Jæja, nú er nýja afbrigðið líka komið til Íslands!

Við skulum bara vera alveg róleg, það er ekkert víst að nýjasta afbrigðið sé svo slæmt, að mati þeirra lækna sem fyrst uppgötvuðu það.

Samt, og alveg eins og búast mátti við, nýta mörg lönd sér það til að magna upp óttann til að fá fólk í fleiri sprautur.

Í þessu stutta vídeói er vel farið yfir hysteríuna sem kynt er undir í hvert skipti sem nýtt afbrigði skýtur upp kollinum.

Það verður þó að viðurkennast að ekki er mikið búið að magna upp hræðsluáróðurinn hér á landi hvað sem síðar verður, en sagt að einhverjar vísbendingar séu um að þetta afbrigði sé meira smitandi en fyrri. Við fáum svo auðvitað uppfærðar fréttir mörgum sinnum á dag um hversu mörg smit sé búið að greina.

Það er þó spurning hvort þrísprautaðir séu eitthvað viðkvæmari fyrir smiti af því en öðrum, því af fjórum þrísprautuðum sem liggja núna á spítala, er einn með þetta afbrigði.

Sigríður Jóhanna Sigurðardóttir verkefnastjóri bólusetninga hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir það óskandi að fleiri myndu þiggja grunnbólusetningu. Nei takk, sama og þegið!

Bretar settu sig strax í gírinn og boða fullt af sprautum á næstunni, því þær eru víst lausnin á öllu.

Utan úr heimi

Ég rekst oft á góða texta á samfélagsmiðlunum sem segja svo margt í fáum orðum.

Eins og þennan:

  • Omicron variant hysteria will be used to reset everyone’s vaccine passports to zero.
  • Omicron hysteria will be exploited to justify aggressive vaccine mandates.
    The lying corporate media will blame its origins on the unvaccinated.
  • The omicron variant will be used as a cover story by the corporate media to try to explain away all the Antibody Dependent Enhancement (ADE) deaths caused by covid vaccines.
  • Omicron hysteria will be used to attempt to criminalize dissent against vaccines.
  • Mass hysteria pushed by the journo-terrorist media will justify governors ordering more lockdowns.
  • Cancel the 2022 mid-term elections or demand universal mail-in voting.
  • Every economic failure caused by the incompetent, criminal Biden regime will be blamed on omicron.
  • At some point, either the omicron variant or the next one that’s unleashed will be used to justify door-to-door mandatory vaccines in America.
  • Omicron won’t be the last variant that’s used to evoke hysteria.

Og þennan líka:

Reminder: If you’re still unvaccinated, you’ve survived the greatest psyop in human history.

  • They’ve been plotting this evil plan for decades.
  • Do you realize how much time, resources and effort they have put into this?
  • They have studied every possible way to enslave your free will and get you vaccinated.
  • They have tried to demoralize you by corrupting society from every possible angle.
  • They have tried to screw up your thoughts and make your mind insensitive and indifferent.
  • They have tried to lure you with money, gifts and rewards.
  • They have tried to confuse you into making you doubt your own reality and identity.
  • They have tried to make you step on your own standards, values and ethics.
  • They have even tried to turn your neighbors against you.

Almost everyone fell for it. But not you. Realize how much bullshit you’ve gone through and overcome. You have never bowed to it or denied your principles to it. You are still unvaccinated and your blood is still pure.

Their backstabbing didn’t work on you. So to all you unvaccinated I say cheers decent people.

Myndin hér fyrir neðan

Þetta er einmitt verðug spurning, ef ósprautaðir mega hvorki ferðast til eða frá Ástralíu, hvernig komst Omricon afbrigðið inn í landið?

Enn og aftur, við verðum að fara að rísa upp og stoppa þetta, annars munum við vera áfram í þessari hringrás með nýjum "afbrigðum", þar sem fleiri og fleiri mannréttindi verða smátt og smátt tekin af okkur.

Hvað ætli ný ríkisstjórn sé að plotta núna, setja skyldubólusetningu á okkur? Það kæmi mér bara ekkert á óvart!

1130

 


Sagan endalausa - þetta stoppar ekkert fyrr en við segjum hingað og ekki lengra!

Bretar eru núna brjálaðir út í heilbrigðisráðherra sinn sem er á leiðinni í enn eina sprautuherferðina.

Það er komið enn eitt "afbrigði", svo nú á eina ferðina enn að taka sama hringinn sem hefur þó mislukkast í hvert einasta sinn hingað til.

Lausnin felst víst alltaf í sprautunum....

Sajid Javid

1201ó

Bretar voru búnir að plana 6 milljón búst á næstu vikum, en nú er víst komið bakslag út af þessu nýja afbrigði, svo þeir ætla að ganga enn lengra í þetta skipti, og hraðar.

Sajid Javid ætlar að fylgja eftirfarandi ráðleggingum "sérfræðinga" sem hann hefur fengið:

  1. Að stytta bilið milli sprautu númer tvö og bústsins úr sex mánuðum í þrjá.
  2. Til viðbótar á að útvíkka búst prógrammið núna að ná til allra fullorðinna sem eftir eru, frá 18 ára aldri.
  3. Bjóða á upp á skotin í aldursröð, frá þeim elstu og þeim yfir 16 ára sem eru viðkvæmastir og útsettastir fyrir veirunni, til hinna yngstu.
  4. 16 ára og eldra og alvarlega ónæmisbældu fólki sem þegar er búið að fá þrjár sprautur skal nú boðið upp á extra búst.
  5. Og að lokum, 12-15 ára börn eiga að fá sprautu númer tvö, tólf vikum frá þeirri fyrstu.

Hvað gerist þegar næsta "afbrigði" kemur fram? Slá í klárinn og sprauta meira?

1201gEn ég er ekki viss um að Bretar láti lengur gabbast, enda hundskömmuðu þeir forsætisráðherra sinn á dögunum (áður en nýja afbrigðið sem kallast Moronic, nei afsakið, Omricon kom fram), og einn sagði:

"Why did perfectly fit Healthy people queue up to find out if they were ill with the world’s most deadly virus? They fell for this hoax left right and centre, and played right into the hands of our corrupt government with a PM who wouldn’t know TRUTH if he fell over it."

Þetta er bara mjög góð spurning, og hvernig í ósköpunum stendur á því að fólk láti endalaust blekkja sig svona, og hleypur í nýjar sprautur þegar þeim er sagt að fara, og láti líka sprauta börnin sín?

En Bretar eru ljósárum á undan sofandi Íslendingum, og sjá í gegnum plottið.

1201p

Hér má sjá hinn breska Hugo sem hefur glöggt auga og góða yfirsýn yfir heimsmálin fara yfir viðbrögð lesenda Daily Mail við þessum nýjustu plönum breska heilbrigðisráðherrans.

Hann byrjar með flottum formála, og allt sem hann segir þar er bara sannleikur og heilbrigð skynsemi. Allir ættu að horfa á þetta vídeó, sem líka má finna hér.

Hér á Íslandi

Síðan "örvunar"bólusetningarnar byrjuðu þann 15. nóvember síðastliðinn, hafa samkvæmt fréttum tæplega 140.000 þegið boðið, ótrúlegt en satt.

Tilkynntum aukaverkunum fjölgaði um rétt tæplega 200 á þessum tveim vikum, og það sem verra er 10 sem flokkast sem alvarlegar.

Á sama tíma segir freki kallinn:

„Mér finnst persónulega eins og það sé drullusokksháttur að láta ekki bólusetja sig. Ekki vegna hagsmuna okkar sem einstaklinga heldur vegna hagsmuna samfélagsins,“ segir Kári Stefánsson.

Og önnur tilvitnun í hann:

„Það kom út vísindagrein í New England Journal of Medicine í dag eða í gær sem að lýsir því að bólusetning barna frá 5-12 ára sé hættulítil og hafi mikil áhrif. Þannig að nú þurfum við bara að gefa í hvað bólusetningu snertir. Bólusetja börnin.

Bólusetja aukaskammt í alla fullorðna. Við þurfum að herða takmarkanir á landamærum eða að minnsta kosti sjá til þess að það sé ekki stöðugt streymi á veirunni inn í landið.“ (Áherslubreytingin er mín)

Eins og þið sjáið á myndinni neðst, þá heldur hann (og Þórólfur) þjóðinni í greipum óttans, með dyggri aðstoð fólks eins og þessa hér.

Og það stendur ekkert til að enda þetta, það munu endalaust koma fram einhver ný og ný "afbrigði" sem munu "réttlæta" sífellt meiri og verri hömlur á okkur. Sjáið til dæmis hvað er búið að gerast í Austurríki!

Sannið til, það sem er að gerast þar og í fleiri löndum kemur líka hingað, það er spilað eftir sama handritinu hér og annars staðar, með mismunandi blæbrigðum þó.

Við verðum sem þjóð að stoppa þessa aðför að lífi okkar og frelsi!

Þið verðið að fara að gera ykkur grein fyrir því að þetta hefur aldrei nokkur tímann snúist um að vernda líf (og gamla fólkið), eða baráttu við einhvern "heimsfaraldur".

Hættið að fara í þessar sprautur áður en skaðinn verður miklu meiri en orðinn er og hættið að vera með þessar súrefnisheftandi tuskur fyrir vitunum.

Hættið að skrifa nöfnin ykkar á blöð á viðburðum, hættið að leyfa löggunni að njósna um ykkur, neitið að taka þessi fölsku PCR próf, hættið að taka einhver tilgangslaus próf til að komast í jarðarfarir og leikhús, og ekki hleypa þessu liði með sprauturnar í börnin!

Hættið að hlýða þessum fáránlegu reglum! Ef við munum missa allt sem verið er að svipta okkur núna, þá verður sökin öll ykkar sem leyfa því að gerast.

VAKNIÐ áður en það verður orðið of seint!

2209j

 

 


Verið er að svipta frumbyggja Ástralíu öllu og sprauta þá með valdi!

Hræðilegir hlutir eru að eiga sér stað í Ástralíu núna, í nafni einhverra "sóttvarna".

Margir hlutar Ástralíu eru orðnir að alræðislögregluríkjum undir herlögum og stjórnvöld þar einbeita sér núna að frumbyggjunum sem hafa lágt "bólusetningar"hlutfall, með því að fara milli húsa í samfélögum þeirra til að sprauta þá.

2511e

Það er ekki nóg með að landið þeirra hafi verið tekið af þeim, heldur er núna verið að taka af þeim frelsið, valfrelsi og mannréttindi og sprauta þau með þessum líftæknilyfjum með valdi.

Verið er að setja upp einangrunarbúðir fyrir þetta blessaða fólk í Suður Ástralíu líka, "öryggis þeirra vegna". Allir hljóta að sjá að þetta hefur ekkert með baráttu gegn einhverri pest að gera, eða bjarga lífum, heldur þvert á móti.

Það er verið að fremja þjóðarmorð á þessu fólki!

2511b

Hér er ákall til heimsbyggðarinnar um hjálp, og þar má heyra hvernig meðferðin er á fólkinu er, sem er í raun undir herlögum núna og má ekki gera neitt nema vera sprautað. Hlustið á hvert orð sem hann segir!

Þessi öldungur frumbyggja lést sex dögum eftir seinni sprautuna

1130g

70% frumbyggja Ástralíu eru ekki hræddir við að afþakka sprauturnar og vilja bara fá að lifa í friði. Þess vegna var þessi hópur merktur sem "forgangshópur" þegar fyrst var byrjað að sprauta.

Stjórnvöld hófu samstarf við stóru lyfjafyrirtækin um að þrýsta á þá til að láta sprauta sig. Fulltrúar þeirra settu sig í samband við öldungana í Maningrida og Djarindjin og reyndu að höfða til samvisku þeirra. Þeir ættu að láta sprauta sig samfélaga þeirra vegna.

Einn leiðtogi Waka Waka ættbálksins var þvingaður til að fara í Pfizer sprautur, og var því miður látinn sex dögum síðar, sem hafði eðlilega gríðarleg áhrif á samfélög frumbyggjanna.

Í frétt um andlát hans í ABC var sagt að hann hefði látist skyndilega úr hjartaáfalli, og að sjálfsögðu var ekki minnst einu orði á það að hann væri tvísprautaður, enda líklega "tóm tilviljun".

Greinina alla má lesa hér, en í niðurlagi hennar segir að andlát hans muni ekki verða tengt við sprauturnar, þar sem það gerðist innan 14 daga eftir þá seinni. Þess vegna muni það verða skráð sem andlát ósprautaðs einstaklings.

Staðan versnar með hverjum deginum!

Við sjáum fasismann aukast í löndunum í kringum okkur, til dæmis er Austurríki búið að setja útgöngubönn á ósprautaða og setja á skyldu"bólusetningar", eins og fleiri lönd eru þegar búin að gera.

Lönd eru farin að taka upp "bólusetningar"passa sem fólk þarf að sýna framá til að geta sótt sér sjálfsagða þjónustu, þeir ósprautuðu mega aðeins sækja sér takmarkaða þjónustu. Lögreglumenn fara milli verslana, veitingastaða og lesta og heimta að sjá passana hjá fólki, og ofbeldi gegn fólki er sífellt að aukast. Þetta er ekki mikið sýnt í fjölmiðlunum.

Er þetta það sem við viljum að gerist líka hér á landi? Sjáið til, það er þegar byrjað. Kári sagði í viðtali um daginn:

„Svo það má færa rök fyr­ir því að koma eigi þeirri skyldu á að þeir ein­stak­ling­ar sem ekki vilja láta bólu­setja sig verði skikkaðir í sótt­kví að ei­lífu.“

Og hann er ekki sá eini, fleiri hafa gert það eins og til dæmis Sigmundur Ernir Rúnarsson gerði í fordæmalausum pistli um daginn, og aðrir hafa talað á svipuðum nótum.

Þetta er farið að minna skelfilega á atburði sem áttu sér stað á síðustu öld, sem áttu aldrei að fá að gerast aftur, en eru það samt núna!

Fólk verður að fara að vakna og sjá að það sem er að gerast í heiminum hefur aldrei snúist um að bjarga heiminum út úr einhverjum "heimsfaraldri".

1130h

 

 


Nú þarf fólk að fara að vakna fyrir alvöru!

Enn og aftur er víst eitthvað "nýtt afbrigði" af veirunni komið fram á sjónarsviðið, og sóttvarnalæknir segir að það yrði reiðarslag fyrir heilbrigðiskerfið að leyfa henni að ganga óáreittri.

Það er ótrúlegt að ekki sé löngu búið að ná tökum á "heimsfaraldrinum" miðað við hvað búið er að sprauta marga, jafnvel þrisvar, og sú fjórða er í pípunum.

Fólk VERÐUR að fara að vakna og leita sér upplýsinga um hvað er að eiga sér stað í heiminum núna. Ekki nota hið ritstýrða Google.com, frekar t.d. Yandex.com gefur betri upplýsingar.

Hér fjallar Mike Adams um "nýja afbrigðið", sem var keyrt í gang til að hylma yfir andlát eftir sprauturnar

1128r

Þetta hefur aldrei snúist um að vernda líf og heilsu fólks, heldur þvert á móti. Markmiðið er að fækka mannkyninu og ná fullkomnum yfirráðum yfir þeim sem munu ekki deyja af völdum þessara líftæknilyfja, sem eru í rauninni efnavopn.

Við erum núna í 3ju heimstyrjöldinni

Ég hef mikið hlustað á þennan óspillta og góða lækni sem leggur líf sitt og starf í hættu við að segja sannleikann.

1129d

Þetta er eitt besta vídeóið með honum sem ég hef séð, og hann fer meðal annars yfir hvað getur gerst í líkamanum eftir að hann hefur verið sprautaður með þessum efnum.

Þetta er ákall hans til mannkynsins um að vakna áður en það verður orðið allt of seint!

Annar góður læknir

1129e

Dr. Shankara Chetty útskýrir hérna hvernig kannski milljarðar sprautaðra einstaklinga muni látast, og að ef fólk hefur einhverja undirliggjandi sjúkdóma, muni þeir geta blossað upp og valdið dauða þeirra. Þannig muni eitursprautunum ekki verða kennt um. Allt sem hann segir er rétt.

Og eins og segir á myndinni hér fyrir neðan.....

1129i

Fauskurinn segir núna að pestin muni aldrei hverfa, með eða án allra "bólusetninga" eða "örvunar"sprauta

1128s

Þetta segir hann í kjölfar "áhyggna" af nýja afbrigðinu.

Við munum svo sannarlega ekki að uppræta þetta sagði hann. Við höfum aðeins útrýmt einum vírus, og það er bólusótt. Útrýming þýðir að það er ekkert af honum í landinu eins og er núna með lömunarveiki og mislinga. Ég held að við munum ekki ná því núna.

Eina lausnin sé að sjálfsögðu að sprauta og bústa alla....

Við lifum á tímum tómra "tilviljana" núna

1129c

Suður afrísku læknasamtökin sem virðast hafa greint afbrigði af veiru sem aldrei hefur verið "raðgreind" nema í tölvuforriti, biður fólk samt að róa sig.

Boris kallinn er orðinn svo fyrirsjáanlegur, að það næstum því fyndið

Það hefur aldrei verið meira áríðandi en akkúrat núna að láta sprauta sig, og/eða fá sér búst. Tvö tilfelli séu þegar fundin í Bretlandi, og smitið breiðist víst hratt út, og geti smitast milli þeirra sem séu þegar tvísprautaðir, segir hann.

Og svo meira bla bla bla, en hafir þú farið í bústið sértu líklega betur varin/n. Það hefur því aldrei verið meira áríðandi en núna að þú látir sprauta þig og/eða fáir þér búst.

Svo kemur meira bla bla bla og hræðsluáróður....

Vissuð þið að Boris, sem ég held að eigi von á sínu sjöunda barni núna, telur að það séu allt of margar manneskjur á þessari plánetu í dag, og að hann og pabbi hans eru fylgismenn "eugenics" sem útleggst einhvern veginn svona:

"The study of how to arrange reproduction within a human population to increase the occurrence of heritable characteristics regarded as desirable. Developed largely by Sir Francis Galton as a method of improving the human race, eugenics was increasingly discredited as unscientific and racially biased during the 20th century, especially after the adoption of its doctrines by the Nazis in order to justify their treatment of Jews, disabled people, and other minority groups."

Boris sjálfur útskýrir hérna, það er ekki pláss fyrir heimskt fólk á þessari jörð, að hans mati, og hér talar hann árið 2007 um að það þurfi að koma stjórn á mannfjölguninni.

Hann virðist ansi sammála "mannvininum mikla" Bill Gates sem hefur opinberlega sagt að hægt sé að fækka mannkynininu með bóluefnum.

Kári og Þórólfur

Hér er fjallað um viðtal sem tekið var við Kára þann 26. nóvember síðastliðinn, þar sem hann segir meðal annars:

Örvun­ar­bólu­setn­ing­ar og bólu­setn­ing­ar barna við kór­ónu­veirunni munu koma til með að hafa mik­il áhrif á út­breiðslu veirunn­ar hér á landi. Þetta seg­ir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, í sam­tali við mbl.is.

og...

„Svo það má færa rök fyr­ir því að koma eigi þeirri skyldu á að þeir ein­stak­ling­ar sem ekki vilja láta bólu­setja sig verði skikkaðir í sótt­kví að ei­lífu.“

Gleymum því ekki að hann getur ekki beðið eftir að fara að sprauta 5-11 ára börn núna!

Og sóttvarnalæknir okkar segir hér: Yrði „al­gjört reiðar­slag fyrir heil­brigðis­kerfið og okkur öll“ að leyfa veirunni ganga ó­á­reittri.

Þessir tveir ljúga og vilja fela sannleikann um skaðsemi þessara efna

Um helgina fjölgaði tilkynntum aukaverkunum um hvorki meira eða minna en 35, þar af þrem alvarlegum, og standa nú í 5.722.

Þetta eru hvorki góðir menn né góðir læknar, og þeir eru löngu búnir að kasta læknaeiðinum sínum, "Fyrst, ekki skaða", fyrir róða.

Skylt efni:

 

 


Kann Lyfjastofnun ekki að telja?

Samkvæmt þessari frétt í Fréttablaðinu í dag, þá er búið að tilkynna um yfir 110 aukaverkanir eftir "örvunar"skammtana.

"Frá því að bólu­setningar hófust að nýju 15. nóvember hafa Lyfja­stofnun borist 113 til­kynningar um auka­verkanir í kjöl­far örvunar­skammts. Þar af eru 10 al­var­legar."

En eitthvað virðast tölurnar hjá þeim hafa skolast til.

Skoðum málið aðeins

16. nóvember

1611b

24. nóvember

2411i

Efri myndin er af tilkynntum aukaverkunum þann 16. nóvember vegna dagsins áður, þegar byrjað var að "örva" fólk, og sú síðari er síðan í dag, 24. nóvember með tölum gærdagsins.

2411jEf við berum saman þessa tvo daga, þá sjáum við að tölurnar stemma ekki við fréttina í dag.

Samkvæmt myndinni hér til hliðar, þá er fjölgunin 81, en ekki 113, og það sem meira er, uppgefnar alvarlegar aukaverkanir eru samkvæmt þessu "aðeins" 235, eða fjölgun um 4 á þessu tímabili, en samkvæmt fréttinni eru þær 10. Og gleymum því ekki að landlæknir lúrði lengi á yfir 2.000 aukaverkunum sem var bætt við í slumpum fyrir mánuði síðan.

Ummæli Björns, Ragnheiðar og Þórólfs um bóluefnin

"Varðandi niðurstöður sem eru komnar bendir allt til þess að bóluefni við Covid-19 séu örugg og mjög virk,“ sagði Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítala og prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, í Bítið á Bylgjunni.

Hann benti á að mun alvarlegra væri að fá COVID með aukaverkunum þess en að láta bólusetja sig. Það hvíli samfélagsleg ábyrgð á fólki að láta bólusetja sig til að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins."

„Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (Yfirhjúkkan í Vaxhöllinni)

„Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við." (Þórólfur)

Samkvæmt þessari frétt þá hefur verið tilkynnt um 152 spítalainnlagnir eftir sprauturnar, þar af 34 tilfelli sem varða lífshættulegt ástand.

Og það segir sig sjálft að ef 5.621 manneskja hefur tilkynnt um einhverjar aukaverkanir, þá hlýtur það að hafa valdið töluverðu álagi á heilbrigðiskerfinu, sem er oft við það að sligast.

Russell Brand

Í þessu vídeó fer hann á sinn einstaka hátt í gegnum "A Crazy Mess" hjá Pfizer, þar sem hugrakkur uppljóstrari gefur lyfjaprófunum fyrirtækisins falleinkunn.

Rannsakandi sem starfaði hjá fyrirtæki sem hafði umsjón með þremur klínískum prófunarstöðum á Pfizer COVID-19 bóluefninu hefur stigið fram og opinberað lélega starfshætti á þessum stöðum.

Spillingin sem viðgengst þarna er óhugnanleg. "The BMJ that the company falsified data, unblinded patients, employed inadequately trained vaccinators, and was slow to follow up on adverse events reported in Pfizer’s pivotal phase III trial."

Hér má lesa meira um þennan sora sem viðgengst hjá þessu fyrirtæki sem hefur þurft að greiða milljarða dollara í sektir.

Hvernig skyldu vinnubrögðin vera hjá hinum lyfjarisunum sem líka hafa þurft að punga út gríðarlegum fjárhæðum? Hér má sjá töflu með hæstu sektum sem lyfjarisar hafa þurft að greiða vegna vörusvika, mútugreiðslna og fleira.

Heiðarlegir læknar sem raunverulega lækna sjúklingana sína af pestinni með þekktum lyfjum eru reknir, eins og þessi hér.

Það er búið að innprenta í okkur að eina lækningin séu þessi tilraunalyf, en það er lygi.


Er sóttvarnalæknir líka orðinn efnahagsráðgjafi?

Hræðsluáróðurinn er að komast á eitthvað nýtt stig núna, aðgerðirnar snúast ekki lengur um að vernda okkar brothætta heilbrigðiskerfi, heldur til að koma í veg fyrir að þjóðfélagið fari á hliðina. Fyrirtæki gætu lamast (eins og stúlkurnar eftir sprauturnar?) ef við höldum ekki samstöðu og virðum sóttvarnaraðgerðir, segir Þórólfur.

Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir seg­ir mik­il­vægt að halda sam­stöðu og virða sótt­varn­araðgerðir því ann­ars get­um við fengið far­ald­ur­inn yfir okk­ur af full­um þunga og allt farið í óefni. Spít­al­inn hætti að geta sinnt sjúk­ling­um með viðun­andi hætti og mik­il­væg starf­semi geti lam­ast.

Fékkstu ekki heiðursorðu 17. júní í fyrra fyrir "vel unnin störf"? Er hægt að skila svona heiðursmerkjum?

Hann von­ast til að mót­mæli, eins og nú eiga sér stað víða um Evr­ópu, vegna hertra sótt­varn­araðgerða, muni ekki eiga sér stað hér á landi.

Ég vona svo sann­ar­lega ekki. Íslend­ing­ar hafa séð al­veg það er sem skipt­ir máli og ef menn fara að mót­mæla og taka ekki þátt, þá fáum við bara far­ald­ur­inn yfir okk­ur.

Hafðu engar áhyggjur Þórólfur, flestir Íslendingar fylgjast ekki með, eða trúa ekki erlendum fréttaflutningi, bara þér - og Kára.

Mik­il­væg starf­semi lam­ast, eins og til dæm­is hjá Orku­veit­unni, raf­magnsveit­um og ég veit ekki hvað og hvað. Allt sem við byggj­um okk­ar líf á mun lam­ast út af út­breidd­um veik­ind­um. Þannig fólk þarf aðeins að horfa á þetta, seg­ir Þórólf­ur í sam­tali við mbl.is

Þegar allt sprautaða fólkið er orðið veikt eins og til dæmis í Ísrael eða á Gíbraltar? Lestu þessa grein, Ísland er meira að segja nefnt á nafn þar.

Eins og staðan er núna get ekki séð að það sé mikið um tak­mark­andi aðgerðir. Fólk get­ur gert nán­ast það sem það vill. Ég held við ætt­um að horfa á það og ef okk­ur tekst að ná kúr­vunni niður þá eig­um við bara að gleðjast yfir því og vera sam­mála um það.

Þessari eins og hálfs árs tveggja vikna kúrvu? Mikið er gott að eiga trúverðuga vísindamenn að.

Tíðrætt hef­ur verið um að vernda heil­brigðis­kerfið og spít­al­ann og þau rök gjarn­an gef­in fyr­ir hert­um aðgerðum, en aðgerðir voru síðast hert­ar hér á landi fyr­ir rúmri viku. Þá aðallega í formi hertra sam­komutak­mark­ana og grímu­skyldu. Þá hafði yf­ir­stjórn spít­al­ans kallað eft­ir hert­um aðgerðum í fjöl­miðlum.

Þessu illa rekna heilbrigðiskerfi sem fer á hliðina á hverju einasta ári hvort eð er? Og hvaða "nýju" vísindi dúkkuðu allt í einu upp, manstu þegar þú sagðir í júní í fyrra að grímur gerðu ekkert gagn, svo tókstu á núll einni 180 gráðu beygju og skelltir á okkur grímuskyldu?

Aðspurður seg­ir Þórólf­ur hins veg­ar erfitt að segja til um það hvort við vær­um í væg­ari aðgerð­um hér á landi ef staðan á spít­al­an­um væri betri; gjör­gæslu­rými fleiri, mönn­un­ar­vandi ekki til staðar og hann hefði meira bol­magn til að bregðast við fjölg­un smita. Enda séu fleiri þætt­ir sem þarf að horfa til.

Hefði ekki verið nær að verja þessum milljörðum sem búið er að setja í "bóluefnin" og PCR prófin í að efla heilbrigðiskerfið? 

0611i22 ein­stak­ling­ar liggja nú inni á Land­spít­al­an­um með covid-19, þar af þrír á gjör­gæslu, all­ir í önd­un­ar­vél. Þórólf­ur seg­ir mik­il­vægt að ná þess­um töl­um niður og bend­ir á að spít­al­inn sé enn á hættu­stigi. „Hann er bara í veru­lega erfiðum mál­um þegar á heild­ina er litið.

Við þurf­um að reyna að koma töl­un­um neðar niður. Það er líka fullt af veiku fólki þarna úti. Við erum með 1.700 til 1.800 manns í eft­ir­liti á covid-göngu­deild­inni og sum­ir eru ansi veik­ir. Þannig við erum ekki bara að tala um hvað það liggja marg­ir á gjör­gæslu, það er svo­lítið topp­ur­inn á ís­jak­an­um.

Hvað eru margir hinna ansi veiku sprautaðir? Varstu búinn að frétta að mest bólusettu löndin eru með mestu veikindin og dauðsföllin? Eða að Bretar eru farnir að sjá í gegnum sprautuóðan forsætisráðherra sinn?

En hafðu engar áhyggjur samt, landinn dýrkar þig ennþá.

102 greind­ust með covid-19 inn­an­lands í gær og hef­ur smit­um farið fækk­andi síðustu daga. Smit­töl­ur náðu há­marki í far­aldr­in­um hingað til í síðustu viku þegar smit fóru yfir 200 á ein­um degi.

Gott að heyra, fór kannski sýnatökum veiruhræddra sprautaðra Íslendinga fækkandi?

Þórólf­ur seg­ir mögu­legt að við séum búin að ná toppn­um í þess­ari bylgju þó vissu­lega séu enn dreifð smit um allt land. „Mér sýn­ist þetta vera að mjak­ast niður og kannski er ég að von­ast til þess líka, en við þurf­um bara að sjá. Við sjá­um hvað gerðist í sum­ar, það tók okk­ur um mánuð að kom­ast niður í um 50 smit, eða eitt­hvað svo­leiðis, og kannski verður staðan svipuð núna. Það þarf samt ekki mikið að ger­ast til að við fáum allt í einu kúr­vuna aft­ur upp, hópsmit í ein­hverj­um skóla eða á vinnustað. En heild­arþró­un­in sýn­ist mér vera sú að þetta sé að mjak­ast niður.

Hefurðu séð myndina Groundhog Day?

Hann seg­ir því ljóst að aðgerðirn­ar séu að virka og aug­ljóst að fólk sé að passa sig. „Það sem er já­kvætt líka er að við sjá­um að hlut­fall þeirra sem eru í sótt­kví við grein­ingu er aðeins að aukast líka, þannig það eru nokk­ur já­kvæð merki um að kannski sé þetta aðeins að láta sig. En það er kannski fullsnemmt og kannski er þetta ósk­hyggja, en ég vona að þetta sé raun­veru­legt.“

Mikið er gott að vita að þú hugsar svona ægilega "vel" um líf og heilsu okkar kæri Þórólfur, og þú átt heiður skilinn fyrir að bæta áhyggjum af efnahagsmálum landsins á þínar herðar líka!

Ertu nokkuð með símanúmerið hjá sprautustrætónum?

Svona í restina

Nýjustu tölur um aukaverkanir eru 5.606 þegar þetta er skrifað (5.595 í gær), þar af 201 lífsógnandi og 32 andlát.

Þórólfur og Kári geta ekki beðið eftir því að byrja að sprauta 5-11 ára börnin líka, það má bara aldrei gerast! Fólk þarf að fara að gera sínar eigin rannsóknir, ekkert barn hefur dáið úr pestinni, en allir fara á hliðina núna ef krakki fær hor í nös.

Hafa krakkar aldrei áður fengið kvef eða pestir á haustin? Fattiði ekki heilaþvottinn á ykkur ennþá?

1811h

 

 


Drullusokkshátturinn

Þessa dagana er rekinn mikill áróður fyrir því að fólk drífi sig í "örvunar"sprautuna, en á sama tíma er tilkynntum aukaverkunum enn að fjölga, um helgina bættust við 28, þar af 2 sem eru flokkaðar alvarlegar.

Rifjum aðeins upp hvað það þýðir:

Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum.

Við fáum daglegar uppfærslur á því hversu mörg smit greindust deginum áður, en aldrei orð um þá sem fá aukaverkanir.

Hvað kom fyrir þessa tvo, liggja þeir núna á sligaðri bráðadeildinni?

Þetta segir sig alveg sjálft

So, if you still need a booster after having been fully vaccinated, and testing after having been fully vaccinated, and hospitalisation after being fully vaccinated, and masks, social distancing & lockdowns all after being fully vaccinated?

Then it’s time to admit that you have been FULLY conned.

Sprautustrætó

"Heilbrigðisyfirvöld óska eftir samstarfi við fyrirtæki og stofnanir, sem stendur nú til boða að fá bólusetningabílinn í heimsókn. Markmiðið er að ná til þeirra í samfélaginu sem enn eru óbólusettir.

Bíllinn verður á ferðinni virka daga milli klukkan 10 og 15 og hægt er að óska eftir þeim tíma sem hentar best. Starfsfólk bólusetningabílsins mun bjóða upp á bólusetningu en einnig ræða bólusetningar við þá sem eru í vafa."

Þetta er verulega ógeðfellt "boð", það er ekki nóg með nú verði keyrt á milli stofnana og fyrirtækja, heldur líka rætt við fólk sem er í vafa. Hvaða rök ætli verði boðið uppá?

Drullusokksháttur að vilja ekki láta sprauta sig?

2410c„Mér finnst persónulega eins og það sé drullusokksháttur að láta ekki bólusetja sig. Ekki vegna hagsmuna okkar sem einstaklinga heldur vegna hagsmuna samfélagsins,“ segir Kári Stefánsson.

„Ég veit að það er fullt af fólki þarna úti sem fyndist það mikill fasismi og ljótt að krefjast þess að fara í bólusetningu.“ Kári segist þó ekki líta svo á. Fólk hafi þjáðst nægilega mikið af farsóttinni til að öllum beri að undirgangast bólusetningu."

Það er alveg óboðlegt hvað þessi embættislausi freki karl fær endalaust að ráðskast með þjóðina.

Honum ferst að tala um fasisma annarra, og er langt því frá að vera hlutlaus aðili málsins!

Faraldur hinna sprautuðu?

2211c

Sprautað fólk undir sextugu í Bretlandi er tvöfalt líklegra til deyja en ósprautað, og heildarfjöldi andláta þar í landi á þessu ári eru vel yfir meðaltali miðað við september mánuð, eins og sjá má í þessari töflu.

Þetta stutta vídeó styður líka við þetta, sem og þessi frétt frá Þýskalandi.

Það vill svo til að þau lönd, að Íslandi meðtöldu sem hafa hæstu bólusetningarhlutföllin, eru með flestu smitin, og reynt er að kenna ósprautuðum um það.

Bólusetningar eru helsta orsök tilviljana

Það vitum við vel sem fylgjumst með fréttunum, sjaldnast eru víst aukaverkanir eftir sprauturnar tengdar þeim, þetta eru yfirleitt allt "tómar tilviljanir".

7 læknar á aldrinum 32-59 ára létust skyndilega á aðeins einum mánuði, 6 bandarískir og einn ástralskur. Reikna má með að þeir hafi allir verið "bólusettir", enda eru 96% (bandarískra) lækna sprautaðir samkvæmt þessu.

Og frásagnirnar eru bókstaflega endalausar um fólk, allt niður í börn sem eru að deyja skyndilega í kjölfar sprautanna, það er því miður hræðilegur sannleikur.

Ein heitasta leitin á netinu þessa dagana

Fólk (ekki Íslendingar) er sem betur fer farið að leita sér upplýsinga á netinu, einn vinsælasti leitarstrengurinn er "died suddenly".

2211i

 

Þetta línurit minnti mig óþægilega á annað línurit sem ég sá um daginn, sem sýnir skelfilega fjölgun andláta í Bandaríkjunum á þessu ári.

2211j

En Þórólfur, Kári og co. eru hreint ekkert af baki dottin, nú gefa þau í og eru jafnvel farin að daðra við bólusetningarpassa og útskúfa þeim ósprautuðu. Svo á að sprauta litlu krakkana næst.

Ef það er ekki drullusokksháttur, þá veit ég ekki hvað er!

 

 

 

 

 

 

 


Bretar hundskamma sprautuóðan forsætisráðherra sinn, við erum búin að sjá í gegnum þig Boris!

Hann póstaði þessu á Facebook síðu sinni fyrir tveim dögum síðan:

"Over 14 million boosters have been given across the UK, as our lifesaving vaccination programme continues.
 
Don’t put yourself at risk and let your immunity weaken this winter. Please go and get boosted as soon as you are eligible."
 
Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa, og þúsundir hafa sagt honum álit sitt á þessu, og eru hreint ekkert að skafa utanaf hlutunum!
 

Þetta skrifaði ég í bloggi gærdagsins:

Hann er á sömu blaðsíðunni í handritinu og Fauskurinn, og hvetur Breta líka til að fá sér "örvun", til að forðast takmarkanir á daglegu lífil.

Það yrði harmleikur ef fólk sem hafi gert rétt og fengið tvöfalda bólusetningu veiktist alvarlega eða týndi lífi með því að fá ekki "örvunina".

Svo útilokar hann ekkert útgöngubönn yfir jólin ef fólk hlýðir ekki.

2111a

Hinn breski Hugo ver hér góðum tíma í að lesa upp athugasemdir Breta, og það fer sem betur fer ekkert á milli mála að flestir eru búnir að fá alveg nóg af honum og lygunum hans.

Og hér eru nokkrar athugasemdir undir vídeóinu hans

"Why did perfectly fit Healthy people queue up to find out if they were ill with the world’s most deadly virus? They fell for this hoax left right and centre, and played right into the hands of our corrupt government with a PM who wouldn’t know TRUTH if he fell over it."

"So to summarize, the Covid19 “vaseline”…
Does not provide immunity
Does not eliminate the virus
Does not prevent death
Does not guarantee you won’t get it
Does not stop you from passing it on to others
Does not eliminate the need for travel bans
Does not eliminate the need for business closures
Does not eliminate the need for lockdowns
Does not eliminate the need for masking

If after reading this you still decide to get the “vaccine”, enjoy your untested Jab & don’t worry about those of us that don’t want it. After all, you’re safe, right??"

"The Dream Of Rome (2006) is a book by Boris Johnson where he compares himself to a Roman emperor. I truly believe he is one of the most hated people in the UK."

"People are waking up! I left a comment on there with 7 people i know with adverse reactions. Enough is enough! They’ll keep pushing and pushing."

"I decline the Jab. If they try to force me it will be Abuse and against my human rights. Boris has serious Nazi tendencies. Did our young men die fighting for our freedom so that this obnoxious turd can destroy it in less than two years. Wake up people, fight back, regain your freedom before it’s lost forever."

"It’s happening! The people are awakening! Let’s go! I am so happy."

Á sama tíma á Íslandi

2111c

Alþjóðalögfræðingurinn Todd Callender fer hér yfir málin

2111b

Hann hélt fyrirlestur á ráðstefnu America’s Front Line Doctors í Texas í sumar og fór yfir glæpina sem verið er að fremja gagnvart mannkyninu núna.

Hér eru nokkur atriði sem hann fjallaði um í fyrirlestrinum, sem áhugasamir geta flett upp sjálfir:

  • One World Government
  • The Nuremberg Code
  • The Good Club
  • Event 201
  • Biowarfare Weapon
  • Plandemic
  • Experimental Gene Therapy
  • Informed Consent
  • Lipid Nanoparticles
  • Agenda 21
  • Agenda 2030
  • Sustainable Developement
  • Crimes against Humanity

Sofandi þjóð

En hér á Íslandi dýrkar þjóðin þríeykið og Kára, flykkist í þriðja skotið og bíður (spennt?) eftir bóluefnunum fyrir 5-11 ára börn sem eru á leiðinni. Þórólfur ætlar að sprauta þeim í börnin þótt það séu til nóg af sönnunargögnum um það að sprauturnar muni skaða mörg þeirra, jafnvel fyrir lífstíð. Sjá meira hér og hér.

2111d


Hvort er hann trúverðugur, eða þau?

Við munum öll hræðilegu fréttirnar í ársbyrjun 2020 um að einhver skæður vírus hefði blossað upp á einhverjum matarmarkaði í Kína, og fengum við að sjá margar ógeðslegar myndir þaðan af dauðum dýrum.

Við fengum líka að sjá fólk detta dautt niður á götuhornum, og Kínverja lóða aftur dyrnar hjá veiku fólki.

Svo varð þetta að stórhættulegum "heimsfaraldri", og heimsbyggðin fylgdist hrædd með, enda var hræðsluáróðurinn settur á yfirsnúning í fjölmiðlum og hjá stjórnvöldum.

Við hér á Íslandi fengum þríeyki sem hélt okkur "upplýstum" um stöðuna með daglegum "hræðslufundum", og fékk heiðursorður fyrir vel unnin störf við að kveða faraldurinn í kútinn þann 17. júní 2020.

En því miður var björninn ekki unninn, og ný "bylgja" af einhverju nýju afbrigði fór að láta að sér kræla, og verslunarmannahelgin var blásin af, sællar minningar.

En það var samt vonarglæta, mörg lyfjafyrirtæki voru að leggja mikið kapp á að þróa ný bóluefni gegn pestinni, sem að sögn þeirra sjálfra lofuðu góðu.

1911dÁ mettíma tókst að hraða þróun og rannsóknum sem venjulega taka að minnsta kosti 7-10 ár niður í örfáa mánuði, vel gert! Það er gott að þau hlustuðu ekkert á Bill Gates.

Og heimsbyggðin andaði léttar. Fyrstu skammtarnir komu til landsins rétt fyrir áramótin, og byrjað var að sprauta gamalmennin á hjúkrunarheimilunum. 8 þeirra létust í janúar, en að sjálfsögðu var lítið eða ekkert sem benti til samasemmerkis þarna á milli, þau voru öll hvort eð er eldgömul og með allskonar undirliggjandi sjúkdóma.

Ef við hraðspólum til dagsins í dag, þá er búið að tilkynna um 5.567 aukaverkanir vegna þessara lyfja, þar af 32 andlát og 199 lífsógnandi aukaverkanir, flestar að sjálfsögðu tómar tilviljanir eins og Lyfjastofnun bendir yfirleitt á.

Aldrei kemur múkk frá sóttvarnalækni eða landlækni um þessar aukaverkanir, enda líklega aldrei spurð um þær.

En hvað um það, bólusetningarhátíðin var sett af stað með pompi og prakt í ársbyrjun, og tæplega 90% þjóðarinnar 12 ára og eldri þáði glöð skotin, enda myndi lífið færast aftur í samt lag og allir gætu farið að ferðast aftur.

En búmm, aftur kom upp enn ein bylgjan í sumar, og sóttvarnalæknir sagði að það ylli honum svolitlum vonbrigðum að virknin hefði ekki verið eins mikil og hann vonaði.

1911gNú voru áður fullbólusettir, skilgreindir sem grunnbólusettir, og þriðja sprautan varð nauðsynleg, þá yrði loksins hægt að ná fram langþráðu hjarðónæmi.

Jafnframt var ýjað að því að fjórða sprautan yrði líka nauðsynleg á næsta ári, jafnvel í tveim-fyrir-eina sprautu af þessum bóluefnum og flensubóluefni.

Samt heldur greindum "smitum" áfram að fjölga, og AHA, það er þessum ósprautuðu að kenna! Er ekki best bara að taka Austurríki á þetta lið og setja það í útgöngubann?

Eða skyldubólusetningu eins og búið er að ákveða þar núna? "Valið" stendur um sprautu eða peningasektir / fangelsi!

Fauskurinn (Dr. Fauci)

3. júní 2021 sagði hann:

Ég held að miðað við landið í heild, þá staðreynd að núna eru um 50% fullorðinna fullbólusett og um 62% fullorðinna sem hafa fengið að minnsta kosti einn skammt sem þjóð, þá er ég nokkuð viss um að þú munt ekki sjá sams konar bylgjur og við höfum séð áður.

En þann 12. nóvember 2021 sagði hann í viðtali:

Embættismenn eru nú farnir að sjá eitthvað minnkandi ónæmi gegn bæði sýkingu og sjúkrahúsvist nokkrum mánuðum eftir fyrstu bólusetningu.

Hann segir líka að í Ísrael séu þeir farnir að sjá minnkandi ónæmi gegn sýkingum, og aukingar í sjúkrahúsinnlögnum og jafnvel dauðsföllum hjá fólki í öllum aldurshópum, ekki bara í öldruðum.

Svo heldur hann áfram og segir að hann telji að "örvunar"skammtur verði algjörlega nauðsynlegur, ekki bónus, ekki lúxus, en algjörlega nauðsynlegur partur af prógramminu.

Þarna er hann svona mjúklega að viðurkenna að efnin hafi ekki virkað nógu vel.

Boris Johnson

Hann er á sömu blaðsíðunni í handritinu og Fauskurinn, og hvetur Breta líka til að fá sér "örvun", til að forðast takmarkanir á daglegu lífil.

Það yrði harmleikur ef fólk sem hafi gert rétt og fengið tvöfalda bólusetningu veiktist alvarlega eða týndi lífi með því að fá ekki "örvunina".

Svo útilokar hann ekkert útgöngubönn yfir jólin ef fólk hlýðir ekki.

Lygavaðallinn um þessi svokölluðu "bóluefni"

1911q

 

Hér er frábær samantekt á lygunum og froðunni í Biden, Walensky, Gates og Fauci.

Þetta hefur aldrei snúist um heilsu og að bjarga lífum

Dr. Ryan Cole er "board-certified" meinafræðingur sem rekur stærstu sjálfstæðu rannsóknarstofuna í Idaho. Hér segir hann meðal annars:

Síðan 1. janúar hef ég séð á rannsóknarstofunni 20-falda aukningu á leghálskrabbameini umfram það sem ég sé á ársgrundvelli, 20-falda aukningu og ég er alls ekki að ýkja.

Ég er að sjá ágeng sortuæxli í yngri sjúklingum. Venjulega grípum við þau snemma og þetta eru þunn sortuæxli. Ég er að sjá þykk sortuæxli stækka upp úr öllu valdi á síðustu tveim mánuðum.

Það sem sé að gerast er að ónæmiskerfi fullbólusetts fólks veiklist. (Innskot mitt: Gæti þetta verið skýringin á því hvers vegna það er svona mikið af smitum í löndum með 90-100% bólusetningarhlutfall?) Hvort það sé varanlegt eða ekki, verði að koma í ljós. Hann segir líka að bólusettu fólki sé hættara við að fá krabbamein.

Þetta sé umfangsmikil tilraun við að fikta í ónæmiskerfinu sem muni líklegast hafa hrikaleg og varanleg áhrif á þá sem kjósa að taka þátt í henni!

Hér getið þið líka séð hann tala um niðurstöður krufninga á fólki sem lést stuttu eftir sprautu.

Hvort skyldi hann, eða Biden, Fauci, Walensky, Johnson og Gates vera að segja sannleikann um þessi svokölluðu bóluefni?

 


Getur maður verið veikur án þess að finna fyrir einkennum?

0710i"Á bil­inu 6 til 40 ein­stak­ling­ar grein­ast með já­kvæða niður­stöðu úr hraðpróf­um á dag vegna kór­ónu­veiru­sýk­ing­ar, að sögn Ingi­bjarg­ar Salóme Stein­dórs­dótt­ur, verk­efna­stjóra sýna­töku hjá Heilsu­gæsl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu.

Aðsókn í hraðpróf hef­ur auk­ist síðustu daga í kjöl­far hertra sótt­varnaaðgerða. Þá hafa fleiri ein­kenna­laus­ir greinst með já­kvæða niður­stöðu úr hraðpróf­um sam­hliða hækk­andi smittíðni í sam­fé­lag­inu."

Það er búinn að vera gríðarlegur skimunarfaraldur undanfarið, sem þýðir eðlilega að fleiri "smit" finnast. Þannig er hægt að viðhalda hræðsluáróðrinum til að koma sem flestum í sprauturnar.

Mér þykir einkar undarlegt að sóttvarnalæknir skuli ekki hafa jafn miklar áhyggjur af aukaverkununum eins og hann hefur af þessum einkennalausu smitum.

En eins og segir í myndinni hér fyrir ofan, enginn myndi láta sprauta sig ef fjölmiðlarnir fjölluðu jafn mikið um aukaverkanir og andlát eftir þær, eins og þeir fjalla um "drápsveiruna".

Mér þykir það líka undarlegt að mest bólusettu þjóðirnar séu samt að smitast mest, líka sú fullyrðing að ósprautaðir séu baggi á kerfinu.

Ekki eru allir sammála honum

Háttsettur vísindamaður hjá lyfjafyrirtæki segir þetta um einkennalaus veikindi, og tekur dæmi:

Þetta er auðvitað algjört bull. Við erum ekki öll að "þjást" af einkennalausri kirtilsótt. Kirtilsótt krefst sýkingar af völdum EBV, en EBV sýking leiðir ekki endilega til kirtilsóttar. Það sama á við um COVID-19 og SARS-CoV-2 og því er hugmyndin um einkennalaust COVID-19 sem sjúkdóm jafn fáránleg og um einkennalausa kirtilsótt.

Sóttvarnalæknir gagnrýnir þá gagnrýni sem sóttkvíar hafa fengið, en segir svo, reglur endurskoðaðar ef örvunarskammtur skilar tilætluðum árangri.

Einmitt, um að gera að endurtaka sömu aðferðir á það sem hefur misheppnast með von um aðra útkomu í það skiptið!

Mikilvægi þriðja skammts tíu af tíu mögulegum

Nú það er ekkert annað!

„Það eru all­ar vís­bend­ing­ar sem segja okk­ur það að vörn­in bæði fyr­ir ein­stak­linga og sam­fé­lagið verði enn betri eft­ir þriðja skammt­inn en skammt núm­er tvö. Ég held að það sé til mik­ils að vinna að fólk mæti og fái bólu­setn­ing­una svo það verði bet­ur varið,“ seg­ir Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir í sam­tali við mbl.is

Já allar þessar vísbendingar og gögn sem hann talar alltaf um en er aldrei beðinn um að sýna máli sínu til staðfestingar.

Víðir segir fráleitt að draga úr rakningu og sóttkví, og við hlýðum Víði auðvitað alltaf.

There are two ways in which people are controlled: first of all frighten them, and then demoralise them. An educated healthy, and confident nation is harder to govern.

Tony Benn

 

Hringleikahús fáránleikans

Verið áfram hrædd gott fólk því við erum enn í miðjum faraldri, og veiran er á fleygi­ferð um sam­fé­lagið (eftir eitt og hálft ár...). Munið að þið getið verið veik alveg þótt þið séuð einkennalaus, og við verðum með öllum ráðum að efna bóluefnasamningana til að koma út öllu þessu "bóluefni" út sem fyrst. Við erum meira að segja búin að redda bólusetningastrætó fyrir ykkur!

Svo þegar þriðja sprautan virkar ekki heldur, þá bara byrjum við upp á nýtt, enda eruð þið Íslendingar afskaplega meðfærileg og hlýðin hjörð og nennið ekkert að gera ykkar eigin rannsóknir.

Alveg eins og hann Sölvi (sem ég bloggaði um í sumar), þegar spjallað var við hann á eftir sprautu, hann sagðist ekkert nenna að pæla í þessu, og gerði bara það sem honum var sagt.

 

1111b

 


mbl.is Fleiri einkennalausir greinst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband