Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin er þegar farin að herða krumlurnar!

Iceland ExitTheWHO

==>> Undirskriftasöfnunin

Forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hefur nú gefið út ráðandi tilmæli (standing recommendations) vegna COVID-19 í samræmi við alþjóðlegu heilbrigðisreglurnar (2005) (IHR), sem munu eiga að vera í gildi frá 9. ágúst 2023 til 30. apríl 2025.

Þetta er meðal þeirra atriða sem stofnunin hefur þóst vera að semja um, og hvetur nú öll 194 aðildarlönd sín til að byrja að innleiða þau.

Þar með talið Ísland líka.

Sturlaðar fyrirætlanir þessarar glæpastofnunar

Forstjórinn er ekki af baki dottinn, ætlar að rífa upp Covid brjálæðið eina ferðina enn, taka það enn fastari tökum núna og setja það á stera!

Ef þið hafið ekki enn kynnt ykkur heimsfaraldurssáttmálann sem hann og WHO eru að reyna að koma í gegn, og hvers vegna við þjóðin verðum að hafna honum, þá gengur hann í stórum dráttum út á það að hann getur lýst yfir "neyðarástandi í heiminum" út af einhverjum smitfaröldrum sem stofnunin er búin að boða næstu 10 árin - eða jafnvel "neyðarástandi í loftslagsmálum".

Stofnunin mun þá hafa alræðisvald yfir heilbrigðismálum aðildalanda sinna, og geta neytt okkur með lögregluvaldi í líkamsskoðanir, sett á okkur grímuskyldu og látið sprauta einhverjum "bóluefnum" í okkur - undir því yfirskini að verið sé að "bjarga lífum okkar".

Endurvakið Covid-19, aukið eftirlit, ritskoðun og bóluefni

Notkun þessara ráðandi tilmæla mun hjálpa til við umskipti frá neyðarstigi viðbragða, sem innihéldu notkun tímabundinna ráðlegginga, yfir í hið nýja normið (the new normal), þar sem við færum COVID-19 í auknum mæli inn í almenna stjórnun smitsjúkdóma.

https://cdn.who.int/media/docs/default-source/documents/ihr/final-report-rc-srs-covid-19_4-august-2023.pdf (síða 16)

Helstu atriði:

  1. Víðtækt eftirlit
  2. Prófunar- og raðgreiningargeta
  3. Upplýsingafræðileg stjórnun
  4. Eftirlit með eftirlitsstofnum
  5. Erfðafræðileg raðgreining
  6. Atburðamiðað eftirlit
  7. Afrennslisvatns- eða umhverfiseftirlit
  8. Sermiseftirlit (Það veitir mat á mótefnamagni gegn smitsjúkdómum.)
  9. Eftirlit með dýrastofnum
  10. Stuðningur við eflingu eftirlits með því að nota "eina heilsuaðferð" (One Health Approach) til að skilja betur SARS-CoV-2 dreifingu og þróun hjá dýrum
  11. Bæta viðleitni til að auka umfjöllun (eða utanumhald) um COVID-19 bólusetningar
  12. Taka á röngum upplýsingum og misleiðandi upplýsingum um bóluefni
  13. Auka framleiðslugetu greininga, lækninga og bóluefna fyrir COVID-19 - (enn meiri fjármunir í vasa útvaldra gæðinga)
  14. Styðja við heimildir til greininga, meðferða og bóluefna

Ítarlegri umfjöllun James Roguski má finna hér.

Nýleg skrif mín um WHO

Nei ég trúi þessu ekki, þetta getur ekki gerst á Íslandi!

Eruð þið viss, er fólk ekki innst inni farið að átta sig á öllum blekkingunum sem við höfum verið beitt undanfarin þrjú og hálft ár af íslenskum yfirvöldum og fólki sem við áttum að geta treyst - og okkur var sagt að treysta?

Áttið ykkur á því að þetta hér að ofan er raunverulega að gerast, og veltið því fyrir ykkur hvers vegna enginn þessara helstu fjölmiðla fjalla um þetta, ekki einu sinni RÚV.

Það sama er uppi á teningnum víðast hvar annars staðar í heiminum, enda ganga margir fjölmiðlar fyrir ríkisstyrkjum og/eða eru í eigu auðkýfinga.

Það sem vakir fyrir Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni er ekki almannaheill, heldur þvert á móti, það getið þið séð ef þið gefið ykkur tíma til að lesa það sem ég og fleiri hafa skrifað.

Í ársbyrjun 2020 var alls staðar í heiminum mögnuð upp hræðsla hjá fólki út af einhverri veiru sem okkur var sagt að væri bráðsmitandi og myndi að öllum líkindum hafa mikinn dauða í för með sér, nema við hlýddum sóttvarnalækni sem studdist gjarnan við tilmæli frá WHO, og það gerðum við svo sannarlega.

Okkur voru bornar á borð niðurstöður reiknilíkana um þróun faraldursins. Og svo loksins kom hin langþráða "lausn" út úr faraldrinum, bóluefnin, og það var logið að okkur um þau frá fyrsta degi, bæði hér á landi og annars staðar.

Hér á landi sá Thor Aspelund bróðir Guðrúnar Aspelund nýs sóttvarnalæknis um að birta okkur þær tölur.

Höfum í huga að reiknilíkön birta niðurstöður byggðar á þeim forsendum sem þau eru mötuð á til að fá einhverjar niðurstöður, og þessu var óspart beitt í "heimsfaraldrinum".

Höfum líka í huga að í nýlegum viðtölum kannaðist Guðrún ekki við rannsóknir sem sýndu fram á að ungt fólk fengi hjartavöðvabólgur eftir Covid sprauturnar, og sagði í sama viðtali að það væri óalgengt að bólusettir fái fylgikvilla, og Kári Stefánsson segir núna að það sé auðvelt að vera klár eftir á!

Annað hvort laug Guðrún blákalt, eða hún er ekki starfi sínu vaxin. Við flest, ef ekki öll þekkjum fólk sem er skyndilega komið með alls kyns nýja sjúkdóma, illviðráðanleg og jafnvel banvæn krabbamein, eða hefur dáið skyndilega fljótlega eða jafnvel löngu eftir sprauturnar.

Allt sem heiðarlegir og óháðir læknar og vísindamenn óttuðust, og margir hafa varað við í heil þrjú ár núna, en fáir viljað hlusta á.

Died suddenlyHorfið á myndina "Died Suddenly", sem var gerð um alla þá sem létust skyndilega í kjölfar sprautanna, og fræðist um niðurstöður Eds Dowd um skaðsemi þeirra, og finna má meira á vefsíðu hans.

Covid fárið var æfing í því hversu auðvelt væri að blekkja fólk og fá það til að hlýða hverju sem er undir því yfirskini að verið væri að bjarga því - og ömmu gömlu, og sú æfing gekk nánast fullkomlega upp, enda vel æfð á Event 201 í október 2019.

Nú er búið að sníða af helstu vankanta, herða reglurnar, og endurvekja Covid, sem ætti löngu vera búið að kveða í kútinn hefðu "bóluefnin" verið svona örugg og árangursrík eins og okkur var sagt, við hljótum öll að sjá það.

Og nú er WHO að virkja næsta skref að einræði í heilbrigðismálum heimsins, og harla óliklegt er að íslensk stjórnvöld muni hreyfa við nokkrum mótmælum, enda eru allar líkur á því að þau muni samþykkja landráðasamninginn með þögn sinni.

Viðbót:

Hópur lækna, trúarleiðtoga og verkalýðs- og borgaralegra talsmanna í  Trínidad og Tóbagó hefur birt opið bréf til forsætisráðherrans um þessar samningaviðræður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Lokaorð læknis í vídeói eru:

Engin stjórnvöld með góða samvisku og einlæga umhyggju fyrir almannaheill geta samþykkt þessar fyrirhuguðu breytingar á alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðunum í þeirri mynd sem þær eru í dag.

Við getum líka spurt, hvar er samviska og umhyggja íslenskra stjórnvalda fyrir almannaheill okkar?

Hað er orðið deginum ljósara að hvorugt finnst hjá þeim, þess vegna er svo gríðarlega mikilvægt að við öll segjum NEI, og skrifum undir mótmælin:

==>> Undirskriftasöfnunin

Þegar þið skrifið undir undirskriftalistann þá fáið þið strax tölvupóst þar sem þið eruð beðin um að smella á hlekk til að staðfesta að ykkar netfang hafi verið notað til að skrifa undir, og til að undirskriftin ykkar verði virk, þá verðið þið að smella á hann.

Margir póstþjónar hafa öflugar varnir og senda marga pósta í ruslmöppuna, svo það er gríðarlega mikilvægt að þið leitið þar ef þið finnið póstinn ekki strax.

Nokkur ummæli þátttakenda:

  • Ástæðan fyrir þátttöku minni er að ég hef kynnt mér fyrir hvað þessi stofnun stendur fyrir, ekkert land á að afsala sér valdi yfir sínum málum og sinni þjóð. Forrverar okkar hafa fært okkur frelsi sem okkur ber að varðveita.
  • Er á móti svona alþjóðasamtökum sem vilja ráða yfir og stjórna heiminum.
  • Of mikil forræðishyggja og eftirlits kapítalismi er aldrei af hinu góða. Ég tel að fólk eigi að hafa óskorðað frelsi svo fremi sem það skaði ekki aðra.
  • Of afdrifarík ákvörðun sem getur haft ófyrirséðar afleiðingar.
  • Treysti ekki stjórnvöldum, hvað varðar ákvarðanir i þessu máli fyrir hönd þjóðarinnar.
  • Ég vil hafa eigin ábyrgðar vald yfir mínum eigin líkama og taka ákvarðanir fyrir sjálfa mig og minn líkama og lîf.
  • I would like to express my oposision to WHO NWO, global totalitarian technocratic survailance state.
  • Neita að taka þátt í einræðiststefnu ,við erum sjálfstæð og tökum okkar eigin ákvarðanir
  • Ísland á að vera sjálfstætt.
  • Ég er sjálfstæður einstaklingur sem ætlast til að geta áfram lifað við það fresli sem það er að vera Íslendingur. Mun ALDREI taka skipunum frá einhverri alþjóðlegri stofnun. Ísland er ekki einu sinni búið að vera sjálfstætt land í 80 ár. Að yfirvöld sem eru kosin af almenningi og þar með í vinnu hjá almenningi er það algerlega ótækt að ætla að gefa sjálfstæði allra Íslendinga óáreitt!

 

 


Hinar djöfullegu áætlanir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um börnin!

Kynfræðsluefni WHO fyrir börnAlþjóðaheilbrigðismálastofnunin er nú að vinna að því að ná einræði yfir heilbrigðismálum aðildaþjóða sinna, en það er ekki það eina.

Það sem fólk hefur almennt ekki hugmynd um, er að hún hefur gefið öllum stefnumótandi yfirvöldum í Evrópu og þeim sem hafa yfirumsjón með heilbrigðis- og kennslumálum um allan heim staðla um hvernig kynfræðslu barna skuli háttað.

Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt þessa staðla stofnunarinnar, sem og samsvarandi staðla sem Sameinuðu þjóðirnar gefa út.

Eru þau þegar farin að innleiða þau í íslenskum skólum, en hvað felst raunverulega í þessum stöðlum, og ...

... hvað á að gera börnunum?

Guðrún Bergmann rithöfundur og stjórnarmaður í mannréttindasamtökunum Mín Leið - Mitt Val, hefur skrifað tvær ítarlegar og vandaðar greinar um þessi mál, og var sú fyrri opið bréf til Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra, Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og til foreldra og forráðamanna barna og unglinga.

Þetta eru greinar sem allir foreldrar, afar og ömmur, og þeim sem er umhugað um velferð barna verða að lesa!

Þess má geta að sömu mannréttindasamtök (þar sem ég er gjaldkeri) standa núna fyrir ákallinu ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI við einræði í heilbrigðismálum!

Íslensk stjórnvöld og WHO - nokkur atriði

Stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var kynnt þann 4. júní 2019 af þáverandi heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, en hún var unnin í samstarfi við WHO.

Þann 14. júní 2023 var haldið velsældarþing í Hörpu þar sem framkvæmdastjóri WHO í Evrópu afhenti Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra Íslands skýrslu stofnunarinnar um "Velsældarhagkerfið á Íslandi".

Sama dag var Katrín skipuð sendiherra þessa velsældarhagkerfisverkefnis stofnunarinnar, eitthvað sem lítið eða ekkert var fjallað um í fjölmiðlunum.

Það má því gefa sér það miðað við þetta nána samstarf milli WHO og íslenskra ráðamanna, að ekki sé mikill vilji þar á bæ til að hafna því að þessi ókjörna stofnun fái einræðisvald yfir okkar eigin heilbrigðismálum.

Við hljótum öll að þurfa að spyrja okkur hvers vegna íslensk stjórnvöld eru að vinna gegn okkur þjóðinni en ekki fyrir okkur eins og þau voru kjörin til.

WHO og SÞ - Burtu með perraputtana frá börnum!

Burtu með perraputtana frá börnum

Sjónvarpsstöðin Kla.TV hefur nýlega birt fréttaumfjöllun um það sem raunverulega býr að baki þessari svokölluðu "kynfræðslu" þessara stofnana. Það sem þarna kemur fram er ólýsanleg illska í garð barna!

Þarna segir:

Sérhver heilvita maður veit að sannur kærleikur verndar börn. Sérstaklega verndar hann börn gegn kynferðisofbeldi og afskræmingu. Hins vegar er það sem WHO og SÞ selja með ómannúðlegum krafti sem frelsi fyrir börn er einfaldlega viðurstyggileg persónueyðing á öllum þroskastigum þeirra.

Athugasemd frá ritstjórninni: Kla.TV biður alla foreldra að taka fyrst þá ákvörðun eftir að hafa skoðað útsendinguna, hvort þeir treysti börnum sínum eða ungmennum til að sjá hana!

Í niðurlaginu með fréttaumfjölluninni segir:

Við höfum öll þann valkost að loka augunum og verða samsek með þögn okkar - eða vera hugrakkt fólk sem stendur upp og upplýsir mannkynið með því að dreifa þessari útsendingu, gera skólum, kennurum og fóstrum viðvart...

Börn geta ekki varið sig gegn þessum skrímslum. Gerum það fyrir þau!

Börnin okkar hér á landi

Nú fer skólastarf bráðum að hefjast aftur. Byrjað er að innleiða þessa "kynfræðslu" í að minnsta kosti einhverjum íslenskum skólum, og vitað er til þess að hún hefur farið fram í einhverjum skólum að minnsta kosti, án þess að foreldrarnir hafi haft neina vitneskju þar um.

Því er gríðarlega áríðandi að foreldrar og forráðamenn barna fari fram á að fá að sjá kynfræðsluefni barna þeirra fyrir næsta skólaár, og ekki hvað síst hverjir eigi að sjá um þessa fræðslu!

Nýleg skrif mín um mál þessu tengt:

Það er ekki nóg með að verið sé að - eða búið í mörgum íslenskum skólum að innleiða þetta "kynfræðsluefni" WHO og SÞ - sem gengur út á að kynlífsvæða þau, heldur er ríkisstjórn Íslands um það bil að afsala sér fullveldi okkar í heilbrigðismálum (sem einnig fela í sér þessa "kynfræðslu") til þessara hreinræktuðu glæpamanna sem stjórna WHO.

Nákvæmlega þetta sama er að eiga sér stað í öllum 194 aðildarlöndum þessarar ókjörnu stofnunar.

Mig langar að biðla til fólks að kynna sér vel og vandlega það sem hér er skrifað, og/eða leita sér upplýsinga annars staðar en í þeim innlendu fjölmiðlum sem eru á ríkisstyrkjum, þar finnið þið ekki stafkrók um þetta.

Ætlum við að loka augunum og verða samsek þessum hryllingi með þögn okkar, eða ætlum við að segja okkur frá WHO?

Okkar er valið!

Smellið hér: -> ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI við einræði í heilbrigðismálum

 

 

 

 

 


Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur verið skipuð sendiherra "velsældar"hagkerfis verkefnis WHO!

Ég skrifaði nýlega um velsældarhagkerfið á Íslandi, og skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem var afhent Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra Íslands 14. júní 2023.

Þá vissi ég ekki að hún hefur verið skipuð sendiherra stofnunarinnar fyrir þetta verkefni til næstu tveggja ára.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur verið útnefnd sendiherra velsældarverkefnis Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (e. Champion for the WHO Well-being Economy Initiative) til næstu tveggja ára.

Markmið verkefnisins er að styðja við verkefni sem bæta velferð samfélaga og tryggja heilbrigðari, sanngjarnari og farsælli framtíð fyrir komandi kynslóðir. Hlutverk sendiherra verkefnisins er að verkja athygli á velsældaráherslum á alþjóðavísu og kynna fyrir ríkjum heims og alþjóðastofnunum þau tækifæri sem felast í velsældarhagkerfum.

Er þetta ekki bara heiður fyrir hana - og okkur þjóðina?

Nei alls ekki, heldur þvert á móti! Varla er annað hægt að lesa út úr þessu en að hún - og þar af leiðandi ríkisstjórnin öll séu hlynnt fullgildingu á heimsfaraldurssáttmála WHO sem íslensk stjórnvöld virðast ætla að samþykkja með þögn sinni, en hér má lesa umfjöllun mína um drögin að honum.

Það er ekki bara ríkisstjórn Íslands sem þegir um þennan illa gjörning, heldur líka allir helstu fjölmiðlarnir hér á landi! Því er ekkert skrítið að fólk hafi enga hugmynd um hvað í húfi er fyrir okkur öll.

Einu fjölmiðlarnir sem eru óhræddir við að gera það eru Frettin.is og Útvarp Saga, enda þeir einu sem eru ekki háðir ríkisstyrkjum. Þess má geta að ég var í viðtali um heimsfaraldurssáttmálann á þeim síðarnefnda í gær með Leifi Árnasyni félaga mínum, og má finna það hér.

Ætlum við bara að þegja og láta þetta yfir okkur ganga?

Þjóðin þarf virkilega að fara að spyrja sig hvaða herrum íslensk stjórnvöld þjóna, því ekki þjóna þau okkur sem kusum þau til að gæta hagsmuna okkar, við hljótum öll að vera farin að sjá það.

Nærtækt dæmi er gegndarlaus peningaaustur í stríðsrekstur í öðru landi á meðan okkar eigin innviðir svelta!

Þess vegna verðum við að sýna hug okkar til þeirra í verki, og segja öll NEI!

 


Rýnt í drögin að heimsfaraldurssáttmála Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar

Hér verður fjallað um hluta af drögunum að heimsfaraldurssáttmála Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninnar sem verið er að reyna að innleiða, meðal annars um samhæfð viðbrögð á heimsvísu, brjótist út nýr og hættulegur smitfaraldur.

Þar má meðal annars sjá að stofnuninni er mjög umhugað um mikilvægi "sanngjarns aðgangs" að bóluefnum til að nota í heimsfaraldri sem og til reglubundinna bólusetninga, og að vinna verði bug á tregðu fólks til að láta bólusetja sig með viðeigandi fræðslu.

Augljóslega hljótum við öll að furða okkur á því vegna stofnunin minnist hvergi á mikilvægi heilbrigðs lífernis, á eflingu ónæmiskerfis okkar, eða að gott hreinlæti hafi jákvæð áhrif á heilsufar fólks.

Bætt heilsa og björgun mannslífa felst einungis í sprautum samkvæmt skjölum þeirra, en það kostar peninga, og það mikla.

Ákall eftir stjarnfræðilegum árlegum fjárframlögum

Nú eru Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og Sameinuðu þjóðirnar að kalla eftir aukalegum 30 milljörðum dollara á ári til að "koma í veg fyrir, undirbúa, og bregðast við næsta faraldri".

Hér fyrir neðan koma lauslegar þýðingar á "Begging For Billion$" sem skrifað er af James Roguski, en hann hefur sýnt fádæman dugnað og elju við rannsóknir sínar og skrif um WHO, og innskot mín koma þar á milli.

Fjármögnun árangursríks neyðarviðbúnaðar á landsvísu, svæðisbundnum og á heimsvísu mun krefjast um það bil 30 milljarða Bandaríkjadala á ári, fyrir utan núverandi opinbera þróunaraðstoð.

Þetta snýst einfaldlega um enn meiri tilflutning fjármagns frá okkur fólkinu til hinna ofurríku.

Tryggja tímanlegan, sjálfbæran og sanngjarnan aðgang að vörum tengdum heimsfaraldri, þar á meðal bóluefnum, greiningu, meðferðum og skora á Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina að samræma þetta með viðeigandi samstarfsaðilum, tryggja samræmi við áframhaldandi umræður milliríkjasamninganefndarinnar og vinnuhópsins um breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni í Genf (2005).

"Vörur tengdar heimsfaraldri" eru margmilljarða gróðatækifæri, sem verða í höndum útvalinna aðila.

Gera ráðstafanir til að bregðast við neikvæðum áhrifum rangra og misvísandi upplýsinga um lýðheilsuráðstafanir sem og líkamlega og andlega heilsu fólks, og til að vinna gegn mis- og rangupplýsingum, sérstaklega á samfélagsmiðlum, í samhengi við heimsfaraldursforvarnir, viðbúnað og viðbrögð og til að efla traust á heilbrigðiskerfum og bóluefnum, um leið og viðurkenna að skilvirk þátttaka hagsmunaaðila krefst aðgangs að tímanlegum og nákvæmum upplýsingum;

Fordæmalausri ritskoðun hefur verið beitt undanfarin þrjú - fjögur ár, hvort sem það sé á samfélagsmiðlum, leitarvélum eins og Google, YouTube, RÚV, og öðrum fjölmiðlum sem þiggja ríkisstyrki eða önnur fjárframlög. Mörg erlend fjölmiðlafyrirtæki eru í eigu auðjöfra.

Á mannamáli þýðir þetta enn strangari ritskoðun á þeim sem fylgja ekki meginstraumnum, og enn meira eftirlit. Aðeins "réttar" upplýsingar frá WHO fáist birtar.

Hvetja einnig til að bæta reglubundnar bólusetningar-, ná til fleiri til að bólusetja, þar á meðal með því að veita gagnreyndar upplýsingar um hvernig að vinna gegn tregðu til bólusetninga, og auka umfang bóluefna til að koma í veg fyrir uppsprettu og endurkomu smitsjúkdóma, þar á meðal vegna sjúkdóma sem þegar hefur verið útrýmt með bólusetningum sem og fyrir áframhaldandi upprætingarraðgerðir, eins og fyrir mænusótt.

Í þessu samhengi má geta þess að alþjóðlegar bólusetningarherferðir Bill Gates (sem er einn stærsti fjármögnunaraðili WHO!) gegn mænusótt hafa valdið lömunarveiki í kjölfarið - en fært honum óhemju auð. Hér má sjá stutta umfjöllun um nokkur "afrek" hans í þágu mannkynsins, og hlekk á vídeó um hann.

Virkja innlend opinber úrræði sem aðaluppsprettu fjármögnunar fyrir viðbúnað og viðbrögð gegn heimsfaraldri, með pólitískri forystu, í samræmi við getu landsmanna, og auka samruna fjármagns sem úthlutað er til heilbrigðismála, finna nýja tekjustofna og bæta skilvirkni opinberrar fjármálastjórnunar.

Þetta þýðir að þarf að skattleggja okkur enn meira, í samvinnu við (íslensk) stjórnvöld. Þetta mun raungerast, hafni íslensk stjórnvöld ekki fyrirhuguðum breytingum á alþjóðlegri heilbrigðisreglugerð WHO, og alþjóðlega heimsfaraldurssamningnum.

Kalla einnig eftir því að samningaviðræðum milliríkjasamninganefndarinnar í Genf verði lokið árið 2024, metnaðarfullum og lagalega bindandi sáttmála, samningi eða öðrum alþjóðlegum gerningi um forvarnir, viðbúnað og viðbrögð við heimsfaraldri, með það fyrir augum að samþykkja samkvæmt 19. gr. efla forvarnir, viðbúnað og viðbragðssvið heimsfaraldurs og bjóða öllum öðrum frumkvæðisverkefnum til að styðja þessa miðlægu viðleitni, og til að ljúka árið 2024 samningaviðræðum vinnuhóps um breytingar á alþjóðlegum heilbrigðisreglum (2005), að veita stuðning við allar heilsu- og heilsutengdar ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að koma í veg fyrir, vernda gegn, stjórna og veita alþjóðleg lýðheilsuviðbrögð við sjúkdómum.

Eins og sjá má hér að ofan, þá er talað um metnaðarfullan og lagalega bindandi sáttmála. Það mun meðal annars þýða að ef einhver af þessum "smitfaröldrum" sem WHO er búið að boða næstu 10 árin eða svo "brýst út" að þeirra sögn, þá verða viðbrögð stofnunarinnar ekki lengur ráðgefandi, heldur bindandi.

Og hér er lykilorðið bólusetningar, en þess má geta að bóluefni eru afskaplega arðbær fjárfesting sem hefur gert marga auðjöfra enn ríkari undanfarin þrjú ár, og skapað marga nýja.

Spotlight Conference 2023 í Stavanger, Noregi

Fyrr á þessu ári var haldin ráðstefna um "heimsfaraldurinn", sem heldur áfram að hafa skelfileg áhrif á heiminn - (þó ekki vegna neinnar veiru), og þau ólýðræðislegu öfl og stofnanir sem eru núna að vinna að því að koma á einni alheimsstjórn til framtíðar.

Ég sjálf er búin að skrifa um það margoft með sönnunargögnum beint í upprunann.

Þarna má finna marga góða fyrirlestra lækna, vísindamanna, lögfræðinga, blaðamanna, bresks alþingismanns, og annarra, - fólks sem er ótengt lyfjaiðnaðinum, WHO, SÞ og álíka stofnunum, og sætir ritskoðunum alls staðar.

Þar á meðal ákaflega ítarlega og vandaða umfjöllun svissneska lögfræðingsins Philipp Kruse um umhugsunarverðar og víðsjárverðar framtíðaráætlanir WHO, en þar segir meðal annars:

Í dag er WHO einkarekin stofnun undir sterkum áhrifum frá, og stjórnað af einka- og viðskiptahagsmunum. Þarna útskýrir Philipp Kruse hvernig hann og aðrir lögfræðingar eru skipulega að vinna að því að koma í veg fyrir að WHO taki sér völd sem stofnunin ætti ekki að hafa.

Þetta er fyrirlestur sem mikilvægt er að horfa á og hann má finna um miðbik síðunnar.

Hvað ef?

Getur fólk ímyndað sér hvað mun gerast ef/þegar WHO verður komið með einræði yfir heilbrigðismálum okkar, og Tedros forstjóri tilkynnir (eina ferðina enn!) að nú sé hætta mögulega yfirvofandi út af einhverjum hættulegum nýjum smitfaraldri?

Það verður endurtekning á síðasta "heimsfaraldri", nema að í þetta skiptið munum við ekkert fá að hafa að segja um líf okkar, heilsu og líkama.

Orð hans verða lög, og hann getur látið gera allt við okkur sem honum og stofnunni sýnist - undir því yfirskini að verið sé að "bjarga lífum okkar".

Það þarf ekki ríkt ímyndunarafl til geta sér til um að "björgin" muni felast í "bólusetningum", sem enginn mun lengur mega afþakka.

Þetta er því miður ógnin sem allar 194 aðildarþjóðir WHO standa frammi fyrir.

En til að koma í veg fyrir að það gerist hér á Íslandi þarf þrýsting og samstöðu frá þjóðinni sjálfri, því ekki fæst betur séð en að íslensk stjórnvöld ætli að samþykkja þessar stórhættulegu breytingar á heimsfaraldurssáttmála WHO með því að gera ekki athugasemdir við hann.

Margar þjóðir hafa sett af stað undirskriftalista til koma í veg fyrir þennan landráðagjörning, og nú hefur Ísland slegist í hópinn.

Ég mátti til með að setja hér inn athugasemd eins sem hefur sett nafn sitt á undirskriftalistann:

Þar vil ég vitna í Albert Einstein “The world is a dangerous place to live; not because of the people who are evil, but because of the people who don’t do anything about it.”

Tökum þessi orð til okkar, ekki vera manneskjan sem gerir ekki neitt.

Iceland ExitTheWHO

 

Smellið hér: -> ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI við einræði í heilbrigðismálum

 

 

 

 

 


Höfnum fullgildingu á heimsfaraldurssáttmála WHO!

Undirskriftasöfnunin ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI VIÐ EINRÆÐI Í HEILBRIGÐISMÁLUM hófst sunnudaginn 16. júlí 2023, og höfum við sem stöndum að henni fundið fyrir miklum stuðningi þeirra sem vilja koma í veg fyrir að þessi ókjörna stofnun nái fram þessum áætlunum sínum - með samþykki íslenskra stjórnvalda.

Iceland ExitTheWHO

Alþingi hefur enga heimild til að framselja vald til erlendra stofnana

Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari segir forgangsreglu ESB og bókun 35 ganga í berhögg við stjórnarskrá Íslands og vera fullveldisafsal!

"það er verið að setja þetta til þess að geta tekið evrópskar reglur fram yfir íslenskar lagareglur. Ef það er bara verið að segja, að það felist í þessu yngri lög gagnvart eldri lögum þá þarf ekkert þetta ákvæði vegna þess að ef Alþingi setur ný lög með öðru efni, heldur en eldri lagareglur þá gilda alltaf þær nýju.

Það er því augljóst að það er verið að gera þetta til þess að koma til móts við ESB og samhæfa íslenskar reglur við evrópskar reglur án þess að það sé heimilt"

Við skulum gera okkur grein fyrir því að það er engin tilviljun að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra Íslands lagði bókun 35 fyrir Alþingi nú í vor. Allar líkur eru á því að reynt verði áfram að koma henni í gegn á haustþinginu.

Við hljótum að þurfa að velta fyrir okkur hvers vegna sumum alþingismönnum og ráðherrum sé svona mikið í mun að ná þessu í gegn, akkúrat á þeim tímapunkti sem WHO er að reyna að ná fram fullgildingu á heimsfaraldurssáttmála stofnunarinnar.

Verði bókun 35 samþykkt af Alþingi, þá mun það vera nóg, að geri íslensk stjórnvöld ekki athugasemdir við eða hafni þessari tilraun þeirra til að ná einræði yfir heilbrigðismálum aðildaþjóðanna sinna 194 fyrir 23 nóvember 2023, þá munu ný einræðislög WHO taka gildi.

Samþykki þeirra mun felast í að hafna ekki fyrirhuguðu breytingunum.

Þetta fólk skilur mikilvægi þess að þjóðin segi nei!

Þegar fólk skrifar nafn sitt á undirskriftalistann (getur gert það án þess að nöfn þess séu birt), þá getur það skrifað athugasemd með sinni ástæðu fyrir því að hafna þessari tilraun til landráðs algjörlega.

Hér eru fáeinar athugasemdir af nokkuð hundruðum valdar af handahófi, og það er samhljómur í þeim öllum, fólk hafnar því alfarið að láta þessi völd í hendur hinnar ókjörnu stofnunar, WHO.

Það gladdi mig mikið að sjá hversu margir gera sér grein fyrir afleiðingum þess fyrir okkur ef af þessu verður.

Smellið á myndirnar til að stækka þær.

Iceland ExitWHO

Ísland segir sig úr WHO

Iceland ExitWHO 3

Starfshættir RÚV

Þjóðin verður að gera sér grein fyrir því að RÚV hefur stórkostlega brugðist lögbundnum skyldum sínum varðandi fréttaumfjallanir, eins og berlega hefur komið í ljós undanfarin þrjú ár.

Á vef RÚV er hlekkur á lög um Ríkisútvarpið, sá hlekkur leiðir mann inn á vef Alþingis með lögunum. Það er athyglisvert að sjá þar athugasemd um að þetta sé ekki nýjasta útgáfa lagasafnsins, en hana má finna hér.

Nokkur atriði úr lögunum um RÚV:

  • Hafa í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur, þ.m.t. um mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana.
  • Veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga frétta- og fréttaskýringarþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar.
  • Vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni og almenning varða.
  • Miðla upplýsingum og veita landsmönnum innsýn í alþjóðamál, mismunandi menningarheima og ólík sjónarmið.

Þar segir einnig um starfshætti Ríkisútvarpsins að það skuli vera til fyrirmyndar um gæði og fagleg vinnubrögð, ábyrgjast skuli að sanngirni og hlutlægni sé gætt í frásögn, túlkun og dagskrárgerð, og leitað sé upplýsinga frá báðum eða öllum aðilum og sjónarmið þeirra kynnt sem jafnast.

Og sannreyna skuli að heimildir séu réttar og að sanngirni sé gætt í framsetningu og efnistökum. 

Maður þarf að vera blindur til að sjá ekki að allt þetta hefur verið þverbrotið!

Nærtækast er að nefna fréttaflutning af "heimsfaraldrinum" og "bóluefnunum", þar sem nánast aðeins var fjallað um eina hlið málsins, og raddir þeirra sem leyfðu sér að gagnrýna sóttvarnaaðgerðir yfirvalda eða virkni og gæði "bóluefnanna" fengu lítinn eða engan hljómgrunn þar.

Það sama má segja um þessa tilraun WHO til yfirtöku á heilbrigðismálum heimsins, RÚV skautar gjörsamlega framhjá henni, og það er grafalvarlegt mál!

Pistill minn um Fjórða valdið frá 2021.

Þar birti ég meðal annars þessa skilgreiningu á hvað það er.

Fjórða valdið er hugtak sem vísar til fjölmiðla (á eftir löggjafarvaldi, dómsvaldi og framkvæmdavaldi). Hugtakið vísar til þess að fjölmiðlar geta oft, beint eða óbeint, stýrt atburðarás ákveðinna mála, með umfjöllun sinni. (Áherslan er mín)

Þarna mætti kannski bæta við aftast: Eða með því að sleppa eða smætta umfjöllun um atburðarásina, eins og langflestir fjölmiðlar gera.

En er þetta raunverulega að gerast?

Svarið er því miður já, - þótt þið finnið það hvorki á RÚV né flestum hinna fjölmiðlanna, en það er á okkar eigin ábyrgð sem fullorðið fólk að fræða okkur um það sem er að gerast heima fyrir og í heiminum, og við ættum aldrei taka því sem gefnu að fréttirnar sem okkur eru færðar séu endilega sannar, ekki einu sinni á RÚV!

Eins og heimurinn er í dag, þá fæst sannleikurinn í ákveðnum málefnum ekki í þessum hefðbundnu fjölmiðlum, þar er bara hálf sagan sögð, eða bara alls ekki.

Dr. Elizabeth Evans

Hér er skjáskot af umfjöllun breska læknisins Dr. Elizabeth Evans sem fer ítarlega yfir þessa tilraun WHO til yfirtöku á heilbrigðismálum heimsins, algjört skylduáhorf!

Exit the WHO

Lausleg þýðing:

Fyrirhugaðar breytingar á IHR (International Health Regulations - Alþjóðlegum heilbrigðisreglum)

  • Grein 59 (samþykkt maí 2022) - helmingar tímann frá atkvæðagreiðslu WHO til gildistöku (24 mánuðir í 12 mánuði). Frestur til að hafna nóvember 2023
  • Neyðarleiðbeiningar WHO uppfærðar úr ráðgefandi í bindandi
  • Afnám ákvæðis sem krefst þess að WHO haldi uppi "fullri virðingu fyrir reisn, mannréttindum og grundvallarfrelsi einstaklinga"
  • *** Að veita framkvæmdastjóra WHO heimild til að lýsa yfir PHEIC "mögulegri" (Public Health Emergency of International Concern - Alþjóðlegu neyðarástandi vegna lýðheilsu) - frekar en "raunverulegri" hættu
  • Alþjóðlegt heilbrigðisvottunarkerfi
  • Ritskoðun andófsmanna

*** Framkvæmdastjóri WHO er búinn að gera nokkrar tilraunir síðan 2022 til að lýsa yfir "mögulegu hættuástandi", fyrst vegna apabólu, og svo "skemmtilega vill til" að æfing í viðbrögðum við "apabólufaraldri" var haldin akkúrat einu ári fyrr, rétt eins og Event 201 æfingin í heimsfaraldri kórónuveiru var haldin í október 2019.

Svo hefur hann lýst yfir hugsanlegum faraldri fuglaflensu, og svo nú síðast fuglaflensu í köttum, eða einhverju álíka trúverðugu. Ætlum við endalaust að falla fyrir svona tilhæfulausum hræðsluáróðri og lygum?

Door to Freedom samtökin

Hér getið þið frætt ykkur enn betur um skaðræðið sem verið er að leiða yfir okkur, og hreinlega eigið að gera það!

Door to Freedom

 

Lausleg þýðing:

Við erum Door to Freedom, ný samtök stofnuð til að hjálpa fólki að átta sig á ört breytilegum og oft ruglingslegum heimi.

Við viljum einnig upplýsa ykkur um viðleitni W.H.O. að taka yfir stjórnun neyðarástands í lýðheilsumálum. W.H.O. leggur til að stofnunin stjórni hvernig farið er með heimsfaraldra og önnur neyðarástand í lýðheilsu í framtíðinni. Það myndi mæla fyrir um samræmda læknismeðferð og takmarkanir fyrir alla - um allan heim.

Leiðin til að ná þessu fram væri með 2 nýjum lagaskjölum sem nú er verið að semja um: Heimsfaraldurssáttmála og breytingum á gildandi alþjóðlegum heilbrigðisreglum hans.

Hvað kýs þjóðin?

Okkar er valið kæra þjóð, viljum við samþykkja að ókjörin erlend stofnun fái einræði yfir heilsufarsmálum okkar?

Við hljótum öll að segja NEI, við ætlum halda sjálfstæði okkar í okkar eigin heilbrigðismálum og höfnum þar af leiðandi alfarið þessum fyrirhuguðu breytingum á alþjóðlegri heilbrigðisreglugerð WHO og alþjóðlegum heimsfaraldurssamningi!

Takið ábyrgð og takið þátt, ekki ætlast til að einhverjir aðrir geri það fyrir ykkur, hver einasta undirskrift skiptir máli!

Iceland Exit The WHO

Smellið hér: -> ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI við einræði í heilbrigðismálum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Iceland Exit WHO - undirskriftasöfnun er hafin!

Nú er gríðarleg hætta framundan, ekki í formi neinnar veiru heldur vegna þess að allt bendir til þess að íslensk stjórnvöld ætli að fremja landráð með því að samþykkja svo lítið beri á fullgildingu á heimsfaraldurssáttmála Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).

Þetta mun þýða meðal annars að sjálfsákvörðunarvald um lýðheilsu okkar mun hverfa, og verða í höndum þessarar ókjörnu sjálfseignarstofnunar og forstjóra hennar, sem hefur ekki læknismenntun, og situr undir ákærum um hryðjuverk í sínu heimalandi.

StopTheWHOStofnunin mun þá geta lýst yfir "yfirvofandi ógnum" á borð við hættulega smitsjúkdóma, og jafnvel neyðarástandi vegna þessarar meintu loftslagshlýnunar eða einhvers annars sem þeim dettur í hug.

Mun hún þá hafa heimildir til þess að skella heiminum í lás eina ferðina enn, neyða okkur til að nota grímur, og jafnvel neyða okkur með lögregluvaldi í einhverjar sprautur.

Þetta mun allt vera gert undir því yfirskini að þetta sé gert til að "bjarga lífum okkar" - rétt eins og í "heimsfaraldrinum", þar sem stofnunin lék stórt hlutverk og var oftar en ekki ráðgefandi í tilmælum Þórólfs þáverandi sóttvarnalæknis til þjóðarinnar, "sællar minningar".

Baráttan gegn yfirtöku WHO er hafin á heimsvísu

Þúsundir manna og kvenna um allan heim vinna nú að því að afhjúpa sannleikann um Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og að vekja samlanda sína til vitundar um þennan fyrirhugaða heimsfaraldurssáttmála og fyrirhugaðar breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni (IHR) sem nú er verið að semja um, sem og breytingar á IHR sem voru samþykktar 27. maí 2022 og enn er hægt að hafna.

En aðeins ef við grípum til aðgerða fyrir 1. desember!

Í þessu vídeói er þetta útskýrt í stuttu máli, svo horfið á þetta!

Undirskriftasafnanir

Iceland ExitTheWHOMargar þjóðir hafa sett í gang undirskriftasafnanir gegn þessu landráði í löndum sínum og nú hefur Ísland bæst í hópinn!

Við í mannréttindasamtökunum Mín Leið - Mitt Val erum búin að leggja á okkur ómælda vinnu við að setja upp undirskriftalista sem nú er kominn í loftið.

Svo nú ríður á því að allir landsmenn kynni sér vel og vandlega hvað hér er í húfi, ekki bara fyrir okkur heldur komandi kynslóðir líka - og alla heimsbyggðina.

Illir og siðblindir auðjöfrar eru búnir að vinna að því í áratugi að koma á Global Governanceeinni alheimsstjórn, og fækka mannkyninu, og var þeirri áætlun hrint í framkvæmd fyrir alvöru árið 2020, þegar WHO lýsti yfir heimsfaraldri.

Restina þekkjum við öll, og fólk hlýtur að vera farið að gera sér grein fyrir þeim skelfilegu blekkingum og lygum sem við vorum beitt þá í þeim tilgangi að narra okkur í þessar "bólusetningar" (eitursprautur) sem voru stærsti samræmdi læknisfræðilegi glæpur sem framinn hefur verið á þessari öld!

Blekkingum sem voru hafðar í frammi af sömu íslensku stjórnvöldunum og eru núna um það bil að fremja enn eitt landráðið með samþykkt þessa samnings.

Takið þátt í þessari mikilvægu undirskriftasöfnun, og látið aðra vita af henni líka!

Smellið hér: -> ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI við einræði í heilbrigðismálum

Eldri greinar þar sem WHO kemur við sögu:

Fljótum við sofandi að feigðarósi?

Bill Gates hefur tilkynnt um stofnun heimsfaraldursteymis (GERM) sem mun fylgjast með fullvalda ríkjum og ákveða hvenær þau þurfa að stöðva borgaraleg réttindi fólks, komi upp nýr heimsfaraldur.

Alþjóðlegt teymi muni samanstanda af 3.000 sjúkdómssérfræðingum sem heyra undir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) og muni fá um 1 milljarð dollara á ári í fjárframlög.

Þess má geta að Bill & Melinda Foundation er einn stærsti styrktaraðili WHO, og Bill Gates hefur opinberlega sagt að hans arðbærustu fjárfestingar hafi verið í bóluefnum.

WHO hefur áform um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma næstu 10 ár

Hér má m.a. sjá dregna fram í einstöku 30 mínútna vídeói hluta af atburðarrásinni mánuðina og árin fyrir "heimsfaraldurinn", 10 ára áform WHO um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma, og klippur með sláandi ummælum ýmissa aðila.

Ætlar fólk að falla fyrir þessu eina ferðina enn?

Nákvæmlega ári eftir æfingu í viðbrögðum við apabólufaraldri var tilkynnt að sjaldgæfur sjúkdómur sem kallast apabóla hefði skotið upp kollinum í Bandaríkjunum og einhverjum Evrópulöndum.

Þátttakendur í þessum æfingum voru meira og minna þeir sömu og tóku þátt í Event 201 æfingunni í heimsfaraldri kórónuveiru í október 2019, eða Bill & Melinda Gates Foundation, WHO, kínverska CDC og fleiri.

Þessi nýi hugsanlegi faraldur var snarlega kveðinn í kútinn með háðsglósum netverja, sem voru löngu búnir að sjá í gegnum allar blekkingarnar varðandi fyrri "heimsfaraldur".

Er enn einn "heimsfaraldurinn" í uppsiglingu núna?

Framkvæmdastjóri WHO birtist á skjánum nú i upphafi árs 2023 til að kynda undir hræðslu við fuglaflensu af völdum H5N1 veirunnar, og að verið væri að vinna að því að næg bóluefni og lyf yrðu til staðar yrði þetta að heimsfaraldri.

Síðan hefur lítið frést af þessari "mögulegu ógn".

Hver á að ráða hver fær að lifa og hver á að deyja?

Hver hefur heimild til að ákveða hverjir eigi að fá að lifa líf sitt til enda, eða hvort þeir eigi að deyja - með lífslokameðferð?

Nú hefur Bill Gates sagt við heimsleiðtoga að það sé tími kominn til að byrja að tala um "dauðanefndir" sem dæmi venjulegt löghlýðið fólk til dauða fyrir það eitt að vera einskis nýtt elítunni.

Bill Gates er einn stærsti fjármögnunaraðli WHO í gegnum Bill & Melinda Gates Foundation.

Opið bréf til ráðamanna varðandi yfirvofandi valdatöku WHO á fullveldi Íslands í heilbrigðismálum

Allt of fáir gera sér grein fyrir því skaðræði sem íslensk stjórnvöld eru að öllum líkindum að leiða yfir þjóðina, en það er afsal á stjórn heilbrigðismála landsins til WHO, sem mun hafa skelfilegar afleiðingar fyrir okkur og þær þjóðir sem munu líka skrifa undir.

Velsældarhagkerfið á Íslandi - Skýrsla Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar afhent forsætisráðherra Íslands 14. júní 2023

Nú á dögunum var haldið velsældarþing í Hörpu, þar sem framkvæmdastjóri WHO í Evrópu afhenti Katrínu Jakobsdóttur þessa skýrslu formlega.

Það verður að segjast eins og er, þessi skýrsla er hrollvekjandi lesning þeim sem hafa kynnt sér rækilega hvað raunverulega býr að baki áformum ókjörnu stofnunarinnar WHO, Sameinuðu þjóðanna og annarra álíka stofnana um örlög okkar hinna.

Viðbót 17. júlí

Ég var að lesa áhugaverða grein: The WHO, sovereignty and reality

The Director General of World Health Organization (WHO) reassures us that WHO’s ‘pandemic accord’ (or ‘treaty’) won’t reduce the sovereignty of WHO’s Member States. WHO trusts that these words will serve as a distraction from reality. Those driving the perpetual health emergency agenda are planning to give WHO more power, and States less. This will happen whenever WHO designates a ‘Public Health Emergency of International Concern’ (PHEIC), or considers we may be at risk of one.

Breski þingmaðurinn Andrew Brigden og Dr. John Campbell

ESB-þingkonan Christine Anderson

Nú verðum VIÐ ÖLL að bregðast við!

Tími "samsæriskenninganna" er löngu liðinn, enda hafa þær meira og minna allar ræst, það ættu allir að vera löngu búnir að sjá núna, einnig það að íslensk stjórnvöld eru ekki að vinna fyrir okkur, heldur gegn okkur.

Sannanirnar fyrir því blasa við okkur alls staðar - ef við þorum að horfast í augu við þær, og nú er ekkert annað í boði!

Iceland ExitTheWHO

 

Smellið hér: -> ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI við einræði í heilbrigðismálum

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Færeyska leiðin

Allir hljóta að vera farnir að sjá spillinguna í stjórnsýslunni og samfélaginu hér á landi, og núna vilja margir þessa ríkisstjórn í burt.

Gott og vel, vonandi er hún á síðustu metrum samstarfs síns, en hvað tæki við ef boðað væri til nýrra kosninga? Sömu spilltu flokkarnir byðu sig fram, VG myndi vonandi þurrkast út, en að öðru leyti myndi ekkert breytast, sagan sýnir og sannar það.

Væri færeyska leiðin ekki eina leiðin til þess að moka út þessu spillta landráðaliði sem er á fullu að koma okkur undir stjórn djöflanna sem eru vel á veg með að koma á alheimsstjórn?

WEF Kata gerði okkur mikinn greiða með að láta gera þessa skýrslu um "velsældarhagkerfið" á Íslandi, þar sýndi hún svart á hvítu hvaða herrum hún og þau þjóna!

Og nú er einn alversti harðstjóri í heiminum í dag á leið til landsins í hennar boði ...

Þetta gerðu Færeyingar!

Færeyska leiðin

Sigurlaug Ragnarsdóttir segir:

Ég hef persónulega barist fyrir færeysku leiðinni allt síðan árið 2008 en sú byltingakennda leið er að mínu mati eina leiðin til að uppræta þá umfangsmiklu og rótgrónu spillingu sem viðgengst í íslensku stjórnkerfi, þar sem hagsmunatengsl, pólitísk tengsl og fjölskyldutengsl munu ávallt standa í vegi fyrir þeim draumi íslendinga að fá njóta heiðarlegs uppgjörs á öllum þeim forkastanlegu spillingarmálum sem hafa litað daglegt líf þjóðarinnar síðastliðinn áratug og meir.

Færeyingar reyndust okkur vinir í raun í síðasta hruni, og voru fyrstir til að bjóða okkur Íslendingum lán í október 2008, við megum aldrei gleyma því.

Hvernig gátu svona fáir menn gert svona mikið gegn eigin landi?

Þessa spurði Høgni Hoydal formaður færeyska Þjóðveldisflokksins, og var hann þar að vísa í samskonar kreppu sem þjóðin lenti í árið 1992.

Nákvæmlega þessarar sömu spurningar verðum við Íslendingar líka að spyrja. En erum við of hrædd að láta í okkur heyra, hrædd við álit annarra, vinnuveitendur, ættingja og vini - þótt við vitum innst inni hvað sé í gangi, eða kjósum við bara að "sjá ekki neitt"?

Er fólk ekki enn farið að átta sig á hvaða blekkingum við vorum beitt í "heimsfaraldrinum"? Jú innst inni held ég að margir séu það, en þora kannski ekki að tjá sig um það af ótta við álit annarra, en dagar "samsæriskenninganna" eru liðnir, þær hafa flestar, ef ekki allar ræst.

Høgni Hoydal árið 2009:

Høgni er þó þeirrar skoðunar að Færeyingar beri sína ábyrgð á bankahruninu. Allar götur síðan hefur flokkur hans unnið að því að reisa veggi milli atvinnulífs og stjórnmálamanna, sem voru þunnir fyrir. Einnig að því að auka eftirlit með ráðherrum, en kjördæmapotarar björguðu gjarnan fyrirtækjum
í heimabyggð sinni um lán gegn ótryggum veðum. Komu jafnvel að rekstri sömu fyrirtækja líka.

Offjárfesting, sérstaklega í sjávarútvegi, var því mikil, allt rekið á
fjármagni að utan.

Á Íslandi

Við erum búin að horfa upp á milljarða eftir milljarða af okkar skattpeningum hverfa úr landi, í þessi svokölluðu "bóluefni", loftslagshysteríuna sem er enn ein peningaþvottavélin, og í stríðsrekstur í öðru landi.

Og svo núna í gegndarlausa móttöku fólks sem sækir um hæli hér, á meðan innviðirnir eru löngu sprungnir. Fer ekki milljarður á mánuði í þann málaflokk?

Fyrir utan allar tilskipanirnar að utan sem verið er að koma á yfir okkur, og eru svo sannarlega ekki þjóðinni í hag!

Tökum þessa litlu frændþjóð okkur til fyrirmyndar, fyrst hún gat mokað út spillingunni hjá sér, þá getum við það líka, en þá verðum við að VILJA gera byltingarkenndar breytingar á samfélaginu okkar.

En mun einhvern tímann nást samstaða um það? Það er stóra spurningin.

 


Fögnum komu Trúðsins!

0618aÞær gleðifréttir bárust nú fyrir helgi að Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada verður sérstakur (heiðurs?)gestur á samfundi forsætisráðherra Norðurlandanna sem verður haldinn í Vestmannaeyjum dagana 25. - 26. júní.

Þetta er mjög vel til fundið hjá Katrínu, enda hafa kynni þeirra verið með miklum ágætum í mörg ár.

Þessi mynd var birt á Twitter síðu hennar 4. desember árið 2019, og sýnir þau í þungum þönkum yfir einhverju alvarlegu málefni.

Eitt af þemum fundarins verður svokallaður viðnámsþróttur samfélaga - án þess að það sé útskýrt frekar, en ekki er ólíklegt að forsætisráðherra vor kynni þar glæsilega nýútkomna skýrslu sína um Vansældarhagkerfið á Íslandi.

Hann mun væntanlega koma á einkaþotu sinni, enda er tími hans dýrmætari en minn og þinn. Þess má geta að hann er vel menntaður, löngu útskrifaður úr "Young Global Leaders" skóla Klaus Schwab, sem við vitum að berst nú hörðum höndum við að bjarga mannkyninu frá loftslagsvánni, faröldrum og öðrum ógnum sem steðja að okkur - eða eru væntanlegar samkvæmt vísindalegum lestrum af vel pússuðum kristalsspákúlum þeirra.

Umsögnin um hann á heimasíðu The World Economic Forum (WEF) er afskaplega falleg og hjartnæm, og þar segir meðal annars að sýn hans fyrir Kanada sé sú að þar eigi allir að hafa sömu tækifæri í lífinu.

Enda er hann dýrkaður og dáður í heimalandinu.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af öðru heiðursfólki sem útskrifað er úr sama skóla, og samkvæmt því sem Klaus Schwab segir sjálfur, er (sem betur fer!) búið að koma útskriftarnemunum fyrir í ríkisstjórnum margra þjóða.

Sá hinn sami sagði að heimsfaraldurinn skapaði einstakt tækifæri til að enduræsa heiminn. Við getum verið þakklát fyrir að einhverjir nenni að taka það að sér fyrir okkur.

0211b

 

Framganga Trudeau og ríkisstjórnar hans í heimsfaraldrinum ógurlega var til stakrar fyrirmyndar eins og sjá má í þessari stuttu upprifjun, og að sjálfsögðu tók hann föstum tökum öllum falsfréttunum um drápspestina ógurlegu, og kallaði fólk réttilega álhatta sem voru með einhverjar samsæriskenningar um hana.

Sömu sögu má segja um kanadíska lækna sem voru eitthvað að röfla yfir því að vera bannað að tjá sig eða rökræða um opinberu aðgerðirnar í heimsfaraldrinum. Þvílík frekja í þessu liði!

Talandi um frekju, þá fór þessi prestur út yfir öll mörk þegar hann dirfðist að halda messur í trássi við sóttvarnalögin, og var hann að sjálfsögðu handtekinn!

Eða þetta lið sem reyndi að reka blessaðan manninn úr bænum þegar hann kom í kurteisisheimsókn þangað!

Svona tók hann af festu á sóttvörnum í febrúar árið 2021

Forsætisráðherrann Justin Trudeau tilkynnti á föstudag að allir borgarar sem snúa aftur til Kanada yrðu að gangast undir nýjar ferðatakmarkanir sem myndu sjá til þess að þeir yrðu fluttir í einangrunaraðstöðu og gengjust undir Covid próf og að þeir myndu geta farið ef prófið væri neikvætt.

Ef þeir reyndust jákvæðir ætti að flytja þá á aðra ótilgreinda einangrunaraðstöðu þar sem þeir þyrftu að ljúka 14 daga sóttkví. Hann sagði einnig að stjórnvöld myndu rukka hvern ferðamenn um $2.000 til að standa straum af kostnaði af prófunum, gistingu og mat.

Sömu festu sýndu sem betur fer margir skólafélagar hans í sínum löndum, enda var jú alveg skelfilegur drápsfaraldur í gangi með lífslíkur upp á ca 99% væri maður ekki með marga undirliggjandi sjúkdóma eða hvort eð er kominn á grafarbakkann.

Þegar langþráðu bóluefnin komu loksins, þá var hann ekkert mikið að flækja málin og setti bólusetningarskyldu á opinbera starfsmenn, flug- og lestarfarþega, og þá sem störfuðu við að keyra vörur milli landa.

Að sjálfsögðu setti hann bólusetningarskyldu á sjálfan sig og lét margsprauta og bústa sig.

Fleiri starfsstéttir urðu auðvitað líka að undirgangast þessar skyldubólusetningar, og þeir sem skildu ekki nauðsyn þess að láta sprauta sig fengu eðli málssins samkvæmt að heyra það.

Líka þessi læknir sem var eitthvað að sá efasemdum í huga fólks um ágæti bólusetninganna og tala um einhverjar aukaverkanir. Hann var rekinn úr starfi sínu á bráðamóttökunni, og gott ef hann var ekki sviptur læknaleyfinu síðar.

Þeir sem litu á þetta sem harðstjórn skildu ekki að þetta snérist að sjálfsögðu einungis um að tryggja öryggi borgaranna, bjarga lífum og flýta fyrir því að koma þjóðinni út úr faraldrinum.

Það komst í heimsfréttirnar í fyrra þegar óforskammaðir flutningabílstjórar mótmæltu skyldubólusetningunum og öðrum hömlunum, söfnuðust saman í tugþúsundavís og mynduðu langar raðir.

Aumingja Trudeau varð að hrökklast með fjölskylduna í felur út af þessu!

Áfallið varð líklega til þess að hann steingleymdi því blessaður að hafa skyldað fólk í sprauturnar góðu, heldur hafi hann aðeins kosið að hvetja Kanadamenn til að láta bólusetja sig.

En svo steingleymdi hann því líka að hafa sagt það, og sagði hér að skyldubólusetningarnar væru leiðin til að forðast frekari takmarkanir.

Þetta neyðarástand með flutningabílstjórana kallaði vitaskuld á setningu neyðarlaga í landinu, og frystingu á greiðslum sem safnað var til stuðnings þeim. Reyndar varð hann að bakka með neyðarlögin stuttu síðar út af einhverri óþarfa afskiptasemi í einhverjum þingmanni.

Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um glæstan starfsferil Justins Trudeau forsætisráðherra Kanada. Öll hin afrekin hans væru efni í miklu lengri pistil.

Við skulum því taka því fagnandi að hann skuli heiðra okkur með komu sinni til landsins, ég er sannfærð um að hann muni geta uppfrætt norrænu forsætisráðherrana um hvernig best sé að stjórna þjóðum sínum - að forskrift Klaus Schwab leiðtoga hans, og stofnanda WEF.

Obbosí

Ég sé að ég mismælti mig í fyrirsögninni og kallaði Trudeau trúð, en einhverra hluta vegna sat það í mér, ég hlýt að hafa lesið það einhvers staðar.

Ég vona að WEF Kata vinkona hans erfi það ekki við mig.

 

 

 

 


Velsældarhagkerfið á Íslandi - Skýrsla Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar afhent forsætisráðherra Íslands 14. júní 2023

Velsældarþing WHO í HörpuNú á dögunum var haldið velsældarþing í Hörpu, þar sem framkvæmdastjóri WHO í Evrópu afhenti Katrínu Jakobsdóttur þessa skýrslu formlega.

Það verður að segjast eins og er, þessi skýrsla er hrollvekjandi lesning þeim sem hafa kynnt sér rækilega hvað raunverulega býr að baki áformum ókjörnu stofnunarinnar WHO, Sameinuðu þjóðanna og annarra álíka stofnana um örlög okkar hinna.

Þ.e.a.s. okkar sem eru einskis nýt heimselítunni að þeirra mati.

Í skýrslunni kemur m.a. fram að forsætisráðherra efndi til þessa velferðarhagkerfisþings núna í júní 2023 vegna þess að þrátt fyrir að meginmarkmið opinberrar stefnu um árabil hafi verið um velsæld fyrir alla, þá sé ekki almenn vitneskja um það meðal þjóðarinnar ...

Það mætti spyrja hvers vegna þjóðin hafi ekki enn neinar hugmyndir um þessar afskaplega "fögru fyrirætlanir" þeirra um velferð okkar.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá regnbogahugtakinu fléttað inn í þessi "göfugu markmið" um velsæld fyrir alla - sem þýða í raun akkúrat hið gagnstæða, eins og þeir vita sem eru búnir að kynna sér inntak þessara skelfilegu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Sjá frekar:

Fagurlega innpökkuð froða sem veldur manni hreinlega ógleði og ógeði

Rainbow model of determinants of health tailored to the Icelandic context

Og ekki síður veldur opnunarávarp Katrínar á þinginu sömu hughrifum, en þar segir hún meðal annars (í lauslegri þýðingu):

Það eru fimm ár síðan Skotland, Ísland og Nýja-Sjáland stofnuðu velferðarhagkerfisstjórnir, eða WEGo hópinn - eins og við köllum það. Síðan þá hafa Wales, Finnland og Kanada gengið í hópinn og tekið virkan þátt í starfinu.

Það er samstarfsverkefni ríkisstjórna sem hafa áhuga á að deila sérfræðiþekkingu og stefnumótun til að efla metnað til að byggja upp velferðarhagkerfi og framfarir í átt að sjálfbærnimarkmiðum SÞ.

Þess má geta að Katrín er í vinfengi við fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands, og harmaði brotthvarf hennar úr stjórnmálunum fyrr á þessu ári.

Í ræðunni segir hún líka að núna séu þau hálfnuð með "Agenda 2030" (áður Agenda 21), og þurfi að sýna fordæmalausa einbeitingu í að hraða aðgerðunum í sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Fólk þarf nauðsynlega að kynna sér "Agenda 2030", það er hlekkur á vídeó sem fer í gegn um það hér að ofan.

Þakkarorð ...

Ég vil þakka Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra Íslands kærlega fyrir að hafa látið gera þessa skýrslu, því nú getur þjóðin séð svart á hvítu yfirstandandandi - og framtíðar aðgerðir hennar og ríkisstjórnarinnar "fyrir þjóðina".

Er ríkisstjórn Íslands að fremja landráð?

Varla er hægt að draga aðrar ályktanir en að ríkisstjórnin undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur sé með gjörðum sínum í samstarfi við WHO að fremja landráð gegn þjóð sinni, enda virðist það óhjákvæmilegt miðað við ofangreint samstarf hennar við þau að hún muni samþykkja yfirvofandi valdatöku WHO á fullveldi Íslands í heilbrigðismálum þjóðarinnar.

Fólk þarf líka nauðsynlega að kynna sér hvað það felur í sér að afsala fullveldi þjóðarinnar til aðila sem hafa aldrei verið til þess kjörnir, og hvaða afleiðingar það mun hafa fyrir okkur öll.

86. kafli í almennum hegningarlögum um landráð

Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með ofbeldi, hótun um ofbeldi, annarri nauðung eða svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð, eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt. 

Hvað finnst ykkur, er ríkisstjórnin með þessu (búin?) að fremja landráð gegn þjóð sinni?


Hvers vegna er heimselítan svona upptekin af "transhumanisma"?

Nýbúið er að frumsýna heimildarmyndina "Final Days", sem afhjúpar áætlunina um að spilla genamengi mannsins og búa til "erfðafræðilegar viðurstyggðir".

Fyrsta skrefið í að þvinga gervi nanótækni - sjá líka hér upp á okkur mannkynið var útbreiðsla þess sem dulbúið var sem bóluefni, en er í rauninni lífefnavopn.

Þetta sannar líftæknifræðingurinn Karen Kingston með gögnum um miðbik myndarinnar.

Hún segir líka að fólk verði að skilja að vegna þess að við höfum aldrei vitað af þessari illsku, þá sé núna verið að telja okkur trú um að hún sé góð fyrir okkur.

Þetta er samkvæmt plani sem löngu var ákveðið, og hrint í framkvæmd í þessum svokallaða "heimsfaraldri" í ársbyrjun 2020 þar sem magnaður var upp sturlaður ótti mannkynsins gagnvart einhverri veiru.

Okkur var sagt að eina lausnin út úr honum væri glænýtt bóluefni sem verið væri að þróa á mettíma, og þannig tókst að blekkja (og í mörgum tilfellum neyða) stærstan hluta mannkynsins í þessar sprautur, og marga jafnvel í fjórar eða jafnvel fleiri.

Við erum gagnslaus að þeirra mati

Einn hugmyndasmiðanna, Yuval Noah Harari sem er hátt settur í The World Economic Forum (WEF), segir að þessi tækni muni framleiða gagnslausan hóp fólks (þetta má sjá hann segja í myndinni) - semsagt gagnslausan elítunni.

Þessi illu plön heimselítunnar ganga líka út á það að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda", eins og ég hef fjallað um og fært sannanir fyrir í mörgum bloggum undanfarin tvö ár.

Hún er svo hrædd við dauðann - enda margir meðlimir hennar gamlir menn eins og Klaus Schwab, George Soros, Anthony Fauci, Henry Kissinger, Ted Turner og fleiri, og vilja að öllum líkindum að þessi nýja tækni geri þá ódauðlega.

En hvað er "transhumanismi"?

Sú trú eða kenning að mannkynið geti þróast út fyrir núverandi líkamlegar og andlegar takmarkanir, sérstaklega með vísindum og tækni.

Lausleg þýðing:

Heimspekileg og vísindaleg hreyfing sem hvetur til notkunar núverandi og nýrrar tækni - eins og erfðatækni, að frysta látna einstaklinga þar til lækning finnst við banameini þeirra (cryonics), gervigreind (AI) og nanótækni - til að auka getu og bæta ástand mannsins (áherslan er mín).

Transhumanistar sjá fyrir sér framtíð þar sem ábyrg beiting slíkrar tækni (áherslan er mín) geri mönnum kleift að hægja á, snúa við eða útrýma öldrunarferlinu, til að ná samsvarandi aukningu á lífslengd mannsins og efla vitsmunalega og skynræna getu mannsins. Hreyfingin leggur til að menn með aukna getu muni þróast yfir í endurbætta tegund (áherslan er mín) sem fer yfir mannkynið - "endurbættar manneskjur".

Sjá Britannica.com

Nú endurtek ég það sem Karen Kingston segir, að fólk verði að skilja að vegna þess að við höfum aldrei vitað af þessari illsku, þá sé núna verið að telja okkur trú um að hún sé góð fyrir okkur.

Horfið fyrst á viðtal sem tekið var við einn framleiðanda heimildarmyndarinnar "Final Days". Þetta eru trúaðir menn og þeir vitna meðal annars í sköpun Guðs sem þessir menn séu að eyðileggja núna!

Þetta eru þeir sömu og gerðu heimildarmyndina "Died Suddenly" sem fjallar um það sem mætti kalla faraldur skyndilegra dauðsfalla í heiminum eftir sprautuherferðir Covid "bóluefnanna".

Þess má geta að við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af fjölgun dauðsfalla hér á landi, og reyndar höfum við stundum slegið þar met árin 2022 og 2023, enda vel "bólusett" þjóð.

Karen Kingston

Karen Kingston er læknaráðgjafi og líftæknifræðingur með 25 ára reynslu. Hún er alþjóðlega viðurkennd sem sérfræðingur í skaðlegum líffræðilegum áhrifum af völdum mRNA genabreytingartækninnar.

Vefsíður hennar:

Yuval Noah Harari, meðlimur WEF og einn æðsti ráðgjafi Klaus Schwab

Þessi maður er tákn illskunnar og þykir honum ekkert eðlilegra en að tjá sig um álit sitt á þeim sem ekki tilheyra heimselítunni, ekki frekar en "mannvinurinn" Bill Gates sem hefur rætt við heimsleiðtoga um að það sé tími kominn til að byrja að tala um "dauðanefndir" (<== Hér má sjá meira efni um Harari), sem dæmi venjulegt löghlýðið fólk til dauða fyrir það eitt að vera einskis nýtt elítunni.

Hér má sjá Harari og Klaus Schwab meðal annars útskýra "transhumaninsma", og Endurræsinguna miklu - The Great Reset.

Spennandi framtíð fyrir okkur - eða einhver framtíð sem manneskjur?

Sjáið til, ýmsar alþjóðlegar stofnanir eins og WHO, SÞ og WEF sem við höldum að vinni fyrir okkur mannkynið, eru að gera akkúrat hið gagnstæða - og alltaf undir því fagra yfirskini að verið sé að bjarga okkur, frá smitsjúkdómum, hungri, "loftslagsvánni" og Guð má vita hverju öðru.

Þetta má allt finna ef fólk nennir að leita sér upplýsinga.

Eins og fram kemur í myndinni, þá unnu þjóðir heims saman í "heimsfaraldrinum" og sprautuhernaðinum, þar með talið Ísland.

Nú er WHO að reyna valdatöku á heilbrigðismálum heimsins, sem þýðir að stofnunin geti hvenær sem henni dettur í hug lýst yfir einhverri vá sem þurfi að "vernda okkur gegn", og hafi þar með vald til að skella heiminum í lás og jafnvel neyða okkur með lögregluvaldi í einhverjar sprautur, segi hún að upp sé kominn nýr smitfaraldur.

Því miður gera allt of fáir sér grein fyrir því skaðræði sem íslensk stjórnvöld munu leiða yfir þjóðina ef þau skrifa undir þennan samning.

Til að sjá umfjöllun um þennan samning á mannamáli er gott að horfa á Meet Your New World Government: The World Health Organization Pandemic Treaty

Djöfulleg illska gegn mannkyninu

0602

Ef heimildamyndin "Final Days" sannar ekki fyrir ykkur illan ásetning viti firrtrar elítu sem vill okkur allt illt og stefnir að alheimsstjórn, þá skuluð þið ekki bregðast hissa við þegar búið verður að svipta ykkur öllu, enda er planið að við munum "ekkert eiga og vera hamingjusöm" árið 2030.

Ykkar er valið.

Þið gætuð til dæmis spurt heiðursorðuhafann Þórólf hvers vegna hann sagði að það væru bara tveir kosti í boði, að láta "bólusetja" sig eða fá Covid, og hvers vegna hann var yfirleitt að fylgja tilmælum WHO.

Eða Ölmu landlækni - líka heiðursorðuhafa hvernig það geti staðist að öll umframdauðsföllin á síðasta ári mætti skrifa á Covid, þegar stærstur hluti þjóðarinnar á að vera kominn með "vörn" gegn þessari "ægilegu drápspest".

Eða Guðrúnu Aspelund arftaka Þórólfs sem jarmar sömu möntru um "heimsfaraldurinn" og er enn að hvetja fólk í þessar bannsettu eitursprautur.

Það er löngu orðið augljóst að íslenskur almenningur bregst ekki við ranglæti fyrr en það er orðið allt of seint fyrir flesta, við þurfum ekki að leita lengra en til síðasta hruns til að sjá það.

Nú eru verðbólga og vextir í hæstu hæðum, haldið þið að það sé eitthvað náttúrulögmál, en ekki mannanna verk?

Skiljið þið ekki að það eru þeir ríku og ofurríku sem græða á því? Enda er það planið!

Hvað er það í þjóðarsál Íslendinga sem gerir hana svona hlýðna gagnvart yfirvaldinu? Er það vegna þess að hún horfir bara á RÚV, sem fjallar ALDREI um þessi mál?

Erum við núna að upplifa síðustu daga (Final Days) okkar sem manneskjur, er núna búið að breyta genamengi mannkynsins til frambúðar með þessum lífefnavopnum - til að "endurbæta" okkur að þeirra skapi?

Það er engin leið að segja til um það á þessari stundu, en skaðinn er þó þegar skeður fyrir skelfilegan fjölda fólks sem lést - og fólk er enn að látast í kjölfar eitursprautanna, sumt úr hraðvaxandi krabbameinum sem óhugnanleg aukning hefur orðið á undanfarin tvö ár.

Illskan er svo sannarlega raunveruleg, en henni er pakkað inn í svo fallegar og aðlaðandi umbúðir að við föttum það ekki, enda er okkur ekki ætlað að gera það.

 

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband