Færsluflokkur: Bloggar
Í frétt sem birtist á RÚV.is 19. október segir að nýju afbrigðin gætu verið meira smitandi en hin fyrri, og að tíu manns hafi þegar greinst með þau hér á landi. Nýr sóttvarnalæknir segir líkur á nýrri bylgju, en að þó sé ekki ástæða til að óttast.
Hún hvetur fólk til að fara í örvunarbólusetningu og huga að sóttvörnum. Þessar persónulegu sóttvarnir skipta enn þá máli.
- Ömurlegt að sjá að enn sé verið að hvetja börn og barnshafandi konur í "bólusetningarnar"
- Hundruðir lækna lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna "bóluefnanna"
- Sannleikurinn um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" er sífellt að koma betur og betur upp á yfirborðið
Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu um lyf fyrir menn (CHMP) hefur ákveðið að mæla með notkun COVID-19 bóluefnisisns Comirnaty fyrir börn frá sex mánaða aldri til fjögurra ára, og COVID-19 bóluefnisins Spikevax fyrir börn frá sex mánaða aldri til fimm ára. Áður var notkun Comirnaty leyfð fyrir fullorðna og börn frá fimm ára aldri og Spikevax fyrir fullorðna og börn frá sex ára aldri.
Bæði Comirnaty og Spikevax hafa gefið góða raun við að draga úr alvarlegum veikindum, spítalainnlögnum og dauðsföllum vegna COVID-19 og verða áfram notuð í faraldrinum, sérstaklega sem grunnbólusetningar.
Ákall til foreldra!Bloggar | Breytt 21.10.2022 kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2022 | 22:13
VIÐ eigum vísindin, og okkur finnst að heimurinn þurfi að vita það!
Á fundi Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF) í september 2022 var meðal annars fjallað um stjórnun á upplýsingaóreiðu, og þar tilkynnti Melissa Fleming sem er aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ) fyrir alþjóðleg samskipti, að þær (SÞ) "eigi vísindin".
Þarna var hún sérstaklega að vísa til nýrra áætlana þeirra um aðgerðir í loftslagsmálum. Hún minntist á samstarf SÞ við tæknirisana eins og TikTok og Google sem eiga sinn þátt í að stjórna bæði umræðunni og upplýsingum um loftslagsbreytingarnar.
Þessi fundur um stjórnun á "upplýsingaóreiðu" var haldinn vegna mats þeirra á að "falsfréttir" um alvarleg mál eins og loftslagsbreytingar og "heimsfaraldurinn" væru orðnar nánast stjórnlausar.
Hún sagði einnig að þau hafi hafið samstarf við Google eftir að hafa gúgglað loftslagsbreytingar (climate change), og orðið sjokkeruð á að sjá ótrúlega "brenglaðar niðurstöður" efst í leitinni.
Semsagt, SÞ gekk til samstarfs við Google um að auka ritskoðunina, sem ærin er þó fyrir!
Og þetta sagði hún rétt áður en hún sagði að SÞ ættu vísindin.
En hver ákveður hvað eru falsfréttir og hvað ekki?
Svarið er: Þeir sem vilja halda einum ("leyfilegum") málstað að fólki og útiloka önnur sjónarmið, skoðanir, jafnvel aðrar rannsóknir, og í krafti fjármagns síns og valda geta keypt lækna og vísindamenn, háskóla, fjölmiðla, samfélagsmiðla og leitarvélar.
Má til dæmis nefna Bill Gates, lyfjarisana, og nú Sameinuðu þjóðirnar.
Hver kannast ekki til dæmis við þessa meldingu "staðreyndapostulanna" (Fact Checkers) á Facebook þegar "bóluefnin" eru til umfjöllunar?
Hvað eru vísindi?
Eru þau eitthvað sem einn einstaklingur eða hópur einstaklinga (sem mögulega eru hlutdrægir) ákveða að séu það eina rétta?
Svarið er nei, heldur eru vísindi:
Science is a systematic and logical approach to discovering how things in the universe work. It is also the body of knowledge accumulated through the discoveries about all the things in the universe.
Sience and the scientific method
Science is ongoing. Science is continually refining and expanding our knowledge of the universe, and as it does, it leads to new questions for future investigation. Science will never be finished.
Vísindi er vitneskja og það að vita. Vísindalegrar þekkingar afla menn með rannsóknum, það er með kerfisbundinni leit að þekkingu.
Science will never be finished.
Í ljósi þessara skilgreininga á vísindum, hvers vegna eru réttmætar athugasemdir um einhver "ný vísindi" hvergi leyfðar í dag, og þeim sem þær gera jafnvel reknir úr störfum sínu, hæddir og smánaðir og úthýst af öllum miðlum og leitarvélum?
Dæmin um það eru ótal mörg síðan "heimsfaraldurinn" skall á, enginn mátti koma með efasemdir um hann, og hvað þá um "bóluefnin", sem átti að sprauta allt mannkynið með.
Engar spurningar eða efasemdir voru leyfðar, og umfjöllun í nánast öllum (keyptum?) fjölmiðlum var algjörlega einhliða, líka hér á Íslandi.
Og ekkert hefur breyst, nú eigum við að trúa "loftslagsvísindum" með upplýsingum sem við fáum úr fyrirfram matreiddum leitarvélum og fleiri miðlum um að heimurinn sé nánast að farast, og það er gert með þrautreyndum aðferðum sem ég minntist á í þessu bloggi.
Það hefur alltaf verið einhver hræðsluáróður í gangi gagnvart mannkyninu, einungis til þess að hafa stjórn á því, og það má best sjá núna á því sem gengið hefur á undanfarin ár.
Við vorum hrædd upp úr skónum við einhverja utanaðkomandi "ógn", og gáfum fúslega frá okkur sjálfsögð mannréttindi okkar hvað eftir annað, vegna þess að verið var bara að "vernda okkur".
Viljið þið endurtaka leikinn eina ferðina enn eða segja stopp, hingað og ekki lengra?
Hvernig ætlið þið að bregðast við þegar næstu faraldrar sem WHO er búið að boða næstu 10 ár verða kynntir til sögunnar?
Leyfa enn og aftur að öllu sé skellt í lás og láta sprauta ykkur með einhverjum "bóluefnum"?
"Bóluefnum" sem framleiðendurnir vissu fyrirfram að myndu gera lítið annað en valda skelfilegum skaða og dauða - en færa þeim óheyrilegan auð?
Ykkar er valið! Haldið áfram að trúa og treysta RÚV og Google, eða farið að kynna ykkur annars staðar hvað raunverulega er að eiga sér stað í heiminum í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.9.2022 | 19:23
Mun pödduát bjarga okkur út úr loftslagsvánni?
Nú virðist "heimsfaraldurinn" vera að renna skeið sitt á enda, en þá beinist áherslan meira að loftslagsvánni ógurlegu - sem ekki allir eru þó endilega sammála um að sé yfir höfuð til staðar.
Okkur er sagt að heimurinn sé nánast að renna út á tíma við að snúa þróuninni við.
Reyndar er það búið að vera reglulega í fréttunum í einhverja áratugi að við höfum bara einhvern X tíma til að bjarga jörðinni - en áfram skröltir hún þó enn blessunin.
Alls konar forríkir "sérfræðingar" fljúga á milli loftslagsráðstefna í einkaþotunum sínum, og undanfarin ár hefur sænsk unglingsstelpa slegist í hópinn til að mótmæla þessari skelfingu, og sannfæra okkur að við öll berum ábyrgð á því að heimurinn sé nánast að farast núna.
Nú eigum við að hætta að borða kjöt til að "bjarga heiminum"
Við étum víst allt of mikið af kjöti, og þessar síprumpandi beljur eru að gera út af við loftslagið að sögn.
Enda er verið að þvinga bændur í þúsundavís til að leggja niður búin sín og fella dýrin, í þágu loftslagsmálanna, eins og í Hollandi og víðar, og hollensk stjórnvöld vinna náið með The World Economic Forum (WEF) að "endurræsingu heimsins" alls.
Svo nú eru þeir komnir með skothelt ráð gegn loftslagsvandanum, við eigum að fara að éta pöddur í staðinn fyrir kjöt.
Hér fjalla þeir um 5 "rök" fyrir því að það að borða skordýr geti dregið úr loftslagsbreytingum.
Klaus Schwab stofnandi WEF og félagar hans í Davos klíkunni eru búnir að ákveða þetta fyrir okkar hönd (reyndar að okkur forspurðum), fyrir utan allt hitt sem þeir hafa planað fyrir okkur mannkynið - einnig að okkur forspurðum.
Og eru því miður á nokkuð góðri leið með að ná að framkvæma áætlanir sínar, enda hafa þær verið lengi í undirbúningi.
"Umhverfisvænir" ástralskir grunnskólar
Yfir 1.000 skólar í Ástralíu eru farnir að gefa börnunum "umhverfisvænar" flögur sem eru framleiddar úr "ætum pöddum", sjá hér, hér og hér.
A teacher from one of the 1,000 Australian schools feeding kids chips made out of powdered crickets asks, Do crickets taste good? The student nods and the teacher adds, Yeah. Lets eat some more crickets !
Innræting eða heilaþvottur - nema hvort tveggja sé?
Breskur grunnskóli býður upp á pöddupizzu
Foreldrar nemendanna fengu nýlega sent bréf þar sem þeir voru beðnir um að samþykkja að börnunum yrði gefnar pöddupizzur að borða, en í einhverjum hönnunaráfanga eiga börnin að stúdera próteinrík matvæli.
Þar á að hanna næringarríkan og próteinríkan pizzu-líkan mat sem gæti hjálpað einhverjum að halda lífi ef þau byggju í frumskóginum.
Enda flytjast mjög mörg þeirra í frumskóginn....
Girnileg pizza, ekki satt?
Breska vefsíðan HugoTalks.com er yfirleitt vel með puttann á púlsinum og birtir reglulega vídeó um það sem er að gerast í heiminum í dag, og er sjaldan eða aldrei fjallað um í meginstraumsfjölmiðlunum.
Þar fjallaði Hugo nýlega um þessar pöddupizzur fyrir börnin, og birti líka vídeó 31. maí - Scientists plan to feed insects to primary schools um þetta pödduát sem á að innræta börnunum þessa hugmynd, svo þau geti haldið innrætingunni áfram til foreldra sinna.
Úrvalið af pöddumat eykst
Markaðir í Evrópu bjóða núna upp á pödduborgara, en ætli þeir séu líklegir til að rjúka út úr hillunum?
Einnig er svo lítið ber á farið að lauma "skordýrahveiti" og öðru innihaldi sem búið er til úr skordýrum í vörur sem eru merktar sem "sjálfbærar" og "næringarríkar".
Ekki eru allir sammála Klaus Schwab og félögum í WEF um að pödduát sé hollt fyrir fólk, og einhverjir vilja meina að það sé stórhættulegt vegna efnis í pöddunum sem aðeins fuglar geta melt.
Það væri kannski ekki vitlaust að fara að lesa betur innihaldslýsingarnar á þeim matvælum sem maður ætlar að kaupa.
Djúpsteiktar tarantúlur með mjölormastöppu í matinn?
Stórstjörnur hafa erlendis verið fengnar til að kynna hugmyndina um pödduát fyrir fólki, og gera það að aðlaðandi tilhugsun.
Á myndinni hérna til vinstri má sjá Angelinu Jolie gæða sér á tarantúlu, og hér má sjá leikkonuna heimsfrægu Nicole Kidman kjamsa á gómsætum pöddum.
Fleiri vídeó má finna á netinu ef fólk hefur áhuga.
En hvernig er best að sannfæra fólk um að láta ótrúlegustu hluti yfir sig ganga?
Problem - reaction - solution taktíkin
Kynnt er til sögunnar einhver yfirvofandi ógn og svo dynja fréttirnar á okkur nánast allan sólarhringinn um hættuna af henni. Við verðum alveg skelfingu lostin og þessar sífelldu fréttir gera ekkert annað en að næra óttann okkar.
En svo er lausn í sjónmáli og allir bíða spenntir eftir henni, enda fáum við endalaust að heyra að hún lofi mjög góðu og með henni verði loksins hægt að binda endi á þessa skelfilegu vá.
Og ca 90% þjóðarinnar hoppaði á vagninn þegar lausnin kom (sprauturnar), og margir þessa dagana eru að fá sér þá fjórðu.
Þetta er þrautreynd taktík sem reynst hefur vel á mannskepnuna í gegn um tíðina, að ná stjórn á henni með stöðugum hræðsluáróðri.
I believe the human population has always been vulnerable to people who predict doom with false stories
*Patrick Moore
En vonandi er fólk loksins farið að sjá í gegnum allan hræðsluáróðurinn, lygarnar og ritskoðunina sem er búið er að beita gegn okkur til að fá okkur til að hlýða, og staldri aðeins við og kynni sér hin djöfullegu plön sem búið er að gera um framtíð mannkynsins.
Látum ekki blekkja okkur eina ferðina enn.
Og samþykkjum aldrei að borða skordýr í stað alvöru matar. Tilhugsunin um það veldur manni viðbjóði.
Bloggar | Breytt 1.1.2023 kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.9.2022 | 16:23
Sannleikurinn um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" er sífellt að koma betur og betur upp á yfirborðið.
Nú er stórskotaliðið búið að heiðra Þórólf Guðnason fyrrverandi sóttvarnalækni, sem lítur sáttur og stoltur yfir farinn veg í "heimsfaraldrinum".
Kári Stefánsson fór fögrum orðum um hann og sagði:
Hvað vita þessir menn sem þjóðinni hefur aldrei verið sagt, og hvers vegna þrýstu þeir á alla að fara í þessar "bólusetningar", þrátt fyrir að þeir vissu fullvel að þessi sprautuefni hefðu verið búin til á mettíma án fullnægjandi prófana á fólki? Eru þetta ekki læknar og vísindamenn?
Það má alveg velta upp þeirri spurningu hvort einhverjir fái greitt fyrir hverja sprautu hér á landi eins og í USA, sjá hér og hér.
Sem betur fer eru fleiri að vakna
Þökk sé internetinu, þá er núna auðvelt að afla sér upplýsinga sem eru ekki birtar á meginstraumsfjölmiðlunum, hvorki hér á landi né annars staðar.
Ólýðræðisleg ritskoðun hefur fætt af sér nýja miðla, sem jú vissulega birta líka vafasamt efni eftir vafasamt fólk, en þar fá þeir vettvang sem hafa verið úthýst af meginstraumsfjölmiðlunum og samfélagsmiðlunum.
Læknar og vísindamenn eins og þessir sem sjá má á myndinni sem hafa verið útskúfaðir, smánaðir og reknir úr störfum sínum fyrir skoðanir sínar á "heimsfaraldrinum" og þessum efnum sem búið er að sprauta í milljarða manna, kvenna og barna hafa fengið vettvang þar.
Ég rakst á vídeó með þeim: Doctors Around the World Issue Dire WARNING: DO NOT GET THE EXPERIMENTAL COVID VACCINE!!
Þar vara þeir við hugsanlegum afleiðingum þess að láta sprauta þessum efnum í sig, og þetta eru afleiðingar sem því miður hafa raungerst að miklu leyti eða öllu.
Og athugið, þetta var tekið var upp í desember 2020 - áður en sprautuherferðirnar byrjuðu!
Formáli Steve Cook að viðtali
The most important single message Ive ever written.
It was prompted by this superb expose of malfeasance in UK government.
Dear everyone who is nervously looking around and is asking What the hell is going on?,
I hope this isnt too controversial. Its certainly frightening, but I believe we are still the right side of disaster and if enough of us become aware of what is happening here and everywhere in the democratic world, we can recover the situation.
We really dont have long. I believe its likely things will change irretrievably over this coming winter. Hence this urgent and unusual request.
Everything thats happened and is happening becomes much simpler and it all makes sense, only when you force yourself to think the impossible.
If you experimentally adopt the position that OUR GOVERNMENT IS ACTIVELY WORKING TO HARM US, TO DISMANTLE MODERN SOCIETY AND ENSLAVE ALL PEOPLE IN A DIGITALLY-CONTROLED TOTALITARIAN WORLD, it all fits. Nothing is surplus.
Bloggar | Breytt 23.1.2023 kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
21.9.2022 | 10:31
Hundruðir lækna lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna "bóluefnanna".
Sífellt fleiri læknar og vísindamenn eru farnir að stíga fram og vara við þessum svokölluðu "bóluefnum", enda hafa þau skilið eftir sig slóð veikinda og dauða á stærri skala en nokkur bóluefni hafa áður gert.
Samt er haldið áfram að dæla þessum efnum í fólk, líka hér á landi, og nú með einhverju "uppfærðu bóluefni" sem var ekki prófað á mönnum, heldur 8 músum!
Yfir 400 læknar frá 34 löndum hafa lýst yfir alþjóðlegu neyðarástandi (medical crisis) vegna sjúkdóma og andláta sem tengjast Covid-19 bóluefnunum.
Hér er lausleg þýðing á síðunni Hundreds of doctors declare medical crisis from vaccine:
Yfirlýsing þeirra hefst með þessum orðum: Við, læknar og vísindamenn alls staðar að úr heiminum, lýsum því yfir að það sé alþjóðleg læknisfræðileg kreppa vegna sjúkdóma og dauðsfalla sem tengjast inngjöf á vöru sem kallast COVID-19 bóluefni.
Við erum núna að verða vitni að aukinni dánartíðni í þeim löndum þar sem meirihluti íbúanna hefur fengið svokölluð COVID-19 bóluefni. Hingað til hefur þessi umframdánartíðni hvorki verið nægjanlega rannsökuð né skoðuð af innlendum og alþjóðlegum heilbrigðisstofnunum.
Læknar halda því fram að nauðsynlegt sé að rannsaka það sem þeir fullyrða að sé óeðlilega mikill fjöldi fósturláta og burðarmálsdauða.
Fæðingartíðni í mörgum löndum virðist lægri en í meðaltali síðustu ára, og í júlí vakti ungverskur embættismaður athygli á sláandi lækkun á fæðingartíðni.
Fæðingartíðni lækkaði um 20% miðað við sama tímabil í fyrra. Og það sem er enn meira áhyggjuefni er að frjósemi hefur líka minnkað - eitthvað sem hefur ekki sést síðan 2011.
Rannsóknarmaður við KRTK hagfræðistofnun bendir á að þessi gríðarlega lækkun hafi komið í ljós aðeins níu mánuðum eftir að fjöldabólusetningar gegn COVID hófust í Ungverjalandi.
Yfirlýsingin telur upp tíu ráðstafanir sem ætti að grípa til strax, þar á meðal Stöðvun um allan heim á bólusetningum með vörum sem kallast COVID-19 bóluefni, auk rannsóknar á skyndilegum dauðsföllum.
Skoðun á skýrslum úr VAERS CDC, gula kortakerfinu í Bretlandi, ástralska aukaverkanaeftirlitskerfinu, EudraVigilance kerfi Evrópu og VigiAccess gagnagrunni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, leiddi í ljós að til þessa hafa verið meira en 11 milljónir tilkynninga um aukaverkanir og meira en 70.000 dauðsföll sem hafa orðið í kjölfar inngjafa á þessum covid bóluefnum.
Við vitum að þessar tölur eru um það bil 1% til 10% af öllum raunverulegum atburðum.
Í júlí greindi CTV fréttastöðin frá fordæmalausri aukningu á illa skilgreindum og óþekktum dánarorsökum í Alberta frá 2021. Í héraðinu höfðu orðið 3.362 dauðsföll af óþekktum orsökum árið 2021, samanborið við 1.464 árið 2020 og 522 árið 2019.
Þessi tala árið 2021 var hærri en heildarfjöldi heilabilunar og COVID-dauðsfalla í héraðinu, í sömu röð.
Á sama tíma á Íslandi
Þurfum að búa okkur undir aðra Covid bylgju, segir í Mogganum í vikunni.
Lyfjastofnun Evrópu segir Covid-faraldurinn enn standa yfir þrátt fyrir að nýjum tilfellum og dauðsföllum af völdum veirunnar hafi fækkað mikið. Ríki Evrópu eru því hvött til að bjóða fólki upp á örvunarskammt fyrir veturinn, að fram kemur í frétt AFP.
Íslendingar eru hvattir í fjórðu sprautuna.
Reglulegir örvunarskammtar nauðsyn.
Á sama tíma í Danmörku
Danir undir fimmtugu fá ekki fleiri Covid sprautur - verður mögulega endurskoðað
Fréttir sem ekki er fjallað um á Íslandi
New UK Government Data Shows The COVID Vaccines Kill More People Than They Save
Harvard-Johns Hopkins Study Shows Vaccine Up To 98 Times More Dangerous Than COVID
Dr. Sucharit Bhakdi: Criminal mRNA injections and how they kill
Raunveruleikinn
Leyfum þessu fólki úr Facebook grúppunni Died Suddenly News sem ég held að fólk geti ekki lengur gengið í nema með boði í hana, að eiga síðustu orðin.
Athugið, að fólk verður að nota dulmál yfir bóluefnin, covid og aukaverkanir til að geta tjáð sig vegna glæpsamlegrar ritskoðunar þessi misserin.
Allra síðustu orðin - nýjustu fréttir
Nýjustu fréttir eru að stórskotaliðið í Covid kemur saman á ný í vikunni til að heiðra Þórólf, sem lítur sáttur og stoltur yfir farinn veg í "heimsfaraldrinum".
Gleymum aldrei þessum orðum hans:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
10.9.2022 | 14:40
Ömurlegt að sjá að enn sé verið að hvetja börn og barnshafandi konur í "bólusetningarnar"
Að lesa þessa frétt er eins og að lesa lélega hrollvekju, það er ekki nóg með að gefa eigi fólki fjórða skammtinn af þessu eiturbrasi, heldur á að bjóða áhættuhópum að fá sér flensusprautu samhliða, ef liðnir eru a.m.k. fjórir mánuðir frá síðustu "bólusetningu".
Það er sorglegt að sjá að fólk skuli ennþá trúa því að það þurfi fleiri sprautur, sérstaklega núna þegar það er sífellt að koma betur og betur í ljós hversu skaðleg þessi efni geta verið - fyrir utan það að marglofuð virkni þeirra og öryggi stóðst aldrei.
En meginstraumsfjölmiðlarnir fjalla aldrei um það.
Það er ekki hægt að hraða vísindunum!
Sagan hefur sýnt það og sannað oftar en einu sinni að lyf sem hafa ekki verið nægilega prófuð áður en þau eru markaðssett, hafa oft valdið miklum skaða og dauða.
Enda hafa lyfjarisarnir (Pfizer o.fl.) þurft að punga út stjarnfræðilegum fjárhæðum í sektir og skaðabætur undanfarna áratugi.
Í siðmenntuðum heimi getur það tekið allt að 10 til 15 ár að þróa og prófa bóluefni.
Bólusetningum gegn svínaflensu var hætt í USA árið 1976 eftir að 3 aldraðir einstaklingar létust í kjölfar þeirra.
Eitthvað allt annað en núna í þessum meinta "heimsfaraldri", þar sem milljónir hafa skaðast eða látist um heim allan í þessu bólusetningabrjálæði.
Reynt er að þagga allt niður, en sem betur fer er fólk farið að vakna núna, sérstaklega annars staðar en á Íslandi, þótt það sé því miður orðið allt of seint fyrir marga.
Thalidome lyfið
Það tók 5 ÁR að tengja saman Thalidomide lyfið sem mörgum ófrískum konum var gefið, og fæðingargalla og fósturlát. Á þessum tíma er áætlað að það hafi skaðað og drepið þúsundir barna.
"As harmless as a sugar cookie" is how thalidomide was advertised at the time. Recommended for infants and small children and for treating nausea during pregnancy, it was a big seller both in Germany and abroad.
Hinar verðandi mæður treystu læknum sínum og ljósmæðrum sem mæltu með þessu nýja lyfi við morgunógleði.
Við getum gengið út frá því sem vísu að engin þeirra ætlaði vísvitandi að skaða barnið sitt.
Eðli málsins samkvæmt voru þær konur sem eru á barnseignaraldri núna ekki fæddar á árunum 1957 - 1962, og hafa kannski aldrei heyrt um hörmulegar afleiðingar af töku nýs og lítt prófaðs lyfs á þúsundir ófæddra barna.
Núna 60 árum síðar er þrýst á barnshafandi konur að láta sprauta í sig lyfi sem hefur ekki farið í gegn um hefðbundið margra ára þróunarferli.
Á sama tíma er þeim ráðlagt að forðast ákveðnar fæðutegundir og hvorki reykja né drekka á meðgöngu því það gæti orsakað veikindi hjá þeim eða skaðað barnið sem þær bera undir belti.
Gott og vel, allt góðar og gildar leiðbeiningar, enda væntanlega byggðar á langri reynslu.
Í ljósi alls þessa er óskiljanlegt að barnshafandi konur hafi verið beittar slíkum hræðsluáróðri um hættuna af Covid, að allt of margar þeirra létu sprauta sig.
Á hvaða vegferð eru læknavísindin eiginlega, hvað varð um læknaeiðinn, Fyrst, ekki skaða?
Í ljós hefur komið að Pfizer leyndi gögnum um niðurstöður tilrauna á barnshafandi konum, fyrir utan niðurstöður um hjartavöðvabólgur og ótal margt fleira.
Sjá nokkrar umfjallanir hér:
Massive Miscarriage Rates Among Vaccinated Pregnant Women Found Buried In The Pfizer Documents
Study finds Covid-19 Vaccination increases risk of suffering Miscarriage by 1517%
Dr. Naomi Wolf shares a photo of a mothers placenta 8 weeks post Pfizer jab
Og enn er haldið áfram að blekkja fólk í þessar sprautur, þrátt fyrir skelfilega aukningu krabbameina, og ungt fólk sem dettur skyndilega dautt niður, svo fátt eitt sé nefnt.
Frásagnir fólks
Hér eru örfáir þræðir um fósturlát og barnsmissi úr Facebook hópnum Died Suddenly News sem er núna kominn með tæplega 247.000 meðlimi á örskömmum tíma, og þúsundir meðlima bætast í þennan hóp á hverjum degi.
Þetta er lokaður hópur sem maður verður að sækja um aðgang að ef maður vill lesa frásagnirnar.
Vegna ritskoðunar miðilsins eru þessa dagana notuð tákn fyrir gulrætur í stað bannorðanna vaccine, Pfizer, Moderna o.þ.h.
* A close friend of mine just had a still born at 37 weeks. She had 2 prior to pregnancy

*
*
Þráðurinn er hér










![]() |
Nýjar útgáfur bóluefna væntanlegar til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 11.9.2022 kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.8.2022 | 18:29
Hvað munu margir aðrir líka láta blekkja sig í fjórðu sprautuna?
Enn og aftur stendur til að fara að "bólusetja" fólk, og nú með fjórða skammtinum. Samkvæmt frétt á RÚV hafa 25 þúsund nú þegar fengið fjórðu sprautuna, sem mér þykir alveg ótrúlegur fjöldi!
Það væri fróðlegt ef sóttvarnayfirvöld könnuðu heilsufar þessa fólks núna, og hvort það hefði fengið pestina, jafnvel oftar en einu sinni, þrátt fyrir allar sprauturnar.
En við vitum að það mun aldrei gerast.
Arftaki fráfarandi sóttvarnalæknis sem heitir Guðrún Aspelund virðist hafa fengið góða þjálfun og undirbúning frá forvera sínum, og varar við nýrri bylgju á næstunni.
Hún hvetur ónæmisbælt fólk og aðra, meira að segja á öllum aldri eldri en fimm ára fái fjórða skammtinn, enda hafi það sýnt sig að þessi bóluefni sem eru til veiti góða vörn gegn alvarlegum veikindum og dauðsföllum!
Og já, þetta eru hennar eigin orð.
Það má spyrja sig hvers vegna svona grúppur séu stofnaðar. Væru þessi sprautuefni eins góð og örugg og okkur er talin trú um, þá væru þær ekki til, svo einfalt er það.
Þeim er lokað miskunnarlaust ef "bannorð" eins og Covid, vaccines, Pfizer o.s.frv. eru nefnd "of oft".
Hér eru nokkrir þræðir úr grúppunni um sprautað fólk sem varð bráðkvatt:
My husband found his work colleague dead in the toilets at work age 37 massive heart attack! A lot of people I know are all starting to ask questions, but too late though as theyve fell for it and have it in their bodies
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
21.8.2022 | 21:18
Skelfileg aukning krabbameina í heiminum eftir "bólusetningarnar" - hvernig er staðan á Íslandi?
Ég horfði nýlega á viðtal við lækni sem starfar í Svíþjóð. Hún er yfirlæknir meinafræðideildar í háskólanum í Lundi, og hefur starfað í því fagi síðastliðin 25 ár, þar af 18 ár með sérstaka áherslu á brjóstakrabbamein.
Hún hefur rannsakað þúsundir krufninga og sýna af brjóstakrabbameinum, og er þar af leiðandi komin með gríðarlega þekkingu á þróun og ferlum þessara meina.
En allt breyttist eftir að farið var að "bólusetja" fólk árið 2021.
Hún sagði meðal annars þetta:
- Aldur - Meðalaldur sýnanna sem hún fékk lækkaði, með aukningu á fjölda sýna frá fólki á aldrinum 30-50.
- Stærð Það var áður óvenjulegt fyrir Dr. Kruger að finna æxli sem var 3 cm að stærð. Í þessu nýja umhverfi sér hún reglulega æxli sem eru 4 cm, 8 cm, 10 cm og einstaka sinnum 12 cm. 2 vikum áður fann hún 16 cm æxli sem fyllti heilt brjóst.
- Mörg æxli Dr. Kruger er farin að sjá fleiri tilfelli þar sem mörg æxli vaxa hjá sama sjúklingi, stundum jafnvel í báðum brjóstum. Hún fjallaði um 3 tilfelli á þriggja vikna tímabili þar sem sjúklingar voru með vaxandi æxli í mörgum líffærum. Einn var með æxli í brjósti, brisi og lungum innan nokkurra mánaða frá því að hann var bólusettur.
- Endurupptaka - Það hefur verið fjölgun á sjúklingum sem hafa verið í bata vegna krabbameins í mörg ár, en fá skyndilega illvíga endurkomu þess stuttu eftir bólusetningu.
Turbo-Cancer - We Have a Problem
Viðtalið má finna hér, þar sem hún segir líka meðal annars frá áhugaleysi yfirvalda og kollega hennar á rannsóknum hennar á aukningu krabbameina eftir sprauturnar.
Hún endaði viðtalið á því að segja að hún hafi farið í læknisfræði til að hjálpa fólki, en nú líði henni eins og verið sé að drepa fólk fyrir augunum á henni og það sé ekkert sem hún geti gert.
Frekari heimildir um krabbamein eftir sprauturnar:
- Idaho doctor reports a 20 times increase of cancer in vaccinated patients
- Thousands report developing abnormal tumors following COVID shots
- U.S. Government data confirms a 143.233% increase in Cancer cases due to COVID Vaccination
- The COVID-19 mRNA Vaccines cause Cancer; heres the evidence
- What do you think happened in early 2021?
- Official Government Reports prove the COVID Vaccines cause Cancer
- COVID Vaccines are at least 75x deadlier than all other Vaccines combined according to Medicine Regulators
- Mjög fróðlegt viðtal við Dr. Ryan Cole: These Arent Normal Cancers: What Doctors Are Seeing After COVID Shots
Stop the Shots!
Hér er ákall yfir 40 lækna um að stöðva þessar "bólusetningar".
Hvar eru íslensku læknarnir, er enginn nema Guðmundur Karl Snæbjörnsson (Kalli Snæ) sem þorir að tjá sig opinberlega um þessi svokölluðu "bóluefni" og allar aukaverkanirnar eftir þær sem eru núna orðnar um 6.200?
Eru íslenskir læknar blindir og heyrnarlausir - eða bara gungur?
Staðan hér á Íslandi?
Það hlýtur að blasa við að þar sem fólk var sprautað með sömu genabreytandi líftæknilyfjunum (sem eru ranglega kölluð bóluefni) hér á landi og annars staðar, að það hafi sömu afleiðingar fyrir marga hér á landi.
Ég veit um að minnsta kosti fjórar íslenskar konur sem eru að glíma við (brjósta)krabbamein núna, sumar við mjög illvíg. Eru þetta bara tómar tilviljanir, eins og hjá öllum sem létust hér á landi eftir sprauturnar?
Eru þær allar sprautaðar? Ég veit það ekki, en þykir það ekkert ólíklegt miðað við að stærstur hluti þjóðarinnar er tví- eða jafnvel þrísprautaður.
Ég hef að minnsta kosti aldrei áður vitað um svona margar manneskjur með krabbamein á sama tíma, allar vel undir sextugu.
Mun einhver íslenskur meinafræðingur eða læknir eins og Dr. Kruger stíga fram á næstunni og segja frá aukningu í krabbameinum, óútskýrðum skyndiandlátum, hjartaáföllum, heilablóðföllum, hjartavöðvabólgu, eða öðrum þekktum aukaverkunum eftir sprauturnar?
Því miður eru hverfandi líkur á því, hér á landi er allt þaggað niður, eða nánast afneitað.
Íslendingar sofa margir hverjir ennþá vært í faðmi fráfarandi sóttvarnalæknis sem ásamt fleirum dásömuðu "bóluefnin" og nörruðu stærsta hluta þjóðarinnar í sprauturnar, og það sem verra er, líka börn og unglinga.
Mér er fyrirmunað að skilja hvernig þetta fólk geti sofið á nóttunni.
Bloggar | Breytt 22.8.2022 kl. 08:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.7.2022 | 18:18
Hættið þessum endalausa hræðsluáróðri!
Hvað ætli margir hafi látist af einhverjum öðrum sjúkdómum og pestum undanfarið án þess að það hafi ratað í heimsfréttirnar?
Fékk þessi frétt um fullsprautaða túrista sem dóu skyndilega á Ítalíu eitthvað vægi í fréttunum á heimsvísu? Örugglega ekki.
Það eru tveir indælir hommar (sem eru víst í mestri hættu á smiti) á hótelinu þar sem ég er núna. Hvernig ætti mér að stafa ógn af þeim nema þeir byðu mér til kynlífs með þeim - sem má telja með fullri vissu um að ólíklega gerist.
Það sem þið sjáið á myndinni hér fyrir neðan ætti að vera forsíðufréttir á öllum fjölmiðlum alla daga, en eru það ekki.
Þessar bölvuðu eitursprautur hafa valdið ólýsanlegum fjölda aukaverkana og andláta í löndunum þar sem sprautuherferðirnar voru hvað mestar, líka á Íslandi, en allt er þaggað niður!
Þetta ætti að vera fréttaefni alla daga, og auðvitað hefði átt að stöðva þessar "bólusetningar" fyrir lifandis löngu - ef allt væri eðlilegt.
En nei, það á að halda áfram að sprauta fólk með þessu tilraunaglundri og kynna til sögunnar nýja og "hættulega faraldra" sem ekkert getur víst komið okkur út úr en einhverjar sprautur.
Þetta á að halda áfram þar til "ásættanlegum fjölda" mannkyns verði náð, að mati vitfirringa sem eru ekki einu sinni að fela það að tilgangurinn sé að fækka mannkyninu núna.
Það er ekkert mál að finna sannanir um þetta ef fólk nennir að leita, en fæstir virðast gera það.
Vilja frekar trúa ömurlegum hræðsluáróðri eins og þessum.
![]() |
Andlát á Spáni vegna apabólu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.7.2022 | 16:19
Rýnt í hvítskúraða ársskýrslu Lyfjastofnunar
Það var fróðlegt að lesa yfir ársskýrslu Lyfjastofnunar fyrir árið 2021, og svo því sé haldið til haga, þá skoðaði ég eingöngu umfjallanir um "grun um aukaverkanir" eftir "bólusetningarnar", eða öllu heldur hvítþvottinn á þeim.
Prófarkalestur virðist þó hafa verið svo slakur að ætla mætti að stofnunin sé ekki alveg með fjölda tilkynntra aukaverkana eftir "bóluefnin" á hreinu.
Ótrúlegt misræmi!
Samkvæmt þessari síðu var tilkynnt um 3.233 aukaverkanir vegna bóluefnanna árið 2021.
Hér segir að að meðaltali hafi borist 335 tilkynningar á mánuði, eða 4.016.
Mismunurinn er 783 ef mér reiknast rétt til.
Ég á til skjámyndir af þessum síðum ef ske kynni að tölum verði breytt.
Síðasta tilkynning ársins 2021 vegna "gruns um aukaverkanir":
Ef við skoðum þessa mynd, þá sjáum við að þarna eru allt aðrar tölur, eða 5.917.
Það er bara engin glóra í þessum tölum frá Lyfjastofnuninni sjálfri.
Framan af ári voru tilkynningar rúmlega 200 að meðaltali á mánuði, fjölgaði síðan til muna eftir að bólusetningarátak hófst fyrir alvöru á vordögum, en fór fækkandi með haustinu. Að meðaltali bárust 335 tilkynningar á mánuði árið 2021. (Áherslan er mín)
Hér "gleymir" Lyfjastofnun að nefna ríflega 2.000 aukaverkanir sem Alma Möller hélt eftir í einhverja mánuði og var bætt við í nokkrum lotum á haustmánuðum.
Skoðum tilkynntar aukaverkanir í desember 2021
Ég hef haft það fyrir vana að taka yfirleitt skjámyndir af þessum daglegu tilkynningum, og gefið þeim heiti dagsins sem hún er tekin.
Og til að taka af allan vafa um hugsanlegt sannleiksgildi þeirra, þá getið þið séð að þessar skjámyndir eru teknar 2. desember og 30. desember 2021.
Reyndar á ég ekki skjámynd frá 1. desember, kannski hafa ekki verið birtar tölur þann daginn, en síðustu tölur ársins voru birtar 30. desember.
Skrítnar Janssen tölur
Eins og sjá má, þá virðist aukaverkunum vegna Janssen hafi "fækkað" í desember, hvernig sem það á að geta gerst.
Aukaverkanir í desember skv. ársskýrslu Lyfjastofnunar
Tilkynningar í desember - sundurliðun eftir bóluefnum
Í desember bárust 210 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun. Af þeim tengdust 187 bóluefnum gegn COVID-19;
117 vegna Comirnaty frá BioNTech/Pfizer, 47 vegna Spikevax frá Moderna, 12 vegna bóluefnis Janssen, og 11 vegna Vaxzevria frá AstraZeneca. Tuttugu og þrjár tilkynninganna tengdust öðrum lyfjum.
Fjöldi tilkynninga í desember eftir alvarleika
Tilkynningar vegna gruns um alvarlega aukaverkun voru 27. Fimmtán þeirra tengdust bóluefnum gegn Covid-19; 10 vegna Comirnaty frá BioNTech/Pfizer, 3 vegna Vaxzevria frá AstraZeneca, 2 vegna Spikevax frá Moderna, 0 vegna bóluefnis Janssen. Tólf tengdust öðrum lyfjum. (Áherslan er mín)
Ég setti þetta ekki upp í töflu, en auðvelt er að sjá að það er lítið að marka þessar tölur sem Lyfjastofnun gefur út, enda virðist hún ekki kunna að telja eða halda utanum tölfræði.
Meira úr ársskýrslunni
Glímt við vanda tengdan heimsfaraldrinum
Í ársbyrjun 2021 ríkti mikil bjartsýni eftir þrengingar og lokanir vegna heimsfaraldursins. Fyrsta bóluefnið gegn COVID-19, Comirnaty frá BioNTech/Pfizer, var samþykkt til notkunar hérlendis 21. desember 2020, og rétt fyrir áramót var byrjað að bólusetja viðkvæmasta hópinn, aldraða á hjúkrunarheimilum, auk framlínustarfsmanna í heilbrigðisþjónustunni.
Fyrsta tilkynningin um aukaverkun vegna COVID-19 bóluefnis barst rétt fyrir árslok 2020, og fleiri komu í kjölfarið strax fyrstu vikuna í janúar. Meðal þeirra voru fimm tilkynningar um alvarlega aukaverkun eftir bólusetningu, þar af voru fjögur andlát. Í öllum þeim tilvikum var um að ræða aldraða einstaklinga á hjúkrunarheimilum með undirliggjandi sjúkdóma, en í ljósi þess að um nýtt bóluefni var að ræða ákváðu landlæknir, sóttvarnalæknir og forstjóri Lyfjastofnunar að fá óháða aðila til að fara gaumgæfilega yfir þessi fimm atvik. Niðurstaða lá fyrir seinnihluta janúar og talið ólíklegt að tengsl væru milli bólusentninganna og þeirra andláta sem um ræddi. (Áherslan er mín)
Einmitt ...
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að sprauta viðkvæmasta hópinn, en ef einhver þeirra deyr eftir sprauturnar, þá er það ekki sprautunum að kenna, heldur að þetta hafi verið aldrað fólk með alls konar undirliggjandi sjúkdóma.
Svo þetta með niðurstöður "óháðra sérfræðinga" á athugunum á tilkynningum um "grun um aukaverkanir". Ég skrifaði á sínum tíma tvö blogg um hvítþvott þessara "sérfræðinga" sem sjá má hér og hér.
Niðurstaða mín
Ég gæti skrifað heila ritgerð um þessa ársskýrslu, eða öllu heldur hvítþvottinn í henni.
Hugsanlegar aukaverkanir vegna bóluefnanna voru víst rannsakaðar ítarlega af "óháðum sérfræðingum", og niðurstaðan yfirleitt sú að í nær öllum tilvikum væri hægt að tengja tilvikin við undirliggjandi sjúkdóma eða áhættuþætti, eða að þetta væru afskaplega sjaldgæfar aukaverkanir.
Sjaldnast virðist sjálfum "bóluefnunum" beint um að kenna. Engin umfjöllun er um þá einstaklinga sem höfðu tilkynnt aukaverkanir, eða þær 259 alvarlegu og lífsógnandi, og jafnvel banvænu. Bara birtar einhverjar tölur sem eins og sjá má hér að ofan að er ekkert að marka.
Fólkið er bara tölur á blaði stærstu lyfjatilraunar sem gerð hefur verið á mannkyninu, sem sannanlega hefur valdið dauða og/eða örkumlum milljóna manna, kvenna og barna um allan heim, líka hér á landi.
Með fullri þátttöku og samþykki þeirra sem stjórna þessari þjóð.
Forstjórinn, Rúna Hauksdóttir Hvannberg nefnir í ávarpi sínu fólk sem kom með "ýmsar staðleysur um bóluefni og bólusetningar", sem og áratuga gamla "sníkjudýralyfið Ivermectin", sem hefur verið sprautað í milljarða manna - og dýra með frábærum árangri.
Það þótti ekki nógu öruggt, öfugt við mRNA bóluefnin sem voru búin til á undraskömmum tíma en voru víst samt mjög örugg og veittu mikla vernd.
Trúverðugleiki þessarar stofnunar er enginn.
Það er að mínu mati glæpsamlegt að þessar "bólusetningar" voru ekki stöðvaðar strax og tilkynningar um "grun um aukaverkanir" og andlát eftir þær fóru að berast, eða að minnsta kosti gert tímabundið hlé á þeim meðan orsakirnar væru rannsakaðar niður í kjölinn.
Það væri gert í löndum þar sem læknaeiðurinn "Fyrst, ekki skaða", er í heiðri hafður.
Þau lönd virðast vera orðin fá eftir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)