Útþurrkun konunnar, kynlífsvæðing ungra barna, barnaníð - og opið bréf til ráðherra Íslands og annarra er málið varðar

Núna er skipulega verið að reyna að þurrka út úr hugum fólks hvað kona er, og núna geta karlar víst allt í einu líka gert flest sem aðeins konur sem fæddar eru sem konur geta gert.

drag-queenÞað er verið að reyna að telja fólki - og sérstaklega börnum trú um að kynin séu ótal mörg, en ekki bara tvö.

Það mætti spyrja hver tilgangurinn sé með því að núna sé allt í einu verið velta því upp hvað kona sé, eins og það sé eitthvað vafamál.

Í mínum huga er það gert til þess að rugla fólk í ríminu - þá sérstaklega börn núna, og fá það til að efast um eigin dómgreind og þá óhrekjanlegu staðreynd að það eru bara til tvö kyn, kona og karl.

Þarna er hreinlega verið að gaslýsa og heilaþvo fólk til fá það til að samþykkja orðskrípi eins og fæðandi fólk, fólk með börn á brjósti, og fólk með leggöng, eða leghafa, og nú er mælt með að fólk með leggöng fari í fyrstu krabbameinsskoðun 25 ára að aldri. Að það séu víst ekki lengur bara konur sem hafa blæðingar, og þar fram eftir götunum.

Þetta virðist hafa borið allnokkurn árangur, því sumir virðast núorðið meira að0427 segja eiga erfitt með að svara þessari einföldu spurningu: "Hvað er kona?". Þessi kona hér á líka í erfiðleikum með það, enda sé hún ekki líffræðingur, bara dómari.

Meira að segja var talað um fæðandi fólk í staðinn fyrir mæður í fjárlagafrumvarpi Bidens Bandaríkjaforseta fyrir árið 2022, en það fylgir róttækri hugmyndafræði transfólks.

Það er sjálfsagt að fagna fjölbreytileika mannlífsins, svo hvernig væri líka að fagna fötluðum, ljóshærðum, sköllóttum eða kiðfættum?

Hver man ekki eftir því þegar íslenska þjóðkirkjan hoppaði á vagninn og auglýsti Jesú Krist sem skeggjaða transkonu með brjóst og varalit? Eðlilega voru skiptar skoðanir um hvort kirkjan hefði nokkuð með svona boðskap að gera.

Allt virðist vera gert til að koma í veg fyrir að frekir karlmenn sem skilgreini sig nú sem konur þótt þeir hafi fæðst - og séu kannski enn með kynfæri karlmanna, móðgist ...

Við skulum bara gera okkur grein fyrir að þetta gengur út á að smætta konur, þeirra líkama, móðurhlutverk og hreinlega líka tilvist þeirra!

Hér er fantagóð grein um þetta: We must resist the trend turning ‘women’ into ‘bodies with vaginas’.

Íhugunar vert

Hvers vegna er aldrei talað um fólk með typpi eða pung, eða fólk sem rísi hold og hafi sáðlát?

Dylan Mulvaney transstelpa

Dylan MulvaneyKarlmaður sem skilgreinir sig sem stelpu er um þessar mundir að fagna fyrstu 365 dögunum sínum "sem stelpa" og var fenginn til að auglýsa bjórtegund nýlega.

Sú auglýsingaherferð fór ekki vel í neytendur sem margir vildu ekki sjá þetta og mótmæltu kröftuglega.

Auglýsingar "hennar" á vörum fyrir konur:

Hann, sem er flatbrjósta karlmaður í gervi konu var fenginn til að auglýsa íþróttabrjóstahaldara fyrir konur, og í vídeói sem ég sá um daginn mátti sjá hann dásama ákveðna tíðatappategund, spurningin er hvort hann sé þarna að lýsa eigin reynslu af notkun þeirra.

Það hefði þá alveg mátt fylgja sögunni í hvaða líkamsop hann træði þeim.

Hér má sjá nokkur vídeó á YouTube með þessari manneskju.

Í mínum huga er það ekkert annað en móðgun og vanvirðing gagnvart konum að setja karlmann í gervi konu í það hlutverk auglýsa varning sem augljóslega nýtist engum nema líffræðilega fæddum konum.

Góðar fyrirmyndir ungu kynslóðarinnar, hvað finnst foreldrum? 

Girls with balls

Ekki veit ég hvað sú (sá?) gulhærða heitir, en sú (eða sá?) til hægri heitir greinilega Cardi B. Ég er orðin svo gömul að ég þekki ekkert til þessa fólks.

Sú til vinstri skartar flottum brjóstum sem hljóta að vera úr silikoni, en pungur - sem var karlkyns líffæri síðast þegar ég vissi slapp þarna út úr brókinni, líka hjá þeirri til vinstri sem er þarna að glenna sig framan í áhorfendur.

Ætli Cardi B sé þarna að syngja um Girl Power út frá eigin kynvitund eða sinni reynslu af því að "vera kona"?

Vonandi hafa foreldrar eftirlit með hvað börnin þeirra eru að horfa á á TikTok og álíka miðlum.

Safn sem leggur núna áherslu á kyn og jafnræði, en var áður kvennasafn

Breastfeeding man

Skjáskotið hér að ofan tók ég af fréttasíðu sem fjallaði um styttu af nöktum karlmanni í fullri stærð með brjóst, og barn nærandi sig úr þeim, og hefur hún vakið mikla athygli.

Hún stendur fyrir utan safn í Árósum í Danmörku sem áður kallaðist Women’s Museum, en núna Gender Museum, og samkvæmt vefsíðu þess er það eitt af fáum söfnum í heiminum sem leggur áherslu á kyn og jafnræði.

Þar segir meðal annars:

Framtíðarsýn safnsins er að vekja forvitni, samræður, ígrundun og þekkingu um mikilvægi kynja; fortíð, nútíð og framtíð. Kynjasafn Danmerkur sýnir menningarsögu kynjanna í víðara sjónarhorni og tekur til allra lita regnbogans.

Og ...

Margt hefur breyst í heimi kynskynjunar síðan Kvennasafnfélagið leit dagsins ljós; einnig hefur hlutverk og virkni karla breyst verulega. Á sumum sviðum hvílir menningararfurinn enn á gamaldags skiptingu kyns og hlutverka, en nútíminn gerir ráð fyrir opnari birtingu allra kynja.

Kona sem tjáir sig á Twitter segir um þetta verk að það sé "The erasure of women", sem mætti þýða sem útþurrkun eða útrýmingu kvenna.

Önnur umfjöllun um styttuna, í lauslegri þýðingu:

Stytta af manni með barn á brjósti er draumur barnaníðinga.

Er Agape ekki draumur barnaníðinga? Fullorðinn nakinn maður sem nýtur þess að setja lítið barn upp að geirvörtunni svo það geti sogið er fyrir mig ímynd þess sem barnaníðinga dreymir um.

Hún benti á að á meðan geirvartan er kynferðislega næmt svæði fyrir bæði kynin, "uppfyllir móðirin þarfir barnsins", á meðan karl sem getur ekki brjóstfætt barn "fullnægi aðeins sínum eigin".

Ég sé ekki að verið sé að leika með kynhlutverkin eins og margir aðrir gera. Ég sé misnotkun á litlu barni og mann svala fýsnum sínum. Þess vegna finnst mér það truflandi að bæði kynin og áhorfendur í dag fagna boðskapnum: Fullorðni maðurinn getur gert hvað sem hann vill við lítið barn, svo framarlega sem við köllum það Agape.

Hér segir að safnið bjóði upp á kynfræðslu fyrir börn í grunnskóla - sem virðist vera á svipuðum nótum og Samtökin 78 hafa verið fengin til að kenna íslenskum börnum núna. Þeir sem hafa kynnt sér í hverju þeirra kynfræðsla felst segja að oftar sé talað um trans en stráka eða stelpur.

Hvers vegna er verið að koma þeim hugmyndum inn hjá litlum börnum allt niður í leikskólaaldur að kynin séu alls konar og að það sé hið eðlilegasta mál að vera fædd eða fæddur í "röngu kyni" og að hægt sé að "leiðrétta það"?

Á svona "fræðsla" eitthvað erindi til ungra barna, eða svona, eða svona?

Þessi hér veltir fyrir sér tilgangi þess að kynna dragdrottningar fyrir börnum.

Hvers vegna er ekki menntað fagfólk eins og kennarar lengur fengið til að sjá um kynfræðslu barna í grunn- og leikskólum?

Ein FB vinkona mín hafði þetta að segja í gær:

Ég á 3 barnabörn à aldrinum 2-4 og eitt þeirra sagði nýlega; "èg er ekki stelpa eða stràkur, èg er ekkert." Sama barn sagði einnig; "hann er stràkur þó hann sè með píku og sè líka stelpa". Þessi innræting er komin í einhverju formi inn à leikskólana. Svona lítil börn hafa ekki líffræðilega þroskaðan framheila til að skilja svona innrætingu eða nota rökhugsun nema mjög takmarkað.

Blautur draumur barnaníðinga rætist

Í nýlegu bloggi sem ég skrifaði um hvort kynfræðsla barna á Íslandi væri á réttri vegferð, kom ég inn á þann hrylling að nú vilja SÞ og WHO lögleiða afglæpavæðingu kynlífs með börnum, enda sé annað brot á mannréttindum (barnaníðinganna). Með þessu sé verið að lögleiða barnaníð og annan hrylling gagnvart börnum.

Tengið svo saman þessa "kynfræðslu" barna þar sem verið er að kenna þeim frá unga aldri að vera kynverur, við afglæpavæðingu "kynlífs" með börnum. Þetta kallast "grooming" á ensku, sem mætti þýða sem undirbúning og tælingu.

Ný frétt, lesið þetta!: Transgender State Representative Moves To Allow “Sexual Attachment To Children” To Be Classified As Protected “Sexual Orientation”

Einnig við karlmenn sem koma "pungsveittir" fram á sviðið og þykjast vera konur.

Tengið þetta líka við þessa aðför gegn öðru af þeim tveim kynjum sem til eru, konum.

Og ungu ráðvilltu fólki sem er sagt að lausnin á vandamálum þeirra sé að skipta um kyn. Þau eru blekkt í lyfjagjafir (sem vara til æviloka), afnám brjósta og kynfæra, og mörg hver verða ófær um að eignast börn. Enda er það tilgangurinn.

Tengið þetta svo líka saman við plön SÞ, WHO, WEF og annarra illvirkja um að ná alræðisvaldi yfir heimsbyggðina, sem ég hef skrifað ótal blogg um.

Rannsóknablaðamaðurinn Matt Walsh, sem leitar svara

Horfið á þetta vídeó með honum þar sem hann útskýrir allt það sem kona er, og hvað ekki. Lokaorðin hans eru mögnuð!

Og að lokum, hér er opið bréf frá mannréttindasamtökunum Mín leið - Mitt val til ríkisstjórnar Íslands, barnamálaráðherra Ásmundar Einars Daðasonar, Willum Þórs Þórssonar, starfsmanna Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, UNICEF á Íslandi, umboðsmanns barna og grunnskólakennara á Íslandi, um að stöðva þennan viðbjóð sem verið er að innleiða hér á Íslandi eins og í öðrum löndum.

 


Er kynfræðsla barna á Íslandi á réttri vegferð?

Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum - en kannski þó, að umræða hefur skapast í samfélaginu um kynfræðslu og fræðslu um kynvitund barna í grunnskólum þessa lands, og sitt sýnist hverjum.

Þessar umræður má finna með leit á netinu.

Sem fullorðin manneskja, móðir og amma er ég gáttuð á þeirri kynfræðslu sem verið er að bjóða börnum upp á, í það minnsta í sumum skólum.

Ég fæ ekki betur séð en að verið sé að rugla börn í ríminu með því að afmá skilin milli kynjanna tveggja, að þau geti verið strákar þótt þau séu fædd sem stelpur, og öfugt, kenna þeim að vera kynverur á unga aldri, og að þau geti alveg skipt um kyn. Að það sé bara eðlilegt að vera trans.

0420aÁ þessari mynd má sjá kennsluefni um hvenær kynþroski byrjar, og takið eftir því að ekki er talað um kynið sem barnið fæddist í, heldur þá sem hafa eggjastokka og þá sem hafa eistu!

Þarna segir að krakkar með píku verði orðnir kynþroska þegar blæðingar byrja, og krakkar með typpi þegar sáðlát verður.

Hvað veldur því að ekki er lengur talað um stelpur og stráka, konur og karla, kvenkyn og karlkyn?

Þetta er ekkert flókið, aðeins stelpur fæðast með píku og eggjastokka, og aðeins strákar með typpi og eistu.

Líffræðilegu kynin eru bara tvö, punktur.

Hér getið þið séð meira úr þessu kynfræðsluhefti fyrir sjötta bekk.

Ég spurði dótturdætur mínar sem eru í fjórða og áttunda bekk grunnskóla um hvort kynfræðsla sé byrjuð í þeirra skóla, en þær búa í bæjarfélagi utan Reykjavíkur.

Sú yngri sagðist ekki vera farin að fá slíka kennslu, og sú eldri sagðist vera búin að einhverja fræðslu, og þá þessa hefðbundnu um kynfæri stráka og stelpna, blæðingar og slíkt, engin transfræðsla þar.

Upplifun móður

Kunningjakona mín hefur sagt mér að hún viti um eina 7 ára stúlku sem er í grunnskóla í Kópavogi sem veit ekki lengur hvað karlmaður er og spyr mömmu sína alltaf hvort fólk sé hán, kvár eða stálp.

Barn hennar í fjórða bekk er búið að læra að fornöfn fólks séu mörg og er búið að læra um 9 ný slík, og eldra systkinið er í áfalli yfir því að yngra systkinið sé búið að fá þessa fræðslu. Sama barni hefur verið kennt að það megi skipta um kyn, sé eðlilegt að kyssa sama kyn og fleira.

Sama barn (9 ára!) sagði að kennarinn hefði líka verið að tala um sjúkdóma í kynfærum karla.

Hún hefur aldrei sem foreldri fengið að vita hvað verið er að kenna börnunum hennar, og hefur hvergi fundið það í tölvupóstum frá skólanum eða inni á Mentor.

Hún hafði í rauninni ekki hugmynd um að verið væri að kenna börnunum hennar þetta fyrr en móðir 7 ára stúlkunnar benti henni á það.

Upplifun barna hennar af þessari fræðslu er að þeim þyki hún svo vandræðaleg og óþægileg að þau vilji sem minnst tala um hana heima.

Kópavogur

1111cSkólanám ofangreindra barna fer fram í Kópavogi, sem vinnur nú að innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Þess má geta að Kópavogsbær hefur látið dragdrottningu lesa hinsegin sögur fyrir börn.

Ætli "hún" sé að kenna börnunum eitthvað svona, eða svona?

Erlend dragdrottning segir að "hún" skilji ekki hvers vegna foreldrar ættu að vilja að dragdrottningar séu að lesa fyrir börnin þeirra.

Þess má líka geta að bæjarstjóri Kópavogs er "agenda contributor" hjá The World Economic Forum, sem eru að vinna að því þessi misserin að ná alræðisvaldi yfir heiminum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra okkar er það líka.

Vika6 sem Jafnréttisskóli Reykjavíkur stýrir

Hér má sjá umfjöllun um Viku6, en í þeirri viku er starfsfólk grunnskóla og félagsmiðstöðvar borgarinnar hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu.

Þarna kennir ýmissa grasa, og ég hvet alla foreldra grunnskólabarna til að skoða þessa síðu vel.

Þarna er líka verið að fjalla um kynfræðsluefni ætlað 5-8 ára börnum, þar sem þeim er meðal annars kennt að þótt við fæðumst sem strákar eða stelpur, þá finnum við fyrir því innra með okkur þegar við verðum eldri hvort við séum strákur eða stelpa!

Er þarna verið að koma inn einhverjum hugmyndum hjá blessuðum börnunum strax á unga aldri?

0422a

Þessi nýja stefna í "kynfræðslu" barna er hluti af stærri áætlun, sem gengur út á að setja heimsbyggðina undir alræðisvald viti firrtra auðkýfinga, samtaka og stofnana, en ég hef bloggað um það ótal sinnum undanfarin tvö ár.

Heilbrigðisstefna til ársins 2030 samþykkt á Alþingi

Þessi heilbrigðisstefna Svandísar Svavarsdóttur var unnin í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), sem ég hef fjallað um í tugum blogga undanfarin tvö ár.

Heilbrigðisstefna Evrópu til ársins 2020 sem Evrópuskrifstofa
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO)
birti árið 2012 byggist á ákveðnum grunngildum en
þau eru sanngirni, sjálfbærni, gæði, gagnsæi, ábyrgð,
jafnrétti kynja, virðing og réttur til að taka þátt í
ákvörðunum.

Og ...

Jafnframt var stuðst við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra
þróun.

Þessi heimsmarkmið hef ég fjallað um eða minnst á í fimm bloggum, í því fyrsta má sjá hvað raunverulega býr að baki þeirra og í því nýjasta má sjá enn skýrari táknmynd af þeim.

Ég rakst á nokkurra ára gamalt vídeó þar sem farið er yfir þessi "fögru" markmið í stuttu máli, og vakti markmið númer 5 sérstaka athygli mína.

0422

Agenda 2030 translation - New World Order disguised as Sustainable Development

Athygli vekur að þessi heilbrigðisstefna Svandísar nær til ársins 2030, þegar Sameinuðu þjóðirnar ætla að vera búnar að uppfylla "Agenda 2030", eða hina nýju heimsskipan.

Viðbót:

Ég var að rekast á þessa nýju grein, sem skýrir mjög vel út á hvað þetta Agenda 2030 gengur, þar á meðal þetta sem ég er að fjalla um núna.

It sees the family as an environment conducive to discrimination and inequality. In the 2030 Agenda, family and religion are presented as elements of conflict. Religion and family are problems, not solutions. For example, having children, spousal responsibility or generosity in marriage are not part of this new common sense. Nor do they [the promoters of the SDGs] accept that education belongs to parents. 

Íslensk stjórnvöld, landlæknir og sóttvarnalæknir fóru að miklu leyti til eftir tilmælum WHO í "heimsfaraldrinum", en stofnunin er búin að boða röð smitfaraldra næstu 10 árin, hvernig í veröldinni sem það er hægt.

WHO og Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) hafa gefið út og sent skjöl til allra þjóða heims, leiðbeiningar handa kennurum um hvernig haga eigi kynfræðslu barna.

Þar er öllum leikskólum og grunnskólum boðið að kenna litlum börnum að byrja að fróa sér, eiga bólfélaga, nota klám á netinu og fleira.

Einnig á meðal annars að fræða 9 ára börn um fyrstu kynmök, hvernig á að upplifa kynlíf með því að nota internetið og farsíma og læra mismunandi kynlífstækni.

Hér má sjá Google þýðingu á þessum hryllingi.

0422dÞessi síða finnst ekki lengur inni á vefsíðu WHO þegar maður smellir á hlekkinn, heldur fer maður beint inn á heimasíðuna þeirra, það er semsagt búið að taka hana út af vefnum.

Þið getið þó sótt þetta skjal hér.

Lesið allt um þennan óhugnað hérna, og horfið á vídeó á vegum WHO þar sem litlum krökkum er kennt hvernig best sé að fróa sér kynferðislega þannig að þau finni fyrir sem mestum unaði.

Og hér má sjá leikföng úr kynfærum og teiknaða mynd af því hvernig eigi að sleikja typpi, ásamt annarri "kynfræðslu" fyrir börn.

Og nú vilja SÞ og fleiri lögleiða afglæpavæðingu kynlífs með börnum, enda sé annað brot á mannréttindum. Með þessu er verið að lögleiða barnaníð og annan hrylling gagnvart börnum.

Og þess má líka geta að Bill & Melinda Gates Foundation hefur gefið milljónir dollara til frjálsra félagasamtaka sem leitast við að normalísera vændi og kynvæðingu barna yngri en 10 ára.

Þessi "góðgerðarstofnun" þeirra er líka einn stærsti fjármögnunaraðili WHO, sem veitir henni gríðarlega mikil völd og áhrif.

Margt bendir til þess að í byrjað sé smám saman að innleiða þessa kennsluhætti WHO og SÞ í ýmsum sveitarfélögum hér á landi, sem að mínu mati og annarra eru stórhættulegir saklausum barnssálum.

Ég veit að ég mæli fyrir munn margra hér

  • Það er ekkert eðlilegt við að segja 9 ára börnum að þau séu kannski í "vitlausum" líkama og að það sé allt í lagi að vera trans og skipta um kyn.
  • Það er ekkert eðlilegt við það að kenna litlum börnum hvernig þau eigi að byrja að fróa sér og nota klám á netinu.
  • Eða að segja ungum börnum að þau séu kynverur.
  • Það er heldur ekki í lagi að telja börnum trú að kynin séu mörg, eins og þessi erlenda dragdrottning gerði, en "hún" var rekin úr starfi fyrir að segja 11 ára börnum að kynin væru 73.
  • Að hverra mati eru dragdrottningar taldar góðar fyrirmyndir fyrir börn?
  • Það var algjör óþarfi að troða þessum nýstárlegu kennsluháttum í stærðfræðiverkefni sem ég sá, þar samanstóð fjölskyldan af tveim mæðrum, stelpu og stálpa minnir mig. Hvað er stálpi eiginlega, eitthvað nýtt stærðfræðitákn?
  • Hvað er að því að gera verkefnið bara um hefðbundna fjölskyldu, pabba, mömmu, son og dóttur?
  • Enginn amast við því að fullorðin manneskja taki þá örugglega erfiðu ákvörðun að fara í kynleiðréttingarferli, en hún gerir það þá sem þroskuð manneskja, væntanlega að vel íhuguðu máli.
  • En að koma þessum hugmyndum inn í kollinn á ungum börnum er bara andstyggilegt, og þau hafa eðlilega engar hugmyndir um hvaða afleiðingar það getur haft fyrir þau.
  • Þau vita ekkert hvað hormónablokkerar eru sem fresta kynþroska þeirra, eða hvað þá að þeim muni standa til boða að skera af sér brjóst og kynfæri sem hluta af kynleiðréttingarferli, og að svona aðgerðir séu óafturkræfar. Eða að þau þurfi að vera á hormónalyfjum það sem eftir er ævinnar.
  • Frásagnir margs ungs fólk um reynslu þess, oft alveg hræðilega af þessum aðgerðum má finna t.d. á YouTube. Reynsla margra þeirra er sú að þeim hafi verið þrýst út í þetta ferli á viðkvæmum tímum í lífum þeirra og þau hafi ekki fengið nægjanlega góða fræðslu um kosti og galla. Margar transkonur sjá eftir að hafa látið fjarlægja kynfæri sín, og upplifa erfiðleika við þvaglát og endurteknar sýkingar á þessu svæði.
  • Þessar raddir þurfa að fá að heyrast líka.
  • Þessi líka, þetta er transkona sem segir m.a. frá því að þessar aðgerðir séu hættulegar og lækni engan - og séu milljarða business í USA.

Mig langar að benda ykkur á að lesa þetta blogg eftir Helgu Dögg Sverrisdóttur sem fjallar um það að upplifa sig í röngum líkama, ég er sammála öllu því sem hún segir þar.

Samtökin 78 og 22

Hér á landi hafa Samtökin 78 fengið það hlutverk að innleiða kennsluhætti í kynfræðum inn í íslenskt skólakerfi án þess að inntak þess sé opinbert og margir sveitastjórnarmenn viti ekki hvers konar eða hvaða fræðslu þeir séu að borga fyrir.

Sjá umfjöllun og gagnrýni um það hér sem olli miklum úlfaþyt í samfélaginu, en þar viðrar höfundur áhyggjur sínar meðal annars af því hvort fræðslan gangi út á að sá vafafræjum í huga barna varðandi það kyn sem þau fæddust í.

Þetta eru spurningar og gagnrýni sem eiga fyllilega rétt á sér, ég efast ekkert um að Samtökin 78 séu að vinna heilshugar eftir eigin sannfæringu, spurningin er bara hvort hún eigi nokkuð erindi til barnanna okkar.

Samtökin 22 sem eru hagsmunasamtök samkynhneigðra taka í sama streng og segja hér annars:

Allir vita að aðeins eru til tvö líffræðilegt kyn. Þau sjást í móðurkviði og/eða við fæðingu og er ekki ,,úthlutað”. Við vitum að hugmyndafræði kynjafræðinga eru gervivísindi og ógn við samkynhneigða. Einnig teljum við að þessi hugmyndafræði sé ruglingsleg og hættuleg börnum.

Þau segja einnig að transumræðan eigi ekkert skylt við réttindabaráttu samkynheigðra.

Þau munu aldrei troða sér í skólana, það eina sem þau vilji sé að börnum sé kennt að fjölskylduformið er fjölbreytt og að sumt fólk laðast að sama kyni.

Þetta tek ég heils hugar undir, þetta er bara sjálfsögð og eðlileg fræðsla.

Öll barátta fyrir eðlilegu og mannsæmandi lífi á fullkomlega rétt á sér því við fæðumst jú alls konar, gagnkynhneigð, samkynhneigð, líkamlega og/eða andlega fötluð, sem er ekkert sem við völdum fyrirfram, en við eigum öll að hafa sömu mannréttindi. Líka þau sem kjósa að fara í þetta ferli.

Staðreyndin að fólk þurfi að berjast fyrir sjálfsögðum mannréttindum er bara sorgleg. Það er þó aldrei réttlætanlegt að reyna að innræta einhverjum "sannleika" einhvers hóps upp á annað fólk, og hvað þá börnum.

Hér er Facebook síða Samtakanna 22, þar sem kynnast má þeim og þeirra málstað betur.

Fólk þarf að gera sér grein fyrir því að allt ofannefnt er runnið undan rifjum illra afla, og eitt af markmiðum þeirra er að jaðarsetja fjölskylduna. Þetta er enn ein aðferð þeirra til að stuðla að "nauðsynlegri" fækkun mannkynsins.

Ég ætla að minna ykkur á að heilbrigðisstefnan fyrir Ísland var gerð í samvinnu við WHO (sem er að stórum hluta til fjármagnað af Bill & Melinda Gates Foundation).

Þetta kynjarugl með börn eru bara enn ein tilmælin sem koma frá WHO - sem við fylgjum svo gjarnan eins og sjá mátti í Covid þegar Þórólfur réttlætti ýmis höft og skerðingar, þetta voru bara tilmæli frá WHO sagði hann.

Þið sem eruð foreldrar eða afar og ömmur grunnskólabarna, vitið þið í hverju kynfræðsla barnanna ykkar felst? Væruð þið sátt við að þau fengju svona fræðslu?

 

 

 

 

 


Flest sem okkur var sagt voru lygar sem margir féllu fyrir, og nú sitja mörg ykkar uppi með afleiðingarnar.

Við erum öll löngu orðin hundleið á öllu varðandi "heimsfaraldurinn" og viljum helst bara horfa framávið og halda áfram með líf okkar.

En hvað með langtímaafleiðingar á heilsu og líf fólks af "bólusetningunum" sem stærstur hluti þjóðarinnar fór í - sumir margoft, og enn er verið að hvetja fólk til að fara í?

Þetta er það sem mig langar að fjalla um, því það er eitthvað sem snertir okkur öll á einn eða annan máta. Meira um það hér neðar.

Nýjar "ógnir" teknar við

Aðrar og nýjar "ógnir" steðja víst að mannkyninu núna að loknum "heimsfaraldrinum". Sú nýjasta er "loftslagsváin", en verið er að koma á alheimsstjórn undir því fagra yfirskini að verið sé að gera heiminn að betri stað fyrir okkur öll.

Skýrt dæmi um það eru Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni, sem út af fyrir sig væru hið besta mál ef raunverulegu markmiðin bakvið fagurgalann væru ekki þessi nýja heimsskipan sem verið er að innleiða núna, þar sem okkur er ætlað að enda í 15 mínútna fangelsisborgum, fá úthlutaða rafræna "peninga" sem gefa stjórnvöldum fullkomna stjórn á neyslu okkar og eftirlit með okkur, og éta pöddur.

Líka hér á Íslandi, enda eru íslensk stjórnvöld að vinna að þessum vægast sagt óhugnanlegu markmiðum bak við tjöldin.

Hér er hrollvekjandi teiknimynd sem sýnir framtíðina sem mögulega bíður okkar.

En fyrst þarf að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda", sem hefur tekist alveg "ljómandi vel" með genabreytandi líftæknilyfjum sem voru hönnuð til þess að skaða og drepa, og hörmulegum afleiðingum vegna þess að heiminum var skellt í lás hvað eftir annað, sem var víst gert til að "vernda okkur".

Á neðri myndinni má sjá þessi illu plön sem eru þegar farin að taka á sig mynd og raungerast, en þið sjáið aldrei neinar umfjallanir um þetta í þessum íslensku meginstraums ruslmiðlum sem flytja bara "fréttir" sem fylgja einum leyfðum málstað. Leita þarf til óspilltra miðla til þess.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Langtímaafleiðingar vegna eitursprautanna

Öll dýrin sem voru notuð í tilraunaskyni til að prófa nýju líftæknitilraunalyfin drápust, meðal annars úr ónæmissjúkdómum, blóðsýkingu og/eða hjartabilun, ekki endilega strax, heldur mánuðum seinna.

En það vakti samt ekki upp neinar spurningar um öryggi þessara líftæknilyfja hjá eftirlitsaðilum, og var neyðarleyfi veitt á notkun þeirra þrátt fyrir að Pfizer hafi vitað strax í nóvember 2020 að þau veittu ekki þessa marglofuðu vörn.

Á sama tíma voru margreynd og örugg lyf eins og þetta hérna bönnuð, þannig voru þessi neyðarleyfi veitt á sviksamlegan hátt.

Allt sem okkur var sagt um virkni, gæði og öryggi þessara tilraunalyfja var haugalygi, það er ekki hægt að flýta hefðbundinni margra ára þróun nýrra lyfja niður í nokkra mánuði og segja að þau séu eina leiðin til að koma heimsbyggðinni út úr einhverjum faraldri.

"Faraldri" sem var lygi frá fyrsta degi.

Man einhver eftir Thalidomide lyfinu skelfilega sem barnshafandi konum var gefið fyrir rúmlega hálfri öld? Í ljósi þess hefði aldrei átt að blekkja verðandi mæður í þessar eitursprautur, frekar en aðra.

Varnaðarorð okkar voru flest, ef ekki öll rétt

Mörg okkar sem erum lengi búin að reyna að vara fólk við sprautunum höfum þurft að upplifa háðsglósur, dónaskap, reiði, vinamissi og jafnvel útskúfun úr fjölskyldum okkar.

Það hefði aldrei getað gerst nema vegna þess að skipulega var búið til andóf gegn okkur af þeim sem stýrðu sprautuherferðinni - með dyggum stuðningi fjölmiðlanna, "sællar minningar", og þar var Kári nokkur $tefánsson framarlega í flokki.

Nú erum við að horfa upp á afleiðingarnar af "bólusetningunum" á fólkinu í okkar nærumhverfi og ástvinum, því miður. Það er ekki gaman að þurfa að segja að við höfðum rétt fyrir okkur allan tímann.

"Samsæriskenningarnar" eru bara að rætast ein af annarri þessi misserin.

Margir sem fengu sér eina eða fleiri eitursprautur eru núna að upplifa alls konar nýtilkomin veikindi, heilsubresti, skert ónæmiskerfi og jafnvel ofurkrabbamein, og fólk verður bráðkvatt, oft á besta aldri.

Og athugið, þetta er að gerast jafnvel löngu eftir að fólk fékk sér eina eða fleiri sprautur - rétt eins og hjá tilraunadýrunum.

0415f

2605

0415g
Er ekki kominn tími til að tengja?

En þar sem jafnvel langur tími er liðinn eftir sprauturnar, er fólk ekki að tengja nýja sjúkdóma og veikindi við hugsanlegan sprautuskaða, sem sést vel á því að fáir virðast hafa séð í gegnum lygarnar í Ölmu nýlega þegar hún sagði að 400 manns hefðu dáið í fyrra úr Covid.

Það er með ólíkindum hvað fáir virðast hafa sett spurningamerki við þetta, bara trúað þessu því það kom frá yfirvaldi - því það lýgur aldrei, er það nokkuð?

En hvernig ætti það að geta staðist að svona margir hafi látist úr Covid þrátt fyrir að hafa jafnvel fengið margfaldar "varnir" gegn því?

Og nýr sóttvarnalæknir, arftaki Þórólfs heiðursorðuhafa studdi við þessar lygar í viðtali stuttu síðar.

Met sem ekki er hægt að hreykja sér af

Við "státum af" Evrópumetum nokkra mánuði 2022 og janúar 2023 í umfram dauðsföllum, eins og sjá má á þessari mynd.

0416

Aldrei hefur tekist að búa til árangursrík "bóluefni" sem prófuð hafa verið á tilraunadýrum gegn kórónavírusum, ekki frekar en þessi sem eru þau allra skaðlegustu sem nokkurn tímann hafa verið búin til. Þetta eru mRNA líftæknilyf en ekki hefðbundin bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til.

Rangnefnið "bóluefni" var notað til að blekkja okkur, enda er þetta bara pólitík í læknisleik.

"Hvers vegna ég trúi ekki að það hafi nokkurn tíma verið Covid vírus"

Eins og ég segi alltaf, ég get ekki vitað mikið fyrir víst. Ég á ekki afrit af handritinu af þessu, mesta glæp sögunnar. En hvað sem Covid er í raun og veru þá trúi ég ekki að það sem kallað var inflúensa hafi horfið á þægilegan hátt snemma árs 2020. Það er önnur lygi. Það er það sem þeir gera. Það er allt sem þeir gera.

Dr. Michael Yeadon 22. mars 2023

Hugsanleg framtíð fyrir marga, sem verða núna að horfast í augu við það

Sumt fólk byrjaði að þjást af skelfilegum aukaverkunum og jafnvel lést strax eða fljótlega eftir sprauturnar, en allt var skipulega þaggað niður hér á landi, eins og ég hef margoft skrifað um áður.

Við munum því miður þurfa að horfa upp á áframhaldandi afleiðingarnar á heilsu og líf fólks næstu árin og áratugina, skyndileg og ótímabær dauðsföll, ófrjósemiandvana fæðingar og burðarmálsdauða, rétt eins og í hinum löndunum sem eru eins mikið sprautuð og íslenska þjóðin.

Krabbameinum mun fjölga um 52,1% hér á landi á næstu áratugum að sögn framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins. Aðaláhættuþátturinn á því að fá krabbamein er það að eldast segir hún, en við þetta má bæta að meinafræðingar eins og þessi hér er búinn að sjá skelfilega aukningu hraðvaxandi og oft ólæknanlegra krabbameina í kjölfar eitursprautanna.

Þetta er kannski enn ein yfirhylmingin á afleiðingum eitursprautanna, enda er ýmislegt gert að gera til að reyna að fela þær.

Að blekkja og/eða þvinga stóran hluta mannkynsins í þessar eitursprautur er stærsti glæpur sem framinn hefur verið gagnvart mannkyninu hingað til, enda var tilgangurinn með þeim að fækka okkur.

Að horfast í augu við staðreyndir, þótt erfiðar séu

Það er löngu kominn tími til þess að "bólusettir" Íslendingar fari að horfast í augu við þessar skelfilegu staðreyndir um eitursprauturnar, og að hugsanlega sé búið að skerða lífsgæði þeirra til frambúðar, hafi þeir ekki verið svo heppnir að lenda í saltvatns tilraunahópnum.

Þið voruð blekkt og heilaþvegin með stöðugum og vel skipulögðum óttaáróðri sem þið vonandi innst inni gerið ykkur grein fyrir í dag. Þið eruð saklaus fórnarlömb aðfarar viti firrtrar elítu gegn restinni af mannkyninu, sem hefur verið í undirbúningi áratugum saman.

Vonandi munu einhverjir finna sama hugrekki og Pascal Najadi sem hefur höfðað einkamál gegn Pfizer vegna óafturkræfs skaða sem hann hlaut af "bóluefninu" þeirra.

Allt sem ég hef sagt hér getið þið fundið sjálf á netinu, þó ekki á hinu ritskoðaða Google sem er þátttakandi í þessum hryllilegustu glæpum sem framdir hafa verið gegn mannkyninu.

Napur sannleikurinn er óðum að komast upp á yfirborðið, þökk sé heiðarlegu fólki um heim allan sem hefur jafnvel lagt líf sín og störf að veði til að færa okkur hann.

Tilgangur minn með þessum skrifum er alls ekki að reyna að hræða fólk, en það er löngu kominn tími til að Íslendingar fari að vakna eins og aðrar þjóðir, horfast í augu sannleikann og gera sér grein fyrir hvaða framtíð okkur er ætluð - án þess að við höfum nokkuð um það að segja.

Það er bara nú eða aldrei, svo einfalt er það.

Aldrei í fréttum í íslenskum ruslmiðlum:

 

 

 

 

 

 

#kristínþormar #kthormar #kristinthormar #blog # mbl #covid #greinar #bóluefni #tilraunaefni #mannréttindi #glæpur_gegn_mannkyni #stöðvum_Sáttmála_WHO #aukaverkanir #verndum #börnin #stoptheshots #StöðvumWHO #stöðvumsprauturnar

 

 

 


Stórfrétt! Einstaklingur höfðar einkamál gegn Pfizer vegna skaða sem hann hlaut af "bóluefninu" þeirra!

Sá stórkostlegi atburður hefur gerst að svissneskum fyrrverandi fjárfestingabankastjóra að nafni Pascal Najadi hefur tekist að höfða einkamál gegn svissneska forsetanum og Pfizer í Bandaríkjunum eftir að hafa orðið fyrir gríðarlegu heilsutjóni eftir "bólusetningarnar".

Hér má horfa á stutt viðtal sem hið sænska Swebbtv tók við hann á dögunum, eitthvað sem væri óhugsandi að myndi gerast í íslensku sjónvarpi.

Þar segir hann meðal annars að hann hefur látið færustu sérfræðinga gera blóðrannsóknir á sér sem ekki er enn lokið, en að fyrstu niðurstöður líti ekki vel út.

Þeir komust að þeirri niðurstöðu að frumurnar mínar séu skemmdar og í grundvallaratriðum sé frumuframleiðslan skemmd.

Með öðrum orðum, ég hef ekki næga framleiðslu á súrefni. Og súrefni er mikilvægt fyrir vélina til að ganga og hugsa. Og ég tapaði um 25 árum segja þeir af lífslíkum mínum.

Það er fyrsta staðfesta greiningin. Þetta er kallað sjálfsofnæmissjúkdómur vegna þess að hann ræðst stöðugt á ónæmiskerfið mitt allan sólarhringinn og ónæmiskerfið bregst við, en veit ekki af hverju það er að berjast. Svo það tekur orku allan daginn.

Þessi málsókn, sem væri óhugsandi og tilgangslaus í sumum löndum, gæti orðið tímamótamál til að afhjúpa blekkingarnar og svikin á bak við sprautuherferðina í heiminum og gæti valdið því að kóróna spilaborgin færi að hrynja, segir hér.

Með hugrekki sínu er hann að setja sjálfan sig og fjölskyldu í mikla hættu, því hann er ekki bara að fara gegn forseta Sviss, heldur líka bandaríska varnarmálaráðuneytinu og bandarískum stjórnvöldum.

Bandarískur dómari hefur því gefið út tímabundið nálgunarbann til að vernda fjölskyldu hans og lögfræðinga, og með því að gefa það út og afhenda sendiráðinu í Sviss, er bandaríska dómsmálaráðuneytið að gefa fyrirmæli um að svissnesk stjórnvöld verði að tryggja öryggi hans eða honum sé hótað á nokkurn hátt.

Breski forsætisráðherrann hefur fengið sömu leiðbeiningar, skyldi Najadi ferðast þangað, en hann hefur bæði svissneskan og breskan ríkisborgararétt.

Horfið á þetta!

Uppfært 28.03.23. Svona sjáið þið hvernig ritskoðunin er í heiminum í dag, YouTube er búið að taka vídeóið út, en hér er annað viðtal við hann á óritskoðaðri síðu.

Aðrar mikilvægar heimildir:

Á sama tíma á Íslandi

Hér á landi lýgur landlæknir því blákalt upp í opið geðið á þjóðinni að 400 manns hafi dáið úr Covid á síðasta ári, og arftaki Þórólfs bergmálar hana í drottningarviðtali á RÚV.

Og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins segir:

0314a

"Heilsugæslustöðvar bjóða nú upp á bólusetningu og örvunarskammta af bóluefni við Covid-19 án endurgjalds.

Fólk 60 ára og eldra og fólk með undirliggjandi sjúkdóma er hvatt til að þiggja örvunarskammt ef fjórir mánuðir eða meira eru liðnir frá síðustu bólusetningu. 

Aldur er einn stærsti áhættuþátturinn fyrir alvarlegum afleiðingum Covid-19 en örvunarbólusetning verndar fólk fyrir alvarlegum afleiðingum sjúkdómsins".

Hvar er gagnrýna hugsunin hjá Íslendingum?

Ég er ekkert viss um að þeir muni almennt gera sér grein fyrir mikilvægi þess að tekist hafi að höfða einkamál gegn svona bákni eins og Pfizer er, og hafa örugglega ekki heldur hugmynd um þá staðreynd að þetta er glæpafyrirtæki sem hefur þurft að greiða stærstu sekt sögunnar fyrir svik og ólöglega markaðssetningu ósamþykktra lyfja, eða 2.3 milljarða dollara.

Nei nei, allt of margir hlýða bara því sem þeim er sagt að gera, og yfir 16.500 Íslendingar eru búnir að fara í enn eitt bústið með Pfizer á þessu ári samkvæmt opinberum tölum.

Í boði íslenskra yfirvalda.

Hvers vegna voru þau - og eru enn svona viljug að sprauta okkur öll með genabreytandi mRNA líftæknilyfjum þrátt fyrir að þau séu þegar búin að stórskaða þúsundir Íslendinga, og örugglega drepa enn fleiri en við munum nokkurn tímann fá að vita?

Nennir enginn að pæla í því?

 

 

 

 

 

 

 

#kristínþormar #kthormar #kristinthormar #blog # mbl #covid #greinar #bóluefni #tilraunaefni #mannréttindi #glæpur_gegn_mannkyni #stöðvum_Sáttmála_WHO #aukaverkanir #verndum #börnin #stoptheshots #StöðvumWHO #stöðvumsprauturnar

 


Erum við óhult í háloftunum? Hversu heilbrigður er flugmaðurinn þinn, gæti hann fengið hjartastopp í miðju flugi?

Ég hef lengi velt því fyrir mér hvort ég ætti að skrifa um þetta viðfangsefni, því ég efa ekki að það muni vekja viðbrögð hjá fólki, og þá kannski sérstaklega þeim sem ferðast með flugvélum, og/eða eru flughræddir.

Flugáhafnir í Bandaríkjunum og fleiri löndum voru þvingaðar í þessar "bólusetningar" til að halda störfum sínum rétt eins og margar aðrar starfsstéttir.

Það eru því ekki bara "Jón og Gunna" sem hafa dáið skyndilega úr hjartaáföllum í heiminum undanfarin misseri, heldur líka flugmenn, og það jafnvel í miðju flugi eða rétt eftir lendingu.

Slíkar fréttir rata sjaldnast í meginstraumsfjölmiðlana, enda verulega óþægilegar hagsmunaaðilum, en hér má þó sjá nokkrar utan úr heimi um flugáhafnir sem fengu hjartaáföll, eða hreinlega dóu í fluginu.

Þarna segir kanadískur læknir sem skrifar þennan pistil líka að hann óttist að stórslys verði núna árið 2023 vegna skaða sem flugmenn hafi hlotið vegna "bóluefnanna".

Hann segist líka hafa verið í sambandi við flugmenn sem hafi gríðarlegar áhyggjur af öryggi flugferða í framtíðinni.

Sami læknir hefur fjallað um 132 kanadíska lækna sem eru látnir eftir að sprautuherferðin hófst, eins og lesa má hér.

Viðtal við flugstjóra sem fór í hjartastopp rétt eftir lendingu

Þarna er fyrrum flugstjórinn Bob Snow í viðtali hjá Tucker Carlson, en hann telur fullvíst að hjartastoppið sem hann fékk á síðasta ári örfáum mínútum eftir að hann hafði lent farþegaflugvél með 200 farþegum á Dallas-Forth Worth flugvellinum, hafi verið afleiðing "bólusetningarinnar".

Hefði hann enn verið á flugi er allsendis óvíst að hann hefði lifað þetta af.

Hann gagnrýnir Biden ríkisstjórnina og alríkisflugmálastjórnina (FAA) harðlega fyrir að hafa lögboðið þessi Covid "bóluefni" fyrir flugmenn á meðan þau voru enn á neyðarleyfi.

Þess má geta að enginn hefur haft samband við hann, hvorki vinnuveitandi hans né FAA virðast hafa nokkurn áhuga á því að rannsaka nákvæmlega hvað olli því að hann fór í hjartastopp inni í flugstjórnarklefanum.

Aðrir flugmenn sem hafa líka orðið fyrir bóluefnaskaða hafa haft samband við hann, og einn kollegi hans lést.

Heilsufar flugmanna

Dead PilotsEðli málsins samkvæmt þurfa flugmenn að vera við hestaheilsu, og gangast þeir undir ítarlegar læknisrannsóknir einu sinni til tvisvar (eftir aldri) á ári, þar með talið hjartalínurit.

Þau skrá rafvirkni hjartans til að gefa mælikvarða á heilbrigði þess, og ákveðnar breytur verða að vera uppfylltar til að flugmenn teljist hæfir til að fljúga.

En nú brá svo við að þann 22. október 2022 slakaði FAA hljóðlega á kröfunum um niðurstöður hjartalínurita sem eru nauðsynlegar til að flugmenn fá leyfi til að fljúga.

Nú þurfa niðurstöðurnar ekki að vera nákvæmari en svo að þær þurfa ekki lengur að gefa til kynna að flugmennirnir séu hugsanlega með hjartaskaða, sjúkdóma eða annað sem gæti stofnað farþegum í hættu ef þeir fá hjartaáföll eða veikist í miðju flugi.

Ætli EASA (Evrópureglugerðir) hafi gert sambærilegar breytingar á kröfum um hjartalínurit og FAA?

Lesa má meira um þessar breytingar FAA í Bandaríkjunum hér. Þær spurðust að sjálfsögðu út á endanum svo þeir urðu að viðurkenna að hjartalínurit (sumra) flugmanna væru ekki eðlileg.

Hér á Íslandi

Ég spurði fyrrverandi flugstjóra sem ég þekki út í stöðuna hér á Íslandi og þetta hafði hann að segja:

Þekki ekki tölur um “sprautaða” hjá ICE en veit að þó nokkrir eru ekki sprautaðir enda var ekki “bein” krafa - hins vegar var krafa bandarísku flugmálastjórnar bein eða óbein, ef menn ættu að fljúga til USA….
 
Ósprautaðir urðu að halda sig við Evrópuflug, skilst mér.

Sjáið hvað sprautuskaddaðir flugmenn, læknar og aðrir hafa að segja:

Uppfærsla 8. mars

Það er löngu kominn tími til að fólk fari að horfast í augu við staðreyndir og raunveruleikann. Þessi svokölluðu "bóluefni" hafa skaðað og/eða drepið milljónir, ef ekki tugmilljónir um allan heim, bæði flugmenn og aðra.

Það er líka kominn tími til að fólk beini reiði sinni að þeim sem að blekktu það í þessar eitursprautur - og eru meira að segja enn að því, sbr. nýi sóttvarnalæknirinn okkar, en ekki þeim sem eru búnir að reyna að segja því sannleikann í heil þrjú ár núna.

0131g

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Á að hætta að segja sannleikann til að hlífa viðkvæmum sálum sem vilja ekki sjá hann?

Þegar ég kveikti á tölvunni í morgun biðu mín áhugaverð skilaboð frá Facebook vini sem við skulum kalla Jón, sem urðu mér tilefni til þessara skrifa.

Hann er einn af "álhöttunum" eins og ég, flottur baráttumaður sem styður okkur hin 100% í okkar sameiginlegu baráttu, og er mjög duglegur sjálfur að setja inn fræðandi efni á Facebook síðu sína.

Hann sagðist hafa sent skeptískum (vel menntuðum) vini sínum bloggið mitt um drottningarviðtölin á RÚV, og sá hefði brugðist illa við og hreinlega fríkað út yfir þessari fullyrðingu minni:

Sannleikurinn um þessi "bóluefni" er að þau skaða og drepa, punktur. Enda var leikurinn til þess gerður. Verið er að fækka mannkyninu núna niður í "ásættanlegan fjölda", samkvæmt aðgerð viti firrtra auðkýfinga sem ætla sér að ná alræði yfir heimsbyggðinni.

Jón segist alveg geta skilið hans afstöðu, um að þessi fullyrðing fæli frá og dragi úr trúverðugleika okkar.

Ég skil vel að fyrir suma geti þetta verið sjokkerandi, en er ekki sammála því að þetta dragi úr trúverðugleika okkar.

Hvernig getur það að 0106esegja fólki sannleikann um eitursprauturnar og þessar aðgerðir gegn mannkyninu sem eru í gangi núna gert það?

Og ekki hvað síst um það að íslensk stjórnvöld, landlæknir, núverandi og fyrrverandi sóttvarnalæknar og fleiri séu séu fullir þátttakendur í þessum glæpum gegn okkur.

Fólki væri nær að gera sínar eigin rannsóknir ef það trúir ekki neinu af þessu, í stað þess að kalla okkur jafnvel vitleysinga og geðsjúklinga.

Og koma þá með sannanir fyrir því að þessar "samsæriskenningar" okkar séu bara samsæriskenningar.

Við Jón áttum fínar samræður í framhaldi af þessu, þar sem ég útskýrði afstöðu mína fyrir honum, og að þetta væri staðreynd en ekki fullyrðing, enda hef ég í ótal bloggum sett fram staðreyndir og sannanir máli mínu til stuðnings.

Svo spurði ég hann hvort vinurinn hefði lesið allt bloggið og smellt á hlekkina sem ég setti inn, en hann hélt að þarna hefði hann stoppað og ekki lesið lengra.

Einmitt, eins og mig grunaði svosem.

Ég sagði Jóni að ég væri fjúkandi reið yfir þessum "fréttaflutningi" og drottningarviðtölum á RÚV, sem eru einungis til þess að halda fólki áfram í þessum tilhæfulausa ótta, og að þess vegna hefði ég kannski verið aðeins beinskeyttari en venjulega.

Ég sagði líka við hann að þótt ég breytti þessari setningu þá myndi það ekki skipta neinu máli, því vinurinn vill ekki sjá sannleikann hvort eð er.

Nú hef ég ekki hugmynd um hvort þessi einstaklingur sé sprautaður eða ekki, en þykir það ekki ólíklegt miðað við viðbrögðin.

0107lEn ef svo er, er þá ekki tími kominn til þess að hann vakni upp við þá nöturlegu staðreynd að hann hafi verið stórkostlega blekktur eins og meiri hluti þjóðarinnar, og verði alveg brjálaður - og þá út í rétta aðila?

Jón sagði að fólk kaupi einfaldlega ekki rök okkar sem segi sannleikann, afgreiði okkur sem vitleysinga, og að við hefðum næg verkefni til að einbeita okkur að sem færu ekki svona þvert í mannskapinn og gæfi óþarfa höggstað á okkur.

Ég var ekki alveg sammála honum, mitt svar var að staðreyndir eyðileggi engan málstað, en lygar og falsfréttir geri það, og að meðvirkni með sofandi fólki hjálpi engum.

Og ég stend við það, það hjálpar engum að fara kringum hlutina, köllum skóflu bara skóflu.

Ég vil þó taka fram að þetta voru fínar samræður okkar á milli þar sem bara var skipst á skoðunum. Við vorum ekki endilega sammála um allt, en það er bara í góðu lagi.

RÚV í hnotskurn

0131f

 


Enn fær þetta lið óheftan aðgang í drottningarviðtöl á RÚV!

Í gær birtist frétt þar sem haft var eftir Ölmu Möller landlækni að 400 manneskjur hefðu látist úr veirunni ógurlegu árið 2022.

Ég skrifaði stuttan pistil þar sem ég sýndi fram á rakalausan lygavaðal hennar í þessu viðtali, þar sem hún fær algjörlega gagnrýnislaust að bera haugalygi á borð fyrir þjóðina.

Sannleikurinn um þessi "bóluefni" er að þau skaða og drepa, punktur. Enda var leikurinn til þess gerður. Verið er að fækka mannkyninu núna niður í "ásættanlegan fjölda", samkvæmt aðgerð viti firrtra auðkýfinga sem ætla sér að ná alræði yfir heimsbyggðinni.

Aðgerðin gengur alveg "ljómandi vel" núna með tilkomu eitursprautanna, og tugir, ef ekki hundruðir milljóna eru skaddaðir fyrir lífstíð eða hreinlega dauðir núna á heimsvísu, allt niður í kornabörn!

Í dag fær nýr sóttvarnalæknir, sem er nota bene greinilega vel skólaður af forvera sínum sitt drottningarviðtal á RÚV, sem segist vera "okkar allra", eins mikill brandari og það er nú.

Erfitt að segja hvort farið hafi verið of geyst í afléttingar, segir hún

Sóttvarnalæknir segir erfitt að segja til um hvort farið hafi verið of hratt í afléttingar á sóttvarnartakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra. Andlátum vegna covid fjölgaði mjög hratt eftir að sóttvarnarreglur voru afnumdar.

Allt afléttingunum að kenna!

Miklar tilslakanir voru gerðar á sóttvarnartakmörkunum í lok janúar í fyrra, og mánuði síðar, 25. febrúar, var öllum sóttvarnaraðgerðum aflétt. Um leið fjölgaði smitum gríðarlega, fór úr um það bil þúsund á dag í janúar yfir í allt að fimm þúsund á dag í febrúar. Samhliða því fjölgaði dauðsföllum vegna covid hratt.

Einmitt ...

Mikill meirihluti Íslendinga er bólusettur við covid. Guðrún segir ekkert benda til þess að bólusetningarnar hafi stuðlað að dauðsföllum. „Það eru engar vísbendingar um það,“ segir Guðrún. Þvert á móti veiti bólusetningar vörn gegn veirusýkingum. „Þessi andlát árið 2022 voru klárlega tengd þessum bylgjum covid-smita þannig að það eru engar vísbendingar um að bólusetningar hafi neitt með það að gera,“ segir Guðrún.

Lesa má restina af þessum glæpsamlegu lygum hér.

Aðspurð segir hún að ekki liggi enn fyrir hversu margir þeirra sem létust hafi verið "bólusettir".

Því spyr ég, hvernig er þá hægt að fullyrða að þessar 400 manneskjur hafi dáið úr Covid, án krufninga?

Líflegar umræður spunnust á Facebook veggnum mínum þegar ég póstaði þar bloggi gærdagsins, og ég tók mér það bessaleyfi að taka þessa skjámynd af nokkrum athugasemdum þar undir.

0303a

Við álhattaberandi samsæriskenningasmiðirnir sem létum ekki sprauta okkur höfum flest, ef ekki öll sömu sögu að segja um ættingja og vini sem létu blekkjast í eitursprauturnar.

Við vitum um og/eða þekkjum öll:

  • Fólk sem hefur skyndilega og án nokkurs fyrirvara orðið bráðkvatt, oft kornungt fólk.
  • Fólk í bata af krabbameini sem var allt í einu komið með bullandi krabbamein aftur, og núna ólæknandi.
  • Fólk sem fékk sjaldgæf krabbamein og dó.
  • Konur sem glíma núna við brjóstakrabbamein.
  • Konur sem hafa misst fóstur, fætt andvana börn, eða eru orðnar ófrjóar.
  • Fólk sem var áður hraust og heilbrigt en grípur núna allar pestir og er alltaf veikt.

Ég er búin að blogga um þessa glæpi í tæp tvö ár núna, hér eru örfá dæmi:

Afsakið, en það bara sýður á mér þessa dagana, það er óboðlegt að RÚV sem við erum öll neydd til að halda uppi með skattpeningunum okkar, birti endalaust bara eina hlið mála, og ekki bara það, heldur fordæmalausar lygar.

Og ég er líka alveg við það að missa trú á Íslendingum, sem virðast upp til hópa hafa lokað fyrir öll skilningarvit.

Það mun líklega fara ljómandi vel um þá í 15 mínútna borgunum.

 


Eru þetta góð meðmæli með "bóluefnunum"?

Alma Möller landlæknir, sem hefur ekki sést lengi er núna skriðin upp úr holunni sinni með nýjustu tölurnar um andlát sem hún segir vera vegna veirunnar ógurlegu.

Hvernig getur hún sannað þetta, voru þessir 400 einstaklingar krufnir?

Fyrst voru tölurnar c.a. 200, en nú allt í einu 400. Gleymum því ekki að hún sat lengi á 2.000 tilkynningum um aukaverkanir árið 2021!

Gleymum því ekki heldur að hún forðaði aldraðri tengdamóður sinni frá sprautunum í ársbyrjun 2021, og þegar það spurðist út voru starfsmenn hjúkrunarheimilisins teknir í þriðju gráðu yfirheyrslur og að lokum var saklausum hjúkrunarfræðingi sagt upp störfum þar.

Uppfærsla - ég var að fá ábendingu um frétt af þessu máli frá 2021: Alma sögð hafa bannað bólusetningu náins aðstandanda - Leki kærður til Persónuverndar og lögreglu. Einnig að eiginmaður Ölmu sé hjartalæknir, er það skýringin á því að hann forðaði henni frá sprautunni?

Hvað finnst ykkur, eru þessar niðurstöður hennar góð meðmæli með "bóluefnunum" sem stærstur hluti þjóðarinnar hefur verið sprautaður með - sumir nokkrum sinnum?
 
Áttu "bóluefnin" (sem eru ekki bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til) ekki að bjarga okkur út úr "heimsfaraldrinum"?
 
Vonandi fer fólk að sjá í gegnum þennan rakalausa lygaþvætting, eitursprauturnar skaða og drepa, en bjarga fáum eða engum lífum, eins og sjá má örfáar sannanir um hér:
Afsakið, en ég get bara ekki setið á mér þegar ég sé svona rakalausar lygar, og ég er búin að skrifa ótal blogg undanfarin tvö ár sem sanna mál mitt.
 
Farið að hugsa út í það hvers vegna nákvæmlega sama handriti og hræðsluáróðri var beitt í öllum löndunum sem gengu hvað harðast fram í að blekkja fólk í þessar sprautur.
 
Sömu löndum og ætla að samþykkja alræðisvald glæpastofnunarinnar WHO yfir heilbrigðismálum heimsins.
 
0302
 
 
 
 
0302a
 
Fíllinn í stofunni
 
0205d
 
Hvenær ætlar þjóðin að vakna - og segja nei við fleiri sprautum?
 
 

mbl.is Líklegt að 400 hafi látist vegna Covid-19 í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eru 15 mínútna borgir? Lausn á "loftslagsvánni" eða meiri fjötrar?

Flestir Íslendingar hafa örugglega lítið eða ekkert heyrt um 15 mínútna borgir, þó fann ég nokkrar innlendar greinar sem ég set inn hér neðar.

Það er sammerkt með þessum plönum og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, að þau líta afskaplega vel út á yfirborðinu eins og þau eru kynnt fyrir okkur, svo vel að flestir falla fyrir orðskrúðinu og loforðunum sem aldrei stendur til að efna - heldur þvert á móti.

Raunverulega markmiðið er að hneppa okkur í fjötra fyrir lífstíð.

Kynningin á vídeóinu hér fyrir neðan er svona:

Við getum gert borgarlífið aðgengilegra, sjálfbærara og skemmtilegra með því að búa til "15 mínútna borgir". Að tryggja að íbúar geti mætt öllum þörfum sínum í stuttri göngu- eða hjólaferð mun flýta fyrir grænum og réttlátum bata.

Þetta er afskaplega aðlaðandi hugmynd, ekki satt?

En það "gleymdist" að nefna hvað raunverulega býr að baki þarna.

Alltaf sömu þrjótarnir að verki

Því þetta er eins og allt annað sem kemur frá ókjörnum illmennum, meðal annars í The World Economic Forum (WEF).

Þeirra markmið eru hvorki meira né minna en alheimsyfirráð, og þau eru ekki einu sinni að reyna að leyna því, svo viss eru þau um ágæti sitt og yfirburði yfir okkur þessum óþörfu súrefnisþjófum.

Global Governance

Global Governance

Þeir mega þó "eiga það" að áætlun þeirra um fækkun mannkynsins hefur gengið "ljómandi vel" með tilkomu Covid eitursprautanna.

"Kostir" 15 mínútna borga

Í vídeóinu hér fyrir neðan er farið yfir "kosti" 15 mínútna borga, og sá sem leiðir fundinn er hugmyndasmiður svona borga, Carlo Ratti, sem er "Agenda Contributor" hjá WEF rétt eins og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands!

Hinir þátttakendurnir í þessu spjalli eru það einnig, og þar að auki er Mike Haigh orðinn formaður innviðaráðs WEF.

Semsagt, ákaflega trúverðugt WEF fólk sem ber einungis hagsmuni mannkynsins fyrir brjósti sér ...

15 mínútna borgir eru lykilhugtak í Agenda 2030 - sem því miður allt of fáir hafa nennt að kynna sér, og hluti af þessu eru hin skelfilegu Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Enn eitt loftslagsapparatið, C40 sem samanstendur af alþjóðlegu neti borgarstjóra gekk nýlega til samstarfs við Sameinuðu þjóðirnar og fleiri um að:

Grípa til brýnna aðgerða til að takast á við loftslagsvandann og skapa framtíð þar sem allir geta dafnað.

Og enn meiri glóbalistafroða:

Um allan heim grípa borgarstjórar C40 og borgirnar sem þeir leiða til metnaðarfullrar samvinnu og brýnna loftslagsaðgerða sem eru í takt við markmið sem studd eru af vísindum. Þeir vinna saman þvert á landamæri til að vernda fólk og samfélög alls staðar og byggja upp sjálfbærari, þrautseigari og sanngjarnari framtíð.

Ekkert af þessu liði hefur verið lýðræðislega kjörið til að taka neinar ákvarðanir fyrir okkar hönd, né hefur það spurt okkur álits. Enda hlýðum við öllu athugsemdalaust, heilaþvegin og hálflömuð af sífelldum óttaáróðri.

Ef ekki vegna "heimsfaraldursins", þá vegna "loftslagshamfaranna" núna.

Það er svo grátlega auðvelt að blekkja fólk

Loftslagsbreytingar og umhverfið eru hugtök sem verið er að nota til að réttlæta meiri fjötra og skatta sem á að setja á okkur, og svo á að neyða okkur til að éta pöddur í ofanálag.

Við vorum svo fús til að fylgja öllum tilmælum og tilskipunum í nýliðnum "heimsfaraldri" að við erum orðin vön því að frelsi okkar og mannréttindi séu skert eða jafnvel tekin af okkur.

Enda bara gert til að "vernda okkur".

Oxford

Oxford í Bretlandi er ein þeirra borga þar sem verið er verið að innleiða þetta nýja kerfi, og þar á að skipta borginni í sex 15 mínútna hverfi.

Á yfirborðinu gætu þessi 15 mínútna hverfi hljómað afskaplega notaleg og þægileg, en ekki er allt sem sýnist. Þú átt að gera allt innan þessa ramma (fangelsis), og fara þinna ferða gangandi eða á hjóli.

15-minute-city

Borgarstjórnin ætlar að draga úr bílanotkun og umferðaröngþveiti með því að setja strangar reglur um bílaferðir. Samkvæmt nýju tillögunum gæti íbúi fengið 70 punda sekt, ef hann eða hún keyrir út fyrir úthlutað 15 mínútna hverfi sitt meira en 100 daga á ári.

Það þýðir að ekki má sækja vinnu, viðburði né heimsækja ættingja eða vini í öðrum hverfum á bíl nema 100 daga á ári án þess að vera refsað.

Hvað segja aðrir?

1. Loftslagslokanir framundan? Ferðir þínar í hverfinu þínu verða raktar, og þú verður hamingjusamur með það. (Væntanlega tilvísun í WEF, árið 2030 muntu ekkert eiga, og vera hamingjusamur)

Ímyndaðu þér ef valdabrjáluðu stjórnmálamönnunum þínum líkaði svona vel við Covid lokanirnar, að þeir vilji halda þeim áfram endalaust. Þetta verður prófað í Oxfordshire í Bretlandi.

sagði í Oxfordshire Council to Trial a Climate Lockdown Starting 2024.

Greinin fjallar um áætlanir Oxfordshire County Council um að prófa loftslagslokanir árið 2024 með því að nota 15 mínútna borga hugmyndina sem er nátengd sjálfbærni og loftslagsmarkmiðum.

2. Og hér segir:

15 mínútna borgir: Stjórnvöld eru að reyna að fjarlægja frelsi okkar, ná stjórn á lífi okkar og smala okkur inn í rými sem þau stjórna algjörlega.

3. Ríkisstjórnir eru að fara að kynna loftslagslokanir dulbúnar sem "15 mínútna borgir" samkvæmt Agenda 2030 tilskipun SÞ og Great Reset áætlun WEF, segir í þessari grein.

4. Hafið í huga að WEF stefnir að alheimsyfirráðum þegar þið horfið á þessa "vinalegu" kynningu hjá þeim: Paris becomes WEF 15-minute city

5. Fantagóð umfjöllun eftir Bjorn Andreas Bull-Hansen um það sem koma skal: Permanent climate lockdowns: The "15 Minute Cities" are coming

6. Frábær umfjöllun Gústafs Skúlasonar: Jarðarbúar eiga að búa í 15 mínútna borgum "til að bjarga jörðinni"

7. Viðbót 28. febrúar: The WEF’s Plan For The Future: 15 Minute Cities!!

Hvað kemur þetta okkur við?

Það á ekkert að búa til svona 15 mínútna hverfi hér á Íslandi! Svarið er að þetta kemur okkur öllum við, enda er smám saman verið að reisa svona  hverfi/borgir hér á landi með mjög þéttum íbúðakjörnum sem falla algjörlega undir þessa skilgreiningu.

Reykjavík - Hlustað á íbúa og hagaðila

Í gegnum hverfisskipulag, endurnýjun hverfiskjarna og fjárfestingu í innviðum verði hverfi borgarinnar gönguvænni og aðgengi að grænum svæðum, útivist og þjónustu tryggt í 15 mínútna göngu- eða hjólafæri.

 Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Hug­mynd­ir um hin svo­kölluðu 15 mín­útna hverfi hafa rutt sér til rúms víða í er­lend­um borg­um. Inn­an 15 mín­útna hverfa má nálg­ast helstu versl­un og þjón­ustu í inn­an við kort­ers göngu­fjar­lægð.

Hér er önnur grein eftir borgarfulltrúann um sama efni.

Leiðbeiningar um 15 mínútna borg, sem skilar ávinningi fyrir alla

C40, samtök um sjálfbærar borgir hafa sett af stað leiðbeiningar um 15 mínútna borgina. Þetta notar staðbundnar inngrip og einnig er hægt að styðja það með aðgangsreglugerðum (UVAR) til að hafa ávinning fyrir alla. Engum finnst gaman að þurfa að ferðast í klukkutíma um borgina fyrir margar þarfir sínar.

Ætlar fólk ekkert að fara að kveikja á perunni hér á Íslandi?

Þétting byggðar, þrenging gatna, fækkun bílastæða, og öll þessi "grænu" plön og Borgarlínan eru partur af þessu glóbalistaplani um 15 mínútna hverfi, og að lokum alheimsyfirráðum yfir okkur þar sem við munum engu ráða um eigin líf.

Glóbalistararnir sem eru hér við völd eru að framfylgja nákvæmlega sömu fyrirmælum og aðrar þjóðir, hvort sem um er að ræða "heimsfaraldurinn" eða þessar "sjálfbærni"blekkingar Sameinuðu þjóðanna.

Heldur fólk virkilega að milljarðamæringum sem fljúga heimshornanna á milli í einkaþotunum sínum, éta sínar fínu steikur en vilja að við étum pöddur, sé eitthvað umhugað um ykkar líf og velferð?

Hugsið aðeins út í það!

Það er skelfileg illska í gangi í heiminum í dag, og framtíðin er ekki björt fyrir afkomendur okkar ef við bara leyfum þessu að gerast.

Ef þið haldið að þetta séu samsæriskenningar, farið þá endilega að leita að sönnunum um það.

Það sorglega er að þið munuð hvergi finna þær.

 

 


Er enn einn "heimsfaraldurinn" í uppsiglingu núna?

0211Allir ættu núna að vera búnir að kynna sér Alþjóðaheilbrigðisglæpaapparatið (WHO) núna, og áætlanir þeirra sem þar eru við stjórn um yfirtöku á heilbrigðismálum heimsins.

Það myndi meðal annars þýða að hvenær sem þeim dytti í hug gætu þeir lýst yfir einhverju "neyðarástandi", skellt heiminum aftur og aftur í lás, og neytt okkur í einhverjar álíka sprautur og þær sem núna er búið að sprauta milljarða manna, kvenna og barna með, með skelfilegum afleiðingum og/eða dauða fyrir milljónir.

Þeir eru búnir að boða röð smitfaraldra næstu 10 árin (<- Lesið þetta!), en mistókst apabólufárið herfilega sem betur fer, svo nú hafa þeir snúið sér að fiðurfénaði.

En ætlar fólk virkilega að falla fyrir þessum lygum þeirra eina ferðina enn? Það er stóra spurningin.

Nú birtist þessi stórglæpamaður aftur á skjánum, alvarlegur á svip að vanda til að kynda undir hræðslu við einhverja fuglaflensu, og er að sjálfsögðu að vinna að því að næg bóluefni og lyf verði til staðar ef þetta verði að "heimsfaraldri".

Nema hvað!

Þetta allt saman óttalega fyrirsjáanlegt ...

Þetta sagði hann meðal annars:

Undanfarnar vikur hafa borist nokkrar tilkynningar um spendýr, þar á meðal minka, otra, refi og sæljón, sem hafa verið sýkt af H5N1 fuglaflensu, og í október 2022 hafi fuglaflensuveiran (H5N1) greinst í minkabúi í Galisíuhéraði á Spáni:

Nánari erfðagreining á H5N1 veirunni leiddi í ljós að hún tilheyrði núverandi stofni sem dreifðist í villtum fuglum og alifuglum í mörgum heimsálfum og er einna helst skyld stofni sem finnst í sjófuglum víðsvegar um Evrópu.

Vísindamennirnir komust að því að H5N1 vírusinn hefur sjaldgæfa stökkbreytingu sem hefur aðeins sést einu sinni áður í evrópsku dýri (polecat) og gæti hafa komið upp af sjálfu sér í dýrinu.

Einnig segir hér að fjórar manneskjur hafi greinst með H5N1 í fyrra og að ein þeirra hafi látist. Semsagt, yfirvofandi "heimsfaraldur".

Í Wales í Bretlandi fylgja þeir handriti WHO og eru byrjaðir að gala sama sönginn, og biðja fólk ef það finnur dauða fugla að tilkynna það inn.

Bandaríkjamenn fylgja líka handritinu og eru nú búnir að lýsa fuglaflensu sem mögulegri "faraldursógn".

Sjá alla frásögnina hér

Þessi vika táknar sjaldgæfan sigur fyrir fullveldi Ástralíu

WHO hefur - í bili fallið frá fyrirhuguðum breytingum á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni um skyldubólusetningar og lokanir (lockdowns). Þetta er vissulega sigur en heimsfaraldurssáttmálinn (Pandemic treaty), lúrir samt enn í skugganum og bíður nýs færis.

0211a

Sigur fyrir skynsemi, velsæmi og mannúð

Og sigur gegn hinu víðfeðma skrímsli ókjörinna og óábyrgra erlendra embættismanna hjá WHO.

Þú manst að WHO lagði til að breyta heilbrigðisreglugerðum sínum sem leiðbeina aðildarríkjum ef upp kæmu sjúkdómsfaraldur eins og COVID, úr því að leiðbeina aðildarríkjum í að vera skylda fyrir aðildarríki, þar á meðal Ástralíu.

Þetta og fleira segir ástralskur þingmaður í mögnuðu vídeói, sem hlýtur að vekja manni von í brjósti, en á sama tíma hugsa til þess hversu íslenskir ráðamenn eru spilltir og fúsir að fórna þjóð sinni með þögn sinni.

En fyrir hvað, peninga, völd og/eða feitar stöður úti í heimi?

Alheimsátak um að taka strax til aðgerða

Þrátt fyrir þessar jákvæðu fréttir frá Ástralíu, er samt tími kominn til að taka STRAX til aðgerða og dreifa boðskapnum um heiminn varðandi komandi fundi sem WHO hefur skipulagt. Þessi illmenni munu láta einskis ófreistað til að ná fram plönum sínum.

  • Áframhaldandi samningaviðræður um fyrirhugaðar breytingar á alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðinni (IHR) eru nú áætlaðar frá 20. febrúar 2023 til 24. febrúar 2023.
  • Samningaviðræður varðandi fyrirhugaðan heimsfaraldurssáttmála eru nú fyrirhugaðar frá 27. febrúar 2023 til 3. mars 2023.
  • Engar ákvarðanir hafa verið teknar.
  • Engir sigrar hafa verið unnir.
  • Nú er ekki tíminn til að draga neinar ályktanir.
  • Nú er tíminn til að grípa til róttækra aðgerða, og það strax.

Einn ötulasti baráttumaður gegn þessum "heimsfaraldurssáttmála" er James Roguski.

Kynnið ykkur allar sannanirnar fyrir því hvað liggur að baki þessum skelfilega sáttmála.

Þegar þið hafið upplýst ykkur um fyrirhugaðar breytingar á alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðinni og fyrirhuguðum "heimsfaraldurssáttmála", er það mikilvægasta sem þið getið gert að dreifa orðinu og hjálpa til við að vekja athygli allra á þessari ógn!

Hugsið um börnin ykkur og barnabörn og hvaða framtíð bíður þeirra ef þið haldið bara áfram að þegja og sofa. Sú framtíð er ekki björt.

Kynnið ykkur líka hvað raunverulega býr að baki Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

WHO, SÞ, WEF, Bill Gates og fleiri eru sami grauturinn í sömu skál. Plönin þeirra eru að fækka mannkyninu - sem þeir eru að gera núna með "góðum árangri" með eitursprautunum, svipta þá sem eftir lifa öllu og hneppa þá í stafræn fangelsi.

Þið getið fundið nægar sannanir fyrir þessu ef þið nennið að kynna ykkur þessi áform sem búið er að gera um mannkynið að því forspurðu.

Lykilorðið hér er að nenna.

0211b


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband