Færsluflokkur: Bloggar

Þórólfur sagði á sínum tíma að það væru bara tveir kostir í boði, að láta bólusetja sig, eða fá pestina

Og ekki nóg með það, þá sagði hann í júní 2021 að samfélagslegt ónæmi væri að nást með bólusetningum.

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu herfilega misráðnar þessar "bólusetningar" eru, þrátt fyrir allar yfirlýsingar og loforð sóttvarnalæknis í tvö ár núna.

Eftir því sem ég sé og heyri í mínum hópi virðist sprautaða fólkið í kringum hann hafa litla vörn gegn veirunni, og er að smitast í stórum stíl, alveg eins og þeir ósprautuðu.

Handboltamennirnir okkar

Mörgum til hrellingar hafa tví- og þrísprautaðir landsliðsmenn í handbolta greinst með veiruna núna, en sýna sem betur fer lítil einkenni og eru við góða heilsu.

Þeir eru búnir að vera í einangrun frá vinum og fjölskyldu nánast frá ársbyrjun, - en smituðust samt!

„Við erum búin að vera með liðið í einangrun síðan 2. janúar. Og strákarnir búnir að leggja mikið á sig til að haldast hreinir. Þeir eru búnir að fórna félagsskap fjölskyldu og vina til að leggja allt undir í þetta.“

Það var skylda að fara í sprauturnar

„Yfirgnæfandi meirihluti er kominn með annað hvort tvær eða þrjár sprautur. Ég held það séu nánast allir með tvær og stór hluti með þrjár. Það eru þeir sem voru heima og höfðu aðgang að því,“ segir Róbert í samtali við fréttastofu.

„Það var skylda að allir ættu að vera bólusettir og þegar fréttir komu um að biðja menn að fara í boozter óskuðum við eftir því við drengina sem tóku því mjög vel.“

Tilgangslítið sóttvarnabrjálæði

„Sóttvarnir á mótinu eru ekki nægilega góðar. Hótelin er ekki nægilega góð þegar kemur að sóttvörnum. Þú sérð þegar kemur að riðlakeppninni þá vorum við öðrum gestum á hóteli.“

Mikill samgangur var í flestum rýmum hótelsins að sögn Róberts, í lyftum, matsölum og á göngum. Talsvert hefur verið um smit í öðrum liðum enda hafi þröng verið á þingi á hótelinu og mikill samgangur milli gesta. Það séu mikil vonbrigði að smit hafi komið upp. 

Með slökkt á heilbrigðri skynsemi

Það sem fæstir virðast enn tilbúnir að viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum er að ekkert af ekkert af þessum aðgerðum undanfarin tvö ár hefur virkað, þrátt fyrir að vera skellt á okkur aftur og aftur.

Grímurnar virka ekki, sprittið gerir lítið gagn, hvað þá þessar endalausu sóttkvíar og einangranir og glórulausu sýnatökur sem eru búnar að kosta þjóðfélagið milljarða króna.

Sagði ekki einhver einhvern tímann að það að endurtaka sama hlutinn aftur og aftur og búast alltaf við nýrri útkomu, væri merki um geðveiki? 

Það er kannski ennþá meiri "geðveiki" að trúa öllu í blindni og leggja allt sitt traust á örfáa einstaklinga og gera ekki sínar eigin rannsóknir.

En hvað handboltamennina okkar varðar, þá ættu hraustir menn í góðri líkamlegri þjálfun að hrista þetta af sér eins og hverju öðru kvefi.

Enda er ungt fólk hreint ekkert að deyja úr veirunni, þetta er bara hystería sem búið er að heilaþvo þjóðina með.

Þjóðin mun í fyllingu tímans minnast Þórólfs sem mannsins sem lofaði betri tíð með blóm í haga - ef allir létu sprauta sig.

Með tilraunaefnum sem eru búin að valda andlátum að allra minnsta kosti 35 manneskja, skaða 240 aðra hugsanlega fyrir lífstíð, og valda hátt í 6.000 öðrum alls kyns heilsuskaða sem sumir hverjir munu kannski aldrei ná sér af.

Þegar - og ef hún loksins vaknar.

Hættum þessu!

Hættum að taka þátt í öllu þessu rugli, hendum grímunum og förum að lifa aftur eins og eðlilegt fólk. Man einhver lengur hvernig það var? Við munum aldrei lifa í veirufríu samfélagi, enda væri það bara útópía.

Gerum það sem okkur hefur aldrei verið ráðlagt af þeim sem þessu stjórna, og það er að byggja upp og efla okkar dásamlega meðfædda ónæmiskerfi, því það veitir okkur heilbrigða vörn gegn utanaðkomandi hættum, ekki einhver hraðsoðin efni sem eru búin til á tilraunastofum, sem þarf að sprauta okkur með á nokkurra mánaða fresti.

Og höfum í huga, að deyja ekki, er ekki það sama og lifa.

0111c


Í júní sagði Þórólfur að samfélagslegt ónæmi væri að nást með bólusetningum ....

.... en hver er staðan núna? Það kom í ljós að þetta stóðst bara engan veginn, ný bylgja kom upp kortér í verslunarmannahelgi, svo það reyndist "nauðsynlegt" að fara í þessar svokölluðu örvunarsprautur.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir samfélagslegt ónæmi vera að myndast hér á landi í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19. „Þessi smit sem eru að greinast bæði hér innanlands og á landamærunum eru ekki að dreifa úr sér, sem segir okkur að það er komið nokkuð gott samfélagslegt ónæmi,“ segir hann.

Athugið, þetta sagði hann í júní!

Staðan í dag

Nú er svo komið að 91% þjóðarinnar 12 ára og eldri er núna tví- eða þrísprautuð, en samt kom upp enn ein bylgjan í nóvember og settur var í gang enn einn skimunarfaraldurinn.

Hvar er samfélagslega ónæmið Þórólfur?

"Árangurinn" af skimunarfaraldrinum er sá að "smitfjöldi" er í hæstu hæðum núna, en brandarafréttin 17. janúar var sú að 98% á göngudeildinni voru einkennalitlir eða einkennalausir! (Getur maður verið veikur án þess að finna fyrir einkennum?)

Hvað með þessar 23.000 manneskjur sem eru núna í einangrun eða sóttkví, hvað ætli margar þeirra séu hreint ekkert lasnar, og hvað kosta þessar sífelldu einangranir og sóttkvíar samfélagið?

Og þá er ég ekki bara að tala um peninga því þetta verður að skoðast í miklu stærra samhengi.

Það kom fram í fréttum um daginn að kostnaður vegna skimana væri líklega 50-100 milljónir á dag, svo það blasir við að búið er að henda hundruðum milljóna út um gluggann til að finna einkennalítið eða einkennalaust fólk, á meðan fjársvelt heilbrigðiskerfið vælir og gólar.

Ætli það sé enn verið að nota PCR prófin á 40 snúningunum hér á landi? Sjáið meira um þessi fölsku próf hér.

Þetta sagði Þórólfur meðal annars 21. júní 2021:

Aspurður hvort fólk þyrfti að hræðast Janssen bóluefni umfram önnur sagði hann:

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Þannig að ungar konur ættu ekki að hræðast bólusetningu með Janssen?

„Nei, nei,“ segir Þórólfur.

Eins og við vitum í dag, þá er þetta haugalygi, búið er að tilkynna um 6.037 aukaverkanir, þar af 240 alvarlegar og 35 andlát.

Andlátin eftir sprauturnar voru 34 á síðasta ári, sem er svipað og andlátin samtals "úr" Covid 2020-2021.

En það þykir ekki fréttnæmt.

Gleymum ekki heldur þessum hátt í 3.000 konum sem fengu ofsablæðingar, hættu á blæðingum, fór að blæða aftur eftir tíðahvörf, og ungu stúlkunum sem fór að blæða þrátt fyrir að vera ekki byrjaðar á reglulegum blæðingum.

Konan sem elskar bóluefnin

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, tekur í sama streng og Þórólfur. „Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Það að þetta fólk hafi verið kosið fólk ársins 2021 er mér gjörsamlega fyrirmunað að skilja!

Vissulega er fullt af fólki lasið í dag, mismikið lasið þó sem betur fer, en hvernig stendur á því að hjá einni mest bólusettu þjóð í heimi séu svona mörg smit?

Það er búið að blekkja nánast alla þjóðina í tvær eða þrjár sprautur, en samt eru þeir sprautuðu að veikjast. Hvað varð um samfélagslega ónæmið Þórólfur?

Þetta er komið gott af sprautum sem virka ekki og síendurteknum skerðingum á mannréttindum, grímuskyldu og öðrum hömlum sem hafa ekki virkað í neinni af þessum bylgjum, en er samt skellt á okkur aftur og aftur.

Nú þarf fólk að spyrja sjálft sig, vill það virkilega fara inn í þriðja árið í þessari hringavitleysu - og láta jafnvel sprauta sig enn meira með líftæknilyfjum sem eru í tilraunafasa til ársins 2026?

Gleymum því ekki að íslensk stjórnvöld eru búin að skuldbinda sig til að kaupa 1.4 milljón bóluefnaskammta fyrir 370 þúsund manna þjóð, sem á að duga fyrir næstu tvö ár eða svo!

Þetta mun ekki enda nema fólk rísi upp og segi nei við hraðprófum, fleiri sprautum, fölskum PCR prófum, og neiti að fara sjálft eða setja börn sín í endalausar og tilgangslausar sóttkvíar og einangranir - eða láti sprauta þau líka!

Skyldulesning!

Ég las í dag alveg frábæra og vel rökstudda grein um afnám lýðræðis, sem varpar ljósi á hvað er á bak við þennan "heimsfaraldur".

Valdarán hefur átt sér stað fyrir opnum tjöldum. Ákvarðanir sem gilda fyrir alla heimsbyggðina eru í æ meira mæli teknar á samráðsfundum risafyrirtækja þar sem enginn fær að fara sem ekki hefur fengið boð.

Mikilvægasti samráðsvettvangurinn fyrir þessa nýju heimsstjórn er Alþjóðaefnahagsráðið, sem starfað hefur í hálfa öld og lengi unnið því markmiði að taka völdin úr höndum þjóðríkja og færa það stórfyrirtækjunum. Áætlanir sem unnar voru fyrir mörgum árum, og jafnvel áratugum, eru nú orðnar að veruleika. Covid-19 spilar þar lykilhlutverk.

Forsætisráðherra okkar

Hér er mynd af Katrínu Jakobsdóttur, sem er "Agenda Contributor" hjá The World Economic Forum, sem er að "endurræsa heiminn" núna fyrir okkar hönd, að okkur öllum forspurðum. Meltið það aðeins!

0119


Þetta er löngu hætt að snúast um að verja líf og heilsu Willum ...

... ef það þá gerði það nokkurn tímann. Hvernig geturðu látið eins og svo sé, er það kannski vegna leynilegu bóluefnasamninganna sem búið er að skuldbinda þjóðina til að efna?

Þú veist það VEL að það er EKKERT sem réttlætir það að svipta þjóðina ítrekað sjálfsögðu frelsi og mannréttindum, og halda henni trylltri úr hræðslu við einhverja veiru sem margbúið er að sanna að það eru 98-99,98% líkur á að lifa veikindi af, og engin börn eða ungt og hraust fólk deyr vegna hennar!

En hræðsluáróðurinn hefur tekist fullkomlega hjá ykkur öllum, og tví- og þrísprautaðir Íslendingar virðast aldrei hafa verið veiruhræddari en núna, og tala um lítið annað en Covid þegar þeir koma saman.

Bergþór Ólason þingmaður sem hefur fengið mjög góðar og vel rökstuddar greinar birtar í fjölmiðlum undanfarið um heimsfaraldurinn, spurði í ræðustól á Alþingi í dag hvort ekki væri kominn tími til að líta á Covid-19 sem inflúensu.

Í liðinni viku lýstu for­sæt­is- og heil­brigðisráðherr­ar Spán­ar því yfir að nú væri kom­inn sá tími að rétt væri að nálg­ast heims­far­ald­ur Covid-19 sem hverja aðra in­flú­ensu. Ný nálg­un væri nauðsyn­leg þar sem eig­in­leg­um heims­far­aldri væri lokið í ljósi þess að hið svo­kallaða ómíkron-af­brigði veirunn­ar væri mun mild­ara en þau fyrri.

Hann benti jafnframt á efasemdir Ragnars Freys Ingvarssonar læknis sem sagði réttilega Íslendinga skima allt of marga við veirunni. (Loksins orð af viti frá læknastéttinni!)

„Þegar við ber­um okk­ur sam­an við aðrar þjóðir verðum við að taka inn í mynd­ina að við erum á ólík­um stað í bylgj­unni, ef við tök­um til að mynda Spán. Við erum mjög dug­leg, í sam­ráði við sótt­varna­yf­ir­völd, sótt­varna­lækni, að skoða hvað er að ger­ast ann­ars staðar,“ sagði Will­um.

Sóttvarnalækni sem er búinn að vera nánast alvaldur hérna (með dyggum stuðningi embættislauss Kára) frá upphafi þrátt fyrir að hafa mistekist herfilega hvað eftir annað að kveða faraldurinn niður?

„Það er alltaf það sem okk­ur ber skylda til að gera. En frum­skyld­an verður alltaf sú sama, og við meg­um ekki láta regl­urn­ar verða yf­ir­sterk­ari mark­miðunum að því leyti, þ.e. að verja líf og heilsu og sjá til þess að heil­brigðis­kerfið sé hvern dag í stakk búið til að tak­ast á við ástandið.“

Hvað eru margir heilbrigðisstarfsmenn í jafnvel óþörfum og vita gagnslausum sóttkvíum og einangrunum núna? Er þetta ekki frekar innanhússvandamál fjársvelts heilbrigðiskerfis?

Hvað með líf og heilsu þeirra sprautusködduðu?

Frá 3. - 17. janúar hefur tilkynningum um aukaverkanir fjölgað um hvorki meira eða minna en 95, og þar af alvarlegum aukaverkunum um 13, sem samsvarar tæplega einni á dag!

Hvers vegna hringir það ekki neinum viðvörunarbjöllum?

Af þessum 13 er 1 andlát, en það hefur líklegast "gleymst" að tilkynna um það í fjölmiðlunum, það er miklu meiri frétt að gamalmenni á ní- og tíræðisaldri sem eðli málsins samkvæmt hljóta flest að hafa nokkra undirliggjandi sjúkdóma, deyi víst "úr" Covid.

Ein sprautusködduð sem ég kannast við hefur þurft að greiða nokkur hundruð þúsund krónur fyrir læknishjálp úr eigin vasa, en er farin að fá einhvern kostnað endurgreiddan af ríkinu núna. Hún er samt enn að glíma við aukaverkanirnar.

Hún er langt í frá eina manneskjan, og vonandi munu fleiri sprautuskaddaðir leita sér sjálfsagðra bóta líka, því við vitum um að engir þeirra voru varaðir við hugsanlega slæmum aukaverkunum eða að þeir gætu hugsalega látist eftir sprauturnar.

Ekki endilega strax, heldur jafnvel vikum eða mánuðum seinna, og hvað þá eftir bústin!

Og ekki voru þeir beðnir um samþykki sitt fyrir því að taka viljugir þátt í lyfjatilraun sem mun standa yfir til 2026.

Látnir í kjölfar sprautanna eru (að ALLRA minnsta kosti) 35 núna, sem er töluvert fleiri en létust "úr Covid" á síðasta ári (miðað við að 29 hafi látist 2020).

Hvers vegna þykir það ekki fréttnæmt?

Furðulegar forgangsraðanir

Þetta endalausa væl um að verja þurfi fjársvelt heilbrigðiskerfið dettur steindautt um sjálft sig, á meðan hægt er að eyða daglega 50-100 milljónum í tilgangslitlar sýnatökur með fölskum PCR prófum, sem gera lítið annað en að magna upp og viðhalda hysteríunni hjá fólki.

Brandarafrétt dagsins!

98% "smitaðra" á göngudeild Landspítalans í dag eru einkennalitlir eða einkennalausir.

Þökk sé rándýrum og tilgangslitlum massasýnatökum hjá veiruhræddum og kannski tví- eða þrísprautuðum Íslendingum!

Þetta er orðin langþreytt langavitleysa, í guðanna bænum farið að hrista af ykkur doðann gott fólk, nennið þið virkilega að byrja þriðja árið í þessu dómadags rugli með ykkur?

Hvað er eiginlega að ykkur, ætlið þið að láta teyma ykkur endalaust á asnaeyrunum?

Ítarefni:

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Tími til að líta á Covid-19 sem inflúensu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef það væri raunverulegur heimsfaraldur í gangi, þá þyrfti fólk ekkert að rífast um það ...

... né þyrftum við að vera stöðugt áminnt um það með sífelldum hræðsluáróðri í fjölmiðlum nánast allan sólarhringinn, því það færi svo sannarlega ekki framhjá okkur ef svo væri.

Í alvöru heimsfaraldri myndum við öll þekkja fólk, jafnvel fjölskyldur allt niður í börn sem hefðu veikst og/eða dáið.

En er það raunin? Nei, og það vitum við öll, langflestir sem eiga að hafa látist úr Covid voru aldraðir eða eldri einstaklingar, en við fáum aldrei að vita hvort þeir hafi verið með undirliggjandi sjúkdóma, því það er aldrei tekið fram.

Ólíkt því þegar sagt er frá andlátum eftir sprauturnar sem opinberar tölur segja að séu 35 núna, þá eru tilkynningarnar svona:

25 þeirra varða andlát. 18 andlát vörðuðu aldraða** einstaklinga, 15 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Sex andlát vörðuðu eldri*** einstaklinga, fjórir þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling á aldursbilinu 60-64 ára.

Og umfjöllunin um andlátin er svona:

Rétt er að geta þess að flestar tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19 bárust í janúar 2021, þegar elsti og hrumasti hópurinn var bólusettur hérlendis. Sérstök rannsókn var framkvæmd af embætti landlæknis í kjölfar fyrstu fimm alvarlegu tilkynninganna vegna gruns um aukaverkun og voru niðurstöður birtar síðar í mánuðinum.

Allir hljóta að sjá að þarna er verið að hagræða fréttaflutningi í þágu ákveðins málstaðar.

Sérhvert Covid andlát fær tilkynningu í fjölmiðlunum, en aldrei andlát fórnarlambs sprautanna.

Það er að mínu mati mikill dónaskapur og vanvirðing gagnvart ættingjum þeirra því þeir hljóta að eiga um jafn sárt að binda og hinir ættingjarnir, ekki satt?

En þetta er að sjálfsögðu gert af ásettu ráði, ekkert má hagga við ótta fólks við drápsveiruna miklu.

Sama handritið er notað um allan heim

Frá fyrsta degi þessa svokallaða "alheimsfaraldurs", hafa ríkisstjórnir og fjölmiðlar um heim allan haldið því á lofti þeir væru "leiddir áfram af vísindunum" og að fólkið ætti að treysta þeim til að lifa af það sem var haldið fram að væri stærsta plága mannkynssögunnar.

Áður en langt um leið soguðust heilu þjóðirnar og samfélögin inn í fjölmiðladrifna massahysteríu þar sem fáir þorðu að efast um ríkjandi rétttrúnað (enda var það bannað, allir að hlýða Víði!), eða settu spurnir við fjárausturinn í endalausar neyðarráðstafanir, aðeins einn málstað á meðan innviðirnir blæddu.

Kostnaðurinn hefur verið valdið skelfilegum og ómældum skaða á lífum, geðheilsu, atvinnu fólks, menntun, börnunum, hagkerfinu og lýðræðissamfélögum um heim allan.

Einungis hafa verið kallaðir til útvaldir "sérfræðingar" sem álitsgjafar, en þúsundir lækna og vísindafólks um heim allan hefur verið smánað, hrakið úr störfum sínum og útskúfað af samfélagsmiðlum.

Það má færa gild rök fyrir því að flestir ef ekki allir "leyfðu sérfræðingarnir" hafi gríðarlega fjárhagslega hagsmuni af því að viðhalda óttanum og pressa á fólk að fara í þessar "bólusetningar", enda er hagnaður lyfjafyrirtækjanna slíkur núna að ágóði þeirra getur orðið stjarnfræðilegur.

Er búið að dáleiða okkur?

Hvers vegna fólk gefur frá sér frelsið sitt af fúsum og frjálsum vilja.

 

0111g

 

Mattias Desmet er prófessor í klínískri sálfræði við Ghent háskólann í Belgíu, og er einnig með mastersgráðu í tölfræði. Hann hefur rannsakað sálfræði alræðishyggju (totaliarism), sem gengur út á það að fólk er dáleitt til hlýðni, og þessi fjöldadáleiðsla er þekkt sem "mass formation", sem má kannski þýða sem fjöldamótun.

Fljótlega eftir að "heimsfaraldurinn" skall á fór hann að sjá að spálíkön um þróun faraldursins sem sett voru fram um heim allan sem stóðust engan veginn.

Hann rekur síðan aðgerðirnar sem settar voru í gang, sem eru merkilega líkar því sem við hér á landi höfum þurft að upplifa.

Og nú er byrjað þriðja árið í massahysteríu sem ekki sér fyrir endanum á, og enn og aftur búið að lýsa yfir neyðarástandi og þjóðin afskaplega þakklát Þórólfi fyrir að setja okkur eina ferðina enn í fjötra.

Leitar klárinn ekki alltaf þangað sem hann er kvaldastur? Svo segir máltækið að minnsta kosti.

Öllum er hollt, og núna hreinlega nauðsynlegt að opna augun fyrir því að ekki sé allt sem sýnist í þessum "heimsfaraldri", og hlusta á aðra sérfræðinga en bara Þórólf og Kára.

Þið ættuð að horfa á þetta viðtal við hann með opnum huga.

ítarefni:

 

 


Þöggunin um aukaverkanirnar og andlátin hér á landi eftir sprauturnar er ekkert annað en glæpsamleg!

Metfjöldi tilkynntra alvarlegra aukaverkana á stuttu tímabili var birtur í dag, eða 4 yfir helgina!

Heildarfjöldi tilkynninga á því tímabili frá því að bústin byrjuðu er orðinn 420, þar af 35 alvarlegar.

Smá upprifjun á hvað alvarleg aukaverkun er:

Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum.

Búið er að segja núna að 35 manneskjur séu látnar eftir þær, en það var falið í viðtali við forstjóra Lyfjastofnunar í síðustu viku.

Áður var búið að segja frá 32 andlátum, en ég minnist ekki að hafa séð sérstakar tilkynningar um þessi 3 nýjustu í fjölmiðlunum frekar en öll hin.

Það er greinilega meiri frétt að gamalmenni á níræðisaldri sem eru væntanlega tví- eða þrísprautuð deyi vegna veirunnar, að sögn.

Þessi þöggun um þessar þegar tilkynntu 5.960 aukaverkanir lýsir ekkert öðru en einbeittum brotavilja þeirra sem búin eru að narra 90% þjóðarinnar í þessar sprautur - í fullkomnu samstarfi við fjölmiðlana, og nú er byrjað á litlu krökkunum!

Hvað þarf til þess að fólk vakni, þurfa börn að veikjast og/eða deyja hér á landi eftir sprauturnar, rétt eins og er að gerast í öðrum löndum?

Búmm - Bóluefnin orðin gagnslaus gegn smiti!

Ég tek undir hvert orð sem Jóhannes skrifar í þessari vönduðu grein.

0110d

Umræður í spjallgrúppu á FB - íslenskur raunveruleiki

Ég á skjáskot af þessum umræðum og skrifa þær orðrétt hér fyrir neðan:

Hef aldrei verið jafn oft veik og eftir þessar bólusetningar. Leyfi mér að vera ósammála.

Ji hvað ég er sammála, ég er pínulítið farin að kenna bólusetningu um hversu veik ég er búin að vera.

Það er bara stór undantekning ef ég verð veik, hef orðið oftar veik eftir að ég fékk bólusetningu en fyrir hana.

Ég er bólusett og heilsuhraust en er fárveik af þessu covid núna og ég verð aldrei veik.

Ímyndaðu þér þá hversu veik þú værir ef þú værir ekki bólusett...

Ég gat ekki að því gert þegar sá síðasta kommentið hér að ofan að finna til vorkunnar gagnvart viðkomandi manneskju.

Búið að innprenta hjá fólki að allt sé betra en að fá Covid, svo kannski er viðkomandi að reyna þarna að finna einhverja "réttlætingu" á veikindunum.

Ítarefni

Stórkostleg grein sem styður fullkomlega við fyrirsögn þessa pistils:

Fyrir löngu varð ljóst að aðgerðirnar gegn faraldrinum væru í hróplegu ósamræmi við alvarleika og stærð hans og er ég sannfærður um að afleiðingar þeirra - að meðtöldum bóluefnunum - munu þegar upp er staðið eyðileggja mun fleiri mannslíf en þær björguðu.

Markvisst var þaggað niður á samfélagsmiðlum í röddum allra þeirra fjölmörgu sérfræðinga sem ekki samrýmdust yfirlýstum aðgerðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og hræðsluáróður meginstraumsmiðlanna allra hefur dunið á okkur linnulaust síðustu 20 mánuðina og sér ekki fyrir endann á þeim sirkus.

Höfundur greinarinnar hefur rétt eins margir aðrir hér á landi skrifað bréf til yfirvalda, jafnvel ábyrgðarbréf, og sent þau öllum alþingismönnum, forseta Íslands, flestum starfandi blaðamönnum og miklum fjölda lækna og vísindamanna.

Viðbrögðin? Lítil sem engin, bara glæpsamleg þögn og þöggun!

Hvað ætti það að segja ykkur kæra þjóð?


Öllum ætti að vera löngu orðið ljóst að grímur gera ekkert gagn!

0109bÞað er með ólíkindum að lögregla sé kölluð til vegna þess einhver geti ekki, eða vilji ekki nota þessar bakteríublautu súrefnisheftandi tuskur.

Sú var tíðin að löggan hefði verið kölluð til ef einhver hefði vogað sér grímuklæddur inn í búð eða banka, en í dag er það akkúrat á hinn veginn.

Veiruhræddir fasískir starfsmenn eða öryggisverðir sem eru kannski sjálfir orðnir sljóir í hausnum eftir margra tíma súrefnisskort, hika ekki við að sýna vald sitt ef viðskiptavinur vill einfaldlega njóta þeirra sjálfsögðu mannréttinda að anda að sér súrefni.

Einu sinni sagði Þórólfur að grímur gerðu ekkert gagn, en svo skipti hann um skoðun á núll einni eftir að einhver ný "vísindi" (sem hann er nota bene aldrei beðinn um að sýna fram á) komu víst fram.

Ekkert frekar en í öll hin skiptin sem hann réttlætir einhverjar nýjar eða áframhaldandi skerðingar á frelsi okkar og mannréttindum.

Segir grímur gera lítið gagn fyrir almenning

„Að almenningur gangi með grímur er mjög vafasamt. Það er engin stofnun eða ábyrgur aðili sem mælir með því. Ég veit að í Bandaríkjunum hafa þeir verið að tala um þetta en ég alla vega set spurningamerki við þetta,“ svaraði Þórólfur.

Viðtal við hann 03.04.2020

Þórólfur mælir ekki með notkun á andlitsgrímum

Engin ástæða er fyrir íslensk yfirvöld að fylgja ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðisstofnunnarinnar (WHO) um að fólk noti andlitsgrímur í fjölmenni til að draga úr kórónaveirusmiti. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir í samtali við fréttastofu. Rök skorti fyrir ákvörðuninni.

Viðtal við hann 07.06.2020

Raunveruleikinn í dag

Þrátt fyrir að búið sé að tví- eða þrísprauta 90% Íslendinga, og allir hafi þurft að nota munnbleyjurnar í marga mánuði, þá er mikið um smit og veikindi, og þar eru þeir sprautuðu ekkert undanskildir!

Þórólfur sagði í viðtali í fyrra að það væru bara tveir kostir í boði, annað hvort að fá Covid eða fara í bólusetningu.

90% þjóðarinnar hlýddi og er búin að láta sprauta sig - til að fá ekki Covid, en hefur samt fengið Covid!

Finnst fólki ekkert að það hafi verið blekkt? Okkur var sagt að sprauturnar væru eina leiðin út úr faraldrinum. Okkur var sagt að við værum öll í þessu saman og við bærum öll ábyrgð.

Margir fóru í sprauturnar til að geta ferðast, en hafa samt veikst og sitja kannski uppi með aukaverkanir í þokkabót.

Hver er ábyrgð þessa fólks sem lofaði okkur öllu fögru?

Myndir

Geðslegt, er það ekki?

0109c

Finnst fólki í lagi að gera börnunum þetta, fyrir utan það að sprauta þau með einhverjum tilraunaefnum sem foreldrarnir hafa enga hugmynd um hvað innihalda?

0611h

En við skiljum víst ekki vísindin....

0109d

 

Ef þetta er ekki klikkun, þá veit ég ekki hvað er!

0109e

Prófið að henda lúku af sandi á fótboltanet og gáið svo hvað mörg sandkorn sluppu í gegn. Þið munuð komast að því að nánast öll gerðu það.

Alveg eins og með grímurnar, möskvar þeirra eru "risastórir" miðað við veirur, sem smjúga auðveldlega í gegn.

Hefur einhver prófað að taka smók af sígarettu eða veipi og andað honum út í gegnum grímu? Fráblásturinn fer út um grímuna, upp í augun og út til hliðanna. Þetta er nú öll vörnin í grímunum gott fólk.

Það er búið að teyma ykkur á asnaeyrum í tæp tvö ár núna, og þið hafið leyft því að gerast athugasemdalaust og af fúsum og frjálsum vilja, í blindri trú á þríeykið og yfirvöld.

Farið að vakna, annars mun enn eitt "afbrigðið" skjóta upp kollinum sem mun kalla á enn fleiri test, enn meiri sóttkvíar og einangranir - og enn fleiri sprautur.

Prófið líka að hugsa um hvaða skelfilegu afleiðingar aðgerðir tveggja undanfarinna ára hafa haft á okkur.

Gjaldþrot, atvinnuleysi, heimilisofbeldi, þunglyndi og sjálfsvíg, svo fátt eitt sé nefnt.

Eitthvað sem lítið er fjallað um í fjölmiðlunum, allt snýst bara um smitfjölda gærdagsins til að halda okkur áfram í ótta.

Pælið í því! Vaknið!

Ítarefni:

 

0108

 


mbl.is Sagðist undanþeginn grímuskyldu að læknisráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta stemmir ekki við opinber bresk gögn sem sýna fram á neikvæða virkni "bóluefnanna".

Enn og aftur hvetur sóttvarnalæknir landsmenn til að láta sprauta sig, þrátt fyrir að hann viti fullvel um raunverulega áhættu af því að fá þessum efnum sprautað í sig.

Margir þeirra sem hafa engan áhuga á að láta sprauta sig horfa núna upp á metfjölda smita, líka meðal þeirra sprautuðu. Ósprautaðir vita að þeir geti alveg eins og sprautaðir sýkst af veirunni, en hafa það framyfir þá sprautuðu að sleppa 100% við hugsanlegar aukaverkanir vegna þeirra.

Nýjustu tölur um tilkynntar aukaverkanir eru 5.947, þar af 262 alvarlegar, og það vekur sérstaka athygli mína að alvarlegum tilkynningum hefur fjölgað um 31 síðan byrjað var að "örva" fólk.

Hafiði tekið eftir öllum fréttunum og viðtölunum við Þórólf og Kára um aukaverkanirnar og/eða andlátin (35 skv. opinberum tölum) eftir sprauturnar?

Nei? Ekki ég heldur.

Eða vitiði um skyndiandlát sprautaðs fólks, oft á besta aldri? Ég er búin að heyra um 5 slík tilvik á undanförnum dögum, fyrir utan þau sem ég hef heyrt um síðan byrjað var að sprauta þessum efnum í fólk.

Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir seg­ir það al­veg ljóst að staðan hér á landi vegna far­ald­urs­ins, þá sér­stak­lega á Land­spít­al­an­um, væri marg­falt verri ekki væri fyr­ir út­breidda bólu­setn­ingu. Þá skipti örvun­ar­skammt­ur­inn sköp­um í þeim efn­um.

„Hún væri mörg­um sinn­um verri, við vær­um í mjög slæmri stöðu ef við hefðum ekki þessa út­breiddu bólu­setn­ingu, þá sér­stak­lega örvun­ar­skammt­inn. Það er al­veg á hreinu,“ seg­ir Þórólf­ur. Þó fólk smit­ist vissu­lega þrátt fyr­ir örvun­ar­skammt­inn þá liggi það orðið ljóst fyr­ir að sá hóp­ur veikist síður al­var­lega og lendi síður á gjör­gæslu. Þá séu þeir sem hafi fengið örvun­ar­skammt fljót­ari að jafna sig af veik­ind­un­um.

„Það er ástæðan fyr­ir því að við erum að hvetja fólk til að mæta í bólu­setn­ingu. Byrja á því að fá venju­lega bólu­setn­ingu. Þú get­ur ekki fengið örvun fyrr en þú ert búin að fá grunn­bólu­setn­ingu.“

Þýðing: Þið vitleysingarnir sem hafið neitað sprautunum hingað til, látið samt sprauta ykkur, þótt sprautur eitt og tvö plús bústið hafi ekki virkað.

Nei takk, sama og þegið Þórólfur, við sem erum búin að kynna okkur innihald og skaðsemi þessara efna, og hvað býr að baki þessum fjöldaheilaþvotti á þjóðinni erum löngu búin að sjá í gegnum þig og þitt fólk.

Við vitum að þið eruð að vinna eftir handriti sem er búið að vera lengi í smíðum, og er unnið eftir á heimsvísu.

Tölur frá Bretlandi

Hér er "árangur" bólusetninganna skoðaður út frá fullyrðingum framleiðendanna um virkni þeirra, og eru niðurstöðurnar allt annað en þeim í hag, eins og allir ættu að vita núna, líka Þórólfur.

0107i

Ástralía og Ísrael

"Lek" bóluefni geta gefið af sér ný afbrigði sem þeim ósprautuðu er kennt um, og eru notuð til að réttlæta fleiri sprautur.

Svo endurtekur hringrásin sig aftur og aftur.

0108e

Þessi lönd hafa hátt bólusetningarhlutfall (rétt eins og við hér á landi), nú eru 95% þeirra sprautuðu í Ástralíu sýktir, og í Ísrael virðist ekki skipta neinu máli hversu oft fólk er sprautað, alltaf gýs pestin upp aftur.

Nú er fjórða bylgjan hafin af fullum þunga, og "lausnin" er enn sem áður fyrr að sprauta meira, enda byrjað á fjórðu sprautunni.

Svo mun bylgjan renna sitt skeið, síðan mun koma enn eitt "afbrigðið" sem mun kalla á fimmtu sprautuna og svo koll af kolli.

Þykir fólki í alvörunni ekkert skrítið að þrátt fyrir allar þessar sprautur, að þá skuli ekkert ganga í baráttunni við "heimsfaraldurinn"?

Hvernig stendur á því að fólk skuli endalaust trúa þeirri fáheyrðu dellu að þeir fáu ósprautuðu beri þar einhverja ábyrgð, en ekki gagnslaus bóluefni?

Þórólfur, sem narraði marga í svínaflensusprauturnar árið 2009 sem gerði nokkur ungmenni að öryrkjum, er enn og aftur að teyma þjóðina á asnaeyrum, og kannski stjórnvöld líka.

Viðbúnaður á Landspítalanum færður á virkjunarstig

"Á Landspítala lágu þrjátíu og níu inflúensusjúklingar um hádegi í gær, þar af níu á gjörgæsludeild. Tólf inflúensusjúklingar voru lagðir inn á einum sólarhring vegna inflúensunnar en tveir voru útskrifaðir á sama tíma. Meira reyndi í gær á starfsemi Landspítala vegna inflúensunnar en nokkru sinni fyrr frá því faraldurinn hófst.

Sjúklingar á gjörgæsludeildum spítalans eru á aldrinum tveggja ára til sjötíu og níu ára. Alls hafa 6.609 manns greinst með inflúensueinkenni hérlendis. Útbreiðsla faraldursins hefur ekki aukist á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið en veikin breiðist út á landsbyggðinni."

Þetta er frétt frá árinu 2009, samt var engu skellt í lás, engir neyddir til að nota grímur, hvað þá að tugþúsundir manns yrðu að dúsa í einangrun eða sóttkví um lengri eða skemmri tíma - eða fara í ítrekuð próf til að athuga hvort þeir væru veikir eða ekki.

Takið eftir því að þarna eru inniliggjandi sjúklingar allt niður í tveggja ára.

Núna er "váin" víst svo mikil að "nauðsynlegt" er að sprauta 5-11 ára börn með hættulegum efnum sem búið er að sýna margoft framá að geri ekkert gagn, en geti valdið þeim skórkostlegum skaða!

Þessi banvæna hringrás mun ekki enda fyrr en við segjum STOPP - HINGAÐ OG EKKI LENGRA!

0106a


mbl.is Staðan væri margfalt verri án örvunarskammts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef 6 sjúklingar á gjörgæslu setja spítalana á hliðina, þá er vandinn heimatilbúinn, ekki þeir ósprautuðu.

Þessi skrípaleikur í kringum þennan svokallaða "heimsfaraldur" er farinn að verða æði pínlegur. Er þetta í fyrsta skipti sem einhver veirupest hefur gengið yfir heiminn?

Nei, en þetta er í fyrsta skipti sem heiminum er skellt í lás, í samhæfðum aðgerðum sturlaðrar elítu sem er búin að lýsa því yfir í smáatriðum á netinu hver plön hennar eru fyrir hönd mannkynsins - að því forspurðu.

Meðal annars um það að fækka mannkyninu, og "mannvinurinn mikli" sjálfur Bill Gates, sem hefur sagt bóluefni vera sínar arðbærustu fjárfestingar, hefur opinberlega sagt að bólusetningar séu góð leið til þess.

Fólk getur bara leitað sér upplýsinga sjálft um það ef það nennir, sem flest gerir ekki.

Því líður svo einstaklega vel í faðmi Þórólfs sem er búið að mistakast herfilega hvað eftir annað að koma þjóðinni út úr "faraldrinum", eins og dæmi sanna.

Þessi dýrkun á einum manni er farin að minna á dýrkunina og hollustuna við Hitler á sínum tíma!

Enda er verið að innleiða hugmyndafræði hans í löndum eins og Austurríki, Þýskalandi, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi og fleiri löndum.

Hver er ávinningurinn?

Getur einhver bent mér á ávinning þess að vera tilraunadýr lyfjarisanna - án þess að vera upplýst um það, og að láta sprauta í mig einhverju genabreytandi líftæknilyfi sem er í tilraunafasa til ársins 2026 og er sannanlega þegar búið að skaða og/eða drepa milljónir manns á heimsvísu?

Staðreyndir

  • Sprautaðir og ósprautaðir geta smitast af Covid
  • Sprautaðir og ósprautaðir geta smitað aðra af Covid
  • Sprautaðir og ósprautaðir geta þurft að leggjast veikir inn á sjúkrahús
  • En ósprautaðir geta aldrei fengið aukaverkanir eða dáið af þessu glundri

Grátkórinn

„Starfs­fólk Land­spít­ala biðlar til þeirra sem valið hafa að láta ekki bólu­setja sig að end­ur­skoða þá ákvörðun hið fyrsta; þeirra vegna, spít­al­ans vegna og í þágu sam­fé­lags­ins alls,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. 

Nei takk, sama og þegið! Hvernig er hægt að kenna ósprautuðum um að sprautur eitt og tvö plús bústið virki ekki?

Er virkilega svona flókið að fatta þetta?

Fleiri eru farnir að vakna, sem betur fer

Sem betur fer eru þó nokkuð margir sprautaðir sem hafa jafnvel misst heilsuna eftir sprauturnar búnir að fá nóg, og gengnir til liðs við okkur sem erum að berjast af alefli gegn þeim, og nú því sem kalla má hryðjuverkum gagnvart 5-11 ára börnunum sem á að fara að sprauta strax eftir áramótin.

Hvað gengur öllu þessu fólki til sem búið er að blekkja 90% þjóðarinnar í þessar sprautur og ætlar núna að hjóla í börnin sem hafa 99,9998% líkur á að lifa veikindi af?

Ekkert barn hefur látist úr pestinni hér á landi eins og sjá má, svo hvers vegna er svona "nauðsynlegt" að sprauta þau núna, og svo allt niður í sex mánaða börn seinna? 

1230b

Aukaverkanirnar

Það er vitað samkvæmt erlendum rannsóknum að aðeins 1-10% aukaverkana séu tilkynntar, svo það er spurning hvort þessi skelfilegi fjöldi sem búið er að tilkynna um hér á landi sé ekki stórkostlega vantalinn.

Það er þó búið að tilkynna um 5.917 aukaverkanir, og þar af 32 andlát og 227 alvarlegar og lífsógnandi aukaverkanir eftir þessar sprautur. Margt þessa fólks er orðið öryrkjar fyrir lífstíð.

En allt er víst betra en að fá Covid er okkur sagt .... enda hefur Þórólfur sagt að það sé bara tvennt í boði, að fá Covid eða láta "bólusetja" sig.

En það er bara enn ein lygin sem búið er að standa hann að. Við skulum ekki gleyma að með "big pharma" hvatti hann alla í svínaflensusprauturnar árið 2009 sem örkumlaði nokkra unga Íslendinga, og enn fleiri erlenda.

Ekkert virtist hann læra af þeim ósköpum, hann heldur bara áfram að blekkja fólk í einhverjar hættulegar "bólusetningar".

Ítarefni

Að lokum langar mig að óska öllum gleðilegs nýs árs, með von um að fleiri Íslendingar vakni af þessum skipulega heilaþvotti og tilhæfulausa óttaáróðri sem er búinn að dynja yfir okkur í bráðum tvö ár núna.

 

 

 

 

 


mbl.is Óbólusettir endurskoði sína ákvörðun sem fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það áhættunnar virði að láta sprauta barnið þitt gegn veiru sem það hefur 99,9998% líkur á að lifa veikindi af?

1229eÞetta er spurning sem hvert foreldri ætti að spyrja sig áður en það lætur sprauta barnið sitt með einhverju efni sem það hefur ekki hugmynd um hvað inniheldur, og getur hugsanlega valdið því skaða, jafnvel fyrir lífstíð.

Ekkert barn hefur orðið alvarlega veikt hér á landi vegna þessarar veiru, hvað þá látist!

Ekki leika rússneska rúllettu með líf barnsins þíns eða barnanna þinna, því sá dagur gæti runnið upp að þú iðrist þess sáran.

Leyfðu börnunum þínum að njóta vafans!

Hjartabólga hefur verið staðfest hjá 5-11 ára börnum í USA eftir "bólusetningarnar".

Bandarískar miðstöðvar fyrir sjúkdómseftirlit og forvarnir (CDC) hafa greint frá átta tilfellum af hjartavöðvabólgu, hugsanlega banvænni tegund, hjá grunnskólanemum sem fengu Pfizer sprautu.

Til og með 10. desember sagði CDC að það hefðu borist 14 tilkynningar um hjartavöðvabólgu meðal barna á aldrinum 5-11 ára sem fengu sprautuna. Þar af sagði það að átta tilfelli - þar sem fjórar drengir og fjórar stúlkur tóku þátt - uppfylltu „vinnutilviksskilgreiningu“ stofnunarinnar á bólgunni.

Þórólfur getur ekki beðið eftir því að byrja að $prauta börnin okkar!!

Vægast sagt ógeðfelld skilaboð bárust foreldri á Selfossi á dögunum.

Barnið þitt ER BOÐAÐ í bólusetningu.... Ekki BOÐIÐ UPP Á bólusetningu, heldur er þetta vægast sagt andstyggilegt valdboð.

Þetta vekur upp stóra spurningu, hvernig geti staðið á því að frekari upplýsingar verði sendar í gegnum Mentor?

Þýðir þetta að kennarar geti fylgst með heilsufarsupplýsingum nemenda sinna? Ef þetta eru ekki skýr brot á persónuverndarlögum, þá veit ég ekki hvað er.

Hvað koma persónulegar upplýsingar um heilsu barns kennara þess við? Hefur einhver svar við því?

1229a

Bréf til Þórólfs og Helgu

Því miður er þetta ekki eina dæmið um stórkostleg brot á persónuverndarlögum og friðhelgi einkalífsins í þessum "faraldri".

Í framhaldi af þessu má geta þess að mannréttindasamtökin Mín leið - Mitt val eru búin að senda Þórólfi Guðnasyni bréf sem var afhent honum með stefnuvotti, og honum gefnir 14 dagar til að svara, annars verður honum stefnt til öflunar gagna. Bréfið má sjá hér.

Sambærilegt bréf var sent með stefnuvotti til Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar, sjá má það hér.

Ég skrifaði neðangreint blogg fyrr í mánuðinum, og í ljósi þess að búið er að staðfesta að byrja eigi að sprauta 5-11 ára börnin strax eftir áramótin, þá er þetta holl upprifjun.

13 ástæður fyrir því að láta ekki sprauta börnin ykkar með Pfizer bóluefninu

  1. 86% barna hlaut aukaverkanir vegna Pfizer í klínískri rannsókn.
  2. 1 af 9 börnum hlaut alvarlegar aukaverkanir sem gerði þau ófær um að sinna daglegum athöfnum.
  3. Aðeins er hægt að tengja 9 andlát barna við veiruna frá því í mars 2020.
  4. Hættan á alvarlegum veikindum hjá börnum er ákaflega lítil.
  5. Bóluefnið er tilraunaverkefni og enn í klínískum rannsóknum.
  6. 3 vísindarannsóknir sem voru framkvæmdar af bresku ríkisstjórninni, Oxford háskóla og CDC og birtar í ágúst sýna fram á að þessi bóluefni virka ekki.
  7. Gögn frá Public Health England sýna að meirihluti dauðsfalla er meðal bólusettra og benda til þess að bóluefnin geti gert sjúkdóminn verri.
  8. Tilkynnt hefur verið um 1.8 milljón aukaverkanir, og það aðeins í Bretlandi.
  9. Það hafa orðið fleiri andlát á 8 mánuðum vegna Covid bóluefnanna en vegna allra annarra bóluefna samanlagt síðan árið 2001.
  10. Það er hætta á hjartabólgum í börnum vegna Pfizer bóluefnisins.
  11. Börn hafa dáið, og eru að deyja vegna Covid bóluefnanna.
  12. Hver hagnast á því að þú látir sprauta barnið þitt?
  13. The Joint Committee on Vaccination & Immunisation hefur neitað að mæla með því að börnum verði boðið Pfizer bóluefnið.

Ítarefni:

Samtökin Frelsi og ábyrgð

Þessi hópur er til stuðnings foreldrum, ömmum og öfum og öllum þeim sem vilja vernda börnin gegn lyfjatilrauninni sem er í gangi. Hér getum við póstað og haldið utan um allar þær fræðilegu upplýsingar og sögur um aukaverkanir -og umfram allt til að styðja hvert annað á þessum tímum ritskoðunar og margföldum lögbrotum á almenningi skv. stjórnarskrá, Nuremberg kóða o.fl.

Facebook síðu þeirra - Verndum börnin má finna hér.

Þau standa fyrir friðargöngu sem fram mun fara fimmtudaginn 30. desember. Þau hvetja alla sem geta í Reykjavík að hittast á morgun við Stjórnarráðið kl. 17 og taka þátt í henni.

1229d


Eru Íslendingar hlýðnir og sofandi sauðir upp til hópa?

Ég sagði einhvern tímann að mér fyndist ég lifa í einhverri hliðarveröld, þar sem ég fylgdist með geggjuninni sem er í gangi í þessum meinta "heimsfaraldri".

Þessi tilfinning mín hefur svo sannarlega ekki breyst á öllum þessum mánuðum!

Þetta sagði Víðir Reynisson á hræðslufundi dagsins þann 19. apríl síðastliðinn og ég gat aldrei gleymt þessu því ég hló svo mikið!:

"Skilaboð dagsins til almennings voru skýr: „Farið í sýnatöku ef minnstu einkenna verður vart.“ 

„Ef þú ert með beinverki farðu í sýnatöku, ef lyktar og bragðskyn breytist farðu í sýnatöku, ef þú ert með niðurgang farðu í sýnatöku ef þú ert með óvenjulega þreytu farðu í sýnatöku,“ sagði Víðir Reynisson á upplýsingafundinum og hélt áfram upptalningunni, nefndi hósta, hálssærindi, hálsþurrk, hita og höfuðverk. 

Svo virðist sem fólk hafi tekið Víði á orðinu því langar raðir mynduðust í skimun við Suðurlandsbraut í Reykjavík. 2800 létu reka pinna upp í nefið á sér - Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að sjaldan hafi fleiri mætt í skimun."

Hraðspólum til dagsins í dag

Þegar búið var að sprauta stærstan hluta þjóðarinnar "kom í ljós" að þær virtust ekki virka nógu vel þrátt fyrir loforð (út í loftið?) um það, og enn á ný gaus "faraldurinn" upp.

Og hver var lausnin? Að sprauta meira!

Vísað var í einhverjar "nýjar rannsóknir", um að þriðja sprautan myndi gera útslagið í baráttunni við drápsfaraldurinn.

Tæplega 160.000 manns hlýddi því sem sóttvarnarlæknir vor sem er búinn að leiða okkur svona líka "ljómandi vel" í gegnum farsóttina sagði, og skellti sér í "örvunarskammtinn".

Svo spratt upp enn eitt "afbrigðið" í Afríku sem læknar þar í landi sögðu að væri frekar milt, og þið sjáið helstu einkenni þess á myndinni hér fyrir neðan.

En þjóðin trúir enn og treystir fólkinu sem hefur brugðist sínu hlutverki herfilega hvað eftir annað, allar þeirra yfirlýsingar og loforð um meint "öryggi og gæði" þessara genabreytandi líftæknilyfja sem eru í tilraunafasa til ársins 2026, eru löngu fallin um sjálf sig.

Fólk þyrfti í fúlustu alvöru að fara að kynna sér tengsl þessa fólks við manninn sem kallaður er Dr. Dauði (Fauci) í heimalandi sínu, Bill Gates og glæpalyfjafyrirtækin sem hafa þurft að greiða milljarða dollara í skaðabætur fyrir vörusvik, mútur, og fleira miður geðslegt.

1224e

Jólin 2021

Enn einn skimunarfaraldurinn var settur í gang:

Og enn var mikið skimað í dag á fjórða degi jóla....

Miðað við að stærstur hluti þjóðarinnar er þegar "grunnbólusettur" og tæplega 150.000 búinn að fara í bústið, þá hlýtur það að gefa augaleið að flest af þessu blessaða fólki í biðröðunum sé kannski margsprautað, og samt enn skíthrætt við þessa veiru.

Af því að Þórólfur, Víðir og Kári segja því að vera það.

Ég get fullyrt það að fáum ósprautuðum einstaklingum myndi láta sér detta í hug að norpa í kuldanum í gríðarlangri röð til að láta reka pinna nánast upp í heilann á sér (eina ferðina enn?), til að athuga hvort það væri veikt!

Halló, er enginn heima á þessum bæjum?

Er runnið æði á þjóðina?

Nú er ekki hægt að fara í jarðarfarir eða á viðburði nema fara í hraðpróf, og meira að segja er fólk farið að gera það að skilyrði til að fólk komi í jólaboð!

Hvað ætli þessi sjúklega veiruhræðsla sé búin að sundra mörgum fjölskyldum og vinasamböndum undanfarin tvö ár? Ég veit því miður um allt of mörg tilfelli.

Á sama tíma og 37 manns hafa víst látist úr pestinni, langflest eldra fólk með alls konar undirliggjandi sjúkdóma, hafa að allra minnsta kosti 32 látist í kjölfar sprautanna, á þriðja hundrað manns hlotið óafturkræfan skaða, hafa tæplega hundrað manns tekið eigið líf!

„30 af þeim 37 sem hafa látist af völdum Covid voru eldri en 70 ára, 20 eldri en 80 ára og þrír yngri en 60 ára. Til samanburðar voru 35 af þeim 47 sem tóku eigið líf árið 2020 yngri en 60 ára. 17 voru yngri en 29 ára og þrír yngri en 18 ára.“

Ég fékk nýlega leyfi ungrar vinkonu minnar sem er með sálfræðigráðu til að birta pistil hennar um geðheilbrigðismál, og í ljósi þessa skelfilega fjölda sjálfsvíga er vert að rifja hann upp.

Það er búið að svipta okkur sjálfsögðum mannréttindum og frelsi í tæplega tvö ár núna, rústa fjárhagsgrundvelli margra fyrirtækja og setja þau í þrot, senda fólk heim í atvinnuleysi og vonleysi, og koma í veg fyrir að börn og ungmenni geti stundað skóla, íþróttir og félagsstarfsemi.

En allt er betra en að drepast úr Covid segja flestir, því það er búið að telja þeim trú um það....

Kunnuglegt stef

Man einhver eftir reglulegum fréttum á síðustu árum um neyðarástand á spítölunum vegna fjölda sjúklinga, jafnvel í öndunarvélum vegna hinnar árvissu flensu sem hvarf þegar Covid bankaði uppá?

Árið 2009 þegar svínaflensan kom, vildi svo til að Þórólfur nokkur Guðnason var starfandi sóttvarnalæknir.

Hérna sagði hann meðal annars:

Ef almenningur trassar að láta bólusetja sig, faraldurinn breiðist verulega út og innlögnum fjölgar mikið gæti það þýtt að senda þyrfti fólk af spítalanum og stöðva einhverja starfsemi. (Áherslan er mín)

Eins og öllum ætti að vera kunnugt, þá urðu nokkur íslensk ungmenni og mörg erlend varanlegir öryrkjar eftir þessar svokölluðu bólusetningar.

1228k

Þessi sami maður sagði í viðtali í fyrravor að tryggja þyrfti að bóluefni gegn Covid sem voru að fara í framleiðslu yllu ekki skaða, og væru örugg.

Hann hefur líka sagt að það sé bara tvennt í boði, að láta bólusetja sig, eða fá Covid. En það er bara hrein lygi.

Ítarefni:

Miðað við spurninguna sem ég varpaði fram í fyrirsögninni, þá sýnist mér svarið því miður vera já.

Ég sjálf hef aldrei viljað fá mér neinar flensusprautur, hef aldrei fengið flensur og verð sárasjaldan lasin, og hef ekki einu sinni fengið hor í nös siðan þessi "heimsfaraldur" birtist, þrátt fyrir að hafa með einbeittum brotavilja hunsað allar þessar fáránlegu sóttvarnarreglur.

Enda hef ég frábært meðfætt ónæmiskerfi sem ég hef í gegnum lífið, og sérstaklega í þessum meinta "drápsfaraldri" haldið í stöðugri þjálfun með ónæmisstyrkjandi vítamínum og með því að taka í hendur fólks, knúsa það og kyssa, jafnvel fólk sem var greint með pestina.

Þessir sprenglærðu "vísindamenn" okkar hafa aldrei talað um að byggja upp ónæmiskerfin okkar, bara að einhverjar sprautur sem enginn má vita hvað innihalda, séu einhver töfralausn.

1207g

 

 

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband