Færsluflokkur: Bloggar
Nú er eina ferðina enn búið að setja á grímuskyldu á eina mest "bólusettu" þjóð í heiminum, þrátt fyrir að marg sannað sé að þær geri lítið eða ekkert gagn gegn örsmáum veirum sem smjúga auðveldlega í gegn um hlutfallslega risastóra möskva grímanna.
Það er svolítið merkilegt að sóttvarnalæknir Bandaríkjanna sagði það sjálfur í viðtali á Bloomberg í maí 2019.
Þáttastjórnandinn spurði hann hver væri besta leiðin til að verjast smitsjúkdómum, og hvort hann ætti að nota grímu.
Þá greip Dr. Fauci hlæjandi fram í og sagði, nei nei nei, þú átt að forðast allar öfgar (avoid all the paranoid aspects) og gera eitthvað jákvætt eins og að reykja ekki eða drekka, fá nægan svefn, hreyfa þig og borða hollan mat.
Bingó! Man einhver eftir því að hann, Þórólfur eða Alma hafi komið með svipuð ráð til þjóða sinna í þessum "heimsfaraldri"? Ónei, þau hafa ekkert gert nema kynda undir hræðslu fólks og viðhalda henni!
Hvers vegna verið er að birta daglegar tölur um nýjustu "smitin", er bara til að gefa fólki aldrei frí frá óttanum.
Meira að segja sagði Alma á einum hræðslufundinum í fyrra þegar hún var spurð að því hvort fólk ætti að taka D vítamín, að það væri ekkert sem benti til þess að það hefði nokkuð að segja.
Ég fann fyrir tilviljun í fyrra grein í Læknablaðinu um starfssystur Ölmu, Sif Hansdóttur lungna- og gjörgæslulækni sem hafði lokið doktorsritgerð undir heitinu D-vítamín er vörn gegn veirum.
Þar kemur meðal annars fram að skortur á D-vítamíni tengist aukinni tíðni sýkinga í öndunarvegi og bólgusjúkdóma í lungum, til dæmis astma.
Hefði þríeykið ekki átt að leita ráða hjá henni?
Fauskurinn og "vísindin"
Í tölvupósti frá febrúar 2020 sagði hann, grímur eru í raun fyrir smitað fólk til að koma í veg fyrir að það dreifi smiti til fólks sem er ekki smitað frekar en að vernda ósmitað fólk gegn smiti.
Í viðtali hjá 60 Minutes í maí 2020 sagði hann nákvæmlega það sama og í tölvupóstinum, og að á þessari stundu eigi fólk ekki að nota grímur, það sé engin ástæða til þess.
Í miðjum faraldri láti það fólki kannski finnast það öruggara, og það gæti komið í veg fyrir dropasmit, en veiti fólki ekki þá fullkomnu vörn sem það haldi.
Og hér sagði hann í febrúar 2020 að fólk ætti frekar að hafa áhyggjur af flensunni, og að grímur veiti enga vörn gegn veirum, þar sem þær komist auðveldlega í gegnum þær.
Svo tóku "vísindin" hans 180 gráðu viðsnúning, allt í einu urðu grímur "nauðsynlegar", svo jafnvel tvær eða þrjár, og nú boðar hann að fólk verði jafnvel að nota þær árið 2022 svo hægt verði loksins að snúa tilbaka til eðlilegs lífs.
Hér segir: Það er einföld staðreynd að Dr. Fauci laug um grímur og hann laug um hjarðónæmi. Þessi fjölmiðlastjarna faraldursins er ekkert annað en lygari og pólitískt sinnaður embættismaður. Hann lætur eins og hann sé að reyna að bjarga Ameríku, en það eina sem hann geri sé að fylgja pólitískum vindum hvers tíma.
Merkilegt hvað þetta er allt svipað og við heyrum frá þríeykinu og þeim öllum sem ætla koma nálum í hvern handlegg hér á landi!
Lygarnar um grímurnar
Þessi hér segir, vaknið gott fólk, þessar grímur eru mjög skaðlegar heilsu ykkar, og sýnir það með mælitæki, og hér sýnir húsamálari það líka svart á hvítu. Og hér er enn eitt um þessa sóttvarnageðveiki.
Og flestir hafa séð myndir af elítunni sem segir okkur að nota grímur en gerir það ekki sjálft nema fyrir myndavélina.
Íslendingar eru ótrúlega trúgjarnir og hlýðnir upp til hópa
Það hvarflar ekki að þeim að staldra við og hugsa hvort allt sé með felldu, og hvernig það geti staðist að eftir allar sprauturnar séum við í enn einni bylgjunni!
Ef eitthvað er sagt gert til að vernda fólk og passa upp á öryggi þess, þá er tilgangurinn akkúrat þveröfugur. Við erum því miður búin að gleyma sögunni, sem átti aldrei að fá að endurtaka sig!
Farið að kynna ykkur það sem er að gerast í löndunum eins og til dæmis Kanada, Írlandi, Nýja Sjálandi, Ástralíu, þar sem verið er að svipta fólk öllum mannréttindum og frelsi með fasískum hætti, allt í nafni öryggis!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2021 | 15:36
Hefur sóttvarnalæknir ekki frétt af 28.103 andlátum og 2.637.525 aukaverkunum eftir sprauturnar í Evrópu?
Nú er búið að senda þúsundir hressra Íslendinga í sýnatökur með prófum sem gefa allt að því 97% falskar jákvæðar niðurstöður, og úr því varð til ný "bylgja", sem hefur enn og aftur leitt til samkomutakmarkana og grímuskyldu.
Sjáiði ekki hversu auðvelt er að gera þetta? Daglegar "fréttir" og hræðsluáróður í fjölmiðlunum um "smittölur" gærdagsins og fólk hvatt til að fara í sýnatökur.
Og veiruhræddur landinn, jafnvel "fullbólusettur" (sem þýðir víst "grunnbólusettur" núna) hleypur til og hlýðir (Víði), og veltir ekkert fyrir sér hvers vegna endalaust eru að koma upp "bylgjur" hjá einni mest sprautuðu þjóð í heimi!
Snýst þetta um að koma út þessum 1.4 milljónum skammta af Pfizer sem búið er að skuldbinda okkur til að kaupa og nota?
Ef þessir 160.000 sem boðaðir verða í "örvunar"sprautur á næstunni þiggja þær, þá verða eftir 1.24 milljónir skammta, og athugið, það á að sprauta þessum efnum í fólk allt fram á árið 2023!
Það er greinilega skelfilega auðvelt að skella í nýjar "bylgjur" til að koma út fleiri skömmtum. Ætlar fólk virkilega endalaust að trúa þessu og láta sprauta sig á hálfs árs fresti með einhverjum efnum sem það hefur ekki hugmynd um hvað innihalda?
Glórulaus ósannindi hjá heiðursorðuhafanum, allt til að fá fólk í sprauturnar!
Það er ekki nokkur spurning að fólk á að þiggja bólusetningu. Við sjáum að bólusetning er svona 50% virk við að koma í veg fyrir smit og við náum ekki hjarðónæmi með henni. Engu að síður er hún áhrifarík við að hindra smit og sérstaklega að koma í veg fyrir alvarleg veikindi. Þetta sýna tölur erlendis frá sem passa við okkar tölur sem sýna þetta mjög glöggt, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir við Morgunblaðið.
Mér þætti fróðlegt að sjá hvaðan þessar tölur erlendis frá sem sóttvarnalæknir vísar í, í þessu viðtali.
Á myndinni hér fyrir neðan sjáið þið tilkynntar aukaverkanir og andlát í þeim 27 Evrópulöndum sem eru í Evrópusambandinu, og senda þær til EudraVigilance.
Fjöldi landa sem tilheyra Evrópu er um það bil 50, svo það gefur augaleið að aukaverkanir og andlát í álfunni eru miklu fleiri.
Hér getið þið séð sundurliðaðar aukaverkanir eftir hvert "bóluefni", miðað við 19. október 2021, og þær er hroðalegar.
Þessi svokölluðu "bóluefni" skaða fólk og/eða drepa
Sóttvarnalæknir segir alla eiga að þiggja bólusetningu
Það blasir við öllum sem sjá vilja að hann er ekki að vinna fyrir þjóðina, og hann er ekki að virða læknaeiðinn sinn, svo hvaðan fær hann fyrirskipanir?
Hvaða heiðvirður læknir hvetur fólk til að láta sprauta sig með efnum sem valda svona gríðarlega miklum skaða?
Prófið að gúggla "died suddenly" (án gæsalappa) og smella á news/fréttir. Þá munuð þið sjá ótal fréttir um fólk, allt niður í unglinga sem varð bráðkvatt.
Þótt auðvitað sé ekkert hægt að fullyrða um að dánarorsakirnar hafi verið út af sprautunum, þá eru þessar fréttir átakanlega margar, og sérstaklega þær af ungu fólki.
Hér eru nokkur dæmi sem komu upp í minni leit, þið getið fengið aðrar leitarniðurstöður.
- 24 ára hokkíspilari lést eftir að hafa fengið hjartaáfall í leik.
- Tveir 10 og 11 ára gamlir drengir í sama skóla urðu bráðkvaddir með nokkurra daga millibili.
- 12 ára skosk stúlka varð bráðkvödd vegna heilablæðingar.
- 13 ára bandarískur drengur varð bráðkvaddur á fótboltaæfingu.
- 17 ára fótboltamaður varð bráðkvaddur stuttu eftir fótboltaleik.
Umhugsunarefni:
Ég fékk þetta að láni frá Facebook færslu:
- "89% landsmanna fullbólusett
- Eða 283.301 einstaklingar
- 12 ára og eldri....
- 12.000 börn hafa verið bólusett með tilraunalyfi...
- Það hafa bara 5 dáið á þessu ári 2021 útaf Covid-19
- 29 Íslendingar dóu í fyrra
- Árið 2005 dóu 29 Íslendingar úr flensu
- 14 af 29 voru yfir áttrætt
- 6 af 29 voru yfir nírætt
- Samtals 21 einstaklingar sem voru 80+ í aldri
- Lífslíkur karlmanna á Íslandi er 81 ár
- Fyrir konur eru það 83 ár
- 32 Íslendingar dáið útaf bólusetningu
- Lyfjastofnun hefur borist 5.508 tilkynningar um meintar aukaverkanir í kjölfar COVID-19 bólusetningar. Þar af 226 alvarleg.
- Um 1900 Íslendingar deyja árlega
- Það er talað um fjórðu sprautuna í Ísrael
- Það er talað um þriðju sprautuna á Íslandi
- Bóluefnið er ekki að virka!
- Það hefur aldrei áður þurft að sprauta fólk aftur og aftur með bóluefni...
- Er almenningur í svona mikilli afneitun!?
- Landlæknir hélt aftur upplýsingum um 2000 aukaverkanir!"
Já, almenningur er í gríðarlegri afneitun, eða hreinlega heilaþveginn af þessum linnulausa hræðsluáróðri.
Ég kæri mig ekki lengur um að vera svipt sjálfsögðu persónufrelsi og vera skikkuð til að anda aftur að mér úrganginum sem lungun mín eru að losa sig við með þessum bölvuðu grímum.
Þetta mun aldrei enda nema fólk fari að rakna úr doðanum og segja NEI, HINGAÐ OG EKKI LENGRA!
Annars munum við fá yfir okkur "nýjar bylgjur", og þá helst fyrir jól, páska og verslunarmannahelgarnar, þegar fólk kemur saman og nýtur samvista hvert við annað. Haldiði að þetta séu einhverjar tilviljanir?
Í boði íslenskra stjórnvalda eruð þið þátttakendur í lyfjatilraun lyfjafyrirtækja sem hafa þurft að greiða milljarða dala í sektir fyrir mútur, vörusvik og annan óþverra!
Enginn myndi láta sprauta sig ef Þórólfur téði sig jafn mikið um skaðræði þessara genabreytandi tilraunaefna, og þessar endalausu "áhyggjur" sínar af "faraldrinum"!
Það eru hlýðnu, sofandi sauðirnir sem viðhalda þessu ástandi og aftra því að ég og allir þeir sem eru búnir að sjá í gegnum leikritið fyrir lifandis löngu, fáum óhrædd að lifa okkar eðlilegu lífum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.11.2021 | 16:38
Nú eru víst áður "fullbólusettir" bara með "grunnbólusetningu", og það er skimunarfaraldur í gangi!
Ég verð að viðurkenna að ég er alveg búin að fá upp í kok núna þótt ég sé hreint ekkert hissa á nýjustu fréttunum. Það er búið að setja hömlur, og gagnslausa grímuskyldu á okkur eina ferðina enn, og grímurnar gera ekkert nema gera framleiðendurna ríkari, og skapa meiri mengun í lífríkinu!
Það er búinn að vera gríðarlegur skimunarfaraldur undanfarið, og notuð til þess þessi fölsku PCR próf sem gefa allt að 97% falskar jákvæðar niðurstöður.
Auðvitað finnast fleiri "smit" með þessu, það gefur alveg augaleið! Og ekki er hægt að treysta þessum hraðprófum meira en svo að kuldi geti framkallað falskar jákvæðar niðurstöður!
Það hafa sko alveg áður komið erfiðir faraldrar hérna án þess að allt sé sett á hliðina trekk í trekk og fólk skikkað til að nota þessar súrefnisheftandi munnbleyjur.
Er þetta virkilega staðan hjá einna mest "bólusettu" þjóð í heimi?
"Fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis að hann telji hertar takmarkanir innanlands nauðsynlegar til að forða því að neyðarástand skapist í heilbrigðiskerfinu með ófyrirséðum aðgerðum. Ná þurfi daglegum fjölda smita niður í 40 til 50 og viðhalda þeirri stöðu með takmörkunum þar til betra ónæmi næst í samfélaginu með örvunarbólusetningum og náttúrulegri sýkingu." (Áherslubreytingin er mín)
Hefði ekki verið nær að verja öllum þessum milljörðum sem hafa farið í þessi "bóluefni" og atvinnuleysisbætur í að byggja frekar upp heilbrigðiskerfið?
Nú er verið að magna upp hræðsluna hjá þeim sem áttu víst að vera fullbólusettir, þannig að þeir fari í "örvunar"sprautu (fyrstu af mörgum?).
Og takið eftir hvernig umræðunni er lævíslega breytt.
Í stað þess að segja fólki hreinskilnislega að ein sprauta af Janssen og tvær af hinum hafi ekki virkað eins og lofað var, þá var mildilega gefið í skyn að það þyrfti að örva ónæmiskerfin aðeins betur með þeirri þriðju (eða annarri hjá þeim sem fengu Janssen).
Og nú heitir það sem áður kallaðist full bólusetning, grunnbólusetning!
Sem þýðir hvað? Eitthvað hlýtur að þurfa að byggja ofan á grunninn ekki satt?
Grunaði ekki Gvend!
Í nýrri frétt á Mbl segir: 160.000 verða boðuð í örvunarbólusetningu fyrir áramót, og allir sem geta hvattir til að mæta.
"Bólusetningar við COVID-19 hafa skilað miklum árangri hér á landi. Framkvæmd bólusetninga gekk hratt og vel og almenn þátttaka var með því mesta sem þekkist meðal þjóða. Í nýrri samantekt embættis sóttvarnalæknis er fjallað um ávinning bólusetningar."
Árangri í hverju? 5.512 óþörfum og tilefnislausum aukaverkunum hjá áður heilbrigðu fólki?
Hérna sjáið þið arfleifð Þórólfs, Svandísar, Ölmu, Víðis, Kára og co, óafturkræfan skaða hjá jafnvel þúsundum manns, og að allra minnsta kosti 32 líf.
En einhvern veginn verður að koma út þessum 1,4 milljónum skammta af Pfizer sem við erum búin að skuldbinda okkur til að kaupa og nota!
Ballið er byrjað aftur með reglulegum hræðslufundum þríeykisins, þar sem þau munu gera allt til að magna upp veiruhræðsluna hjá þeim tví- og þrísprautuðu, sem taka undir allt sem þau segja.
Gleymum jólunum, og látum okkur ekki dreyma um að mega að bjóða stórfjölskyldunni og ömmu og afa í heimsókn um jólin - frekar enn í fyrra.
Ég segi bara aftur: Hvað ætlar fólk að láta blekkja sig lengi, eru Íslendingar bara sofandi sauðir?
P.s.
Lesið þetta frábæra opna bréf til heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknis!
"Nú hefur íslenska þjóðin búið við gríðarlegar samkomutakmarkanir og á tíðum þurft að sæta frelsisskerðingum og óþarfa inngripum af hálfu ríkisvaldssins í vel á annað ár. Ástæðan er öllum kunn - það mun vera kórónuveiran. Í upphafi átti þetta ástand að vara stutt og stefnt var að því að fletja út kúrvuna. Annað hefur komið á daginn og 18 mánuðum síðar eru hér enn höft og inngrip orðin hluti af daglegu lífi einkennalausra og ósmitaðra. "
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.11.2021 | 14:50
Enginn myndi láta bólusetja sig eða sína ef....
.... fjölmiðlarnir fjölluðu jafn mikið um skaða og andlát vegna þessara svokölluðu "bólusetninga" sem reynt er að fela, og þeir fjalla um smittölur gærdagsins.
Og þetta er bara því miður staðreynd, og við hér á Íslandi erum hreint ekkert undanskilin í þessum efnum.
Við höfum öll séð kertum skreyttu fréttatilkynningarnar í fjölmiðlunum þegar einhverjir hafa víst dáið "vegna vírussins", jafnvel gamalmenni sem voru hvort eð er á grafarbakkanum með marga undirliggjandi sjúkdóma.
Harmakveinið og samúðarkveðjurnar í athugasemdakerfunum voru eiginlega pínlegar. Hér einu sinni hefði bara verið sagt, hann Jón eða hún Gunna lifðu góðu lífi og voru svo lánssöm að ná svona háum aldri.
Ég hef hins vegar aldrei séð samsvarandi tilkynningar vegna þeirra sem dóu eftir þessar sprautur, jafnvel fólk á besta aldri. Er það tilviljun eða ásetningur?
En veiruhræddur almenningur tók - og tekur enn athugasemdalaust undir allan einhliða fréttaflutninginn af þessari ægilegu "drápsveiru".
Góð spurning, hvað varð um alvöru fréttamennsku?
Það má alveg setja stóra spurningu við fréttaflutning þessi misserin, og hverra hagsmuna þeir sem þær flytja, þjóna.
Ég trúi ekki lengur neinu af því sem ég sé um þennan heimsfaraldursáróður í fjölmiðlunum í dag, og hef oft furðað mig á hvers vegna Þórólfur, Kári, og öll þau sem vilja sprauta okkur öll með einhverjum tilraunabóluefnum fá endalaust drottingarviðtöl í fjölmiðlunum án nokkurra gagnrýninna spurninga.
Ekkert þeirra er spurt út í þessar fimm þúsund og eitthvað aukaverkanir eftir sprauturnar, eða andlátin í kjölfar þeirra.
Hvers vegna er þetta fólk aldrei krafið raunverulegra svara?
Eru fjölmiðlar, jafnvel RÚV sem segist vera okkar allra keyptir til þess að birta okkur ákaflega einhliða umfjöllun um þennan meinta "heimsfaraldur"?
Miðað við sannanirnar um skaðsemi þessara svokölluðu "bóluefna", sem auðvelt er að finna utan þessara ritskoðuðu fjölmiðla, samfélagsmiðla og leitarvéla, þá getur varla annað verið.
Facebook "stendur sig vel" í ritskoðuninni og bætir athugasemdum neðan við færslur sem fjalla um pestina, en það sem fæstir vita er það þessi "staðreyndavöktun" er kostuð af hagsmunaaðilum bóluefna.
Þessi mynd er tekin á mótmælum nýlega þar sem lögfræðingur fjallar um að andvana fæðingum hafi fjölgað úr 5-6 á ári í 86 á einungis 5 mánuðum síðan byrjað var að sprauta verðandi mæður.
Ákaflega ósmekkleg athugasemd um gæði og virkni þessara efna var sett undir, eins og vanalega.
Örfáar frásagnir sem birtast EKKI í fjölmiðlunum
Ég veit ekki hvað ég er búin að sjá margar þúsundir svona átakanlegra frásagna á óritskoðuðum miðlum, um allt niður í lítil börn.
Ég er sannfærð um að engir foreldrar myndu láta "bólusetja" börnin sín með þessum efnum ef þau sæju svona frásagnir, né myndi fólk láta narra sig í "örvunar"sprauturnar.
En þetta virðist allt með ráðum gert, einhvern veginn virðist eiga að koma út þessum 1,4 milljónum skömmtum af bóluefni sem við höfum skuldbundið okkur til að kaupa!
Smellið á myndirnar til að stækka þær.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2021 | 18:06
Minnisblað til sóttvarnalæknis
Þórólfur, hvernig væri að þeir sem enn eru lífhræddir út af "drápsveirunni", haldi bara áfram að....
- Spritta sig
- Nota grímur og hanska
- Stunda félagsforðun
- Vernda ömmu gömlu með því að heimsækja hana ekki
- Fara í allar framtíðar "örvunar"sprautur
.... og leyfa okkur hinum óhræddu bara að lifa okkar eðlilegu lífum?
Ég tek fulla ábyrgð á mínu lífi og heilsu, og kæri mig ekki um láta sprauta mig, heilbrigða manneskju með einhverju tilraunalyfjasulli, og hvað þá núna þegar allar spár um skaðsemi þeirra eru að koma fram.
Og ég kæri mig ekki um frekari skerðingar á frelsi mínu til lífs og starfa!
Nú ætlar þú að fara að bjóða fólki sem taldi sig vera fullbólusett, upp á smá búst, með eiturbrasinu sem búið er að tilkynna um 2.244 aukaverkanir vegna, þar af 24 andlát.
"Líklegt er að fljótlega verði hafist handa hér á landi við að bjóða öllum örvunarbólusetningu með bóluefni Pfizer segir sóttvarnalæknir í pistli sem hann birti á covid.is. Örvunarskammturinn verði veittur að minnsta kosti fimm til sex mánuðum eftir aðra bólusetningu."
Stefnirðu að því að halda okkur í höftum þangað til búið verður að sprauta okkur með þessum 1,4 milljón skömmtum af Pfizer sem búið er að skuldbinda okkur til að kaupa?
Þú sem sóttvarnalæknir veist að sjálfsögðu allt um þessar þúsundir aukaverkana eftir sprauturnar, hvers vegna ertu ekki löngu búinn að stöðva þær?
Hefurðu enga siðferðis- eða sómakennd, og hvað varð um læknaeiðinn þinn, "Fyrst, ekki skaða"?
Störfum þínum "í þágu þjóðarinnar" er hér með lokið.
Minnisblað endar.
Takmarkanir nauðsynlegar næstu mánuði eða ár
"Sóttvarnalæknir telur að samkomutakmarkanir þurfi að vera við lýði næstu mánuði eða ár. Hann vill hæfilegan milliveg til lengri tíma í stað þess að vera sífellt að herða og slaka á klónni."
Og svo segir hann langt vera í náttúrlegt hjarðónæmi! Og hvers vegna er WHO alltaf að breyta skilgreiningunni á því?
"Þar sem engin merki eru að sögn Þórólfs um að Covid sé á förum, er tillaga hans að feta milliveg í takmörkunum; ekki of mikið en ekki of lítið heldur, svo að bylgja geti tekið sig upp og yfirkeyrt sjúkrahúsin."
Er þetta allur heimsfaraldurinn?
Hugsið ykkur, í þessum ægilega "drápsfaraldri" hafa ekki nema 13.739 "greinst með smit", og það með þessum fölsku PCR prófum, svo þetta er allur faraldurinn!
Og hvað ætli mörg af þessum "smitum" hafi verið einkennalaus? Einkennaleysi er víst eitt af einkennunum!
- Vissuð þið að árið 1976 var bólusetningum hætt í USA eftir að 3 eldri borgarar létust? Nú eru þúsundir látnir þar og enn fleiri skaðaðir.
- Vissuð þið að þann 19. mars 2020 var Covid-19 skilgreint sem flensa í Bretlandi, en ekki hættulegur smitsjúkdómur?
- Eða að bresk heilbrigðisyfirvöld breyttu skilgreiningunni á hvað teljast Covid tilfelli í sumar?
- Eða hverjir fjármagna breska lyfjaeftirlitið að stóru leyti?
Góðu fréttirnar
Sem betur fer er maður farinn að sjá vaxandi óþol í samfélaginu gegn þessum endalausu aðgerðum, og eru þónokkrir þegar farnir að tjá sig um það opinberlega.
En hvað getum við gert til að stöðva þetta? Svarið er mjög einfalt, þegar við öll segjum NEI, hingað, og ekki lengra!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.11.2021 | 19:17
Gerið eins og ég segi, ekki eins og ég geri!
Hér er fantagott vídeó með Neil Oliver þar sem hann fer yfir hræsnina og tvískinnunginn í heiminum í dag.
Ríkisbubbar fljúga í einkaþotum á loftslagsráðstefnu í Glasgow með tilheyrandi útblæstri og mengun, og munu væntanlega meðal annars ræða um útrýma prumpandi beljum, yfir nautasteikinni sinni.
Fleiri sammála honum en ég!
"We are in a real sorry state of affairs when our own government are not defending the rights of its people. Sadly I believe things will get worse with more controls in place but I like you will not comply. Keep your great words of wisdom coming. You have had to sacrifice so much to do these broadcasts so thank you."
"Bill Gate talked about how everyone need to make sacrifices for climate change, but he refuse to stop flying around on his private jet, saying it would make no difference."
"Neil, you give me hope. I hope people are listening and opening their eyes to the reality in front of us. Its one big theatre production."
"Well said Neil,speaking out what the rest of us feel............I sometimes feel like we have ended up in an episode of The Twilight Zone where only i can see something is seriously wrong and nobody else see's it and they all think I'M crazy."
Grímuleikhús glóbalistanna
Hér segir: "Það má með sönnu segja að Covid-19 faraldurinn sé farinn að snúast upp í eitt stórt grímuball þar sem leiðtogar stærstu ríkja Evrópusambandsins, þau Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Angela Merkel kanslari Þýskalands fara sjálf ekki eftir þeim ströngu reglum sem þau hafa lagt á borgara sína."
One rule for thee, one for me
Og að sjálfsögðu eru ráðstefnugestir undanskildir því að þurfa að sýna bólusetningarpassa.
Karl prins er kjáni
Hér er flott samantekt á því hvernig elítan sjálf sóar orku eins og enginn sé morgundagurinn, á meðan hún prédikar yfir okkur hinum um að við verðum að spara hana.
Hefði þetta lið ekki átt að sýna gott fordæmi og halda þessa ráðstefnu á Zoom?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2021 | 17:21
Bóluefnahryðjuverk? - Setur Pfizer hagnað ofar lífum?
Mikil leynd hefur hvílt yfir þeim bóluefnasamningum sem ríkisstjórnir skrifa undir fyrir hönd þjóða sinna, og er sú íslenska þar ekki undanskilin.
Samningurinn sem mörg lönd hafa gert við lyfjarisann Pfizer, hefur lekið út á netið, og er hann vægast sagt skelfilegur!
Public Citizen, sem eru óhagnaðardrifin samtök eru með hann undir höndum og þau segja að Pfizer geti komið í veg fyrir að þjóðir tali um samningana, geti stöðvað bóluefnasendingar, einhliða breytt afhendingaráætlunum og krafist opinberra eigna sem tryggingar, verði ákvæði samningsins ekki uppfyllt.
Semsagt, Pfizer ræður öllu!
Stutt samantekt:
- Public Citizen hefur farið yfir og birt leynisamninga milli Pfizer og Albaníu, Brasilíu, Kólumbíu, Chile, Dóminíska lýðveldisins, framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Perú, Bandaríkjanna og Bretlands.
- Samningarnir sýna að þjóðirnar hafa framselt áður óþekkt vald til Pfizer, og í nánast öllum aðstæður eru hagsmunir Pfizer í fyrirrúmi.
- Sum lönd, þar á meðal Brasilía, Chile, Kólumbía, Dóminíska lýðveldið og Perú, hafa sett ríkiseignir sem tryggingu gegn málsóknum vegna aukaverkana, þar á meðal varasjóði banka, herstöðvar og sendiráðsbyggingar.
- Samningarnir tryggja ekki aðeins hugverkarétt Pfizer, heldur ef Pfizer yrði fundið sekt um að hafa stolið hugverkaréttindum annarra, færa sumir samninganna ábyrgðina yfir á ríkiskaupendur. Pfizer getur stolið hugverkum annarra án afleiðinga í að minnsta kosti fjórum löndum.
- Samningarnir veita Pfizer einnig rétt til að þagga niður í stjórnvöldum. Í Brasilíu er embættismönnum bannað að gefa "nokkrar opinberar tilkynningar um tilvist, efni eða skilmála [samningsins]" án skriflegs samþykkis fyrirtækisins. Svipuð ákvæði um þagnarskyldu eru innifalin í samningum við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og bandarísk stjórnvöld. Eini munurinn er sá að reglur um þagnarskyldu gilda um báða aðila.
Heimild - Athugið, vegna ritskoðunar og aðfarar að málfrelsi mun þessi síða verða tekin niður aðfararnótt 4. nóvember, og annað tímabundið efni sett inn.
Í þessu vídeói er farið yfir hvernig fyrirtækið kúgar lönd til að láta sprauta þegna sína.
Hún kallar þetta réttilega bóluefnahryðjuverk, og við skulum gera okkur grein fyrir að samningurinn sem skrifaður var undir fyrir Íslands hönd var gerður í gegnum Evrópusambandið, svo flest ef ekki allt ofantalið á við okkur líka!
Mannréttindasamtökin Mín leið - Mitt val eru líka með afrit af samningnum undir höndum, og fjölluðu í júlí um þennan samning sem var leyndur fyrir Alþingi og íslensku þjóðinni árið 2020.
Hér getið þið lesið ítarlega umfjöllun um hann, hlaðið honum niður, og meðal annars séð þær lagagreinar sem búið er að brjóta gegn íslensku þjóðinni, sem og ákall sem samtökin sendu alþingismönnum og ríkisstjórn Íslands þann 17. júní 2021.
Athygli vekur að ákallið vakti engin viðbrögð! nema frá umboðsmanni Alþingis sem staðfesti móttöku, og gaf því málsnúmer. Síðan hefur ekkert heyrst frá honum.
Ég birti þetta ákall líka hér í bloggfærslu sama dag:
Til alþingismanna og ríkisstjórnar Íslands
Þið hafið samkvæmt samningi ykkar við Evrópusambandið um bóluefnakaup,
sem lekið hefur verið á Netið, (sjá viðhengi) samþykkt leynilega
bóluefnatilraun á íslensku þjóðinni, án hennar vitundar. Í samningnum
stendur skýrt og greinilega:
The risk of failure is very high in this experimental trial eða
Áhættan á mistökum er mjög mikil í þessari tilraun.
Með því að samþykkja leynilega bóluefnatilraun á íslensku þjóðinni án
hennar vitundar hafið þið brotið flestar greinar Laga um
vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, Nuremberg siðareglurnar sem og
Mannréttindasáttmála Evrópusambandsins.
Alla færsluna getið þið séð hér.
Öll "bóluefnin" hafa valdið miklum skaða!
Öll "bóluefnin" sem notuð hafa verið hér á landi hafa valdið gríðarmiklum skaða, jafnvel óafturkræfum, og að allra minnsta kosti 32 andlátum.
Ekki bara hér á landi, heldur um heim allan.
Samt er haldið áfram að sprauta þessum efnum í fólk, og þann 26. október 2021 samþykkti matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna að framlengja neyðarnotkun Pfizer bóluefnis fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára!
Margir sérfræðingar vara við að þetta sé mjög vanhugsað og óþarft og muni gera mun meiri skaða en gagn, þar sem börnum stafar engin hætta af þessari veiru.
Þessar myndir eru af OpenVAERS.com, og takið sérstaklega eftir línuritinu neðst, sem sýnir andlát eftir að þessar svokölluðu "bólusetningar" byrjuðu.
Áhugaverð grein
Mjög áhugaverð grein birtist á síðunni Neistar.is þann 20. nóvember 2020, og þar segir meðal annars:
"Ferill Pfizers er ekki beint glæsilegur hvað spillingu og vafasama viðskiptahætti varðar. Þeir hafa verið fundnir sekir 80 sinnum um ýmis brot og borgað á fimmta milljarð bandaríkjadala í bætur vegna þessa (sjá hér). Pfizer er sérstaklega þekkt fyrir ágengar, villandi og óheiðarlegar kynningarherferðir, og stundað tilraunir sem leiddu til dauða tuga barna m.a. Full ástæða er til að vera tortrygginn gagnvart yfirlýsingum þessa fyrirtækis.
Gagnrýna þarf harkalega tengsl Moderna og Amgen, móðurfyrirtækis Íslenskrar Erfðagreiningar. Í sumar réð Moderna David Meline sem áður vann hjá Amgen, til að starfa sem fjárhagslegur ráðgjafi fyrir Moderna. Moderna sótti einnig Ray Jordan frá Amgen til starfa í góða stöðu. Fleira starfsfólk virðist hafa verið flutt frá Amgen til Moderna að undanförnu. Fyrr í sumar snarhækkuðu hlutabréf einmitt í Moderna, Amgen og fyrirtækinu Novavax þar sem þessi fyrirtæki voru talin líklegust til að sigra í kapphlaupinu um bóluefni gegn Covid-19."
Og í framhaldinu af þessu: Íslensk erfðagreining hagnaðist um 10,2 milljónir bandaríkjadala á síðasta ári, rúmlega 1,3 milljarða króna, á gengi dagsins, og var afkoman tífalt betri en árið áður.
Tilviljun?
Ef við skoðum það sem ég vil kalla afleiðingar inngjafa á þessu tiltekna "bóluefni", hér á landi þá eru þær þessar:
Sundurliðun tilkynninga vegna gruns um alvarlega aukaverkun í kjölfar bólusetningar, dagsett 26. október.
Comirnaty (BioNTech/Pfizer):
105 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
- 24 þeirra varða andlát. 18 andlát vörðuðu aldraða** einstaklinga, 15 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Fimm andlát vörðuðu eldri*** einstaklinga, fjórir þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling á aldursbilinu 60-64 ára með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
- 56 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af níu lífshættulegt ástand).
- 16 tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar****.
- Fjórar tilkynningar teljast alvarlegar, þar sem beðið er eftir viðbótar upplýsingum.
- Fimm tilkynningar varða fósturmiska.
Og í dag, þriðjudaginn 2. nóvember 2021 er búið að tilkynna um samtals 5.501 aukaverkun vegna "bóluefnanna", þar af 2.242 vegna Pfizer.
Hvers vegna er ekki löngu búið að stöðva þetta?
Í ljósi alls þessa ætti að sjálfsögðu hafa verið löngu búið að stöðva allar "bólusetningar", og alls ekki hvetja fólk til að fara í "örvunar"sprautur.
Og takið eftir, hvorki sóttvarnalæknir, landlæknir, Kári, Svandís né aðrir hafa mikið tjáð sig um aukaverkanirnar, ef nokkuð, heldur hvetur fólk núna til að fá sér enn eina sprautu.
Langflestar aukaverkanir eru talaðar niður og sagt að lítið sem engin tenging sé þarna á milli, eins og ég fjallaði um hér, og hér, og aldrei eru birtar kertum skreyttar fréttir í fjölmiðlunum þegar einhver deyr eftir sprauturnar, bara þegar einhver "deyr úr" pestinni.
Það er alveg ljóst að það stendur ekkert til að hætta að sprauta þessum efnum í fólk, enda er búið að tryggja okkur 1,4 milljónir skammta af Pfizer fyrir næstu tvö ár!
Er ekki hægt að stöðva þetta vegna einhverra þessara skelfilegu ákvæða í bóluefnasamningunum sem skrifað var undir fyrir hönd þjóðarinnar?
Bloggar | Breytt 3.11.2021 kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Nú er víst enn ein bylgjan á hraðri uppleið hjá einni mest sprautuðu þjóð í heimi. Fáir virðast setja spurningamerki við hvernig á því geti staðið, og flykkjast í sýnatökur í þúsundavís eins og enginn sé morgundagurinn, þar með talið fólk, hvers aðgöngumiði í afmæli er neikvætt próf.
"Á heilsugæsluna við Suðurlandsbraut hefur verið stríður straumur fólks á leið í hraðpróf alla helgina. Í kringum þrjú þúsund manns hafa fengið svona pinna upp í nefið og það venst seint. Ég er að fara í fimmtugsafmæli í kvöld. Það var ætlast til þess að allir færu í próf, segir Auður Gunnarsdóttir."
Verkefnastjóri farsóttarnefndar Landspítala segir til skoðunar að færa spítalann aftur á hættustig og kallar eftir hertum sóttvarnaaðgerðum, að minnsta kosti grímuskyldu.
Hún ætti kannski að spyrja Macron og Merkel hvort grímur geri eitthvað gagn? Þau myndu skella uppúr og segja nei auðvitað ekki, þær eru bara tákn um undirgefni og hlýðni við yfirvaldið.
Við setjum þær bara á okkur fyrir myndavélarnar.
Allar smittölur á uppleið - 96 greindust í gær
Víðir er mættur aftur til leiks:
Við erum búin að gera þetta svo oft. Slaka á og þurfa að herða. Ég veit ekki hvað við ætlum að gera þetta oft áður en við finnum einhverja leið sem verður þess valdandi að við getum haldið fjölda smita þannig við ráðum við það. Þegar við vorum með 40-50 smit þá gekk þetta ágætlega ég held að það sé lína sem við þurfum að horfa til.
Það er eftirtektarvert (en kemur samt ekki á óvart) að fréttakonan Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir spyr hann ekki einnar einustu krefjandi spurningar, eins og til dæmis hvernig staðið geti á þessu þrátt fyrir að stærsti hluti þjóðarinnar er þegar tví- eða þrísprautaður og ætti því að vera búinn að fá vernd eins og lofað var.
Hann ætti að geta svarað þessu þótt hann sé ekki læknismenntaður, enda er hann innanbúðarmaður sem hefur hingað til haft nægilega mikla "þekkingu" til að geta skammað okkur og hrætt okkur upp úr skónum "þegar þörf hefur verið á".
Treystið vísindunum, er okkur sagt
"Vísindin" eru búin að taka ansi mörg heljarstökk síðan "heimsfaraldurinn" byrjaði, og þá alltaf í þá átt að réttlæta þessar svokölluðu "bólusetningar", skella öllu í lás og setja á grímuskyldu.
Mér datt í hug að renna í gegn um færslulistann minn og finna nokkrar færslur um tengd efni, svona ef einhver hefur áhuga á að lesa.
- Þann 19. mars 2020 var Covid-19 skilgreint sem flensa í Bretlandi, en ekki hættulegur smitsjúkdómur
- Hvers vegna er WHO alltaf að breyta skilgreiningunni á hjarðónæmi?
- Bresk heilbrigðisyfirvöld breyta allt í einu núna skilgreiningunni á hvað teljast Covid tilfelli
- Fauskurinn, grímurnar og vísindin.
- Þórólfur og "vísindin", þið getið hafa fengið pestina án þess að veikjast, og jafnvel vitið ekki af því
- Hvernig bóluefnin voru samþykkt með sviksamlegum hætti, að mati Dr. Michael Yeadon
- Þetta er bara pólitík í læknisleik, trúðu engu af því sem búið er að segja þér
Við lifum nú á tímum stórkostlegra blekkinga og hræsni. Okkur almúganum eru settar reglur og skorður sem elítan og glóbalistarnir eru undanþegin.
Loftslagsráðstefnugestir í Glasgow eru undanþegnir reglum um bólusetningarvottorð, og við Íslendingar erum að sjálfsögðu "stórasta land í heimi" og þurfum að senda 50 manns á þessa ráðstefnu.
Boris og frú setja upp smá leikrit og skella grímunni á sig á leið upp í einkaþotu á ráðstefnu í Róm um loftslagsmálin, og Kalli prins fer á sinni einkaþotu til Rómar, og þaðan til Glasgow í sömu þotu.
Hann hefur víst mjög miklar áhyggjur af seinaganginum í loftslagsmálunum.....
Svo trúa Íslendingar enn að við séum í miðjum heimsfaraldri, finnst ekkert óeðlilegt að þurfa að fara í sýnatökur til að mega fara í afmæli, og eru farnir að nota þessar súrefnisheftandi munnbleyjur aftur.
Þetta eru að öllum líkindum þeir sem eru þegar búnir að láta tví- eða þrísprauta sig en eru enn skíthræddir við einhverja veiru, því þeim er sagt að vera það.
Við hreykjum okkur af því að vera vel menntuð og vel lesin þjóð, en erum þvert á móti sofandi sauðir upp til hópa, og það er því miður bara sorgleg staðreynd.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.10.2021 | 15:51
Enn meiri sönnun um að þessi svokallaði "heimsfaraldur" sé byggður á lygum
Það eru margir fílar í herberginu með tilliti til opinberrar umræðu um þennan meinta heimsfaraldur. Kannski er óvissan í kringum hvort þessi "drápsveira" sé yfirhöfuð til, stærsti fíllinn.
Margir vísindamenn vita um þetta, en þora ekki að minnast á það af ótta við rógsherferðir gegn sér, eins og allir þeir sem hafa dirfst það hingað til hafa orðið fyrir.
Hér er frábært viðtal við Dr. Kevin P. Corbett sem er sérhæfður hjúkrunarfræðingur, heilbrigðissérfræðingur, og kennari fólks í heilbrigðisstéttum.
Hann hefur rannsakað reynslu fólks af læknisfræðilegri greiningu og meðferð við langvinnum heilsufarssjúkdómum, þar á meðal HIV og alnæmi. Hann hefur starfað við sjúkrahús, samfélags- og réttarlæknisþjónustu síðan 1983, og við rannsóknir í heilbrigðisvísindum síðan 1987.
Í þessu einstaka viðtali hans við Dr. Kevin Corbett ræðir hann um meinta einangrun og hreinsun "drápsveirunnar", virkni PCR prófanna, sögulegar hliðstæður Covid-19 við HIV/Alnæmi, aðrar farsóttir og svo margt fleira.
Þegar maður horfir og hlustar á Kevin, þá veit maður að hann er að segja sannleikann, og honum er slétt sama hvort hann verði opinberlega rægður fyrir það sem hann segir, það þarf bara að segja sannleikann segir hann.
Þú veist að eitthvað mikið er að þegar vísindin eru ritskoðuð.
Vírusinn hefur aldrei verið einangraður, vísindamenn höfðu einhverja búta úr erfðafræðilegum kóða veiru sem þeir notuðu til að gera tölvulíkan af því sem okkur er sagt að sé þessi drápsveira.
Á grunni þessa tölvulíkans er PCR prófið notað eins og það er gert í dag.
Og hér er það viðurkennt af Maria Zambon hjá The Imperial College of London.
Einhver tiltekinn vírus er sagður valda tilteknum veikindum, niðurstaða úr jákvæðu PCR prófi plús mínus nokkur einkenni sem eiga við alls konar aðrar veirusýkingar er úrskurðað sem smit af völdum "drápsvírussins".
Jafnvel án nokkurra einkenna er niðurstaða úr jákvæðu prófi skilgreint sem "smit". Semsagt, þótt maður sé einkennalaus og fullfrískur, þá telst maður samt "með smit".
Það er fáránlegt að þetta sé látið viðgangast segir hann, en læknum hefur verið sagt að fara eftir þessum skilgreiningum.
Þessi kafli viðtalsins er mjög áhugaverður, og þar kemur meðal annars fram að heilbrigðismálum í Bretlandi sé í raun stjórnað af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Það má líka velta fyrir sér hvort það sama eigi sér stað hér á landi, Þórólfur hefur oftar en einu sinni sagt að hann fylgi tilmælum þessarar stofnunar, samanber þegar hann sagði í fyrra að grímur gerðu ekkert gagn, en svo komu víst einhver ný "vísindi" fram þar sem sögðu að þær gerðu mikið gagn.
Greining á "smiti" skuli ekki byggjast á einangrun veirunnar. Tilmæli til ríkisstjórna heimsins, ekki hafa fyrir því að einangra hann, treystið okkur bara.
22 virtir vísindamenn birtu vandaða grein sem fjallar um galla þessara PCR prófa, sem geta framkallað falskar jákvæðar niðurstöður.
Þessari grein var hafnað af Eurosurveillance (auðvitað!), því stofnanir gera allt sem þær geta til að varðveita orðstír sinn.
Hann segir líka að hefðu niðurstöður þessarar rannsóknar verið samþykktar, þá hefði það þýtt mikið tekjutap fyrir þá sem eru þegar búnir að græða milljarða á þessum prófum.
Þetta snýst ekki um vísindi, heldur peninga og völd.
Svona er farið að þessu
Þú byggir upp hræðslu í samfélaginu við einhvern vírus, sjúkdóm og hræðslu við dauða, og þú viðheldur honum með áróðri sem er búinn til af atferlisfræðingum sem búa til allar myndrænu auglýsingarnar sem kynda undir óttann (hér talar hann um Bretland).
Allt er tengt dauðanum, um að þú getir náð þér í eitthvað sem getur drepið þig, allt gert að skapa og viðhalda hræðslu, við verðum að vernda ömmu gömlu og svo framvegis, þetta þekkjum við líka hér á landi.
Þetta hefur verið gert áður segir hann, og nefnir SMON faraldurinn sem gekk yfir Japan á áttunda áratugnum, þar sem hundruðir manns létust.
En það sem raunverulega gerðist var, að fólk lést af afleiðingum niðurgangslyfs, ekki neinnar veiru.
Svo þetta er ekki í fyrsta tilfelli misráðinna vísinda segir hann.
Í dag sé heilsufarssaga fólks ekki könnuð, hvort það hafi alvarlega undirliggjandi sjúkdóma, heldur sé nóg að fólk hafi almenn einkenni eins og kvef, hita og hósta, til að það sé úrskurðað með veiruna í sér.
Hann fjallar líka um HIV/Alnæmis faraldurinn á sínum tíma, sem skapaði mörgum mikil auðævi, og ber hann saman við núverandi "heimsfaraldur", mjög merkileg frásögn!
Hann fer líka í gegnum ferlið sem leiddi til þess að þessi próf fóru á hraðferð í gegnum kerfið, í stað margra ára prófana (eins og við þekkjum með þessi svokölluðu "bóluefni"), og var veitt neyðarleyfi.
Og, eins og ég hef oft bloggað um, þá hefur einhverjum faraldri verið viðhaldið með fölskum jákvæðum niðurstöðum sem hefur sent börn og fullorðna í lengri eða skemmri einangranir og/eða sóttkvíar.
Þetta er falskur faraldur, vírusinn hefur aldrei verið einangraður, og búinn var til sjúkdómur sem er skilgreindur út frá svo almennum einkennum að hann geti í raun verið hvað sem er, segir hann.
Þetta frábæra viðtal við hann er gott framhald af blogginu mínu í gær, þar sem ég fjalla um að þessi svokallaði heimsfaraldur sé byggður á lygum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
29.10.2021 | 16:06
Svínaflensan 2009, og "heimsfaraldurinn" sem er byggður á tómum lygum!
Það mætti halda að aldrei hafi gengið yfir pestarfaraldrar fyrr en undanfarin tæp tvö ár, en við erum svo fljót að gleyma. Sannleikurinn er samt sá að við fáum pestir yfir okkur á hverju einasta ári, og stundum mjög skæðar þar sem fólk getur átt í langvinnum veikindum og eftirköstum eftir þær, og jafnvel látist.
En reyndar ákvað gamla góða flensan af stakri kurteisi að taka sér frí í fyrra og hætti að greinast eftir að "drápsveiran mikla" kom upp.
Ég rakst á frábæra grein í gær, þar sem meðal annars er farið yfir þennan "yfirstandandi heimsfaraldur", fölsku PCR prófin, og að svínaflensufaraldurinn 2009 hefði bara verið flensa (kannski þó í skæðari kantinum).
"One thing we now know for certain, there never was a pandemic. There was the illusion of a pandemic created by the PCR testing fraud. The mass testing of millions of healthy people which produced millions of false positives. In unison with a campaign of fear promoted by governments through the media."
Ég sendi fyrirspurn til Landlæknisembættisins fyrr á þessu ári og spurði meðal annars um hversu margir snúningar væru notaðir á PCR prófum hér á landi, og svarið var 40 snúningar.
Þetta þýðir bara að Þórólfur hefur, eins og margir kollegar hans í öðrum löndum viðhaldið fölskum faraldri hér á landi á grunni þessara prófa.
Og látið það síast inn í kollinn á ykkur! Það er búið að halda fólki bæði hér á landi og annars staðar í skefjalausum ótta við einhverja veiru, með prófum sem gefa allt að 97% falskar jákvæðar niðurstöður eins og þau eru notuð!
Samtíminn
Berið gömlu fréttirnar hér fyrir neðan saman við fréttaflutninginn í dag, og þessar endalausu fréttir um "ný smit" og annan hræðsluáróður.
Og nú er verið að hræða foreldra ungra barna, enda stendur til að byrja að sprauta börn á aldrinum 5-11 ára á næstunni.
En eins og sjá má af þessum gömlu fréttum, þá voru börn niður í 0 ára líka að veikjast þá.
Þórólfur er farinn að blogga, og segir í dag meðal annars: "Ákvörðun um bólusetningu barna yngri en 12 ára hefur ekki verið tekin enda hafa engin bóluefni verið samþykkt hér á landi fyrir börn á þeim aldri. Bóluefni frá Pfizer er nú umsóknarferli hjá Lyfjastofnun Evrópu og er von á niðurstöðu í desember 2021."
Hann vill semsagt sprauta 5-11 ára börn með eiturglundrinu sem hefur valdið samtals 2.234 aukaverkunum hér á landi, sem skiptast svona:
Comirnaty (BioNTech/Pfizer):
105 alvarlegar tilkynningar hafa borist.
- 24 þeirra varða andlát. 18 andlát vörðuðu aldraða** einstaklinga, 15 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Fimm andlát vörðuðu eldri*** einstaklinga, fjórir þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling á aldursbilinu 60-64 ára með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
- 56 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af níu lífshættulegt ástand).
- 16 tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar****.
- Fjórar tilkynningar teljast alvarlegar, þar sem beðið er eftir viðbótar upplýsingum.
- Fimm tilkynningar varða fósturmiska.
Þetta vill hann gera þrátt fyrir að búið sé að tilkynna um 68 aukaverkanir hjá 12-17 ára börnum hér á landi, þar af 8 alvarlegar!
Alvarlegar aukaverkanir á sænskum börnum og ungmennum eru farnar að koma fram, eitt barn er látið og 101 með lífshættulegan skaða.
Uppfærsla: Ný frétt á Fréttin.is sem ber yfirskriftina "Leiðrétting eða lygaáróður fyrir frekari bólusetningum barna?".
Er þessi maður bara samviskulaus þrjótur?
Fréttir í fjölmiðlum dagana 31. október - 2. nóvember 2009
Fjörutíu á Landspítalanum vegna svínaflensu
"Fjörutíu manns liggja á Landspítalanum vegna svínaflensunnar þar af tíu á gjörgæslu. Flestir sem eru á gjörgæslu eru um fimmtugt, yngsti sjúklingurinn er tveggja ára og sá elsti um áttrætt.
Sex nýir voru lagðir inn á spítalann í gær. Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segist ekki sjá að flensan sé í rénun"
Aldrei fleiri flensusjúklingar á spítala
"Aldrei hafa fleiri legið inni á Landspítala af völdum svínaflensu en í gær. Þá höfðu átta nýir lagst inn en enginn verið útskrifaður. Samtals voru 43 inniliggjandi, þar af ellefu á gjörgæslu. Yngsti gjörgæslusjúklingurinn var tveggja ára en sá elsti rúmlega áttræður."
"Á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru þrír inflúensusjúklingar í gær, enginn þeirra á gjörgæsludeild. Langflest inflúensutilfelli hérlendis, undanfarna daga og vikur, greinast hjá börnum á aldrinum 0 til 9 ára, að því er fram kemur í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Þetta er marktæk breyting frá því í júlí og ágúst þegar flestir sem veiktust voru á aldrinum 15 til 30 ára."
Aldrei fleiri á spítala með svínaflensu
"Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu en 45 sjúklingar liggja þar nú, þar af ellefu á gjörgæslu. Undanfarna daga hafa borist fréttir af því að flensan sé í rénun en í dag var tekin ákvörðun um að hafa spítalann áfram á svokölluðu virkjunarstigi."
Flensan gæti enn átt eftir að versna
"Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu. Þar liggja nú 45 sjúklingar með flesuna, þar af ellefu á gjörgæsludeild. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að hann eigi von á því að í vikunni komi í ljós hvort flensan eigi enn eftir að versna eða hvort nú muni loks fara draga úr henni.
Svo gæti farið að um 100 manns til viðbótar þyrftu að leggjast inn. Þar með gætu sjúklingar á gjörgæsludeild orðið allt að þrjátíu talsins en að jafnaði hefur fólk, þungt haldið af svínaflensu, þurft að dvelja þar í þrjá til fjórar vikur. Spítalann segir hann þó geta annað slíku álagi."
Tíu á gjörgæslu vegna svínaflensu
"Tíu sjúklingar liggja á gjörgæsludeild Landspítalans vegna svínaflensu eða H1N1 inflúensunnar. 39 eru inniliggjandi á spítalanum vegna flensunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá farsóttarnefnd spítalans.
Þar kemur jafnframt fram að frá því í gær hafi einn sjúklingur verið útskrifaður af gjörgæslu en einn nýr lagst þar inn. Á hádegi í gær voru 45 sjúklingar inniliggjandi á spítalanum og þar af 11 á gjörgæslu."
Þessi heiðursorðuhafi er lengi búinn að ljúga að þjóðinni
Engu var á þessum tíma skellt í lás, engir settir í einangranir og sóttkvíar eða skipað að nota grímur, en allir hvattir til að láta sprauta sig gegn pestinni, og það gerði meðal annars núverandi sóttvarnalæknir.
Þarna árið 2009 sagði hann: Aukaverkanir af bólusetningu gegn svínaflensu eru mjög litlar miðað við hættuna af veirunni sjálfri. Ansi kunnugleg mantra!
Samt sem áður urðu að minnsta kosti þrjár ungar stúlkur öryrkjar fyrir lífstíð hér á landi, og hundruðir annarra ungmenna í öðrum löndum.
Svo sagði hann í viðtali í upphafi núverandi "heimsfaraldurs" að tryggja þurfi að nýtt bóluefni valdi ekki skaða.
Honum hefur tekist það svona líka ljómandi vel, finnst ykkur það ekki?
Inga Halldórsdóttir birti mjög góða bloggfærslu í dag um hvað liggur að baki þessum blekkingum, og ég er búin að horfa á mörg vídeó með þessum sérfræðingum sem hún vísar í.
Og hún hefur skrifað mörg góð blogg þar sem hún kafar djúpt ofan í það sem verið er að gera heimsbyggðinni núna, kíkið endilega á þau!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)