Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2021

Jæja, eru óbólusettir "verksmiðjur fyrir ný afbrigði"? Semsagt, á nú að þvinga þá sem afneita "bólusetningunum" í þær??

Það hefur ekki farið framhjá þeim sem hafa engan áhuga á því að láta sprauta þessum eiturefnum í sig sem eru þegar búin að stórskaða og drepa fólk um allan heim og hér á landi líka, að verið er að útmála þá sem hættulega þeim bólusettu, sem ættu nú þegar að vera komnir með vörn.

Var það ekki annars tilgangurinn með þessum sprautum?

"Óbólu­sett­ir gera meira en að stefna eig­in heilsu í hættu; þeir stefna einnig heilsu annarra í hættu ef þeir smit­ast af kór­ónu­veirunni, að sögn sér­fræðinga í smit­sjúk­dóm­um. Ástæðan er sú að eina leiðin fyr­ir kór­ónu­veiruna til þess að stökk­breyt­ast er sú að finna sér hýsil, sem lík­leg­ast er að sé óbólu­sett­ur ein­stak­ling­ur. 

„Óbólu­sett­ir ein­stak­ling­ar eru mögu­leg­ar verk­smiðjur fyr­ir ný af­brigði. Því fleiri sem óbólu­sett­ir eru, því fleiri mögu­leika hef­ur veir­an á að fjölga sér,“ seg­ir William Schaffner, banda­rísk­ur pró­fess­or í smit­sjúk­dóm­um, í sam­tali við CNN.

„Þegar veir­an fjölg­ar sér stökk­breyt­ist hún og gæti skapað nýtt af­brigði veirunn­ar sem er mun skaðlegra en fyrri af­brigði.“

Viðbót: Ég var að fá staðfestingu á því sem ég í raunar vissi, hann væri alls ekki óháður sérfræðingur. Það vill svo til að þessi "sérfræðingur" tók þátt í æfingunni Event201, sem fyrir einhverja furðulega "tilviljun" var haldin haustið 2019, rétt áður en þessi "heimsfaraldur" skall á.

"The Johns Hopkins Center for Health Security in partnership with the World Economic Forum and the Bill and Melinda Gates Foundation hosted Event 201, a high-level pandemic exercise on October 18, 2019, in New York, NY. The exercise illustrated areas where public/private partnerships will be necessary during the response to a severe pandemic in order to diminish large-scale economic and societal consequences."

Í guðanna bænum ekki taka því sem þessi maður segir sem einhverjum heilögum sannleika gott fólk, það er tími kominn til að fólk fari að átta sig á að það er eitthvað allt annað og verra í gangi en einhver veira sem "nauðsynlegt er" að bólusetja heimsbyggðina gegn.

Hver var heimsfaraldurinn hér á landi?

Dóu hundruðir eða þúsundir manna hér á landi, allt niður í kornabörn úr þessari veiru? Höfum við séð fólk detta niður dautt á götuhornum? Höfum við heyrt sírenuvæl allan sólarhringinn?

Svarið er nei, og þið vitið það vel. Svo hvers vegna voru og eru allir svona hræddir? Vegna okkur var SAGT, á stöðugum hræðslufundum sem ég kalla þá núna, að við ættum að vera skíthrædd!

Staðreyndin er bara sú að þeir sem dóu "úr veirunni" í fyrra voru langflestir háaldraðir og með undirliggjandi sjúkdóma. Ekki ein einasta ung manneskja eða barn dó, og lífslíkur þeirra sem veikjast eru 99,97%. Er þetta allur heimsfaraldurinn?

Vissuð þið þetta?

Vissuð þið að þann 19. mars 2020 var Covid-19 skilgreint sem flensa í Bretlandi, en ekki hættulegur smitsjúkdómur?

Samt er farsinn þar í landi búinn að vera yfirgengilegur, með endalausum útgöngubönnum, grímuskyldu, og núna þessum svokölluðu "bólusetningum."

Vissuð þið að hundruðir þúsunda mótmæltu þessum skelfilegu aðgerðum í London nýlega, en ekki var birt orð um það í íslenskum fjölmiðlum, en afsögn breska heilbrigðisráðherrans þótti fréttnæm?

Vissuð þið að í Bretlandi voru andlátin í fyrra hreint ekkert fleiri en í meðalári?

Vissuð þið að Bretar og Skotar gera ráð fyrir svo mörgum umfram andlátum næstu árin, að þeir vilja leigja auka líkgeymslur?

Hvað er framundan?

Lítill fugl hefur hvíslað því að mér að til standi að lauma í gegn lögum um SKYLDUBÓLUSETNINGU hér á landi á næstu dögum.

Mikið vona ég að fuglinn litli hafi ekki rétt fyrir sér, en mikið svakalega er búið að ljúga mikið að okkur hér á landi, og þau ykkar sem hafa lesið bloggin mín undanfarið eruð búin að fá það staðfest.

Hvað getur maður sagt núna? Guð blessi Ísland, eins og Geir Haarde forðum?

 

 


mbl.is Óbólusettir „verksmiðjur fyrir ný afbrigði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn fleiri sannanir fyrir því að þessi svokölluðu "bóluefni" eru að stórskaða og drepa fólk um allan heim. Hvað þarf að gerast til að fólk vakni?

Sífellt berast fleiri og fleiri sannanir fyrir því að þessar svokölluðu "bólusetningar" hafa ekkert að gera með að bjarga lífum, heldur er tilgangurinn með þeim hræðilegri en nokkur getur ímyndað sér.

Nýjustu tölur úr VAERS sýna 6.985 andlát, 34.065 alvarlegar, og samtals 441.931 tilkynningu um aukaverkanir milli 14. desember 2020 og 25. júní 2021 í Bandaríkjunum.

"Of the 6,985 deaths reported as of June 25, 22% occurred within 48 hours of vaccination, 15% occurred within 24 hours and 38% occurred in people who became ill within 48 hours of being vaccinated.

This week’s data for 12- to 17-year-olds show:

This week’s total VAERS data, from Dec. 14, 2020 to June 25, 2021, for all age groups show:

Sjáið alla færsluna hér.

Og enn meira um þennan hrylling hér, og meðal annars sagt frá nokkrum ungmennum sem létust eða eru varanlega sködduð eftir sprauturnar.

Jón Magnús læknir

Þessi maður lýgur því blákalt að galið sé að bíða með bólusetningar barna í aldurshópnum 12-15 ára!

Eða eruð þið sammála honum eftir að hafa lesið þetta hér fyrir ofan um dánu og sködduðu börnin?

„Þessi af­staða er hrein­lega ó­boð­leg. Nú hefur verið sam­þykkt bólu­setning 12-16 ára barna við CO­VID-19 (í sam­ræmi við sam­þykki FDA/EMA) svo lengi sem óskað er eftir því. Þetta var skýrt í reglu­gerð frá Em­bætti land­læknis. Hins vegar virðist stefnan vera að bíða þar til skóli byrjar. Það ætti að vera aug­ljóst af hverju það er galin hug­mynd,“ skrifar Jón á Face­book.

„Einnig orkar það tví­mælis að bíða eftir meiri sam­fé­lags­dreifingu áður en bólu­sett er. Við vitum að klár á­vinningur er af bólu­setningu 12-16 ára barna við CO­VID-19 og öryggi er mjög gott. Hér er ekki verið að láta börn njóta vafans - hér er verið að tak­marka að­gengi barna að mikil­vægri heil­brigðis­þjónustu.“

Fyrirgefiði, en mér bara ofbýður þetta fólk sem búið er að standa að bláköldum lygum undanfarið um þessi eiturefni.

Eins og Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Lækninga, og Ragnheiður og Þórólfur sem ég hef bloggað um, en við vitum að lygararnir eru fleiri, í raun allir sem vilja sprauta hvern einasta landsmann!

Undir hvaða skilmála skrifuðu íslensk yfirvöld í bóluefnasamningnum sem við megum ekki sjá?

Eitt er löngu orðið ljóst, þessi skelfilegu eiturefni eru þegar búin að drepa og skaða yfir tvö þúsund Íslendinga, en "Sölvar" þessa lands nenna ekkert að pæla í því, heldur gera bara það sem þeim er sagt.

Enginn getur enn sagt fyrir um hvernig bólusetta fólkinu muni reiða af næstu mánuði og ár nú þegar búið er að dæla efnum í líkama þess sem þau munu aldrei losna við, en spár óháðra sérfræðinga eru vægast sagt svartar, því miður.


Sönnun þess að stöðva á þessar svokölluðu bólusetningar strax!

Læknir sem kallar sig gamla manninn í stólnum hefur frá upphafi þess "heimsfaraldurs" skrifað ótal greinar og gert annað eins af vídeóum, þar sem hann hefur spáð fyrir um næstu ákvarðanir stjórnvalda til að hemja þennan "svakalega drápsfaraldur".

Allt sem hann hefur sagt hingað til hefur ræst, og að sjálfsögðu er hann ritskoðaður og efni hans samstundis eytt úr af samfélagsmiðlum og leitarvélum.

Þetta er hann Vernon Coleman sem sagði sig úr læknasamfélaginu í Bretlandi fyrir áratugum síðan því honum ofbauð meðal annars að læknastarfið væri farið að snúast um eitthvað meira en bara að lækna sjúklinga.

Í þessu vídeói færir hann óhrekjanleg rök fyrir því að það eigi að stöðva þessar tilraunabólusetningar strax. Brjálæðingarnir hafi náð yfirráðunum yfir geðveikrahælinu og gætu drepið milljarða með þessum sprautum.

"I’ve been warning about the covid-19 jabs for many, many months. My first videos detailing the very real dangers were published last year. In this video I’m going to prove, beyond any question, that the whole experimental jabbing programme should be halted immediately. The lunatics have truly taken over the asylum and they could kill billions with these jabs alone.

But instead of halting the roll out of a vaccine that hasn’t been properly tested, doesn’t work and isn’t needed, the authorities in some countries are already jabbing children and in others are pushing for children to be jabbed. This is total lunacy. Jabbing adults with this toxic brew is madness but at least most adults have a choice. Children are being jabbed with dangerous poison straight out of the witches’ cauldron in Macbeth, and they don’t have the faintest idea what is happening to them. There is absolutely no informed consent and they are being given an experimental vaccine that doesn’t do what people believe it does, to protect them from a disease which I have proved, in a previous video, is nothing more than the rebranded flu."

Horfið á þetta vídeó og/eða lesið handritið að því og þið munuð sjá að hann hefur rétt fyrir sér í einu og öllu.

Fréttirnar sem þið sjáið ALDREI í fjölmiðlunum

Holskefla andláta í Bandaríkjunum eftir tilraunabólusetningarnar

Covid snérist aldrei um neina veiru, heldur bóluefnin segir sérfræðingur í hjartalækningum og prófessor í læknisfræði!

Hvers vegna "þarf" núna að bólusetja börn sem eru ekki í neinni hættu af veirunni? 86% bandarískra barna í tilraunaverkefni fengu alvarlegar aukaverkanir af sprautunum!

Þann 19. mars 2020 var Covid-19 skilgreint sem flensa í Bretlandi, en ekki hættulegur smitsjúkdómur

Breskur útfararstjóri leysir frá skjóðunni, 2020 var venjulegt ár hvað varðar dauðsföll, og fleiri útfararstjórar taka undir. "Faraldurinn" byrjaði ekki fyrr en farið var að bólusetja fólk!

Eru Bretar og Skotar að búa sig undir aukinn fjölda andláta næstu árin? Hvers vegna?

Bresk heilbrigðisyfirvöld breyta allt í einu núna skilgreiningunni á hvað teljast Covid tilfelli

 

 

 

 

 

 

 


Tilkynningarnar um aukaverkanir komnar upp í 2.016 núna, og hann Sölvi sem gerir bara eins og honum er sagt og hefur engar sérstakar skoðanir á þessu.

Í dag, föstudaginn 2. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.016, voru 1.998 í gær, svo þetta er fjölgun um 18.

Pfizer var með 792 tilkynningar, þar af 21 andlát og 36 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 802. Fjölgun um 10.

AstraZeneka var með 643, þar af 4 andlát og 49 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 647. Fjölgun um 4.

Janssen var með 210, þar af 1 andlát og 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 213. Fjölgun um 3.

Moderna var með 353, þar af 14 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 354. Fjölgun um 1.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 128, þar af 26 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 87 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 1.080 síðan þá.

Svo er það fréttin á vísir.is í gær.

Sölva þykir pínu töff að vera bæði með Pfizer og Astra

„Ég geri bara eins og mér er sagt og hef engar sérstakar skoðanir á þessu. Bara pínu töff að vera með bæði, Astra og Pfizer,“ sagði Sölvi Snær Magnússon sem beið eftir sínum skammti í heillangri röð fyrir utan Laugardalshöll í dag."

Sjáið fyrstu setninguna hjá honum og staldrið aðeins við. Þessi maður er samnefnari fyrir megin þorra þjóðarinnar, sem er væntanlega búinn að lifa í meira en ár í ótta við einhverja veiru sem nánast engan leggur að velli nema háaldrað og veikt fólk.

Hann er hræddur við veiru því búið er að segja honum að hann eigi að vera það, rétt eins og stór hluti mannkyns sem trúir öllu sem yfirvöld segja og það sér, heyrir og les í meginstraumsfjölmiðlunum.

Þessi breska kona furðar sig á hversu auðtrúa og hlýðið fólk er.

Ekkert bendir til þess að hann hafi kynnt sér efnin sem búið er að sprauta í hann, eða hvort óhætt væri að blanda þessum tveim tilraunaefnum saman. Hann gerir bara eins og honum er sagt.

Veit hann að þegar eru að minnsta kosti 26 manneskjur látnar eftir þær, rúmlega 100 sem fengu alvarlegar og lífsógnandi aukaverkanir, og hátt í 2.000 aðrar sem tilkynntu einhverjar aukaverkanir?

Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Lækninga

„Það er að komast reynsla á þessa samsetningu úti í heimi líkt og annað og hún hefur gefið góða raun og gefur mjög góða vörn,“ segir hún.

"Sigríður Dóra segir að þegar skammtarnir kláruðust hafi ekkert annað verið í stöðunni en að setja í næsta gír og sækja Pfizer skammtana, en að meðan það var gert þurfti að tæma Laugardalshöllina og nokkrar tafir urðu á bólusetningunni, þannig að langar raðir mynduðust um tíma."

"Hún segir samsetningu bóluefnanna tveggja, Astra Zeneca og Pfizer, fullkomlega hættulausa.

Hefur hún sannanir fyrir því? Nei auðvitað ekki, hún lýgur bara eins og allir þeir sem vilja sprauta alla þjóðina.

Svo var það hann Páll Magnússon þingmaður, sem beið með eftirvæntingu eftir að verða fullbólusettur!

„Ég kom hingað til að fá Astra eins og ég fékk í fyrri sprautunni en fæ Pfizer. Mér finnst ég hafa unnið í happdrætti bara. Þetta er fín blanda.“

Eftirvænting, kampa kátur, besta mál, sló á létta strengi, enginn munur - piece of cake, fín blanda, unnið í happdrætti.....

Sjáiði hvernig umræðunni um þessi tilraunabóluefni er stýrt? Gleði, stuð og hátíð í Höllinni alla sprautudaga, stundum undir peppandi gleðidiskói meðan nálunum er taktvisst þrykkt í handleggi.

En hvar eru fréttirnar um eða viðtölin við þá sem hafa fengið alvarlegar aukaverkanir sem þeir eru kannski enn að kljást við mánuðum eftir sprauturnar?

Þær sögur eru ótal margar get ég sagt ykkur, að minnsta kosti hundruðir Íslendinga hafa tjáð sig í ýmsum Facebook grúppum um miklar höfuðkvalir, doða, dofa, heilaþoku, útbrot, blindu á auga, og rugling á tíðahring, svo fátt eitt sé nefnt.

Eini maðurinn sem hefur fengið pláss í fjölmiðlum er Trausti Leósson sem vill láta rannsaka andlát konu sinnar daginn eftir sprautuna, og það fékk hann ekki baráttulaust.

Fólki hefur verið nánast SKIPAÐ að koma í sprauturnar með skilaboðum í símana sína, og stærstur hluti "Sölva" landsins hefur bara gert eins og þeim er sagt.

Þeir hafa ekki hugmynd um að þeir séu að taka þátt í stærstu lyfjatilraun sögunnar með lyf sem eru ekki eiginleg bóluefni, og hafa aldrei verið notuð á mannfólk áður.

Þeir kippa sér heldur ekkert upp við þær fáu fréttir sem birtast um andlát fólks eftir sprauturnar, enda er alltaf tekið fram að ekkert bendi til tenginga þarna á milli, og svo er jú nánast alltaf tekið fram að þetta hafi verið aldraðir einstaklingar og/eða með alls konar undirliggjandi sjúkdóma.

Einhverra hluta vegna var aldrei minnst á það þegar gamla fólkið dó "úr Covid" í fyrra, flest yfir áttræðu. Það þóttu harmafregnir sem fengu svo sannarlega sitt pláss í fjölmiðlunum!

En þetta bara nákvæmlega í takt við meira en árs langan óttaáróður sem gekk út á að hræða fólk nógu mikið og telja því trú um að ekkert ynni bug á þessum "drápsfaraldri" nema "bólusetningar".

Nú er farið að tala um að ein Janssen sprauta sé kannski ekki nóg, og að það muni að öllum líkindum "þurfa að" endurtaka bólusetningar út af "nýjum og hættulegum afbrigðum" í framtíðinni.

Er fólk í alvörunni ekki farið að átta sig á að ekki er allt sem sýnist og okkur hefur verið sagt í þessum "heimsfaraldri"?

 

 

 

 

 

 


Tilkynntar aukaverkanir komnar í 1.998, og staðreyndir um þetta "nýjasta afbrigði" af veirunni, það er endalaust verið að ljúga að okkur!

Í dag, fimmtudaginn 1. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.998, voru 1.972 í gær, svo þetta er fjölgun um 26.

Pfizer var með 775 tilkynningar, þar af 21 andlát og 36 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 792. Fjölgun um 17.

AstraZeneka var með 643, þar af 4 andlát og 49 aðrar alvarlegar.
Óbreytt staða, en alvarlegum tilkynningum hefur samt fjölgað um 1!

Janssen var með 204, þar af 1 andlát og 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 210. Fjölgun um 6.

Moderna var með 350, þar af 14 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 353. Fjölgun um 3.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 128, þar af 26 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 87 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 1.062 síðan þá.

 

Ivor Cummins

Ég bloggaði nýlega um að Írland væri farið í hundana. Ivor Cummins er írskur efnaverkfræðingur sem er búinn að birta ótal vídeó síðan þessi meinti heimsfaraldur hófst, og byggir þau alltaf á opinberum og óhrekjanlegum gögnum.

Nú á hið víst svakalega smitandi og hættulega Delta afbrigði að vera á þeysireið um landið (og heiminn), allt til að viðhalda ótta fólksins, en staðreyndin er samt sú að það er ekkert að frétta af spítölunum þar, og bara rólegt að gera!

Og við vitum núna að þessi PCR próf gefa allt að 97% falskar jákvæðar niðurstöður.

Nokkur ummæli undir vídeóinu

Það er alltaf fróðlegt að sjá hvað hinn almenni borgari sem er löngu búinn að sjá í gegnum þetta hefur að segja.

"This isn't about a medical emergency and never was. Sure, there was a pandemic, now it's an endemic disease. The only pandemic is the lack of free press, absolute incompetence in politics, the sheer stupidity of brainwashed sheeple that are incapable of critical thinking because they'd rather watch Love Island. But hey, as long as we're not discussing the absolute horrorshow that is the housingcrisis, homelessness and the collapse of the debt-laden economy."

"I suspect it’s a mix of stupidity, incompetence, and malicious intent. All very Orwellian. There is also a bunch of virtue signalling scientists, politicians and people in advisory roles that are also contributing. Great work Ivor, many thanks for the analysis."

"Not stupidity, evil. And it won't end with an appeal to reason and common sense, I'm afraid."

"The problem was moving the elderly into nursing homes, put onto end of life care, pumped with midazolam (curtesy of the handcock stockpile) and bumped off."

"To be fair, your sterling work is without doubt immense. problem is most people don't know where the data is because they don't see it. The liars are hiding and well, education is poor so this is what you get. We should teach our children one thing...ask for evidence."

65-74 ára?

Fyrsta andlátið vegna Janssen er orðið að staðreynd, en Lyfjastofnun virðist ekki vera með aldur viðkomandi einstaklings á hreinu, sá eða sú var víst á aldrinum 65-74 ára. Er aldurinn eitthvað leyndarmál, eða kynið?

Endalausar lygar

Hvernig stendur á því að það er endalaust verið að ljúga að okkur hér á landi?

Jón Magnús unglæknir kannast ekkert við aukaverkanir vegna þessara tilraunaefna, Björn Rúnar læknir lýgur, og Lyfjastofnun lýgur og þaggar allt niður eins og hún getur.

Þórólfur segir að ungar konur þurfi ekkert að óttast, og Ragnheiður yfirhjúkka segir að öll bóluefni séu góð, og það sé hættulegra að fara út í búð en að láta sprauta sig.

Og hvernig stendur á því að það virðist ekkert hreyfa við fólki að búið sé að tilkynna um 26 andlát hér á landi á aðeins hálfu ári eftir sprauturnar?

Viðkvæðið í athugasemdum er oft að eitt sinn skuli hver deyja eða að sagt sé að ekkert bendi til tengingar milli andlátanna og sprautanna, enda er þetta ár hinna mörgu tilviljana.

Ef þetta væru 26 "Covid andlát", þá væri allt farið á hliðina í samfélaginu!

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband