuball þar sem leiðtogar stærstu ríkja Evrópusambandsins, þau Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Angela Merkel kanslari Þýskalands fara sjálf ekki eftir þeim ströngu reglum sem þau hafa lagt á borgara sína."

 

One rule for thee, one for me

3110e

 

Og að sjálfsögðu eru ráðstefnugestir undanskildir því að þurfa að sýna bólusetningarpassa.

Karl prins er kjáni

Hér er flott samantekt á því hvernig elítan sjálf sóar orku eins og enginn sé morgundagurinn, á meðan hún prédikar yfir okkur hinum um að við verðum að spara hana. 

Hefði þetta lið ekki átt að sýna gott fordæmi og halda þessa ráðstefnu á Zoom?

 

 

 

 

 


Bóluefnahryðjuverk? - Setur Pfizer hagnað ofar lífum?

Mikil leynd hefur hvílt yfir þeim bóluefnasamningum sem ríkisstjórnir skrifa undir fyrir hönd þjóða sinna, og er sú íslenska þar ekki undanskilin.

Samningurinn sem mörg lönd hafa gert við lyfjarisann Pfizer, hefur lekið út á netið, og er hann vægast sagt skelfilegur!

Public Citizen, sem eru óhagnaðardrifin samtök eru með hann undir höndum og þau segja að Pfizer geti komið í veg fyrir að þjóðir tali um samningana, geti stöðvað bóluefnasendingar, einhliða breytt afhendingaráætlunum og krafist opinberra eigna sem tryggingar, verði ákvæði samningsins ekki uppfyllt.

Semsagt, Pfizer ræður öllu!

Stutt samantekt:

  • Public Citizen hefur farið yfir og birt leynisamninga milli Pfizer og Albaníu, Brasilíu, Kólumbíu, Chile, Dóminíska lýðveldisins, framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Perú, Bandaríkjanna og Bretlands.
  • Samningarnir sýna að þjóðirnar hafa framselt áður óþekkt vald til Pfizer, og í nánast öllum aðstæður eru hagsmunir Pfizer í fyrirrúmi.
  • Sum lönd, þar á meðal Brasilía, Chile, Kólumbía, Dóminíska lýðveldið og Perú, hafa sett ríkiseignir sem tryggingu gegn málsóknum vegna aukaverkana, þar á meðal varasjóði banka, herstöðvar og sendiráðsbyggingar.
  • Samningarnir tryggja ekki aðeins hugverkarétt Pfizer, heldur ef Pfizer yrði fundið sekt um að hafa stolið hugverkaréttindum annarra, færa sumir samninganna ábyrgðina yfir á ríkiskaupendur. Pfizer getur stolið hugverkum annarra án afleiðinga í að minnsta kosti fjórum löndum.
  • Samningarnir veita Pfizer einnig rétt til að þagga niður í stjórnvöldum. Í Brasilíu er embættismönnum bannað að gefa "nokkrar opinberar tilkynningar um tilvist, efni eða skilmála [samningsins]" án skriflegs samþykkis fyrirtækisins. Svipuð ákvæði um þagnarskyldu eru innifalin í samningum við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og bandarísk stjórnvöld. Eini munurinn er sá að reglur um þagnarskyldu gilda um báða aðila.

Heimild - Athugið, vegna ritskoðunar og aðfarar að málfrelsi mun þessi síða verða tekin niður aðfararnótt 4. nóvember, og annað tímabundið efni sett inn.

Í þessu vídeói er farið yfir hvernig fyrirtækið kúgar lönd til að láta sprauta þegna sína.

Hún kallar þetta réttilega bóluefnahryðjuverk, og við skulum gera okkur grein fyrir að samningurinn sem skrifaður var undir fyrir Íslands hönd var gerður í gegnum Evrópusambandið, svo flest ef ekki allt ofantalið á við okkur líka!

0111aa

 

0111bb

Mannréttindasamtökin Mín leið - Mitt val eru líka með afrit af samningnum undir höndum, og fjölluðu í júlí um þennan samning sem var leyndur fyrir Alþingi og íslensku þjóðinni árið 2020.

Hér getið þið lesið ítarlega umfjöllun um hann, hlaðið honum niður, og meðal annars séð þær lagagreinar sem búið er að brjóta gegn íslensku þjóðinni, sem og ákall sem samtökin sendu alþingismönnum og ríkisstjórn Íslands þann 17. júní 2021.

Athygli vekur að ákallið vakti engin viðbrögð! nema frá umboðsmanni Alþingis sem staðfesti móttöku, og gaf því málsnúmer. Síðan hefur ekkert heyrst frá honum.

Ég birti þetta ákall líka hér í bloggfærslu sama dag:

Til alþingismanna og ríkisstjórnar Íslands

Þið hafið samkvæmt samningi ykkar við Evrópusambandið um bóluefnakaup,
sem lekið hefur verið á Netið, (sjá viðhengi) samþykkt leynilega
bóluefnatilraun á íslensku þjóðinni, án hennar vitundar. Í samningnum
stendur skýrt og greinilega:

„The risk of failure is very high in this experimental trial“ eða
„Áhættan á mistökum er mjög mikil í þessari tilraun.“

Með því að samþykkja leynilega bóluefnatilraun á íslensku þjóðinni án
hennar vitundar hafið þið brotið flestar greinar Laga um
vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, Nuremberg siðareglurnar sem og
Mannréttindasáttmála Evrópusambandsins.

Alla færsluna getið þið séð hér.

Öll "bóluefnin" hafa valdið miklum skaða!

Öll "bóluefnin" sem notuð hafa verið hér á landi hafa valdið gríðarmiklum skaða, jafnvel óafturkræfum, og að allra minnsta kosti 32 andlátum.

Ekki bara hér á landi, heldur um heim allan.

Samt er haldið áfram að sprauta þessum efnum í fólk, og þann 26. október 2021 samþykkti matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna að framlengja neyðarnotkun Pfizer bóluefnis fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára!

Margir sérfræðingar vara við að þetta sé mjög vanhugsað og óþarft og muni gera mun meiri skaða en gagn, þar sem börnum stafar engin hætta af þessari veiru.

Þessar myndir eru af OpenVAERS.com, og takið sérstaklega eftir línuritinu neðst, sem sýnir andlát eftir að þessar svokölluðu "bólusetningar" byrjuðu.

0211e

 

0211f

 

Áhugaverð grein

Mjög áhugaverð grein birtist á síðunni Neistar.is þann 20. nóvember 2020, og þar segir meðal annars:

"Ferill Pfizers er ekki beint glæsilegur hvað spillingu og vafasama viðskiptahætti varðar. Þeir hafa verið fundnir sekir 80 sinnum um ýmis brot og borgað á fimmta milljarð bandaríkjadala í bætur vegna þessa (sjá hér). Pfizer er sérstaklega þekkt fyrir ágengar, villandi og óheiðarlegar kynningarherferðir, og stundað tilraunir sem leiddu til dauða tuga barna m.a. Full ástæða er til að vera tortrygginn gagnvart yfirlýsingum þessa fyrirtækis.

Gagnrýna þarf harkalega tengsl Moderna og Amgen, móðurfyrirtækis Íslenskrar Erfðagreiningar. Í sumar réð Moderna David Meline sem áður vann hjá Amgen, til að starfa sem fjárhagslegur ráðgjafi fyrir Moderna. Moderna sótti einnig Ray Jordan frá Amgen til starfa í góða stöðu. Fleira starfsfólk virðist hafa verið flutt frá Amgen til Moderna að undanförnu. Fyrr í sumar snarhækkuðu hlutabréf einmitt í Moderna, Amgen og fyrirtækinu Novavax þar sem þessi fyrirtæki voru talin líklegust til að “sigra” í kapphlaupinu um bóluefni gegn Covid-19."

Og í framhaldinu af þessu: Íslensk erfðagreining hagnaðist um 10,2 milljónir bandaríkjadala á síðasta ári, rúmlega 1,3 milljarða króna, á gengi dagsins, og var afkoman tífalt betri en árið áður.

Tilviljun?

Ef við skoðum það sem ég vil kalla afleiðingar inngjafa á þessu tiltekna "bóluefni", hér á landi þá eru þær þessar:

Sundurliðun tilkynninga vegna gruns um alvarlega aukaverkun í kjölfar bólusetningar, dagsett 26. október.

Comirnaty (BioNTech/Pfizer):

105 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • 24 þeirra varða andlát. 18 andlát vörðuðu aldraða** einstaklinga, 15 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Fimm andlát vörðuðu eldri*** einstaklinga, fjórir þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling á aldursbilinu 60-64 ára með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
  • 56 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af níu lífshættulegt ástand).
  • 16 tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar****.
  • Fjórar tilkynningar teljast alvarlegar, þar sem beðið er eftir viðbótar upplýsingum.
  • Fimm tilkynningar varða fósturmiska.

Og í dag, þriðjudaginn 2. nóvember 2021 er búið að tilkynna um samtals 5.501 aukaverkun vegna "bóluefnanna", þar af 2.242 vegna Pfizer.

Hvers vegna er ekki löngu búið að stöðva þetta?

Í ljósi alls þessa ætti að sjálfsögðu hafa verið löngu búið að stöðva allar "bólusetningar", og alls ekki hvetja fólk til að fara í "örvunar"sprautur.

Og takið eftir, hvorki sóttvarnalæknir, landlæknir, Kári, Svandís né aðrir hafa mikið tjáð sig um aukaverkanirnar, ef nokkuð, heldur hvetur fólk núna til að fá sér enn eina sprautu.

Langflestar aukaverkanir eru talaðar niður og sagt að lítið sem engin tenging sé þarna á milli, eins og ég fjallaði um hér, og hér, og aldrei eru birtar kertum skreyttar fréttir í fjölmiðlunum þegar einhver deyr eftir sprauturnar, bara þegar einhver "deyr úr" pestinni.

Það er alveg ljóst að það stendur ekkert til að hætta að sprauta þessum efnum í fólk, enda er búið að tryggja okkur 1,4 milljónir skammta af Pfizer fyrir næstu tvö ár!

Er ekki hægt að stöðva þetta vegna einhverra þessara skelfilegu ákvæða í bóluefnasamningunum sem skrifað var undir fyrir hönd þjóðarinnar?

0111gg

 

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband