Færsluflokkur: Bloggar
23.1.2023 | 19:52
Hinn "sjarmerandi" harðstjóri, Jacinda Ardern
Ég gat ekki að því gert, en ég hló upphátt þegar ég las fyrirsögn á Visir.is þann 19. janúar, en hún hljóðaði svona:
Katrín segir sjónarsvipti að hinni sjarmerandi Arden
Þar átti forsætisráðherra okkar við einræðisherrann Jacindu Ardern sem búin er að stjórna þjóð sinni, Nýja Sjálandi af mikilli illsku og grimmd síðan "heimsfaraldurinn" byrjaði.
Umsögn Katrínar Jakobsdóttur um afsögn hennar
Forsætisráðherra segir að sjónarsviptir verði af Jacinda Ardern sem óvænt sagði af sér embætti forsætisráðherra Nýja-Sjálands og leiðtoga Verkamannaflokksins í gærkvöldi. Sex ára valdatími hennar hafi einkennst af hverju áfallinu á fætur öðru, allt frá náttúruhamförum, fjöldamorðum, covid faraldrinum og nú til efnahagsástandsins vegna stríðsins í Úkraínu.
Hin hliðin
Þetta er afskaplega falleg lýsing Katrínar á starfsferli hennar, en tökum aðeins stikkprufu af skoðunum annarra á frammistöðu hennar í "heimsfaraldrinum".
9. maí 2021
Hinn harðstjórnandi (tyrannical) forsætisráðherra Nýja Sjálands, Jacinda Ardern hefur loksins ákveðið að tortíma (destroy) eigin borgurum með því að þvinga ALLT framlínustarfsfólk í bólusetningar, að viðlagðri $4.000 sekt ef það hlýði ekki.
NZ Govt now Forces COVID Jabs Or Else Jail Time
29. júní 2021
Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja Sjálands er að íhuga að gera grímunotkun að skyldu, og skönnun QR kóða líka að skyldu á "hááhættusvæðum", eins og börum og veitingastöðum.
Þetta eru einmitt staðirnir sem fólk gjarnan hittist á til að eiga gæðastundir eða lyfta glasi með vinum og kunningjum, og bara vera eðlilegar manneskjur.
Forsætisráðherra Nýja Sjálands er endanlega genginn af göflunum
24. ágúst 2021
Þegar Nýja Sjáland tilkynnti skyndilokun í síðustu viku til að bregðast við einu Covid-19 tilfelli voru viðbrögðin fyrirsjáanleg. Gagnrýnendur Jacindu Ardern og hinnar ströngu "Núll Covid" stefnu ríkisstjórnar hennar fóru á hliðina og fullyrtu að hún hefði "tapað glórunni" og að tillaga hennar væri "ekkert minna en endalaus martröð".
Á hinn bóginn komu klappstýrur hennar með margnotaða frasa um hvernig þau hefðu gert þetta áður, og myndu gera þetta aftur.
New Zealands Zero Covid delusion
30. nóvember 2021
Í gær tilkynnti Jacinda Ardern leiðtogi Nýja Sjálands, að ríkisstjórnin ætli núna að veita fólki þann "lúxus" að geta notað salerni á heimilum annarra. (45. mínútna vídeó með Mike Adams, byrjar á mínútu 5)
Fleiri greinar um þennan grimma harðstjóra
- The Five Deadly Lies Of Jacinda Ardern And Her NZ "Government"
- Jacinda Ardern Orders Vicious Attack on Peaceful Demonstrators in Wellington
- Zero Covid has cost New Zealand dearly
- Jacinda Ardern blasted as New Zealanders are forced to sleep in their cars
Fljótleg yfirferð yfir íslenska fjölmiðla sýnir að mestu leyti aðeins jákvætt viðhorf til hennar og aðgerða hennar í "baráttunni gegn Covid". Hér er þó ein ársgömul frétt um að vinsældir hennar hafi aldrei verið minni.
Harmagrátur vegna afsagnar forsætisráðherra Nýja Sjálands
Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður skrifaði fínan pistil um starfslok hennar:
Þó Ardern skilji eftir sig minningar um versnandi lífskjör, aukna fátækt og ógnarstjórn á tímum Kóvíd, þá harmar vinstri stjórnmálaelítan stjórnmálaleiðtoga, sem gat ekki horfst í augu við, að kjósendur mundu hafna henni í kosningum.
Nú er hafinn harmagrátur vinstri stjórnmálamanna eins og Katrínar Jakobsdóttur, Keith Starmer og Justin Trudeau yfir þeirri illu meðferð sem þau segja að Ardern hafi þurft að undirgangast.
Landsmenn Ardern hafa þó aðra sögu að segja og minnast hennar með allt öðrum hætti þegar þeir þurfa að glíma við versnandi lífskjör, aukna verðbólgu og fátækt.
Hér má meðal annars sjá viðbrögð landa hennar við afsögninni.
Nýjustu fréttir herma að Chris Hipkins sem sestur er tímabundið í stól hennar, hefur tilkynnt að á þessu ári muni fólk sem ekki hefur "þegið" Covid sprauturnar verða elt uppi og sprautað.
Það er eins og viðvaranir þúsunda lækna og vísindamanna um skaðsemi Covid "bóluefnanna" hafi ekki "náð eyrum" stjórnenda Nýja Sjálands (frekar en Íslands).
Nýsjálendingar virðast því vera að fara úr öskunni í eldinn.
Vinkvenna fundur
Það sem líklega fáir vita hér á landi, er að þær eru báðar tengdar inn í glóbalistasamtökin The World Economic Forum (WEF), þar sem Jacinda er í hópi "Young Global Leaders" og Katrín Jakobsdóttir er "Agenda Contributor".
Á þessum fundi í september 2019 virðast þær hafa verið miðað við texta Katrínar, að ræða meðal annars um Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna (<- lesið um þau til að skilja þetta!), sem undir fögrum umbúðum ganga út á að móta heiminn að þeirra eigin hugmynd og svipta okkur hin öllu því sem okkur er kært, jafnvel lífinu líka.
Það er að verða gríðarleg vakning í heiminum núna um þá staðreynd að einhverjir ókjörnir viti firrtir aðilar (WEF og fleiri) eru búnir að vera að plana aðgerðir áratugum saman gegn okkur "óþörfu súrefnisþjófunum", og andspyrnan gegn þeim eykst dag frá degi.
Nú er þessi WEF harðstjóri fallinn af stalli, reyndar virðist tímabundinn arftaki hennar því miður ætla að fylgja í fótspor hennar, en hverjir munu falla næst og þá hverjir taka við, aðrir WEF harðstjórar? Er þetta það sem heimsbyggðin vill?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.1.2023 | 20:45
Það sem hún minnist ekki einu orði á í þessu viðtali
Berglind Aðalsteindóttir hjartalæknir var fengin til að halda erindi um orsök skyndidauða ungmenna á nýliðnum Læknadögum 2023 í Hörpu.
Sem hjartalæknir útskýrir hún ýmsar ástæður fyrir því að ungt fólk geti dottið dautt niður við íþróttaiðkun, eins og til dæmis af völdum arfgengra sjúkdóma, og/eða undirliggjandi hjartasjúkdóma.
Það er athyglisvert að akkúrat þetta umfjöllunarefni, skyndidauði ungs íþróttafólks hafi verið aðal áhersluefni málþingsins.
En það er eitt sem ég sakna úr þessari frétt, þar er ekki einu orði minnst á hvort samasemmerki geti verið á milli "bólusetninga" íþróttamanna með þessum genabreytandi tilraunalyfjum, og óhugnanlegrar fjölgunar andláta þeirra undanfarin tvö ár.
Og líklega voru túrbó krabbameinin í kjölfar "bólusetninganna" ekki til umræðu þarna, né skyndidauðar allra þeirra sem flokkuðust ekki til íþróttamanna.
Hvað með mRNA tilraunalyfin sem sannanlega valda veikindum og dauða?
Skyndidauði er að sögn Berglindar ekki alltaf tengdur hjartanu heldur getur líka orsakast af sjúkdómum í öðrum líffærakerfum.
Hve algengur skyldi skyndidauði þá vera á heimsvísu?
Rannsóknir hafa sýnt fram á að nýgengi hjá yngra fólki sé á bilinu einn til tveir á ári á hverja 100.000 einstaklinga.
Það væri fróðlegt að vita hverjir gerðu þessar rannsóknir sem hún vísar í, en það vekur óneitanlega upp þá spurningu hjá manni hvað valdi því að hvorki hámenntaður ungur hjartalæknir (né hinir læknarnir á málþinginu) virðist tengja skyndidauða íþróttamanna mögulega við "bóluefnin".
Eða velti hún þessari spurningu upp í erindinu en sleppti að minnast á það í þessu viðtali?
Þetta sem hún segir er í hróplegu ósamræmi við raunveruleikann, og útskýrir ekki nema örfáar hugsanlegar orsakir hjartaáfalla og skyndidauða ungs íþróttafólks.
En í fullu samræmi við þöggunina undanfarin þrjú ár, þar sem aðeins ein umræða hefur verið leyfileg, um "gæði og öryggi" þessara tilraunaefna.
Þar fór Þórólfur Guðnason fyrrum sóttvarnalæknir einna fremstur í flokki, að ógleymdri Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Arftaki hans hún Guðrún Aspelund er ekkert skárri.
1.696% Increase in Sudden Death Among Athletes
The number of athletes who died suddenly between January 2021 and April 2022 was 1.696% above the historical monthly norm between 1966 and 2004 42 per month compared to just 2.35 per month.
Umfjallanir utan úr heimi
- Nearly 900 young healthy athletes confirmed dead in 18 months, as British Heart Foundation releases ad normalizing heart attacks in children
- 1249 Athlete Cardiac Arrests or Serious Issues, with 847 Dead, Post-Covid Injection
- Heart issues fell star athletes in Uruguay, France, Finland; stroke leaves Maltese athlete, 18, with "severe brain damage"; Sky Sports' Jo Wilson diagnosed with Stage 3 cervical cancer; & more
- More Than 270 Deaths in US Athletes After Vaccination: Peer-Reviewed Letter
- Are Athletes Dropping Dead From The COVID Jab?
- There Are Unexplained Events Occurring In Many Countries
- How the COVID vaccines can kill athletes
- Is Sudden Adult Dealth Syndrome (SADS) Real Or Just An Illusion?
- The Undeniable Proof That COVID Injections Are Dangerous & Causing #CollapsingAthletes
- Are COVID-19 Vaccines Causing Sudden Cardiac Death?
Rauði þráðurinn í gegnum fréttaflutning um "heimsfaraldurinn" og "bólusetningum" á stærstum hluta mannkynsins er sá að lítið sem ekkert er fjallað um að:
Covid "bóluefnin" geta - og hafa valdið alvarlegum veikindum og dauða
Young hearts part 30 er þrítugasta vídeóið í samnefndri seríu vídeóa um skyndileg andlát ungs fólks, allt niður í lítil börn síðan byrjað var sprauta heimsbyggðina með þessum tilraunalyfjum.
"Cause Unknown"
Mjög áhugaverð og vönduð bók sem byggð er á rekjanlegum gögnum hefur nýlega verið gefin út, "Cause Unknown": The Epidemic of Sudden Deaths in 2021 & 2022.
Hún er skrifuð af Edward Dowd og hefur fengið gríðarlega góða dóma, eins og sjá má á sölusíðunni.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Enn er verið að hvetja fólk yfir sextugu í þessar eitursprautur hér á landi. Ég setti inn fyrirspurn á Facebook færslu Heilsugæslunnar fyrir nokkrum dögum síðan, en hún hefur ekki séð ástæðu til þess að svara þessari sjálfsögðu spurningu.
Það mætti velta fyrir sér hvers vegna ekki.
Getum við treyst ríkisstjórn Íslands og heilbrigðiskerfinu sem enn hvetur fólk í þessar tilraunasprautur fyrir lífi okkar og heilsu, eða hefur það brugðist okkur?
Svari hver fyrir sig.
Uppfærsla 22. janúar
Ég var að fá ábendingu um að hjartalæknarnir Berglind Aðalsteinsdóttir, Davíð O. Arnar og Gunnar Þór Gunnarsson hafi nýlega fengið styrk frá Rannís upp á allt að 55 milljónir til næstu þriggja ára til að rannsaka ofvaxtarhjartavöðvakvilla, og verður hún unnin í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu.
Við vitum að Kári Stefánsson hefur lofað bóluefna"nammið" í hástert og viljað senda þá sem ekki vildu þiggja sprauturnar út í Grímsey.
Er það þá tóm tilviljun að "bóluefnin" hafi ekki verið rædd sem hugsanleg orsök skyndidauða ungmenna?
Hvað haldið þið?
![]() |
Eftir því tekið þegar íþróttafólk hnígur niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.1.2023 kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
14.1.2023 | 21:52
Hvað býr að baki Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna?
Mikið óskaplega líta heimsmarkmið glóbalistanna vel út. Þeir ætla að útrýma fátækt og hungri, auka jöfnuð og stuðla að friði í heiminum, tryggja okkur menntun, tryggja jafnrétti, passa að allir hafi aðgang að vatni og heilbrigðisþjónustu, og byggja sjálfbærar borgir og samfélög, svo eitthvað sé nefnt.
Heimsmarkmiðin 17
Þetta hljómar eiginlega of gott og fallegt til að vera satt, enda er það svo.
Örstutt lýsing á áætlunum Sameinuðu þjóðanna, þýdd á íslensku af Björgu Sighvatsdóttur
Því miður lést Rosa árið 2021, en hér má lesa meira um þessa merku baráttukonu.
Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun
Ríkisstjórn Íslands hefur tengt heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna inn í stefnur sínar og áætlanir til ársins 2030, (ársins þegar við munum ekkert eiga, og vera hamingjusöm).
Markmiðin sem gilda á tímabilinu 2016-2030 eru 17 talsins, með 169 undirmarkmið. Ákaflega vel útfært plan í ótal liðum.
Kunnuglegir aðilar úr Davos klíkunni
Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni var stofnuð fyrir 11 árum. Í janúar árið 2021 héldu þau ráðstefnu.
Yfirskrift hennar var The Great Reset eða Nýtt upphaf í anda áherslna hjá leiðandi stofnunum eins og Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum) og B Team sem eru leiðandi í þeim umbreytingum sem þurfa að verða á viðskipta- og stjórnarháttum á heimsvísu.
Þar einblíndum við á að sú uppbygging sem blasir við okkur í kjölfar afleiðinga Covid-19 verði byggð á sjálfbærni, þar sem við byggjum upp atvinnulíf sem hugar að hag allra hagaðila.
- Halla Tómasdóttir - forstjóri B Team
- Nicole Schwab framkvæmdarstjóri Nature Based Solutions @World Economic Forum (dóttir Klaus Schwab) (Áherslan er mín)
- Michele Wucker metsöluhöfundur og forstjóri Gray Rhino & Company
- John McArthur forstjóri miðstöðvar um sjálfbæra þróun hjá Brookings stofnuninni
- Sasja Beslik forstjóri sjálfbærra fjárfestinga hjá J. Safra Sarasin Bank
Eins og sjá má hér að ofan, þá er Ísland fullgildur aðili að aðförinni gegn mannkyninu núna, (sjá 5 mínútna vídeó um "The Great Reset" hér plús hlekki á fleiri vídeó), þessari svokölluðu endurræsingu eða Nýja upphafi eins og það er kallað hér.
Lesist: Aðförinni að gagnslausu súrefnisþjófunum sem eru fyrir viti firrtri elítu sem er núna í óðaönn við að endurskapa heiminn að eigin hugmynd, vill stjórna hver fær að lifa og hver eigi að deyja og fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda".
Þetta fór í gang fyrir alvöru með þessum svokallaða "heimsfaraldri", og "bólusetningunum" í kjölfar hans.
Ein af aðgerðunum til að ná þessu fram er að WHO taki yfir stjórn á heilbrigðismálum heimsins.
Sjá einnig: The World Economic Forums Ten Creepy Goals
Heimsmarkmiðin líta afskaplega vel út á yfirborðinu, eiginlega allt of vel, en ef þið lesið og horfið á þetta efni sem ég hef sett hér inn, þá sjáið þið fljótt að þetta eru ekkert annað en fagrar umbúðir utanum illvirki gegn okkur "þessum óþörfu".
Ó borg mín borg....
Reykjavíkurborg, sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er búinn að keyra í þrot, vinnur að sjálfsögðu að þessum "háleitu markmiðum", enda má sjá það á þrengingu umferðargatna, þéttingu byggðar, borgarlínunni, grænum plönum og fleiru.
Á næstu sjö árum á að galdra fram úr tómum borgarsjóði einhverja tugi eða hundruði milljarða í þessi markmið, þannig að væntanlega verður seilst enn meira í okkar vasa.
Davos ráðstefnan byrjar 16. janúar 2023
Nú streyma glóbalistarnir ásamt ýmsum þjóðarleiðtogum til Davos á sína árlegu ráðstefnu um að halda áfram að ráðskast með örlög okkar hinna, og er nú haldin undir yfirskriftinni "Samstarf í sundruðum heimi".
3.000 útvöldum aðilum hefur verið boðið, og 5.000 hermenn munu gæta þeirra.
Eftir því sem ég best veit, þá verða engir á vegum Íslands núna, hins vegar verður Björgólfur Þór Björgólfsson þar sem fulltrúi UK.
Á síðasta ári flugu 1.040 einkaflugfélar með þetta fólk sem vill "bjarga loftslaginu" með því að við hin hættum að fljúga og keyra bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Þar að auki eigum við að fara að leggja pöddur okkur til munns.
Ég held að við getum öll verið sammála um nauðsyn þess að draga úr sóun og fara betur með umhverfið og það sem við eigum. Ég minnist þess þó ekki að hafa lesið mikið um alla milljarðana af plastgrímunum sem enda í sjónum með skelfilegum afleiðingum fyrir lífríki sjávar. Hvar er allt "græna" fólkið núna?
En að treysta þessum sturluðu illmennum fyrir því að "bjarga heiminum" er jafn gáfulegt og að treysta minki fyrir því að gæta hænsnahúss.
Bloggar | Breytt 16.1.2023 kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
10.1.2023 | 20:46
Stéttin sem við áttum að geta treyst, en brást okkur
Undanfarin þrjú ár hef ég mikið hugsað um ábyrgð og siðferði læknanna hér á landi sem við leitum til þegar við verðum veik eða slösum okkur. Vissulega er mikið til af frábærum læknum sem hafa læknað sjúklinga sína farsællega með reyndum aðferðum, því miður eru líka til sögur um hið gagnstæða, en það er ekki til umfjöllunar hér.
Hippókratesareiðurinn
Hippókratesareiðurinn er eitt af elstu bindandi skjölum í sögunni, skrifaður af Hippókratesi, og enn haldinn heilagur af læknum: Að meðhöndla sjúka eftir bestu getu, að varðveita friðhelgi sjúklings, að kenna næstu kynslóð leyndarmál læknisfræðinnar og svo framvegis.
En er hann enn haldinn heilagur af öllum læknum - eða bara sumum?
Medical Definition of Hippocratic Oath
Hugtakið um að beita ekki illsku (non-maleficence) er útfært með orðasambandinu "fyrst, gerðu engan skaða", og margir telja að það ætti að vera aðalatriðið, að það sé mikilvægara að skaða ekki sjúklinginn en að gera þeim gott, en það er hluti af hippokratesareiðnum sem læknar sverja.
Skoðum þessa setningu aðeins: Margir telja að það ætti að vera aðalatriðið, að það sé mikilvægara að skaða ekki sjúklinginn en að gera þeim gott.
Þetta hefur verið þverbrotið síðan farið var að kynna þessi "bóluefni" fyrir fólki árið 2020, sem átti að leiða okkur út úr "heimsfaraldri" sem reyndar voru 99,5% líkur á að lifa af, nema maður væri einstaklingur yfir sjötugu, og/eða með undirliggjandi sjúkdóma.
Svipað og hjá gömlu góðu flensunni sem "tók sér pásu" þegar "drápsveiran" kom.
Eitt skyldi yfir alla ganga, sprauta skyldi þá með efnum sem aldrei höfðu verið notuð á mannfólk áður, en fengu neyðarleyfi þrátt fyrir að vera enn á tilraunastigi undir því yfirskini að þau væru eina leiðin út úr "heimsfaraldrinum".
Til þess að geta það, voru margreynd lyf sem höfðu gagnast vel við samskonar veikindum bönnuð (líka hér á landi), og sögð ekki vera nægilega prófuð, eins og til dæmis áratuga gamla Nóbelsverðlaunalyfið Ivermectin. Hins vegar fékk lyfið Remdesivir markaðsleyfi hér á Íslandi gegn Covid, ég veit þó ekki hvort það sé enn notað hér.
Uppfærsla: Ég var að fá það staðfest eftir áreiðanlegum heimildum að Remdesivir er ennþá notað hér á Íslandi, og það er ennþá verið að panta það til landsins!
Og að það sé framleitt undir stjórn Íslendingsins Sigurðar Óla Ólafssonar, forstjóra Hikma.
Remdesivir has emerged as liver and kidney toxic and a failed EBOLA drug, failed! It was a drug in search of a disease and found one here due to Fauci and his standard of care!
Trúgjörnu tilraunadýrin
Við vorum gerð að tilraunadýrum lyfjarisanna án þess að okkur væri sagt frá því, við treystum ríkisstjórninni, þríeykinu og Kára í blindni, og hlýddum SMS skipununum þegar þær komu í símana okkar, rétt eins og hann Sölvi sumarið 2021:
Ég geri bara eins og mér er sagt og hef engar sérstakar skoðanir á þessu. Bara pínu töff að vera með bæði, Astra og Pfizer, sagði Sölvi Snær Magnússon sem beið eftir sínum skammti í heillangri röð fyrir utan Laugardalshöll í dag."
Brotin sem framin hafa verið gegn íslensku þjóðinni - og mannkyninu öllu:
Helsinkiyfirlýsingin sem samþykkt var á 18. heimsþingi lækna í Helsinki í júní 1964 var um siðfræðilegar meginreglur fyrir læknisfræðilegar rannsóknir á mönnum.
Alþjóðafélag lækna (WMA) hefur þróað Helsinkiyfirlýsinguna sem greinargerð um siðfræðilegar meginreglur fyrir læknisfræðilegar rannsóknir á mönnum, þar með taldar rannsóknir á persónugreinanlegum gögnum og efnum úr mönnum.
Ætlast er til að yfirlýsingin sé lesin í heild og að tillit sé tekið til allra annarra viðeigandi greina þegar einstökum greinum hennar er beitt.
Genfaryfirlýsingin var upphaflega samþykkt af 2. allsherjarþingi Alþjóðalæknafélagsins í Genf í Sviss í september 1948, endurskoðað af 22. allsherjarþinginu í Sydney í Ástralíu í ágúst 1968, og tók fleiri breytingum síðar.
SEM LÆKNIR
HEITI ÉG ÞVÍ að helga líf mitt þjónustu í þágu mannúðar
ÉG MUN HAFA HEILBRIGÐI og vellíðan sjúklinga minna í fyrirrúmi
ÉG MUN VIRÐA sjálfræði og mannlega reisn sjúklinga minna
ÉG MUN VIRÐA mannslíf staðfastlega til hins ítrasta
ÉG MUN EKKI LÁTA aldur, sjúkleika eða fötlun, trúarbrögð, uppruna, kyn, þjóðerni, stjórnmálatengsl, kynþátt, kynhneigð, þjóðfélagslega stöðu eða neitt annað hafa áhrif á skyldu mína gagnvart sjúklingum mínum
Reglugerð um klínískar lyfjarannsóknir á mönnum
Í þessari reglugerð eru sett sérákvæði varðandi framkvæmd klínískra lyfjarannsókna, þ.m.t. fjölsetrarannsóknir á mönnum með lyfjum einkum að því er varðar framkvæmd góðra klínískra starfshátta við lyfjarannsóknir (GCP).
Upplýst samþykki - Lög & reglugerðir um hvernig á að upplýsa þátttakendur í klínískri lyfjarannsókn.
Markmið þess að afla upplýsts samþykkis (informed consent) frá þátttakendum í vísindarannsókn á heilbrigðissviði er að tryggja og vernda réttindi og hagsmuni þeirra:
Virðingu fyrir mannhelgi að fólk sé ekki viðfangsefni vísindarannsókna á heilbrigðissviði að óþörfu og njóti tilhlýðilegrar virðingar;
Umhyggju fyrir heilsu að óþægindi eða áhætta vegna þátttöku í rannsókn sé ávallt innan eðlilegra marka og að markmiðið sé að leita leiða til að greina eða lækna sjúkdóma, skilja eðli þeirra eða bæta líðan;
Virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti einstaklings um þátttöku í rannsókn eða ekki.
Að virtur er óskoraður umráðaréttur viðkomandi einstaklings yfir heilsufarsupplýsingum og lífsýnum sem persónu hans varðar.
Þátttakandi skal fyrirfram og formlega samþykkja þátttöku í vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Áður en samþykki er veitt skal gefa ítarlegar upplýsingar um rannsóknina. Þátttakanda skal gerð grein fyrir því að hann geti hafnað þátttöku í rannsókn og hvenær sem er hætt þátttöku eftir að hún er hafin.
Þá má líka benda á samning um vernd mannréttinda og mannlegrar reisnar með hliðsjón af starfsemi á sviði líffræði og læknisfræði.
Mér vitanlega hefur Vísindasiðanefnd ekki veitt samþykki fyrir þessum lyfjatilraunum á fólki, þótt sú heimild eigi að liggja fyrir áður, hún hefur samkvæmt þessari frétt ekki einu sinni fengið umsókn um hana!
Ekki er heimilt að hefja vísindarannsókn á heilbrigðissviði nema vísindasiðanefnd eða siðanefnd heilbrigðisrannsókna hafi veitt leyfi fyrir rannsókninni.
Framkvæmd þessara "bólusetninga" var eins kolólögleg og hugsast getur!
Fólki var smalað eins og rollum í réttirnar í Höllina með SMS boðunum, engum lögum, stöðlum, siðareglum eða reglugerðum um svona lyfjatilraunir fylgt, eða fólk beðið um að veita upplýst samþykki sitt fyrir þátttöku sinni.
Svona hljóðaði ein af ógeðfelldu skipununum sem ég fékk, 7 mínútum eftir að ég "átti" að vera mætt:
(Kristín) Sóttvarnalæknir: hér er strikamerki fyrir bólusetningu 26.05.2021 klukkan 14:50.
Staðsetning: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. Laugardalshöll aðalinngangur.
Aukaskammtur Pfizer. Mætið sem allra fyrst en í síðasta lagi 15:30. Bólusett í almannarými með Pfizer. Getum ekki lofað skammti. Munið grímuskyldu í Höllinni.
Seinna fékk ég samskonar skipanir um að koma í sprautur með einhverjum allt öðrum "bóluefnum".
Læknastéttin
Það blasir við að læknastéttin sem okkur hefur verið kennt að treysta, hefur brugðist okkur. Það skal enginn segja mér að enginn læknir hafi tekið á móti sjúklingi með alvarlegar aukaverkanir eftir sprauturnar, og ekki séð tengingar á milli skyndilegra veikinda, hjartaáfalla, heilablóðfalla, andláta - og sprautanna.
Hvers vegna beittu þeir sér ekki fyrir því sem læknar sem sóru eiðinn "fyrst, gerðu engan skaða", að þessar "bólusetningar" yrðu stöðvaðar strax og fyrstu tilkynningarnar um aukaverkanirnar og andlátin voru tilkynnt?
Yfir sex þúsund tilkynntar aukaverkanir virðast víst ekki teljast til skaða.
Hvað skýrir þögn íslenskra lækna og vísindamanna?
Aðeins örfáir læknar hafa tjáð sig opinberlega, þá helst barnalæknar minnir mig sem lýstu yfir áhyggjum sínum vegna "bólusetninga" á börnum, annars er heimilislæknirinn Guðmundur Karl Snæbjörnsson (Kalli Snæ) sá eini sem hefur tjáð sig um "bóluefnin", og skaðsemi þeirra.
Uppfærsla: Atli Árnason læknir fékk birta grein í Morgunblaðinu í janúar 2022, þar sem hann varar við þeirri fífldirfsku og mögulega faglegum hroka að ætla sér að sprauta börn með efni sem er með neyðarleyfi.
Hvað íslenskir læknar og vísindamenn ræða sín á milli prívat veit enginn nema þeir, en engir aðrir hafa komið fram opinberlega mér vitanlega til að vara fólk við.
En þúsundir erlendra hafa gert það, sem betur fer. Þeir eru að sjálfsögðu ritskoðaðir og fá ekki áheyrn í spilltu meginstraumsfjölmiðlunum.
- Hvernig bóluefnin voru samþykkt með sviksamlegum hætti, að mati Dr. Michael Yeadon
- Þetta er bara pólitík í læknisleik, trúðu engu af því sem búið er að segja þér!
- Sannleikurinn um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" er sífellt að koma betur og betur upp á yfirborðið
- Hundruðir lækna lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna "bóluefnanna"
- Milljón dollara veðmálið um sönnun fyrir gagnsemi "bóluefnanna", sem enginn vill taka
Hvað veldur þessari ærandi þögn þeirra? Þrýstingur "að ofan", ótti um stöðumissi, hugleysi, hætta á missi rannsóknarstyrkja eða mútugreiðslna? Spyr sá sem ekki veit.
En með þögn sinni eru þeir búnir að gjaldfella læknaeiðinn sinn "fyrst, gerðu engan skaða", sem þeir sóru við viðtöku læknisréttinda sinna.
Megi þeir hafa ævarandi skömm fyrir.
Nürnberg réttarhöldin 1947
Þessi réttarhöld voru haldin af gefnu tilefni til þess að koma í veg fyrir hræðilegir atburðir endurtækju sig aftur.
The voluntary consent of the human subject is absolutely essential. This means that the person involved should have legal capacity to give consent; should be so situated as to be able to exercise free power of choice, without the intervention of any element of force, fraud, deceit, duress, overreaching, or other ulterior form of constraint or coercion; and should have sufficient knowledge and comprehension of the elements of the subject matter involved as to enable him to make an understanding and enlightened decision.
Glæpirnir sem búið er að fremja gegn mannkyninu með þessum tilraunabóluefnum eru ærin tilefni til réttarhalda um allan heim í anda Nürnberg réttarhaldanna.
En hvað er raunverulega á bak við þessa stærstu glæpi sem framdir hafa verið gegn mannkyninu? Það má sjá meira um það hér í síðasta blogginu mínu.
Bloggar | Breytt 12.1.2023 kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.1.2023 | 21:20
Vaknið - það er hætta í aðsigi!
Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér, en ég óttast að við séum á leið inn í nýtt tímabil skimana, hafta og grímna, enda eru ýmis teikn á lofti um það.
Einnig er mikil hætta á að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin muni ná völdum yfir stjórnun á heilbrigðismálum heimsins, en ég reikna ekki með að fólk átti sig á hættunni sem af því stafar.
Rétt fyrir áramót sagði Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir þetta meðal annars í viðtali:
"Kæmi fram nýtt afbrigði gæti það skapað mjög mikinn usla hér".
Ef einhver veit ekki um hvað hún er að tala þarna, þá eru það afbrigði af "drápsvírusnum" ógurlega sem heil 82% landsmanna 5 ára og eldri teljast fullbólusettir gegn, og miðast það við tvo skammta af bóluefni.
210.670 einstaklingar hafa fengið að minnsta kosti þrjá skammta, og 60.483 fengið fjóra.
Það væri fróðlegt að vita hvers vegna hið marglofaða samfélagslega ónæmi virðist ekki hafa náðst ennþá, kannski hefur það bara ákveðið að fara í frí rétt eins og gamla góða flensan sem tók sér kurteisispásu til að hleypa "drápsvírusnum" að borðinu.
Nú er nýjasta ógnin víst enn og aftur upprunnin í Kína, og var hún tilefni fundar heilbrigðisyfirvalda með fulltrúum Sóttvarnastofnunar Evrópu og fulltrúum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) ásamt öðrum löndum í Evrópu um útbreiðslu "drápspestarinnar".
Hér er stórt hættumerki!
Ítalía er eina Evrópuríkið sem hefur tekið ákvörðun um aðgerðir. Það er samt frekar verið að mæla með að Evrópa sé með samhæfðar aðgerðir. Það er ekki gagnlegt að lönd séu að gera mismunandi hluti, segir Guðrún (Áherslan er mín)
Ég get ekki lesið annað út úr þessu en að við verðum að vera undir það búin að þegar það kemur einhver tilskipun um "sóttvarnaraðgerðir" utan úr heimi, þá verðum við að gangast undir hana, enda gerði Þórólfur það margoft, og að fyrst verði byrjað á bölvuðu grímunum.
Hver man ekki eftir því að Þórólfur mælti ekki með grímunotkun í júní 2020, og sagði meðal annars að:
... notkun á andlitsgrímum geti leitt til þess að fólk gæti sín ekki eins vel á öðru fólki og að það sjáist vel að fólk sé stöðugt að káfa á grímunum. Grímunotkun geti því hugsanlega stuðlað að aukningu smita.
En sagði stuttu seinna að skoðun hans á grímum hafði breyst, það komu víst einhverjar frekari upplýsingar fram að hans sögn, án þess reyndar að gefa upp hverjar þær upplýsingar væru og hvaðan þær kæmu.
Og hann skellti á okkur grímuskyldu aftur og aftur, og auðmjúk veiruhrædd þjóðin hlýddi.
Þetta er allt eitthvað sem við höfum upplifað aftur og aftur í hátt í þrjú ár núna, fyrst var einhver hætta út í heimi sem við þurftum líklegast ekki að hafa miklar áhyggjur af.
Svo fór hættan að nálgast okkur og sóttvarnalæknir byrjaði að lýsa yfir áhyggjum sínum á ástandinu, en við gætum samt alveg verið róleg, í bili að minnsta kosti.
Hinir íslensku "froskar"
Við vorum "froskarnir" sem voru settir í volgt vatn þar sem við undum okkur afskaplega vel í öruggum faðmi Þórólfs sem stuttu síðar fékk heiðursorðu (ásamt hinum úr þríeykinu), fyrir að hafa leitt okkur svo vel út úr "heimsfaraldrinum".
Hefðum við verið sett ofan í of heitt vatn, hefðum við stokkið strax uppúr. En þar sem vatnið var bara volgt og notalegt í byrjun, þá tókum við ekkert eftir því að það hitnaði smám saman og fór að sjóða.
Ég er hér að vitna í frábæra grein "Hvernig skal sjóða íslenskan frosk" eftir Viggó Örn Jónsson sem allir ættu að lesa, en hún var birt á Visir.is þann 6. apríl 2021, og lokaorð hennar voru: Vel soðnir froskar eru hlýðnir froskar.
Það er leiðinlegt að þurfa að segja það, en stærstur hluti íslensku þjóðarinnar eru vel soðnir og hlýðnir "froskar" sem trúa flestu gagnrýnislaust sem þeir sjá, heyra og lesa í fjölmiðlunum, og hvað þá ef það kom frá Þórólfi meðan hann var í embætti.
Fólk hefur flykkst í þessi gagnslausu PCR próf, jafnvel fullfrískt, til að athuga hvort það sé veikt. Man einhver eftir þessum fáránlegu og bara fyndnu tilefnum sem Víðir tiltók sem tilefni til sýnatöku?
Svo fór það í stuttermabol í sprauturnar þegar það fékk SMS skipun um það. Fyrst áttu ein eða tvær að duga, svo var víst "nauðsynlegt" að bæta einni við, og svo nú í haust þeirri fjórðu. Samkvæmt opinberum gögnum hafa hvorki meira né minna en 60.483 manns farið í hana.
Þúsundir íslenskra manna, kvenna og barna hafa orðið fyrir aukaverkunum, sumum óafturkræfum eða hafa jafnvel látist eftir þessar eitursprautur eins og ég kalla þær.
En það þykir ekki fréttaefni hér á landi.
Hvers vegna kalla ég þetta eitursprautur?
Vegna þess að þær eru búnar að valda ómældum skaða um allan heim, og þrátt fyrir það er ennþá verið að hvetja fólk í fleiri sprautur. Frásagnir sem ég er búin að lesa um fórnarlömb "bóluefnanna" skipta þúsundum núna, og ég sé tugi nýrra á hverjum einasta degi, ekki þó á RÚV eða öðrum miðlum hér á landi sem eru á styrkjum frá ríkinu.
Skrif um fórnarlömb "bólusetninganna" má finna í mörgum eldri bloggum mínum.
En hér eru örfá dæmi:
- Ungu hjörtun - nítjánda vídeóið er komið út
- Vídeóin um ungt sem dettur skyndilega dautt niður eru orðin 29
- Hundruðir lækna lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna "bóluefnanna"
- Sannleikurinn um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" er sífellt að koma betur og betur upp á yfirborðið.
- Skelfileg aukning krabbameina í heiminum eftir "bólusetningarnar" - hvernig er staðan á Íslandi?
- Tumors Sprouting Overnight? New COVID Jab Horror Stories
- Sudden Death: The No. 1 Cause of Death for Under 65s in 2021
Þann 21. maí 2022 skrifaði ég blogg þar sem ég spurði hvort fólk ætlaði að falla fyrir þessu eina ferðina enn, en þá var búið að boða nýjan "heimsfaraldur", nú af apabólu.
Sem betur fer tóku netverjar hressilega við sér með gríni og háði, sem virðist hafa reynst hið besta bóluefni gegn henni, enda hefur lítið spurst til þessa "faraldurs" síðan.
WHO ætlar sér að taka yfir heilbrigðismál heimsins, vissuð þið það?
Það þýðir það einfaldlega að hvenær sem þeim dettur í hug, geti þau lýst yfir einhverju neyðarástandi, hvort það sé vegna einhverra veira, eða jafnvel "loftslagsvárinnar" og hneppt okkur í hlekki og skikkað okkur í einhverjar sprautur þegar það "á við". Og við munum ekkert geta gert, við verðum bara að hlýða!
Enda er þau búin að boða röð faraldra smitsjúkdóma (<- lesið þetta) næstu 10 árin.
James Roguski
James Roguski er rannsakandi, rithöfundur, talsmaður náttúrulegrar heilsu og aðgerðarsinni sem telur að gömlu kerfin séu réttilega að hrynja, svo við verðum að byggja fljótt upp ný í stað þeirra.
Hann hefur afhjúpað skjöl varðandi breytingar á alþjóðalögum og gerir allt sem hann getur núna til að afhjúpa hina leynilega áætlun WHO.
Hann hefur lagst í gríðarlega mikla og vandaða rannsóknarvinnu til að fletta ofan af þessum óhugnanlegu áætlunum WHO um yfirtöku stjórnunar á heilbrigðismálum heimsins, og þetta þurfið þið að kynna ykkur vel og vandlega.
- RIGHT NOW would be a very good time to wake up!
- Pandemic Treaty Update
- The Proposed Amendments to The International Health Regulations
- The WHOs Pandemic Treaty Just Broke Itself
- Help Spread The Word
- 100 Reasons
RED ALERT! WHO Has Written a REMOVAL of Human Dignity, Rights & Freedom
Núna er viti firrt elíta að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda" að þeirra mati, meðal annars með þessum eitursprautum, og athugið að nánast allt sem okkur hefur verið sagt að séu "samsæriskenningar", er að rætast eitt af öðru núna.
Í þessu viðtali við hann sjáið þið að þessi yfirtaka WHO á heilbrigðismálum heimsins hefur ekkert með heilsu að gera, heldur að ná völdum yfir lífum okkar, og að sjálfsögðu peninga líka.
Áætlað er að hin ofurleynilega endurskoðunarnefnd um heilbrigðisreglur (IHRRC) komi saman núna 9.-13. janúar 2023, og ætla þeir að leggja fram breytingarnar 15. janúar 2023.
Vissuð þið að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) var bókstaflega sett á laggirnar til að starfa sem eins heims ríkisstjórn?
Eða að hún er í nánu samstarfi við The World Economic Forum (WEF), Bill Gates og fleiri sem ætla að skikka okkur til að búa á "15 mínútna svæðum" eins og á að gera í Oxford í Bretlandi árið 2024, og það undir fullkomnu rafrænu eftirliti?
Under the guise of "controlling traffic," officials are attempting to control the lives of the people in Oxford, England. This is a "test case" that must NOT be allowed to set a precedent.
Þessi illu öfl - sem hafa hvergi verið kjörin til slíks, telja sig mega fækka mannkyninu, "the useless eaters" sem þau kalla okkur, og láta þá sem eftir lifa, lifa undir fullkominni stjórn þeirra, og í kringum árið 2030 munum við ekkert eiga, og vera hamingjusöm samkvæmt því sem WEF er búið að tilkynna okkur.
Þessir illvirkjar eru ekkert að leyna áformum sínum og birta þau reglulega opinberlega á vefsíðum sínum. Leitið ykkur sjálf upplýsinga en ekki nota hið ritstýrða Google, ég nota oft yandex.com sem sýnir mér upplýsingar sem Google felur.
Það sorglega er að þeim er að takast að ná fram áætlunum sínum, sem eru búnar að vera í undirbúningi áratugum saman.
Nema við öll sem eitt segjum nei við samþykkjum þetta ekki. En munum við sem mannkyn gera það?
Því miður er líklegra að við munum halda áfram að vera "soðnir froskar" sem munum segja: Ha, hvernig gat þetta gerst?
Þegar það verður orðið of seint og búið er að svipta okkur öllu svo hægt og rólega að við tókum ekki eftir því gerast.
Bloggar | Breytt 6.1.2023 kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.12.2022 | 21:30
Hver á að ráða hver fær að lifa og hver á að deyja?
Hver hefur heimild til að ákveða hverjir eigi að fá að lifa líf sitt til enda, eða hvort þeir eigi að deyja - með lífslokameðferð?
Nú hefur Bill Gates sagt við heimsleiðtoga að það sé tími kominn til að byrja að tala um "dauðanefndir" sem dæmi venjulegt löghlýðið fólk til dauða fyrir það eitt að vera einskis nýtt elítunni.
Þessi maður hefur aldrei verið kjörinn til að leiða heilbrigðismál heimsins, hann hefur enga menntun í þeim málum, en hefur haft gríðarleg áhrif á því sviði í krafti auðs síns og samstarfs við aðra meðlimi viti firrtrar elítu (WEF o.fl.) sem er núna að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda".
Hann er orðinn svo hrokafullur að hann er óhræddur við að útlista glaðhlakkalega hugsanir sínar og áætlanir fyrir framan sjónvarpsmyndavélina eins og eins og þær séu fullkomlega eðlilegar.
Það er óhugnanlegt að horfa á þetta (sjá hlekk á vídeóið neðar), en þetta er bara í anda þessara afla sem líta á "okkur hin" sem sníkjudýr sem erum bara fyrir þeim í elítunni.
Hann réttlætir þessar hugmyndir sínar þannig að peningum sem færu í lækniskostnað til að halda lífi í "óþörfu (gömlu) fólki" væri betur varið til að borga kennurum laun, og að þetta sparaði líka lífeyrissjóðsgreiðslur til fólksins. Er kannski búið að stela lífeyrissjóðunum þeirra?
Enginn hefur áður borið saman laun kennara og rétt aldraðs fólks til að njóta reisnar og lífsgæða á sínum síðustu metrum lífsins. Hvert hafa skattpeningar þessa fólks farið, sérstaklega síðustu misserin? Til bóluefnakaupa, stríðsreksturs í Úkraínu eða "loftslagsvárinnar", rétt eins og hér á landi?
Þessar "dauðanefndir" hans eru ekkert annað þráhyggja glóbalista elítunnar fyrir fækkun mannkynsins, og er hluti af endurræsingunni miklu, sem byrjaði fyrir alvöru með "heimsfaraldrinum". ( <- lesið þetta!)
Endatakmarkið er að ná alræði yfir mannkyninu öllu.
Þessar áætlanir Bill Gates um "dauðanefndir" endurspegla talsmátann sem World Economic Forum notaði varðandi líknardráp og djöfullega nýja lausn kanadískra stjórnvalda til að leysa verðbólgu, heimilisleysi, aukningu glæpa og matarskort með líknardrápum fyrir fátæka.
Ríkisstjórn Justin Trudeau, sem er útskrifaður úr The Young Global Leaders skóla Klaus Schwab, segir núna að þau séu núna að bjóðast til að aðstoða við "líknar"dráp fólks sem "er of fátækt til að halda áfram að lifa með reisn".
Þið sem lesið ykkur til gagns ættuð núna að vita hvernig Trudeau og hans ríkisstjórn hefur brotið gegn þjóð sinni undanfarin misseri.
Sjá vídeóið hér.
Bill Gates og félagar hans í WEF hafa ítök víða, eins og til dæmis hjá WHO, sem berst núna fyrir alræðisvaldi yfir stjórn heilbrigðismála heimsbyggðarinnar.
Lítum aðeins á nýlegt dæmi.
G20 ráðstefnan á Bali í Indónesíu
Hvaða þjóðir eru í G20?
The G20 is a forum comprising nineteen countries with some of the worlds largest economies, as well as the European Union (EU). The countries are Argentina, Australia, Brazil, Canada, China, France, Germany, India, Indonesia, Italy, Japan, Mexico, Russia, Saudi Arabia, South Africa, South Korea, Turkey, the United Kingdom (UK), and the United States. Spain is invited as a permanent guest.
Spurning sem á fullkomlega rétt á sér
Sitthvað um G20 ráðstefnuna
Why are Bill Gates and Klaus Schwab at the G20?
Yuval Harari, helsti ráðgjafi Klaus Schwab hjá The World Economic Forum
Þessi maður er andlit illskunnar, sem þykir hið eðlilegasta mál að útskýra fyrir okkur hinum hvaða álit hann hefur á okkur, og hvað muni bíða okkar (ef við leyfum því að gerast!)
Og við munum að öllum líkindum gera það því það er búið að innprenta svo rækilega í okkur að allt það sem margir hafa verið að vara okkur við undanfarin tæp 3 ár séu bara samsæriskenningar, sem eru þó að rætast hver af annarri þessa dagana.
Yuval Noah Harari | "People Are Afraid of Vaccines. They View Vaccines As Alien & Unnatural."
WEFs Yuval Harari says Covid vaccines are turning humans into cyborgs
We are now hackable humans: Yuval Harari, advisor to Klaus Schwab
Useless, meaningless, and worthless people - by Yuval Noah Harari
... Jesus rising from the dead and the son of God, this is fake news
Yuval Harari - Evil people exposed
Hlustið á hvað þessi kona hefur að segja okkur
Látum frásögn hennar verða okkur víti til varnaðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.12.2022 | 10:59
"Samsæriskenningarnar" sem eru að rætast hver af annarri.
Flestir, ef ekki allir sem hafa reynt að gera fólki grein fyrir því sem verið er að gera mannkyninu núna, hafa fengið á sig stimpil sem álhattaberandi samsæriskenningasmiðir, eða eitthvað þaðan af verra.
Bara fyrir að reyna að vekja fólk og fá það til að staldra við og íhuga hvort allt sem okkur er sagt í fjölmiðlunum alla daga sé satt og rétt, eða hvort önnur viðhorf og kannski sannleikann sjálfan megi finna annars staðar.
Búin var til andúð gegn þeim sem kusu að afneita genabreytandi læknismeðferð sem þeir þurftu ekki á að halda og kærðu sig ekki um. Að vilja ekki láta sprauta sig var kallað drullusokksháttur, og að þeir sem vildu það ekki væru best geymdir í Grímsey.
Þeir voru óvelkomnir á jólatónleika, eða jafnvel líka í jólaboð með fjölskyldum sínum.
Munið þið ekki eftir þessu, það er ekki lengra en ár síðan þetta var!
"Samsæriskenningarnar"
Hér má sjá nokkur atriði sem voru samstundis stimpluð sem samsæriskenningar, en hafa reynst sönn eftir allt saman, og mætti tína fleiri til.
Þetta má allt finna ef fólk hefur fyrir því að leita sér upplýsinga, við getum þó þakkað fyrir að aðgerðirnar hér á landi voru ekki alveg jafn harkalegar og skelfilegar og í mörgum löndum.
Fleiri "samsæriskenningar" sem hafa ræst
Vísinda- og tæknimálaskrifstofa Hvíta hússins hefur sett af stað fimm ára rannsóknaráætlun sem miðar að því að þróa aðferðir til að endurkasta sólarljósi aftur út í geiminn til að kæla plánetuna og bjarga henni frá hnattrænni hlýnun.
Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis þarna, dettur einhverjum eitthvað í hug?
I Do Not Spread Conspiracy Theories - I Report on Actual News
Gæti nokkuð verið að Bill Gates komi að fjármögnun blokkunar sólargeisla til jarðarinnar? Hann hefur nú fjármagnað - eða fjárfest í öðru eins, eins og til dæmis bóluefnum sem hann hefur opinberlega sagt sínar bestu fjárfestingar.
Bill Gates wants conspiracy theories about him to go away
Þarna barmar hann sér meðal annars yfir "falsfréttum" um sig sjálfan og Anthony Fauci.
Þú þarft að þekkja sögu hans og þeirra félaga til að skilja að þeir eru einir mestu glæpamenn sögunnar, sem í krafti valda sinna og auðmagns eru búnir að fjármagna Covid "bóluefnin", sem þegar hafa skaðað og/eða drepið tugmilljónir manns, allt niður í smábörn.
Hér er tveggja ára frétt á RÚV undir yfirskriftinni Bill Gates vúdúdúkka COVID samsæriskenninga, og það er áhugavert að lesa hana núna í ljósi þess að allt sem þar er talið upp eru hreint engar samsæriskenningar, eitthvað sem við öll ættum að sjá núna.
The credit card that tracks your CO2 emissions
Ímyndaðu þér að þú sért við búðarkassann eftir að hafa fundið þér fína steik í kvöldmatinn. Þú nærð í kreditkortið þitt til að greiða, en þér til undrunar er kaupunum hafnað.
Það kemur í ljós að þú hefur farið yfir mánaðarlega CO2 hámarkið þitt og þú mátt ekki kaupa þessa steik. Það eina sem þú getur gert er að skila steikinni og kaupa pöddumat eða eitthvað álíka geðslegt.
Svona kreditkort er verið að innleiða víða, og mun verða innleitt í fleiri löndum sem partur af baráttunni gegn "loftslagsvá" milljarðamæringanna sem eru að innleiða Endurræsinguna miklu á heiminum núna af fullum krafti.
Hér er einstakt viðtal við konu að nafni Melissa Cuimmei, sem enginn má láta fram hjá sér fara, þar sem hún útskýrir þetta hér að ofan.
Listen carefully from the beginning to the end. An investigate journalist predicted international developments two years ago and everything has come true. Among other things, she talks about electronic IDs being a trap to lock people into the CBDC system... listen!
Og hér má sjá að Ísland er enn á rannsóknarstigi með rafkrónu.
No longer a conspiracy theory: Dutch farmers must make way for asylum seekers
Þetta er að öllum líkindum eitthvað sem fæstir íslenskir fjölmiðlalesendur hafa hugmynd um, en verið er að neyða þúsundir hollenskra bænda að bregða búi núna, enda er forseti landsins ákafur fylgismaður Endurræsingarinnar miklu, og einn af The Young Global Leaders sem eru útskrifaðir frá The World Economic Forum, forsprökkum Endurræsingarinnar.
Property in German town to be confiscated for asylum seekers
Hingað til hefur því verið vísað á bug sem illgjarnri "samsæriskenningu" að búseturými handa hælisleitendum myndi á endanum verða gert upptækt í Þýskalandi. En þessi "kenning" er því miður að rætast. Í Fürstenfeldbruck, skammt frá München, er verið að innleiða það núna.
Elitists Want A One World Government; Its Not A Conspiracy Theory
Í stuttu vídeói þarna um Endurræsinguna miklu má meðal annars sjá John Kerry nokkurn sem á tvær snekkjur, fullt af húsum og bílum og flýgur í einkaþotunni sinni milli loftslagsráðstefna, og nú á þeirri síðustu í nóvember til að krefjast milljarða dollara í baráttu við "loftslagsvána".
Það væri forvitnilegt að vita hvað stór hluti rynni í hans eigin vasa...
Confirming Conspiracy Theories when they prove True is Fun
Hér er farið yfir nokkur dæmi um "samsæriskenningar" sem hafa í raun reynst réttar.
"Whats The Difference Between A "Conspiracy Theory" And The Truth? About 6 Months."
Örstutt yfirferð yfir fullyrðingar og raunveruleika um Covid "bóluefnin" og "heimsfaraldurinn", og sýnishorn af heilbrigðisstarfsmönnum sem voru víst að sligast undan álagi vegna hans, en höfðu þó tíma til að æfa og taka upp flotta dansa.
Tilviljanir, eða hvað?
Hér má sjá nokkrar opinberar persónur segja frá því að þau hafi greinst með Covid, en hafi mild einkenni sem þau þakki því að vera bólusett, og auðvitað hvetja flest þeirra fólk til að fara í sprautur og búst.
Það mætti halda að þau hafi öll fengið sama handritið til að fara eftir, og þetta minnir ansi mikið á þennan "fréttaflutning" um meinta loftslagshlýnun af manna völdum.
Sé fólk ekki enn farið að gera sér grein fyrir því, þá eru eru það fjölmiðlarnir og samfélagsmiðlarnir sem eru notaðir til að beita okkur stanslausum hræðsluáróðri, svo hægt sé að beygja okkur til hlýðni.
Hér má sjá dæmi um það, þar sem Melissa Fleming aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir á fundi WEF, að þau eigi vísindin.
Nokkar af aðal klappstýrum Covid "bóluefnanna" í USA
Það er búið að margstanda flest ef ekki allt þetta fólk af tómum lygum í gegn um þennan "heimsfaraldur".
Líka hér á landi sem ég hef margoft bloggað um og rakið lygar þeirra ofan í þau. Þar má nefna Þórólf, Ragnheiði Ósk, Lyfjastofnun og fleiri.
Er þetta ekki einmitt málið?
Að í stað þess að trúa öllu athugasemdalaust sem er matað ofan í okkur á flestum vígstöðvum alla daga, að leita okkur upplýsinga annars staðar, og vera opin fyrir því að það sé jafnvel verið að ljúga að okkur, af fólki sem við höldum að við getum treyst, eða höfum kosið til að fara með stjórn landsins og gæta hagsmuna okkar.
Þá fyrst getum við farið að greina á milli hvað er rétt og hvað er rangt.
Instead of "Conspiracy Theorist" I prefer the name "Connect The Dots Specialist"
Dr. Doug Corrigan
Bloggar | Breytt 7.3.2023 kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.11.2022 | 21:54
Heimurinn hitnar tvöfalt hraðar en restin af heiminum!
Skilur einhver þetta?
Svipaður fréttaflutningur og þessi hefur dunið á okkur í gegnum árin og áratugina, sérstaklega þegar keyra þarf einhvern málstað í gang, venjulega til að hræða úr okkur líftóruna, því þá er auðvelt að stjórna okkur.
Eins og sjá má hér að neðan, þá nota þessar fréttaveitur sömu stöðluðu fyrirsagnirnar um loftslagshlýnun í grunninn, eina breytan eru staðirnir.
Maður fær ekki betur séð en að verið sé að nota sama handritið þarna alls staðar.
Þetta minnir á fréttaflutninginn af "heimsfaraldrinum" sem var í svipuðum dúr alls staðar, líka hér á landi.
Frasarnir voru hinir sömu, við erum öll í þessu saman, við erum öll ábyrg, og hreiðrum um okkur í jóla- og páskakúlum. Nákvæmlega sömu frasarnir og ég sá í enskumælandi löndum.
Sama "fréttin", sitthvort landið
Týpískur hræðsluáróður
Það er búið að hræða okkur í áratugi með því að hlýnunin sé svo mikil að heilu þjóðirnar geti þurrkast út vegna hækkandi sjávarmáls ef hnattrænu hlýnuninni yrði ekki snúið við fyrir árið 2000, og að við munum hætta að fá snjó.
Árið er 2022 núna, og engar þjóðir hafa þurrkast út og við fáum ennþá snjó, og stundum mikið af honum.
Og á sama hátt er búið að hræða okkur með hverri heimsplágunni á fætur annarri, og Covid óttaherferðin heppnaðist svo vel að núna er búið að sprauta stóran hluta mannkyns með einhverjum efnum sem þegar eru búin að skaða og/eða drepa milljónir manna, kvenna og barna um heim allan.
Hér má sjá langan lista af ámóta heimsendafréttum.
Faraldurinn sem dó út þegjandi og hljóðalaust
Og í vor var reynt að hræða okkur eina ferðina enn, þegar þegar kynntur var til sögunnar nýjasti "heimsfaraldurinn", apabólan, en við megum víst eiga von á faröldrum á færibandi næstu árin.
Netverjar tóku sem betur fer hressilega við sér og upprættu þessa pest snarlega með háðsglósum og gríni, enda hefur lítið til hennar spurst síðan ...
Fleiri bergmáls"fréttir"
Þarna má sjá tugi fréttaþula kyrja sömu rulluna "This is extremely dangerous to our democracy", - þetta er mjög hættulegt lýðræðinu okkar.
Hvaðan fengu þau þessar "fréttir" sínar?
Ég skrifaði blogg fyrir tæpu ári síðan undir heitinu Fjórða valdið - fjölmiðlarnir.
Þar skrifaði ég um grein sem var skrifuð í léttum dúr, þar sem blaðamaðurinn ljóstraði í raun upp í hverju blaðamannsstarfið væri fólgið í dag, að það væri orðið hálfgert kyrrsetustarf sem fælist helst í að finna upplýsingar á netinu, og nota símann til að ná viðbrögðum eða viðtölum.
Þetta segir Wikipedia um fjórða valdið:
Fjórða valdið er hugtak sem vísar til fjölmiðla (á eftir löggjafarvaldi, dómsvaldi og framkvæmdavaldi). Hugtakið vísar til þess að fjölmiðlar geta oft, beint eða óbeint, stýrt atburðarás ákveðinna mála, með umfjöllun sinni. (Áherslan er mín)
Hverjir eiga fjölmiðlana og geta þar af leiðandi stjórnað fréttaflutningi til okkar?
Þessi ágæta grein kom upp í leitarvél, ekki Google samt, þegar ég sló inn leitarstrenginn "who owns the media".
There we are again, watching the news or reading an article. No matter which news outlet we tune into, we really get the same story, dont we? One news outlet spins it left, one spins it right, but in the end, they all talk about the same subject.
Whether or not we realize it, the subject matter and the ensuing spin leads us to think, believe, and vote a certain way. It also leads us to purchase certain products and services. This all has a profound effect on us and society as a whole.
We are not just tuning into news.
We are tuning into television programming that persuades us to accept the worldview being promoted by the media we are listening to.
Lokaorð greinarinnar
Before we accept the next news report, perhaps we would be better off to question the motives behind the news report.
Is it really the truth that is being reported, or could this information benefit the billionaires and governments who are sharing it with us?
Þessi lokaorð ættum við öll að taka til okkar, og við ættum líka að spyrja okkur hverjir stýra innlendum fjölmiðlum og umræðunni hér á Íslandi.
Öllum ætti að vera löngu orðið ljóst að t.d. RÚV, sem segist vera "okkar allra", heldur uppi ákaflega einhliða málflutningi um það sem er að eiga sér stað í heiminum, hvort sem það er varðandi "heimsfaraldurinn", stríðið í Úkraínu, eða loftslagsmálin svo eitthvað sé nefnt.
Greta Thunberg
Þessi sænska táningsstúlka kom með miklum látum fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum síðan með einhvern loftslagsboðskap, án þess að hafa nokkra menntun til þess að tjá sig um það málefni. Það má velta því fyrir sér hvers vegna hún var talin trúverðugur boðberi nokkurra vísinda yfir höfuð.
Núna hefur hún viðurkennt að það voru engar vísindalegar sannanir fyrir því að fólk ætti að örvænta yfir loftslagsmálunum.
Greta terrified people around the world when the World Economic Forum gave her the stage in the fall of 2019 to tell us that Our house is on fire and I want you to panic...I want you to feel the fear I feel everyday."
At COP25, the UNFCCC even hosted a session with Greta called "Unite Behind the Science". The media and environmental groups repeated these phrases endlessly. In April of 2021, when testifying to the US Congress....suddenly Greta had a different story. "Let me clear that up....its just a metaphor....no science made me come to that conclusion".
Er heimurinn í raun að farast núna af okkar völdum?
Eru auðkýfingar sem fljúga í hundraðavís á loftslagsráðstefnur um allan heim í einkaþotum sínum trúverðugir málstaðnum um verndun loftslagsins, eins og t.d. John Kerry sem á einkaþotu, tvær snekkjur, sex hús og tólf bíla?
Ég held að við getum öll verið sammála um að hægt er að gera miklu betur í loftslags- og umhverfismálum, en ég hef hvergi séð umhverfisverndarsinna t.d. lýsa áhyggjum sínum af þeirri gríðarlegu mengun vegna allra þessara milljarða gríma sem fólk hefur verið neytt til að bera í þessum "heimsfaraldri", og enda á ruslahaugum og í hafinu.
Hræsnin er þvílík.
Það sem okkur er aldrei sagt um "loftslagsvána"
Við erum orðin svo vön að vera mötuð í gegnum fjölmiðla, að það hvarflar ekki að mörgum okkar að skoða mál ofan í kjölinn, að gera okkar eigin sjálfstæðu rannsóknir á því sem okkur er sagt alla daga í fréttunum.
Hér fyrir neðan er efni sem vert er að skoða, sem aldrei fengist birt í þessum spilltu meginstraumsfjölmiðlum.
- Bill Gates Caught Admitting Climate Change Is WEF Scam to Inner Circle
- The 97% of Scientists agree with climate alarm thing turns out to have been a giant fib
- On The Death Of Climate Scientist Dr. Tim Ball
- WITNESS: The Climate Crisis Lie
- Look out! Climate Fibbing crisis!
- The Man who invented Climate Change and influenced Schwabs Great Reset Agenda
- The Rockefeller Way: The Familys Covert Climate Change Plan
- Net-Zero Energy Generation its a trap!
Persónur og leikendur í þessum loftslagsmálum eru að miklu leyti til þeir sömu og í "heimsfaraldrinum".
Þetta er fólkið sem er núna að endurræsa heiminn og sníða hann eftir eigin geðþótta.
En flestum virðist vera sama, eða nenna ekki að kynna sér hvað búið er að ákveða um örlög þeirra að þeim forspurðum.
Bloggar | Breytt 22.11.2022 kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
12.11.2022 | 20:58
Gleymum þessu aldrei - eigum við núna að fyrirgefa þeim?
Árið 2020 settu leiðtogar um heim allan lokanir á almenning til þess að fletja út kúrfuna sögðu þeir.
14 dagar til að stöðva útbreiðsluna. 3 vikur til þess að fletja kúrfuna út og verja heilbrigðiskerfið.
Þetta voru lygar, dagar og vikur urðu að mánuðum, markmiðin breyttust og pólitíkusarnir tvíefldust. Ef fólk leyfði sér að efast um aðgerðirnar, var það sakað um að geta drepið ömmu gömlu.
Þetta bara jókst 8 mánuðum síðar þegar bólusetningarherferðirnar byrjuðu, og það sem á eftir fylgdi voru einhverjar ógeðfelldustu skoðanir og stefnur sem við höfum nokkurn tímann séð.
Ef einhverjir voguðu sér að setja fram efasemdir, voru þeir sagðir andstæðingar bólusetninga eða ömmumorðingjar, og farið var fram á að margir yrðu bannaðir á netinu, reknir úr störfum sínum eða læstir inni heima hjá sér.
Nú er þetta sama fólk sem spjó út úr sér öllu þessi hatri gagnvart fólki sem var ekki sammála, að biðja um sakaruppgjöf og fyrirgefningu.
Ég segi að þeir eigi engan möguleika á því, við munum ekki gleyma og ekki fyrirgefa. Þetta vídeó er til áminningar um hvers vegna við munum ekki fyrirgefa.
Þetta hér að ofan er lauslega þýddur inngangur að vídeói sem ber heitið: We Must Never Forget.
Þar má sjá hvernig talað var um og talað til þeirra sem neituðu að gangast undir ónauðsynlega meðferð með genabreytandi tilraunalyfjum, sem löngu er búið að sanna að séu stórhættuleg og jafnvel banvæn í mörgum tilfellum.
Þar má líka sjá skelfilega meðferð á gömlu fólki á hjúkrunarheimilum, og viðtal sem vegfarandi reyndi að taka við heilbrigðan mann sem hafði verið settur í sóttkvíargúlag og þurfti að borga stórar fjárhæðir fyrir vistina þar.
Hér á Íslandi fengu þeir "ósamvinnuþýðu" líka aldeilis að heyra það, Kári Stefánsson sagði að það væri drullusokksháttur að láta ekki sprauta sig, og Sigmundur Ernir Rúnarsson sagði að þeir héldu þjóðinni í herkví.
Einhverjir tónlistarmenn vildu heldur ekki leyfa ósprautuðum að koma á jólatónleika hjá sér í fyrra, "sællar minningar".
Gleymum þessu aldrei!
Hér má sjá samantekt sem ég fékk að láni á Facebook, sem þarf ekkert að útskýra:
Never forget!
- They filled skate parks with sand.
- Took down basketball nets at parks.
- Taped off playgrounds.
- Forced children to sit in isolated circles.
- Forced children to eat outside in the cold.
- Put plastic around school desks.
- Canceled school dances, graduations, and sporting events.
- Closed churches.
- Made curfews for you.
- Closed parks.
- Closed beaches.
- Shut down small businesses but kept big businesses open.
- Had you wear a mask on your face.
- Had neighbors ratting out neighbors.
- Called parents who objected at schools domestic terrorists.
- Censored speech.
- Stopped travel.
- Banned, fired and silenced health professionals and scientists that disagreed.
- Arrested, fined and jailed those who did not comply.
- Told you that you couldnt see loved ones in the hospital, resulting in people dying all alone.
- They had people inject themselves with an experimental substance so they wouldnt lose their jobs.
- Stopped people from gathering for funerals.
- Banned singing.
- Banned dancing.
- Told you you cannot have people visit you at your home.
- They shamed you.
- They mocked you.
- They treated you as peasants, while they, the parasites, gathered with their friends and family.
- They lied to you over and over again.
- They literally had some people wait to have permission to hug or kiss their friends and family...
They want you to forget it.
Think about all that for a moment.
Hinn eilífi hræðsluáróður
Hræðsluáróður er ekkert nýr af nálinni, enda er ótti árangursríkasta tólið sem hægt er að nota til að ná réttindum og sjálfræði af fólki. Nú er verið að keyra upp hræðsluna við "loftslagsvána" ógurlegu aftur, við erum búin að heyra það í einhverja áratugi að heimurinn sé alveg við það að farast af okkar völdum.
Okkur Íslendingum er svo umhugað um þessi mál að okkar fámenna land sendi 50 manns(!) á okkar kostnað á ráðstefnu sem stendur yfir í Egyptalandi þegar þetta er skrifað. Hvert ætli kolefnisspor þeirra verði?
Ætli John Kerry sé líka á ráðstefnunni?
Fyrirgefning?
Nú þegar allar blekkingarnar og lygarnar sem búið er segja okkur í bráðum 3 ár varðandi "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" eru að komast meira og meira upp á yfirborðið, eru einhverjir sem héldu þeim á lofti farnir að biðja um fyrirgefningu og sakaruppgjöf, eins og sjá má t.d. í tímaritinu The Atlantic, og í glugga kaffihúss í Melbourne í Ástralíu.
Ætli allt fólkið (í tug- eða hundruða milljónavís) sem hefur skaðast varanlega, eða aðstandandur þeirra sem eru látnir eftir "bólusetningarnar" sé til í að veita þeim sem bera ábyrgð á þessu sakaruppgjöf og fyrirgefningu?
- Two little girls dead after jab on Gold Coast
- SADS: Sudden Adult Death Syndrome Explodes as Young and Healthy Adults Die Following COVID Vaccine Mandates
- 80 Canadian Doctors DEAD Following COVID-19 Vaccine Mandates as Death Toll Continues to Rise
- Died Unexpectedly Cases Surge with More Deaths in 2022 than 2020-2021 as People Continue to Get COVID-19 Vaccines
- Young hearts part 27 - Excess deaths - The elephant in the room (Nov 2022)
- covidvaccinereactions.com
- covidvaccinevictims.com
- diedsuddenly.info
- vaxpain.us
Hér á Íslandi hvetur nýr sóttvarnalæknir okkar, hún Guðrún Aspelund fólk til að fara endilega í fleiri "bólusetningar", enda sé von á nýjum "bylgjum" (þrátt fyrir allar sprauturnar sem hefðu átt að vera búnar að koma í veg fyrir þær) ....
Þessi fækkun á mannkyninu sem á sér stað núna mun halda áfram með nýjum "bóluefnum" og öðrum aðgerðum.
Fólk er víst gagnslaust og elítan þarf ekkert á því að halda, enda muni gervigreind og vélmenni taka við af því.
99 percent of human qualities and abilities are simply redundant for the performance of most modern jobs.
~ Yuwal Harari
Sannanir eru til fyrir þessu öllu ef fólk nennir að hafa fyrir því að leita eftir þeim, enda eru þeir sem að þessu standa ekkert að leyna áætlunum sínum fyrir mannkynið og eru núna að "endurræsa heiminn" fyrir sig og sína elítu.
En mun fólk nenna því? Það er stóra spurningin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þetta er stór spurning sem mörgum bregður örugglega við að sjá, þó ekki þeim sem búnir eru að reyna að vara aðra í heil tvö ár núna við þessum genabreytandi tilraunaefnum sem óhrekjanlega eru búin að valda ómældum skaða og dauða um allan heim.
Fréttaflutningurinn hér á landi (og reyndar á heimsvísu líka) hefur verið með ólíkindum í "heimsfaraldrinum".
Varla var birt stakt orð um aukaverkanir og andlát eftir sprauturnar í innlendum miðlum, og fyrrverandi sóttvarnalæknir var aldrei spurður út í þessi mál þrátt fyrir að Lyfjastofnun birti daglegar uppfærslur um tilkynntar aukaverkanir.
Hræðsluáróðurinn var svo linnulaus að fólk flykktist í próf til að athuga hvort það væri veikt, og flykktist svo í sprauturnar þegar þær stóðu til boða, og svo aftur (og aftur) þegar það þurfti víst að skerpa á "verndinni".
Óvenju mörg dauðsföll hafa verið hér á landi á þessu ári hjá 70 ára og eldri, einmitt þeim hópi sem búinn er að fara í flestar sprauturnar og ætti samkvæmt öllum loforðunum um virkni og gæði þessara efna að vera vel varið.
Og óvenju margar dánartilkynningar hafa verið undanfarið um fólk sem hefur dáið skyndilega, jafnvel ungt að aldri.
Roger Hodkinson
Ég var að horfa á viðtal við merkan meinafræðing og lækni að nafni Roger Hodkinson, eitt af mörgum sem ég hef séð með honum, og skrifaði einmitt blogg um hann fyrir rúmu ári síðan: Þetta er bara pólitík í læknisleik, trúðu engu af því sem búið er að segja þér!
Ég mæli eindregið með því að þið hlustið á það sem hann hafði að segja þar.
Þetta er gegnheill vísindamaður sem hefur engra hagsmuna að gæta við að vara fólk við, heldur allt að tapa eins og svo margir kollegar hans hafa orðið fyrir, að vera reknir úr störfum sínum, hæddir og smánaðir opinberlega af þar til gerðum keyptum aðilum.
Hér má sjá hluta af ferilskrá hans:
Lausleg þýðing á því sem hann segir í viðtalinu:
Ein af stærstu fréttum síðustu daga er grein á Substack eftir mann að nafni Peter Halligan, en hann er mjög reyndur og hæfur greinandi úr fjármálageiranum og hefur mikla reynslu af því að greina tölur og gögn og draga af þeim niðurstöður.
Ég vona að áhorfendur þínir sitji núna í sætum sínum og undirbúi sig undir það sem ég ætla að segja ykkur núna, sem ykkur mun fyrst þykja fáránlegt. Þess vegna er það svo ákaflega mikilvægt að ég segi þetta.
Þessar tölur eru bestu áætlanir á þessum tímapunkti, þar sem opinber gögn eru notuð til að sýna alþjóðlegar afleiðingar blóðtappaskotanna (clot shots) hvað varðar dauða og sjúkdóma, líka þekkt sem alvarlegar aukaverkanir eins og hjartaáföll, heilablóðföll, lungnasegarek o.s.frv.
Við höfum af góðum ástæðum einbeitt okkur að tölfræði Norður-Ameríku síðastliðin tvö og hálft ár, en þessi maður hefur framreiknað það yfir í heildaráhrif, neikvæð áhrif blóðtappaskotanna, og þetta eru tölurnar.
Dauðsföll, dauðsföll á alþjóðavísu sem rekja má beint til bóluefnanna eru tuttugu milljónir, tvær núll milljónir dauðsfalla af völdum blóðtappaskotanna og tveir milljarðar, stórt M, alvarlegra aukaverkana af þeirri gerð sem ég lýsti. Þessar tölur eru yfirgengilega háar.
Til að bera þetta saman við söguna hingað til, þá hafa bóluefni verið tekin af markaði þegar örfá andlát hafa átt sér stað í kjölfar þeirra, það síðasta eftir 35 dauðsföll vegna fuglaflensubóluefnisins.
Ég vona að fólk átti sig á umfangi og skala þess sem er í gangi hérna, þetta ólýsanlega blóðbað er ekki yfirstaðið því þessar tölur eru bara núverandi áætlun og innihalda ekki andlát sem verða í framtíðinni af svipuðum orsökum, sem munu þar að auki bætast við þessar tölur.
Þær innihalda ekki andvana fæðingar, eða andlát sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir ef við hefðum ekki haft "eins sjúkdóms" heilbrigðiskerfi síðastliðin tvö og hálft ár þar sem fólk fékk ekki nauðsynlegar rannsóknir á eða meðferðir við krabbameinum svo eitthvað sé nefnt, þessar tölur eru ekki innifaldar.
Þessar tölur innihalda ekki heldur andlátin vegna innilokananna (lockdowns) eða sjálfsvíganna, né andlát á næstu árum sem munu verða vegna gríðarlegrar aukningar á krabbameinum og banvænum sýkingum vegna ónæmisbælingar sem orðið hefur hjá fólki vegna blóðtappaskotanna.
Þetta er til viðbótar við þessar skelfilegu tölur sem ég var að nefna.
Viðtalið sjálft er hér og gögnin sem hann vísar í eru hér og hér.
Nennir fólk í alvöru ekki að leita sér upplýsinga?
Eða er það of erfitt að horfast í augu við að maður hafi verið stórkostlega blekktur og kjósi þess vegna að ríghalda í lygarnar?
Hvort þessi fjöldi látinna og skaðaðra sé réttur eða ekki skiptir kannski ekki öllu máli í stóra samhenginu, lygarnar hafa verið sagðar og skaðinn er skeður.
Við sem höfum fylgst með afleiðingum þessara "bólusetninga" á fólk höfum séð þúsundir frásagna sprautuskaðaðs fólks og frásagnir fólks sem hefur misst ættingja sína og vini í kjölfarið, jafnvel marga.
Hjá meginstraumsfjölmiðlunum ríkir grafarþögn um þennan hrylling sem er að eiga sér stað, en er auðvelt að finna annars staðar ef maður leitar.
Note that there have been 600 million recoveries from 620 million cases WITH NO HELP FROM VACCINES vaccines that do no prevent infection, transmission, hospitalization or death and instead kill and maim at alarmingly high rates (one death for 635 injections and one event for every six injections based on 20 million dead and 2.2 billion injuries from 12.7 billion doses administered).
Died Suddenly - Dóu skyndilega
Það er verið að gera heimildarmynd núna undir nafninu Died Suddenly, sem verður mjög áhugavert að horfa á og mun hún koma út í nóvember 2022.
Healthy adults are dropping dead all across the globe. In the last 18 months, the term Died Suddenly has risen to the very top of most searched Google terms. Now, the award-winning documentary team that brought you, Watch The Water, and These Little Ones travels around the world to find answers, and tell the stories, of those who Died Suddenly.
Áður birt efni:
- Skelfileg aukning krabbameina í heiminum eftir "bólusetningarnar" - hvernig er staðan á Íslandi?
- Hundruðir lækna lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna "bóluefnanna"
- Sannleikurinn um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" er sífellt að koma betur og betur upp á yfirborðið
- Kostulegar tilraunir til að fela hjartaáföllin eftir "bólusetningarnar"
- Ungu hjörtun - nítjánda vídeóið er komið út
Stóra spurningin
Þegar sannleikurinn kemur í ljós, ekki spyrja mig hvers vegna ég vissi hver hann var. Spurðu sjálfa/n þig hvers vegna þú gerðir það ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)