Færsluflokkur: Bloggar

Ef virkir í athugasemdum fengju að ráða ...

... þá myndi þessi "heimsfaraldur" líklega ekki enda fyrir en árið 2026 þegar tilraun lyfjarisanna lýkur og búið verður að sprauta okkur með þessum a.m.k. 1,4 milljónum skömmtum af líftæknilyfjunum sem búið er að "tryggja okkur" fyrir næstu ár.

Næst eru 5-11 ára börnin á dagskrá, enda á að byrja að sprauta þau eftir áramótin.

Nú á eina ferðina enn að skella öllu meira og minna í lás út af kvefpest sem almennt leggst ekki illa í fólk sem er ungt og hraust, eða ef það hefur gott ónæmiskerfi og ekki með undirliggjandi sjúkdóma.

1221gÞessar aðgerðir eru orðnar hlægilega fyrirsjáanlegar. Í hvert skipti sem einhverjar hátíðir eru framundan þar sem fólk kemur saman og gleðst hvert með öðru, þá koma upp "ný smit", og allir eru hvattir til að fara í sýnatökur.

Óttaáróðursmaskínan fer í gang og Víðir kallaður inn, enda vanur að hundskamma okkur ef við erum óþekk. Auðvitað viljum við öll hlýða Víði, enda er búið að kenna okkur að gera það.

Í nýlegu viðtali við hann segir hann meðan annars:

Við erum að fá fólk inn sem er ein­kenna­laust en grein­ist í hraðpróf­um, fer svo í PCR-próf og fær staðfest­ingu á smiti. (áherslan er mín)

1221hSettur er í gang skimunarfaraldur, og þar af leiðandi finnast fleiri "smit". En engar áhyggjur krakkar mínir, þriðja sprautan er leiðin út úr faraldrinum ...

Þá hljótum við að ná langþráðu hjarðónæmi, skammist ykkar þessi ósprautuðu 10% þjóðarinnar sem hafið hingað til komið í veg fyrir að það náist!

Pestargemlingarnir mínir

Yngri dóttir mín var greind með kvefpestina á sunnudaginn, hún fann alveg fyrir því að vera lasin og leið illa fyrstu dagana, en er sem betur fer orðin hressari og er núna með nefkvef. Nú á fimmta degi er hún hinn hressasta, en mun dvelja í einangrun yfir jólin hjá vini sínum sem líka í einangrun með pestina, en er álíka hress og hún.

Hann ætlaði að eyða jólunum í útlöndum með fjölskyldunni, sem er núna farin utan án hans.

Pabbi hennar er hins vegar kominn í sóttkví og þarf líklega að eyða jólunum aleinn heima, eitthvað sem var ekki á planinu.

Eldri dóttir mín fékk pestina í september, engan hita, smá stíflur í kinnholum og smá kvef. Hún segir að þetta sé auðveldasta flensa sem hún hefur nokkurn tímann fengið. Hún þurfti að dúsa ein í einangrun með 3 börn í 10 daga sem smituðust ekkert af mömmu sinni.

Ég skal fúslega játa að mér datt ekki til hugar að láta hana þurfa dúsa þarna aleina með börnin svona lengi, svo ég fór nokkrum sinnum til hennar með vistir og smá félagsskap.

Þrátt fyrir knús og faðmlög við komu og brottför, þá hafði veiruskrattinn engan áhuga á því að smita mig, frekar en fyrri daginn.

Gæti það verið vegna þess að ég er með afskaplega gott meðfætt ónæmiskerfi sem hefur reynst mér nánast fullkomlega í áratugi, enda vel við haldið?

Ef þessir virku í athugasemdum fengju að ráða ...

Þeim sem eru orðnir þreyttir á þessu bulli og þykir vera nóg komið eru sem betur fer farnir að tjá sig meira og meira í fjölmiðlunum, bæði í greinum og viðtölum, og ekki síður í athugasemdakerfum fjölmiðlanna.

Ég hef svolítið gaman að því að lesa þær, sérstaklega hjá þeim sem verja Þórólf og meiri skerðingar á frelsi okkar út í rauðan dauðann, og stundum legg ég orð í belg ef vel liggur á mér.

Mér datt í hug að gamni mínu að taka saman nokkar athugasemdir þessa blessaða veiruhrædda fólks, sem því miður leyfir sér allt of oft að sýna öðru fólki dónaskap, ég hef alveg fengið minn skammt, þótt ég hafi verið mjög málefnaleg.

Ég hef fengið að vita að ég sé heilalaus, flatjörðungur, geðveik, og fleira í þeim dúr.

Myndgæðin eru bölvanleg, en með því að smella á myndirnar má sjá þær í betri upplausn.

Andrea er komin með nóg og er hætt eftir fréttir dagsins - þetta er fullkomlega óboðlegt

1221c

Mun færri smit og miklu harðari aðgerðir síðustu jól

1221d

Vilji að tveggja metra regla verði tekin upp aftur

1221e

Leggur til 20 manna samkomubann og frestun skóla

1221é

Þórólfur vill endurvekja sóttkví við komuna til landsins

1221f

 

Myndi þetta fólk standa á öðrum fæti og gelta ef Þórólfur segði að það myndi binda enda á faraldurinn?

Hvernig fólki er haldið eins og hömstrum í hjóli

Framundan er hátíð með alls konar skemmtilegum viðburðum

  • Verum búin að kynda undir áhyggjur af "nýjum smitum"
  • Sendum alla í próf, svona til öryggis
  • Metfjöldi (jafnvel einkennalausra) smita greinist
  • Lýsum yfir gríðarlegum áhyggjum af stöðu faraldursins
  • Réttlætum þær til magna óttann (enda auðvelt verk), og boðum hertar aðgerðir
  • Endurtökum þetta eins oft og þarf

Ég er löngu komin með nóg af því að fólk láti endalaust teyma sig áfram og hlýði öllu sem því er sagt.

Hvernig getur það ennþá trúað því að aðgerðir sem eru margoft búnar að mistakast herfilega, fái allt í einu nýja útkomu?

Lesið endilega þessa færslu mína frá því í ágúst og horfið á vídeóin. Ég kalla fólk þarna glæpahyski - og það með réttu.

Þau eru meira og minna öll á sporslum frá lyfjafyrirtækjunum og/eða eiga hlutabréf í þeim, eins og þessi sem ég nefndi hér.

Meira um það síðar!

 

 


Til hvers að fara í örvunarbólusetningu ef sprautur eitt og tvö virkuðu ekki?

Hvaða gagn mun hún gera? Samkvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun sjálfri, þá hefur tilkynningum um aukaverkanir fjölgað með ógnarhraða frá því byrjað var að gefa þær, og það sem verra er, þeim alvarlegu hefur fjölgað um 26, eða tæplega eina á dag!

En allt er betra en að fá pestina er okkur sagt....

Mikilvægt að grípa í taumana segir Már

Hann seg­ir nú tvo mik­il­væga þætti í stöðunni til að stemma stigu við út­breiðslu veirunn­ar. Ann­ars veg­ar að grípa harka­lega í taum­ana hvað varðar sam­komutak­mark­an­ir og hins veg­ar að hvetja fólk í örvun­ar­bólu­setn­ing­ar og hefja bólu­setn­ing­ar barna á aldr­in­um fimm til 11 ára.

„Þeim mun meira ónæmi sem við höf­um í sam­fé­lag­inu, þeim erfiðara er fyr­ir veiruna að dreifast.“

Hann seg­ir mik­il­vægt að bregðast við stöðunni. Að öðrum kosti muni heil­brigðis­kerfið lenda í mjög mikl­um vand­ræðum. (Áherslan er mín)

Það er siðlaust af honum að nota þetta tækifæri líka til að tala um að það "verði að" fara að sprauta litlu krakkana.

Hjartabólga hefur verið staðfest hjá 5-11 ára börnum í Bandaríkjunum eftir þessar "bólusetningar".

Ungir og hraustir íþróttamenn eru að detta niður og jafnvel deyja í miðjum leik, og þeim frásögnum fer fjölgandi þrátt fyrir að sjaldan eða aldrei sé fjallað um það í íslenskum fjölmiðlum.

Hér er listi yfir helstu tilvik sem tilkynnt hefur verið um. Flest þeirra voru hjartastopp.

  • Hjartastopp
  • Blóðtappar eða segamyndun
  • Heilablóðföll
  • Óreglulegulegur hjartsláttur
  • Hjartsláttartruflanir
  • Taugakvillar
  • Andlát  

Nú stígur fram hver sérfræðingurinn á fætur öðrum hér á landi og mærir þessi genabreytandi líftæknilyf, eins og Magnús Karl Magnússon, starfsmaður Íslenskrar Erfðagreiningar.

Tilefni viðtalsins var fjölmenn og friðsæl ganga fjölda fólks sem hefur áhyggjur af því að sprauta eigi börnin með lyfjum sem enn eru í tilraunafasa til ársins 2023, hvað sem doktorinn segir.

Viðbót: Tilrauninni lýkur ekki fyrr en árið 2026 skv. nýjustu uppfærslu, sjá hér.

Og mér hreinlega ofbýður það að hann skuli voga sér að segja að það sé ekkert slæmt að gera tilraunir á börnum!

„Það er svo sannar­lega ekki slæmt að gera til­raunir á börnum en þegar þær eru gerðar þarf að gæta sér­stakrar var­úðar. Slíkar til­raunir þarf að gera til að tryggja börnum nýjar með­ferðir og ný bólu­efni til að fyrir­byggja sjúk­dóma. En nú erum við svo heppin að þessar til­raunir liggja fyrir. Þær eru af­dráttar­lausar,“ skrifar Magnús Karl.

Ætli þessi börn og foreldrar þeirra séu sammála honum?

1203i

Sjá frásagnir og viðtöl við foreldra sprautuskaddaðra unglinga hér.

Er ekki ljós á neinni peru hér á landi nema örfáum?

Í hátt í tvö ár núna erum við búin að búa við margháttaðar skerðingar á mannréttindum okkar og frelsi.

Tugþúsundir hafa þurft að sæta sóttkvíum, einangrunum, smitgátum og hvað þetta allt kallast. Baða sig í spritti í tonnavís, ekki knúsa ömmu, og þurfa að setja einhverjar súrhefnisheftandi tuskur fyrir vit sín mánuðum saman.

En ekkert hefur virkað! Í guðanna bænum hættið að láta endalaust ljúga að ykkur og farið að gera ykkar eigin rannsóknir, bara ekki nota RÚV til þess.

Ef þið farið ekki að vakna, þá mun fara eins fyrir okkur og í Austurríki, Kanada, Nýja Sjálandi, Ástralíu og fleiri löndum.

Omicron afbrigðið

1208é

 

 


mbl.is Megum búast við 600 smitum á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjartabólga hefur verið staðfest hjá 5-11 ára börnum í USA eftir "bólusetningarnar".

Bandarískar miðstöðvar fyrir sjúkdómseftirlit og forvarnir (CDC) hafa greint frá átta tilfellum af hjartavöðvabólgu, hugsanlega banvænni tegund, hjá grunnskólanemum sem fengu Pfizer sprautu.

1218b

Til og með 10. desember sagði CDC að það hefðu borist 14 tilkynningar um hjartavöðvabólgu meðal barna á aldrinum 5-11 ára sem fengu sprautuna. Þar af sagði það að átta tilfelli - þar sem fjórar drengir og fjórar stúlkur tóku þátt - uppfylltu „vinnutilviksskilgreiningu“ stofnunarinnar á bólgunni.

Af þessum 14 tilkynntu tilfellum er verið að fylgjast með 5. Af þessum 8 sem voru staðfest af CDC, þá komu 6 börn sem fengu seinni skammtinn af Pfizer, sem er eina leyfða "bóluefnið" fyrir þennan aldurshóp.

Skýrslurnar voru birtar á fimmtudaginn meðal 3.233 annarra aukaverkana eftir bólusetningu sem tilkynntar voru til VAERS.

Sjá hér.

Hér á Íslandi

Faraldurinn valdi mikilli röskun á lífi barna segir Þórólfur

„Veir­an get­ur valdið mik­illi rösk­un á dag­legu lífi þess­ara barna. Menn hafa haft mikl­ar áhyggj­ur af því að það geti líka haft var­an­leg og slæm áhrif á börn­in svo það er fyllsta ástæða til þess að reyna koma í veg fyr­ir það. Fyrst og fremst erum við bara að hugsa um hag barn­anna sjálfra.“ (Áherslan er mín)

Er hann að hugsa um hag barnanna sem hafa hvorki getað stundað eðlilegt skóla- eða félagslíf í bráðum 2 ár núna, og þau eldri neydd til að nota grímur?

1218c

Gengst við því að hafa gert of mikið úr veikindum barna

Þórólfur er ekki vanur því að fá neina gagnrýni á málflutning sinn og virðist aldrei beðinn um gögn máli sínu til sönnunar í hvert skipti sem hann segir að "nýjar upplýsingar" eða "nýjar rannsóknir" bendi til einhvers.

En það er sem betur fer að breytast núna, enda löngu kominn tími til.

Sóttvarnalæknir bregst við ábendingum

Frosti Sigurjónsson birti grein á vefsíðu sinni 17. desember sem segir meðal annars þetta:

Það er virðingarvert af sóttvarnalækni að viðurkenna mistök í forsendum bólusetningar barna og birta leiðréttingu. Hann breytir reyndar ekki niðurstöðu sinni þótt honum sé ljóst að áhætta barna af sjúkdómnum sé helmingi minni en hann taldi áður og vörn bóluefnisins gegn smiti sé ekki 90% eins og hann taldi.

19 dauðsföll barna og unglinga sem höfðu verið sprautuð með Pfizer

Bandaríski VAERS gagnagrunnurinn heldur utanum tilkynntar aukaverkanir og andlát eftir bólusetningar, og í þessari frétt má sjá sundurliðaðar tilkynningar um 19 dauðsföll barna og unglinga.

Allar neðantaldar 19 tilkynningar eru teknar úr VAERS gagnagrunninum í Bandaríkjunum yfir aukaverkanir vegna Covid bólusetninga. Allar tilkynningarnar voru birtar núna í desember 2021 og eiga það sameiginlegt að öll börnin dóu eftir að þau voru sprautuð með mRNA tilraunalyfinu frá Pfizer.

Meðfylgjandi hverju tilviki er lýsing úr skýrslu. Það athugast að orðalag í skýrslum er ekki hefðubundið heldur meira í „skeytastíl“ og oft á „læknamáli“ og geta lýsingarnar hér á eftir verið undarlega orðaðar og stundum ófullkomnar. Reynt var að tryggja að íslenska orðalagið hefði ekki áhrif á merkinguna. Hlekkir á viðkomandi tilkynningu í VAERS fylgir hverju tilviki.

Þann 31. ágúst var búið að tilkynna um 33 aukaverkanir hjá 12-17 ára börnum eftir sprauturnar hér á Íslandi, og samkvæmt frétt 8. september var þá búið að tilkynna um 6 alvarlegar aukaverkanir hjá þessum aldurshópi.

Getum við ekki öll sammælst um að leyfa 5-11 ára börnum að njóta vafans og sleppa þeim við þessar "bólusetningar"?

 


Tilkynntum aukaverkunum hefur fjölgað um 331 á einum mánuði, þar af 26 alvarlegum síðan "örvunarbólusetningarnar" hófust.

Ég minnist ekki að hafa séð jafnmikla fjölgun tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir milli daga eins og í dag, en þeim fjölgaði um 5 síðan í gær.

Það er óskiljanlegt að ekki sé búið að stöðva þessar svokölluðu "bólusetningar" fyrir lifandis löngu, því skaðinn eftir þær er óafturkræfur hjá fjöldamörgum og að allra minnsta kosti 32 eru látnir eftir þær.

Að allt sé betra en að fá pestina er hrein lýgi.

En nei nei, við erum víst á viðkvæmum tíma í faraldrinum (mig minnir að ég hafi heyrt þetta nokkrum sinnum áður!), smittölur síðustu daga séu möguleg vísbending um að viðsnúningur sé að verða í fjölda tilfella, til verri vegar.

Það mikilvægasta sem við getum gert til að halda samfélaginu gangandi og lágmarka veikindi sé það sé góð þátttaka í þessum bólusetningum sem nú eru í fullum gangi, að mati Magnúsar Gottfreðssonar læknis.

Flottur árangur, er það ekki?

Á myndinni má sjá fjölgunina frá því að þessi búst hófust, til dagsins í dag, og þessa fjölgun um 5 alvarlegar síðan í gær.

1217p

Smá upprifjun

Þórólfur í viðtali í Mannlífi þann 14. apríl 2020

Hann benti á að mun alvarlegra væri að fá COVID með aukaverkunum þess en að láta bólusetja sig. Það hvíli samfélagsleg ábyrgð á fólki að láta bólusetja sig til að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins."

"Hann sagði viðamiklar rannsóknir þurfa til að ganga úr skugga um þessi atriði þegar nýtt bóluefni er prófað. Það sama á við um lyf við sjúkdómnum sjálfum. Hann sagði að vænlegast væri að gefa einum hóp lyfið og öðrum ekki og gera samanburð til að sjá virknina.

„Það þarf almennilegar rannsóknir,“ sagði Þórólfur. Hann bætti við að hann telji að nú séu læknar víða um heim að gera tilraunir með lyfjagjöf en án rannsókna sé erfitt að sjá hvort lyfin virki í raun og veru."

1908i

Björn Rúnar Lúðvíksson, lærissveinn Fauci í viðtali á Bylgjunni þann 1. mars

„Varðandi niðurstöður sem eru komnar bendir allt til þess að bóluefni við Covid-19 séu örugg og mjög virk,“ sagði Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítala og prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, í Bítið á Bylgjunni. 

Hann benti á að mun alvarlegra væri að fá COVID með aukaverkunum þess en að láta bólusetja sig. Það hvíli samfélagsleg ábyrgð á fólki að láta bólusetja sig til að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins.

2508b

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir í viðtali við Fréttablaðið 21. júní

„Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

2711b

Þórólfur Guðnason í viðtali við Fréttablaðið 21. júní

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

1217x

Ingileif Jónsdóttir prófessor og starfsmaður Ísl. erfðagreiningar í viðtali á RÚV 9. maí

Prófessor í ónæmisfræðum segir ekki ólíklegt að sprauta þurfi fólk oftar en tvisvar til að verja það fyrir nýjum veiruafbrigðum. Nýr samningur Evrópusambandsins um kaup á 1,8 milljörðum skammta frá Pfizer hefur það einmitt að markmiði að tryggja Evrópubúum slíka viðbótarskammta næstu þrjú árin. Af þeim fær Ísland 1,4 milljónir skammta. Þeir eiga að koma til landsins á næsta ári og því þarnæsta.

1217v

Skyldu fleiri vera á "styrkjum" hjá lyfjarisunum?

Hér ofar sjáið þið örfáa búta úr viðtölum við hluta þess fólks sem er búið að narra 90% þjóðarinnar í þessar sprautur.

Hér niðri sjáið þið einn kollega þeirra sem er á mútugreiðslum hjá lyfjarisunum.

1217u

1217ú

Ásgeir Haraldsson barnalæknir hefur fengið greiðslur og ferðakostnað greiddan frá lyfjarisunum GlaxoSmithKline og Pfizer og einnig a.m.k eina greiðslu frá AstraZeneca og CSL Behring.

Fréttin er hér.

Hættið að vera svona trúgjörn og barnaleg

Ef þessu fólki, að ógleymdum Kára væri virkilega annt um líf ykkar og heilsu, og hvað þá barnanna sem á að fara að sprauta núna, þá væri búið að stöðva þessar "bólusetningar" fyrir löngu síðan, í staðinn fyrir að hvetja alla í þær, það hljóta allir að sjá sem vilja.

 1217t

"Follow the money" segir einhvers staðar. Hvað skyldi þetta fólk fá mikið í sinn vasa af hverri sprautu? Eitthvað svipað og þessir hér? Lesið þetta líka.

1211i

 

 


Það hefur orðið 600% aukning á dauðsföllum vegna blóðtappa á þessu ári.

Breskur útfararstjóri ákvað fyrr á árinu að stíga fram og segja frá því sem hann hefur upplifað í starfi síðan síðan í ársbyrjun 2020. Það má hlusta á hann segja frá því hér, og á þessari síðu má finna fleiri viðtöl við hann.

Er hann að segja satt eða ekki?

Spyrja má hvers vegna maður sé tilbúinn að hætta starfi sínu og mannorði fyrir sannleikann.

Hann er sem betur fer heiðarlegur einstaklingur sem kaus að líta ekki í hina áttina eins og margir kollegar hans og margir sem hann þarf að hafa samskipti við starfs síns vegna hafa því miður gert.

Hann reiknar með því að neyðast til að loka fyrirtækinu sínu bráðlega, þar sem útfararstjórar munu líklega verða neyddir til að fá sér bóluefnapassa til að mega reka fyrirtæki sín áfram. Hann kærir sig ekki um sprauturnar fyrir sjálfan sig.

Hann er vissulega ekki læknismenntaður (eins og Þórólfur, Kári og Fauci) en hann fær skýrslur með hverju líki frá dánardómstjórum sem hann þarf að fara yfir, og einnig á hann í samskiptum við fjölskyldur þeirra látnu.

Í spjöllum við þær hefur oftar en ekki komið í ljós að þeir látnu höfðu verið sprautaðir, en aðstandendur tengdu andlátin ekki við sprauturnar þar sem einhver tími var liðinn síðan viðkomandi fengu þær.

Nokkrir punktar úr viðtalinu

Andlátstölur árið 2020 voru aðeins lægri en 2019, hvað sem fjölmiðlarnir segja.

Dauðsföll vegna blóðtappa eru yfirleitt sjaldgæf. Hann hefur séð fleiri dauðsföll vegna blóðtappa árið 2021 en á 14 árum þar á undan. Núna sér hann skyndidauða af völdum blóðtappa í hverri viku. Þetta hefur aldrei gerst áður en byrjaði um leið og bólusetningarnar byrjuðu.

Hann hefur annast útfarir margra sem létust með Covid, notar aldrei grímur né einhvern sérstakan hlífðarfatnað, samt hefur hann sjálfur aldrei veikst.

Hann nefnir líka gríðarlega aukningu andláta FIFA leikmanna út hjartaáföllum á árinu, en hún er fimmföld.

Hann hefur ekki fengið neina til sín sem eiga að hafa látist vegna veirunnar í margar vikur, einungis skyndileg andlát vegna blóðtappa í kjölfar sprautanna, fólk á öllum aldri.

Svo er hann með skilaboð til almennings: Gerið ykkar eigin rannsóknir, forðist Google og BBC. Þetta hefur aldrei snúist um einhverja veiru, heldur um stjórn.

1216

Þetta er frábært viðtal við hann sem horfa má á hér.

Annar útfararstjóri

Annar útfararstjóri steig líka nýlega fram og hefur svipaða sögu að segja, síðasta ár var ekkert óvenjulegt fyrir utan kúf í byrjun ársins, en það varð sprengja á þessu ári þegar "bólusetningarnar" byrjuðu.

Það er ekki gamla fólkið sem var að deyja, heldur yngra fólkið. Og nú er hann að sjá frystiskápa líkhúsanna fulla af nýfæddum börnum, hann sá 30 á einum spítala.

Hann talar líka um falsanirnar í andlátstölum í fyrra, dánarorsakir voru í mörgum tilfellum sagðar vera vegna veirunnar, en voru í raun vegna einhvers allt annars.

Viðtalið má sjá hér.


Krítísk hugsun er stórhættuleg!

Doktor Dauði hjá Miðstöð yfirráða og stjórnunar yfir fólki, fer hér yfir það hvers vegna krítísk hugsun er stórhættuleg.

Hún er versta og hættulegasta nýja afbrigðið til þessa dags!

En svona að öllu gamni slepptu, þá komast fáir með tærnar þangað sem hann JP hefur hælana hvað varðar að túlka líðandi stund á sinn einstaka hátt, og draga hana sundur og saman í háði.

Rennum á hlaupum yfir það helsta sem hann talar um hér

Faraldur gagnrýninnar hugsunar er yfirvofandi, og hvaða meðölum getum við beitt í baráttunni gegn henni?

Örugglega ekki það sem þú heldur, við skulum fyrst skoða skaðann sem hún veldur.

Einhverra hluta vegna þá elta þeir sem beita gagnrýninni hugsun peningaslóð þeirra sem hagnast á höftunum, fyllir þá "grunsemdum" og gerir þá "forvitna um hvað sé raunverulega í gangi".

Það leiðir á endanum bara til þess að þeir verði minna hlýðnir! Síðastliðin tvö ár hafa fært okkur sanninn um að hlýðni gerir okkur að heilbrigðu, hamingjusömu og sofandi samfélagi.

Þegar krítísk hugsun eykst, minnkar hlýðnin. Getið þið ímyndað ykkur hvað það sé erfitt fyrir Elítuna!? Setjið ykkur í þeirra spor, ímyndið ykkur að þið séuð sauðfjárbændur, og að hver rolla hefði sjálfstæða hugsun!

Það væri þér mjög erfitt, ef ekki ómögulegt að hagnast á kostnað þeirra sjálfra, hjarðarinnar.

Hefurðu nokkuð hugsað út í það að þegar þú beitir krítískri hugsun, þá sértu að kúga Elítuna?

Ef þú beitir krítískri hugsun, þá muntu ekki vera í sambandi við hlutlægan veruleika, og vandamálið við það er að þú munt ekki hræðast alvarlegar hættur sem fyrirfinnast ekki í hlutlægum veruleika sem við getum varið þig gegn.

En hafðu engar áhyggjur, við pössum upp á þig.... og munum gera allt sem við getum til að berjast gegn þessari skelfilegu hættu!

Annað gott efni af netinu

Einhvers staðar sá ég þennan texta sem er greinilega skrifaður af Breta, og tók mér það bessaleyfi að afrita hann, hann var of góður til að gera það ekki, og hann er jafn hárbeittur og hjá JP.

Urgent public service announcement

We have news about further variants now circling the globe, following the discovery of the moronic variant. Please stay alert as to changes in the demeaner of associates which may mean that they have contracted one of these new variants.

Rest assured you are, however, safe as no doubt those non infected by a non existent variant, will continue daily to test test test, with a test that cannot find anything, let alone say if a person is ill. However those testing are of course doing their public duty in keeping this absolute farcical circus going, for which the elites and those in power thank them.

Variants now of concern

1. The idiot variant
This variant seems to attach itself to the unthinking and affects the brain to the extent that the infected cannot critically think and the person then relies on Jeremy Vine for updates as to what is really going on in the world. Other symptoms are glazed eyes and a deep desire to get a 4th and 5th booster whilst knowing the vaccines don't work

2. The imbecilic variant
Like the idiotic variant but worse as the person also has a wish to listen to Dr Hillary Jones and even, tragically, may want to buy his book. Other symptoms present as triple masking and involuntary shouting at anyone not following the narrative.

3. The asinine variant
Again similar to the above 2 variants but has more effect on the eyes as those presenting with symptoms have an inability to accept the truth of the empirical data presented in writing to them, both about vaccines not working, and survival rates of the non flu virus.

Broadly, people affected by this variant still watch the BBC, so do check your older relatives for this one, and watch them closely.

4. The ludicrous variant
The most dangerous variant of all, this may have infected alot of the population already. People can present as symptomless, but you can soon recognise they are infected as they continue to repeat certain phrases such as "I’m following the science", "my mask protects you", and "you need to get a vaccine so my vaccine that didn’t work, works better".

Beware of coming into very close contact with anyone infected with this variant. They can become hostile and aggressive especially if you mention the words Yeadon, Malone and Vanden Bossche.

We will bring you further public service updates as they become necessary. In the meantime, stay sane and carry on living your life free from fear.

1128d


Við virðumst alltaf vera á sama stað í baráttunni við veiruna - þrátt fyrir allar sprauturnar. Er ekki kominn tími til að skipta um kaftein í brúnni?

Það er merkilegt að sjá hvað illa gengur að ná faraldrinum niður eftir allan þennan tíma, þrátt fyrir að búið sé að sprauta 90% landsmanna 12 ára og eldri gegn honum.

Hvað klikkaði eiginlega hjá heiðursorðuhöfunum?

Samt höfum við þurft að sæta samkomutakmörkunum og nota grímur í marga mánuði núna, (með stuttu hléi þó).

En ekkert virðist virka!

Tæplega 145.000 einstaklingar eru búnir að fá örvunarskammt, samt greindust 147 smit í gær.

Ætti kúrfan ekki að vera orðin nánast flöt núna?

1412a

Litlar forsendur fyrir tilslökunum fyrir jólin segir sóttvarnalæknir

Þetta kemur lítið á óvart:

„Ég myndi segja að við erum á mjög viðkvæmum tíma núna. Faraldurinn er ekki að fara niður hjá okkur núna. Staðan er heldur skárri á spítalanum og kúrfan er heldur að fara upp á við kannski ef við skoðum fjórtán daga nýgengi. Þannig að ég get ekki séð ef við horfum á það að það sé mikið pláss að rýmka mikið til,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.

Ef ég væri ekki orðin svona drepleið á þessum síendurtekna söng hans, þá hefði ég sprungið úr hlátri yfir þessu, að við séum á mjög viðkvæmum tíma núna.

Thor Aspelund prófessor í líftölfræði og formaður skimunarráðs Landspítala er á svipuðum nótum og segir að smittölur síðustu daga séu möguleg vísbending um að viðsnúningur sé að verða í fjölda tilfella, til verri vegar.

Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum

„Ég held að það sé það mikilvægasta sem við getum gert til að halda samfélaginu gangandi og lágmarka veikindi að það sé góð þátttaka í þessum bólusetningum sem nú eru í fullum gangi. Þetta er í raun og veru langöflugasta forvörn sem við höfum, þannig að ég vil bara hvetja alla til að taka þátt í því,“ sagði Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum og yfirlæknir á Landspítala, í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Er þetta merki um öfluga forvörn, er málið ekki frekar að bóluefnin virki ekki eins og lofað var?

1412b

Mér finnst ég stundum vera að upplifa það sama og veðurfréttamaðurinn í myndinni Groundhog Day, sem við sem eldri erum ættum að muna eftir:

A self-centered Pittsburgh weatherman finds himself inexplicably trapped in a small town as he lives the same day over and over again.

Ef fólk heldur að faraldurinn muni taka enda einhvern tímann á næstunni, þá er það misskilningur. Búið er að tryggja okkur 1,4 milljónir skammta af Pfizer fyrir næsta og þarnæsta ár, svo hægt verði að sprauta okkur enn meira.

Endurbólusetning, jafnvel nokkrum sinnum

Bergström segir þetta gert til þess að hægt verði að endurbólusetja fólk, jafnvel nokkrum sinnum, gegn hugsanlegum nýjum veiruafbrigðum sem gætu komið fram. Líta megi á samninginn sem tryggingarráðstöfun. Framleiðendur Pfizer-BioNTech hafa einmitt lýst því yfir að það sé auðvelt að breyta efninu lítillega þannig að það virki gegn nýjum afbrigðum. 

Ætli þessu fólki þyki það ekki hafa verið svikið?

Ég veit um fólk sem fór í Janssen sprautuna valdi það efni vegna þess að ein sprauta átti að duga.

Þeir sem fengu upphaflega bóluefnið frá Janssen og svo örvunarskammt, geta komið í þriðju bólusetninguna fimm mánuðum eftir örvunarskammtinn.

Nú telst ein sprauta ekki nóg, best að hafa þær bara þrjár!

Nú á að fara að sprauta litlu krakkana, og mælt með því að börn á aldrinum 6-12 ára sem þegar hafa fengið pestina, verði sprautuð.

Það er löngu kominn tími til að þjóðin fari að átta sig á að þetta hefur aldrei snúist um að verja heilbrigðiskerfið og bjarga ömmu gömlu, enda er hún núna þrísprautuð - og enn í stofufangelsi.

Margir búnir að fá nóg

Hallur Hallsson sagnfræðingur og fyrrverandi fréttamaður birti harðorða færslu á Facebook síðu sinni í dag, sem hann veitti mér góðfúslegt leyfi til að birta hér.

SÓTTVARNALÆKNIR SEGI AF SÉR
 
Sóttvarnalæknir boðar á nýju ári bólusetningar 5-11 ára barna. Ég segi: Það er komið nóg. Heilbrigðiskerfið & fulltrúar Pfizer gera tilraunir á íslenskri þjóð & nú er komið að börnum. Það er komið að því að við öll stöndum upp & segjum: látið börnin í friði.
 
„Fyrst og fremst erum við bara að hugsa um hag barnanna sjálfra,“ segir Þórólfur. Veit hann? Auðvitað ekki. Hann segist vona að bólusetningar barna beri árangur. Hann lætur börnin okkar ekki njóta vafans. Aftur & aftur hefur Þórólfur veifað röngu tré & sagt þjóðinni hluti sem ekki standast.
 
Fullorðnir hafa tekið þrjár sprautur & það eru þúsundir aukaverkana. Bæði hér á landi & erlendis eru í undirbúningi víðtækar málshöfðanir. Vilt þú að Pfizer geri tilraunir á börnum okkar? Nú er Willum Þór nýr ráðherra með nýjar áherslur & tækifæri til að setja nýjan mann í brúnna & skipta um kúrs sóttvarna.
 
Út í hinum stóra heimi græða lyfjarisar trilljarða dollara; þúsundir milljarða króna á milljarða króna ofan. Aldrei í sögu heimsins hefur Elíta heimsins rakað saman jafnmiklu fé á jafn stuttum tíma. Vesturlönd eru að lenda í fátæktargildru.
 
Samningur við Pfizer er leyndarmál hér sem í öðrum vestrænum ríkjum. Íslensk stjórnvöld hafa fært vald sem setur sig ofar okkar þjóðlega valdi sem nú þegar beygir sig undir kómizara í Brussel & New York. Hinir ofsaríku kætast. Mannlíkaminn er bísniss fyrir lyfjarisa. Ég segi við ríkisstjórn & Alþingi. Stöðvið þessa leyndarhyggju sem hneppir fólkið í landinu í fjötra. Ennþá hefur enginn þingmaður risið upp gegn þessari geggjun.
 
Í Ameríku er börnum gefnar pizzur fyrir sprautur. Í Evrópu krefur lögregla fólk á götum úti um sprautupassa. Í Ástralíu er fólk hneppt í fangabúðir. Fólk um allan hinn vestræna heim er svipt lýðréttindum, framvísi það ekki bólupassa. Ekki er öld liðin frá því gyðingar báru gula stjörnu. Í okkar samtíma er fólk nú þegar útilokað hafni það sprautu. Fyrirtæki krefjast bólusetninga & falsmiðlar hamra rétttrúnaðinn.
 
Arnar Þór Jónsson varaþingmaður fórnaði dómaraembætti til að vara okkur við:
„Öllum má vera orðið ljóst að nú er að eiga sér stað háskaleg öfugþróun í samskiptum ríkis og borgara. Ástandið er víða um heim orðið svo alvarlegt að þessu leyti að engum ábyrgum manni leyfist lengur að líta undan.
 
Viðurkenna ber í hreinskilni að stærsta hættan sem nú steðjar að borgaralegu frelsi eru stjórnarfarslegar ófarir, þar sem frjáslyndi verður fasisma að bráð og lýðræði hopar fyrir alræði.“
 
Ríkisstjórn & Alþingi líta undan & þegja. Innan fárra missera verður spurt: Hvað gerðir þú fyrir börnin? ...
 
Færsluna sjálfa má finna hér.

 


13 ástæður fyrir því að hugsa ykkur vel um áður en þið látið bólusetja 5-11 ára börnin ykkar.

Nú er komið að því sem margir hafa óttast, að ungum börnum "verði boðin" bólusetning eftir áramótin.

Þórólfur segir:

Far­ald­ur­inn valdi mik­illi rösk­un á lífi barna

Upp­lýs­ing­ar liggja nú fyr­ir um að börn séu að leggj­ast al­var­lega veik inn á spít­ala vegna veirunn­ar í bæði Banda­ríkj­un­um sem og öðrum Evr­ópu­lönd­um og því er fyllsta ástæða til að bjóða of­an­greind­um ald­urs­hópi bólu­setn­ingu gegn veirunni, að sögn Þórólfs.

Hann seg­ir yf­ir­stand­andi bylgju far­ald­urs­ins drifna áfram af börn­um og að bólu­setn­ing­ar þeirra muni ekki ein­ung­is hjálpa við að kveða smit­in niður held­ur einnig að draga úr nei­kvæðum áhrif­um veirunn­ar á dag­legt líf barna.

„Veir­an get­ur valdið mik­illi rösk­un á dag­legu lífi þess­ara barna. Menn hafa haft mikl­ar áhyggj­ur af því að það geti líka haft var­an­leg og slæm áhrif á börn­in svo það er fyllsta ástæða til þess að reyna koma í veg fyr­ir það. Fyrst og fremst erum við bara að hugsa um hag barn­anna sjálfra.“

Hvaðan koma þessar upplýsingar Þórólfur?

Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna maðurinn sé aldrei krafinn gagna sem sanni það sem hann er að segja í fjölmiðlunum.

Hann kemst upp með því að vísa alltaf í einhverjar nýjar rannsóknir og upplýsingar þegar hann þarf að koma einhverjum málstað á framfæri.

Skýrt dæmi um það er þegar hann sagði í fyrrasumar að grímur gerðu ekkert gagn, en nokkrum vikum síðar tók hann algjöra U-beygju og sagði að einhverjar nýjar rannsóknir bentu til akkúrat hins gagnstæða.

13 ástæður fyrir því að láta ekki sprauta börnin ykkar með Pfizer bóluefninu

  1. 86% barna hlaut aukaverkanir vegna Pfizer í klínískri rannsókn.
  2. 1 af 9 börnum hlaut alvarlegar aukaverkanir sem gerði þau ófær um að sinna daglegum athöfnum.
  3. Aðeins er hægt að tengja 9 andlát barna við veiruna frá því í mars 2020.
  4. Hættan á alvarlegum veikindum hjá börnum er ákaflega lítil.
  5. Bóluefnið er tilraunaverkefni og enn í klínískum rannsóknum.
  6. 3 vísindarannsóknir sem voru framkvæmdar af bresku ríkisstjórninni, Oxford háskóla og CDC og birtar í ágúst sýna fram á að þessi bóluefni virka ekki.
  7. Gögn frá Public Health England sýna að meirihluti dauðsfalla er meðal bólusettra og benda til þess að bóluefnin geti gert sjúkdóminn verri.
  8. Tilkynnt hefur verið um 1.8 milljón aukaverkanir, og það aðeins í Bretlandi.
  9. Það hafa orðið fleiri andlát á 8 mánuðum vegna Covid bóluefnanna en vegna allra annarra bóluefna samanlagt síðan árið 2001.
  10. Það er hætta á hjartabólgum í börnum vegna Pfizer bóluefnisins.
  11. Börn hafa dáið, og eru að deyja vegna Covid bóluefnanna.
  12. Hver hagnast á því að þú látir sprauta barnið þitt?
  13. The Joint Committee on Vaccination & Immunisation hefur neitað að mæla með því að börnum verði boðið Pfizer bóluefnið.

Mjög ítarleg heimild hér, sem ég hvet alla til að skoða vel og vandlega.

Þessu til viðbótar má velta því fyrir sér hvers vegna ungir íþróttamenn, sem eðli málsins samkvæmt eru í góðri líkamlegri þjálfun séu að detta niður og jafnvel deyja í miðjum leikjum.

Hér segir að 71 íþróttamaður hafi á þessu ári fengið hjartaáfall og 26 þeirra látist eftir bólusetningarnar.

Hér er listi yfir helstu tilvik sem tilkynnt hefur verið um. Flest þeirra voru hjartastopp.

  • Hjartastopp
  • Blóðtappar eða segamyndun
  • Heilablóðföll
  • Óreglulegulegur hjartsláttur
  • Hjartsláttartruflanir
  • Taugakvillar
  • Andlát  

Ung fórnarlömb bóluefnanna, og viðtöl við foreldra

1213s

Sjá má þessar sláandi upplýsingar í þessu vídeói. Og athugið, þetta er aldurshópurinn sem þegar er búið að sprauta.

Getum við ekki öll verið sammála um að þetta sé ekki eðlilegt?

1130j

Foreldrum ber skylda til að gæta hagsmuna barna sinna og gera það langflestir auðvitað með miklum sóma.

En væru þeir tilbúnir að senda þau eitthvert með nýrri tegund flugvélar sem væri enn á tilraunastigi, þótt nokkrar fullar af farþegum hefðu þegar hrapað, og þótt flugvélaframleiðandinn segðu að þrátt fyrir það væru alveg öruggar?

Ég held ekki. Er ekki betra að leyfa börnunum að njóta vafans?

 


mbl.is Börnum á aldrinum 5-11 ára boðin bólusetning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var logið um raunverulega orsök andláts þessa manns?

Í gær skrifaði ég blogg við frétt um 36. andlátið af völdum þessa sjúkdóms, sem fór eitthvað illa í mann sem las það, og fann því allt til foráttu.

Ég svaraði honum í löngu máli, meðal annars þessu:

Vissirðu að þessi maður sem sagður er hafa núna látist úr Covid varð fárveikur eftir fyrstu tvær sprauturnar, og fór í örvunarsprautu viku áður en hann lést? Ónæmiskerfið hans hrundi, hann fékk blóðtappa í lungu og fót, 40 stiga hita og 3 tegundir sýkinga, líffærin fóru á endanum að gefa sig hvert af öðru svo hann lést.

En hann dó víst úr Covid, blessaður þrísprautaður maðurinn.

Dóttir mannsins, sem heitir Margrét Ósk Guðbergsdóttir er búin að stíga fram og segja málið frá sínu sjónarhorni, og er hún sjálf sködduð eftir eina sprautu, og lýsti í viðtali í sumar að sér liði eins og hún væri orðin níræð eftir hana.

Ég vona innilega að hún og fjölskylda hennar fari lengra með málið!

Sem betur fer hikar fólk ekki við að tjá sig á samfélagsmiðlunum ef því ofbýður fréttaflutningurinn, eins og sjá má hér fyrir neðan.

1212é

Hverju öðru hefur verið logið að okkur?

Til dæmis því að þessi svokölluðu "bóluefni" séu mjög örugg og með mikla virkni, og ég hef t.d. margoft haft eftir það sem Ragnheiður Erlendsdóttir hjúkrunarfræðingur og Þórólfur hafa logið að okkur. 

Hann að það sé bara tvennt í stöðunni, annað hvort að láta sprauta sig eða fá Covid, og hún að öll bóluefnin séu jafn góð og - við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Þetta eru tilkynntar aukaverkanir með eins mánaðar millibili

1212f

Á þessum slétta mánuði hefur tilkynntum aukaverkunum fjölgað um 305, eða um það bil 10 á dag að meðaltali, og fjölgun alvarlegra aukaverkana er sláandi, eða 23 á aðeins þessum eina mánuði!

Ég varpaði fram spurningu í bloggi þann 10. nóvember um hvers vegna sóttvarnalæknir væri aldrei spurður út í aukaverkanirnar, og þar vitnaði ég meðal annars í nýja bloggfærslu frá honum:

"Rannsóknir erlendis frá benda til að örvunarskammtur veiti um 90% vörn gegn smiti og alvarlegum veikindum umfram skammt nr. tvö og þannig eru sterkar vísbendingar um að hjarðónæmi muni nást með útbreiddri örvunarbólusetningu.

Reynslan mun hins vegar skera úr um hver raunverulegur árangur verður eða hvort fleiri örvunarskammta þurfi að gefa á næstu mánuðum eða árum. Alvarlegar aukaverkanir eftir örvunarskammtinn eru afar fátíðar og síst algengari en eftir skammt nr. tvö." (Áherslubreytingin er mín)

Sjáiði lygarnar í honum?

Viku síðar bloggaði ég um furðu mína á því að mest bólusettu þjóðirnar væru með flestu smitin núna, meira að segja ein 100% sprautuð.

Sannleikurinn er bara sá að allt er gert til að breiða yfir sannleikann um þennan svokallaða "heimsfaraldur".

Fíllinn í stofunni - ef bóluefnin virkuðu, þá þyrfti enginn að fara í búst!

1203é

 

 


Í dag greindist 99,973% þjóðarinnar EKKI með veiruna!

Með fyllstu virðingu fyrir þessari manneskju sem lést víst vegna veirunnar í gær, þá þykir mér það stærri frétt að 99,973% þjóðarinnar sé EKKI greind með hana í dag.

Samt er þjóðinni haldið í hlekkjum, svipt frelsi og sjálfsögðum mannréttindum, neydd til að fara í hraðpróf til að geta farið í jarðarfarir eða leikhús, og neydd til að hefta súrefnisflæðið með grímum sem gera ekkert gagn!

1211b1

Ég fann í hendingskasti nokkrar nýlegar fréttir sem lýsa sturluninni sem er í gangi í heiminum í dag.

Konu neitað um heilbrigðisþjónustu

Rakel Þorleifsdóttir frá Akureyri lenti um síðustu helgi í því óhappi að brjóta illa á sér fingurinn þegar hún var að festa lok á pott sem var utandyra. Hún festi fingurinn í pottlokinu og í þann mund kemur vindhviða sem leiddi til þess að fingurinn á Rakel brotnaði illa.

Rakel leitaði beint á bráðamóttöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri en þegar hún segir frá því að hún sé í sóttkví er henni sagt að koma sér heim, ekki sé hægt að gera að sárum hennar.

Millilending í Osló breyttist í martröð fyrir jólin

Það sem henni blöskri mest sé ósveigjanleikinn sem hún upplifi sem gróft brot á sínum mannréttindum. „Hver mistökin á fætur öðrum, ósveigjanleiki sem meira að segja birtist í neitun á að koma til mín eigin farangri. Reglurnar eru flóknar, ruglingslegar, síbreytilegar og mótsagnarkenndar. Og framkvæmdin er köld og ómanneskjuleg,“ skrifar Auður á Facebook en færslu hennar er hægt að lesa hér að neðan.

Konu sem legið hefur á spítalanum síðan á fimmtudag sagt að koma sér heim því hún neitar PCR prófi

Ung kona sem er mikið veik og hefur legið á Landspítalanum síðan á fimmtudag hefur mætt dónaskap frá starfsfólki þar sem hún er ekki bólusett. Það uppgötvaðist í dag að hún væri ekki bólusett og var henni þá gert að fara í tvö hraðpróf sem reyndust neikvæð. Nú er konunni hins vegar gert að fara einnig í PCR próf en hún neitar því enda er ekki óalgengt  að fólk skaðist við að fá pinna upp í  nefkok og ofan í munnkok. Spítalinn hefur ekki boðið henni að taka munnstroku eða blóðprufu í staðinn.

Ungt par sem á von á barni flokkast sem óbólusett á Landspítalanum því þau hafna örvunarskammti

Ungt par sem er statt núna á fæðingadeild Landspítalans hefur sætt mikilli óvild og hótunum þar sem parið hefur hafnað örvunarskammti af Covid bóluefni.

Málsatvik eru þau að konan fór í 16 vikna sónar og mældist fóstrið þá alheilbrigt. Hún fór svo svo stuttu síðar í bólusetningu samkvæmt ráðleggingu læknis og ljósmóður. Í 20 vikna sónar greindist barnið aftur á móti með hjartagalla. Konan fór síðan aftur í sónar gengin sex mánuði á leið og greindist barnið þá vaxtarskert. Sökum þessa treysti parið sér ekki í örvunarskammtinn.

Parið mætti síðan á fæðingadeildina í gær en þar sem þau höfnuðu örvunarskammtinum var þeim tjáð að maðurinn gæti ekki verið viðstaddur fæðingu barnsins þar sem þau teljist óbólusett því sex mánuðir eru liðnir frá síðasta skammti. Parið var mjög ósátt við þetta og mótmælti en mættu þá dónaskap og hótunum frá starfsfólki spítalans.

Í dag greindust 99,973% þjóðarinnar EKKI með veiruna!

Haldiði virkilega ennþá að þetta snúist um baráttu gegn einhverri veiru?

1111p


mbl.is Andlát vegna veirunnar í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband